Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.08.1898, Page 2
174
ÞjÓBVrLJTNN TJNSI.
fyrir íslands hönd, þakkað gjöfina á ný
í langri ræðu, og meðal annars kveðið
svo að orði, að „hið ytra samband — þ.
e. póstsambandið — milli kenungsrikis-
ins og íslands væri að vísu all-viðunandi,
en hið innra hefði sambandið aptur á
móti eigi verið að óskum. — En nú hefði
oddfellow-reglan leitt til Islands hjartn-
anna heita Golfstraum, sem óefað myndi
styrkja vináttubandið milli hjálendunn-
ar(!!) og móðurlandsins(!!), og vera gott
dæmi til eptirbreytni“.
Að slepptum hjálendu- og inóðurlands-
titlunum(!!), sem flestir íslendingar munu
afþakka, sýnast því hr. deildarstjóranum
að hafa farizt all-vel og röksamlega orð,
og væri sórlega æskilegt, að sjálfur hann,
og dansk-íslenzka ráðaneytið yfir höfuð,
vildu festa sór síðustu orð ræðunnar í
huga, að taka dæmi oddfélaga til eptir-
breytni, og hætta, með einræðis og gjör-
ræðisverkum, að veita hingað þeim hat-
ursins og óánægjunnar pólstraumum, sem
hindrað hafa til þessa allt sannarlegt
bræðraþel milli frændþjóðanna, Dana og
íslendinga.
En því miður er hætt við, að reynzl-
an kunni að sýna, að þessi orð deildar-
stjórans hafi verið veizluhjal, og ekkert
annað.
Þingyallafundarleysið.
Ekki batna undirtektirnar undir Þing-
vallafundarhaldið, heldur virðist mönnum
verða það æ ljósara, því nær sem dregur
fundardegi, að slíkt fundarhald só gagn-
laust, eins og nú stendur.
Það eru tvö kjördæmi að eins, sem
heyrzt hefur, að sýnt hafi nokkra við-
leitni á þvi, að sinna fundarboðinu, og
í báðum stöðum tekizt svo ambögulega,
að fundarboðendurnir sjálfir myndu mik-
ið hafa viljað til gefa, að menn í þeim
kjördæmum hefðu heldur látið neyðaróp
þeirra afskiptalaus með öllu.
Það eru Rangvellingar og Norður-
Þingeyingar, kjósendur þeirra S’iyhv.
Arnasonar og Ben. Sveinssonar, sem brugð-
ið hafa á leik.
Kusu Rangvellingar kjörmenn í öll-
um hreppum, nema einum, og sendu þá
síðan á fund að Stórólfshvoli 21. júlí, til
þess að láta þá kveiía þar upp það álit
kjördœmisins, að Þingvallafundarhoðinu
vasri að engu sinnandi, og riðu því allir
kjörmennirnir heim af fundinum, án þess
að kjósa nokkurn til Þingvallafarar(!;!).
Norður-Þingeyingar höfðu aptur á
móti eigi undirbúninginn jafn skipu-
legan, sem Rangvellingar, slepptu að
mestu kjörmanna kosningunum, en á hinn
bóginn kvað einhveijum kunningjuin
Be7i. Sveinssonar þar nyrðra hafa komið
ásamt um, að rótt væri að gera það fyr-
ir karlinn, að láta einhvern mæta, of
kjördæmið þyrfti engu til að kosta (!!), og
kvað því hafa beðið mann einn j. Reykja-
vík (Einar, son Bbnedikts?), að ríða aust-
ur að Þingvöllum, Norður-Þingeyingura
þó að kostnaðarlausu, ef til fundarhalds
kæmi.
Þarf því vart að efa, að gjörðar vorði
spaklegar og einhljóða ályktanir á Þing-
vallafundinum, ef þessi eini dráttur mæt-
ir þar(!)
En í alvöru talað, skyldi oss eigi
furða, þó að fundarboðendumir færu nú
að sjá það iir þessu, að hyggilegra myndi
þeim, að hafa farið að ráðum „Þjóðv.
unga“, að kalla fundarboðið apturítíma,
on að þreyta þetta mál til kapps, jafn
augljós sem forlög fundarboðs þeirra voru
þegar í byrjun.
Læknisembættið við holdsveikraspitalann er
nú veitt Sœmundi Bjarnhédinssyni, iækni Skag-
íirðinga. — Auk hans sóttu: héraðslæknarnir
Þórður .T. Thoroddsen í Ketíavík og Þorgrimur
Þórðarson á Borgum, og aukalseknir Kristján
Kristjánsson á Seyðisfirði. — Þykir veiting
þessi ný sönnun fyrir hlutdrægni þeirri, er
Hafnarstjórnin sýnir, háskólanum i vil, og fyrir
lítilsvirðingu þeirri, er hún sýnir vorum inn-
íendu menntastofnunum, þar sem eins árs gam-
ali kandídat frá háskólanum, með fremur lóleg-
um vitnisburði, er tekinn fram ytír mai’graára
gamla, reynda liéraðslækna, með mikið beti'i
vitnisburði frá læknaskóla vorum.
Skyldi monsjer A. Dyhdal, sem því miður
ræður vitanloga mjög mikln um málef'ni íslands
á þessum tímum, álíta slíka Jítilsvirðingu á
menntastofnunum þjóðar vorrar rétta veginn;
til þess að styrkja það vináttusamband milli
íslands og Danmerkur, sem liann er að fleipra
um i átveisdum í Kaupmannahöfn?
Só svo, þá skjátlast þeim pilti i því, sem
fleiru.
Vígsla í»g al'hending holdsveikraspitalans.
í f. m. kom dr. Petrus Beyer, stórmeistari eða
stórsír danskra oddfélaga, og 4 aðrir félagsbræð-
ur hans, til fteykjavíkur, og var holdsveikra-
spltalinn í Laugarnesi, sem enn er þó hvergi
nærri f'ullgjör, hátíðlega vígður, og afhentur
landinu til eignar, 27. f. m. — Var þar kvæði
sungið, er ort hafði Steingrímur Thnrsteinson
skáld', og að því loknu flutti dr. Petrus Beyer
VII, 44.
snjalla ræðu, vfgði spítalann með ýmsum „cero-
rnoníum11, sem oddfólögum er títt, og afhenti
hann landshofðingja, sem æðsta valdsinanni hér-
lendum; en landshöfðingi og amtmaður þökkuðu
siðan með ræðustúfum.
Lækmifunduriim, sem samkvæmt fundarboði
landlæknis átti að haldast í Keykjavík 25. f. m.,
fórst fyrir, með því að örfáir læknar sóttu
fundinn.
-------------
ísafirði 0. cigúst ’98.
Tíð hefir nú um hríð verið mjög rigninga-
og kalza-söm, svo að jafn vel snjóaði á fjöll að-
faranóttina 4. þ. m. — Líkist veðrið miklu f'rem-
ur kalzasömum haustdegi, en sumardegi. — í
dag or þó aptur blítt veður.
Strandferðaskipið „Vesta", skipstjóri Cor-
fitzon, kom hingað á norðurleið að kvöldi 2. þ.
m., og fór héðan aptur daginn eptir. — Með
skipinu kom Thor kaupm. Jensen frá Akranesi,
hóraðslæknir Þorv. Jónsson, er f'arið hafði til
Keykjavíkur, til að sækja læknafundinn, ungffú
Halldóra Jakobsdóttir frá Ögri, sem dvalið hefir
f Kaupmannahöfn, síðan í fyrra, o. tí.
Til sölu
fæst stór, áttróinn sexæringur, orðlagur
að gæðum til áferða. — Yerður seldur
með góðum kjörum. — Semja má við
Oísla Oddsson á Lækjarósi.
Norsk Margarin
fra
Aug. Pellerin Fils & Co.
Christiania.
j" in'i..) i'i^nwi n'i i m m n i iiinrrpn m 1111.
Moderfabriken for hele
Margarin-Industrien
í SCANDINAVIEN.
Gvilcl IVIocíniIIer.
................
Sammenligning af Margarinsmör og MeierÍ9mör.
Fra Stadskemikcrens Lahoratoriuni.
Christiania, den 2'8Ae Mai 1897.
D’herrer
Christiania.
Ifólge Deres Anmodning er der ind-
kjoht gjennem Bureauetpaa forskjelligeSteder
í Byen Prover af Deres Margarinsmör
Kvalitet S. 0. M. og af norsk Meierismör.
Resultat af undersögels'en:
Margarinsmör. Meierismör.
Ijugt, Smag J'risk
Fedt 86,47 ptc. 86,87 pct.
Ostcstof 0,75 — 0,59 —
Melkhsukker 0,96 — 0.76 —
Mineralskt Stoffe 1('kok"»U)J 8,88 — 2,28 —
Vand 7,99 — 10,00 ~
ioofoo. ~~100.00.' '
L. Schemelck.