Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.08.1898, Síða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.08.1898, Síða 2
174 ÞjÓBVrLJTNN TJNSI. fyrir íslands hönd, þakkað gjöfina á ný í langri ræðu, og meðal annars kveðið svo að orði, að „hið ytra samband — þ. e. póstsambandið — milli kenungsrikis- ins og íslands væri að vísu all-viðunandi, en hið innra hefði sambandið aptur á móti eigi verið að óskum. — En nú hefði oddfellow-reglan leitt til Islands hjartn- anna heita Golfstraum, sem óefað myndi styrkja vináttubandið milli hjálendunn- ar(!!) og móðurlandsins(!!), og vera gott dæmi til eptirbreytni“. Að slepptum hjálendu- og inóðurlands- titlunum(!!), sem flestir íslendingar munu afþakka, sýnast því hr. deildarstjóranum að hafa farizt all-vel og röksamlega orð, og væri sórlega æskilegt, að sjálfur hann, og dansk-íslenzka ráðaneytið yfir höfuð, vildu festa sór síðustu orð ræðunnar í huga, að taka dæmi oddfélaga til eptir- breytni, og hætta, með einræðis og gjör- ræðisverkum, að veita hingað þeim hat- ursins og óánægjunnar pólstraumum, sem hindrað hafa til þessa allt sannarlegt bræðraþel milli frændþjóðanna, Dana og íslendinga. En því miður er hætt við, að reynzl- an kunni að sýna, að þessi orð deildar- stjórans hafi verið veizluhjal, og ekkert annað. Þingyallafundarleysið. Ekki batna undirtektirnar undir Þing- vallafundarhaldið, heldur virðist mönnum verða það æ ljósara, því nær sem dregur fundardegi, að slíkt fundarhald só gagn- laust, eins og nú stendur. Það eru tvö kjördæmi að eins, sem heyrzt hefur, að sýnt hafi nokkra við- leitni á þvi, að sinna fundarboðinu, og í báðum stöðum tekizt svo ambögulega, að fundarboðendurnir sjálfir myndu mik- ið hafa viljað til gefa, að menn í þeim kjördæmum hefðu heldur látið neyðaróp þeirra afskiptalaus með öllu. Það eru Rangvellingar og Norður- Þingeyingar, kjósendur þeirra S’iyhv. Arnasonar og Ben. Sveinssonar, sem brugð- ið hafa á leik. Kusu Rangvellingar kjörmenn í öll- um hreppum, nema einum, og sendu þá síðan á fund að Stórólfshvoli 21. júlí, til þess að láta þá kveiía þar upp það álit kjördœmisins, að Þingvallafundarhoðinu vasri að engu sinnandi, og riðu því allir kjörmennirnir heim af fundinum, án þess að kjósa nokkurn til Þingvallafarar(!;!). Norður-Þingeyingar höfðu aptur á móti eigi undirbúninginn jafn skipu- legan, sem Rangvellingar, slepptu að mestu kjörmanna kosningunum, en á hinn bóginn kvað einhveijum kunningjuin Be7i. Sveinssonar þar nyrðra hafa komið ásamt um, að rótt væri að gera það fyr- ir karlinn, að láta einhvern mæta, of kjördæmið þyrfti engu til að kosta (!!), og kvað því hafa beðið mann einn j. Reykja- vík (Einar, son Bbnedikts?), að ríða aust- ur að Þingvöllum, Norður-Þingeyingura þó að kostnaðarlausu, ef til fundarhalds kæmi. Þarf því vart að efa, að gjörðar vorði spaklegar og einhljóða ályktanir á Þing- vallafundinum, ef þessi eini dráttur mæt- ir þar(!) En í alvöru talað, skyldi oss eigi furða, þó að fundarboðendumir færu nú að sjá það iir þessu, að hyggilegra myndi þeim, að hafa farið að ráðum „Þjóðv. unga“, að kalla fundarboðið apturítíma, on að þreyta þetta mál til kapps, jafn augljós sem forlög fundarboðs þeirra voru þegar í byrjun. Læknisembættið við holdsveikraspitalann er nú veitt Sœmundi Bjarnhédinssyni, iækni Skag- íirðinga. — Auk hans sóttu: héraðslæknarnir Þórður .T. Thoroddsen í Ketíavík og Þorgrimur Þórðarson á Borgum, og aukalseknir Kristján Kristjánsson á Seyðisfirði. — Þykir veiting þessi ný sönnun fyrir hlutdrægni þeirri, er Hafnarstjórnin sýnir, háskólanum i vil, og fyrir lítilsvirðingu þeirri, er hún sýnir vorum inn- íendu menntastofnunum, þar sem eins árs gam- ali kandídat frá háskólanum, með fremur lóleg- um vitnisburði, er tekinn fram ytír mai’graára gamla, reynda liéraðslækna, með mikið beti'i vitnisburði frá læknaskóla vorum. Skyldi monsjer A. Dyhdal, sem því miður ræður vitanloga mjög mikln um málef'ni íslands á þessum tímum, álíta slíka Jítilsvirðingu á menntastofnunum þjóðar vorrar rétta veginn; til þess að styrkja það vináttusamband milli íslands og Danmerkur, sem liann er að fleipra um i átveisdum í Kaupmannahöfn? Só svo, þá skjátlast þeim pilti i því, sem fleiru. Vígsla í»g al'hending holdsveikraspitalans. í f. m. kom dr. Petrus Beyer, stórmeistari eða stórsír danskra oddfélaga, og 4 aðrir félagsbræð- ur hans, til fteykjavíkur, og var holdsveikra- spltalinn í Laugarnesi, sem enn er þó hvergi nærri f'ullgjör, hátíðlega vígður, og afhentur landinu til eignar, 27. f. m. — Var þar kvæði sungið, er ort hafði Steingrímur Thnrsteinson skáld', og að því loknu flutti dr. Petrus Beyer VII, 44. snjalla ræðu, vfgði spítalann með ýmsum „cero- rnoníum11, sem oddfólögum er títt, og afhenti hann landshofðingja, sem æðsta valdsinanni hér- lendum; en landshöfðingi og amtmaður þökkuðu siðan með ræðustúfum. Lækmifunduriim, sem samkvæmt fundarboði landlæknis átti að haldast í Keykjavík 25. f. m., fórst fyrir, með því að örfáir læknar sóttu fundinn. ------------- ísafirði 0. cigúst ’98. Tíð hefir nú um hríð verið mjög rigninga- og kalza-söm, svo að jafn vel snjóaði á fjöll að- faranóttina 4. þ. m. — Líkist veðrið miklu f'rem- ur kalzasömum haustdegi, en sumardegi. — í dag or þó aptur blítt veður. Strandferðaskipið „Vesta", skipstjóri Cor- fitzon, kom hingað á norðurleið að kvöldi 2. þ. m., og fór héðan aptur daginn eptir. — Með skipinu kom Thor kaupm. Jensen frá Akranesi, hóraðslæknir Þorv. Jónsson, er f'arið hafði til Keykjavíkur, til að sækja læknafundinn, ungffú Halldóra Jakobsdóttir frá Ögri, sem dvalið hefir f Kaupmannahöfn, síðan í fyrra, o. tí. Til sölu fæst stór, áttróinn sexæringur, orðlagur að gæðum til áferða. — Yerður seldur með góðum kjörum. — Semja má við Oísla Oddsson á Lækjarósi. Norsk Margarin fra Aug. Pellerin Fils & Co. Christiania. j" in'i..) i'i^nwi n'i i m m n i iiinrrpn m 1111. Moderfabriken for hele Margarin-Industrien í SCANDINAVIEN. Gvilcl IVIocíniIIer. ................ Sammenligning af Margarinsmör og MeierÍ9mör. Fra Stadskemikcrens Lahoratoriuni. Christiania, den 2'8Ae Mai 1897. D’herrer Christiania. Ifólge Deres Anmodning er der ind- kjoht gjennem Bureauetpaa forskjelligeSteder í Byen Prover af Deres Margarinsmör Kvalitet S. 0. M. og af norsk Meierismör. Resultat af undersögels'en: Margarinsmör. Meierismör. Ijugt, Smag J'risk Fedt 86,47 ptc. 86,87 pct. Ostcstof 0,75 — 0,59 — Melkhsukker 0,96 — 0.76 — Mineralskt Stoffe 1('kok"»U)J 8,88 — 2,28 — Vand 7,99 — 10,00 ~ ioofoo. ~~100.00.' ' L. Schemelck.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.