Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.05.1901, Page 2
lútaiidi á þá leið, að sér sé ómögulegt
að hverfa aptur til Peking, „fyr en gest-
ir landsins séu farnir!u
Nú er mælt, að skaðabætur þær, er
Kínverjar eiga að greiða, nemi alls 50
milj. sterlingspunda. — Af þeirri upp-
hæð eiga Rússar að f'á 90 milj. dollara,
Þjóðverjar 70 milj., Frakkar 40 milj.,
Japanar 30 milj., Bandamenn 25 milj.,
Bretar 24 milj. dollara o. s. frv.
I aprílmánuði rákust tvö skip á í
nánd við borgina Honglcong, og drukkn-
uðu þar 70 Kínverjar. — - —
Anarkisti einn, Romagnolí að nafhi,
kvað ný skeð hafa verið tekinn fastur á
Þýzkalandi. Hann var ný kominn þang-
að frá Buenos Ayres í þeim erindagerð-
um, að ráða Vilhjálm keisara af dögum,
og er mælt, að fundizt hafi í bænum
JRosario í Buenos Ayres ýms skjöl, er
sanni, að þar hafi verið ráðið samsæri
gegn keisurunum Vilhjálmi og Nicolaj,
Emanuel, konungi Itala, drottningu hans,
o. fl.. og á Romagnolí að hafa verið send-
ur af þeim félögum til Evrópu.---------
Noregur. I Kristjaníu hafa ný
skeð verið teknar fastar 3 kvennsniptir,
er gert höfðu sér að atvinnu, að taka ung-
börn til fósturs, og hefur sannazt, að af
30 fósturbörnum, er þær þannig höfðu
tekið að sér, fyrir ríflegan uppeldisstyrk,
höfðu þær á einu ári fyrirfarið 26, og er
voðalegt að lesa um þær kvalir, sem
vesalings börnin hafa orðið að þola. -
Á Arabalandi hefur verið ófriður
inilli höfðingjanna („sheikanna“) í Koveit
og í Neid, og er mælt, að 5 þús. manna
hafi fallið þar í einum bardaganum, og
hafi Ibn Rachid, höfðingi í Neid, haft
betur i þeirri viðureign. — — —
Korea. Dómsmálaráðherrann Kimí-
ontschuan, er fyrir nokkru varð uppvís að
því, að hafa ætlað að myrða eina af uppá-
haldsunnustum keisarans, sem honum
þótti hlutast meira til um stjórnmál, en
góðu hófi gegndi, hefur nú verið dæmd-
ur til hengingar, en aðstoðarmenn hans
tveir, er Minkíonsaka og Tschucheumer
herforingi eru nefndir, voru dæmdir ann-
ar til 15 ára, en hinn til æfilangrar
þrælkunar. — — —
Ameríka. I ráði er nú, að grafinn
verði skipaskurður, 20 feta djúpur, frá
Huron-vatninu, eptir farveg Ottava-krinn-
ar, til borgarinnar Montreal í Canada, og
er kostnaðurinn áætlaður 15 milj. sterl-
ingspunda.
Yið Pittsburg í Bandaríkjum olli vatns-
flóð ný skeð 3 milj. dollara skaða, og
nokkrir menn drukknuðu.
Frakkneski loptfarinn Godard hefur
nú fastráðið, að fara í loptfari yfir Atl-
antshafið, og er það glæfraför mikil.
Harm gerir ráð fyrir, að ferðin muni taka
5—12 sólarhringa, eptir því hvernig
viðrar, og ætla 10 menn með honum.
Járnbrautarslys varð ný skeð í Kali-
forníu, og meiddist fjöldi manna, en að
eins einn beið bana.
I bænum Queretaro í Mexico hefur ný
skeð verið reist kapella, til minningar
um Maximilían keisara, er skotinn var
19. júlí 1867, sem kunnugt er. — Er
ætlað, að þetta muni ef til vill leiða til
þess, að sendiherra-samband komist nú
á miili Mexico og Austurrikis, sem eigi
hefur átt sér stað, síðan lýðveldismenn
hrundu Maximilían, bróður Franz Jóseps
Austurríkiskeisara, úr völdum.
25 milj. dollara virði er gull það tal-
ið, sem fengizt hefur í Klondike á 12
mánuðum. — — —
Slys. 1 bænum Anoreli á Indlandi
kviknaði ný skeð í bómullarverksmiðju,
og hlutu þar 35 menn bráðan bana, en
7 fengu brunasár svo mikil, að enginn
ætlar þeim líf.
í þorpi einu skammt frá borginni
Frankfurt við Main sprakk verksmiðja
25. apríl síðastl., og létust þar 50 menn,
en um 150 meiddust
——öOO§§Os>o-----
Stj ornarskrármálshorfur.
Commandörinn talar!
Fagnið, og verið glaðir, allir íhalds-
menn á Islandi!
Höfðingi yðar er heim kominn, og
hefur eigi brugðizt yðar vonum!
Það verður ekkert af neinni stjórnar-
skrárbreytingu i bráð!
I utanfór sinni færði landshöfðingi
ráðherranum heim sanninn um það, að
hann væri nú nógu liðsterkur á þingi,
til að spyrna á móti öllum stjórnarskrár-
breytinguni.
Það væru að eins framfara-skvaldrar-
arnir, dr. Vattýr, og hans nótar, sem
væru að þrefa um stjórnarbót.
Hinir vildu állir halda óbreyttu því
stjórnarástandi, sem nú væri, og væru nú
svo liðmargir, eptir kosningarnar í fyrrai
að þeir væntu þess, að geta nú verndað
þenna dýrgrip, stjórnarskrána frá 5. jan.
1874, alveg óbreytta, öldum og óbornum
til yndis og hagsældar!
Hann vænti þess því, að ráðherrann
léti mál þetta hlutlaust, og lofaði íslend-
ingum að rífast, svo sem landshöfðing-
inn bezt gæti sigað þeim saman!
Og sem sannur íhaldsmaður, einn af
meðlimum dönsku hægrimannastjórnar-
innar, með 12 atkvæða þingfylgið (af
114), þá varð ráðherrann auðvitað fregn-
um þessum all-feginn.
Hvað skyldi hægrimanna íhaldsstjórn
kærara, en kyrrstaðan?
Ráðherrann gerði því landshöfðingj-
ann þegar að commandör af 1. gr. dbr.-
orðunnar, í viðurkenningar skyni fyrir
þetta þjóðræknisstarf hans, — að hafa
unnið íhaldsstefnunni jafn glæsilegan sig-
ur við kosningarnar síðustu.
Og svo er hann þá heim korninn
aptur, heillafuglinn.
Hann hefur frægðarför farið, þarfa
verk unnið.
Hósíanna, sjmi Adams!
----------------
Nýr konungkjörinn þingmað-
ur. Síra Þorkell Bjarnason frá Reyni-
völlum hefur, sem við var búist, orðið
að segja af sér þingmennsku, sakir van-
heilsu, og hefur konungur því kvatt síra
Eirík Briem, prestaskólakennara, til að
taka sæti á þingi, sem konungkjörinn
þingmaður, í stað síra Þorkels.
Um skoðanir síra Eir. Briem i stjórn-
arskrármálinu er ókunnugt, eins og nú
stendur, en hann er alkunnur hygginda-
og vitsmuna-maður, svo að útnefning
hans hlýtur að mælast vel fyrir.
Fréttaþráðurinn.
Óvænlegar horfur.
I danska blaðinu „Börsenu skýrir rit-
stjórinn 26. apríl síðastl. frá samtali, er
hann hafi átt við forstjóra „stóra norræna
fréttaþráðarfélagsinsu, kommandör Suen-
son, um fréttaþráðarmálið.
Svo er að sjá, sem mál þetta sé nú
strandað, og taldi hr. Suenson enga von
til þess, að neitt yrði úr fréttaþráðar-
lagningu til íslands í bráðina.
Orsökin er sú, að ríki þau, er leitað
var til, hafa engin viljað lofa neinu fé,
nema hvað ríkisþing Svía hefur samþykkt,
að veita til fyrirtækis þessa 10 þús.
franka.
Að vísu hafa stjórnir þeirra ríkja, er
leitað var styrks hjá, viðurkennt í orði,
að það myndi vera mjög mikilsvert, í
veðurfræðislegu tilliti, að fréttaþráður
lægi til Islands; en góð orð eru eigi
peningar.
Það er gert ráð fyrir, að fréttaþráðar-
lagningin muni kosta 2 milj. króna, og
er því styrkur sá, er alþingi, og ríkisþing
Dana, hafa heitið, þýðingarlítill, enda er
búist við, að tekjur þær, er fengjust frá
Islandi, sérstaklega frá verzlunarstéttinni,
myndu naumast nægja, til að standast
ársútgjöldin.
Að öðru leyti kvaðst koinmandör
Suenson mundu skýra nákvæmar frá máli
þessu á aðalfundi félagsins, er haldinn
verður í vor.
----'-'Ov^OOo---
Fiskisamþykktarbreytingin.
(Aðsent.)
Enn einu sinni eru Mið-Djúpsmenn
ákafir í það, að f'arið sé að breyta fiski-
veiðasamþykktinni, helzt á þann hátt, að
af numdar séu allar beitu-takmarkanir,
og að slægja megi, hvar sem er, á öllum
ársins tímum.
Þeir segjast vilja þetta frelsisins
vegna(!), til þess að dugnaðarmaðurinn
geti notið sin, og sé eigi bundinn á klafa
með slóðunum(!!) í Bolungarvik, og i
Hnífsdal, er heldur vilji, að þeir segja,
liggja iðjulausir í bólunum, en reyna að
bjarga sér(!).
Samt sem áður eru nú sumir slóð-
anna(!) svo drjúgir, að þeir telja óvíst, að
þeir leiti fyr bjargar til kúfiskskónganna,
og hlunnindajarða-eigandanna, en sumir
úr þeirra eigin kúfisks ríki; en það er
víst að eins mont af þeim?
Það er eigi gott að segja, hvað af
þessu þrennu: þrákelkni, þekkingarleysi,