Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.04.1915, Síða 8

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.04.1915, Síða 8
70 ÞjOdvILjin'iú XXiX., 18-19 REYKJAVÍK 29. apríl 1916. Síðustu yikuna af einmánuði. voru daglepa frost, meiri eða minni, Oft jörðin einatt alhvit að morgni. Sumarið heilsaði oss A hinn bóeinn mjög hlý- indalega, fimmtudaginn 22. þ. m., — veður mjög rnilt, og jórðin alauð. f 18. þ. m. andaðist hér í bænum frú Dóro- thea María Heilmann, ekkja Jóhanns heitins Heilmann’s, fyr kaupmanns. Börn þeirra hjónanna eru: 1. Guðrún, gipt Jóni kaupraanni Þorsteinssyni, hér i bænum 2. Davíð Heilmann, preetur í Kaupmannahöfn 8. Sophie, gipt Eyvindi trésmið Arnasyni, hér f bænum. Frú María Heilmann kenndi — mörgum fremur — andBtreymisina í lífinu um dagana, en tápkona var hún með afbrigðum og margt vel um hana. „Florau lagði af Btað héðan, vestur og norður um land, mánudaginn 19. þ. m. Meðal farþegja héðan var Jón Auðunn, iands- bankaútibÚBStjóri á ísafirði. Jarðarför Sigurðar barnakennara Sigurðsson- ar frá Mýrarhúsum, sbr. síðasta nr. blaðs vors, fór fram hér i bænum föstudaginn 23. þ. m. Landlæknirinn, hr. Guðm. Björnsson, brá sér ný skeð til Austfjarða, í embættiseptirlitsterð. Hans er von heim aptur f næsta mánuði. f 21. april þ. á. andaðist hér í bænum Eyjólf- ur trésmiður Ófeigsson. Banameinið var krabbameinsemd. Jarðarför Hjartar „Visis"-ritstjóra Hjartarson- ar, sbr. siðasta nr. blaðs vors, fór fram hér i bænum laugardaginn 24. þ. m. Fjöldi háskólagenginna manna (skólabræður hans o. fl.) fylgdu honum til grafar, auk margra annara. „Columbusu kom hingað frá átlöndum 19. þ. m. „Gullfoss11 lagði af stað héðan til Vesturlands- ins (og ísafjarðar) þriðjudaginn 20. þ. m. Meðal farfþegja héðan voru: Kaupmennirn- ir Arni Sveinsson og Marís Gilsljörð, frá ísafirði, Jón bóndi Jónsson frá Súðavik i Alptafirði, er komið hafði hingað með dóttur sína, til lækn- inga, síra Sig. Gunnarsson, og kaupmennirnir Oscar Clausen og Sæm. Halldórsson, allir frá Stykk:9bólmi. Enn fremur fóru og héðan: Ungfrú Guðbjörg Jafetsdóttir (til Önundarfjarðar), frú Arndís Jóns- dóttir (til Stykkishólms), og frú Gyðríður Þor- valdsdóttir (til ísafjarðar), sem og Páll umboðs- sali Stefánsson. Úr stjórn „Eimskipafélags íslandsuu brugðu sér og vesjur með skipinu: Eggert Claessen yfirdómslögmaður, Garðar kaupmaður Gíslason og Olegeir Friðgeirsson. Útför Lopts stýrimanns Ólafssonar, er lagður var fárveikur i land i Vostmanneyjum, frá ísl. botnverpinginum „Ránu, og andaðist síðan af afleiðingum veikinnar, sbr. síðasta nr. blaðs vors, fór fram hér i bænum föstudaginn 23. april þ. á. Loptur var fæddur að Störu-Fellsöxl i Borg- arfjarðarsýslu 20. sept. 1S89, og lauk stýrimanns- prófinu meira fyrir 2—3 árum. Hann kvæntíst 3. okt. siðastl. (1914) eptirlif- andi ekkju sinni, Agústu Pálsdóttur, Stofins- sonar, frá Stokkseyri. Foreldrar Topts heitins, sotn nú dvelja hér i Reykjavík, eru hjónin: Ólafur Jónsson og As- I gerður Sigurðardóttir, frá Stóru-Fellsöxl. ! Ungfrú Jósephina Zoéga (dóttir Helga kaup- manns), og mr. Hobbs, fiskikaupmaður, voru gef- in saman i hjónaband hér í bænum laugardag- inn 24. april þ. á. Búðkaupsveizlan fór fram á hótel Reykjavík. f Látinn er ný sktð Eyjólfur Símonarson, frá Skildinganesi, kominn á sjötugs-aldur. Stúdentafélagið hér i bænum gekkst fyrir því, að haldin var kvöldskemmtun i „Iðnó“ síð- asta vetrardagskvöldið (2l. apríl þ. á.) Bjarni frá Vogi skemmti mönnum þar með upplestri, en frú Laura Finsen söng. — Höfð var og „skrautsýning11 svo nefnd (með dansleik og söng), og stýrði frú Stefanía Guðmundsdóttir henni, en samið hatði Guðm. skáld Guðmundsson. Skemmtunin var endurtekin á sumardaginn fyrsta. Meða fána á stöngum, og lúðraþyt á Austur- velli, var sumrinu heilsað hér f bænum, á sum- ardaginn fyrsta (22 apríl þ. á.). „Gullfoss11 kom bingað frá Vestfjörðum að morgni 26. aprll þ. á. Meðal farþegja hingað voru: Jóhann oddviti Bárðarson íBolungarvík,Guðm lögmaður Hannes- son á ísafirði, Jón formaður Magnússon á ísafirði og Þorsteinn klæðskeri Guðmundsson, — báðir til að leita sér lækninga. — Enn fremur Ben. Þórarinsson, kaupmaður á Isafirði, o. fi. Jarðarför Mariu Heilmann fór fram hér í bænum, frá dómkirkjunni, mánudaginn 26. þ. m., og fylgdi henni eigi all-fátt til grafar. „Gullfoss11 lagði af stað héðan í Ameríku- hiðangurinn að kvöldi 27. apríl þ. á. — Far- þegjar yfir tuttugu, er með skipinu ióru, þar á meðal kaupmennirnir Jón Björnsson (bankastjóra Kristjánssonar) og Jónathan Þorsteinsson. Jafnvel að morgni þriðjudagsins (27 april) sást enn rjúka úr bruna-rústunum á tveim eða þrem stöðum. Eklii hafa enn fundist neinar leifai af líki Runólfs heitins Steingrimssonar, mannsins er fórst á „Hótel Reykjavík11 i brunanum, sbr. hér að framan, — hefir án efa alveg brunnið til ösku. Gryldendalsbókaverzlunin 1 Kaupmanna höfn byrjaði i vetur, að gefa út skraut- útgáfu af öllum ritum danska skáldsins Johannesar Ewald’s. Ewald var fæddur í Kaupmannahöfn 18. nóv. 1743, og andaðist þar 17. marz 1781. Hann er talinn eitt af beztu ljóðskáld- um Dana, og hafði, öðrum fremur, meist- aralegt vald á málinu, og telja margir hannfyrirrennaraOehlenschlager’s,danska skáldjöfursins, á öldinni, sem leið. „Manden paa Höjriis“ er nafnið á nýju þriggja þátta leikriti, eptir danska skáld- ið, og leikritahöfundinn, Einar Christian- sen er kom út í Kaupmannahöfn og sýnt var þar, á kgl. leikhúsinu, í vetur, er leið. Einar Christiansen er fæddur i Kaup- mannahöfn 20. júlí 1861, og hefir samið fjölda leikrita, sem og skáldsögur, o. fl. Þeir, sem gjörast kaupendur að 29. árg. „Þjóðv.u, er hófst síðastl. nýár og eigi hafa áður keypt blaðið, fá alveg ókeypis, sem kaupbætir, síðasta ársfjórðung næstl. árgangs (frá 1. okt. til 31. des.). Sé borgunin send jafnframt, þvi, er beðið er um blaðið, fá nýjir kaupendur einnig, ef óskað er, 200 bls. at skemmtisögum og geta, ef vill. valið um 8., 9., 10., 11., ! oe 14. söguheftið i sógusafni »Þjóðv.c Þess þarf naumast að geta, að sögu- safnshepti „Þjóðv. hafa víða þótt mjög skemmtileg, og gefst mönnum nú gott færi á að eignast eitt þeirra, og geta þeir sjálfir valið, hvert söguheftið þeir kjósa af sögusöfnum beim, er seld eru í lausa- sölu á 1 kr. 50 aura Ef þeir, sem þegar eru kaupendur blaðsins, óska að fá sögusafnshepti, þá eiga þeir kost á því, ef þeir borga 29. árgang fyrir fram. Til þess að gera nýjum áskrifend- um og öðrum kaupendum blaðsins sem hægast fyrir, að þvi er greiðslu andvirðisins snertir, skal þess getið, að borga má við allar aðal-verzlanir landsins, er slika innskript leyfa, enda sé utgefanda af kaupandanum sent innskriptarskirteinið. Þeir, sem kynnu að vilja taka að sér útsölu »Þjóðv.c, sérstaklega í þeim sveitum, þar sem blaðið hefir verið lítið keypt að undanförnu, geri svo vel, að gera útgefanda »Þióðv.< aðvart um það, sem allra bráðast. Nýir útsölumenn, er útvega blað- inu að minnsta kosti sex nýja kaup- endur, sem og eldri útsölumenn blaðsins, er fjölga kaupendum um sex, fá — auk venjulegra sö ulauna — einhverja af forlagsbókum útgefanda „Þjóðv.“, er þeir geta sjálfir valið. Gjörið svo vel, að skýra kunn- ingjum yðar og nábúum, frá kjörum þeim, er »Þjóðv.c býður, svo að þeir geti gripið tækifærið. Nýir kaupendur og nýir útsölumenn eru beðnir að gefa sig fram sem allra bráðast. Utanáskript til útgefandans er: Skúli Thoroddsen, Vonai*stræti 12, Reykjavik. RITSTJÓRI OG EIGANDI: SKÚLI THORODDSEN Prentsmiðja Þjóðviljans.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.