Lögberg - 21.12.1911, Page 3

Lögberg - 21.12.1911, Page 3
► LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. DESEMBER 1911. DR. TH. THORDARSON. DR. J. P. PÁLSSON. DR. M. B. HALLDÓRSSON. Dr. Th. Thordarson ÞórSur læknir er Húnvetningur að uppruna og er fæddur á Stað í Hrútafiröi 3. jan. 1867. Þar bjuggu foreldrar hans, Þóröur Árna- son og Guörún Grímsdóttir, unz þau fluttu til Vesturheims og sett- ust að í Milwaukee, Wisconsin, 1874. Sveinninn varö eftir heima og er hann haföi haldiö til, var honum komið til kenslu hjá nafnkunnum gáfu-og lærdómsmanni, Þorvaldi presti Bjarnarsyni á Melstað; þótti honum, sem var, sveinn sá vera bæði námfús og skilningsgóöur. Þóröur gekk í latínuskólann í Reykjavík 1881 og útskrifaöist þaöan 1887. Frá þeim tíma eru enn til eftir hann miklar ritgerðir, er hann samdi í frístundum sínum; hneigö- ist hugur hans mest til nátúruvís- inda og var hann óefað langbezt að sér sinna skólabræðra í þeim fræö- um. Sama sumariö sem Þórður útskrif- aðist af latínuskólanum, fór hann til Ameríku, og vann fyrir sér með ýmsu móti. Ekki sleit hann þó trygö viö lærdóminn, því að 18^1 er hann farinn að stunda nám við Cornell háskólann í New York ríki; og næsta ár slikt hið sama. Árið 1893 byrjaði hann nám við lækna- skóla í Chicago og útskrifaðist þaö- an vorið 1S97. Næsta ár gekk hann undir próf í St. Paul, Minn., og var einn af þeim fáu, sem stóð- ust það. Eftir það settist hann að í bænum Minneota, Minn., í júlí, 1897, og hefur dvalið þar síöan. Kona Þóröar læknis hét Sigur- borg Sigurbjarnardóttir, og er hún látin fyrir nokkrum árum. Dr. Thordarson er vinsæll af þeim sem til hans þekkja og í góðum DR. BENEDJKT EINARSSON. metum fyrir mannkosti og lækningar. Hann er maður prýöilega ritfær og gaf út um nokkur ár mánaðar ritið Vínland, og mun margir hafa séð eftir því þegar þaö hætti aö koma út. DR. JÓH. S. JAKOBSSON Dr. Jón Stefánsson er fæddur 9. Agúst 1880 á Sigluvík á Svalbarðsströnd, við Evjafjörö. Þar bjuggu þá foreldrar hans, Stef- án bóndi Pétursson og kona hans Guörún Jónsdóttir. Móöur sína misti hann þegar hann var á þriðja árinu. Hann fluttist með föður sín- um til þessa lands árið 1888 og ólst upp hjá honum í Argyle, þar til hanu gekk í undirbúningsdeild Wes- ley-skóla í Winnipeg árið 1903 og tók undirbúningspróf háskólans árið eftir. Hann stundaði þar næst nátt- úru vísindi, reikning, íslenzku og latínu við háskólann í eitt ár, en fór eftir það á læknaskóla Manitoba- fvlkis, og byrjaði þar nám um haust- ið 1906 og lauk fullnaðarprófi lækna í vor leið með hárri einkunn. Fékk hann þegar þá stöðu, sem vanalega er veitt þeim efnilegustu læknaefn- um, að verða aðstoðar læknir við Almenna spítalann í Winnipeg, Dr. Stefánsson var hinn fyrsti forseti Stúdentafélagsins íslenzka, og sat i stjórn þess um 6 ár. Handa því félagi samdi hann, ásamt Dr. Jóhannesi Pátlssyni, gamanleikinn “Hún iðraðist”, sem leikinn var af stúdentum opinberlega í vetur leið. Dr. Stefánsson er maður vfirlæt- islaus, en fylginn sér og drjúgur til allra hluta. Sem dæmi þess má nefna, aö hann tók sér heimilisrétt- arland i Saskatchewan meðan á náminu stóö, árin 1907—10, og lauk öllum skyldum á því, áöur en hann útskrifaöist. Á því sat hann á sumr- in og kendi á barnaskóla jafnframt. Kom hann stundum seinna í skólann á haustin, en allir aörir, þess vegna, og lagði því harðara að sér, að lesa, sem timinn var styttri. Það land mun hann hafa selt um það bil sem liann útskrifaðist, fyrir 3,000 doll. Naut hann til þess aðstoðar mágs sns og systur, Mr. og Mrs. K. Kröy- er í Winnipeg. f'Framh. frá 2. bls.J skólann áriö 1910. Báöar þessar stöður voru honum boðnar af yfir- stjórn þeirra stofnana, enda fékk hann þegar mikla aðsókn sjúklinga, er skera þurfti til meinsemda og al- ment álit fvrir hve vel honum hepn- aöist að framkvæma þá uppskurði; mun það varla ofntælt, aö nú standi fáir læknar í borginni jafn framar- lega og hann í þessari grein. Dr. Brandson er uppalinn í Banda- ríkjum, sem fyr gctur, þar sem hver borgari tekur þátt í þeim málum sem almenning varöa, og þann sama sið hefir hann enn. Er þaö enn eitt mark um mannheill hans, aö hann hefir aflaö sér vina, en engra óvina, með hlutdcild sinni i lands- málum, enda fylgir hann málstað sínum eins og góðum dreng og mentuöum manni hæfir, með still- ingu en engum ofsa, og röksemdum en engri persónulegri áreitni. Hann er og vel orði farinn, svo sem kunnugt er. j,ni" iO«AW/N&á °f HOMES TH/VT LOCAT&Ö «« GOLOtN &4T& PAKIÍi Dr. 0. STEPHENSEN er af göfugu kyni kominn, sonur Stefáns prófasts í Vatnsfirði, Pét- urssonar prests á Ólafsvöllum, Steph- ánssonar amtmanns Ólafssonar stift- amtmanns, og kemur sú ætt meira við sögu íslands um heila öld, en nokkur önnur. Móöir Ólafs læknis var Guðrún dóttir Páls amtmanns Melsteð og Ragnheiðar dóttur Stef- áns amtmanns á Möðruvöllum Þór- arinssonar. Dr. Stephensen er fæddur i Holti í Önundarfirði í Isafjaröarsýslu 22. Des. 1864. Hann fór 15 vetra gam- all í lærða skólann í Resykjavík ogj útskrifaöist þaðan eftir 6 ár 1885. Við læknaskólann í Reykjavík tók j hann fullnaðarpróf 1890, sigldi sam- £yumars til Kaupmannahafnar og stundaði lækningar á spítölum og fæðingarstofnunum. Hann fór heim til íslands árið eftir, og var settur læknir í Þingeyjarsýslu (13. læknis- héraðij 1892-93. Eftir það fór hann af landi burt og staðnæmdist í Winnipeg og hefir stundað hér lækn- ingar upp frá því. Hann stundaði frekara nám viö Man. Med. College veturinn 1894-95, til undirbúnings prófs, sem hann leysti af hendi um vorið. Dr. Stephensen er mikill bókamað- fara að lýsa öllum þeim þægindum sem þeir verða aðnjótandi er festa ser heimili í GOL- DEN GATE PARK, mundi ekki vera heppilegt hér, en þó er ekki úr vegi að geta þess. Að til og frá Golden Gate Park ganga strætis vagnar frá kl. 6 á mórgnana til kl. 12 á kveldin. Að Golden Gate Park er nógu fjarri borginni til þess að þeir sem þar búa eru aidrei truflaðir með hávaða og skrölti borgarinnar. Að Golden Gate Park er nógu nœrri fyrir þá er þar búa að njóta þess munaðar, sem borgar lítið býður manni. Að Golden Gate Park hefur hið hreina svalandi sveitaloft laust við alla reykjar og kola sterkju. Að Golden Gate Park skýlir íbúum sínum á sumrin með sglhlíf skógar greinanna. ur, fylgist vel með opinberum mál- um, bæði þessa lands og annara, og einkanlega leggur hann rækilega stund á að fylgjast' vel með framför- um í sinni fræðigrein, læknisfræð- inni, og á gott safn helztu nýrra bóka í þeirri grein. Hann er söngmaður góður, eða var, meðan hann iðkaði j þá list, manna glaðastur, snyrtimað-j ur mikill, og líkur um það sem margt | annað móðurbróöur sínum, Páli, sagnaritara Melsteð. Hann er vin- sæll, lipur og heppinn læknir. Dr. Stephensen kvæntist 4. Febr. 1896 ungfrú Margréti Stefánsdóttur Gunnarssonar, og eiga þau hjón sjö börn, 4 stúlkur og 3 drengi. Að Golden Gate Park verndar íbúa sína með hinum silfur klœddu bjarkar bolum sem standa vörð gegn vetrar nepjunni. Að Golden Gate Park lóðir eru aðeins seldar til þeirra sem ávkarða að hafa þœr fyrir sinn framtíðar bústað. Að í Golden Gate Park verða á næsta sumri allar nýtízku umbætur. Að söluskilmálar á húsum í Golden Gate Park eru aðgengilegir fyrir alla. Að Golden Gate Park er staður fyrir Islendinga. Fleiri upplýsingar fást hjá TH. ODDSON & SONS M. 2312

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.