Lögberg - 02.03.1911, Blaðsíða 1
24. AR
TAKMARKAÐ VALD LÁVARÐADEILDAR.
Framvaip þus efnis samþykt í ntíri milstofu krezka þingsins við
fyrstu amrœðu, með 351 atkv. gegn 227. — Mikill fögnuður í
herkóðam stjóraarinnar. — Meiri hluti Asquiths 124.
Mikill fögnuður var í herbúðum
Hberala 22. f. m. er frumvarpið um
ta/kmörkun lávarðadeildar brezka
þingsins gekk í gegn um fyrstu
umræðu í neðri deild þingsins með
351 atkv. gegn 227. Meiri hluti
stjómarinnar því 124.
Þegar atkvæðagreiðslan liafði
farið fram, stóöu nationalistar upp
úr sætum sinum, æptu fagnaðaróp
og veifuðu höttum og blöðum og
öHu handhægu. Liberalar tókui
þegar undir. ,
Unionistar voru ekki eins kátir
yfir úrslitunum, og er mælt að
þeir hafi boðið stjórninni að semja
um málið. Mælti Hon. George
Wyndham mjög með þvi að stjóm-
in tæki þann kost, Qg kvað annars
stjómarandstæðinga fyr eða síðar
mundu fella frumvarpi©. Win-
ston Churohill ráðgjafi neitaði því
og sagði að ráðgjafarnir mundu
ekki hafa fleira en fimtiu fylgis-
menn, ef hún tæki þann kost. 1—
Ætlan manna hefir veriö það, að
lávarðadeildin mundi ekki dirfast
að mótmæla fmnrrarpmu nO, et
hún gerir það, þá muni konungur
skipa nægilega marga liberala lá-
varða til þess að koma frumvarp-
inu gegnum efri deild. Eftir at-
kvæðagreiðsluna um frumvarpið 1
neðri deild er sagt að Lansdowne
lávarður hafi lýst yfir því, að hann
mundi bera upp frumvarp til breyt
inga á fyrirkomulagi lávarðadeild-
arinnar. Er litið svo á, að það sé
svar iávarðanna við atkvæðagreiösl
unni í neðri deild um frumvarp
stjórnarinnar.
Þýzki krónprinzinn í lífsháska.
Frá því er sagt í þýzkum blöð-
ttm, að enskur. liðsforingi hafi
bjargað lífi þýzka krónprinzins, á
filaveiðum austur á Ceylon. Svo
stóð á, að fíll einn mikill réðist á
prinzinn. Hann skaut á dýrið en
hitti ekki. Óð fiílinn þá að hon-
um, en rétt í því áð hann ætlaði.að
ljósta prinzinn, skaut enski liðsfor-
inginn yfir öxl prinzins og banaði
fílnum með því skoti. Skotið fór
svo nærri prinzinum, að hann fékk
hellu fyrir eyrað, en sakaði ekki
að öðru leyti.
Borg brennur.
Frá Port au Prince á Haiti ber-
ast þær fréttir 24. f. m. að borgin
Aux Cayes þar á eynni hafi brunn
ið til kaldra kola. Eldurinn kvikn-
aði á fimtudaginn var og magnað-
ist svo fljótt, að við ekkert varð
ráðið. Brann alla nóttina á eftir
og er loks varð slökt stóðu ekki
eftir nema fáein hús. Eignatjón
hafði orðið gríðarmikið, en mann-
skaði enginn. Ibúar í Aux Cay-
es voru um 25,000.
Uppreisn í Portúgal.
Gjafir í þarfir vísinda.
Nýskeð lézt franskur maður í
Rússlandi, sem hét Auguste Lou-
trefile. Hann var af fátæku bænda
fólki kominn, etn auðgaðist
snemma og varð loks einhver rík-
asti maður á Frakklandi. Hann
hafði oft ámælt Frökkum fyrir
það hvað þeir væru sínkir á að
leggja fram fé í þarfir vísindanna,
og vildi ekki láta segja það um
sjálfan sig með sanni, því að í
erfðaskrá sinni, sem nýsikeð er
orðin heyrinkunn, gaf hann $700,-
000 vísindalega háskólanum í Par-
is, $500,000 Parisar háskólanum
og $20,000 Pasteur stofnuninni til
vísindalegra rannsókna.
Verkföll á Italíu.
Verkamenn, einkum ýmiskonar
handiðnamenn á Italíu hafa gert
verkfall í mótmælaskyni við þær
ráðstafanir sem gerðar hafa verið
um að hindra útflutning til Ame-
riku sakir hættu af kóleru. Halda
menn að verkföll þau muni verða
til þess, að yfirvöldin á ítalíu geri
eitthvaö til að ryðja úr vegi þeim
hindrunum, sem lagðar hafa verið
fyrir útflutning ítala til Amerku.
Kýlapest í Spokane?
Einkennilegur sjúkdómur hefir
gosið upp í Spokane í Wash., sem
læknar eru óvissir tim hvaða veiki
sé, en sumir giska á að væri kýla-
pest. Sextán manns hafa sýkst,
þrir látist, aðrir þrír á batavegi,
en hinir þungt haldnir mjög. Á
veikinni bar fyrst 9. Jan. og hefir
bre ðst út þrátt fyrir ítarlqgar var-
úðarrreglur.
” Plágan í Manchúríu.
Þúsundir deyja daglega.
Plágan mikla, svartidauðinn, er
í engri rénun austur í Asiu. í
bænum Pei Chaunlintze, hér um
bil fimtíu milur noröur af Harbin
hefir manndauði verið ógurlegur
siðastliðna viku. Þar hafa 2,000
manns látist daglega. Drepsótt n
geysar og í Kirin og Rodone, 1,000
mílur suðaustur af höfuðborg
Manchúriu. Viö upphlaupi liggur
í sumum bæjum þar sem drepsótt-
in er megnust. Konsúlar er-
lendra þjóða eru aö búa sig undir
að fara burtu. Herflokkar hafa
neitað að fara inn í þau héruð þar
sem sýkin er megnust, og herrétt-
nr hefir verið auglýstur.
1 norðanverðu Portúgal gaus
upp uppreisn nýskeð. Voni það
kommgssinnar, sem fyrir henni
stóðu. 1 þeim skærum var náð-
gjafi opinberra verka skotinn ti!
bana. Hann hafði komið til
Guarda, sem er, setuliðsstöð um
200 mílur norðan við Lissabon.
Þar ætlaði hann að áVarpa her-
mennina, og þegar harm var kom-
inn upp á ræðupallinn æstist mann
fjöldinn sem saman var kominn
gegn honum og var því næst hleypt
á hann mörgum skotum svo að
hann dó. 1 fleiri borgum gerðu
byltingarmenn uppþot um sama
leyti, en nú er sagt að stjóminni
hafi tekist að koma á friði aftur.
Kínverjar slaka til.
t síðasta blaði var sagt frá því,
að Rússar ætluðu að þrengja mjög
að kosti Kínverja og væru meö
her á landamærunum. Kinverjar
voru með öllu óviðbúnir og er
mælt að þeir hafi ekki séð sér ann-
að fært en að ganga að fjórum a(
þe- 1) skilmálum, sem Rússar settu
j.eim Um hina tvo er líklegt
talið að semjist með þeim síðar,
svo að fullar sættir takist.
Her þjóðverja.
Rikisdagurinn þýzki samþykti
við aðra umræðu hermála frum-
varp til fimm ára er fer fram á,
að auka við þýzka herinn smám
saman um tíu þúsund hermönnum.
Engin mótmæli komu fram nema
frá socialistum. Þeir andæfðu
fiumvarpinu mjög og kváðu það
óhafandi, en urðu i miklum minni
hluta við atkvæðagreiðsluna. Her-
mála ráðgjafi Prússa von Herrin-
gen herforingi, neitaði því að
frumvarpið hefði verið nokkur
skjmdi ráðstöfun svo sem öndmæl-
endur þess hefðu haldið fram;
hann kvað stjórnina hafa verið að
undirbúa þaö í mörg ár. Fram-
farir þær hinar miklu, spm orðið
hefðu á Þýzkalandi síð^st’iðin 40
ár, kvað hann allar að þakka her-
málastefnu Þjóðverja. .
« '
Grikkir í Minneapolis.
Um þrjú hundruðt Grikkir í
Minneapolis héldu riýskeð fund
þar í borginni og ræ^ldu um Krít-
eyjqrmálið. Þeir vojru næsta óá-
nægðir yfir þvi, ef Tyrkir næðu
aftur forræði yfir Krít og sam-
þyktu á fundinum ^ð skora á
Bandaríkjastjóm aö ihlutast til um
að Krit kænúst aldrei framar
undir yfirráð Tyrkía.
UINNIPEG, MAN., Fimtudag nn 2. Marz 1911. | NR. 9
. ------ , - —--------------------------------1------------—------------------------------------
Gyðinga ofsóknir á Rússlandi.
Nýjar Gyðinga ofsóknir eru aft-
ur hafnar á Rússlandi. Gengst
fyrir þeim Maklakoff fylkisstjóri
í Little á Rússlandi. Úr einu hér-
aði í Tchernigov-fylki hafa tvö
hundruð fjölskyldur Gyðinga ver-
ið flæmdar burt, þar á meðal auö-
ugir óðalsbændur og verksmiðju-
eigendur. Nefnd af hendi Gyð-
inga leitaði á fund fylkisstjórans,
en hann neitaði henni um viðtal,
og hefir hún nú skotið máli sínu
til yfirvaldanna í Pétursborg.
Panamaskurðurinn.
$ 12,000,000 til víggirðinga.
Eftir aíl-langar umræður í kon-
gressinum um víggirðingar við
Panama skurðinn var málið loks
borið undir atkvæði og var sam-
þykt með miklum þorra atkvæða,.
að veita $3,000,000 til aö byrja á
víggirðingum við skurðinn. Alls
er gert ráð fyrir að sá kostnaður
nemi $12,000,000. Með þessari
atkvæðagreiðslu er bundinn endi
á það mál, þvi að mikill meiri hluti
senatoranna er meðmæltur vígg’rð
ingunum og felst á fjárveitinguna
orðalaust.
Bandaríkjamenn og
Japanar.
Nýir samningar.
Uppkast að nýjum samningum
milli Bandaríkja og Japans var
lagt fyrir senatið í fyrri viku. Er
ætlast til að þessir samningar komi
í staðinn fyrir samningana frá
1894. Aðal munurinn er sá, að í
þessu nýja uppkasti er ekki nein
ákvæði til hindrunar innflutningi
Japana til Bandaríkja, en ætlast
til að stjórn Japana telji sér skylt
sólma síns vegna, að sjá um, að í
höfnum þar í landi skuli sams-
konar takmörkun eiga sér stað um
útflutning frá Japan eins og er
sett um innflutning til Bandaríkja.
Svo er til ætlast í uppkastinu að
hvor þjóðin um sig megi segja upp
samningunum eftir sex mánuði, ef
þeir gefast ekki vel.— Litlar horf-
ur kváðu á því, að uppkast þetta
verði samþykt af hálfu Banda-
ríkjamanna.
Óheilla leiðangur.
Fréttir þær berast frá Brisbane
í Ástralíu, að brezki stjórnarfor-
maðurinn yfir Papína á e ynni
Nýja Guinea, hafi veriö myrtur á-
samt 26 mönnum öðrum . Maður
þessi hét Stanforth Smith, og
hafði han násamt tveimur brezk-
um liðforingjum og 24 mönnum
öðrum lagt af stað frá höfuðborg-
inni í Papúa, Port Moseby, 18
Nóv. í fyrra til að kanna land inn
til ðbygða. Ekkert hafði frézt af
leiðangursmönnum þessum síðan
7. Des síðastliðinn. Voru því næst
sendir aðrir menn að leita hinna,
en þeir komu ekki aftur heldur.
Nú eru tveir hinna innfæddu, sem
voru i ferð með Smith, komnir
aftur, og segja að allir hinir félag-
ar sínir hafi verið. af lífi teknir
Hafi það gert villimenn upp i
landinu.
Járnbrautarslys í Chili.
Fimtíu manns farast.
Frá Valparisa í Chi’i fréttist
24. þ.m. að járnbrautarslys mikið
hafi orðið þann dag á brú nokk-
urri i grend við Braden kopamám-
urnar. \’e1tust nokkrir vagnar út
af brúnni, bæði farþegavagnar og
farmflutningsvagnar. Þar fórust
um fimtíu manns.
Sviplegur fundur.
Þær fréttir berast frá Odessa á
Rússlandi, að ferðamenn sem fóru
nýskeð um ísinn á Ka^piahafinu,
hafi fundið í meira lagi sviplegan
fund. Það var skip fast í ísnum
og alt einn klakaköggull; þar
höfðu verið á 30 manns og allir
helfrosnir. Skipið var að eins fá-
ar milur frá Astrakan.
Ráðane) tisskifti á
Frakklandi.
Briand segir af sér.
Róstusamt hefir verið í franska
þinginu undanfarið, því að Briand
hefir átt 1 hörðum deilum vrð soci-
alista. Fór svo loks a laugardag-
inn var, er traustsyfirlýsing á hon-
um var borin undir atkvæði, að
hann hlaut að eins 16 atkvæða
meiri hluta. Það sámaði honum
svo, að han sagSi af sér og hefir
Fallieres forseti tekrð gilda lausn-
arbeiðnina. Aristide Briand kom
til valda þegar Clemenceau for-
sætisráðherra sagði af sér 23 Júlí
1909. Gegndi hann forsætisráð-
herra embættinu með mesta skör-
ungskap þangað til í haust í önd-
verðum Nóvember mánuði, að
hann sagði af sér. Hann varð
samt skipaður ráðherra aftur þeg-
ar í stað og tók við embættinu og
myndaði nýtt ráðaneyti, þar sem
verkalýðurinn átti í marga tals-
menn. Briand hafði fyrmm verið
hlyntur socialistum, en snerist síð-
ar á móti þeim og hafði nú í hálft
annað ár átt í höggi við þá á þingi
og haft betur þangað til trausts-
yfirlýsingin var borin undir at-
kvæði á laugardaginn var.
Hvaðanœfa.
— Blaðið Daily Mail segir, að
fjöldinn allur af þýzkum kven-
réttindakonum ætli að flytja til
Canada á sumri komandi.
— Dr. Kirckner lýsti nýskeð
yfir því i þýzka þinginu, að þrir
menn hefðu fyrir skömmu sýkst
af svarta dauða í Lundúnum.
Menn áttu þess enga von og vom
rannsóknir þegar ha’nar, en þá
kom i ljós að þetta var tilhæfU-
laust með öllu, sem J-etur fór.
— Aö gefnu tilefni lýsti Field-
ing fjármálaráðgjafi yfir því ný-
skeð í þinginu, að enn væri sam-
bandsstjórnin að íhuga hina fyrir-
huguðu fjárveitingu til heimssýn-
ingar hér 1 Winnipeg. Lengra
væri það mál ekki komið enn.
— Nýskeð var maður tekinn
fastur i Warroad, Minn., sakaður
um að hafa flutt nokkur hæns og
skógarhænur með tollsvikum frá
Canada til Bandaríkja.
— Samuel Gompers, forseti alls
herjar verkamanna félags Banda-
ríkjamanna, hefir sent út áskorun
til allra verkamannafélaga í land-
inu um að safna $500,000 til að
styrkja verkamenn í Los Angeles
til að vemda réttindi sín.
— Rússneska stjórnin hefir lagt
fyrir dúmuna frumvarp um að
láta smíða fjögur orustuskip fyrir
1915 og veita $60,000,000 til þess
verks.
— Fellibylur mikill geysaði um
Þýzkaland og gerði skaða í Ber-
lin og fleiri bæjum. I Nauen í
Brandenbiurg fauk ráðhússturnr
inn 120 feta hár.
— Nokkrir jámbrautarþjónar
meiddust í jámbrautarslysi við
West McLeod í Sask. nýskeð.
— Innflytjenda straum- frá Ev-
rópu til Canada er nú hafinn á ný
fyrir alvöru þetta árið. Halda
menn að fleiri innflytjendur komi
þetta ár en nokkra sinni áður.
Fjöldi Norðmanna væntanlegur..
— Verzlunar viðskifti Canada
fyrstu tíu mánuðina af þessu fjár-
hagsári hafa orðið $634,431,075,
efa rúmum $70,000,000 hærri en
í sama tímabili i fyrra.
— Fimtíu menn fórast í námu-
slysi við Tonapah í Nevada 24.
f. m
— Siðustu manntalsskýrslur á
Þýzkalandi sýna, að íbúar þar eru
68.896.881. Hefir fólki fjö’gað þar
um 4.000,000 siðan 1905. íbúatala
á Prúss’andi er 40,157,573.
— Fallieres forseti Frakklands
ætlar að heimsækja Albert Belgíu-
konung og Wilhelminu Ho’lands-
Irotningu i Maimánuði næstkom-
andi.
— óvanalega ka1t hefir verið i
8an Francisco um þessar mund'r.
Sniór féll þar 26. f. m., svo að
grénaði vel 5 rót. Þess muna
menn ekki dæmi i síðastliðin 15 ár.
Byltingar í Mið-Ameríku.
Herréttur hefir verið auglýstur
um alla Nicaragua, og fjöldamarg-
ir mikilhæfir menn verið höndum
teknir, en orsökin sú, að nýskeð
hefir komist upp samsæri um að
reka Estrada stjórnina frá. Bylt-
ingamenn gerðu sprengingu mikla
fyrir skemstu við hermatxnaskál-
ann í Managua, nálægt höll for-
setans. Eyðilögðust þá 7,000
riflar og 10,000,000 skota. Olli
sprengingin miklum geig, og fjöl-
skylda forsetans flýði til bústaðar
sendiherra Bandaríkjanna. For-
setinn símaði þegar til New York
og bað um 5,000 rifla og 2,000,000
skota. Að því búnu var iherréttur
auglýstur um alt landið. Meðal
(æirra, sem teknir voru fastir voru
Rivas herforingi, Dr. Espinoza,
fyrrum utanríkismálaráðgjafi, og
Zelaya, fyrrum fjármálaráðgjafi.
Byltingamenn hafa náð undir sig
nokkram smábæjum sunnan til í
landinu.
—Kinverska stjórnin hefir kjör
ið G. Galeotte prófessor frá Ne-
apel til að ráða bót á plágunni
miklu í Manchuria. Goleotti pró-
fessor hefir fundið upp “serium”
sem talið er betrá en það, er notað
hefir verið við lækningar þar
eystra undanfarið.
—Konungssinnar i Portúgal eru
enn vongóðir um að geta komið
Manúel konungi aftur til valda.
Missíónarstarfsemi.
Allir kristnir menn kannast við
það, að ekkert starf er til fegurra,
göfugra og háleitara, en missíón-
arstarfsemi, og í engu starfi riður
jafnmikið á einlægri, sjálfsafneit-
un eins og í henni. Framfarirnar
í missíónarstarfseminni hafa orðið
öviðjafnanlega miklar á síöastlið-
inni öld, svo miklar, að marga
mun furða á, sem ekki hafa kynt
sér það mál ítarlega. Hér á eftir
leyfum vér oss að benda á! lítið sýn-
ishorn.
Fyrir rúmri öld mátti svo að orði
kveða, að öll Asía og Afríka \æri
útilokuð frá fagnaðarerindi Jesú
Krists. Kirkjufélögin yfir höfuð
að tala höfðu lítinn áhuga á missi-
ónarstarfsemi á þeim áram, eða
trúboði meðal heiðingja. Á þeim
árum vora því rétt að kalla engir
kristnir trúboðar t heiðingja lönd-
um. Trúboðar vorp þá alls um tvö
hundruð manns, og biblían þýdkl á
rúm sextíu tungumál að eins. Ár-
leg samskot til heiðingja trúboðs
voru að því skapi lítil.
Engir trúboðslæknar vora þá
til, og engin sjúkrahús eða barna-
heimilt í heiðnum löndum. Inn-
fæddir prestar í heiðingjalöndum
voru engir. Kventrúboðar mjög
fáir og því svo sem ekkert starfað
að trúboði meðal heiðinna kvenna.
Þá voru engar prentsmiðjur til 1
heiðnu löndunum, og engir farand
salar, er seldu biblíur og önnur
kristileg rit meðal heiðingja.
Nú má aftur á móti svo heita,
að trúboð sé rekrð í öllum löndum
heims, sem eigi era fullkristnuð
áður. öll evangelisk kirkjufélög
hafa tekið að styðja að missíónar-
starfsemi með mestu elju og á-
huga. I löndunum, sem alheiðin
voru fyrir rúmri öld, eru nú um
20,000 trúboðar, og hafa þeir
kristnað um 5 miljónir manna.
Biblían hefir nú verið lögð út á
um fimm hundruð tungumál og
mállýskur ,að öllu eða einhverju
leyti. Samskot til heiðingjatrú-
boðs eru orðin feiknafé, um 30
miljónir dollara árlega. Læknatrú-
boðar skifta þúsundum, og hjúkra
og hlynna að þrem miljónum sjúkl
inga árlega í heiðnu löndunum.
Nú eru til 400 trúboða sjúkrahús
og 500 barnaheimili í heiðnum
löndum.
Um fjögur þúsund kventrúboð-
ar hafa farið út í heiðna heiminn
og prestvígslu hafa nú tekið 93,-
000 karlmanna, sem alist hafa upp
í heiðingjalöndunum. Þar eru nú
um 30.000 misíónarskólar og 160
prentsmijur, er trúboðar hafa
komið á stofn, og þar era gefin út
um fjögur hundrað kristileg blöð
og timarit árlega.
Stúdentar þeir skifta þúsundum
sem á ári hverju takast á hendur
missíónarstarfsemi i heiðnum lönd
um, og mörg þúsund manna eru
að búa sig undir það starf. Einn
íslendingur hefir orðið til þess að
búa sig undir þá lífsstöðu. Það
er herra Octavius Thorlaksson,
sonur séra N. SteingrímsThor-
lakssonar, ungur maður og efni-
legur og líklegur til að verða þjóð-
flokki sínum til sæmdar í því fagra
starfi.
Úr Njja (sl ird norðanverðu.
fFrá fréttar. Lögb.J
Nú mun loks fiskiflutningur
noröan af vatni vera langt kom-
inn. Hefir gengiö miklu seinna
en vant er sökum ófærðar. Kvarta
menn sáran um að vera í flutar
ingum, bæði um hvað erfitt það sé
og eins hve lítið upp ún þvi sé að
hafa. Verða þvi. fegnastir þegar
flutningunum er loldð.
Aö verzlaninni á Víðir eru orð-
in eigendaskifti, að nokkru leyti,
fyrir nokkrum tíma siðan. Gutt-
ormur skáld Guttormsson hefir
selt sinn hluta Jóni Sigurðssyni,
póstafgreiðslumanni á Víðir. M.
M. Jónasson heldur sínum hluta
og stjórnar verzluninni, eins og
hann hefir gert að undanförnu.
Talið er Iiklegt af mörgum, að
Ardalsbrautin verði framlengd
næsta sumar. Er sagt hún fari
norðtir þrjár mílur austan við
Víðir ]Kisthiis, en> beygi þar um
slóðir vestur á við og haldi úr ,því
áfram í norðvestur. Hyggja Við-
irbúa, sem von er, gott til þess að
brautin verði framlengd.
Bygð allmikil hefir myndast
norðvestur af Víðir. Ein tvö ný
pósthús eiga að setjast þar á lagg-
irnar .mjög bráðlega, eða eru ef til
vill þegar opnuð. Fáir eða engir
ir íslendingar erti i þessari nýju
bygð. Ah annara þjóða fólk.
Margt af {>ví sunnan úr Banda-
ríkjttm að sagt er.
Kirkjtt ætla Árdalsbúar a.ð reisa’
á næsta sumri. Er ákveðið hún
verði bygð í þorpinu Árborg.
Nefnd kosin fyrir nokkru til að sjá
um framkvæmdir þar að lútandi.
Búist er við, að breyting verði á
póstflutningi hér norður frá áður
langt um Iiður. Eins og er, er
póstur fluttur frá Gimli norður
tvisvar 1 viktt, sem sé á mánudög-
um og föstudögum. En komist
breytipgin á, þá kemur póstur til
Árborgar þrisvar í viku, nefnildga
á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum. Er það töluverð ttm-
bót fyrir þá er búa í Árborg og
þar í grendinni, en líklega verður
umbótin engin á hinum pósthús-
unum, þvi póstur verður líklega
ekki fluttur um þatt nema tvisvar
i viku eins og verið hefir.
Dálitið kynlegt þótti mér það á
dögunum, þegar eg sá þvi dróttað
að mér í Hkr., að eg af einhverj-
um slæmum ástæðum hefði ekki
getið um kosning Jóns Nordal í
sveitarráðið hér i Bifröst. Það
eina sem eg sagði um Jón fyrir
kosningarnar var það, að hann væri
“maður vinsæll og vel látinn.”
Undarlegt að þesst góði maður i
Geysirbygð skuli vera úrillur út af
öðru eins. Manni dettur í hug rit-
stjórinn á Islandi forðum daga,
sem vildi láta dæma bróður sinn i
blaðamenskunni í sektir fyrir að
hafa kallað sig “prúðmenni”, “ít-
urmenni,” “dánumann” og s. frv.
Nei, sú ofur einfalda ástæða fyrir
því að eg hafði ekki getið um
kosning Jóns var sú. að þetta bréf
er fyrsta fréttabréfið, sem eg hefi
skrifað síðan kosning fór fram.
Mér fanst ekki þessi kosning þau
stórtiðindi, að hún ein verðskuld-
aði fréttabréf. Ætlaði hins vegar
aö geta um þetta með öðru fleira
næst þegar eg skrifaði. — En hvað
sem þessu liður, þá held eg það
verði naumast sagt með sönnu, að
eg i bréfum mínum héðan að norð1-
an hafi lagt mönnum ilt til. Þyk-
ist eg i því efni hafa gefið mun
betra dæmi en fréttararitarar
“Heimskringlu” hafa að jafnaöi
gert, að maður tali nú ekki um þá
allra verstu, sem ekki geta litið
nokkurn mann réttu auga, og
skrifa fréttabréfin í því eina skyni
að koma að mannlasti og lygi.
Þessi góði maður í Geysirbygð
verði tima sinttm og gáfttm vel ef
hann gæti siðað ofurlitiö þá kump-
ána.
Mmitobaþingið.
Fylkisreikningarnir voru lagðir
fyrir þingið um miðja fyrri viku.
Á reikningunum stendur, að venju
legu tekjurnar 1910 hafi verið $3,-
847,321, og venjulegu útgjöldin
$3.234,941- Tekjuafgangur þar
$612,380. Fylkiskuldin hefir samt
ltækkað gífurlega þetta ár, því að
stjórnin hefir orðið að taka mikiö
lán, bæði til að greiða afborganir
af gömlum lánum, og til annara
nauðsynja. Árið 1909 var fylkis-
skuldin $9,000,000, ert er nú, þeg-
ar gömul og ný lán, sem beinltnis
hvíla á fylkinu, eru talin, $11,366,-
926.65, og þar við bætist $719,065
sem nú er minna í sjóði samlagðra
tekjuafganga, heldur en var 1909,
svo að 1910 hefir fylkisskuldin
auldst um rúmar $3,000,000.
Skýrslurnar ttm komhíöðurnar
sýna, að sú stjórnarráðstöfun hefir
ekki lánast vel, það sem af er.
Fram að þessum tima hefir $929,-
000 verið varið til kornhlaðna, en
skýrslurnar sýna, að tekjumar til
ársloka 1910 ltafa ekki nægt til aö
bera starfrækslu og viðhaldskostn-
að. Skýrslur talþráða deildarinn-
ar sýna, að þeim, sem talþræði
brúka, hefir fjölgað nokkuð, og
allmikið verið lagt af nýjum tal-
símum, tekju afgangur þar orðið
ttnt $300^000, þegar gert er fyrir
vöxtum og höfuðstólsfé.
Fylkislönd hafa verið seld drjúg-
um þetta árið. Fyrir þau fékk
stjómin 1910 $633,695, og hefir þá
alls siðastl&ið ár fengið inn $p-
1 000,000 fyrir seld'fylkislönd, og af
því að þaö fé er að mestu eytt nú,
er fyHdö sem næst fjórum miljón-
um doll. fátækara en þegar stjórn-
in tók vrð, þó ekkert sé gert fyrir
því, hve bersýnilega að þau lönd
hafa oft og tiðum verið seld fylkj
inu í stórskaða.
Allsnarpar umræður urðu i fyrri
viktt um þingsályktunartillögu Mr.
Norris viðvtkjandi viðskiftafram-
varpi Canada og Bandartkja. Mr.
T. H. Johnson talaði langt erindi
og ítarlegt í því máli, og hrakti
gersamlega allar helztu mótbár-
urnar, sem stjórnarsinnar hér
höfðu fært fram gegn viðskifta-
samningunum væntanlegu. Mr.
Roblin barðist fastlega móti til-
lögtt Mr. Norris og á fimtudaginn
var, var hftn borin umlir atkvæði
og feld með 26 atkvæðum gegn
12; liberalar með, oonservatívar
móti.
Járnbrautarmála frumvarp all-
einkennilegt, sem kent er við The
Birds Hill and Springfield Rail-
way Co., var fyrir þinginu á föstu-
daginn var, og gekk þá í gegn um
að'ra umræðu. í frumvarpinu er
beiðist löggildingar á fyrnefndtt fé-
lagi, sem í eru ýmsir burgeisar
borgarinnar, þar á meðal lögfræði-
nautur Campbells dómsmálastjóra
fylkisins. Mælti Campbell afar-
fast með frumvarpinu, sömuleiðis
Mr. Roblin, og fleiri ráðgjafarn-
ir, en eitthvað mun vera gruggað
í sambandi við irumvarp þetta,
því að ýmsir con9ervativir þing-
menn andæfðu því harðlega, þar
á meðal Mr. Steele frá Cypress,
sem fórast orð á þá leið, að það
væri að draga dár að vitsmunum
þingmanna að bera upp annað eins
frumvarp og þetta. Fæstum virð-
ist og dyljast það, að hér er um
blanket charter að ræða, er Eng-
lendingar nefna svo, og ekki ætti
að komast í gegn um neitt þ ng.
Mr. Roblin mælti svo fast með
frumvarpi þessu, að það marðist
i gegn með litlum atkvæðamun.—
Annað frumvarp þesstt líkt kvað
vera í vændum.
1 »
Herbúna^ur Austurríkismanna.
Austurríkismenn ætla drjúgum
að fara að auka herbúnað sinn.
Siðastliðið ár voru f járveitingar ti/
flotamála $10,000,000. en nú eiga
þær a ð verða $26,000,000 á ári til
loka ársins 1914, en því næst $30,-
000.000. Flotamálaráögj. M nt>
cuccolli, fóðrar þessar auknu fiár-
veitingar með því, aö “smáófr ður
sé dýrari en stór herfloti, og hefir
gerst formælandi þess, að þvgð
verði sextán stór orastuskip. Fjár-
veitingar til landhersins á að
auka heilmikið.