Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.01.1915, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.01.1915, Blaðsíða 3
Þ.TOÐVILJINft 13 XXIX., 4.-5. Ðtlendir fréttamolar. (Úr ýmsum áttum). —<Jr.— Verksmiðja i Drammen (í Noregi), er búið hefur til glugga-gler, brann að mestu til kaldra kola, 9. nóv. síðastl. (1914). Skaðinn er métinn 200 þús. króna. I Noregi eru menn og eigi óhræddir um það, að bruninn geti leitt til þess, að þar verði börguJl á glugga-gleri. Stafar það og eigi hvað sizt af því, að samskonar verksmiðjur í Belgiu hafa nú um tíma staðið al-aðgjörðarlausar ó- fnðarins vegna, og sizt að vita, hvenær úr þvi bætist. Símað er frá Parísarborg (9. des. sið- astl.), að samkvæmt skýrslu frakkneska fjármálaráðherrans nemi útgjöld Frakka til hersins þá orðið alls nær 80 millj. franka á degi hverjum (þ. e.: um 21— 22 millj. króna). Mælt að við því megi búast, að her- kostnaðurinn fari þó enn stöðugt vax- andi um hrið. Vopnahlé vildi nýi páfinn (Benedikt XV.), að gert væri um jólin, —vildi að menn berðust eigi á aðfangadagskvöldið eða um jóladagana. Simfregnirnar, er frá óiriðarstöðvun- um hafa borizt, sýna þó að allar hafa ófriðarþjóðirnar Játið greind tilmæli páf- ans alveg sem vind um eyrun þjóta. Vitfirrings- og heiptar-æðið auðsjáan- lega meira en svo, að þær hafi getað unnt hver annari slíks. 24. nóv. siðastl. (1914) minntist há- skólinn í Kaupmannahöfn þess, að þá voru liðin hundrað árin, síðan er Adolf prófessor Hannover fæddist. Aðal-minnmgarræðuna hélt Salomon- sen prófessor, — gat um þýðingu Hann- over’s prófessors sem vísindamanns. Eannsóknir hans ýmiskonar með smá- sjá taldi hann hafa aflað honum frægðar, jafnt utan Jands sem innan. Hannover prófessor dó 7. júlí 1894. Danska blaðið „Politiken11 getur þess (í öndverðum nóv. síðastl.), að síðan „rottu- lögin frá 1907‘‘, þ. e. lögin um alúirým- ingu rottunnar öðluðust gildi, hafi alls venð drepnar þar sex ínilljónir af völsk- um (eða rottum), er verðlauna hafi fyrir verið krafizt. 838 þúsundir manna keyptu alls að- göngumiða að „Tivoli“, aðal-skemmti- staðnum í Kaupmannahöfn, í sumar er leið. Síðustu tvo mánuðina (ágúst og sept.) hafði norðurálfu-ófriðurinn mikli þó dreg- ið að mun úr aðsóxninni. Henni annars svo hagað, sem hér segir: í maí......alls 132,938 - júní..... — 269,280 - júlí..... — 257,065 - ágúst.... — 127,456 - sept..... — 61,269 Alls urðu tekjurnar þá og 940 þús. 411 kr., en útgjöldin að eins 775 þús. 957 kr. Til hluthafa runnu alls 123 þns. 340 kr., eða 81/2% hlut. Mesta aðsóknin á einu kvöldi íannan j í hvítasunnu) var alls 33 þús. 872. Til Yskyb flutti stjórnin í Serbiu að- setur sitt, meðan BeJgrad (höfuðborg Serba) var í höndum Austurrikismanna. En Yskyb er borg í þeim hluta lands- ins, er Serbum hlotnaðist, er iyktir urðu Balkanstyrjaldanna og hafði verið höf- uðborg Serba fyr á öldum. Hve mjög norðurálfu-ófriðurinn mikli hefur víða lamað verzlunina, og þá eigi hvað sízt dregið úr verzlun ófriðarþjóð- anna sjálfra, má meðal annars marka af því, að í síðastl. septembermánuði (1914) voru útfluttu vörurnar frá Austurríki alls um 180 millj. króna minni, en í sept- embermánuði árið næst áður. Aðfluttu vörurnar voru og í sama mánuðinum alls 150x/2 millj. króna minni en í septembermánuði árið næst áður. A fyrirlestraferð á Italíu var skáld Belga Maurice Materlinck í des. síðastl. (1914), til að safna fé handa Belgum, er úr Jandi hafa flúið ófriðarins vegna. | Þaðan fór hann síðan — eða ætlaði — til Bandarikjanna, til að safna þar fé á svipaðan hátt og í sama skyni. Maeterlinck er, sem kunnugt er, eitt af aðal-skáldum Belga, og hefur — auk ljóðmæla o. fi. — ntað eigi all-fátt leik- rita, er mjög mikils hefur þótt um vert. Hann er fæddur í borginni Gent árið 1862. en semur þó rit sín á frakknesku. 19. nóv. siðastl. (1914) kom til Kaup- mannahafnar siðasta skipið, er frá Græn- landi kom árið sem ieið. Skipið, er hét „Godthaab1- (skipherra Skovby), kom frá Angmagsalik, á austur- strönd Grænlands, og var fermt lýsi og selskinnum. I Angmagsalik eru ibúar að eins 104 að tölu, og skip kemur þangað að eins einu sinni á ári, — kemur þangað nú næst í ágústmánuði næst. (1915), og fyr en þar að kemur, berast þangað því t. d. alls engar fréttir af norðurálfu-ófriðnum mikla, er nú geisar sem ákafast í álfu vorri. A heimleiðinni til Danmerkur kom „Godthaab“ við í dönsku nýlendunum Julianehaab og Godthaab, og þar fá menn nú í fyrsta Jagi fréttir aptir frá umheim- inum í júnímánuði næstk. (1915). Mælt er, að 39 þjóðerni taki alls þátt í sýningunni miklu í San Francisco, er hefst 20. febr. næstk. (1915). Geta má þess, sem dæmis þess, hve mjög þjóðirnar keppa um það, að láta, hver um sig, sem mest á sér bera, að | Svíar hafa veitt úr rikissjóði 600 þús. ' króna til þátttökunnar, — hafa og í San Francisco Játið reisa sér sýningarhöll, er kostað kvað hafa 60 þús. dollara (þ. e. um 223 þrís. króna). Sonar-sonur Bismarck’s gamla, „járn- kanzlarans“, er svo var nefndur (f 30. júli 1898), er um þessar mundir einn undirliðsfonngjanna i þýzka hernum. Kiicl 11 ers-grei n i n. (Sbr. hér aptar í blaðinu.) --«30-- Þó að grein Karls meistara Kuchlei’s, sem birt er á öðrum stað í þessu nr. blaðs vors, sé að vísu, sem eðlilegt er, mjög einhliða, þ. e. líti að einsþýzkum augum á norðurálfu-ófriðinn mikla, sem enn geys- ar í álfu vorri og viðar, þótti þó rétt, að lesendum vorum væri eigi synjað þess, að kynnast henni. Að sjálfsögðu leggjum vér Islendingar alls engan dóm á þad, sem óf> idurþjód- unum ber á milli, né eigum ad gera þad, — nægir, ad vér vitum þad, að þær eru i allar, og hver um sig, — þar sem hern- aðar-óhæfan er annars vegar — si-fremj- andi allra versta og svívirðilegasta athætið, sem ájörð vorri getur framið orðið. A œgir og að vér vitum þad, adþœr eru nú allar, og hver um sig, adfremja þad athœfid, sem eiimatt bar jarð- verum öllum — og þá og hverri ófriðar- þjóðanna, og einstaklingum þeirra, eigi síður —, að sjá um, að aldrei gæti framið orðið, eda stödvad vœriþótafar- Jaust, hvar á jördinni, sem út brytist. A hinn bóginn ætti þó grein hr. Kiich- lers, sem — eins og annað, sem hann skrifar1) — vottar hlýjan hug hans til vor íslendinga, að geta orðið oss hvöt til þess tvenns: 1. ad áfeliast enga ófriðarþjóðanna ann- ari fremur og 2. ad leggja sem varlegast trúnað á símskeyti, blaðagreinar o. fl., er að ófnðnum lýtur, og vér eigi getum um dæmt. A þetta töldum vér rétt að benda, svo að það, að vér birtum grein hr. Krichlers, yrði þá eigi á neinn hátt skilið á þann veginn, að vér værum því sam- þykkir, sem í grein hans segir, eða leggð- um nokkurn dóm á það. „HELLENER OG BARBAR“ er nafnið á nýrri skáldsögu eptir Sophus Micha- elis, sem Gyldendalsbókaverzlunin í Kaup- mannahöfn gaf út seint í nóv. síðastl. (1914). Sophus Michaélis er fæddur í Odense 14. maí 1865, og mun vera talinn í röð betri skálda Dana, sem nú eru uppi. Hann hefur samið eigi all-fáar skáld- sögur og nokkur leikrit, og gefið út ljóð- mælasöfn eptir sig. Kona hans, Karen Michaélis (fædd 20. marz 1872), hefur og samið eigi all- fáar skáldsögur. 1) Aráair og háðglósur hr. Jóns Ólafssonar (fyr alþm.) í garð hr. Kuchlers, sbr. „Morgun- biaðið“ (M/, ’lð), hafa þá og þvi fremur fallið oss — og án efa ótal-mörgum öðrum — mjög ílla. Sk. Th.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.