Lögberg - 02.04.1908, Side 4
I
U)GBERG, FIMTUDAGINN 2. APRIL 1908.
+----
goglurg
er uefið út hvern fimtudag af The Lögberg
Printing & Publishing Ce., (löggilt). að Cor.
William Ave. og Nena St.. Winoipeg, Man. —
Kostar $a.oo un árið (á íslandi 6 kr.). — Borg-
iat fyrirfram. Einstök nr. 5 cents.
Published every Thursday by The Lögberg
Printing & Publishing Co.. (Incorporated). at
Cor. William Ave. & Nena St., Winnipeg,
Man. — Subscriptjon price $2.00 peryear, pay-
able in advance. Single copies 5 cents.
S. BJÖRNSSON, Edltor.
J. A. BLÖNDAL, Bun. Manager
AuglýHÍngar. — Smáauglýsingar í eitt
skifti 25 cent fyrir 1 þml. Á stærri auglýsing-
um um lengri tíma, afsláttur eftir samningi.
BdstaOaskifti kaupenda verður að til-
kynna skriflega og geta um fyrverandi bústað
jafnframt.
Utanáskrift til afgreiðslustofu blaðsins er :
The LÖGBERG PRTG. & PUBL. Co.
Wlnnlpeg, Man.
P.O. Box I 36.
TELEPHONE 221.
Utanáskrift til ritstjórans er:
Edftor Lögberg,
P. O. Box 13«. WlNNIPCQ, Man.
Samkvæmt landslögum er uppsögn kaupanda
á blaði ógild nema hann sé skuldlaus þegar
hann segir upp. — Ef kaupandi, sem er í skuld
við blaðið, flytur vistferlum án þess að til-
kynna heimilisskiftin, þá er það fyrir dóm-
stólunum álitin sýnileg sönnun fvrir prettvís-
legum tilgangi.
Hudsonsflóa-brautin
og innsigling í flóann.
í síöasta blaöi hér á undan mint-
umst vér á Þá tiUögu Mr. Siftons
aö Dominionstjórnin geröi meiri
hlutann af Þeim Þrjátíu miljónum
ekra, aö heimilisréttarlöndum, er
hún í síöastliöin tuttugu ár hefir
haldiö eftir og áskilið sér vegna
járnbrautalagninga uni Canada.
En Það eru sectionirnar með ó-
jafnri tölu.
En auk Þessa hreyfði Mr. Sifton
öðru afarmikilvægu máli ,er sjálf-
sagt má telja eitt af allra helztu Þessar
beint úr landsjóði, en Mr. Sifton
hefir bent á aðra leið til að hafa
upp féð, og ef fylgt væri Þeirri
tillögu hans, Þá Þyrfti landssjóður
að líkindum engum beinum út-
gjöldum að mæta, Þó að samgöng-
unum væri komið á. Sifton ætlast
til að Þeim Þrem miljónum ekra af
móðir hans Því að ala að mestu
leyti önn fyrir börnunum. Hún
var mesta valinkvendi og frá henni
kvað Johnson hafa sína beztu
kosti. Hún vann baki brotnu fyr-
ir börnum sínum og lét Johnson
sinn ganga á alþýðuskóla Þar i
bænum. Þegar hann var þrettán
áður nefndum löndum, er stjórnin j ára gamall hætti Johnson af sjálfs-
gerði ekki að heimilisréttarlöndum, j dáðum að ganga á skóla. Hann
yrði varið til að greiða meö kostn- gat þá ekki lengur setið auðum
framtíðarmálum Canada, þvi sem
sé, að fullgera Hudsons flóa braut-
ina og koma á reglubundnum sigl-
ingum um flóann.
Þetta mál hefir legið á döf-
inni alt of lengi, vist nærri fjórð-
ung aldar, og á Mr. Sifton því
stórar þakkir skyldar fyrir að
hreyfa Því nú, sérstaklega vegna
þess, að hann benti á heppilega að-
ferð til að koma verkinu áleiðis,
án ]>ess að af Því leiddi bein út-
gjöld fyrir Canada, og þó hefir
landiö í heild sinni stórfeldan hag
af samgöngunum.
Mr. Sifton vill að Canadabúar,
Þjóðin sjálf, komi þessum sam-
göngubótum á. Hér verður því
ekki aö tala um hag neins sérstaks
fylkis eða nokkurra fylkja, eða
auðfélags eða auðfélaga er svæli
andir sig allan arðinn af samgöng-
unum. Það er þjóðin sjálf, sem
aöinn. Hann heldur því fram, að
hægt muni að fá fyrir þessar þrjár
miljónir ekra að minsta kosti þrjá-
tíu miljónir dollara, ef vel væri á
haldið, og það fé mundi fullkom-
lega hrökkva til að byggja járn-
brautina, gera við höfnina og
stækka hana, gera uppdrátt af
sundinu, setja upp vita og koma á
reglubundnum gufuskipaferðum
til flutninga' ef þörf gerðist.
Ein sog vér gátum um hér í blað
inu í fyrra, þá er það sérstaklega
tvent, sem mælir með samgöngum
þessum. Þeð er stytting land-
leiðarinnar með flutninga og feiki-
lega mikil lækkun á farmgjaldi.
Ef vér lítum á landabréfið sjá-
um vér að landleiðin milli vestur-
hluta Norðvesturlandsins og Fort
Chucrhill er nærri tvö Þúsund míl-
um styttri heldur eti ef farið væri
þaðan að vestan til Montreal.
Þessi stytting landleiðarinnar
hlyti að verða til þess, að farm-
gjaldiö lækkaði að miklum mun,
með því að miklu er ódýrara að
senda vörur með skipum heldur en
landveg eins og allir vita. Hingað
til hafa mestu örðugleikarnir á að
koma afurðum Canada, einkum
hveitinu, verið í því fólgnir, hve
flutningskostnaðurinn milli hafna
hefir verið geysimikill, en því
halda ýmsir fram, að hann muni
lækka nær þvi U91 helming, ef
fyrirhuguðu samgöngur
komist á. Yrði slíkt ekki neinni
smáræðis hagnaður fyrir Þá, sem
hveiti Iiafa að selja, og svo er að
sínu leyti um aðrar afurðir.
Þörfin á Því að fá ódýrar og
hagkvæmar samgöngur um flutn-
inga hér í Canada fer sivaxandi
eftir því sem landið byggist og
afurðirnar aukast. Fyrir því er
afar áríðandi að gerð sé gangskör
að því að umbætur á flutningum
komist á. Þessi samgönguleið
austur um Hudsonsflóa er álit-
legust þeirra sem nú er utn að
gera, og er vonandi að stjórnin
geri sitt til að greiða fyrir því, að
koma þessum samgöngum á.
John A. Johnson
Um þessar mundir er ekki uro
annað meira rætt hér i álfu en
hverjir muni verða útnefndir að
á að annast þær og líka að hafa . keppa um forsetakosningu i Banda
arðinn af þeim.
Fyrsta sporið i áttina til Þess
að koma þessum samgöngum á,
er að leggja brautina tii fló-
ans, en það er að eins nokkur hluti
ríkjunum á komandi hausti. Sam
veldismenn hafa mörgum á að
skipa eins og kunnugt er, en af
sérveldismönnum þykir ekki vera
nema um tvo að velja, W. J. Bryan
af öllu þvi, sem gera Þarf til að og John A. Johnson, ríkisstjóra í
nokkurt verulegt gagn verði að j Minnesota. Hann hefir nýlega
samgöngunum. Svo er til ætlast, j lýst yfir, að hann væri í kjöri.
að brautin verði lögð til Fort
Churchill. Þar kvað vera hentug-
asta skipalægi við flóann. En til
þess að koma á reglubundnum
samgöngum, þarf að stækka höfn-
ina þar svo að hún verði viðunandi
endastöð flutninganna þaðan og
Þangað. Þá verður og að mæ’.a
sundið nákvæmlega og búa til upp-
drátt af því, og setja vita þar er
þcrf gerist, svo að innsigling
þurfi eigi að verða hættuleg ne
ógreið.
Viunlega kostar þetta alt ærið
Johnson er sænskur að ætt og Því
skyldur oss íslendingum. Vér
flytjum þess vegna stutt æfiágrip
af honum fyrst. Hinna forseta-
efnanna skal getið síðar.
John Albert Johnson er fæddur
1861 nálægt St. Peter, Minnesota.
Foreldrar hans voru sænsk og
liöfðu fluzt vestur um haf með
fyrstu útflytjendum frá Svíþjóð til
Norðvesturríkjanna. Johnson ólst
upp með foreldrum sínum í St.Pet-
er og þar bjó hann alla tíð þangað
til hann var kosinn ríkisstjóri.
fé, jafnvel svo mörgum miljónum : Foreldrar hans áttu við þröngan
skiftir. Varla er ef til vill við þvi kost að búa. Faðir han>. var hneigð ir bænastaö vina sirtna og áeggjan
að búaet að fé yrði veitt til Þess ur til drykkjuskapar um of og varð ýmsra mikilsmegandi samveldis-
höndum og látið móður sina vinna
fyrir sér. Upp frá Þeim degi hef-
ir Johnson aldrei komið í skóla, en
mentað sig sjálfur. Fyrst fékk
liann sér vinnu i lyfjabúð og litlu
síðar varð hann afhendingamaður
í lyfjabúð.
Fimtán ára gamall vann Johnson
fyrir móður sinni og systkinum.
Móðir hans hætti að vinna hjá öðr-
um . Hann þurfti auðvitað að
leggja mikið á sig til þess, en það
lét liann ekki á sig fá. Hann tók
mikinn þátt í félagslífinu, var
kirkjusöngflokknum og allsstaðar
fyrir þegar skemtanir voru um
hönd hafðar.
í stjómmálum hallaðist hann
fyrst að stefnu samveldismanna,
en breytti brátt skoðun og gerðist
sérveldismaður. Það var einkum
endurskoðun tollmáianna sem var
þeirri breyting valdandi.
Arið 1886 vildi eigandi St.Peter
Herald fá ritstjóra, sem fylgdi
stefnu sérvtldismanna. Þeim kom
saman um að ráða Johnson til sín.
Hann var þá 25 ára. Hann hafði
ekkert fengist við ritstörf áður,
en menn vissu að hann var ódeigur
og fylginn sér og vel látinn af al
Þýðu manna. Það sást brátt, að
honum lét ritstjórn mæta vel.
Hann gerðist þegar forsprakki
öllum bæjarmálum, stóð fyrir hér-
aðssýningunni, gekk i þjóðliðið og
varö sveitarforingi. Hann tók líka
þátt i stjórnmálum og þótti þar
strax góður ræðumaður. I æsku
hafði liann æft sig í að tala svo
enginn vissi. Árið 1894 sótti hann
um kosningu til efri deildar í rík-
isþinginu. en þá vom samveldis
menn i svo miklum meiri hluta í
héraðinu, að Johnson féll við kosn-
ingarnar. Fjórum árum. síðar
reyndi hann i annað sinn og var
þá valinn.
Á þingi fylgdi Johnson sannfær-
ingu sinni óhikað hvort heldur þaö
var að skapi flokksins eða ekki.
Einginn bar honum það þó á brýn
að hann væri ekki góður sérveldis-
maður, enda var hann kjörinn tn
að halda útnefningarræðuna á
flokksfundi sérveldismanna, er
Lind ríkisstjóri var valinn til að
sækja um endurkosningu 1900.
Fyrir kosningamar 1902 höfðu
margir augastað á Johnson fyrir
ríkisstjóra, en hann aftók með ölht
að vera í kjöri. Hann bauð sig aft-
ur fram til þings en varö un^ir
við kosningarnar. Það mátti heita
happ mikið fyrir hann, þvi ella
hefði hann ekki getað orðið í kjöri
við ríkisstjórakosningarnar 1904.
Það ár var ósamlyndi í herbúðum
samveldismanna, og lögðu margir
þeirra að Johnson að gefa kost á
sér. Sérveldismenn vom um það
leyti í miklum minni hluta í ríkinu
og örvæntu sigurs. Þeim þótti þó
helzt von góðra úrslita með John-
son í bioddi fylkingar og var hann
útnefndur á flokksþingi að honum
fornspurðum.
Þegar Johnson fékk það að vita,
fanst honum hann varla geta tekið
þvi boði. Hann hafði ekki fé til
að leggja út í kosningarbaárttuna
og þótti þar að auki lítil von um
sigur. Samt lét hann tilleiðast fyr-
manna. Það ár voru forsetakosn-
ingar og í þeim fékk Roosevelt
fjórfalt fleiri atkvæði en Parker
gagnsækjandi hans. Þó lauk rík-
iskosnineunum svo, að Johnson
var kcann með 7,000 atkv. meiri-
hluta, tn allir aðrir embættismenii
: íkisins ■> oru samveldismenn.
Þegar Johnson var orðinn ríkis-
stjóri þótti strax skifta i tvö horn
um embættaveitingar og nefnda-
skipanir, sem hann hefir á hendi.
Hann fór alls ekki að þvi hverrar
skoðunar menn voru i stjórnmál-
um ,heldur hvort þeir væru færir
I
t'l verksins. Það gat ekki hjá því
iarið, að slíkt bæri árangur, enda
uiðu líka skjótt breytingar til hins
betra um mörg helztu mál ríkisins.
Svo var um háskólamálið og lífsá-
byrgðarlögin. Johnson er höfund-
ur þeirrar hreyfingar að koma á
sömu lífsábyrgðarlöggjöf i öllum
ríkjunum.
Við næstu ríkisstjóra kosningu
haustið 1906 var Johnson aftur í
kjöri og hlaut þá 72 þús. atkvæði
umfram gagnsækjanda sinn. Það
er meira en nokkur ríkisstjóri hef-
ir fengið þar áður. Allir aðrir em-
bætismenn ríkisins voru samveldis-
menn. Þeir voru lika í meiri bluta
í þingi, en samt höfðust fram mikl-
ar og gagngerðar breytingar á
járnbrautalöggjöfirmi. Og margt
fleira hefir hann gert, síðan hann
varð ríkisstjóri, sem hefir aflað
honum vinsælda.
í fyrra sumar gerðu sextán
þúsundir námamanna í Minnesota
verkfall svo að til vandræða horfði
þar. Johnson fór þangað og með
lipurö og viturlegum orðum fékk
hann komið á sættum með þeim og
vinnuveitendum. .Þótti hann vaxa
mjög af þvi máli .
öll mál, sem til hans kasta hafa
komið síðan hann varð ríkisstjóri,
hefir hann leitt til farsællegra
lykta og aldrei orðið ráðafátt eða
gert nokkuð, sem menn eftir á geti
sagt um að hafi verið misráðið.
Johnson er alþýðlegur mjög og
verður vel til vina. Hann hefir
vakandi auga á öllu, sem fram fer
í rikinu, og lætur sig alt skifta.
Johnson er vel máli farinn og tal
ar ljóst og skipulega. og sannfær
andi.
Enn um bóksöluna.
í grein minni um sölu íslenzkra
bóka, sem birtist i næst síðasta
Lögbergi, til varnar mér og bók-
salafélaginu íslenzka fyrir ákærum
gegn því og mér í þá nýútkominni
Heimskringlu-grein, lagði eg aðal-
áherzluna á það, að sýna og sanna,
aö bækur félagsins, sem eg ræð
söluverðinu á í þessu landi, væru
ekki dýrari en aðrar íslenzkar bæk-
ur, seldar hér vestra, sem hvorki
eg né félagið ræður veröinu á. Eg
færði fyrir þvi nokkumveginn ljós
rök, að hvorki eru þessar félags-
bækur seldar hærra verði hér í
landi en aörar íslenzkar bækur, né
heldur er verð á þeim fært meira
fram frá íslenzku söluverði.
En það var nú einmitt á þessari
uppfærslu á verðinu, sem einokun-
ar-ákæran var bygð. Og þegar
Það var sannað, eins og eg gerði,
að allir útgefendur íslenzkra bóka,
og sem sjálfir ráða söluverðinu á
þeim hér vestra, seldu sínar bækur
fult eins dýrt, og færðu Þær upp
úr íslenzku söluverði að minsta
kosti fult eins mikið.þá get eg ekki
betur séð, en að einokunar-ákæran
falli um koll og verði að engu.
Þetta hefir líka ritstjóri Heims-
kringlu vafalaust séð, og þá lik-
lega fundið til Þess, að hann hafði
lítið unnið fyrir lofinu og þakkar-
gerðinni, sem hann segir að sér
drífi frá íslendingum hér í landi
fyrir frammistöðu hans í þessu
máli. Og því finst honum sér nú
nauðugur einn kostur, að reyna til
að klóra eitthvað í bakkann, eftir
að hafa þegið alt þetta lof, og fer
því í síðasta blaði sinu að hræra
upp í málinu að nýju . Hann fer,
sem sagt, að fást við samanburð á
verði og uppfærslu á verði bóksala
félagsbókanna frá íslenzku sölu-
verði og verði og uppfærslu á öðr-
um íslenzkum bókum.
Með Þeirri aðferð sinni gengur
hann inn á það, sem eg hefi haldið
fram, n.l. að undir því hvernig sá
samanburður reynist, sé það alger-
lega komið, hvort ákæran gegn
mér og félaginu sé á rökum bygð
eða ekki. Reynist það svo, að
bóksaliafélagsbækumar séu meii
settar upp frá íslenzka verðinu, en
aðrar íslenzkar bækur, þá er mig
um það að saka. En reynist hið
gagnstæða, þá er kæran gegn mér
,og bóksalafélaginu út í hött, og
málið um leið útkljáð.
Það liggur þá næst fyrir að at-
huga samanburðinn, sem ritstjóri
Heimskringlu gerði, hvernig hann
er gerður og svo hver niðurstaðar,
sem hann kemst að eftir þann sam-
anburð, verður.
Eg hafði í grein minni síðast tal-
ið upp nokkrar bækur gcfnar út
af öðrum en bóksalafélaginu ot,
sýnt þar söluverð á Þeim bepði á
íslandi og hér.
Þessar sömu bækur telur nú rit-
síiori Heimskringlu upp, og kcmst
að þeirri niðurstöðu ,að til jafnað-
ar, eða að meðaltali, verði gróðinn
á Þessum bókum 116 prócent.
Þá sýnir hann líka annan lista,
yfir bóksalafélagsbækur, sem hann
segist grípa af handahófi. Með
honum ætlar liann sér ú að reka
smiðshöggið á, og sanna hve mikið
meira þær séu færðar upp heldur
en hinar. En niðurstaðan verður
sú, að gróðinn á þeim sé 115 pró-
cent-^.^^ |||m|| |t|| ^ ^___
Svo að eftir alla fyrirhöfnina
getur hann ekki annað en viður-
kent, að niðurstaðan sem hann
kemst að ,verður á móti honum
sjálfum ,en með mér og bóksala-
laginu, að svo miklu leyti, sem upp
færslan á félagsbókunum verður
1 prócent minni en á bókum þeim,
sem aðrir ráða verðinu á.
En svo lítill er þessi munur, að
hann er varla til að minnast á, ef
ekki kæmi annað til greina; sem sé
ráðið, sem ritstj. hefir gripið til,
svo að niðurstaðan yrði ekki tölu-
vert meira á móti hans málstað en
hún varð, og skal eg nú benda á
hvert.það ráð var.
Úr fyrri bókalistanum, þeim yf-
ir bækur annara en bóksalafélags-
ins, hefir hann dregið undan söng-
bók Jónasar Pálssonar, sem gífur-
legast allra bóka er sett upp frá ís-
lenzka verðinu og seld hér með
400 prócent gróða yfir umboðs-
manna verð heima. Hefði hún
fylgt með, þá hefði meðal gróðinn
á þemi bókum ekki orðið 116 prct,
heldur 164 prócent.
Svona fór hann nú að draga úr
uppfærslunni ábókunum, sem eg
ræð ekki verði á. Nú er eftir að
sjá hvernig hann beitir sér, þegar
sem mest skal gera úr uppfærsl-
unni, nefnilega á félagsbókunum,
sem eg rœð verði á.
Hann setur þár lista af bókum,
tólf talsins, og þykist þar sýna
söluverð á íslandi og söluverð hér.
Við þann lista er nú fyrst það
að athuga, að í hann er sett Flat-
eyjarbók, sem ekki er eign bók-
salafélagsins, og snertir því ekki
málið í því sambandi, sem hér ræð
ir um. Bók þá hefir mér heldur
aldrei hepnast að ná í fyrir það
verð, sem hann nefnir. Fyrir
nokkrum árum var hún hér ekki
fáanleg fyrir minna en $60.00. Eg
sel hana þó nú fyrir $7.50 fyrir ut-
an burðargjald.
í annan stað er þess að geta. að
hann segir ósatt frá um íslenzka
innkaupsverðið. Hann segir það í
ýmsum tilfellum mildð lægra en
það er, til Þess auðvitað að geta
sýnt því meiri uppfærsluna þegar
The DOMINION BANK
SELKIRK CTIBUIÐ.
AUs konar bankastörf af hendi leyst.
Sparisjóðsdeildin.
TekiO viO innlðgum, frá $1.00 aO upphaeflf
og þar yfir. . Haestu vextir borgaflir fjórum
sinnum á ári. Viöskiftnm baenda og ann-
arra sveitamanna sárstakur gaumur’gefinn.
Bréfleg innleggog úttektir afgreiddar. Ósk-
aö eftir bréfavíöskiftum.
Nótur innkallaöar fyrir basndur fyrir
sanngjörn umboöslaun.
^ ' ' liijr •!) sveitalélög
1 ' •’ J • hagfdum
kjorum.
J GRISDALE,
bankastjórl.
hann ber þetta innkaupsverð sam-
an við söluverð hér. Hann tneyst-
ir Þvi auðsjaanlega að lesendur
Heimskringlu, sem hann er að
vinna fyrir lofinu frá, séu ókunn-
ir bókaverðinu á íslandi. Enda
segir hann í byrjun greinar sinnar,
að þetta sé aðferðin, sem hann
beiti, “til Þess að hrinda í rétt horf
Því sem aflaga hefir farið.”
í þessum bókalista sínum télur
hann “Gullöld íslendinga”. Sú bók
segir hann að kosti kn. 3.50 á ís-
landi. En verð hennar þar er kr.
4.00 og það í kápu ,en kr. 5.00 í
bandi, og er það verð hið eina
rétta í þessu sambandi, því eg
hefi aldrei haft Þá bók nema í
bandi. Þannig hefir hann rang-
hermt verðið á þeirri bók um eina
og hálfa krónu.
Viðlíka bragði beitir hann með
ís. þjoðerni.” Hann segir þá
bók vera kr. 2 heima, en þaö er
verð hennar í kápu. 1 bandi kost-
ar hún kr. 3.00, og þannig hefi eg
ætið haft hana, en aldrei í kápu.
Venðið því ranghermt um þriðj-
ung þar.
Þó nóg sé nú komið til að sýna
hvernig mál þetta er flutt, þá skal
eg bæta við að eins einu dæmi enn.
Það er Nítjanda öldin”, ein bókin
á Þessum lista. Sú bók segir hann
að kosti kr. 2.00 á íslandi, og dreg
ur hann þar undan eina krónu, því
verö hennar þar er kr. 3.00.
Þessar missagnir vaxa nú lík-
lega ekki Heimskringlu ritstjóran-
um í augum, enda voru þær hon-
um nauðsynlegar til þess að geta
fundið nokkrun stað sleggjudóm-
um sínum. Þetta eru fleygar, sem
hann rekur undir .málstað sinn til
að lyfta honum upp, og sjálfum
sér um leið, svo hann hækki í áliti
hjá almenningnum, - sem hann er
að vinna fyrir lofinu og þakklæt-
inu hjá.
Eg Þykist nú hafa sýnt og sann-
að þetta tvent: Fyrst það, að sá,
sem hefir tekið að sér það sæmd-
arstarf, að búa út sök á hendur
mér, beitir til þess ósannindum.
Líka þykist eg hafa sannað, að
bækur bóksalafélagsins, sem eg set
prísinn á, eru ekki seldar hér með
ósanngjömu verði.
Þetta hefir líka ritstjóri Heims-
kringlu hjálpað mér til að sanna,
með því að þrátt fyrir hans ítrustu
tilraun og hjálparráðin, sem hann
hefir ætið við hendina og grípur
svo oft til, gat mðurstaðan, sem
hann komst að samt ekki orðiö önn
ur en su, að verð félagsbókanna
væri i)6 það sem munaði, minna
fært .ipp frá íslands prísnum, e^
verð annara íslenzkra bóka.
Mér hafði nærri gleymst að taka
til greina eitt atriði, sem þó er ekki
alveg þýðingarlaust. Ritstjórinn
reynir að smeygja inn þeim skiln-
ingi, að eg borgi ekki fyrir flutn-
ing á bókunum nema frá Englandi.
Þetta er auðvitað smávægilegt inn
an um svo margt annaö ,en samt
skal eg taka það fram.að eg borga.
alt flutningsgjald á bókum félags-
ins alla leið frá íslandi, eins og
eg tók fram í fyrri grein minni .
Að endingu skal eg nú leyfa mér
að fara fram á það við ritstjóra
Heimskr., að hann leiðrétti í blaði
sínu missagnir sínar um bókaverð-
ið, sem eg hefi bent á. Eg hefi
bókaskrárnar íslenzku prentaðar
heima hjá mér, og er honum, og
annarsi hverjum sem er, velkomið
að sjá Þær með eigin augum og
sannfærast um verðið.
Fáist hann ekki til að gera það,
er mér varla láandi þó eg hlífi mér
við að eiga mikið lengur oröastað
við hann um þetta mál.
H. S. Bardal.