Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 26.06.1915, Síða 7

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 26.06.1915, Síða 7
XXIX., 2S.-29. þjoð 101 Um Dalasýslu sækja þessir lögfræðingar: Bjarni Þ. Johnsen, Einar Jónaeson, Guðm. Hannesson, Kristj&n Linn- ■et, JúIIub Havsteen, Sigurður Lýðsson og Böðvar Jónsson. „Isafold" kemur ílla upp um ráðherra. Staðfesting stjórnarskrárinnar mun að vísu ekki hafa komið mönnum á óvart -eptir það, sem á undan var gengið. Einar Arnórsson var búinn að lýsa því yfir við hina fyrri flokksmenn sína, að hann væri þeirrar skoðunar, að rótt væri að taka „leynitilboðinu“. Og þegar liann í trássi við flokk sinn hafði tekið við ráðherraembættinu, þá sáu menn strax hvað verða mundi. Al- menn gremja manna hér í bæ og út um allt land henr ekki getað aptrað honum frá því að fylkja sér undir fána dönsku stefnunnar, og ganga beint á móti yfir- lýstum vilja Alþingis, er fyrverandi ráð- herra Sig. Eggerz hafði haldið einarð- lega fram á rikisráðsfundinum 30. nóv. eíðastl. og hlotið þakkir allra Sjálfstæðis- manna fyrir, þar á meðal Einars Arn- órssonar. Að staðfestingarskilyrðin fullnægi ekki fyrirvara Alþingis sést þegar við yfirlestur „leynitilboðsins“, sem þremenningarnir sögðu að væri það lengsta, sem Danir gætu teygt sig, nema hvað núverandi ráðherra kvaðst ef til vill geta fengið einstaka orðabreytingu framgengt. En þetta verður ótvirætt af orðum seinustu „ísafoldar", þar sem hún hefir það eptir ráðherra, að hann hafi ekki getað fengið konung til þess að kalla saman aukaþing. Því að hafi skilyrði þau, er stjórnarskráin var staðfest með, fullnægt fyrirvara Al- þingis, þá var þad allsendis óþaift ad kalla saman aukaþing og meininga? leysa af rádheua ad fata fram á þad. Ráðherra hefir þannig kannast við ! það sjálfur, að hann hafi breytt þvert ofan í fyrirvara Alþingis. Með þessu hefir „ísafold“ komið svo ílla upp um ráðherra, að engum heilvita manni getur hér eptir komið til hugar að trúa fullyrðingum hans um að fyrir- vara Alþiugis sé fullnægt. Hin lögfræðislega skarpskyggni, sem var einn af aðal-kostum Einars Arnórs- sonar, hefir brostið hann, að því er þetta atriði snertir. Hann helir hlaupið á sig, þótt honum sé það ekki tamt. En svona fer það opt, þegar menn eru að gera eitthvað, sem þeir eiga ekki að gera. Hávardui. RITSTJÓRt OG EIGANDI: SKÚLI THORODDSEN Prentsmiðja Þjóðviljans. Einurðargóður, karlinn! 1 „ísafold“ frá 19. þ. m. skrifar Guð- mundur prófessor Hannesson meðal ann- ars þessa klausu: „— Þá er þess skemmst að minn- ast, að Sjálfstæðisflokkurinn fylgdi fast fram stjórnarskránni og aukning kosningaróttarins. Nú fæst stjórn- arskráin afsláttarlaust — en þá snyst þú á móti — hringsnýst áður árið er liðið!“ Þetta stendur að vísu í bréfi til Bjarna alþm. Jónssonar frá Vogi, og mætti geta þess til, að prófessorinn fengi þaðan apt- ur senda þessa hnútu, en af því að B. J. er nú fjarstaddur og af því aó þetta mál snertir Sjálfstæðisflokkinu, þá er ekki rétt að ganga þegjandi fram hjá því. Já, Sjálfstæðisflokkurinn fylgdi fast fram stjórnarskránni og aukningu kosn- ingaróttarins, meðan hann bjóst við að geta fengið þetta afarkostalaust. Flokk- urinn gjörði það, og skammaðist sín ekk- ert fyrir, nema Gudmundur Hannesson. Hann snerist allt í einu eins og vindhani í þingbyrjun í fyrra gegn helztu réttar- bótunum i stjórnarskránni, og var þá svo brátt að halda „jómfrúræðuna11, að hann tók til í allt öðru máli að skamma aulcn- ingu kosningaréttarins niður fyrir allar hellur, en hóf það fyrirkomulag til skýj- anna, að konuugur kveddi menn til þing- setu. Gjörði maðurinn sig að svo miklu undri í þingsalnum, að sumir héldu að eitthvað gengi að honum. 206 i loptið, en ginið var upp glennt, og tók hún því dúf- una í lófa sér. „Þú þegir, og það er mór giunsamlegt!“ mælti Anna-María enn fremur. „Og snýrð nú bakinu að mér, eem er vottur um íila samvizku þína! Gío sneri sór við, en leit síðan á dúfuna, er Vir dáin. „Önnur, sero deyr í dag!“ sagði hún, og klappaði dúfnnni, „Og þá eru nú að eins fimm eptir af tólf!“ Windmuller snart hönd hennar vingjarnlega, og tók síðan við dúfunni af henni. „Nú /erður að ganga úr skugga um það, hvað pest- inni í dúfunum veldur!“ mælti hanD, og hris9ti höfuðið. „Jeg sé um það!“ „Hr. Morghan hefur lofað, að sjá um það!“ mælti Gío. „Ríta fékk honum dúfuna, sem drapst í morgun!“ „Enn betra, er við þá gerum það báðir!“ mælti Windmuller. Beri báðum rannsóknunum saman, veit maður þá hvers kyns er“. „En nú er bezt, að þér, ungfrú Falkenberg, fylgist með mér, og rekið eptir Nikkel!“ mælti hann enn fremnr. „Jeg ætla heldur, að reka eptir Gío, og pexa ögn við hana!“ svaraði Anna-María. „Komið!“ mælti Windmuller aptur. „Gío er sizt í því skapi núna!“ „Guð mÍDn! Engu líkara, en hún ætli að fara að gráta, — út af óræstis dúfunni!“ Onnu Mariu Falkenberg hefur fráleitt verið það vel Ijóst. hvað því olli, hve fljótt hún komst út úr herberginu. Hún vissi þó, að prófessorinn dró hana með sér, 20J við sig, stóð upp, gekk fram og aptur í herberginu, og nam síðan staðar fyrir framan Gío. „Takið nú eptir því, sem egsegi!“ mælti hann lágu „Jeg lit alls eigi svo á að frænka yðar sé óhættuleg, — tel hana þvert á móti albúna þess, að svifast enda alls einskis, telji hún þess þörf! En fyrir mér vakir það nú, að koma heDni héðan, svo að þér verðið þá frjálsari! Hverniq eg fer að þvi, vil eg helzt eigi minnast á, svo að þér getið alveg þvegið yðar hendur, er hún er farin!“ „En klípi maður höggorminn í halann Gío, SDýr hann sér við. og býtnr!“ mælti Windmuller enn fremur. „Bitur þann, er næstur honum er, en eigi hinn, sem kleip hann! Verum þvi varkár! Varist, að vera ein með Onestu og manninum hennar! Varist það algjörlega, unz Joptið or orðið hreint! Hafið hurðina tvílæsta, er þér eruð ein inni, og — siðast, en eigi sízt — látið ein- hvern einatt fylgja yður, er þér gangið um húsið! Pfiflfer- ling getið þér notað, sem yður sýnist! Gætuð eftilvill vísað honum á herbergi nærri yður? Hafið þér skilið mig?“ Gío játti því og rak upp stór augu. „Það eitt brestur nú á, að eg megi eigi borða annað, en egg, sem eg sjálf hefi séð um suðuna á, og eigi drekka annað, od vatn, sem eg sjálf hefi sótt?“ mælti Gío. Windmuller þagði nú um hríð, og varð Gio þá fyrri til, og mælti: „Þér hljótið sannarlega að álíta frænku mína mjög hættulega! En þá eruð þér nú orðinn á minu máli! Og 1 vaða hættu teljið þér vofa yfir mér, fyrst þér ráðið til slíkra varúðarreglna? Segið það hreint og beint, hva íllt sem það kann að vera!“

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.