Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.01.1915, Síða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.01.1915, Síða 4
14 ÞJOÐjVILJINN. XXIX., 4.-5. t Skapti Bryiijólfsson Vestnr-íslendingai*. Einn af helztu löndum vorum 1 Vest- urheimi, Skapti Brynjólfsson, andaðist í Winmpeg 21. des. síðastl. (1914). Hann var fæddur í Forsæludal í Húna- vatnssýslu árið 1860, og var því maður á bezta reki, að eins 54 ára að aldri. Fluttist hann til Vesturheims með foreldrum sínum, er hann var nær á bernsku-skeiði, árið 1874. og dvaldi þá fyrst í Bandaríkjunum, eða fyrir sunnan landamerkjalínuna milli þeirra og Can- ada, en siðan einatt í Winnipeg, eða þar í grenndinni. Skapti var mikils metinn at löndum vorum í Vesturheimi o. II., eins og bezt sást á þvi, að hann átti um þrjú ár sæti á ríkisþinginu i Daeota. Hann var öflugur stuðningsmaður unit- aratrúarflokksins íslenzka í Canada og um hríð forseti unítariska kirkju- eða trú-félagsins í Winnipeg, sem eigi all- fáir landa vorra halda þar uppi. Yfirleitt var Skapti heitinn Brynjólfs- son dugnaðar- og atkvæða-maður, og þjóð- flokki vorum í Vesturheimi þvi mjög mikil eptirsjá að honum. Arið 1909 kom hann hingað til lands- ins í kynnisför, og minntist jiá Islands mjög hlýlega í samsæti, sem þáverandi ráðherra Björn Jónsson hólt þingmönn- um o. fl. í „Iðnóu um þinglokin. Stofnun „Eimskipafél. íslands" studdi hann og rækilega, sem Vestur-íslendingar fleiri. Hann var og aðal-útgefandinn að „Andvökum“, kvæðabók Stephans G. Stephanssonar, vestur-íslenzka skáldsins. Skapti heitinn Brynjólfsson var kvænt- ur Gróu, dóttur Sigurðar skálds Jóhann- ; essonar í Winnipeg. Banamein hans var ígerð í höfði — gerður á honum holdskurður að lokum, og leiddi þó tii bana. í dönsku blaði sáum vér ný skeð sam- anburð á fólksfjöldanum í Þýzkalandi, Stór-Bretalandi og Frakklandi, bæði eins og hann var 1871 og árið 1912, þ. e. 1—2 árum áður en ófriðurínn hófst. Fólksfjöldinn er þar talinn sem hér segir: 1871 1912 Þýzkaland . . 40,997.000 66,096,000 Bretland (ogír- land. . . . 31,556,000 45,663,000 Frakkland . . 36,190,000 39,602,000 A nefndu tímabili — þ. e. á tíman- um frá fransk-þýzka stríðinu (1870—’71) til norðurálfu-ófriðarins mikla, að kalla iná — hefur fólksfjölgunin því tiltölu- lega verið mest á Þýzkalandi (þ. e. yfir 61#/o), en lang-minnst á Frakklandi (þ. e. að eins freklega 9°/0). „GrOÐAFOSS“ verður nafnið á norð- urlándsskipi „Eimskipafélags íslands11, að því er stjórn félagsins hefur ákveðið nú ný skeð. Mælt er, að skipið verði albúið og látið hlaupa af stokkunum i næstk. marz- mánuði. Verzlunar-fréttir. —goo— í skýrslu, dags. í Kaupmannahöfn 12. janúar 1915, segir svo um sölu og sölu- horfur á ísl. afurðum: Árið 1914 hafði norðurálfu-ófriðurinn afar-mikil áhrif á vöruverðið. Sumar útlendar vörur hækkuðu ákaf- lega i verði, og sumar íslenzkar vörur hækkuðu einnig óvanalega mikil, eink- um ull og að nokkru leyti skinn. En þetta kom mönnum svo óvænt, að menn höfðu minna gagn af því en skyldi, þvi að flestir höfðu áður selt lyrirfram, er verðið var orðið tiltölulega hátt, — þorðu þá eigi undir því að eiga, aó var- an hækkaði enn meira, enda eigi óhugs- andi, að hún gæti þá og fallið, t. d. vegna útflutningsbanns, er yfir hefur vofað o. fl. Ymsir agentar notuðu tækifærið, er varan hækkaði, og keyptu þá vöruna beina leið, svo að þeir gætu þá grætt sem mest á henni, og hefðu vöru-eigend- ur því í flestum tilfellum borið meira úr býtum, hefðu þeir látið umboðsmann sinn selja, — hefðu að minnsta kosti átt að síma umboðsmanni sínum áður en varan var öðrum seld. Að því er vöruverðið, sem nú er, snertir, skal þessa getið: Fiskur. Eptirspurnin mjög lítil síðan í nóvember og liggur því afar-mikið enn óselt hér af tíski. — Síðustu dagana virð- ist þó breyting til batnaðar, og talið víst, að fynr flsk fáist nú hér um bil sem hér segir: a) í'ullverkaðar salttiskur: Málfiskui 85—88 kr., smáfiskur 75—78 kr., isa 65 kr., Labrador fiskur 65 kr., keila 52 kr., upsi 42 kr. Hnakkakýldur stórfiskur 90—95 kr., en millifiskurinn er 10 kr. lægri. Sé fiskurinn eigi fullverkuð prima vara, þá er verðið þó lægra. o) óverkaður saltflskur, stór á 60—62 kr., og aðrar óverkaðar fisktegundir hlutfallslega. Lýsi. Þaö hefur og hækkað síðustu dagana, og er verðið, sem stendur, á þessa leið: Þorskalýsi, ljóst 50 kr., brúnt 42 kr., dökkt 40 kr., en mectalalýsi 60 kr. — liver 105 kíló. Hákarlslýsi 55 kr. pr. 105 kíló. Eptirspumin all-góð og fremur líkur til þess að verðið verði enn hærra síðar. Síld. Af henni hggja nú óseldar um 10 þús. tunnur. Eptirspurnin er litiL Hæðsta boðið, sem fengist hefur, er 18 aur. kíló. Prjónles. Alsokkar 1 kr. 10 aur., en hálf-sokkar 80 aur. — Sjóvetlingar á 55 aur., en fingravetlingar á 80 aur. Haustull, óþvegin, hvít: 3 kr. 16 aur. kíló. Saltkjöt. Dilkakjöt, prima, sex-höggv- ið og stimplað 82 kr. Af kindakjöti liggur talsvert óselt og má búast við að það seljist tæplega á 80 kr. tunnan. Gærur, saltaðar. — Eptirspurn lítil, — verðið varla yfir 10 kr. pr. 8 kiló. Æðardúnn. Eptirspurnin engin. — Verðið á að gizka 26 kr. kíló. Ávarp til Íslendínga. —-jy.— Islendingat minir! Eg varð alveg hissa, þegar eg las í þeim íslenzku blöðum, sem eru send mér sem heiðursgjöf frá nokkrum ritstjórum, þá lygaþvættinga um þenna voðalega veraldarófnð, er hafa verið sendir til ykk- ar frá Frakklandi og einkum frá Englandi. Eg bið ykkur alla þess vegna sem inni- legast um eigi framar að trúa neinu orði af öllu því, sem Frakkland eða England segja yður um þetta efni, þar eð þeir miða ekki til neins annars en þess, að níðast á Þýzkalandi, föðurlandi mínu, fyrir það að þeir geta ómögulega sigrað oss með vopnum. Hve skammarlega þeir berjast, Frakkar og Englendingar, getið þið séð af því, að þeir sækja svertingja frá Afríku, þrælmenni frá Indlandi, ræn- ingja frá Japan til þess að slátra því grimmilegar þeim beztu sonum Þýzka- lands, er hafa dregið sverðið til þess að verjast þeirri níðingslegu árás, sem Eng- land hefur sviksamlega valdið. Eða haldið þið ekki, eins og eg, að það sé svartasta skömm fyrir alla Evrópu, fyrir allan menntaðan heim, en einkurn fyrir allar germanskar þjóðir, að þessir siðlausu skrælingjar séu sóttir af Frakk- landi og Englandi frá Afríku og Asíu til þess að slátra einni hinni beztu ger- mönsku þjóð í miðri Evrópu? Eða vitið þið ekki enn þá, að það er nú fullkomlega sannað með þeim embætt- isskjölum, sem Þjóðverjar hafa fundið í herskjalasafninu í Briissel, að England hafði þegar 1906 samið við Belgíu um að flytja enskt herlið á land í Belgíu og að ráðast á Þýzkaland með Belgíu búum, jafnframt sem Frakkland mundi veita árás á Þýzkaland? Er það pess vegna eigi eins bjart og sólarljósið, að England hefur haft fyrir löngu í hyggju að sækja að Þýzkalandi og að eyða Þjóðverjum, einungis tækifærið gæfist? Og hvers vegna það? Fyrir því að Þýzkaland blómgaðist æ meira, fyrir því að iðnaður og kaupverzlun Þýzkalands ukust og blómguðust á þessum siðustu áratugum næstum ómælanlega; fyrir því að íþrótt og vísindi i Þýzkalandi náðu svo háu stigi, að England gat eigi fram- ar haldið í við Þjóðverja, í stuttu máli tyrir því að England vildi eigi þola svo máttugan keppinaut við hliðina á sér! Það hefur þess vegna ekki verið neitt annað en öfundsýki Englands, sem hefur valdið þessum voðalega veraldarófrið, og það er England, sem þið eigið að sak-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.