Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.07.1911, Síða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.07.1911, Síða 1
Verð árgangsins (minnst, 60 arlrír) 3 kr. 50 aur. erlendis 4 kr. 50 aur., og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnimánað- arlok. Þ JOÐ VILJINN. —: |= Tuttdoasti oö fimmti ábsangub. . =— KITSTJORI SKÚLI THORODDSEN. =n«t—*— Uppsogn skrifleg ögild nema Homið sé til útgef- anda fyrir 30. dagjúní- mánaðar og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 30.-31. ReYKJAVÍK 6. .TÚI.Í. 19 11. Frá 1. júlí þ. á. til ársloluinua get.a uýir kaupendur feDgið „Þjóðv.“ fyrir að eins 1 kr. 75 aura Sé borgunin send jafn framt því, er beðið er urn blaðið, fá nýir kaupendur einnig, ef óskað er, alveg ókeypis, sem kaupbæti, freklega 200 bls. af skemmtisögum og get,), ef vili, valið um 8., 9., 10., 11. og 14. söguheftið í sögusagni „Þjóðv.u I lausasölu er hvert af þessum sögu- heftum selt á 1 kr. BO a., og eiga Dýir kaupendur því kost á, að fi allan síðasta helming yfirstandandi árgangs blaðsins (samtals 30 nr.) fyrir að eins 25 aura, og kostar hvert tölublað þá minna, en eínn eyui. Til þess að gera nýjurn á- sbrifendum og öðrum kaup- entlum blaðsins sem hægast íyrir,að þvi er greiðslu antl- virðisins snertir, skal þess g-etið, að borga má við allai' aðal*verzlanir landsins, er slika innskript leyfa, encla sé iitgetanda a f kaupandan- um sent innskriptarskí i'- teinið. Gjörið svo vel, að skýra kunn- ingjum yðar, og nábúum, frá kjörum þeira, er „Þjóðv.“ býður, svo að þeir geti gripið tækifærið. ■' Þeir, sem kyimu að vilja taka að sér útsölu „Þjóðv.“, sérstaklega í þeim sveitum, þar sem blaðið hefir verið lítið keypt að undanförnu, geri svo vel, að gera útgefanda „Þjóðv.“ aðvart um það, sem allra bráðast. Úr Frakklandsför minni. Þegar eg kom úr Frakklandsför minni — hafandi verið við Göngu-Hrólfs- hátíðahöldin í líouen —, þótti mér vel fara á því, að ávarpa frakknesku þjóðína nokkrum orðum. Menn þekkja’fagurmælin og markleysu-hjalið, sem vanalega er tjaldað með við þess konar tækifæri. En mér fannst fara betur á því, að alvöruorðin kæmust og einnig að, og þess sízt vanþörf, eins og ástatt er hjá frakknesku þjóðinni, sem og hjá öðrum þjóðum jarðarinnar yíir höfuð. Af þessum rótum var það, að eg beiddi ritstjóra brezka stórblaðsjns »Eve- ning Xe\va«, sem gefið er út í Edinborg, að birta í blaði sínu greinina sem hér fer á eptir. En um það fór, sem segir í bréfunum, sem birt eru hér neðanmáls,*) og *) The Edinburg Evening Nevvs Limited (Kvöld-tíðindi Edinborgar). Skrásett skrifstofa: 18 Market Street. (Markaðs-stræti). Skúli Tboroddsen Esq., Commercial Hotel, Leith. Kæri herra! Mér hefir nú rétt i þessu gefizt tími, til að fara yfir grein yðar, og þykir mér leitt, að geta eigi tekið hana í hlaðið, með því að lesendur hlaðs vmrs myndu eigi hafa neinn sérstakan áhuga eða ánægju af málefnunum, sem þar eru gerð að umtalsefni, sem og vegna hins, pð mjög er, krýningarinnar vegna, lítið um rúm í hlaði voru*), SamkvTæmt umtali endursendi eg því greinina hér með. Yðar einlægur. Bóbert Wilson blaðstjóri. Bréf þetta þótti mér lýsa svo lágum hugsunarhætti, sem og hera vott um slíkt kjarkle.ysi ritstjórans, og litilsvirðingu, á smáþjóð, að eg taldi rétt, hæði mannsins sjálfs, rnálefnisins, og aJ- mennings vegna, að svara því, som hér segir: p. t. Leith 1S. júni 1911. Kæri herra! Bréf yður, dags 17. þ; m., keíi eg móttokið, og þykir mér leitt að heyra, að þér hafið það álit á lesendum hlaðs yðar, að þeim þykir engu skipta um allra þýðingarmestu máleíni mann- kynsins, er varða eigi lítils hvern oinstakan þeirra sérstaklega. Hvað þykir þeim þá máli skipta ? Jeg hélt eigi, að þér telduð lesondur blaðs yðar sauði. Þér teljið þeim meira áríðandi, að fá að vita allt, er að krgiríngunni lýtur, og sýnir það hugsunarhatt yðar mjög prýðilega, og skoðun á veslings lesendum blaðs yðar. Annars gat hvorttveggja mjög vel farið saman i eigi minna hlaði, en „Evening Nevvs“, er kemur út sex sinnum á viku. En aðal-atriðið er •— og þykir mér leitt að segja —, að þér hafið eigi viljað segja mér sannleikann. Yður var eigi ókunnugt um það, að sumir lesenda yðar mundu hafa fundið sig ónota- lega snortna, vitandi sig eigi hafa gegnt skyldu sinni. En því skyldara var yður, að láta þá heyra sannleikaun, enda þeim þm nauðsynlegra. Til þessa hrast yður þrek! Slæmt fyrir blaðamann, som vissulega aldrei mú glejTma því, að á honum hvílir enn meiri siðferðisleg Ahyrgð, en á öðrum, og rikari skylda, til að átelja það, sem rangt er. Ef til vill hafið þér og talið yður övand/arnara, þar sem heðið var hljóðs í nafni smá- þjóðar, og eru þær slíku eigi óvanar. En einmitt þess vegna var nú skylda yðar rikari, sem og vegna liins, er útlendingur átti í lilut. UtaEáskript til útgefandans er: Skúli Tlioroddsen, Yon- arstæti 12, Reykjavík. *) Rétt á eptir hirti ritstjóri þessi síðan — auk anna:s ómerkilegs frétta-tínings um undirbúning krýningar-hátíðahaldsir.s í Lundúnum — nær tveggja dálka langan lista í blaði sínu yfir nafi.b.etur, er veittar höfðu verið, í tilefni af krýningar-athöfninni (útnefningu nýrra Jávarða, baróna m. m.)!! 1 etta var það, sem Bretanum reið mest á að fræðast um!

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.