Lögberg - 07.05.1908, Qupperneq 1
'ÉR viljum koma oss í kynni viö lesendur
þessa biaös. Vel má vera, aB þetta sé i
fyrsta sinn, sem þér heyrið oss nefnda, en
oss langar að kynnast yður nánar. Vér höfum
þenna stað næsta ár, lesið hann. Þetta er bænda-
félag. Sendið oss eina vagnhleðslu korns og vér
munum útvega yBur hæsta verð, og taka að eins i
cent á bush. í ómakslaun. Sendið körn yðar til
The (irain (irowers (iniin ('oinpany, Ltd.
WINNIPEQ, MAN.
D. E. Adams Coal Co.
KOL og VIÐUR
Vér seljum kol og við í smákaupum frá
5 kolabyrgjum í bænum.
Skrifstofa: \22A BANNATYNE AVE.
WINNIPEG.
8«t€tCCCCCCCttCtCCCCCCCCC<CCCC«
21. AR.
Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 7. Maí 1908.
NR. 19
Fréttir.
Þau tíöindi berast austan frá
Ottawa Þessa dagana, aíS sambands
stjórnin ætli aö leggja fyrir þingiö
mjög bráölega frumvarp um að
byggja járnbrautina til Ft. Church-
ill viö Hudsonsflóa, og greiða á
þann hátt fyrir hveitiflutningi
bændanna í Norövesturlandinu. Þó
að enn sé eigi að fullu kunnugt um
einstök atriöi í frumvarpinu, er tal-
itS víst aö þaö muni bygt á tillögum
þeim er Sir Wilfrid Laurier bar
fram á siöasta þingi og Ciifford
Sifton tók enn skýrar fram í Marz-
mánuöi í vetur,
i ----------
ÁkvæÖi um þriggja centa far-
gjald með sporvögnum í Cleveland
i Ohio gekk í gildi 29. f. m. En
fyrir því hefir manna mest barist
Tom.Johnson, bæjarstjórinn þar al-
kunni. Launahækkun fengu um
leið eitthvaö þrjú Þúsund vagn-
þjónar. Eins cents hækkun á
klukkustund.
Stjómarformennirnir í vestur-
fylkjunum þremur, Manitoba, Sas-
katchewan og Alberta, hafa nýlega
haldið fund meö sér i Regina til aö
ræöa um fylkjaeign á kornhlööum
o. fl. Annars hefir eigi neitt veriö
gert uppskátt um hvaða ráðstafan-
ir þar væru gerðar.
Frumvarp Mr. Aaylesworth um
breytingar þær á kosningalögunum
sem minst hefir verið á áöur hér í
blaðinu, var nú um miöja vikuna
tekið til annarar umræöu í Ottawa
þinginu. Taliö er Þvi nær fullvist
að þaö veröi samþykt af þinginu
aö mestu leyti óbreytt.
Af fréttum frá Montreal 4. þ.
m. og viðar að viröist lítið lifna yf-
ir járnbrautaflutningum hér í landi
enn sem komiö er. Þeir virðast
sjaldan hafa verið minni en einmitt
nú. Fyrst í Marz voru eitthvað
sex þúsund flutningsvagnar hjá
hinum ýmsu járnbrautafélögum
landsins, er stóðu brúkunarlausir,
en 1. þ. m. voru þeir níu þúsund.
Can. Pac. járnbrautarfélagiö hefir
nú um sex þúsund flutningsvagna
brúkunarlausa, um þrjú þúsund
fyrir austan Fort William og önn-
ur þrjú þúsund þar fyrir vestan.
Byggingavinna i Vancouver hef-
ir aldrei blórrjlegri verið en nú. 1
næstliðnum mánuöi hefir verið beð-
ið um byggingaleyfi þar, sem nema
meir en hálfri annari miljón doll.
W. D. Haywood sá, er ákæröur
var tim vitorð i Steunenbergsmál-
inu og sýknaður af því, hefir fyrir
skemstu mist ritara og gjaldkera-
embættið er hann hafði i félaginu
“Western Federation of Miners.”
Bindindismálinu miðar vel áfram
í Bandaríkjunum um þessar mund-
ir. Veitingakrám lokað á stórum
svæðuni. Einna mest kveður þó að
því í Massachusetts. Fyrsta Maí
komst áfengisbann þar á í rúmum
fjörutíu bæjum, og þar á meðal í
verksmiðjubænum Worcester. Þ.ar
eru um 130 Þús. íbúar. í>að er
stærsti bær i öllum Bandaríkjum
og ef til vill í öllum heimi, þar sem
áfengissala er bönnuð fyrir fult og
alt. í þeim bæ vaT lokaö alls
eitt hundrað tuttugu og átta vin-
söluhúsum.
Fylkiskosningar i Ontario eru nú
ákveðnar 8 n. m.
Fylkiskosningar í Quebec-fylki
eiga að fara fram 8. n. m.
Vinsöluleyfi mistu hundrað og
tuttugu vínsölumenn í Ontariofylki
30. f. m. Flestir vínsalarnir mistu
leyfið vegna atkvæöagreiðslu um
vínsölubann, en nokkrir af öðrum
orsökum. Engin nþessara vínsala
má eftirleiöis flytja að sér neitt á-
fengi, en þriggja mánaöa frest
fengu þeir flestir til að selja birgð-
ir þær, er þeir höfðu fyrir.
Það er sagt, að Rússakeisari
hafi gefiö út skipun um þaö að um
tuttugu þúsund fangar i ríki hans
skyldu iátnir lausir á páskahátíð-
inni síöustu.
Stjórnirnar í Victoria og Spður-
Wales í-Ástralíu kváðu ætla að
'verja fimm hundruð þúsund doll-
umum til aö taka á móti Bandar.-
flotanum þegar hann ber þar að
landi. , i, | . ■ i ; 1 ri '
Collingæood Schreiber verkfræð-
ingur við G. T. P. brautina, lýsti
yfir því í Ottawa 30. f. m. að verk-
stjórar heföu nú tekið að sér alla
brautarlagninguna frá Winnipeg til
Prince Rupert, að undanteknum
fimm hundruð mílum af þeim hlut-
anum, er um fjöllin liggur. Hann
taldi það víst aö öll brautin frá
Winnipeg vestur undir fjöllin yröi
fullger á komandi hausti.
Allmikið kveöur aö óeirðum á
Indlandi nú um þessar mundir.
Herflokkar frá Afganistan hafa
ráðist inn yfir landamærin og gert
þar mikinn usla. Sagt er að um
tíu þúsund Afganistamanna hafi
safnast saman milli Swat og Kaful
fljótanna. Sir Jams Willcocks er
fyrir skömmu bældi niður uppreist
nokkra á Indlandi, var sendur móti
Afganistam. meö her Breta. í her
hans voru bæði brezkir menn og
innfæddir. Hann hefir átt við Afg-
anistabúa nokkrar orustur, og hrak
ið þá út yfir landamærin, en þeir
koma jafnharðan aftur. Innanlands
óeirðirnar á Indlandi fara líka alt
af vaxandi, og samsæri nýlega kom
ist upp um að drepa Kitchener lá-
varð og ýmsa fleiri helstu valdhaf-
ana þar eystra.
Rússneska dúman hefir samið
lög um að byggja Amur járnbraut-
ina til þess aö Rússar hafi óslitna
járnbraut er þeir eigi sjálfir alt til
Kyrrahafs.
Um miðja fyrri viku sendi
RooseveH forseti þinginu enn einn
boöskap, þar sem hann lagði þaö
til, aö vald milliríkj ane fndarinnar
sé aukiö eigi all-lítið.
Japanskt herskip sprakk í loft
upp við Jescadores eyjar á fimtu-
daginn var. Þar er sagt að farist
hafi um tvö hundruð manns, en
nokkrum skipshafnarmönnum Þó
bjargað af öðru herskipi.
Hinn 3. þ. m. brann gigtihús eitt
í Fort Wayne í Indíanaríkinu, eitt
hiö stærsta í þeim bæ. Inni brunnu
þar tuttugu manns, en margir lim-
lestust af að kasta sér út um glugg-
ana því aö eldurinn hefti margt af
fólkinu í að komast brott annan
veg.
Bell-félagið kvað vera til með aö
selja fylkisstjórninni i Saskatche-
wan talþræði sína þar, en eigi er
enn þá neitt afráðið um hvort af
þeim kaupum verði eða elfki.
Á fimtudaginn var kom þjóð-
þingið í Portúgal saman í Lissa-
bon. Manuel konungur lýsti yfir
því, að ýms mikilvæg frumvörp
yrðu logð fyrir þingið og sömuleið-
is að hann vildi láta greiða alt það
fé er runnið hefði inm til föður síns
ólöglega úr ríkissjóði.
Einskonar blossavitar hafa verið
notaðir á ströndum Svíþjóðar und-
anfariö; ætla Bandaríkjamenn nú
aö fara aö reyna þá. Thomas W.
Cridler, fyrrum í ríkisstjórnardeild
inni í Washington, hefir veriö að
semja viö félag þaö, er fyrir vitum
Þessum ræður í Berlin. Er búist
við aö hann komi vestur í þessum
mánuöi að flytja máliö við átjórn-
ina hér. Við þessa nýju Vita er
notað “acetyline” í sambandi við
verkfæri, er sendir frá sér blossana,
I nær sem vill. Svo haganlega kváöu
vitar þessir útbúnir, aö ljós kviknar
[á þeim af sjálfsdáðum þegar fer áð
skyggja og sloknar aftur þegar
birtir af degi, svo aö reyndar þarf
[eigi vitavörður aö vera við þá
bundinn.
Svo reiöir eru Kínverjar nú orön-
ir Japönum, að um tvö hundruð
kinversk verzlunarfélög í Hong
Kong, Canton, Shanghai, Ameríku
og Ástralíu hafa bundið það fast-
mælum, aö kaupa engar japanskar
vörur af neinu tagi, senda ekki pen
inga er ganga gegn um japanska
banka og ferma engin japönsk skip.
Fréttabréf,
Sleipnir, Sask., 28. Apr. ’o8.
Herra ritstj. Lögbergs.
Af því mér hefir virst aö Lög-
berg fái sjaldan fréttir úr þessum
hluta Quill Valley bygðar, þá er
ekki úr vegi að setja ofurlítinn
fréttapistil i blaðið, því að margir
hafa augun á þessari bygö, og eiga
[hér vini og vandamenn.
j Tíðararið síðastliðinn vetur mátti
heita fremur gott, jörð var oröin
lauð snemma í Apríl; en nú þann
25. geröi um sex þuml. snjó og
j helzt sá snjór enn, og fara menn nú
fullum fetum á sleðum sem um há-
vetur væri.
Allmargir voru búnir aö sá
jhveiti sínu að mestu leyti. Þann 20.
jgeysaði sléttueldur um bygðina í
suðaustan stormi, mest í Tsp. 32,
R. 16, 17 og 18, og gerði mikinn
skaða á skepnum og byggingum.
Mistu margir þar aleigu sína, eða
nálægt því. Steingrímur Jónsson
misti stórt hesthús og alt hey, um
25 tonn, J. Stefánsson 3 hesta,
Ingvar Olson 700 bush. af hveiti
og hlöðu, og fjöldi annara sem eg
kann ekki að nafngreina urðu fyrir
|skaða; alls hefi eg sannfrétt um 12
hross, sem fórust; þau brunnu víst
aðallega í fjósunum, því enginn gat
við neitt ráðið sökum vindhæðar-
innar, sem hefir verið nálægt 60
mílur á kl.stund. Eldvarnir, eða al-
geng ‘firebreaks’ 30 feta breið voru
sama sem ekkert, og sumstaðar
hljóp eldurinn hundrað feta spild-
ur, t. d. plægingar eða gil, og
kveikti í hinu megin. Járnbrautar-
hryggur C.P.R. og skurðir beggja
megin, eins og lög gera ráð fyrir,
stöövuðu eldinn ekki það minsta.
Eg hefi ekki frétt um nema einn
mann, sem skaöaðist af eldi, Sig-
urð Bjarnason, sem skemdist mik-
iö á andliti og höföi við að bjarga
hrossi út úr fjósi.
Ilt er fyrir nýbyggja, að verða
fyrir svona stórsköðum,—að missa
öll vinnudýr sin, rétt þegar vor-
vinna er að byrja, og það af völd-
um einhverra hugsunarlausra
manna, sem hafa kveikt eldinn eða
mist hann svo hann yrði óvið-
ráðanlegur.
Heilsufar hefir ekkert verið betra
en í meöallagi; kvefveiki hefir gert
vart við sig víða hér um slóðir í
vetur.
Eitthvað verður að minníst á
Wynyard „division point” á C. P.
R. brautinni, sem verður að líkind-
um aðal verzlunarstöð manna hér í
nágrenninu. Bæjarstæðið er þar
sem hæðirnar byrja suöur af lág-
1 lendinu sem er milli vatnanna, og
austur af Big Quill Lake, og er
Þaðan sérlega fallegt útsýni að sjá
morðvestur til vatnsins og norður
um sléttuna og til skóganna. Nú
þegar er búiö aö kaupa margar lóð-
jir þar. Hótel var þar reist strax í
haust, en er ek kitekiö til aö starfa.
j Eigendur eru tveir enskir menn.
j H. J. Halldórsson póstmeistari
flutti búö sína þangað í vetur, og
Ijohnson & Sigfússon eru búnir að
1 eisa stóra og vandaða búð og eru
jað setja sig þar niður nú og birgja
j sig meö vörur. Simon Sveinsson
hefir járnsmiöju og trésmiða ,shop’
1 og í orði er líka aö annar landi
setji upp ‘livery stable’; svo er þ^ir
timubursala meö nægum byrgðum
og apótek og harðvörubúö er vænt-
j anleg nú þegar.
Þetta þrent síöastnefnda er i
höndum enskra manna, en landinn
hefir ekki alveg oröiö út undan,
eins og sjá má; líka eru öll heimil-
isréttarlönd í grend við bæinn
bygð af íslendingum.
“Contractors” C. P. R. félagsins
voru í þann veginn að taka til
starfa við brautarbygginguna, þeg-
ar þessi snjór kom, en að likindum
tefur það fyrir um tíma.
Félagskapur manna á meðal held
eg sé i býsna góöu lagi.
Eitt af því, sem mörgum gerir
talsvert óhagræði er erviðleikinn
aö ná góðu vatni úr jörðinni.
Sumstaðar er grunt á vatni, ein 12
til 18 fet, en aftur annarstaðar
fFramh. á 5. bls.J
Ur bænum.
íslenzkir Goodtemplarar fara
ihina árlegu skemtiferö sína til
Gimli mánudaginn 6. Júlí næstk.
Nákvæmar auglýst síðar.
Til íslands fóru á miövikudags-
morguninn alfarin: Maria John-
son frá Winnipeg. HaUur Ólafs-
son, Narrows P. O., með konu, son
og fósturbarn. Þórður Halldórs-
son, Wild Oak. Helgi Þórðarson
með dóttur sína, frá Winnipeg, og
Þorsteinn Jóhannesson frá Gimli.
Þau tóku sér far með Allanlínunni.
í dag ffimtudagj eiga gjaldend-
ur bæjarins að greiða atkvæði um
aukalög bæjarstjórnarinnar því við
víkjandi, að henni skuli heimilt að
verja $90,000 til að byggja að nýju
Louisebrúna. Sú brú er nú nærri
því 30 ára gömul og er orðin ger-
samlega ónóg sakir hinnar miklu
samgönguþarfar milli Elmwood og
Winnipeg. Það er alt sem mælir
með að brúin sé endurreist og von-
andi að gjaldendur bæjarins greiöi
atkvæöi meö fjárveitingunni.
Mr. Bole, sambandsþingmaður
fyrir Winnipeg kjördæmi, hefir
lýst yfir því í bréfi til Mr. T. H.
Johnson, M. P. P., er lesið var ný-
lega upp á fundi í Young Men’s
Liberal Club, að hann (’BoleJ gefi
eigi kost á ser til þlngmensku hér
um næstu kosningar, með Því aö
hann sé fluttur austur til Montreal.
Þjóðverjar hér í Winnipeg, er
frjálslynda flokkinum fylgja að
málum, mynduðu félag með sér á
fundi, sem þeir héldú á Dufferin
Hall á föstudagskveldið var. Þar
voru kosnir embættismenn fyrir
klúbbinn og traustsyfirlýsing gerð
á Laurier-stjórninni.
Þ'. 25. f. m. voru þau Þorsteinn
íílíasson og Jóhanna Jóhannsson,
bæði frá Gimli, gefin saman í
hjónaband af séra Eriðrik J. Berg-
mann að heimili hans á Spence St.
Dagana 26., 27. og 28. þ.m. fer
skrásetning fram í Winnipeg-kjör-
dæmunum öllum og Brandon. Vert
er að minna menn á þaö, að tíminn
sem kjörskrárnar hér giltu er nú út
runninn, og verða því allir atkvæö-
isbærir menn í þessum kjördæmum
er nota vilja kosningarrétt sinn, aö
láta skrásetja sig áðurnefnda daga.
Þ'að er mjög áriðandi að allir, sem
kosningarrétt hafa hér, láti nú skrá
setjast, því aö á kjörskránum, sem
nú veröa samdar, verður endurskoð
un undir Dominionkosningarnar
bygð. Skrásetningarstaðir verða
birtir bráðlega.
Grein um Vilhjálm Stefánsson
varð að bíða næsta blaðs.
Málfríður Sigríöur Pétursson,
nærri 15 ára,elzta barn þeirra Þor-
jsteins Péturssonar og konu hans
að 253 Nena St., andaðist 29. Apr.
á heimili foreldranna. Dauöamein-
i ið heilahimnubólga. Jarðarförin
1. Maí. Sömn hjón mistu einkar
, efnilegan son um þetta leyti árs
1 fyrra.
Sjónleikurinn “East Lynne” var
leikinn i Goodtemplarahúsinu 4. og
j 5. þ. m. Kvenfélagið Harpa stóö
! fyrir leiknum. Óþarfi er hér aö
skýra frá efni hans. Bæði var það
[gert þegar leikurinn var auglýstur
jhér í blöðunum og einnig mörgum
íslendingum kunnugt áður. Þau
[frú Isabel ("Mrs. BúasonJ og Fran-
jcis Levison ('Fr. Sveinsson) voru
laglega leikin. Þau skildu bæði
jhlutverk sin mjög vel. Miss Car-
lyle fMiss J. Sigurðson) var sömu-
leiöis nógu vel leikin á köflum.
Hinir leikendurnir léku allir frem-
ur illa. Aðsókn var töluverð á
mánudagskveldið.
i Næsta mánud. kvöld fn. MaíJ
.veröur haldin samkoma, er djákna-
nefnd Fyrsta lúterska safnaðar
hefir stofnað til, i kirkju safnaðar-
ins, til auglýsingar og stuðnings
líknarstarfseminni kristilegu vor á
meðal. Þar verða stuttar ræður,
upplestur, músík og söngur ýmis-
konar. Þessir koma þar meöal
annars fram væntanlega: W. H.
Paulson, Lárus Sigurjónsson, Jó-
hann Bjamason, Runólfur Fjeld-
sted, söngflokkur kirkjunnar o. s.
frv. Aðgangur ókeypis, en frjáls
samskot.
• Nú er inndælasta veður á degí
hverjum, og er þa'ð mikil breyting
frá þvi sem var síðastliðna viku,
þegar bæði var hér töluvert frost
og nokkur snjókoma öðm hvoru.
Föstudaginn 1. Maí 1908 voru
þessir embættismenn settir í em-
bætti sín i stúkunni Heklu af um-
boðsmanni S. Björnson:
F.Æ.T.: Bjöm E. Björnson.
Æ. T.: Nanna Benson.
V. T.: Guöbjörg Sigurðsson .
Ritari: Ólafúr Björnsson.
F. R.: Bergsveinn Long.
Gjaldk.: Bjarni Magnússon.
Kap.: Agn. Jónsdóttir.
V.: Björn Lindal.
D.: Aðalbjörg E. Björnsson.
A. D.: Rósa Nordal.
A.R.: Sveinbjörn Gíslason.
Ú. V.: Lorens Thomson.
Meðlimatala 30. Apríl 378.
Fréttirfrá íslandi.
Gísli Ámason, Jósef Helgason,
Alec Friðriksson og maöur úr Mikl
ey komu hingað til bæjar úr Ianda-
leit vestan úr Saskatchewan. Þeir
námu lönd i Twsh. 51, R. 20 milli
þrjátíu og fjörutiu mílur vestan við
Painton, eða um sjötíu mílur vest-
an við Battleford. Þeir láta mjög
vel af landkostum þarna. Akur-
yrkjuland sögðu þeir þar gott og
skógur nokkur og rennandi vatn,
en fiskur í vötnum eigi allfjarri.
Gísli Ámason tók heila section fyr-
ir sig, sonu sína tvo og tengdason,
en hinir sex lönd fyrir sig og ætt-
ingja sína. Þrír íslendingar frá
N. D. höfðu tekið sér land á sömu
slóöum og Þeir í vor. Þeir félagar
ráöa þeim, sem hafa í hyggju að ná
í góð lönd þarna í grendinni —
norðan viö lönd þeirra segja þeir
beztu lönd ótekin — aö lita eftir
[þeim sem fyrst, því að eftirspurnin
jsé mikil. Um þrjátíu mílur eru
þarna til járnbrautar nú sem stend-
ur.
Reykjavik, 4. April 1908.
Druknað hafa þrír menn í fyrra
dag á Loftsstöðum eystra í fiski-
róðri, í brimlendingu, en öðrum á
skipinu bjargað, ógetið hvað mörg
um.
Þeir sem druknuðu vom Sig-
urður Þorgeirsson frá Háfi, Frið-
finnur Þorláksson frá Galtastöð-
um hjá Gaulverjabæ, og mágur
hans Stefán Jóhannesson frá
Skóganesi í sama hreppi, bróðir
Kristjáns kaupmanns á Eyrar-
bakka. Veður hvesti snögglega
þann dag og gerði stórbrim.
Sést hafði af Eyrarbakka sama
dag til níu skipa, er hleyptu á leið
til Þorlákshafnar, með þvi að orð-
iö var ólendandi austan ár, og
segja menn mjög hætt við, að þar
hafi orðið einhver skipskaði.
Síöari frétt segir skipin hafa
komist öll af heilu og höldnu.
Raflýsing er í ráöi aö komist á
bráðlega bæði í ísafjaröarkaupstað
og á Patreksfirðj. Hr. Jóhannes
Reykdal rafurmagnsfræðingur frá
Hafnarfirði var pantaður nýlega
vestur þangað, og kvað honum
hafa litist vel á báða staðina til
þeirra hluta. Vatnsafl nóg og all-
skamt frá.
Patreksfirðingar eru einnig að
hugsa um að koma sér upp vatns-
veitu samtímis.
Kauptún þessi verða líklega bæði
á undan Reykjavík með þessar
mikilsverðu framfarir. — Isafold.
L.
Fyrir tuttugu árum.
LÖGBERG 2. Maf. 1888.
~1
Fyrirmyndarbú fyrir Manitoba-
dki á að stofnsetja á section 27,
iwnship 10, range 19 veastur,
jrðan við Assiniboine ána beint á
óti Brandon. Hver ekra kostaði
Fjárhagsskýrslur Manitobafylkis
eru komnar út fyrir síðasta fjár-
hagstimabil, sem endaöi 30. Júní
1887. Tekjurnar voru að öllu sam-
töldu $611,405. Útgjöldin $728,-
125.
____í
lagsins á laugardaginn var, var
heldur laklega sótt. Fjórar konur
sungu þar kvartett. Þar var og
lesinn upp síðasti niðritlmgur
Gröndals og þótti undarlegur. Svo
las og Mrs. Torhildur Holm upp
kafla úr róman, sem hún hefir ný-
lega samið, og var góöur rómur
geröur aö. Fleiri voru þar skemt-
anir.
Skemtisamkoma íslandsdætrafé-
öll hveitiuppskeran í Dakota síð-
astliðið ár var 52,406,000 bushel og
var það hveiti metið á $27,251,120.
Hafið þér séð nyju hattana brúnu? Þeir er"Nn^m"JR^einl 'rá
--- Dökkbrúni blærinn og flötu börðin gera þá mjög ásjálega. -
WHITE MANAHAN, 500 Main 8t,, Winnipeg.
Hljóðfærl, einstök Iög og nótnabækur.
Og alt sem lýtur aö músík. Vér höfum stærsta og bezta úrval af
birgðum f Canada, af því tagi, úr að velja. Verðlisti ókeypis.
Segið oss hvað þér eruð gefinn fyrir.
WHALEY, ROYCE & CO., Ltd., 356 Main St., WlNNlPEG.