Lögberg - 16.01.1889, Síða 4

Lögberg - 16.01.1889, Síða 4
TJR BÆNUM bG GRENNDINNI- Þessa síðustu daga licíur frostið rer- ið nokkru meira en að undanförnu, en l>ó ekkert svipað því, sem )að er vant að vera í þessum máuuði, allt af þægi- lega svalt um miðjan duginn og sömu stillurnar. Prjcdikanir presliyteriana-postulanna ís- lenzku virðast verða æ heitari og heit- nri. Nýlega fullyrtn þeir, að biskupinn á íslandi legði sig rnjug fram urn að teygja inenn niður til lielvítis, og prcst- arnir íslenzku aðstoðuðu hann í því af frernsta rnegni. — Iíjón ein íslenzk, lieið- virð mjög og mikils 'metin af öllum, voru f kirkju þeirra hjer um daginn. Þau voru að teygja hvort annað niður til þessarar sömu vistarveru, að því er postularnir staðhœfðu. Kvennfjelagið ízlenzka og bókafjelag íslandsdætranm hafa komið sjer saman um að halda sainkomu í húsi íslend- ingafjelagsins á föstudagskvöldið kemur. Agóðanum af samkomunni á að verja til þess að styrkja Mrs. Hólm til að koma út skáldsögu, sem enn er óprent- uð, og sem almenningi hafa verið send boðsbrjef um. Áskrifendur liafa enn ekki orðið svo margir, að Mrs. Hólm sjái sjer fært að ráðast í útgáfukostn- aðinn, og þess vegna ætla . þessi fjelög að hiaupa undir bigga. Á samkomunni verður söngur og ræðuhöld, og auk þess leikið stutt leikrit ept.ir Mrs. Hólm. Inngangur 25 c. fyrir fullorðna og 16 c. fyrir börn. Ilerra Tómas Pálsson, Langenburg P. O., hefur sent oss $11.00 til samskot anna til Jóns Ólafssonar. Þeim peningum hefur hann safnað meðal ianda í Þing- vallanylendunni. Til Jóns Ólafssonar samskotanna höfum vjer fengið $11.00 frá herra Jóni Ólafs- syni, Cypress Itiver P. O. Ilann hefur safnað |eim peningum meðal landa í austurparti Argyle-byggðar. Þeir kaujiendur Lýðx hjer í bænuin sem hafa pantaö blaðið á skrifstofu Lörjhergs, en ekki fengið það enn, geri svo vel að vitja þess sem fyrst. Jeg vil leyfa mjer að vekja atliygli landa manna á auglýsingunni um Winni- peg Bnsinexs College, á öðrum stað í lilað- inu. Jeg get af eigin reynslu mælt fram nreð (eim skóla við alla þá, sem læra vilja verzlunaraðferð þessa lands, og sjerstaklega vil jeg skora á hina ungu landa mína, að nota þetta tæki- færi til að verða jafnsnjallir hjerlend- um mönnum í því, sem í þessu landi er almennt kallað bminess. Björn B. Joimson. STEINSKÓGUR. (Ótdráttur úr Popular Science MontJJy.) Eitt af því merkilegasta, sem sjeð verð- ur í hinum nýja heimi, er vafalaust skógurinn í Arizona, sem orðinn er að steini, og sem vanalega er kallaður „Calce- don-garðurinn“ — en sem annars er eng- inn garður framar; þvl að risavöxnu trjen, sem einu sinni uxu þar, eru fyrir löngu.dottin um koll og orðin að agöt- um og öðrum dýrmætum steinum. Garð- urinn er 8 enskar mílur fyrir sunnar Corri/.a, sem er járnbrautarst'ið á Atlantic & Paciflc-járnbrautinni, og 24 mílur suðaustur frá Holbrook. Þar er hjer um bil 1 millíón tons af trje, sem orð- ið er að steini, og þessi steinskógur nær yfir hjer um bil 1000 ekra svæði. Vana- lega standa trjen út úr eldfjalla-ösku og hraunleðju, sem er undir sandsteins- lagi, á 20—80 feta dýpi, og sjest þessi hraunleðja í giljum og á öðrum stöðum, jarsem vatnsrennsli hcfur þvegið sand- steininn burt. Það er einltennilegt að líta yfir „garð- inn“. Hvervetna umhverfis mann liggja trjen í ölluin hugsanlegum stellingum; þau liafa brotnað í sundur og stykkin eru mjög svo misstór. Opt sjá menn 150 feta löng trjé, brotin sundur í 150 parta, lijer um bil jafnlunga alla, eins og trjeð hefði á sínum tíma verið sagað sundur af manna höndum. Bumstaðar sjá menn aptur á móti gríð- arlega stór trje, sem dottið hafa sundur í ótal smá-parta. Sumstaðar liggur ó- grynni af steinum með fullri tenings- lögum. Hæsti staðurinn í garðinum er lijer um bil 200 fetum liærri en svæðið um- hverfis, og þar geta menn fengið bezta hugmynd um trjen, sem i öskunni eru grafin. Sum trjen eru 150 feta löng og allt að 10 fet i þvermál, og þeim er stráð um í allar áttir. Partur af einu trjenu, scm grafinn hefur vcrið upp, er 10 feta langur og 8 fet að þvermáli og er nokkur tons að þyngd. Þetta trje liefur upprunalega vorið um 200 feta langt. Nokkrir bútar af þessum trjá- stofnum, sem fluttir hafa verið til New York, liafa verið frá 8 þumlungum til 3 fcta á þykkt, og frá 25 til 1000 punda þungir. Það er nærri því ótrúlegt, hve vel trjápartarnir hafa geta lialdið sjer; árshringirnir eru svo glöggir, að ómögulegt er að efast um uppruna þessara steina. Merkilegasta sjónin í garðinum er Agatbrfnn, sem svo er nefnd, enda finnst víst ekki hennar iíki neinstaðar í lieiini, Hún nær yfir 45 feta djúpa og 55 fcta breiða sprungu, og hefur myndazt úr trje, sem orðið er að agat. öðru meg- in við sprunguna heldur stofninn áfram um 50 fet, svo að ofanjarðar er liann meira en 100 feta langur. Báðir end- arnir á trjenu eru í jörðu niðri. Með- alþykktin á því er 35J fet. Þar sem börkurinn situr enn ekki fastur á því, þar má hvervetna sjá einkennilegu jas- pis- og agatlitina. Reyndar hitta menn trje, sem orðið er að steini vlða annars staðar í heim- inum, en engan stað þekkja menn enn, þar sem svo mikið er af þvf, og jafn- fögur og jafn-margvísleg tilbreytingin, eins og á þessutn stað í Arizona. Þar eru allir litir á því, rauður litur, gulur, mórauður, grár, grænn, hvítur o. s. frv. Sumstaðar er það dröfnótt og rákótt; á öðrum stöðum eru litirnir ekki eins að- greindir, og eru þá steinarnir ólíkir vanalegum agat-steinum, því að í þeim koma litirnir hreinir fram í nákvæmlega afmörkuðum hringum. Hjer og þar eru innan um þessa liti stórir stönglabergs krystallar, stundum blandaðir ametyst, jaspis og öðri m fögrum steintegunidum. Dr. P. H. Dudley í New York hefur rannsakað ýmsa af þessum bútum með stækkunargleri, og af rannsóknum hans hefur það orðið augljóst, að trjen, að minnsta' kosti mikill hluti þeirra, heyrir til tegundinni araucaria. Ilann segir, að þessi trjátegund, araucaria excelsa, sem vex á Norfolk-eyjunni. sunnarlega í ICyrrnhafinu, verði 150 til 200 feta liá. Hvolfmyndunin í þessum trjám, sem hvað vera mjög einkennileg, er mjög lík því, sem sjeð verður að hún hefur verið í þessum trjám, sem nú eru orðin að steini. Aðrir þessara trjásteina minna á rauða sedrusviðinn, eins og hann er nú á döguin syðst i Bandaríkjunum. Hvervetna má sjá )>að, að öll þessi trje hafa náð þroska sínum í mildu og til- breytingarlitlu loptslagi; það sjá menn á árshiingunum, því að lögun þeirra er allt önnur en á vanalegum trjátegund- um, sem vaxa norðarlega á linettinum. Á mörgum af bútunum, sem rannsakaðir hafa verið, sjest að trjánum liefur verið farið að fara aptur, þegar þau urðu að steini., Illutafjelag hefur myndazt, sem feng- ið hefur umráð yfir skóginum, og sem hefur þegar fyrir nokkrum árum byrjað að færa sjer í nyt þær fágætu dásemd- ir, scm þar liggja grafnar. Bj'rjað hefur verið á að slípa agnta, á líkan hátt eins og gert hefur verið á Þýzkalandi í æði- mörg ár; en sá er munurinn að þar sem menn á Þýzkalandi hafa ekki nema mjög lítil stykki við að fást, þá verða menn hjer opt að eiga við mjög stór stykki, og af því flýtur að aðferðin hlýtur að verða töluvert önnur. Menn sjá þegar í flestum búðum gull- smiðanna og gimsteinasaianna slípaðar plötur og aðra skrautmuni, framúr- skarandi fagra, sem efnið hefur fengizt i úr þessum steinskógi. Og enginn vafi leikur á því, að þetta efni muni fram- vegis verða mjög notað í Ameríku í borðplötur, blómker og í ýmsa aflra skrauthluti. Enn eru þessir munir mjög dýrir, því að nýlega er farið að búa þá tii, en liklegt er að verðið muni lækka til muna eptir því sem auSveldara verð- ur að ná í efnið. Ofurlítil kringlótt WINNIPE& BUSINESS COLLE&E 496 MAIN S*fR. Prívat tilsögn í Hókfœrslu: Iteikningi, Málfrceði, Skript, Hraðskript, Typeteriting, etc. etc. Sjerstök kennsla fyrir pá, sein komast vilja inn á skrifstofur stjórnarinnar. þessi skóli er sá lang hentugasti sk(51i fyrir p>á, sem að einhverju leyti ætla sjer að verða við verzlun riðnir. Ef þjer lærið á pessum skóla, purfið pjer aldrei að kviða atvinnu- leysi eða fátækt. Með því að ganga á þennan skóla stígið þjer fyrsta sporið til auð- legðar og metorða. S.L.PHELAN FORMAÐUll plata, 5 til 6 þl. að þvermáli og % til 1 |>1. á þykkt, kostar nú 9—16 dollara. Gimsteinasalinn Politzer í New York valdi einn bút af þessum trjám, til þess að láta standmynd standa á, sem gefa á myndasmiðnum Bertholdi, sem bjó til myndina þá liina nriklu af frelsis- gyðjunni, sem nú prýðir liöfn New Y'ork-borgar. Flötur þessi, sem myndin á að standa á, er jafnliliða ferhyrningur, 11 þml. á hvern veg og 7yz þ].* á þykkt, og þessi bútur var valinn fyrir það, hve framúrskarandi fagrir litir eru á honum. Þetta er stærsta stykkið, sem nokkurn tima hefur verið unnið úr trje, sem orðið hefur að steini, og marga mánuði þurfti til að slípa það, vegna þess, hve óvenjulega hart það er. Eins og vjer gátum um í byrjuninni, er gizkað á, að alls muni vera til 1 millíón tons af þessu efni, en ekki er hægt að komast að nema litlum hluta af bessu, því að mestur lilutinn liggur grafinn undir sandsteinslaginu; ætlað er að naumast muni hægt að fást við meira en 1000 tons í allt, og ekki er hægt að nota nema tiltölulega lítinn part af því til sjerlegra dýrindisgripa. Sem stendur nær London yfir 700 ferhyrningsmílur enskar, og íbúar henn- ar eru 4,769,000. þar á meðal eru 260,000 lítlendingar frá öllum löndum. Þar eru fleiri kaþólskir menn en í Rómaborg sjálfri, fleiri Gyðingar en á öllu Gyð- ingalandi, fleiri írar, en í Dublin og fleiri Skotai' en í Edinhurgh. Árlega bætast 40 milur við strætin og 15,000 hús. Þar fæðast 46,000 börn um árið. Þar eru að meðaltali á hverjum degi 1000 skip með 10,000 mönnum. 38,000 manna eru teknir fastir um árið fyrir ofdrykkju. Út frá pósthúsunum eru arlega sendar 298 milllónir brjefa. Fje- lagið, sem á járnbrautir þær sem niðri í jörðinni eru, sendir (laglega 1211 vagn- lestir af stað í allar áttir. Strætisvagna- fjelagið á meir en 700 vagna, sem ár- lega flytja 56 millíónir farþegja. Það er hættulcgra að fara um götur Lund- úna en eptir járnbrautum eða yfir Atlantshafið; að eins árið 1883 liðti 130 manns bana þar á götunum og 2600 sköðuðust. Þar eru 15,000 lögreglu-em- bættismenn, 15,000 vagnastjórar á leigu- vögnum og 15,000 póstþjónar. 400 dag- blöð og vikublöð eru gefin þar út. Þar kviknar að meðaltali 000 sinnnm á ári í húsum. Prentfjelag Logbergs prcntar með gufuafli, og tekur að sjer prentun á alls Jconar smá- blöð'um, grafskriptum, kvœðum, aðgöngnmiðum til skemmtana, umdögum, ‘ reikningum o. s. frv., o. s. frv. Allur frágangur í bezta lagi, og verðið það lægsta, sem fáan- legt er í bænum, NÚ ER BYRJUÐ í CHEAPSIDE * S j 011 a a r 1 e g a VERDLÆKKUNIN. Þetta er sú stórkostlegast verðlækkun, sem fyrir kemur á árinu, og fólkið kem- ur í hópum saman til að ná í kjör- kaupin. HVERS VEGNA? Af því allt er á boðstólum. Við óskum eptir að fá yður fyrir skiptavini, og við munum gera allt, sem í okkar valdi stendur, til að gera yður ánægSa. Bunkar af allskonar nytsömum vör- um fyrir hálfvirði. Kjólatau, gólfteppi, og allskonar hús- prýði, með yðar eigin verði og 2ð e. afslætti af hverjum dollar. Komið því strax, og komið með viní yðar m ð yður. Banfield & Miedian. 314 tnanna. Dar voru og viðstaddir hjer um bil 20 höfðingjar, og peirra á meðal kannaðist jeg við Ilesta af vinum okkar frá nóttunni áður. Twala heilsaði okkur, mjög vingjarnlega að því er virtist, en þó sá jeg hann líta með sínu eina auga illilega til Umbopa. „Y elkomnir, hvítu menn frá stjörnunum“, sagði hann; „pað sem pið nft sjáið er ólikt pví, sem augu ykkar störðu á við ljós mánans síð- astliðna nótt, en petta er ekki eins góð sjón. Stúlkur eru viðfeldnar, og pað er að eins vegna pessara hjer“ (og hann benti hringinn í kring um SIÍ?) v)ð eruin hjer í dag; en karlmenn eru betri. Kossar og blíðmæli kvenna eru sæt, en hljómurinti frá brakandi karlmanna sverðum, og Jyktin af karlrnanna blóði er enn sætari. ViJjið pið konur frá okkar pjóð, livítu menn? Sje svo, pá kjósið pær fegurstu hjer, og pið skuluð fá pær, eitis margar eins og pið viljið“, og hann pagnaði við og beið eptir svari. Með pví að svo virtist, sem Good litist ekki svo illa á petta, pví að liann var, eins og flestir sjómenn, lieldur kvennhollur, og par sem jeg var orðinn roskinn og gætinn, og sá fyrir, að enda- lausir vafningar rnundu hljótast af pví, ef við flæktumst inn í nokkuð pvílíkt (pví að pað er eins víst að vandræði fylgja konum, eins og að nóttin keinur á eptir deginum) —- pá flýtti jeg mjer að svara: 315 „Dakka pjer fyrir, konungur! en hvítir menn ganga ekki að eiga aðrar konur en hvítar, sem eru eins og við sjálfir. Stúlkur ykkar eru fríðar, en pær eru ekki fyrir okkur!“ Konungurinn hló. „Gott og vel. í okkar landi er til málsháttur á pessa leið: ,Kvenna- augu eru ávallt björt, hvernig sem liturinn á peim er‘, og annar rnálsháttur segir: ,Elskaðu pá, sem hjá pjer er, pví að pú getur verið viss um, að sú sem fjarstödd er, bregst pjer‘; en vera tná að pessu sjo ekki pannig varið í stjörn- unum. Allt er mögulegt í pví landi, par sem mennirnir eru hvítir. Látum svo vera, hvítu menn; stúlkurnar munu ekki ganga eptir ykkur! Yelkomnir aptur; og vertu líka velkominn, dökki maður; hefði Gagool komið vilja sínum fram, pá mundir pú nú hafa verið orðinn stirður og kald- ur. Dað var heppilegt, að pú skyldir líka koma frá stjörnunum; ha! ha!“ „Jeg get drepið pig áður en pú drepur mig, konungur“, svaraði Ignosi stillilega, „og pú munt verða orðinn stirður áður en limir mfnir hætta að beygjast“. Twala hrökk saman. „Dú talar djarflega,“ svaraði hann reiðilega; „ætlaðu pjer ekki of mikið.“ „Sá sem hefur sannleikann á vörum sínum getur talað djarflega. Sannleikurinn er oddhvast spjót, sem flýgur pangað, sem honum er ætlað 318 Gætið að, hvítu menn, bróðir minn, sem rjeð ríkjum á undan mjer, fórnaði ekki, af pví að honum gekkst hugur við tárum stúlkunnar, og liann byltist úr völdum og hans ætt, og jeg sit að völdum í hans stað. Svo er pessu máli lok- ið; hún verður að deyja“. Svo sneri liann sjer að varðmönnunum og sagði: „Komið hingað með hana; Scragga, hvestu spjót pitt“. Tveir af mönnunum stigu fram, og pá fjekk stúlkan fyrst hugmynd um, hvað yfir henni vofði; hún Iiljóðaði liátt og reyndi að flýja. En hinar sterku hendur hjeldu henni fastri, og komu með hana, bröltandi og grátandi, fram fyrir okkur. „Hvað heitir pú, stúlka?“ vældi Gngool. „Ilvað er petta! ætlarðu ekki nð svara? á sonur konungsins að vinna verk sitt pegar í stað?“ Við pessa bendingu steig Seragga, enn ill- mannlegri en nokkru sinni áður, eitt skref áfram og lypti upp stóra spjótinu sínu, og um leið og hann gerði pað sá jeg að höndin á Sir Henry laumaðist að skammbissunni hans. Aumingja stúlkan sá gegnum tárin glampa á kalt stálið, og við pað varð sorg hennar stillilegri; hún hætti að brjótast um, en kreisti að eins saman hendurnar, eins og hún hefði krampa, og hristist frá hvirfli til ilja. „Sko“ hrópaði Scragga með mestu kátínu, ,,hún kynokar sjer við að horfa á litla leikfangið mitt, jafnvel áður en hún hefur fundið að pvf

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.