Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.01.1907, Síða 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.01.1907, Síða 5
XXI.; 3.-4. Þjóðviljin.s . 13 Botnvörpuveiðagufuskip forst. — Menu drilkkna. Botnverpingur, er kom til Reykjavíkur 28. jan- úar, flutti þá fregn, að enskt botnvörpuveiða- gufuskip frá Hull, „Imperialist“ að nafni, hefði nýlega fatizt á Breiðaflóa, út af Grundarfirði, og menn allir farizt. Bát frá skipinu hafði rekið. — Fregnin ann- virs Iremur óljós. Pról' i stýrimannafræði. Tveir íslendingar hafa nvlega iokið prófi i stýrimannat'ræði við sjómannaskólann í Bogö í Danmörku. — Heitir annar þessara manna Guð- ■mundur Þorvnrðarson, og er úr Gullbringusýslu, «n hinn Þórólfur Beck, og er frá Eskifirði. Pilt- arnir hafa báðir hiotið mjög góðan vitnisburð. Prestakail óveitt. Prófastur Þorvarður Þorvarðarson á Víðihóli hefir sótt um Mýrdal9þingin í Vestur-Skaptaíells- sýslu. — Aðrir hafa ekki sótt. Stórmanulega geflð. Bærinn Álasund í Noregi hefir sent til Akur- eyrarkaupstaðar tvö hús, sem gefin eru, til að bœta úr vandræðum, er stafað hafa af húsbrun- anum á Oddeyri. -- Hús þessi komu til Akur- •eyrar um áramótin, og er annað húsið BO-j-lB álnir að stærð, en hitt 12—9 álnir, og eru hús- in einlypt. Þessari gjöf fylgdi einnig ýmis konar rúm- fatnaður, og nokkur nauðsynlegustu búsáhöld, svo sem diskar, bollar o fl. SambandsSög t y i v Ungmennafélög á íslandi. 1. gr. Félagsmenn geta þeir einir orðið, sern byggja stefnu sína á kristilegum grund- velli, eru bindindismenn, og hafa undir- skrifað skuldbindingaskrá fólagsins. 2. gr. Stefnuskrá fólaganna er þessi: 1. Að reyna af alefli að vekja löngun hjá æskumönnunum til þess, að starfa fyrir sjálfa sig, land sitt og þjóð. 2. Að temja sér að beita starfskröftum sín- um i félagi og utan félags. | 3. Að reyna af fremsta megni að styðja, viðhalda og efia allt það, sem þjóðlegt er og ramm-íslenzkt, og horfir til gagns og sóma fyrir hina íslenzku þjóð. í Sérstaklega skal leggja stund á, að fegra | og hreinsa móðurmálið. 3. gr. Tilgangi sínum hugsa félögin sér að ná með því að halda fundi, þar sem fram fari fyrirlestrar, er haldnir séu af félags- I mönnum, eða öðrum þar til fengnum í mönnum, umræður, npplestur, íþróttir og annað það, sem að líkamlegri og andlegri eflirg og atgerfi lýtur. 4. gr. Öll þau félög, sem þessari stefnuskrá vilja fylgja, skulu einnig hafa þessi at- riði sameiginleg: 1. Sameiginlega skuldbindingarskrá sam- þykkta af sambandsþingi. 2. Þriggja manna stjórn: formann, ritara og gjaldkera, kosna til eins árs í senn. 3. Að halda aðal-fund um hver áramót. 4. Fuudi skal byrja og enda með þvi að syngja oinhver vel valin ættjarðar eða f ra m s ókn arkvæði. 5. Allir reglulegir ungmennafélagar inn- an sambandsins skulu þúast. 5. gr. Hvert félag kýs úr sínurn flokki 1 full- trúa fvrir hverja 50 fólaga, eða færri, á sambandsþÍDg, sem haldið skal annað- hvort ár, og í fyrsta skipti á Akureyri árið 1908. Þau félög, sem hafa færri reglulega félaga, en 10, og ekki halda að n.innsta kosti 6 reglulega fundi á ári, hafa ekki rétt til fulltrúakosningar. 6. gr. Fulltrúaþingið hefir á hendi meðferð allra sambandsmála, og tekur ákvarðanir um framkvæmdir þeirra. Það endurskoðar og samþykkir alla reikninga sambandsins, og nefir æðsta úr- skurðarvald i öllum félagsmálum, 9em undir það verða borin. Það kýs þrjá menn i stjórn sambands- ins, sem sé formaður, ritari og gjaldkeri. 7. gr. Sjái þingið sér fært að haf'a verksvið félaganna viðtækara en ákveðið er í stefnu- skránni, gjtur það tekið ákvarðanir í þyí efni tneð þingssamþykktum. 8. gr. Stjórn sambandsins hefir á liendi fram- kvæmd allra sambandsmála félaganna milli þinga, eptir þeim reglum og innan þeirra takmarka, sem lög sambandsins, og þings- samþykktir, setja. Hún undirbýr málefni sambandsins til fulltrúaþinga, og ákveður þingstað og þingtíma. Hún getur og boðað til auka- þings, ef henni virðist brýn nauðsyn bjóða, 98 „Þess gjörist alis engin þörf“, svaraði Dalton. „Jeg skal sjálfur —“ Meira mælti hann ekki, því að i þessu vetfangi kom dóttir hans, og varpaði sér fagnandi í faðm honum. Stanhope horfði angurblíðum augum á stúlkuna, sem hann unni. „Jeg sé, að þór þarfnist eigi hjálpar minn- ar, eins og nú er komið“, mælti haun. „En þogar jeg er farinn, getið þér innt föður yðar eptir því, hvers vegna eg skil s 70 snögglega við yður, og hvers vegna við verð- um að láta, sem við sóum hvort öðru ókunnug, ef við hittumst eptirleiðis“. En er hann var að íara, heyrði hann, aö Dalton mælti eitthvað hálf-reiðilega, og nam því staðar á þrep- skildinum. „Sett auglýsingu í blöðin! Yeslingur, hvað hefirðu gert? Hvernig hljóðaði hún? Talaðu! Segðu mér efni hennar orðréttu. María varð svo lirædd, að hún þorði ekkert að segja. „Talaðu“, mælti hann aptur. „Jeg get ekki þolað þenna drátt. Hvaða nafn nefndirðu — Dalton eða Evans?“ „Dalton, Daltonu, stamaði hún. „Jeg vissi ekki, að þetta væri rarigt af rnér. — Jeg var svo hrædd um, að eitthvað væri að þér; — liorfðu okki svona á mig!“ „Segðu mér orðrétt, hvað þú auglýstir. — Jeg óska einskis annars“. María horfði vandræðalega kringum sig, því að hún mundi ekki glöggt, hvað í auglýsingunni hafði staðið, og varð henni þá litið framan í Stanhope. „Spurðu hann“, mælti hún. „Hnnn hlýtur að hafa lesið hana í blaðinu“. Stanhope dró blaðið upp úr vasa sínum. qi þór mig áðan, hvort faðir minn væri bólugrafinn? Þér þekkið ef til vill einhvern annan, sem er bólugrafinn?“ Stanhope fann, að blóðið sté upp í kinnar honum. Hafði hann gleyrnt því, i hvaðú erindum hann var kominn? Var það ekki rangt gert af honum, að hugsa að eins um sorg hennar? „Aður en eg svara spurningu yðar, vildi eg gjarna fá að vita, hvort þér þekkið nokkurn slíkan mann?“ mælti Stanhope, all-gætilega. „Það gjöri eg að visu ekki“, svaraði hún. „En þeg- ar faðir minn var nýfarinn, korn bólugrafinn maður hór inn i herbergið, og spurði eptir honum. Jog hélt, að þér hefðuð ef til vill heyrt getið um þetta, og haftgrun um, að maður þessi stæði í einhverju sambandi við föð- ur minn“. Stauhope brá mjög, er hann heyrði þetta. „Þór getið rétt til“, mælti hann, all-skjálfraddaður. „En getið þér lýst manninum fyrir mér?“ . „Hann var mjög hár, og herðabreiður, og augun voðaleg, svo að jeg var dauðhrædd við hann“. „Fór hann strax brott aptur, er hann eigi hitti föð- ur yðar heima?“ „Já; en hann litaðist þó fyrst um i herberginu, horfði forvitnislaga á mig, og rak svo upp viðbjóðslegan hlátur“. „Og var það ekki rétt á eptir það, ©r faðir yðar hvarf?“ „Jú; jeg hitti hann hér, er eg kom aptur inn, og stóð gamla konan, sem þér sáuð ný skeð, þá h^á honum.11' Hann hefir þá verið kominn hér í húsið, er faDirr yðar hljóp at stað. •— Ef til vill -“

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.