Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 19.03.1903, Side 2
42
ÞjÓÐ VILJIJS’N.
XVII, 11.—12.
f 1 síðastl. janúarmánuði andaðist
Búa-hershöfðinginn Prinsloo. — Hann var
að vísu eigi jafn frægur, sem þeir BotJia,
De Wet og Delarey, en gat sér þó opt
mjög góðan orðstir i ófriðinum.
Nú er mælt, að Brodrick, hermálaráð-
herra Breta, verði bráðiega skipaður vara-
konungur á Indlandi, i stað Ctirzon's
lávarðar, er mælt er, að bráðlega hverfi
heim til Englands. — — —
Frakkland. Frakkar hafa efnt til
samskota til minnisvarða yfir Emile Zola,
og höfðu þegar safnazt 100 þiis. franka.
Að öðru leyti er Hnmbert-málið aðal-
umræðuefnið á Frakklandi um þessar
mundir, þótt mál það só enn mjög skammt
komið áleiðis.
Sem byrjun þess máls má geta þess,
að frú Therese Humhert kærði Cattauí,
auðugan bankastjóra í París, ættaðan frá
Egyptalandi, fyrir það, að hann hefði
gjörzt sekur í okri, lánað sér fé gegn
60 °/„ vöxtum, og stundum reiknað sér
jafn vel 300 — 400 af hundraðinu. Kæru
þessari var að vísu eigi sinnt, en þar
sem mikið umtal varð um hana, þóttist
Cattauí eigi mega undir slíkum áburði
liggja, og höfðaði því meiðyrðamál gogn
frúnni; en það hefði hann helzt átt að
láta ógert, því að úrslitin urðu þau, að
frúin var algjörlega sýknuð, en Cattaui
dæmdur, til að greiða allan málskostnað-
inn, og talið líklegt, að höfðað verði nú
sakamál gegn honum, fyrir okur.
Úr málsúrslitum þessum hefir París-
arbúum heldur en ekki orðið matur, og
eigi fjarri, að þeir fyrirgefi nú Humberts-
hyskinu fjárprettina, og segi sem svo, að
það hafi þá í raun og veru að eins ver-
ið okurkarlarnir, sem hún hafi féflett, og
þeim hafi verið það mátulegt, þótt budd-
an þeirra hafi létzt um þessar 115 milj.
franka, sem Therese, og hennar lið, hefir
haft rit úr náunganum.
13. febr. gerði Binder þingmaður fyr-
irspurn á þingi, um afskipti ráðherranna,
og annara stjórnmálamanna, af Huinberts-
málinu, og gerðist þá svo harðorður, að
C'ombes forsætisráðherra, og Valle dóms-
málaráðherra, gengu báðir af þingfund-
inum.
f 19. janúar síðastl. andaðist í París
einn af nafnkunnustu blaðamönnum
heimsins, Blowitz að nafni, fregnriti enska
heimsblaðsins „Times“. — Hann var
fæddur í þorpinu Blowitz í Böhmen 28.
des. 1825, og tók sór nafn eptir því. —
Hann vissi jafnan manna bezt, hvað ríkja-
politíkinni leið, og er það t. d., að 1878
gat hann látið „Times“ birta friðarsamn-
ingana í Berlín nokkrum kl.tímum áður,
en þeir voru undirritaðir i Berlín.
Mikið er nú um það rætt, að Dreyfus-
málið muni þá og þegar tekið upp til
dómsmeðferðar að nýju, þar sem Jaurés,
vara-forseti frakkneska fulltrúaþingsins,
hefir lýst því yfir, að hann hafi í hönd-
um ýms ný gögn, er hljóti að gera það
að verkurn, að dómur herréttarins í
Bennes verði úr gikli felldur, og Alfred
Dreyfus algjörlega sýknaður.-------—
Þýzkaland. Að kvöldi 21. febr. síðastl.
urðu húsbrunar miklir í þorpinu Hiirtgen
i héraðinu Aachen; þar brunnu 90 ibúð-
arhús, og nokkuð af bivpeningi brann
inni. — Að eins prestssetrinu, og 5 hús-
um öðrum, varð bjargað undan eldinum.
Skottulæknir í Berlín, er Wardenkötter
nefnist, flýði þaðan 8. febr., er lögreglu-
liðið ætlaði að taka hann fastan. — Hann
þóttist geta Jæknað öll mannanna mein,
og var aðsóknin að honum svo mikil, að
sagt er, að árstekjur hans hafi numið
um 160 þfis. rnarka (1 mark = 90 aur.);
en lækningatilraunir hans voru reyndar
stakasti hégómi og bábyljur.
Gjaldkeri sparisjóðs eins i Slésvík,
Clausen að nafni, gekk ný skeð ótil-
kvaddur á vald lögreglustjóra, og játaði,
að hann hefði stolið úr sjálfs sins hendi
100 þiis. rígsmörkum af fó sparisjóðsins.
Nú er i ráði, að stofnaður verði há-
skóli í borginni Hamborg, og eru þó há-
skólarnir á Þýzkalandi all-margir, sem
stendur; en Þjóðverjar viðurkenna það
flestum fremur, að „visindin efla alla
dáð“.
Mikið taJa blöðin enn um Luísu krón-
prinsessu og um ástamál hennar. — Hún er
nú þegar skilin frá manni sinum með
dómi, en þar sem krónprinzinn er ka-
þólskur, og langar til þess, að leita sér
annars kvonfangs, þá þarf samþykki páf-
ans, og er mælt, að eigi muni nein fyr-
irstaða á því.
Giron er mí skilinn við krónprinsess-
una, en ógjörla vita menn, hvort sá
skilnaður er til fulls, eða gjörður að eins
i bráðina af ásettu ráði þeirra beggja,
meðan skilnaður krónprinsessunnar og
manns hennar er að komast á.
Sagt er, að krónprinzinn hafi sam-
þykkt, að greiða Luísu 30 þiis. rígsmarka
á ári; en ekki fær hún að sjá börn þeirra,
og fellur henni það þunglega, einkum
þar sem sonur hennar, Friðrik. Kristjón,
hefir um hríð legið veikur.
Talsvert uppistand varð á þýzka rikis-
þinginu, út af ræðum Vilhjdlms keisara
gegn „socialistum“, eptir fráfall Krupp’s
verksmiðjueiganda. — Socialistinn Vollmar
vildi bera hönd fyrir höfuð félaga sinna
á þinginu, en formaðurinn synjaði hon-
um málfreJsis um það efni, og mæltist
sú aðferð fremur illa fyrir á Þýzkalandi,
þar sem það þótti skerðing á rétti ríkis-
þingsins.
Nokkru síðar tók Behel, »hinn alkunni
socialista-foringi, til máls um sama efni,
og dirfðist formaðurinn þá eigi að synja
honum málfrelsis; en er BebeJ hafði lok-
ið máli sínu, og vítt framkomu keisar-
ans með hógværum orðum, stóð forseti
upp úr sæti sínu, og lýsti þvi yfir, að
hann leggði niður forsetatignina.
Ollum frjálslyndum mönnum þótti
þetta vel farið, en engu að síður endur-
kusu apturhaldsflokkar þingsins Battestrem
til forseta fám dögum síðar.
Verksmiðjur Krupp’s í Essen eru nú
reknar sem hlutafélagsfyrirtæki, og er
upphæð hlutaíjárins 150 milj. rígsmarka.
Rússland. í febr. lét Bússastjórn
taka fasta fjölda marga pólska stúdenta
í Warschau, og eru þeir sakaðir um bylt-
inga-undirróður, og leiðin að likindum
til Síberíu, að þvi er flesta þeirra snertir.
17. febr. hljóp ofvöxtur mikill i
Weichsel-fljótið, svo að það flóði víða
yfir bakka sina, og sópaði burtu fjölda
húsa, svo að um 10 þús. manna stóðu
húsnæðis- og bjargarlausir.
Ekki batna aðfarir Rússa á Finnlandi,
þar sem þeir hafa ný skeð rekið frá em-
bættum, án dóms og laga, 4 amtmenn,
og ll yfirdómara í borginni Aabo. — Að
þvi er amtmennina snertir, höfðu þeir
það eitt til saka, að þeir höfðu skýrt
Bobricow landstjóra hreinskilnislega frá
þvi, að orsökin til þess, að Finnlending-
ar vildu eigi hlýðnast tilskipun stjórnar-
innar, um hernaðarskyldu, væri sii, að
hver maður vissi það, að tilskipun þessi
væri ólögleg, þar sem hún hefði aldrei
verið samþykkt af þinginu (Landdegin-
um), svo sem stjórnarskrá Finnlands
gerði ráð íyrir.
En yfirdómararnir í Aabo hofðu það
til saka, að yfirrétturinn hafði, samkvæmt
embættisskyldu sinni, krafizt þess, að
undirrétturinn héldi ýtarlegri rannsóknir
um aðfarir Kaigorodow’s hersliöfðingja,
landsstjóra i Nýlandsléni, er hann, i
aprilmánuði f. á., beitti hervaldi við bæj-
arbúa í Helsingfors, er sa.fnazt liöfðu um-
hverfis líkneski Alexanders keisara II.,
sem unnið hafði eið að stjórnarskrá Finn-
lands, eins og Nicolaj keisari, og jafnan
haldið þann eið sinn.
26. febr. síðastl. átti vitnaleiðsla að
fara fram i Helsingfors, um ofan greind-
ar aðfarir Kaigorodow’s, en lögreglumenn
vörðu þá vitnunum inngöngu i dómsal-
inn(!), og tilkynntu dómurunum, er þar
sátu í réttinum, að þeir gerðu þetta sam-
kvæmt æðri skipun.
SJíkar og þvílikar eru aðfarirnar á
Finnlandi um þessar mundir. — — -
Belgía. Sakamálið gegn Gennaro
Rubíno var dæmt i Bryssel 10. febr. —
Gennaro játaði, að hann hefði ætlað að
drepa Leopold konung; kvaðst hann að
visu öllu heldur hafa viljað stúta Victor
Emanuel, konunginum á Italiu, en ekki
haft farareyri, til að komast þangað, og
snúið sér því að Leopold konungi. Mál-
inu lyktaði svo, að Gennaro Rubino var
dæmdur til æfilangrar þrælkunarvinnu.
Árið 1905 er áformað að halda Jieims-
sýningu mikla í borginni Luttich, i minn-
ingu þess, að þá verða liðin 75 ár frá
þeim tíma, er Belgía varð sjálfstætt ríki.
Spánn. Seint í janúarmánuði urðu
verkföJl alJ-mikil í borginni Reus, og
voru þeim samfara ýmsar róstur, svo sem
opt vill verða á Spáni. — I Barcelona
hætti og fjöldi verkmanna vinnu, og var
tala þeirra um 50 þúsundir.
f Látin er ný skeð Elísabeth erki-
hertogafrú, amma Alfonso konungs XIII.,
72 ára að aldri, móðir Maríu Christínar,
er árið 1879 gekk að eiga Alfonso XII-
Ítalía. Töluvert umtai hefir það vak-