Lögberg - 31.03.1904, Síða 2
LOGljKKo, 1' í .\í i'C’DAG-i'NN 31. .uAk/> 1^04.
Ibsen’s „atturgöngur.“
Nobody doubts the truth of this
drama- that the sins of the father
are visited upon the children....
But why write of theghastly thing?
Let us forget it if we can ...
CAV.H.
Þeirn svíöur af norðmannsins
svipu-ól,
Þeim sýnist þar griö-íátt og lítiö
um skjól.
Og saklausir hirtir þeir segjast
vera
Og sjá ekki vitund hvaö slíkt á aö
gera.
Þeir auðvitaö skilja hvar alt á
heima,
En tepa: Látum oss gleyma,
gleyina!
Sinn gamanleik haía þeir horft á,
Sem hygðust þeir myndu’ ekki
annaö sjá.
Er nræta þeim korkuleg kramar-
jóö,
Þeim klaki rennur um merg og
blóö.
Og andkalt iegst myrkur á ætt-
göfgisbólin
Er Oswald hrópar: ,,Sólin,sólín. “
Þaö er ekki heimskunnar hlátra-
spil,
Sem hér er leikiö—þeir finna til.
En siöferðið, löngu sprungið og
spengt,
Af spöngunum molnar sé það
rengt.
En sé alt hérþvegið hvíttog kvitt,
Já, h\er mun þá vilja líta á hitt,
Og andspænis standa ætternis-
draugum
Og eldgömlúm syndum og vitfirr-
íngs augum,
Er röddin heyrist svo hrygöar-
gljúp.
Og hreimlaus, sem kæfi' 'ana
sorgar-djúp:
Sjá þú nú, ekki fóralt þaö íhvarf,
sem Alving gamli lét mér í arf.
Kristinn Stefánsson.
Yfirlýsing
fri dr. \I. Halldórssyni. Park Hiver, N.D.
Jeg hef einusinni áöur lýst því
yfir og endurtek hjer, aö jeg ætla
mjer aldrei aö fara í blaðadeil-
ur út af fræðigreinum þeim, er
jeg hef ritað eöa framvegis kann
aö rita í íslen/.k blöö hjer í landi
eöur annarstaðar, Þær eru ritað-
ar fremur af góðum vilja á aö
fræöa almenning, en af mætti;
jeg er önnum kafinn viö læknis-
störf nótt og nýtan dag, eins og
þeir geta bezt boriö, ertil þekkja,
og hef því sjaldnast tómstund til
ritstarfa:—en sízt ætla jeg mjer,
aö leggja mig niöur viö aö svara
nafnlausum níðgreinum.
Ef ,,systursonur“ bóndans í
Bjarnarhöfn eða aðrir halda, aö
jeg hafi minnst bóndans til þess
að kasta rýrö á hann í gröfinni,
þá er þetta misskilningur einn á
orðum mínum. Jeg álít, aö hann
hafi veriö í alla staöi só m a m a ð-
ur, atgerfismaöur ogdugn-
aöarmaötir. Jegnefndi hann
í grein minni um hreinlæti aö-
eins til þess aö sýna, hve mis-
skiptar skoöanir jafnvel merkis-
inanna g æ t u veriö, þegar um
hreinlæti er að ræöa. Getsakirn-
ar og dylgjurnar um, aö jeg hafi
minnst hans ,,af minni sterku til-
hneigingu til þess eigi að göfga
utn of stööubræöur mína, “ eiga
hvergi heima, þarsem jeg aldrei
inun kannast viðbóndann íBjarn-
arhöfn seni stjéttarbróður minn;
en ef í oröum bóndans á að liggja
sú þýðing, að læknar hjer í
grennd sjeu eigi buröugri en
skottulæknir heima á íslandi fyrir
40 — 5° árum síöan, og svo væri
í raun rjettri, þá væri mjer vork-
unn, þó eg teldi þá eigi upp á
marga fiska! Mjer hefur aldrei
dottiö slík heimska í hug. Jeg
hef haldiö þvi fram og held því
fram í læknisfræðisgreinöm mfn-
um, að bezt sje æfinlega, þegar
veikindi sækja mann heim aö leyta
til 1 æ k n i s; mín ráö gætu aöeins
verið ,, hjálp í viðlögum. “— Mrs.
Goodmann skal jeg meö ánægju
svara, þegar tími og kringum-
stæöur leyfa.
Nýja þrælahaldið í Suður-
ríkjunum.
SjálfaflBBRa eftlr svertincja frá Oeorgia-
rikinu. sera haldlO var i skulda-
ItiknlngarónauO.
[Frásaga þessi stendur í tímarit-
inu The Independcnt, útveguð af þar
til kjörnum manni frá hálfu tíma-
ritsins, og segir ritstjórinn, að hún
sé áreiðai.leg og, að sýnu áliti gott
sýnishorn ]
(Niöurl.)
Okkur voru gerö boö að mæta
allir í vistabúöinni klukkan 2. þar
sagöi hann okkur aö viö gætum
fariö og litiö-'okkur eftir nýjum
vistum þegar viö værum búnir aö
undirskrifa þaö sem hann kallaöi
viöurkenningu fyrir skuldum okk-
ar. Búöarmaöurinn kallaöi okk-
ur, einn og einn, og las upp reikn-
inga okkar. Samkvæmt bókun-
um skuldaöi enginn okkar sena-
tornum innan viö $100; sumir
voru látnir skulda $200. Eg var
í $165 skuld eftir því sem bók-
baldarinn sagöi. Skuldir þessar
höföu ekki safnast á einu ári,
heldur á þremur til fjórum árum,
var okkur sagt—þrátt fyrir þaö
þó viö heföum skiliö þaö þannig,
að reikningar okkar væru jafnaöir
í lok hvers árs. En enginn okkar
heföi veriö svo djarfur aö vefengja
orö hvíts’ manns— mikil ósköp,
nei; ekki á þeim tímum. Auk
þess stóö okkur piltunum á sama
um upphæöirnar—viö vorum ein-
göngu aö hugsa um aö komast í
burtu; og okkur varsagt viö mætt-
utn fara ef viö skrifuöum undir
viöurkenninguna. Viö heföum
skrifaö undir hvaö sem var til aö
komast í burtu. Viö gáfum okkur
því frain oggeröurn okkarmerki.
Sama kveldiö vorum viö reknir
saman af lögregluþjón og tíu eða
tólf hvíturn rnönnum, sem hjálp-
uöu honum, og lokaöir inni, hver
einasti okkar, í fangabyrgi sena-
torsins. Tveir fangaveröir, sem
settir höföu veriö til aö gæta okk-
ar, útskýröu það fyrir okkur morg-
uninn eftir, að í pappírunum, sem
við skrifuðum undir daginn áöur,
heföum viö ekki einasta viöurkent
skuld okkar, heldur heföum viö
lofast til aö vinna af okkur skuld-
ina meö þrælavinnu hjá senatorn-
um. Upp frá þeim tíma var far-
iö meö okkur eins og sakamenn.
Viö höföum, meö öörum orðum
selt okkur í æfilangan þrældóm
eða skuldaánauö, eins og lögin
kölluöu þaö. En hvort heldur
þaö er kallað þrældómur eða á-
nauö, eöa hvaö annaö sem er, þá
er sannleikurinn sá, aö viö lifð-
um í jarðnesku helvíti allan þann
tíma, sem við 'uröum aö búa í
fangabyrgi senatorsins.
Eg hafðist viö í byrginu, eins
og sakamaöur, hátt á þriöja ár.
Þaö fór betur uin konuna mína
en mig, og sama er aö segja um
konur surnra hinna svertingjanna,
því að hvítu mennirnir, sem á
heimilinu voru, geröu þessar ó-
gæfusömu konuskepnur aö frill-
um sínum. Fyrst eftir aö eg var
látinn setjast aö í fangabyrginu
var konan mín látin vera kyr í
,,stóra húsinu, “ en drengurinn
minn, sem þá var ekki nema níu
ára gamall, var gefinn fólki hinu
megin árinnar f South Carolina,
og eg sá hann aldrei upp frá því,
né frétti neitt af honum. Þegar
eg losnaöi úr haldinu haföi konan
mín átt tvö börn með einhverjum
hvítu verkstjóranna og þaö fór
nokkurnveginn sæmilega umhana
í afskektu húsi. En um vesalings
svertingjakonurnar, sem ekki
lentu í sama flokki og konan mín,
fór álíka illa og karlmennina.
Lengst af varö kvenfólkiö, sem
var í ánauö eöa dæmt fyrir glæpi,
aö vera í karlmannsfötum. Þegar
eg sá þær klæddar eins og karl-
menn, ýmist aö plægja eöa hlúa
eöa draga bjálka eöa viö járn-
smíöi, alveg eins og karlmenn, þá
komst eg innilega viö og réöi mér
varla fyrir gremju, en eggat nátt-
úrlega ekkert aö gert til aö hjálpa
þeim. Þaö heföi oröiö bráöur
bani minn ef eg heföi mótmælt
meöferöinni á þeim meö einu oröi.
Af sex kvenmönnum, sem komiö
var meö í þrælahaldiö, áttu tvær
börn eftir aö þær höföu veriö þar
tólf mánuöi—og börnin áttu hvíta
feöur.
Fangagrindurnar, sem viö sváf-
um í, voru, aö eg held, óþverra-
legustu staöir í öllum heimi. Þær
voru óþrifa forardíki. A öllum
þrettán árunum, sem eg var þar,
var aldrei hreyft viö dýnu nema
til aö snúa henni viö einu sinni
eöa tvisvar á mánuöi, þaö er eg
reiöubúinn aö sverja. Engin lín-
lök voru brúkuö, heldur einungis
dökkleit ullarteppi. Flestir sváfu
í fðtunum, sem þeir unnu í allan
daginn. Sumir þeir ódælustu
voru látnir sofa í járnum. Hurö-
um var lokaö meö slagbröndum á
hverju kveldi og tólgarkerti var
þaö einasem menn fengu til ljósff.
Svefnhús þessi voru engu líkari en
kúafjósi eöa svínastíu, en þó und-
arlegt sé, þá dó fátt af fólkinu
meöan eg var þarna, þó margir
færu þaöan limlestir og kumlaöir
og í sumum tilfellum óvinnufærir
það sem þeir áttu eftir æfinnar.
Eftir því sem eg man bezt dóu
ekki nema eitthvaö tíu, og voru
tveir þeirra beinlínis drepnir af
fangavöröunum fyrir lítilsháttar
afbrot.
Ánauö þessi var haröur skóli;
en eg læröi meira þar á fáum mán-
uöum, af þessu vesalings aöflutta
fólki, en eg haföi áöur vitaö.
Mest af því, sem eg læröi, var ilt,
og eg veit þaö nú, aö mér heföi
verið betra aö læra þaö ekki, en
margt af því kom mér aö notum.
Þegar alt er tekið til greina þá
komst eg býsnavel í gegnumþetta
alt, nema hvaö eg varð aö þola
tvær eöa þrjár samvizkulausar
stórhúöstrokur. Eftirlætisaöferö-
in viö aö berja menn var aö binda
þá flata, uppíloft, ofan á stórtré
og berja þá fimtíu til sextíu högg
á bera fæturna meö þakspæni eða
sverum plankastúf. Gætu menn
svo ekki fylgt hinu fólkinu eftir
við vinnuna þegar þeir stóöu upp
eftir ofanígjöf þess, meö fæturna
bólgna og blóðuga og kvalir um
allan líkamann, þá voru þeir
bundnir niöur á stórtréö á ný, á
grúfu, og hýddir á bert bakiö meö
vagnólum. Þegar kvenfólk var
barið þá var þaö vanalega tekið
afsíöis, en samt var þaö látið
beygja sig fram á tunnu eöa eitt-
hvað þvílíkt og hýtt.
Vinnutíminn í ánauö þessari
var frá sólaruppkomu til sólar-
lags; eöa, meö öörum orðum, frá
tíu til tólf klukkutíma, með eins
klukkutíma uppihaldi (frá 12 til 1)
til miödagsmatar. Þetta var regl-
an, hvort heldur var hiti eöa
kuldi, regn eöa sólskin. Viö mál-
tíöir var vinnumönnunum skift
niöur í hópa eöa flokka á sama
hátt og hermönnum er skift niö-
ur viö máltíöir. Tveir eöa þrír
menn í hverju hreysi höföu mat-
reiðslu á hendi. Frá þrjátíu til
fjörutíu menn fengu mat sinn hjá
sama matreiöslumanninum. Yfir
heitu mánuöina (eða átta til níu
mánuöi á ári) fór matreiöslan
fram úti, rétt á bak viö hreysin;
yfir köldu mánuöina var matreitt
inni í hreysunum. Hver maöur
var látinn hafa stóran blikkbolla,
flatbotnaöan blikkdall og tvo stóra
blikkspæni. Engir hnífar eöa
gaflar sáust nema þeir sem mat-
reiöslumennirnir brúkuöu. Viö
máltíöir gengu menn fram hjá
matreiöslumanninum hver á eftir
öörum og réttu fram dalla sína og
bolla til aö fá skerf sinn í þá.
Kúabaunir (rauöar eöa hvítar.sem
urÖu svartar viö suöuna), feitt
flesk reykt og gamaldags Georgia-
maískökur eins til þriggja þuml-
unga þykkvar, var aöalfæöan.
Menn fengu einnig nóg af svörtu
kaffi, svörtu sírópi og dökku púö-
ursykri. Einstöku sinnum á
sunnudögum voru búnar til tvf-
bökur, en æfinlega úr úrsigti. Til
morgunmatar fengum viö vana-
lega kaffi, steikt svínsflesk reykt,
maísbrauö og stundum síróp—og
aldrei var bætt við mann. Miö-
dagsmaturinn var venjulega:
baunir, með stórum fleskbitum
niörí, og lófastór flatkaka. Þó
viö ynnum aö kartöflum og ööru
kálmeti þá fengum viöaldrei neitt
þessháttar aö smakka nem? ef
okkur tókst aö stela því og sjóöa
það á laun. í kvöldmat fengum
við kaffi, steikt flesk reykt og sí-
róp. Og þó sumt af þessu væri
af skornum skamti þá fengum viö
nóg af þvf yfirleitt. Þó fæöan
væri ekki vönduö þá vorum viö
vanalega feitir, vel útlítandi og
hraustir eins og múlasnar, og þaö
þó enginn ráðstöfun væri gerð
fyrir baöi handa okkur eöa reglu-
legum fataskiítum. Engin borö
voru lögö til eöa notuö. Á sumr-
urn sátum viö aö mat okkar úti á
jöröinni, og á vetrum inni f ó-
þrifa hreysunum. Hver maöur
þvoöi sín eigin ílát—þaö er aö
segja: hver maöur átti aö sjá um
sinn dall, bolla og spæni. ílát
mín voru þvegin eitthvað einu
sinni á viku.
Mér er sagt, aö nú séu sex eða
sjö slíkir staöir f Georgia—þaö er
aö segja: staöir, þar sem flestir
mennirnir eru leigöir sakamenn
ríkisins. En þaö eru heimi'i svo
hundruðum skiftir um gjörvalt
ríkið, þar sem svertingjum, og í
sumum tilfellum hvítum vesaling-
um, er haldið í ánauö undir því
nafni, að þeir séu aö vinna af sér
skuldir, eöa sarnningarnir, sem
þeir hafa gert, halda þeim í enda-
lausri ánauö, vegna þess þar er
framtekiö, að þeirniegiekki hætta
vinnu eöa vistast hjá öðrum án
Niöurlag á 6. bls.
Ohio-rfki, Toledo-bæ, I
Lucas County. f
Frank J. Oheney eíðfestir, að hann séeldri eig-
andinn ao verzluninni, sera þekt er með nafninu
F. J- Cheney & Co., í borginni Toledo í áður
ne/ndu county og ríki, og að þessi verzlun
borgi EITT HUNDRAÐ DOLLARA fyrir hvert
einasta Katarrh tilfelli er eigi læknast með því
að brúka Halls Cat-arrh Cure.
FRANK J. CHENEY.
Undirskrifað og eiðfest frammi fyrir mér 6. des-
ember 1896. A. W. Gleasom,
[L.S.j Notary Public-
Halls Catarrh Cure er tekið inn og verkar bein.
ínis á bióðið og slímhimnurnar í líkamanum.Skrif-
Ö eftir gefins vottorðum.
F. J. Cheney & Co,, Toledo, O.
Selt í öllum Iyfjabúðum á 75C.
Halls Family Pills eru þær beztu.
Dr. O. BJORNSON,
650 William Ave.
Officb-tímar: kl. 1.80til8 og7 til8 e.h
Tblefön: 89.
“EIMREIÐIN”
fjðlbreyttasta og skemtilegasta tíma
ritið á islenzku. Ritgjörðir, myndir,
eögur, kvæði. Verð 40 cts,, hvert
hefti Fæst hjá ri. S. Bard&l og
J. S. Bargmanno fl.
NÝOPNUD
YÍNSÖLUBÚD
í
SELKIRK
Heildsala Smásala
Nægar birgöir af vínum, liquors, öli, bjór
og öörum víntegundum. Vér seljum aö eins
óblandaðar
víntegundir
Þegar þér komið til Selkirk þá heimsækiö
okkur. Beint á móti
Bullocks Store, Evelyn Ave..
SELKIfíK. MAN.
m
ERUÐ ÞÉR AÐ BYGGJA?
EDDY’S ðgegnkvæmi byggingapappir er sá bezti. Hann
er mikið sterkari og_ þykkari en nokkur annar (tjöru eða
bygginga) pappir. Vindur fer ekki í gegn um hann, heldur
kulda úti og hita inni, engin ólykt að honum, dregur ekki
raka í sig, og spillir engu sem hann liggur við. Ilann er
mikið notaður, ekki eingðngu til að klæða hás með, heldur
einnig til að fóðra með frystihús, kælingarhús, mjólkurhús,
smjörgerðarhús og önnur hús, þar sem þarf jafnan hita, og
forðastþarf raka. Skrifið agentum vorum:
TEES & PERSSE. WINNIPEG, eftir sýnishornum.
The E. II. Eddy Co. Ltd., Hnll.
Teea & Persse, Agents, Winnipeg.
LONBON “ CANAOIAN
LOAN - AGENCY tH.
LIMITED.
Peningar naðir gegn veöi í ræktuðum hújörðum, með bægilegum
skilmálum,
Ráðsmaöur:
Ceo. J. Maulson,
195 Lombard 8t.,
WINNIPEG.
Viröingarmaður:
S. Chrístopljerson,
Grund P. O.
MANITOBA.
Landtil sölu i ýmsum pðrtum fylkisins með láguverð og góðumkjðrum
# *
# Við búum til að eins-- «
#
#
#
#
#
#
#
#
#
BEZTU TEGUND AF HVEITI. ;
Okkar „PREMIER HUNGARIANU
tekur öllu öðru fram. ££
Biðjið kapmanninn yðar nm það, 41
Mannfactured uy ■>
♦ ALEXANDER & LAW BROS., ♦ #
.BRANDON.Man. #
»######*##**#:*#*i»*ee«#«#4fm
Thos. H. Johnson,
íslenzkur lðgfræðingur og mála-
færslumaður.
Skrifstofa: Room 83 Canada Life
Block. suðaustur horni Portage
Ave. & Main st.
UtanXskrift: P. O. nox 1861,
Telefón 428. Winniueg. Manitoha
Dp. m. halldorsson.
Z*avlc XUxrev, TST X>
Er að hitta á hverjum viðvikudegi i
Grafton, N. D., frá kl, 6—6 e. m.
ELI)ID VID GAN
Ef gasleiðsla er um götuna ðar leið-
ii félagið ptpurnar að götu línunni
ókeypis Tengir gaspíp ir við eldastór
sem keyptar hafa verið að þvi án
þess að setj* nokkuð fyrir verkið.
GAS RANGE
ódýrar, hreinlegar, ætíð til reiðu.
Allar tegundir, $8 00 og þar yfir.
Komið og skoðjð þær.
Th* Winnipeg Etectric SLwt Railway C*„
G jildin
216 PoRil’iVOj: Avbnuk