Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.10.1913, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.10.1913, Blaðsíða 5
XXVII., 48-49. ÞJOÐVILJINN. 187 „Skandia mótorinn“ (Lysekils mótormn) er af vélfróðum mönnum viðurkenndur að vera sá bezti báta- og skipa-mótor, sem nú er byggður á Norðurlöndum. „SKANDIA“ er endingarbeztur allra mótora og hefir gengið daglega i meira en 10 ár án viðgerða „SKAND1A“ gengur með ódýrustu óhreinsaðri olíu, án vatnsinnsprautunar, tekur lítið pláss og hrisstir ekki bátinn. „SKANDIA“ drífur bezt og gefur allt að 50% yfirkrapt. Biðjið um hinn nýja, stóra íslenzka verðlista. i Einkasali: JAKOB GUNNL0GSSON. Kebenhavn, K. vetrum, var hann jafnan í þeim svaðil- förum, og svo mátti segja, að seinni hluta æfinnar væri hann lotulaust á sjónum, ýmist sem skipstjóri, stýrimaður eða há- seti, og ekki var undan látið fyr en í íulla hnefana, svo mörgum þótti nóg um, því hinn síðasta vetur, sem hann lifði, var hann háseti á þilskipi, á vetrarver- tíð, en var þá í vertíðarlokin, um miðjan maí, lagður á land fárveikur á Þingeyrar- spítala, og beið hann þar dauðans með miklum þjáningum at magakvilla, til þess hann fekk hvíld þ. 31. júlí þ. á., eptir hvildarlaust æfistarf, á 73. aldursári, eptir því sem hann taldi aldur sinn. Hann var grandvar maður i allri hegðun, trygg- lyndur og góðgjarn, vildi öllum vel, frið- samur við alla og óhlutdeilinn um ann- ara hagi. Þó hann hefði fjölskyldu fram að færa, þá komst hann vel af lyrir sig og sína, safnaði aldrei fé, en þurfti ekki heldur að leita annara, og lét ekk- ert upp á sig standa við neinn. Hann átti ágæta konu, sem var honum öflug aðstoð í baráttu lífsins, og þau góðu hjón luku dagsverki sínu með sóma, með því að koma upp 8 vel gefnum og mann- vænlegum börnum. Að vísu ólust tvö þeirra að nokkru upp hjá öðrum ættiugj- um sinum. l'ó börn þeirra hjóna séu áður að eins nefnd i æfiágripi móður þeirra, í blaði þessu, þá skulu þau talin hér nokkuð fyllra en áður, til fróðleiks þeim sem ættfræði stunda, fyrir seinni tímana. 1. Svanfríður, f. 7. okt. 1864. Þá voru foreldrar hennar trúlofuð. Seinna hjú i Haukadal. Hún varð 18. jan. 1891 seinni kona Friedrich Keinhard Wen- del’s justisráðs og verzlunarstjóra á Þingeyri, sem var þýzkur að ætt. Þau eru nú í Þýzkalandi. 2. Guðmunda Sólborg, f. 1867, gipt 27. okt. 1893 Böðvari Jóhanni bónda í í Hvammi í Dýrafirði, Böðvarssyni frá Álptanestungu á Mýrum, Guðmunds- sonar. 3. Marsibil, f. 7. maí 1869. Hún ólst upp hjá Andrési skipstjóra föðurbróður sín- um, og bar móðurnafn þeirra bræðra. Giptist 21. sept. 1888 Matthiasi Olafs- syni kaupmanni og alþingismanni í Haukadal. 4. Þórdís Friðrika, f. 3. jtlní 1871. Fór til Ameríku 1893, og giptist þar Ósk- ari Jónssyni úr Strandasýslu. 5. Andrés Pétur Júlíus, f. 30. júlí 1872. Fór utan 1889, lærði þar sjómanna- fræði, og dó þar ógiptur. 6. Olína María, f. 31. maí 1875. Giptist 4. sept. 1898 Heinrich Julius Hermann Wendel, málara á Þingeyri, bróðir Wen- dels verzlunarstjóra. Hún dó 3. apríl 1913, fjórum mánuðum fyrn en faðir hennar. 7. Steinn Guðmundur, f. 18. 0kt. 1876. Lærði bakaraiðn, og er nú bakari á Þingeyri. Giptur 17. ágúst 1908 Jó- hönnu Guðmundsdóttur, bónda á Kirkju- bóli, Nathanielssonar (hún er fædd 28 nóv. 1886). 8. Olafur, f. 14. nóv. 1884. Vinnumaður á Brekku í Sandasókn. Sighv. Or. Borgfirdingur. Reyk javík. —o- 16. okt. 1913. Haustið vfirleitt mjög gott hér syðra, sem af er, — hlýinda-dagar enda eigi all-fáir fyrst i mánuðinutn. — Veðráttan öll önnur, en megn- ið a! sumrinu. „Baron Stjsernblad'1, aukaskip fri sameinaða gufuskipafélaginu, kom hingað trá "tlöndum 7. þ m. Leikritið „Kameliu-frúin“ hefir í þ. m verið sýnt nokkur kvöld á leiksviðinu i „Iðnó“. Frú Stefania Guðmundsdóttir, og Jens B. Waage, hafa leikið þar aðal-hlutverkin, og leik- urinn yfirleitt verið vel sóttur, *og þótt takast vel. En leikritið „Kamelxu-frúin“ er sjónleikur, eptir Alexmdre Dumas yngri, frakkn6sk 1 skáld- sagna- og leikrita-höfundinn. Hafði Dumas yngri fyrst samið skáldsögu, er fyrgreint. nafn bar, og sauð síðan sjónleikinn upp úr henni, og vakti hann þegar afar-raikla athygli, er hann var sýndur í fyrsta skipti á leiksviðinu i Parfs (árið 1862). Dumas yngri — eða Alexandre Dumas ffls, sem hann or almennt nefndur, til aðgreiningar frá föður sinum — var fæddur í París 1824 og andaðist 1895. Sjónleikur hans, er að ofan er getið, hefir þrásinnis víða verið sýndur í leikhúsuts, og einatt þótt mikið að honum kveða. Lúðra-félagið „Harpa11 skemmti bæjarbúum fyrra sunnudag (6. þ. m.), — lék nokkur lög á lúðra á Austurvelli. Fjöldi bæjarbúa var þá og á gangi þar um- hverfis, eins og vant er að vera, þegar slíkra skemmtana gefst kostur. Asgrímur málari Jónsson hefir í surnar dvalið um hrfð austur f Fljótshlíð (í Rangárvallasýslu), og hefir nú meðferðis ýms landslaga-máíverk þaðan, sem almenningi væntaniega gefst kostur á, að lita á einhvern tfma f vetur. Málverkin, sem mörg eru hvert öðru fallegra, eru öll frá Múlakoti í Rangárvallasýslu, eða þá þaðan úr grendinni. Af málverkum hr. ^sgrfms Jónssonar, sem getið er næst hér á undan, sést ljóslega, hver unaður — víða, ef eigi allsstaðar, hér á landi —, getur orðið að skóg- og blóm ræktinni, sé henni sinot, sem vera ætti, til prýðis umhverfis bænda- býlin, eða þá þar f grendinni, er menn vilja eiga sér skemmtistað. Húsráðendurnir í Múlakoti í Fljótshlfð hata þar — eins og ýms málverkanna sýna — orðið öðrum til fyrirmyndar. Leikfélag Reykjavfkur hefir nú þegar áform- að, að leika i vetur þessa þrjá sjónleiki: 1. Sjónleikinn: „Trú og heimiii11, eptir þýzk- an höfuud. Ráðgert, að hann verði fyrst sýndur á leiksviðinu. 2. Leikritið: Lénharður fógetí“, þ e. nýji sjónleikurinn, eptir Einar Hjörleifsson, sem nýlega er kominn í bókaverzlanirnar. Gert ráð fyrir, að byrjað verði, að sýna hann á leiksviðinu um jólin. 3. Leikritið: „Ástaraugun11, eptir norskan rithöfund. Væntanlega minnist blaðið leikritanna þá sfðar. Hr. Guðm. Thorsteinsson (sonur hr. P. J. Thorsteinssonar, fyr á Bíldudal, og frúar hans) dvaldi í sumar um hrið vestur i Dalasýslu, og málaði þar eigi all-fáar landslagimyndir o. fl. Hann hefir að undanförnu um hrfð iagt stund á að nema málara-listina í Kaupmannahöfn. Frá 28. sept. þ. á. til 12. þ. m. (okt), að báðum dögunum meðtöldum sýndi hr. Magnús — ^rnason, ýms málverk f Iðnskólanum hér í bænum. Hann er einn þeirra, sem um þessar mundir eru að nema málara-listina. „Vesta11 kom bingað, norðan og vestan um land, aðfaranóttina 10. þ. m. Skipið lagði aptur af stað héðan um kvöldið samdægurs, vestur og norður um land, til út- landa. „Ceres11 kom hingað frá útlöndum að morgni 9. þ. m. — Meðal fax-þegja voru: Ungfrú Emi- lía Indriðadóttir, re' ísors Einarssonar, frú Stef- anía Copeland, og cand. med. et chir. Gunn- laugur Claessen, síra Bjarui dómkirkjuprestur •Tónsson. og frú hans o. fl; o. fl. Ennfremur meBti sægur fólks frá Austfjörð- um — I'arþegjar alls á fjörða hundrað. V átrygrgið eigur yðar (ln'iis, húsgögn, vörur o. 11.) í.yrir ehlsvoða i l)rvma.bóta.íéliiginu. „General”, stoínsett 1885, Aðal-umboðsmaður fyrir* ísland: Sig. Thoroddsen acljunkt. Umboðsmaður fyrir Norð- ur-ísafjarðarsýslu er Jón Hróbjartsson verzlunar- stjóri. Duglegur umboðs- maður óskast fyrir Vestur- ísafj arðarsýslu. RITSTJÓRl OG EIGANDI:” KÚLI y HORODDSEN. Prentsmiðja Þjóðviljans.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.