Lögberg - 29.08.1907, Blaðsíða 2
LÖGBERG, FIMTUDAGTNN 29. ÁGÚST 1907
Brjóstsykur og vínandi,
Dr. A. C. Abbott, heilbrigöis-
fræöingur í Pennsylvania, hefir
haldiö því fram aö löngun í vín-
anda og löngun í brjóstsykur
væru sama eðlis báöar, hvoru
tyeggja nautnarlöngun, er menn
fýsti mismunandi mikið til aö
fullnægja, alt eftir því hvernig
lyndiseinkunn hlutaöeigandi ein-
staklinga væri varið. Ýmislegt má
segja skoðun þessari til stuðnings.
Venjulega hefir það verið kven-
fólkið, sem sólgið hefir verið í
brjóssykur, en karlmenn í áfengi,
en nú eru konur farnar að drekka
vín og karlmenn að eta brjóstsyk-
ur. En þó að áfengisnautn hafi
farið minkandi á síðustu árum,
hefir aftur á móti brjóstsykursát
vaxið að sama skapi. f þeim hlut-
um borganna,er starfsmannaflokk
urinn einkum hefir aðsetur, og
annarstaðar þar er karlmenn búa
flestir, þar hefir nú á síðari árum
brjóstsykurssölum stórfjölgað, svo
að það er eigi óáþekt því að þeir
hafi rýmt út sumum áfengissölun-
unum.
Efnasamsetning sykurs og vín-
anda er að ýmsu leyti svipuð og
verkanir þeirra á mannlegan lík-
ama eru heldur ekki óáþekkar. í
raun réttri er sykur vínandakend-
ur. Efnafræðingar segja einn
nokkurra hundruðustu hluta í
sykri vínanda, og eru frumagnir
þessar stserri og einkennilegri en
annara vínandategunda. Auðvelt
mjög er að breyta sykri í vínanda
með gerð eða sýring, en á þann
hátt er allur vínandi búinn til. Því
er haldið fram, þar á meðal ný-
lega af dr. Dixon, nafnfrægum
enskum lækni, að einmitt þess
konar breyting verði á sykri í lík-
ama mannsins. Hann breytist þar
í vinanda samskonar þeim, er
vart verður við, Þó í smáum stíl
sé, í heila mannsins, lifur og tauga
vef, jafnvel á þeim mönnum, sem
ekki neyta eða hafa neytt áfengis,
sem venjulega er kallað, og hlýtur
því að skoðast sem eitt frumefni í
likama lifandi vera.
Vínandi í smáum stíl flýtir fyr-
ir meltingunni eins og sykur.
Hvorttveggja berst skjótt út í
sogæðarnar og breytist í súrefni.
En ef vínandinn verður of mikill,
deyfir hann verkanir heilans og
vöðvanna. Þó að mikils sykurs
aftur á móti sé neytt, hefir það
eigi slikar skaðlegar verkanir í för
með sér, enda þótt það sé gert um
lengri tíma. Dr. Reid Hunt i
Washington hefir sannað það, að
sykur eykur mótstöðuafl líkamans
gegn verkunum eiturs, en vinand-
inn aftur á móti rýrir það mót- j
stöðuafl. Ef brjóstsykursát ykist
með þeim hætti, að Það útrýmdi
vínandanum, mætti það stórkost-!
leg umbót heita á lifnaðarháttum
nútíðarmanna í hinum mentaða
heimi. 1 stað Þess að senda
drykkjurútana á spítala og láta
lækna Þá með “gold cure”, væri þá
hægt að lækna þá með sykri.
Hvort að brjóstsykur getar
hrest og fjörgað skap manna eins*
og ýmsir telja áfengið gera er á-
litamál. En það er líka álitamál,
að hve miklu leyti fjörið og and-
lega hressingin, sem vant er að
eigna áfenginu, er þvi að þakka. j
Um það efni farast prof. Cusbing
við Lundúna-háskólann svo orð: J
“Menn gera sér ekki nógu vand- j
Iega grein fytir því, hve oft á- j
fengið hefir beinlínis deyfandi
verkanir í för með sér. Staðir |
þ«*r, sem drykkjumenn dvel’ja
jafnaðarlegast á og fékigsskapur-
inn, sem þeir eru oftast í, veldur
að mestu leyti fjörinu, sem er i
þeim æsingum og mælskunni. Á
spítölum verða menn vanalega
engra slíkra verkana varir þó að
vínandi sé viðhafður.”
J. Það að áfengið sé svo mikill og
ótvíræður gleðskaparauki — hvort
heldur með Því móti að það skerpi
vitsmuni ölvaðs manns, eða að
það dragi úr dómgreind félaga
hans á þeim efnum—, virðist Því
eigi nærri því eins ótvírætt og á-
reiðanlegt eins og menn hafa hald-
ið. En víst er um Það, að ein
helzta ástæðan til áfengisnautnar
er sú, hve hún gerir mönnum létt
fyrir að eyða fé með skjótum
hætti . Heita má að sú sé ein
helzta og tiðfarnasta leiðin til að
láta kunningja i té fúsleik okkar
á að eyða fé fyrir hann persónu-
lega; og varla er álitið vel sæm-
andi að kalla vin á fund sinn ef
ekki á að gæða honum á einhverju
og þá er venjulegast gripið til
annars hvors víns eða matar af
einhverri tegund. Með þvi móti
að tíðnotaðar yrðu mjög dýrar
tegundir af brjóstsykri eða gos-
drykkjum væri hugsanlegt að þær
gætu komið i stað áfengisins, jafn-
mikill peningaþjófur og það er.
Nautnarauki vínanda og sykurs
á síðari tímum er að miklu leyti
sprottin af starfsfjörskröfunni og
þörfinni á hita í blóðinu. Við
sttrfum nú eins og vélarnar okk-
ar, neytandi allrar orku, og þurf-
um eitthvað .samsvbúandi gasinu
og steinolíunni sem við þær er
notað, í stað hægt brennandi viðar
og kola. Forfeður okkar þektu
vinanda eigi nema mjög þyntan
og sykurgerð er ein af uppgötvun-
um síðari tíma.
Það er ekki nema svo sem ein
öld síðan sykur fór að verða tíð-
notað til manneldis. Sykur, sem
fyrmeir var einungis notað sem
sælgæti, er nú orðið svo algeng
matvara, að við etum meir en
helming Þyngdar okkar af því á
ári hverju. Hrakspárnar, sem því
voru spáðar fyr meir, að það eyði-
legði tennurnar, að það væri skað-
legt fyrir börnin, að það væri lost-
ætt sælgæti, sambóðið kvenfólki ®n
ekki karlmönnum, allar þær hrak-
spár eru nú að miklu leyti liðnar
undir lok, og hætt að taka tillit til
þeirra. Nú er hermönnum gætt á
sykri áður en Þeir leggja út í blóð-
uga bardaga, í stað þess að áður
var þeim borið stríðsöl og margur
starfsmaðurinn hressir nú lamað-
an Þrótt sinn með því að narta í
súkkúlaðsköku i stað þess að
drekka staup af víni.
—The Independent..
íslenzkur loftskevta-
raaður.
Vilhjálmur Finsen ('sonur Óla
Finsens póstmeistara ýhefir num-
ið rafmagnsfræði síðastliðinn vet-
ur í skóla á Englandi, einkanlega
alt það er viðvikur loftskeyta að-
ferðum og haft jafnframt verk-
legt nám við loftskeytastöð þar.
Lauk hann þar námi í vor með
góðri pinkunn. Síðan réðst hann í
þjónustu loftskeytafélags í Brús-
sel, sem heitir Compagnie de Tele-
graphie sans fil; það er með
Marconi-fyrirkomulagi og talið
bezta loftskeytafélagið — betra og
auðugra en Marcomfélagið í
Lundúnum, en þó er það með
samningum í nokkurs konar sam-
bandi við enska félagið. Hefir
það stöðvar víðsvegar um allan
heim og enn fremur á öllum
stærstu skipum, sem fara milli
Noríurálfu og Ameríku.
Nú sem stendur er Vilhjálmur
Finsen yfirmaður Marconistöðv-
arinnar á stóru, nýju fólksflutn-
ingaskipi, er heitir President Lin-
coln. Það ferðast milli Hamborg-
ar og Vesturheims og er eign
sama félags eins og fólksflutninga
skipið Oceana, sem hingað kom á
dögunum.
V.F. er víst eini íslendingurinn,
sem kann loftskeyta aðferð til hlít-
ar og er Það gleðilegt að honp.m
hefir gengið óvenju fljótt og vel
að leysa námið af hendi og fá
traust hjá félagi þvi, er hann
vinnur hjá — Ingólfur.
Fréttir frá íslandi.
Reykjavík, 28. Júli 1907.
Taugaveiki hefir nýlega gosið
úpp á 5 bæjum í Hrútafirði. Á
einum bænum, Kolbeinsá, liggur
alt heimilisfólk nema bóndinn, Ól-
afur bróðir séra Þorvalds heitins
á Mel. Bæir þeir hafa verið sótt-
kvíaðir, sem veikin er á.
Bær brann á Skerðingsstöðum í
Reykhólasveit 12. Þ. m. ásamt
skemmum tveim og fjósi, til
kaldra kola. Engu varð bjargað
úr bæjarhúsum nema fötum litils-
háttar, en eitthvað náðist úr úti-
húsum. — Ingólfur.
Reykjavík, 17. Júlí 1907.
Sæsíminn komst í lag kl. 7 á
föstudagskveldið. Hafði slitnað 20
enskar mílur frá Hjaltlandi, af
völdum botnvörpunga að því er
haldið er.
Séra Einar Þórðarson liggur
veikur á Landakotsspítala og hefir
ekki getað setið á þingfundum
nema fyrstu dagana.
Grasleysi um land alt. Þurkar
og kuldar ómunalegir, og þó eink- |
um vestanlands. Torfi í Ólafsdal, j
sem er hér staddur, kveður sprettu |
vestur Þar engu betri en mislinga- j
sumarið 1882.
Reykjavík, 24. Júlí 1907.
Reglugerðin nýja fyrir Akur-
eyrar-skólann kom í gildi haustið
1905. Samkvæmt henni gengu þá
inn í skólann 45, en einir 9 af þeim
tóku próf til 3. bekkjar í vor, og
búist við að fæstir þeirra muni
koma fram við burtfararprófið að
vori. Allar líkur á að sú stóra
stofnun standi sem næst auð að
vetri.
Rangvellingar bjóða 8,000 kr. í
símann verði hann lagður að sumri
austur í Hvolhrepp að Eystri-
Garðsauka. Lagningarkostnaður
frá Þjórsárbrú þangað mun ekki
nú 20 Þús. Forberg símastjóri
vill láta leggja símann að sumri
jafnsnemma niður á Stokkseyri og
á Eyrarbakka, og nemur það io—
11 þús. kr.. Óráðið um væntan-
legt framlag Árnesinga, sem vart
stendur á, , sé í hófi krafist, Þegar
í boði er jafnframt síminn niður í
kaupstaðina. Eftir mjög svo laus-
legum bráðabirgðaáætlunum er
talið að sími frá Borðeyri um
Búðardal í Stykkishólm mundi
kosta 68 Þús. kr., og litlu minna
sími frá Grund í Skorradal um
Borgarnes vestur í Stykkishólm.
Framlög munu enn eigi boðin úr
þeim héruðum, þótt mikill áhugi
sé á að fá símann lagðan niður
með Hvítá í Borgarnes, og á því
svæði mundi vart standa á þriðj-
ungsframlagi úr héraðinu. Suð-
ur-Þingeyingar bjóða þriðjungs-
framlag í síma frá Breiðumýri út
á Húsavík. Er sá kostnaður alls
21 þús. kr.
.
/
Björgvin Vigfússon sýslumaður
er hér staddur. Hann sækir um
Rangárvallasýslu. — Lögrétta.
Frakkneskt fiskiskip brann ný-
lega um 2 mílur undan landi, út
frú Suðursveit í Hornafirði. Skip-
ið hét Norma og var frá Dunker-
que. Skipverjar voru 18, og var
þeim bjargað af öðru skipi frakk-
nesku, Figaró, frá sama stað.
Mennirnir voru fluttir á lanó að
Kálfafellsstað, og þaðan til Fá-
skrúðsfjarðar.
Þingmannaförin 1906 heitir bók,
sem nýkomin er út á kostnað Sig.
Kristjánssonar bóksala, en samin
‘að tilhlutun alþingismanna og
mun að mestu leyti rituð af þeim
Jul. Havsteen amtm. og H. Þor-
steinssyni ritstjóra. Bókin er með
mörgum myndum og mjög skraut-
leg. Verðið er lágt, að eins 2 kr.
—Lögrétta.
Reykjavík, 6. Ág. 1907.
Frá Seyðisfirði er símað 27. f.
mán.: Fiskiafli sæmilegur. Síld-
arafli ágætur í reknet. Nora búin
að afla síld fyrir um 12,000 kr. á
rúmum vikutima,—hefir birgt firð
ina með beitu.
Þorsteinn kaupm. Jónsson frá
Borgarfirði hefir keypt hótel
Seyðisfjörð, veitingahús Kristjáns
Hallgrímssonar, með útihúsum o.
fl. tilheyrandi á 12,000 kr., og ætl-
ar að hafa þar veitingar eftirleiðis
fán áfengis).
Reykjavík, 9. Ág. 1907.
Færeyja-strandgæzluskipið Be-
skytteren, sem áður var, en stund-
ar nú mælingar hér við land, náði
fyrir skemstu í 2 botnvörpunga
enska, við veiðar í landhelgi undir
Jökli og fór með inn í Stykkis-
hólm til dómsálagningar. En þar
var þá sýslumanns'aust, sem víðar
gerist um þessar nuindir, meðan
stendur á konungsfagnaðinum.'
Þá var farið með sökudólgana
hingað suður fyrir, og tók sýslu-
maðurinn í Hafnarfirði loks að
sér að Ieggja á þá lagavöndinn.
Hann sektaði þá um 1.000 kr.
hvorn. gerði afla og veiðarfæri alt
jipptækt. Þeir voru báðir frá Hull
og heitir annar John Sherburn, en
hinn Goodhope. (
Konungur náðaði í fyrra dag
eina stúlku í hegningarhúsinu, er
hafði fyrirfarið barni sínu, Jónu
Ágústu Jónsdóttur úr Barða-
strandasýslu, og gaf henni 100 kr.
til heimferðar.
Nafnbætur og heiðursmerki hef-
ir konungur veitt í gær allmiklum
fjölda manna. Riddarar urðu
þeir úr móttökunefndinni, sem
það voru ekki áður; Skúli Thor-
oddsen, Ólafur prestur ólafsson,
Jón Jakobsson; tveir hinna danne-
brogsmenn; Guðm.Björnsson land
læknir og Jón Magnússon skrif-
stofustjóri. — Þórfiallur lektor
Bjarnason var hvorttveggja áður,
og fékk nú prófessorsnafnbót. —
Konungfarar-stjórinn, Axel Tuli-
níus sýslumaður, orðinn riddari.
Sömuleiðis þeir yfirdómararnir
Kristján Jónsson og Jón Jensson.
Ennfremur Sigfús Eymúndsson
útflutningsstjóri o. m. fl. —Isaf.
Bjcycle verzlun
og aðgeröaverkstæöi á góðum
stað til sölu. Ástæðan fyrir söl-
unni er uppleysing félagsskapar
þeirra er eiga. Fyrir þann, sem
hefir dálitla peningaupphæð, er
þetta ágætt tækifæri.
Kl. iotili2árd. geta listhaf-
endur snúið sér til
CORIN
730 Furby St.
IsleÉur Hanber,
Reykjavík, 5. Ág. 1907.
Skorið sig á háls hefir nýlega
maður í Bolungarvík, Guðm. Sig-
urðsson að nafni, roskinn maður,
en hafði verið eitthvað veiklaður
á geðsmunum.
G. L. Stephenson
118 Nena St.. - WINNIPEG
Rétt norðan við Fyrs'u
lút. kirkju.
Tel. 5780,
A. S. BARDAL,
selui
Granite
Legsteina
alls kcnar stærðir.
Þeir sem ætla sér að kaupa
LEGSTEINA geta því fengið þá
með mjög rýmilegu verði og ættu
aö senda pantanir sem fyrst til
A. S. BARDAL
121 Nena St.,
Winnipeg, Man
Thos. H. Johnson,
Islenzkur KSgfræBlngur og mkla-
íærslumaBur.
Skxifslofa:— Room SS Canadz, Ufr
Block, auBaustur homl Portar
avenue og Maln et.
l’tanáskrlftP. o. Boz 1S«4.
Telefön: 423. Wlnnlpeg, Man.
Hannesson & White
lögfræðingar og málafærzlumenn,
Skrifstofa:
ROOM 12 Bankof, HamiltoD Chamb,
Telephone 4716
- Dr. O. BjornAon, l
? orric* 660 WILLIAM AVE. TEL. »»
> Office-tímar: 1.30 til 3 og 7 til 8 e, h.
j House ; aa° w‘Dermot Ave. Tel'
millenery.
Allir sumarhattar fást nú meö. niður-
settu veröi.
l5,oo hattar fyrir $2.00
$7.00 hattar fyrir $3.00
$10.00 hattar fyrir $5,50
StrútsfjaOrir hreinsaöar, litaöar og liöað-
ar.
Gamlir hattar endurnýjaöir og skreyttir
fyrir mjög lágt verö.
COMMONWEALTH BLOCK,
524 MAIN ST,
t Office : 6s» Willlam eve. Tec. 8»
5 Hours :Í3 <0 4 &,7 to 8 p.m,
Residence : 6ao McDermot evc. TeI.43**o
/ WINNIPEG.
SG. MAN. t
I. M. Clegiiora, M D
læknir og yflrsetamaður.
Heflr keypt lyfjabööina ft Baldur, og.
heflr því Bj&lfur umsjðn & öllum meö-
ulum, sem hann lwtur írá sér.
Elizabeth St.,
BALDUR, . MAN’.
P.S.—Islenzkur túlkur vlö hendlna
hvenær sem þörf gerist.
IÁI, Paulson.
- selur
Giftingraleyflsbréf
Nýja ísrjómastofa
okkar er nú opin.fskaldir drykkir seldir.
Reyniö hjáokkur ávextina.sætindin, vindla
tóbak og vindlinga.
The Falace Restaurant ,
COR. SARGENT & YOUNG
W. PRIEM, eigandi.
ECTA
SÆNSKT
NEFTÖBAK.
A. S. Bardal
ISI NENA STREET,
selur líkkistur og annast
um útfarir. Allur útbún-
aöur sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann allskonar
minnisvaröa og legsteina
Telephone 3o«
KerrBawIf fldamee Ltd.
UNDERTAKERS & EMBALMERS
22» Main Street, Winnipeg
Ráða yfir fyrirtaks sjúkravagni. Fljdt og
góð afgreiBsla. Hvítur barnalikva«n
FKRDIN.
Píanó og Orgel
Vöru
afborgunum.
Einkaútsala > *
THE WINNIPEG PiANO & ORGAN C0.
295 Portage ave.
Búið til af
Ccmada Snuff Co
Þetta er bezta neftóbakiö
sem nokkurn tfma hefir
veriö búið til hér megin
hafsins. Til sölu hjá| Q
H. S. BÁRDAL,
172 Nena Street.
Fæst til útsölu hjá
THE COMP. FACTORY
249 Fountain St., Winnipeg
Auglýsing.
Ef þér þurfið aö senda peninga til fs-
lands, Bandaríkjanna eöa til einhverra
staöa innan Canada þá aotiö Dominiea Ex-
press Company's Money Orders, ntléndar
ávísanir eöa póstsendingar.
LÁG IÐGJÖLD.
Aöal skrifsofa
482 Main St,, Winnipeg.
Skrifstofur viðsvegar um borgina, «g
ötlum borgum og þorpum vfösvegar usa
landiö meöfram Can. Pac. Járnbrautinni.
\
ifhmiö eftir
— því n,ð —I
EflSy’s Bygginyapapiiir
heldur húaunum heitumj og vnrnar kulda. Skrifið eftir sýnishorr,
um og verðskrá til
TEES £ PERSSE, LLp.
ÁGBNT8, WINNIPEG.