Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.07.1907, Page 2
122
Þjóðviljinm.
XXI., 31-32.
Björnsson, Árni Þorkelsson frá Greit.a-
skarði, Guðm. Finnbooason, Ágúst Jóns-
son í Höskuldarkoti, síra Þórður Olafs-
son, próí’astur Jens Pálsson, Eyjólfur
Gubmundsson, Guðm. Fridjónsson og Lár-
us Helgason.
Nokkrar breytingartillögur yiðtillögu
nefndarinnar, er fram voru bornar, með-
an er á umræðunum stóð, voru teknar
aptur, áður en til atkvæða var gengið,
svo að tillögur nefndarinnar voru sam-
þykktar í einu hljóði, og þær eru svo
látandi:
1. a. Fundurinn krefst þess, að væntan-
legur sáttmáli við Dani um afstöðu
landanna só gerður á þeim grund-
velli einum, að ísland sé frjálst land
í konungssambandi við Danmörku,
með fullu jafnrótti og fullu valdi
yfir öllum sínum málum. En þeim
sáttmála má hvor aðili um sig segja
upp. — Fundurinn mótmælir allri
sáttmálsgerð, sem skemmra fer, og
telur þá eigi annað fyrir höndum
en skilnað landanna, ef eigi nást
slíkir samningar, sem nefndir voru.
b. Furdurinn telur sjálfsagt, að ísland I
hafl. sérstakan fána og fellst á til-
lögu Stúdentafólagsins um gerð hans.
c. Fundurinn krefst þess, að þegnrótt-
ur vor verði íslonzkur.
2. Sökum þess, að alþingi var eigi rof-
ið, þegar afráðið var að skipa samn-
inganefnd í sjálfstæðismálinu, skor-
ar fundurinn á alþingi og stjórn að
sjá um, að nefndin verði eigi skip-
uð fyr af islands hálfu en kosið
heflr verið til alþingis af nýju.
Snemma dags, áður en fundurinn, hóf9t,
hafði fjöldi fundarmanna gengið til Lög-
bergs, og hélt cand. mag. Bjarm Jóns-
son þar ræðu um íslenzka fánann, sem
nefnd var fánavígsla.
Að fundarlokum sungu fundarmenn
ýms ættjarðarljóð, og síðan skemmtu nienn
sér við söng, og lúðrablástur, fram eptir
kvöldinu.
Auk hinna kjörnu Þingvallafulltrúa
höfðu ýmsir brugðið sér til Þingvalla svo
að talið er, að alls hafi verið þar 400—
500 manna.
Veður var fagurt fundardaginn, og
gerir það slíka mannfundi einatt mun
skemmtilegri.
HJlþingi sett.
Mánudaginn 1. júlí var olþingi sett,
eptir að guðsþjónusta hafði farið fram í
dómkirkjunDÍ.
Sira Friðrilc Friðrilcsson prédikaði i
kirkjunni.
Ráðherrann las upp boðskap konungs
til alþingis, og olzti þingmaðurinn Tnjgrjvi
bankastjóri Gunnarsson. gekk síðan til
forsetasætis, eptirað þingmenn höfðu, sem
venja er, hrópað DÍfalt húrra f'yrir kon-
unginum. Kjörbréf nýja konungkjörna
þingmannsins, Steinrjríms sýslumanns Jbns-
sonar, var síðan rannsakað, ogsamþykkt. •
Þá var kosinn Jorseti sameinaðs alþing-
is og fóru kosningar svo, að kosinn var:
Eiríkur Briem, er hlaut 23 atkvæði.
Gekk síra Eiríkur siðan til forseta-
sætis, og minntist með nokkrum orðum
hins látna konungs vors, Cliristjáns IX.
Stjórnarandstæðingar greiddu Joh. bæjar-
fógeta Joliannessyni atkvæði, sein forseta
sameinaðs þÍDgs, og hlaut hann ellefu
atkvæði.
Varaforseti sameinaðs þings var kosinn:
Lárus sýslum.Bjarnason, með 23 atkv.
Á hinn bóginn greiddu stjómarand-
stæðingar Stefáni kennara Stejánssyni at-
kvæði, og hlaut hann alls 12 atkv.
Skrifarar í sameinuðu atþinrji voru sið-
an kosnir:
Hannes ritstj. Þorsteinsson, með 21 atkv. og
Guðm. læknir Björnsson „ 20 „
Af stjórnarandstæðingum hlutu síra
Sig. Stefánsson 13 atkv. og síra Sig. Jens-
son 12 atkv.
í kjörhréfanefnd voru kosnir:
Skúli Ihoroddsen, með 25 atkv,
Steingr. Jónsson, „ 24 -„-
Guðl. Guðmur.dsson, „ 23 -„-
Lárus Bjarnason „ 23 -„- og
Olafur Briem, „ 18 -„-
Þá gengu þingmenn efri deildar inn
| í fundarsa! þeirrar deildar, og deiidirnar
tóku til þingstarfa.
í neðri deild stýrði aldursforseti deild-
arinnar. Iryggvi bankastjóri Gunnarsson,
forsetakosningunni, og var kosinn:
Magnus Stephensen, er hlaut 16 atkv.
Næstur honum hlaut síra Magnús And-
résson 6 atkvæði.
Þá voru kosnir varaforsetar neðri deildar:
síra Maqnús Andrésson, með 16 atkv., og
Iryggvi Gunnarsson, „ 16 „
Stjórnarandstæðingar greiddu Sk. Ihor-
oddsen og Olafi Briem atkvæði og hlaut
hvor þeirra 6 atkvæði.
Skrifarar í neðri deild voru kosDÍr:
sira Árni Jónsson, með 16 atkv., og
Jón Magnússon, „ 16 „
Síra ól. ólafsson og Björn Kristjánsson
! hlutu, hinn fyr nefndi 6 atkv., og hinn
j siðar nefndi 5 atkv.
í efri deild stýrði amtmaður Jidíus
I Havsteen, sem aldursforseti, forseta-kjör-
inu, og var forseti kosinn:
Jidíits Havsteen, með 7 atkv.
Dr. Valtyr Guðmundsson hlaut 5 atkv.
Þá fór fram kosning varaforseta, og
voru kosnir:
Jón Jakobsson, er hlaut 7 atkv., og
Guðjón Guðlaugsson, með 7 atkv.
Næst þeim hlutu atkvæði: dr. Yaltyr
4 og síra Sig. Stefánsson 3 atkv.
Skrifarar deildarinnar voru, mrð hlut-
fallskosningn, kjörnir:
BjÖrn Olsen og
sira Sig. Jensson.
Ritsímaskeyti
til „Þjóðv.u
Kaupmannahöfn 21. júni 1907.
Frá Frakklandi.
Óej’rðir í vÍDyrkjuhéruðunum á Frakk-
landi vaxa dag frá degi. — Daglega bar-
izt á götum í Narbonne, Montpellier og
Beziéres.
Þrjú hundruð hermaDna hafa gert sam-
blástur gegn yfirmönDUin sínum.
(Ritsímaskeyti 25. júni segir óspekt-
irnar í vínyrkjuhéruðunum farnar að sef-
ast, og hermanna-samblásturinn bældan
niður).
Frá Danmörku.
Dómur íslenzka yfirdómsins, er sýkn-
aði Jón Einarsson, sem sakaður var um
víxilfölsun, hefir verið staðfestur í hæzta-
rótti.
Hæztaréttardómari Nyholin hefir verið
skipaður dómstjóri i hæztarétti, í stað
Koch’s.
Kaupmannahöfn 25. júní 1907.
Frá Kína.
Uppreisnin í Kína hefir verið bælÆ
niður.
Frá Bretlandi.
Brezki ráðaneytisforsetinn, Campbell-
Bannermann, lagði i gær (24. júni) f'rum-
varp tyrir þingið, er fer í þá átt, að laga-
frumvörp skuli öðlast lagagildi, þótt lá-
varðadeildin hafni þeim, hafi þau þríveg-
is verið samþykkt í neðri málstofunni.
Frá Þýzklandi.
Vilhjálmur keisari ráðgerir að heim-
sækja Játvarð, Breta konimg, á komanda
hausti.
Kaupmannahöfn 27. júni 1907.
Konungsförin til íslands.
I för með konungi til Dlands á „Birma14'
verða Richelieu, aðiniráll, sem er forstjóri
„sameinaða gufuskipatclagsins“, N.Ander-
sen, forstjóri Austur-Asiufélagsins, Frede-
rikseD, forstjóri Ritzau-fregnskeytastof--
unnar, og sagnfræðingurinn Troels-Lundi
prófessor.
RíkisþÍDgsmennirnir koma á skipinu
„Atlanta", sem Austur-Asiufélagið hefir
keypt.
Frá Russlandi.
í gær (26. júni) var átta sprengikúl--
um varpað á flutningslest i Tíflis, er hafðú
peninga meðferðis, og var alls rænt 341
þús. rúblna. — Tveir menn biðu bana,
eri 50 hlutu sár.
K.höfn 2; júlí 1907.
Frá Danmörku.
í íslandsförina hófir konungur boðið'
með sér Lucher, sæmyndamálara, og Laur-
itzien, fiskikaupmanni í Esbjærg.
Konungurinn frá Siam hefir verið í
kynnisför hjá Friðriki konungi, og fer i
kvöld.
Dómsmálaráðherrann hefir vísað frá
kærunni gegn A. T. Möller.
Vilhjálmur keisari væntanlegur til Kaup-
mannahafnar 3: júlí.
Frá Noregi.
Norska stórþingið hefir veitt erfingj-
um Whathne’s- 10 þús. kr. ársstyrk til ís-
landsferða, og sömuleiðis veitt fé, til að’
fá veðurfregDaskeyti frá íslandi.
Frá Frakklandi.
620 heirnenn, sem gert höfðu sam—
blástur í vínyrkjuhéruðunum, hafa verið
sendir suður t'l Tunis.