Lögberg - 30.05.1907, Blaðsíða 1

Lögberg - 30.05.1907, Blaðsíða 1
Þakklæti! Vér þökkum öllum okkar íslenzku viðskifta- vinum fyrir góð viöskiíti síðastliðið ár og óskum eftir framhaldi fyrir komandi ár. Anderson & Thomas, Hardware & Sporting Goods. 638 Maln Str Telephons 33B, Yér heitstrengium aö gera betur við viðskiftavini vora á þessu é ri en á árinu sem leið, svo framarlega aö það sé hægt. Anderson <& Thomas, Hardware & Sporting Goods. S38 MainSt. Telsphone 339 20 AR. íi Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 30. MAí 1907. NR. 22 Fréttir. Nýjar fréttir frá Austurríki og Dónárlöndunum staðfesta síSustu fréttina um óvænlegar uppskeru- horfur þar, sem getið var um í næsta blaði hér á undan. Er nú meðal annars sagt aS uppskeru- horfurnar á rúg séu þar hinar ó- vænlegustu. Sama er aö segja um aldinræktina. Hafa vorfrostin þar spilt henni mjög aS því er fréttirnar segja, þvi aö kuldarnir hafa veriö óvenjulega miklir. Þeg- ar fór aö hlýna, er mælt aö skaöar allmiklir hafi og oröið víða í undirhliöum Miö-Evrópu hálend- isins af snjóflóöum, því að veður- breytingin varö svo snögg þegar kuldunum létti af. Verzlunarviðskifti Japana og Bandaríkjamanna aukast nú stór- um með ári hverju og má þar til nefna mörg dæmi, svo sem þaö nú síðast, að fyrnefndir hafa keypt efni til járnbrauta bygginga af Bandarikjamönnum fyrir tólf miljónir dollara, er nota á í braut þá, sem Japanar eru í aðsígi meö aö leggja yfir Manchúríu sunnan- ■veröa. Má óefað vænta þess, aö íleiri þesskyns viöskifti rnuni hér á eftir fara. Látinn er líflæknir Bretakon- ungs, Joseph Fayrer, nafnkunnur maður, áttræöur aö aldri. Þaö er sagt aö konur í Mellita í Suöur-Dakota séu orönar svo fíkn- ar í að spila „bridge” feins konar vistspilj, aö bæjarráöiö þar hafi nvlega oröiö aö taka í taumana. Það setti þau lög, aö ef kona sæist þar spila “bridge” skyldi þaö varöa tuttugu og fimm til hundraö dollara sektum. Þó aö járnbrautarslys liér i Can- ada, sem orsakast af því aö braut- arleinarnir brotna, séu hlutfalls- lega færri talin en sunnan ltnunnar h< fir járnbrautamálanefndin hér i landi skipaö fyrir um ítarlega rannsókn á brautarteinum. Síöan um mið'jan Nóvembermán.hafa sex járnbrautarslys oröiö hér i landi, þar sem brotnum teinum er um kent. Og ætlar járnbrautarmála- nefndin aö láta heröa á eftirliti meö því aö járnbrautafélögin noti eftirleiöis sem haldbezta og traust- asta teina, og á ýmsan veg kapp- kosta aö fyrirbyggja slys er um má kenna ónógri vandvirkni á brautarlagningum. Auövitaö cr þetta ýmsum erfiðleikum bundiö, en sagt er aö nefndin geri alt sem í hennar valdi stendur feröamönn- um, er meö brautunum fara, til tryggingar. Frétt frá bænuni Saint Raphael á Frakklandi getur þes%, næstliöinn laugardag, aö brezki stjórnmála- maöurinn alkunsi, Joseph Cham- berlain, hafi um hríö dvalið þar á~ samt konu sinni, sér til heilsubót- ar. Ætla þau hjónin aö leggja á staö bráölega heim til Englands. il>ó aö Chamberlain sé nú talinn aö hafa fengiö góöan bata á vanheilsu þeirri, er hann hefir átt viö að búa síöastliöiö ár, þykir eigi líklegt aö ' hann muni gefa sig við stjórnrrtál- um fyrst um sinn. Símskeyti frá Lundúnaborg seg- ir, aö heimskautafarinn, Walter Wellmann, hafi lagt á staö þaöan 24. þ'. m. áleiðis til Noregs, en það- an heldur hann til Spitsbergen, og býst vi6 að leggja þaöan á staö til norðurheimskautsins í öndveröum næstkomandi Ágústmánuöi á flug- vél þeirri, er hann hefir gera látiö suður á Frakklandi. Eigi þykist Wellmann viss um aö komast til heimskautsins, eins og margir noröurfarar hafa veriö, þegar þeir hafa lagt á staö í slíkar ferðir, en J reynist yél hans eins vel og hann býst við, hefir hann góöar vonir. Tuttugasta og fimta þessa mán- aðar segja fréttir frá Chicago, aö á næstliönum þrjátíu dögum hafi [ unnist og tapast á hveitimarkaöin-' um þar 200,000,000 dollarar. Eitt i víxlarafélagiö þar græddi $2,000,- | 000 á þeim tíma. Nýjar uppreistir í Kína herma fregnir þaðan 27. þ. m. Mest kveður aö þeim á suöaustur- ströndinni, og drepa uppreistar- menn þar embættismenn og her- menn Kínastjórnar hrönnum sam- an. Sagt er og að þýzk trúboös- stöð nálægt Pakhoi hafi verið brend til kaldra kola, en trúboðarn- ir samt komist lifs af. 1< yti riönir við samsærið, er hefir veriö í undirbúningi siöan í Feb-! rúarmánuöi, aö sagt er, og þyk'st lögreglan rússneska hafa vitað um , þaö allan þenna tíma, en e:gi vilj- aö grípa í taumana fyr en í s'ðustu lög, í því skyni meö fram, aö ná í sem flesta er við það væru riönir, enda hafa nú margir verið hand- teknir og varpaö í fengelsi, er bendlaðir eru viö samsæriö, en rnargir aö eins fyrir grun einn. Síöan buröargjald blaöa og bögla milli Bandaríkjanna og Ca- nada var hækkað í vor hafa sunn- anblööin verið send hingað yfir landamærin sem express-flutning- ur og siöan látin í póstinn hér. Þetta kvaö Canadastjórn ætla aö banna, en Bapdaríkjmenn hóta þá að setja svo hátt burðargjald á blöö héöan, að nærri veröi ókleyft aö senda þau. Látinn er í New York Benjamin Baker, víðfrægur vélafræöingur og uppfundningamaöur, 20. þ.m. Símaö er frá borginni Silla á Indlandi 17. þ. m., aö samkvæmt nýbirtum skýrslum stjórnarinnar þar í landi, hafi látist úr svar>a- dauöa á öllu Indlandi. næstlifnar sex vikur, talið til 11. þ. m., nær því hálf miljón manna; af þeim mannfjölda tæp þrjú hundruð þús und i borginni Punjab, sem er tal- in gróörarstcö sýkinnar þar eystra Nýlega var sýnt á fjölmennum íuúdi konunglega vísindafélags- ins í Lon ’on síðasta uppgötvun hugvitsmannsins Louis Brennan, þess er fann upp tundurvél þá, er nú er talið eitt hiö voöalegasta morötæki er brezki flotinn hefir aö bera fyrir sig í ófriöi. Þessi siðasta uppgötvun Brennans er járnbrautarvagn, er rennur á ein- um teini. Þaö var aö eins örlítið sýnishorn af hugmyndinni hans,er liann sýndi á fundinum, sem áöur er nefndur. Er mælt aö þessi litli vagn hafi þotiö þar fram og aftur eftir bugöum og halla, bæöi tómur og fermdur, án þess að fara út af sporinu. Frétt frá Duluth getur þess, aö nýfundin ?é málmæö mikil í járn- námunum í grend við bæínn Tow- er i Minnesota, en þeir námar taldir einhverjir þeir elztu í því ríki, en voru þó nærri útgrafnir, þegar þessarar nýju málmgnóttar varö vart, sem búist er viö að veröi bænum Tower til mikilia þrifa. A mánudagsnóttina var kvikn- aöi i girðingavírs verksmiöju i Portage la Prairie fyrir sk nimu bygöri, er stendur i noröaustur- hluta bæjarins. Brann byggingin svo aö ekki standa eftir nema veggirnir. Er skaöinn metinn um sjötiu og fimm þúsund dollara, en vátrygging um fjörutiu og fimm þúsundir. Formaöur félags þe-s er fyrir þes«ari byggineu og iön- aðargrein stóö, var Mr. Brown, borgarstjóri, og nokkrir hluthafar í félagi þessu eru hér búsettir í Winnipeg. Engar nánari fréttir hafa enn borist um þaö hvernig eldurinn kviknaöi. í vikunni sem leiö varö uppvíst enn eitt nýtt samsæri til aö ráöa Rússakeisara af dögum. Höföu byltingamenn gert samninga viö dyraveröi í keisarahöllinni um aö hleypa þeim inn, i Kósakka tiún- ingi, til aö vega aö keisaranum. En samsæriö komst upp áöur en keisaranum varð nokkurt mein gert. Er mælt aö ýmsir af líf- veröinum hafi flækst inn í mál þetta, og þeir taldir aö einhverju Hvorki rekur né gengur meö Idaho-málin. Það hefir enn þá ekki verið hægt að nefna til kviö- dómendur í máli W. D. Haywoods ritara hins vestræna námamanna- fél. Nú hafa verið prófaöir yfir hundrað manns, en ekki hægt að fá 12 búa í kviö, þá er óhlutdræg- ir séu. Það á aö safna enn á ný saman 61 manni til aö fá þá, sem á vantar. Að svo margir hafa gengið úr leik, er nokkuð þvi aö kenna, aö svo margir þar vestra eru annaðhvort ákveönir jafnaö- armenn, eöa þá gersamlega mót- fallnir þeirri stefnu. Taliö er, aö þaö hafi cigi annaö stórkostlegra mál uppi verið í Bandarikjunum, síðan anarkistamálið sæla í Chica- go, en þetta. Fellibylur geisaöi um Texas 25. þ. m. Olli hann allmiklu mann- og eignatjóni á ýmsum stööum. í einum bænum bylti hann um og Iaskaöi milli tuttugu og þrjátíu hús. Frakkar vigbúa her sinn í á- kafa. Á næsta ári hafa þeir áætlaö 944,285,050 franka til herútgjalda. Þaö er 208 miljónum fránka meira en i fyrra. Hækkunin er mest í því fólgin, aö nú á aö kaupa nýtísku vopn handa hern- um. Þaö litur ekki út fyrir aö þeir vilji treysta mikiö á friðartal Mr. Carnegie. Nú er sem óöast verið aö búast við komu friöarþingmannanna til Hague fHaagJ. Faö er búist viö aö heldur veröi þröngt í bænum meðan þetta 2 j friðarþing stendur yfir. Er mælt aö um 46 þjóðir sendi fulltrúa þangað. Hollenzka stjórnin er aö láta breyta og laga höll eina forna fyrir fundarstaö, meö því aö staö- ur sá, sem þeir héldu fyrsta þing- iö á, er nú talinn muni verða of lítill. Símskeyti frá Sidney i Austral- íu sent seint í næstliöinni viku getur þess, aö 30. f. m. hafi ógur- leg flóðbylgja gengið yfir Karo- linu-eyjarnar austan viö Asíu og farist í þvi flóöi um tvö hundruö manna, en eignatjón ógurlegt orö- iö. Þær fréttir berast frá Frakk- landi aö illa líti þar út sem stend- ur meö vínyrkju. Er mælt að þar hafi komist upp fyrir skenistu ýms svik aö því er vhigerö snerti- ir, svo sem aö vín hafi veriö buiö til meö ýmsum óvönduðum efna- samblöndum, léleg vín verið flutt þangaö frá California og seld aft- ur sem dýr og fin vín búin til i Frakklandi og þá er eigi þaö sízt aö telja aö álit Englendinga og Ameríkumanna er nú taliö aö fara mjög minkandi á frakkneskum J vínum. Ivváöu vínyrkjumenn á j Frakklandi vera hinir æfustu um j þessar mundir og víöa orðiö af uppþot og óspektir, svo herlið hef- í ir orðið aö skakka leikinn, því að j víngerö hefir verið þar stórgróöa- vænleg atvinnugrein hingað til. Er 5 mælt aö landstjórnin ætli aö fara | aö láta rannsaka þetta mál, og er I búist við aö mörg svikabrögö vín- gerðarmanna komi upp viö þá j rannsókn. Fregn frá Berlínarborg á Þýzka- landi getur þess, að ‘‘Hamburg- j American” gufuskipafélagiö hafi í hyggju aö koma á föstum vikuleg- um fólks- og vöruflutningum milli Þýzkalands og Canada, svo fljótt sem vænlegir tollmála-samningar komist á milli nefndra landa. Svo er aö sjá af fréttum frá Nova Scotia, aö fiskiveiðaskipin hafi fengiö hörö veður á miöunum þar eystra á þessu vori. Nýlega hafa t. d. borist fregnir um tvö frönsk skip, sem hafi farist þar, meö rá og reiða og fjörutiu manns. Herskip, sem send voru aö leita þessara skipa, eru komin aftur og urðu þeirra hvergi vör né fréttu til þeirra, en ýms löskuö skip uröu þau vör viö og töluverðan ís sögöu þau verið hafa á fiskimiöunum, en fiskiveiði meö lakara móti. Úr bænum. Frá íslandi kom á laugardaginn Guöm. Árnason frá Reykjavík. Klrkjuþingsmcnn á aö kjósa i Selkirk næstkomandi mánudag, 3. Júní. Stefán Stefánsson og J. Ander- son eiga bréf á skrifstofu Lög- bergs. Sigurjón Sigurösson, verzlunar- félagi Vopna, er að láta reisa sér sumarbústaö i Norwood. Milton bakari á Bannatyne ave. vill fá íslenzkan ökumann, sem kunnugur er í vesturbænum. Seinni part síöustu viku voru menn farnir aö slá grasblettina hjá húsum sínum sumsstaöar hér i bæ. Grasið er ekki lengi aö þjóta upp strax og hlýnar. Arni Thordarson, rakari, flutti alfarinn til Gimli snemma í þess- ari viku. Hann ætlar aö reka iön sina þar framvegis. Hann hefir bygt sér rakarastofu á Central aventie. Jakob Guömundsson, bókbindari i Norwood hér í bænum, mágur Árna kaupm. Friðrikssonar, lagöi á stað með fjölskyldu sina, eftir síöustu helgi, alfarinn vestur aö Kyrrahafi. Nú er fengin Grace Church hér á Notre Dame ave. til að halda í samsönginn i sumar, þann, sem séra H. B. Thorgrimsen stendur fyrir. Sú kirkja er stór og rúm- góð, er jafnvel talin einhver veg- legasta kirkja hér í bæ. Er nú fengin full vissa fyrir því, aö söng- flokkurinn fær aö njóta sín. Þeir J. J. Vopni, dr. O. Björn- son og G. Thomas brugöu sér til J Glenboro á mánudaginn var og komu aftur á þriðjudaginn. Hveiti sáning er nú lokiö í Argyle og er þaö ætlan .manna, aö sáö hafi nú verið í niutíu til níutíu og fimm prócent venjulegra hveitiakra þar, þrátt fyrir vorkuldana. Mrs. Björg Waring, sem dvaliö hefir á Englandi síöan í fyrra sumar, kom hingað til bæjarins um miöjan þennan mánuð. Hún kveðst muni dvelja á Gimli hjá móður sinni i sumar, eöa á Poplar Point hjá móðurbróður sínum. En þar eru börn hennar tvö. Tón T. Vopni, kaupmaður, hefir nýlega keypt sér sjálfhreyfivagn (automnbilej. Hann mun vera eini íslendingur hér vestan hafs, sem á þesskonar vagn. Vagninn er, aö þeirra dómi, sem vit hafa á þeim hlutum, mjög vandaöur og traustur. Á fimtudaginn var varð Kristján Pálsson, skipstjóri á gufubátnum Rocket í Selkirk, fyrir því slysi aö fótbrotna. Hann var aö setja fram bát, þegar slysið bar aö. Sagt er aö sigíutré hafi falliö á fótinn á honum. Nú er hann á góöum bata- vegi. Þorbergur Fjeldsteö, vitavöröur í Mikley í Winnipeg-vatni, kom hingað til bæjarins í vikunni sem leið. Hann sagöi ísinn enn stál- heldan á vatninu. Hann bjóst viö aö dvelja hér þangað til ísinn leysti og bátsferðir fara aö hefjast um vatnið. Þá á að byrja aF kveikja vitaljósin. f Selkirk er sagt gott útlit. Vinna aiment byrjuö þar. Meöal tíöinda þaðan má telja, aö nú er veriö að koma þar á vatnsleiðslu um bæinn. Skólann, sem brann í vet- ur, er nú verið að reisa úr rústum. Fyrir þvi stendur íslenzkur smiö- ur, 'Cuöjón Ingimundarson. Spít- ala er líka veriö aö byggja þar. Þaö á aö stofna ísl. barnastúku í Good Templara húsinu á laugar- daginn kemur. Fyrir þessari stofn- un gangast ísl. G. T. stúkurnar þrjár. Undir þeirra umsjá á hún lika aö verða. Foreldrar ættu aö láta börn sín ganga í stúkuna. Fé- lagsskapurinn er góöur. Byrjaö kl. hálf-fjögur. Á hvítasunnudag andaöist aö heimili sínu í Selkirk, Sæunn Sig- urðardóttir Leó, kona Jónasar Leó, er hefir búiö þar síðastliðin 15— 16 ár. Jarðarförin fór fram hinn 21. þ. m. frá ísl. lút. kirkjunni í Selkirk, aö viöstöddum fjölda fólks. Séra N. Stgr. Thorlaksson flutti húskveöju og líkræöu. Hin látna var um 75 y2 árs er hún lézt. Hennar veröur aö líkindum minst siðar hér í blaöinu. Skúli Árnason, bóndi í Argyle, lagöi á staö til Edmonton á þriðju- daginn í landskoöunarferö. Með honum fóru synir hans þrír: Hjalti, Karl og Jón; enn frenuir 1 Guöni, sonur Þorst. Jónssonar á j Hólmi. Skúli bjóst við, ef sér lit- ist á sig þar vestra. aö festa lönd fyrir allan hópinn og skilja þá 2 sonu sina eftir til aö vinna fyrstu og nauðsvnlegustu skylduverkin. Halldór Árnason fylgdi bróöur sínum hingaö til bæjarins. Séra N. Stgr. Thorlaksson kom hér snöggvast til bæjarins á fimtu- daginn var. Hann var á leiö suð- ur til Pembina til aö ferma þar 5 börn. Siðan ætlaöi hann til Park River, aö gefa saman i hjónaband þau: Birgitte Halldórsson (dóttur M. Halldórssonar læknisj og Ole Peterson, norskan kaupmann þar í þorpinu. Kona séra Steingríms og dætur lögöu á staö á mánudag- inn til móts viö hann. Þeirra er von aftur fyrir helgina. Á sameinuðum fundi bæjarráös- I manna og veganefndar hér um daginn var samþykt aö verja i ár sem svarar einni rniljón döllara til vegabóta hér í Winnipeg. I sum- ar á að asfalta Main st. milli Hig- gins ave. og Graham. Sömuleiöis Xotre Darne ave. vestan viö Nena alla leiö til McPhiílips. *Portage ave. á líka aö asfalta milli Mary- land og Minto stræta. Ýmsar fleiri götur á að gera viö, en mörgum samt slept af þeim, sem áöur var búiö að tiltaka. S. J. Sigurðsson og Jóh. Sig- urösson, úr Garðar-bygð i Noröur Dakota, voru á ferö hér um he’g- ina. Þeir sögöu hveitisáning Iok- iö þar syðra. Eitthvaö minna var sáö sakir kuldanna i vor, en þaö sem sáö varö. hafðist vel við. Aki* ar þar orönir grænir. Á Garöar er verið aö byggja nýtt prestsset- ur. Séra K. K. Ólafsson sest þar aö.' Dáin er nýlega þar syöra Mrs. Plouban, dóttir Jóhs. Sigurðsson- ar. Hún var gift sænskum manni. , V Jóhatin Pálsson kom á mánudag- inn utan af heimilisréttarlandi sínu nálægt Matj Hill P. O. Hann veröur hér í sumar og rekur hand- iðn sína, málarastarf. Þar ytra sagöi hann útlit aö batna nú meö hlýinclunum. Landar allir voru heybirgir, en sagt aö eitthvað af gripum hafi fallið hjá enskum bændum, og þeir orönir heylausir margir hverjir. Á þriðjudaginn kom Th. H. Johnson þingmaöur og kona hans heim úr skemtiferö sinni frá St. Peter, Minn. Á suðurleiö námu þau staðar i þrjá daga i St. Paul og Minneapolis. Þar var þá stadd- ur um það leyti W. J. Bryan, for- setaefni demokrata. Hann hélt aöalræðuna á 17. Maí hátíö Norö- manna þar. Þangað komu þau hjónin. Mr. Bryan var í Noregi þegar Hákon kon. var krýndur í fyrra, en heldur hafði hann látiö sér fátt um finnast þá athöfn, aö því er hann sagöi í ræðunni. Mrs. Johnson haföi ekki komið áöur suður fyrir landamærin, en ljóm- andi vel lætur hún af Bandaríkjun- um, því, sem hún sá af þeim. Boigirnar þar snyrtilegar og þrif- legar. Síöan hélcíu þau til St. Pet- er og dvöldu þar í 5 daga. Þá stóöu þar sem hæst skemtanir og annar gleðskapur, sem skólaupp sögn er samfara. Söngflokkar eldri stúdenta mættu því nær allir, uröu þeir talsins milli 40 og 50 manns. Sungu þeir svo eldri og yngri uppáhaldssöngva sína. Þeir einir, sem þekkja, geta gert sér í hugarhmd hve mikil ánægja þaö er, aö hitta aftur vini sina og rifja upp endurminningar frá sólskins- dögum æskunnar, skólaárunum. Margir af vinum Mr. Johnsons spurðu um þá dr. Brandson og séra Rúnólf Marteinsson, og þótti þá illa vanta í hópinn. Þeir út- skrifuðust báöir þaöan um sama leyti. íslenzkum nemendum, sem nú eru á skólanum, haföi öllum gengið vel meö árspróf sín. Jó- hanna Högnadóttir útskrifaöist þaöan meö heiðri, eins og vér höf- um áöur getiö um hér í blaðinu. Magnús Magnússon, próf., er í niiklum metum þar syöra. bæöi meöal nemendanna og kennara skólans. Á heimleiöinni heimsóttu þau hiónin séra Björn B. Jónsson i Minneota og stóöu bar viö i bæn- um í 2 daga. Héldu síðan beina leiö heim. Almennar fréttir þaðan aö sunn- an sömu og hér. Vorið kalt og því öllum önnum lokiö í seinna lagi.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.