Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 01.06.1901, Síða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 01.06.1901, Síða 3
XY 25.-26. Þjóðviljivn. 99 sér það beitukostnað, að þurfa, er bezt gengur, að vera 2—3 daga í beituferð, og vita af hlaðfiski á meðan, má ske 30—50 kr. í hlut, og 2. eru þeir hræddir um þrot á skelbeit- unni, ef allir fara að afla hennar allan ársins tíma. Ekki síður þykir og Bolvikingum það, að verða að hafna annari góðri beitu, sérstaklega síldinni, sem þeir geta róið með af krapti, bæði nótt og dag, og fengið stundum fleiri tugi króna til hlut- ar yfir sólai'hringinn, jafn vel 100 kr., og þar yfir, á vikunni. Rn eptir reynzlu Mið-Djúpsmanna kvað ekki vera til neins, að beita sild, þar sem þorskinum stendur jafn framt skelfiskur til boða. Jeg þykist nú vita, að atvinnufrelsis- mennirnir(!), : kúfisksforkólfarnir muni segja, að þeir hafi eigi gert hærri kröfur i þessu máli, en að rýmkað sé svæðið, og skelfisksbeitulínan færð utar, t. d. í Völlur og í Stofu eða Álku. En eru þeir þá í raun og veru svo sljóskyggnir, að þeir sjái eigi, að því utar sem línan er færð, því þrengra verður við hana, því að þá bætist við útvegur ýmsra, sem áður voru fyrir utan fyrri línuna, og íengju þeir sínum fulla vilja fram gengt, að skelfisk yrði beitt út úr, þá er jeg hræddur um, að öllum Út-og Mið-Djúps- mönnum færi að þykja fuil þröngt. Að endingu skal eg geta þess, að eg hefi ritað línur þessar fremur af sterkum áhuga og vilja, en af getu, og einkum vegna þess, að jeg er hræddur um, að blessað Djúpið verði eyðilagt, en ekki fyrir eigin hagnaðar sakir, þar sem jeg má nú heita hættur við sjóferðir, enda á jeg nú orðið má ske slóða nafnið með réttu, en Bolvíkingar yfirleitt ekki, þvi að þeir eru menn, sem láta hendur standa fram úr ermum, þegar eitthvað er um að tefla. En verst þj'kir mér, hafi eg látið fljótfærnina koma mér til þess, að nota má ske fremur hörð orð um einstaka góða menn, sem eg í raun og Veru ann, því að mér finnst það vansæmi á hverj- um siðuðum manni, að geta ekki talað um málefnið, nema að kæla persónuna, þótt mótpartur sé, hafi hann eigi ráðið á mann áður, enda spillir það fremur fyrir framgangi hvers málefnis. Kr. Þ. Barnaskólínn á Látrum. (Svar til Br. Þ.) Hr. Guðnmndur búfr. Sigurðsson á Látrum hefur sent oss all-ýtarlegt svar upp á grein hr. BrynjÖlfs hreppstjóra Þorsteinssonar á Sléttu, er birt var i 15. —16. nr. blaðsins, og verðum vér, rúmleysis vegna, að láta oss nægja, að gefa ágrip af svarinu. Hr. G. Sig. staðhæfir, að 2. febr. síð- astl., er hann reit grein sína, hafi engin kennsla verið byrjuð á Sléttu, með því að maður sá, er þar kenndi síðar, hafi verið við smíðar út í Yestur-Aðalvik til 16. febr. — Úr Grunnavikinni tjáir hann og kunnuga menn hafa sagt sér, að þar hafi enginn kennari verið í vetur, enda linfi 2 börnum þaðan verið komið fyrir í barnaskólanum á Látrum. Hann telur hr. Br. Þ. áður hafa verið á þeirri skoðun, að hafa einn skóla fyrir alla sóknina, þótt hann sé nú snúinn orðinn i þvi rnáli, og hafi fengið nokkra á sitt band, en til Látraskóla hafi þó gefið á annað hundrað manna. — Hrak- spár Br. Þ. um skólann kveðst hann vona, að eigi muni rætast, enda hafi börnum, er kennslu hafi notið að Látr- um, farið tjölgandi ár frá ári síðustu þrjú árin, og þar verið í vetur 21 barn inn- an fermingar. „Af þessu sýnishorni sést ljóst“, segir hr. G. S. enn fremur, „að engin ástæða var til þess fyrir hreppstjórann, að gefa í skyn, að hér gæti ekki þrifizt félags- skapur. Jeg hygg, eptir því sem eg bezt þekki, að menn séu óviða félagslyndari, en einmitt hér, á þessum afskekkta út- kjálka, sérstakiega ef þeir, sem efstir sitja að völdurn og virðingum, vildu gjörast foringjar félagslegra samtaka“. Misráðið finnst houum það, að hr. Br. Þ. skyldi fara að minnast á búnaðarfé- lagið, því að saga þess gefi einmitt beztu vonir um, að skólasamtökin muni, sem búnaðarfélagið, sigra mótspyrnuna, og þoka áfram hægt, og hægt. „Búnaðarfé- lagið byrjaði sumarið 1892, fyrir ötula forgöngu JBái ðar búfr. Guðmundssonar, er þá var einn í þvi búlausra manna; alls urðu þá meðlimirnir 17. I all-mörg ár hefur tala félagsrnanna verið 18—20, þar til nú, að þeir eru orðnir þrjátíu. — Að ekki hefur verið starfað neitt að mun í félaginu næstl. ár, mun nokkuð stafa af 156 Eða þá augun, stóru og bláu, sem sakleysið skein út úr! Öðru hvoru skotraði hún þeim til hans, en horfði annars stöðugt út um gluggann, eins og hún vænti það- an frelsisins. Heidenstein ræskti sig, eins og hann jafnan var vanur að gjöra, er hann ætlaði að segja eitthvað alvar- legs efnis. „Heitið þér María Lucke?“ spurði hann. Stúlkan hneigði sig þegjandi, og horfði svo út um gluggann, sem fyr. „Þér vitið, að þér eruð ákærðar fyrir það, að hafa selt stólna muniw, mælti Heidenstein, „og að þér eigið að mæta fyrir rétti innan skammsu. Stiilkan hneigði sig aptur, en mælti eigi orð, og krosslagði hendurnar fram á grindurnar. Heidenstein kippti stólnum sínum ögn aptur á bak, og mselti: „Það er jeg, sem á að verja yður“. Stúlkan hrökk við, leit til hans leiptrandi augum, bljoðaöi upp — líkast því, sem maður er að drukkna. Hún hafði eigi vitað, hver hann var, og talið ó- elað, er hun sá, hve vel hann var klæddur, að hann væri fjandmaður hennar — og svo var það þá þvert á móti. Henni varð svo hverft við, að hún greip af alefli í grindurnar, og þrýsti sér svo fast upp að þeim, að þær nðuðu til. Heidenstein hallaðist á hinn bóginn aptur á bak í stólnum og horfði þegjandi á hana. Það var engu líkara, en að stúlkan ætlaði sér að 145 hættir hans svo kjánalegir, að ekki var öðrum, en sér- vitrÍDg, ætlandi. Hann var því almennt lítils virtur, og það því fremur, sem margir stéttarbræðra hans þóttu ágætismenn, er taka mætti til fyrirmyndar. Dómararnir voru flestir kvæntir, og konur þeirra skoðuðu það, sem sjálfsagða skyldu, að málfærslumenn- irnir kæmu í hús þeirra, er þeir höfðu unnið embættis- eiðinn. Yfir höfuð þykir giptum konum ekkert að því, að margir séu mönnum þeirra undirgefnir, og vilia þá jafn framt gjarna hafa færi á, að sýna það. Sumar þeirra eiga lika ógiptar dætur. En að því er Heidenstein snerti, þá var hann sjaldan í flokki stéttarbræðra sinna, og snæddi sjaldan með þeirn, og þegar þeir, að endaðri máltíð, skruppu stundum inn á eitthvert kaffisöluhúsið, til þess að horfa á ungu kvennþjóðina ganga fram hjá gluggunum, þá kaus hann heldur, að vera einn á reiki úti í skógi, eða úti á engjum. Hann var þvi, að almennings áliti, ótilreiknanleg- ur, maður, sem ekki hafði yndi af neinu, nema — að vera einn. Var það ekki fáránleg ánægja? Það var að eins eitt heimili, er hann kom stöku sinnum. Hann heimsótti stöku sinnum Heinsberg yfir- dómara, sama manninn, sem talað hafði máli hans við dómsforsetann i dag. Yfirdómarinn, er tekinn var að eldast, bjó einn sér, ásamt dóttur sinni, og ungfrú Lisly Heinsberg varð að þola marga ertnina af vinkonum sinum út af því, að

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.