Lögberg - 21.12.1905, Blaðsíða 4
4
LOGBERG FIMTUDAGINN 21. DESEMBER 1905
pgberj
er geflS út hvern flmtudag af Tlie
Ixigberg Printing & Publishing Co„
(löggilt), aö Cor. William Ave og
Nena St„ Winnipeg, Man. — Kostar
J2.00 um 4ri5 (&. Islandi 6 kr.) —
Borgist fyrirfram. Elnstök nr. 5 cts.
Published every Thursday by The
Lögberg Printing and Publishing Co.
(Incorporated), at Cor.William Ave.
& Nena St„ Winnipeg, Man. — Sub-
scriptlon price »2.00 per year, pay-
able in advance. Single copies 5 cts.
S. BJðRNSSON, Kditor.
M. PAULSON, Bus. Manager.
Auglýsingar. — Smáauglýsingar I
eitt skiftl 25 cent fyrir 1 þml.. A
stærri auglýsingum um lengri tlma,
afsláttur eftir samningi.
Bústaðaskiftl kaupenda verður a5
tllkynna skriflega og geta um fyr-
verandi bústað jafnframt.
Utanáskrift til afgreiðslust. blaðs-
ins er:
The LÖGBKIIG PRTG. & PUBL. Co.
P. O. Box. 136, Winnipeg, Man.
Telephone 221.
Utanáskrift til ritstjörans er:
Editor Lögberg,
P. O. Box 136. Winnipeg, Man.
Samkvæmt landslögum er uppsögn
kaupanda á blaöi ógild nema hann
sé skuldlaus þegar hann segir upp.—
Ef kaupandi, sem er I skuld við
blaðið, flytur vistferlum án þess að
ttlkynna heimilisskiftin, þá er það
fyrir dómstólunum álitin sýnileg
sönnun fyrir prettvlslegum tilgangi.
Landnám í Vestur-Canada.
Aldrei hefir aðsókh landnámsA
manna veriö jafn mikil til Vestur-
landsins, og í ár, og aldrei álitiö
meira á þvi og sterkari fullvissan,
uin ótvíræöa uppgangs-von, þessa
víðlenda kostalands, sem enn þá
getur tekið á móti þúsundum
manna, á þú'sund ofan í skaut sitt,
veftt þeirn ágætis aðsetur, og látið
þeim liða vel.
Skýrslurnar fyrir síðasta fjár-
hagsár, sem endaði 30. Júni
næstl., sýna ljóslega, að <eigi er
ofsögum sagt af því, að landið
gangi i augu manna, því að á
nefndu ári1 fluttu hingað fil Vest-
ur-Canadai 15,140 manna, til að
setjast hér að.nema lönd og kaupa,
alt eftir atvikum og kringumstæð-
um. Af þessari fólksmergð voru
46,210 frá Evrópu, 46,372 frá
Bandaríkjunum og 22,559 frá
Austur-Canada. Siðan höfum vér
eigi skýrslur, nema yfir fjóra mán-
uðina fyrstu, af yfirstandandi fjár-
hag^ári, nfl. Júlí, Ágúst, Sept. og
Oltí. og sýna þær, að á þeim
fjögra mánaða tíma liafa til Vest-
urlandsins flutt 46,474 innflytj-
enda. Evrópumenn voru 10,984
aí þeim, 25,442 Bandaríkjainenn
og 10,048 frá Aus.tur-Canada.
Sagðir voru 14, 785 að hafi ætlað
.að setjast að í Manitoba og 12, ý
461 að flytja vestur í nýju fylkin
Alberta og Saskatchewan.
Stjórnin hefir á allan hátt reynt
að greiða fyrir innflutningnum
og með margskonar umbótum,
hefir hún lagt kapp á, að fá hið
frjósama Vesturland numið og
ræktað, svo að þaif gæti borið á-
vöxt, einstakiinguntim og allri
þjóðinni til happs og heilla.
Ennfremur hefir innflytjenda
stjómardeild'in lagt sinn skerf til
•ómældan, að hlynna að innflutn-
íngum eftir mætti, enda hefir hún
fengið stórar þakkir, víðsvegar að,
fyrir framkomu sína á liðandi ári,
sem og oft áöur fyrri. Henni hefir
líka i ár heppnast langt yfir vonir
fram, að leysa af hendi mikilvægt
starf, sem öll stórmenni og mann-
vinir Evrópu þakka henni og lofa
hana fyrir, og það að maklegleik-
um.
Innflytjenda stjórnar-deildin
hefir gert út menn með ærnum
kostnaði til að leiðbeina flokkþm
fólks veaíur um haf bæði frá Bret-
landi, Frakklandi, Þýzkalandi,
Norðurlöndtun, íslandi og víðs-
vegar annarstaðar frá, úr Norður-
álfu heims. Allmikill hluti af
þessu fólkí hefir verið verið blá-
íátækur, vonlaus og þróttlaus
orðinn af erfiðum lífskjörum, og
ótrú á framtíð sína, þar sem hann
var. — Þessir menn hafa verið
litils virði, bæði sjálfum sér og
þar sem þeir áttu heima, og því
sannarleg velgjörð að koma
þeim undir breyttar kring-
umstæður, og gagnstæð lífskjör
einhver staðar annarstaðar, til að
reyna * að rétta þá við, hrífa þá
upp úr kviksyndi dáðleysis og
dreyfðar ,og hrinda þeim fram á
skeiðvöll þann, er hér stendur op-
ínn hverium þrÍM, sun nota vill
hönd sína og heila til að bjarga
sér, og komast áfram og veröa
nýtur maður bæði fyrir sjálfan
sig og aðra.
Þessum mönnum hefir verið
fvlgt alla leið frá heimkynnum
þeirra yfir Atlanzhafið og gegn-
um Austur-Canada og hingað til
Vefíur-landsins. Hér hafa þeir
fengið ágætis lönd gegn sama sem
engu iðgjaldi, og þúsundum sam-
an liafa þeir reist hér blómleg
bú á ótrúlega stuttum tíma;
farsæld, velmegun og fagrar fram-
tíðarvonir ríkja nú í huga þeirra
og híbýlum í stað vonleysis, ör-
birgðar og ótrú á lífið og sjálfa
sig, sem þeir höfðu áður við að
búa. Ef það *r ekki1 velgjömingur,
að stuðla að þjv'í, að koma
mönnum í slíkar kringum-
stæður, er áiður hafa búið við
eymd og volæði, þá er ómögulegt
fyrir nokkra stjórn að gera nokkr-
um einstaklingi þægt verk. Af
þessu má Canada stjórnin hrósa
sér, þetta er hennar verk i þessu
máli, sem aldrei verður hrakið,
hvað sem ófróðir og ofstækisfull-
ir þröngsýnismenn, sem eigi
fvlgjast með í þjóðframförum, og
hanga vilja alt af í sömu horrim-
inni, kunna að segja bæði heima á
íslandi og annarstaðar, en sem
betur fer fara þeir með hverju ári
fækkandi, því að framfarirnar og
velmegunin hér vestra mælir svo
með sér sjálf, þegar tillit er tek;-
ið til hins mikla innflytjenda-
stratims að efasemdir og ófróðra
manna hjal um erfiða afkomu hér,
hlýtur að falla máttvana til jarð-
ar.
------o-------
ToIImála-endurskoðunin.
Þar sem tollmálin að sjálfsögðu
vcerða eitt af fyrstu málunum á
dagskrá næsta. þjóðþingis, virðist
eigi óviðurkvæmilegt að minnast
nokkuð á endurskoðun þeirra, sem
þar til kjörin nefnd af stjórnhini
hefir nú með höndum.
Svo má heita, að tollmála-fyrir-
komulagið hafi í öllum aðal-atrið-
um haldist óbreytt síðan árið 1897
—98, að hin minnisstæða endurbót
var gerð af LauriecJstjórninni,
lögtekitin forgangs (preferential)
tollurinn fyrir brezka veldið og
hinar miklu umbætur gerða-r í
landinu, með hnekking allra ein-
okunar og ófrelsis sambanda, sem
áður höfðu klemt vrzlunarmálin í
járnklær sín, og höfðu það að
markmiði að undiroka og eyði-
legRJa aHa frjálslega samkepnr.
Siðan hefir öllu fleygt fram í
Canada; í iðnaði og akuryrkjur
rækt hefir landið á síðustu árum
stigið svo stórum fetum fram, að
vart munu þess dæmi finnast í
sqgu nokkurrar þjóðar. Þessi
feikimikli mismunur á ástandinu,
sem er og því, er var, gerir það
bersýnílega nauðsynlegt aö ná-
kvæm a/thugun tollmálanna fari
fram, og umbætur verði gerðar
samsvarandi farmförunum. Þetta
sá stjórnin og því valdi hún þessa
nefnd, og fól henni að gera endur-
bótatillögur þær sem hún áliti
heppilegastar, eftir nákvæma at-
hugun málanna víðsvegar um land
alt.
í þessari nefnd eru: fjármála-
ráðgjafi Fielding,f fyrv.) verzlun-
armálaráðgjafi Sir Richard Cart—
wright og tollmálastjóri Patterson.
Þær tegundir tolla, sem til at-
hugunar koma, og nefndin byggir
"tillögur sínar á, eru hámarks-
lágtnarks og forgengistollurinn við
brezka veldið.
Hámarkstollinum verður að eins
beitt gegn þjóðum,sem eru svæsn-
ir andstæðingar Canada í verzlun-
ar-pólitík, eða gera verzlunarskifti
lítt möguleg sakir geysihárrar
tollálögu, enda er eigi nema nátt-
úrlegt, að þeim þjóðum sé gert
erfiðara fyrir með innflutning á
vörum sínum.heldur en hinum,sem
mæta oss á miðri leið með rétt-
mætum og sanngjörnum skilmál-
um. Við þær þjóðir, sem æskja
verzlunarvfðskifta vorra, og sjálf-
ar fylgja lágmarksstefnunni í toll-
lögum, kemur okkar lámarkstoll-
ur til greina; er hann áætlaður á-
líka hár og sá, sem nú er.
Forgangstollurinn gildir eins og
áður að eins fyrir Bretland og
þær nýlendttr hins brezka veldis,
sem veita vilja Canada lík hlunn-
indi.
Á þessum grundvelli er ætlan
nefndarinnar að semja umbótatil-
lögur sinar, og verður því eigi
neitað að vel er með málunum
farið, og sanngjarnlega. Og þó að
hámarkstolli sé beitt gegn þeim
þjóðum, sem sýnilegast vilja engin
verzlunarmök við Canada eiga, er
það langt frá því að stigjC sé
nokkurt spor í afturhaldsátt, held-
ttr ntiklu fremur er það framfara-
spor til að reisa skorður gegn því,
að erlendir andstæðingar okri á
landinu voru.
Upplýsingar þær og athuganír.
sem nefndin hefir gert í Vestur-
landinu, gera það mjög svo liklegt,
að tollur á öllum akuryrkjuverk-
færum verði niður færður að tölu-
vcrðum mun.
Ekki er enn þá hægt að segja
um það, hvc hár hámarkstollur
inn verður, en útlit er fyrir að
hann fari alt að því 25 prct. upp
fyric lágmarkstollhæðina. — Eft-
ir því sem nú liggur fyrir, er eigi
líklegt, að víða þurfi að beita hon-
ttm, og þær þjóðir, sem á honuin
kenna, binda sér þann bagga
sjálfar með þröngsýni og þver-
gyrðingsskap í verzlunarsökum,
því að Canada mun aldrei fara
hærra í tollalögum en nein önnur
þjóð, er það á skifti við.
Hátollurinn er sjáanlega stílað-
ur aðallega gegn „ultra protec-
tional“ löndttnum Bandaríkjunum
og Þýzkalandi, og þó að líkindum
fremur til hins fyrnefnda ríkisins,
þvi að þrátt fyrir itrekaðar til-
raunir bæði í ríkintt sjálfu, og enn
fremur af hendi stjórnarinnar í
Ottawa, hefir Washington-stjórn-
in með engu móti verið fáanleg til
að slaka til á tollhæðartauginni, og
engir þolanlegir sa;: ningar hafa
þaðan verið fáanlegir. Hún hugsar
um sig stjórnin sú, og heimtar alt
að þvi helmingi hærri toll af cana-
diskum vörum, en tekið er af
Bandaríkjavörum í Canada
Það er þessi þrautseigja Wash-
ingtonstjómarinnar við hátollana,
sem gerir Canada ómögulegt ann-
að, en grípa til þeirra örþrifráða,
aftur á móti, og gjalda líku líkt, þó
aldrei verði jafn langt gengið frá
þess hendi, enda alls eigi óliklegt,
ef næsta Bandaríkjaþing stigi eitt-
hvert spor í jafnaðaráttina, að sant
komulag komist á, svo að aldrei
þylrfti ul þessa hámarkstolls að.
taka.
-------0------
Hreint loft og heilbrigöi.
Það eru flestir, sem eru fullvissir
um það, að gott sé og heilbrigðis-
legt, að nærast á kjarngóðri og
kraftmiklu, fæði, en þó að það sé
mikilsvert atriði til viðhalds góðri
heilsu, þá er samt eigi alt þar með
fengið. Það er til annar stór og
atkvæðamikili liður,í viðhaldi heil-
brigði líkamans, sem mönnum er
því miður svo hætt við að gleyma,
og það er: háilnœmt andrúmsloft.
Hreina loftið er líkamanum engu
síður nauðsynlegt, en fæðan. Það
endurnærir og uppbyggir hann, og
færir honum þau efni (lífsloftið o.
fl.), sem enginn getur lifað án.
Slæmt loft, aftur a móti, er nteira
og minna blandað kolsýru, og öðr-
um óheilnætnum efniun, setn lík-
amanum eru beinlínis skaðleg, og
það er mönnum aldrei of ríkt á
huga, en alt of margir hirðulausir
um, hvort það er gott eða vont loft
sem þeir anda að sér. — Hugsun-
arlaust hrúgast fjöldi fólks, oft dg
tíðum saman, , einkum á vetrum, í
örsmáum herbergjum, þar sem
engin smuga er á fyrir hreint loft
inn 4ð komast.
Hér í Winnipeg t. d. hafa eftir-
litsmenn í heilbrigðismálum, fund-
ið t smáhúsum í haust, eigi stærri
en 15 feta breiðum og 18 feta löng
um, 20 íbúa, sem hafa hniprað sig
saman í þessum krubbum, og víða
þessu líkt, þó þetta sé ein með
dökkustu hliðunutn. — Lifáloftið
(súrefnið) eyðist skjótt í slíkum
vistarverum,en kolsýruloftið ,verð-
ur svo magnað og yfirgnæfandi,
að þungar sóttir hafa eigi óspald-
an kviknað innan slíkra veggja.
Þess vegna er svo afar nauðsyn-
legt fyrir alla, sem húsum hafa að
ráða að ætla eigi of lítið húsrými
fyrir íbúana, og í annan stað, að
haþa heppilegan útbúnað og engu
síður reglu á því, að láta sem oft-
ast hreina loftstrauma leika um
híbýli sín. En slíkir hreinir loft-
straumar eru mörgum sérlega
hvimleiðir, og næsta erfitt að sann
færa sumt fólk um nytsemi þerra,
jafnvel þó auðsæ skaðvænisdæmi
af óhreinu lofti séu! við hendina.
En þar sem hreina loftið er einn
(tf hyrningarsteinum heilbrigðinn-
ar, þá er líka nauðsynlegt að lík-
aminn fái sem mest af þvi sér til
viðhalds. Allir, sem meta og
vernda vilja heilsu sína, ættu því
að venja sig á að draga djúpt and-
ann úti í hreinu lofti. Það þenur
út lungun, styrkir þau og stælir,
eins og hvert annað líffæri, sem
æft er hæfilega og á réttan hátt,
enda fer eigi hjá því, að þeir, sem
gera sér þetta að reglu, fá að
nokkrum tíma liðmun bæði hraust
og hvelft brjóst, sem getur stað-
ist ýms áföll og skaðvæna sjúk-
dóma, t. d. lungnatæringuna, sem
veikbrystingar þola ekki.
Frægur læknir einn hefir sagt,
að svo liti út, sem margt fólk ekki
nenti að anda —og því miður hefir
hann ntikið til síns máls. Það er
alt of alment að sjá menn ganga
nteð bakið út en brjóstið inn, af
því menn eins og hafa ekki dug
eða dáð í sér, til þess að draga að
sér lofíið, nenta svo að þeir hálf-
fylla Iungun með því. Vaninn og
loftskorturinh beygir þá saman,
ur veikt brjóst, og tíðura tæring
eða aðrir lungnasjúkdómar, sem
drepa menn fyrir tímann.—Marga
skortir þekking til að gæta þessa,
og enn aðra brestur kærusemi og
hugsun á því. Hvorttveggja er
ilt, en út kemur það sama.
Nýlega hefir það verið haft að
spaugsyrði heima á Fróni, t sam-
bandi við loftskeytasendingar Mar
coni, að fara ætti að leggja höml-
ur á notkun loftsins, og þykir þar
heldur ójafnaðar kenna, en eitt er
víst, og það er það, að hefði fólk
þurft að borga fyrir loftið, sem
það andar að sér, þá mundi enginn
hafa efast um nytsemi þess, og
líklega margur dregið djúpt and-
ann, en af því það er frítt af guði
gefið, virðist það fremur vefjast
fyrir mönnum, að skilja og meta
gildi þess, og færa sér það í nyt á
réttan hátt.
Hreint ioft hefir örfandi og end-
urnærandi áhrif á taugakerfið og
heilann, dómgreindin skerpist og
nýjar hugsanir, áðttr fólgnar, leið-
ast frant úr djúpi sálarinnar.
Það er ómetanleg uppsprettu-
lind heilnæmis og hreysti.
Fréttabréí.
Spanish Fork, Utah,
4. Des. 1905.
Herra ritstjóri:—
Eg held eg verði nú að ráðast í,
að senda þér fáar línur, og reyna
að skýra frá því helzta, sem skeð
hefir síðan héðan var ritað sein-
ast, en það er nú samt ekki mikið,
þvi yfir höfuð er stórtíðindalítið í
héraði voru.
Tíðarfarið hefir verið hér hið
mesta öndvegi í alt heust; gekk
því öll haustvinna í bezta lagi.
—Heilsufar er gott, og líðan fólks
í fremur góðu lagi.— Fyrsti snjór
á þessum vetri' féll hér hinn 30. f.
m., að eins lítið föl um láglendi, en
falsvert meira til fjalla; en frost
og kuldi er því nær enginn.
Pólitík eða kosningamálefni
heyrast nú ekki nefnd á nafn.
Hjá löndum vorum ber ekkert
sérátakt til tíðinda, sem í frásögn
er færandi; þó mætti, held eg, geta
þess, að það hefir kontið eitthvað
ti'l orða að hér yrði haldin mikils-
háttar santkoma ttm ntiðjan vetur;
nokkurs konar Þorrablót,'þó litið
af þessleiðis verði haft um hönd,
þyí þeir sem standa aðallega fyrir
þessu, eru vel kristnir rnenn, qg
hafa aldrei blótað neinu, að því er
vér framast vitum, og gerum vér
því ekki ráð fyrir, að þetta verði
blót, heldur ein mikilsháttar sam-
konta til fróðleiks og skemtunar
fyrir fólkið, en samt í fornaldar-
sniði. — Fyrir samkomu þessari
standa aðallega þeir herrar: Gísli
E. Bjarnason og B. J. Johnson, og
á samkoman að fara frarn áHlíðar-
enda—heimili Gunnars gamla Há-
mundarsonar. Ætlar hra Bjarna-
son sjálfur að leika Gunnar; en
hverjir taka þátt Njáls og sona
hans, Þráins og annarra Sigfús-
sona, Höskttldar og Dalamanna,
eða Þorgeirs, Flosa, Kára og
Marðar, og fleiri af söguhetjum
Njálu, höfunt vér ekki heyrt. —
Fornaldarbuningur og vopn verða
höfð þar eftir föngum, og alt, sem
þar fer fram, verður náttúrlega
ram-íslenzkt, bæði veitingar og
aðrar skemtanir.
í enda samkomu þessarar, svo
sem til að „klikkja út“ með, og
máske til að skemta kvenfólkinu
sem allra bezt„ höfum vér heyrt
að forstöðumennirir ætluðu að
láta leika undur spaugilega „kom-
ntedíu, sent nefnd er „Biðillinn“.
—Það er gamanleikur í fjórunt
þáttum, sem eitt af skáldum vor-
um hefir nýlega samið.
Meiri fréttir nenni eg ekki að
skrirfa yður í þetta sinn, en ef alt
gengur vel, þá skal eg hugsa til
yðar upp úr nýárinu.
Með beztu óskum um gleðilegar
hátíðir, farsæla framtíð, og lanea
lífdaga, er eg
Yðar með vinsemd,
Obses.
að beita hátollum við Bandarikin lungun rýma, og afleiðingin verð-
ODÝRAST I
BÆNUM.
16 þúsund dollara
virði af vörum má
til að seljast á 6
vikum móti
peningum.
Kaupið hjá Árna Fredericksyni.
i sekk sykur, ioo pund.... $4 85
15 pd. kúrennur...........1 00
12 pd. rúsínur............1 00
15 pd. rúsínur nr. 2......2 00
12—15 pd. sveskjur . 1 00
23 pd. hrísgrjón .. ..N.. 1 00
20 pd. sago..................1 00
5 pd. kanna B. Powder.... 65
1 pd. kanna B P.............. 20
4 pakk Jelly Powder .. .. 25
2 pd. Lemon ogOrange Peel 25
I pd. súkklaði............... 35
10 könnur tomatoes........1 00
12 könn. corn.............I 00
13 könn. Peas........... 1 00
9 könn. perum................1 00
II könn. plums............I OO
12 könn. bláber............1 00
3 box handsápu .............. 25
7 pd. fötur jam..35c., 45C. og 60
Dinner sets..........$5-50—12 00
Te-set.................$3— 6.50
Lemonade set........$1— 2 50
Gler borð set.....45C— 2 50
JÓLA VARNINGUR.
Album.
Saumakassar.
Myndaramntar.
Munnhörpur.
Brúður.
Undur falleg jóla cards og ó-
talmargt fleira.
Alt má til að selja^t fljótt, og
með miklum afslætti.
Fólk ÚTI Á LANDI getur sent
pantanir og peninga, og skal það
vel afgreitt.
15—25 prct. afsláttur á öllum
skófatnaði.
------o------
Þá, sem skulda mér, bið eg
borga alt sem þeir geta fyrir jólin.
A. rrederickson,
61 I Avc.
Fyrirlestur
um
ísland
og sýndar ágoetar myndir
af ganila Fróni.
Hr. Vilhjálmur Stefánsson, sem
nú er aðstoðarkennari við Har-
Ward háskólann, heldur fyrirlest-
ur um ísland í Unítarakirkjunni
þriðjudagskveldið 26. þ. m. og
fimtudagskveldið 28. þ. m.,
' kl. 8 e. h.
Hann sýnir þar einnig fjölda
margar alveg nýjar myndir af
frægum sögustöðum á íslandi og
merkustu núlifandi íslendingunt.
Allar þessar myndir verða sýndar
með ágætri stækkunarvél. — Hr.
Stefánsson hefir nú í tvö sumur
ferðast ttm fsland, kynt sér landið
°g þjóðina, og sjálfur tekið flestar
af þessum myndum. Hann er,
eins og mörgum er kunnugt, prýði
lega vel máli farinn, og hinn mesti
smekkmaður, og er óhætt að lofa
því, að þessar samkomur , verði
einkar fróðkgar og skemtilegar.
Aðgangur verður 35 cent og
aðgöngttmiðar til söltt víðsvegar
um bæinn.
Vér biiSum »100 I hvart lina sem Catarrh l»»kn-
&st ekki meÖ Hall s Catarrh Cure.
W. J. Cheney & Co.. eigendur. Toledo. O.
Vér undirskrifaðir höfum Þekt F. J. Cheney
r1an’t ' h*Dn miöí áre'8»nleean mann
( öllum vtSskiffum oc æfinlega færan aB efaa öll
þau loforð er télag hana gerir.
M,Tru“/ Wholesale, DruetUt, ToIedo.O
Waldlng, Kinnon &Marvin,
Wholesale DruggieU, Toledo. O.
Líiu i1 Care ertekið inn og verkar beia
o . , allmhimnum&r. VerÖ 7íc, flaakai
Selt < hvern lyfjabúÖ. VottvrÖ send frftt