Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.02.1904, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.02.1904, Blaðsíða 5
Þjóbviljinn BB XYlii Btjórnarráði konungs, áður en hann varð amtmaður á Islandi. Hann bar jafnan hlýjan hug til ættjarðar sinnar, og þótti sárt að sjá, hvað íslenzk mál voru ókunn i stjórnarráðunum, og litilsvirt, svo að nálega enginn vildi hlýða á framburð þeirra. Þau voru yfirleitt í mesta glund- roða, og reikningar lágu langt aptur í tímann óendurskoðaðir, og óútkljáðir. Þar stjórnaði einn maður öllu, og vant- aði þó alla þekkingu á málunum; réð hann þeim öllum til lykta eptir eigin hugþótta, og íslenzka kaupmannastéttin gat haft hann, eins og hún vildi, svo að heita mátti, að kanpmenn réðu hér öllu. Og andinn í stjórnarráðunum í Islands garð var ekki hlýr: Landið er sveitaró- magi, og landsbúar yfirleitt misyndisfólk. Sárt þótti honum að vita þetta, og geta ekki að gert. Þegar hann svo er orðinn embættismaður hér heima, þá neytir hann álits síns í stjórnarráðunum, og leggur margt það til, í álitsskjölum sínum til stjórnarinnar, er betur fór. Má tii dæmis taka bendingu hans til stjórnarinnar um það, að íslenzkir em- bættismenn héldi fund með sér i Reykja- vík, til að ræða helztu nauðsynjamál landsins. Það var upphaf að því, að al- þingi var endurreist, og hið síðasta verk hins þjóðrækna embættismanns var það, að vera forseti alþingis hið fyrsta sinni <1845). Hann minnist og talsvert á Stephen- senana (Ólaf stiptamtmann, og Magnús konferenzráð, og Stefán amtmann, bróður hans), því þeir réðu þá mestu hér inn- anlands. Segir hann, að aðal-ástríður þeirra allra hafi verið metorðagirni og fé~ girni, en hins vegar hafi og kostirnir verið miklir. „Magnús var lærdómsmað- ur mikill, iðjusemin og framkvæmdar- semin óþreytandi. En ástríður hans leiddu hann stundum til hörku og fá- fengilegrar smámunasemi. Hann var og mikið gefinn fyrir að róa undir, en skorti lag á því, sakir ofsa og óstöðugleika, og tortryggni, og bar mikið á henni, enda gegn hans eigin flokksmönnum“. Heyrandi í holti. •.....,........• Mannalát. 30. janúar siðastl. andaðist i ísafjarðarkaupstað Stefán Jöns- son, er lengi var bóndi að Gfrund i Höfða- hverfi í Suður-Þingeyjarsýslu, fæddnr að Grýtubakka í sama hreppi 1826. — Með- al barna hans er skipherra Jóhann Stefáns- son, trésmiður á Isafirði, og hjá honum dvaldi Stefán sálugi siðustu ár æfinnar. Hinn 15. marz f. á. andaðist að Kálfa- tjörn gamalmennið Þorsteinn Bergsson, á 80. ári. Hann var að langfeðgakyni kom- inn af Agli Skallagrímssyni. Faðir Þor- steins sál, var Bergnr Guðmundsson, bóndi i Traðarholti við Stokkseyri, á Eyrar- arbakka, o. v. Kona Guðmundar var Margrét Jónsdöttír, Gunnarssonar frá Sand- lækjarkoti, og faðir Guðmundar, föður Bergs, hét Hannes Guðmundsson, og bjó hann í Króki i Elóa. — Þorsteinn sál. var fæddur i Kjósarhreppi 4. okt. 1823. Fárra daga fluttist hann austur i Hraun- gerðishrepp, og ólst þar upp til 10 ára | aldurs, og fluttist þá suður í Kálfatjarn- arprestakall, og dvaldi þar mestan hluta sinnar löngu og dáðríku æfi; að eins fá ár dvaldi hann í Útskálasókn, og Reykja- vík. Hinn 31. desbr. 1857 kvæntist hann Sigríði Bergþörsdóttur, og hófu þau búskap í Innri-Njarðvík. Þau eignuðust 2 börn, son og dóttur. Dóttir þeirra dó 18 ára gömul, en son þeirra, Bergur skipstjóri, lézt í íteykjavík fyrir fám árum. Konu sína missti hann eptir 22 ára sam- búð. — Þorsteinn sál. var maður mjög vel gefinn, bæði til sálar og líkama. Hann var einn meðal hinna fyrstu innlenduþil- skipaformanna, og, að því er mér er kunn- ugt, sá, er í mestu sjóvolki hefir lent á hinum örsmáu þiljubátum, er tíðkuðustá yngri árum hans, og sem hann var for- maður fyrir hart nær hálfa öld. Auk þess sem Þorsteinn sál. var mikill sjó- maður, var hann einnig mesti iðjumaður á landi, einkar verklaginn, og hagur á smíðar. Hann var vel greindur, og flest- um minnugri; var þvi bæði skemmtilegt og fróðlegt að heyra hann segja frá þvi, sem á daga hans hafði drifið, bæði á sjó og landi. Að engu af hinu marga, sem drifið hafði á daga hans, furðaði hann sig, nema því, hve opt og hve dásam- lega almætti drottins hefði verndað hann í sjávarháskanum. Ekkert hataði Þor- steinn sál., nema ódrengskap og iðjuleysi; en hvorutveggja þessa var hann svarinn óvinur til dauðadags. En þrátt fyrir dugn- að sinn og starfsemi, græddist honum aldrei fé til muna. Hann dó jafnfát.ækur, og hann fæddist; hið eina af hinu stund- lega, sem honum fylgdi til grafar, var virðing og þakklátssemi þeirra, er hann 38 vona, að hann verði þó ekki svo hlálegur, að neyða mig til óyndisúrræðau. „En annað hvort er þetta þó erindið“, mælti hann enn fremur, „eða hann ætlar sér að ná i „hringinn helgau, sem eg flónskaðist til, að segja honum frá“. I þessu bili rak William sig á einn heimamanna, og mælti: „Ekki vænti jeg, að hér hafi komið ókunnugur maður í dag, og spurt eptir mér, Miohael?“ „Nei, herra ininn, ekki mér vitanlega“. „Þá ketnur hann í kvöld, og jeg verð þá að vera við því búinn, að taka á móti honum“, tautaði William gremjulega við sjálfan sig. „Ef einhver . .. ef einhver hr. Durrant spyr eptir mér“, mælti hann svo hátt, „þá vísaðu honum upp til mín“. „Svo skal vera“, svaraði Michael. William hatði til afnota nokkur herbergi í vinstri byggingar-álmu hallarinnar, við hliðina á bænahúsinu, og fór hann nú þangað, til að hugsa málið, og eyða tím- anum, unz gengið væri til miðdegisverðar. Sæðið, sem hann hafði sáð, meðan hann dvaldist í Xundúnum, var farið að þróast, og bréfið hafði sýnt hon- um, hver uppskeran myndi verða. Horfurnar voru eigi glæsilegar. „Hefði það að eins verið einhver annar, en Durrant“, mælti haDn við sjálfan sig, og gekk fram og aptur um gólfið, „þá hefði verið skárra við að eiga; en hann, mann- hundurinn sá, er verri, en nokkur blóðsuga. Og svo er honum kunnugt um hringinn! Enhann •er mér ómögulegt að útvega honum, nema frændi 31 flest leiguliðanna, var páfatrúar, þá var bænahúsið í Landy Court þó troðfullt á helguin. Bændurnir, sem héldu fast við trú sína, komu þá hópum saman til bænahússins, ásamt konum sínum, dætrum og vinnuhjúum, er flest var borið og barnfætt þar í sveitinni, og vísaði frú Westcote fólkinu til sætis. Frú Westcote var ráðskona í Landy-Court, og hafði hún gegnt stöðu þeirri i tvö ár. Frernur var hún fölleit, en þó mesta nettkvendi, og hafði hún feDgið stöðu þessa, er gamla ráðskonan and- aðist. Píers lávarður hafði þá gert það, að ráðum bróður síns, að ráða sér ekki ráðskonu þar úr byggðarlaginu, en fá sór heldur hæfari kvennmann frá Lundúnum. Frú Westcote hafði beztu meðmæli, og Líonel hafði látið í ljós þá skoðun sína, að hún myndi kvenna fær- ust, til þess að umskapa heimilishættina, sem voru orðn- ir töluvert á eptir timanum. Þar sem frúin var kaþólsk, og trúaona mikil, spillti það ekki kostunum, og var henni því veitt ráðs- konustaðan. Þessi tvö árin, sem hún hafði verið i vistinni, hafði hún og staðið prýðis vel i stöðu sinni, og aldrei talið neitt ómak á sig, til að gera Píers lávarði að skapi, og mátti því með sanni segja, að hún væri rótta konan á rétta staðnum. En allt um það — þótt UDdarlegt megi virðast — var hún þó eigi ástsæl. Allir á heimilinu, jafnt Piers lávarður, sem lítilmót- legasta þvottakonan, litu hana tortryggnis augum. Það var eitthvað dularkennt við framgöngu henn-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.