Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.04.1907, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.04.1907, Blaðsíða 7
ÞJOÐVILJINN. 63 XXI., 15,—16. Nýlega andaðist og á ísafirði telpa á j öðru ári, Ragnlúldur að nafni dóttir Ól- afs bókhaldara Magnnssonar á Isafirði og Helgu Jónsdóttur konu hans. — Bana- meinið var heilabólga.— I Bolungarrík andaðist og fyrir skömmu ungfrú Gudrím Sigr. Arnadótt'i.r: kaupmanns j Arnasonar i Bolungarvík, og konu lians Haddóru Ólafsdöltur, Gissurssonar á Osi. Hún var um tvitugt, og andaðist. úr tauga- veiki. — í 13. nr. blaðs þessa gátum vér andláts j Skida úrsmiðs Eiríkssonar á Isafirði, og ' láðist oss þá að geta þess, að hann and- : aðist á Landakotsspitalanum í Reykjavík, : 23. janúar þ. á. — Hafði hann íarið úl • Reykjavíkur á síðastl. hausti, til að leita ; sér lækninga við berklaveiki, en ekki ; fengið bót meina sinna. — Lík hans var flutt til isafjarðar með gufuskipinu rLaura“ seint í janúar, og jarðsuogið að Eyrar- kirkju á Isafirði, í viðurvist fjölmenuis. — ¥ | rökkrunum. (Úr óprentuðu safni Brynjólfs Jónssonar frá Minna-Núpi.) —— SVIPUR JÓNASAR. l?á er Stefáu Helgason bjó á Skútu- stöðum, og Hjálmar, hálí-bi óðir hans, var vinnumaður hjá honum, þá var þar líka annar unglingsmaður, er Jónas hét, Hor- steiusson. — Þeim Iljálmari var vel til vina. Þá er Jónas var í æsku, liafði Hann- es nokkur lesið í lófa hans, og sagt: „Þú drukknar á 27, árinu“. Stóð Jónasi ótti af þessu, og hafði opt orð á því við Hjálm- ar. — En hann bað hann, að vera ekki svo hjátrúarfullar!, að hugsa um aðra oins vitle^su. Nú bar það til tíöinda, að Skútustað- ir voru seldir til prestsseturs, og fór sira Þorlákur Jónsson þangað. - En Stefán flutti að Geirastöðum, og fóru þeir Hjálm- ar og Jónas þangað raeð honuti. — En Jónas undi ekki á Geira9töðum, fór hann vorið eptir aptur að Skútustöðum til sira Þorláks. — Þá var Jónas á 27. árinu. — Seint um sumarið fundust þoir Hjálmar. — Bað Jónns hann þá, að skrifa upp fyr- ir sig peninga þá, er hann ætti í láni hjá ýtnsum mönnum, — því hann var sam- heldinn, og eyddi ekki kaupi sínu, en lika groiðvikinn, og lánaði mörgum. — Hann var ekki skrifandi, það var þá ekki j títt; en Hjálmar bafði lært að skrifa. — j Hjálmar tók vel undir bón hans, en kom j þvi þó ekki við í það sinn. — Jónas bað hann eigi draga það mjög lengi; ekki vissi, nær skuldirnar yrðu annara eign, og þyrftu þeir þá, að vita hið rétta um þær. — Þó drógst þotta fram á haustið. Frá því verður að segja, að baðstofa á Geirastöðum var þrískipt: báðir endarnir afþiljaðir og upphækkaðir. — Þilin fyr- ir suðurendanum náðu þó ekki, nema upp að lágurn bita, en opið var fyrir ofan. — Þar var rúm Hjálmars fyrir innan þilið, og sneri hann höfði að þilinu. — Það var við baðt.tofudyrnar, — þvi gengið var inn í miðhluta hennar. — í þeim hluta var að eins eitt rúm á móti dyrurn. — Það átti gömul húskona, er Kristjana hét. — Hún var talin „skyggn“. Um haustið gjörði frost, og lagði Mý- vatn að kalla. —Það var eina sunnudae:s- nótr, eptir voturnætur, að Hjálmar dreyrt;di það, að Jóuas kom inn úr dyruuurn, al- votur, teygði sig inn yfir bitann, og yfir Hjálmar, og sagði: „Ekkert varð úr j ví, að þú gerðir það, sem eg bað þig“. — „Það n.á enn“, þóttist Hjálmar segja „Nei, nú er það um seinan“, sagði Jón- as, og fór þegar út aptur. — En Hjálm- ar vaknaði. Um rnorguninn eptir var kvennfólk- ið hrætt rnjög; hafði Kristjana sagt því, að hún hefði séð Jónas á Skútustöðum koma alvotan inn um nóttina og teygja sig inn yfir höfuð Hjálmars. — Sagðj Hjálmar þá draum sinn. A mánudaginn fréttist, að á laugar- daginn ho.fði síta Þorlákur verið lasinn, og þvi sent Jónas austur yfir vatn með messufallsboð. — Isinn á vatninu hafði verið vökóttur, og hafði Jónas drukknað í einni vökinni. — Þannig bar svo við, að spásögrr Harmesar kom fram. — Jón- as drukknaði á 27. árinu. lljálmar sigði mér þetta 1905. 160 Deering var maður, er hafði góða stjórn á geði sinu, en þó fann hann, að roðinn færðist fram i kinnar honum, er Stanhope mælti þetta. „Þér efist um, að eg segi satt, hr. Whito! Þér hljót- ið að hafa mjög gildar ástæðnr til þess, eða þér eruð eigi sá heiðursmaður, sem eg áleit yður vora“. í stað þess að svara, barði Stanhope í þilið. „Jog kýs fremur, að vinur minn sé við staddur“, mælti hann, og stillti sig, sem hann gat. En or Hollisler sarnstundis korn inn i dj’rnar, beið Stanhope þess eigi, að hann spyrði, sem eðlilegt var, hvað hann vildi honum, en mælti all-óþolinmóður: „Taktu eptir Hollister! Deering ofursti vill vita, hvers vegna eg álíti, að hann geti gefið upplýsingar um síðnstu kl.tímana, sem faðir minn lifði, og honum virðist eigi vera það neitt Ijúft. — Nú vil eg biðja þig, að vera hér, sem vitni, er og svara honum. Viltu gera það fyr- ir rnig?“ Hollister virti nú Deeriug mjög nákvæmlega fyrir sér, en Deering leit naumast á hann, og hafði Hollister þvi enn betra færi til athugasomda sinna. „Jeg skal verða við bón þinni“, mælti Hollister, og kastaði sér makindalega í hægindastól. „Segðu þá ofurst- anum það, sem þú ætlar að segja honum. Stanhope þekkti vin sinn, og lét hann því haga sér, sem hornun þóknaðist, og sneri nú máli sínu að of- ut stanum. „Jeg tek það upp uptui', sem eg sagði áðan“, mælti hann, að þér hljótið a-' hafa sagt fóður tn'num eit.thvað, sem allt. í oinu hlýtur að hat’a svipt hann allri von, og kjarki í baráttu Hfsins, nema það eitt, að hann sá yður, 157 ict eigi hafa talað eins glögglega við hann, eins og hann vildi. En það var þó ekki að eitts sakir þesss, að hik kom á hann, heldnr þóttist hann vita, að ef hann yrði við ósk Stanhope’s, kynni ýmislegt að koma í ljós, sem hann hafði gert sér von um, að ekki yrði hljóðbært. A hinn bóginn gæti það vakið grun, ef hann yrði eigi við tilmælum Stanbope’s, enda gekk hann að því, sem vísu, að hann lét: sig engan frið hafa, fyr en hann léti honum i té greinilega skýrslu. Að öllu þessu vel yfirveguðu, þótti lionurn hyggi- legast, að verða við tilmælum Stanhope’s. „Ef þér óskið“, svaraði hann því ahiðlega, „hefi eg ekkert á móti því“. A meðan þeir óku til klúbbsins, sátu þeir báðir þegj- andi. — En rétt áður en vagninn nam staðar, tók Stan- hope þannig til máls. „Hefðuð þér nokkuð á móti þvi, að Hollister, vinur minn, væri viðstaddur, meðan við tölum satnan?" „Ef þér óskið að hafa áheyrauda“, svaraði ofurstinn stillilega, „þá gjörið, sent yður sýnist. — En myndi og heldur ráða yður til þess, að tala við mig undir fjögur augu, því að það er sannfæring min, að um slik mál oigi almenningur' helzt okkert að fá að vita“. Stanhope var nú á báðum áttum, unz honumdattí hug miHuuarvegur. „Gott og vel“, svaraði hanti. „Við getum þá byrj- að tið tala saman ucdir fjögur augu, en jeg geymi tnér rétt til þess, að kalla á viri minn, ef uiér þykir þeis þörf“. „Eins og j’ður þókuast“, svaraði Deering ofursti, og lét sen: sér stæði alveg á sarna.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.