Lögberg - 21.12.1911, Qupperneq 8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. DESEMBER 1911.
JÓLIN 1911.
Statt upp og gakk! Nú Ijóma lífsins jól,
og ljósið brýtlr dauðans hlekki kalda.
Statt upp og gakk! Þig signir eilíf sól
með sigurkransinn hundrað þúsund falda.
Statt upp og gakk! og sjá hvar brosir barn,
svo bjart að hverfa lífsins skuggamyndir;
já, myrkrið flýr og heimsins bráðnar hjarn
við helgan eld, sem Ijóssins faðir kyndir.
Statt upp og gakk! Nú faðmar friður jörð,
því fædd er lífsins mikla sigurhetja,
á ljóssins braut að leiða vilta hjörð
og lyfta, benda, gleðja, styrkja, livetja.
Statt upp og gakk! 0g hlýð á himins mál,
svo hreint og djúpt, með eilíft sannleiks gildi,
er styrk og djörfung sendir hverri sál
að sjá og trevsta drottins náð og mildi.
Statt upp og gakk! með sannleikssverð í hönd,
að sigra villu, — það er lífsins skóli—,
og fvlgdu þeim, sem lýsti heimsins lönd
og lagði veg að himins dýrðar stóli.
Statt upp og gakk! með vinarbros á vör,
að verma sérhvert blóm á lífsins hjarni,
og vígðu kærleik andans helga hjör,
að hefja maik og lyfta þreyttu barni.
Statt upp og gakk! og réttu hlýja hönd
þeim halta, blinda, volaða og snauða,
með kærleiks-vl á kaldri tímans strönd,
er krýnir sigurljósum gröf og dauða.
Statt upp og gakk! og lærðu drottins lög.
—Nú lýsir öllum heimi friðarsólin,—
Og hlýð á eilíf himinstrengja slög
frá honum, sem að gaf oss blessuð jólin.
M. Markússon.
AÍÍ iliíi i!
UUU&UUUM&& # a'SfíSSSÍBJBEKB
FIÐLARINN.
Norsk grafskrift.
Hann kleif upp um firnindi í fjallanna skjól
Við fossnið og stórveðra-gný
Til rokkhljóðs á kveldin, sem heyrðist úr hól,
Og huldusöngs klettunum í.
Hvert hljóð, sem þar fylgdi’ eftir fótstigum
hans
1 fjarlægð við blámöttlað hjarn,
Það óf hann með fiðlunni í óðinn síns lands,
Þetta öræfa-náttúru-barn.
Kr. Stefánsson.
VORDAGUR.
Hér er hönd mín, vor!
Hugur léttir spor
Svo sem barn í sólskininu þínu.
Opna öll þín hlið
Inn á lífs þíns svið,
Lát ið unga enn þá búa’ að sínu.
Láttu ljóðheim þinn
Lykja um anda minn,
Ber mér aftur bikar þinna veiga.
Láttu ljósblik þitt
Lífið yngja mitt —
Bittu því í skúr úr skini sveiga.
1-5-10.
Kr. Stefánsson.
mmmmmmrnmmm # s$ss«siiiist«i8íi
Bæn í útlegð.
Drottinn! er leiddir oss langt yfir höfin,
land gafst oss nýtt meðal framandi þjóða,
hér er vort Kfsstarf og hér bíður gröfin,
héðan þó biðjum þig, skaparann góða:
Tungunni ljóðfimu og landinu heima
lát oss ei gleyma, lát oss ei gleyma!
Forfeður gafst þú oss frækna og mæra,
fest oss í hjörtum að skyldu vér höfum,
þunga og heilaga þrek þeirra að læra,
þrumandi til vor úr feðranna gröfum:
Minna að raupa, minna að dreyma,
meira að vinna, ó lát oss ei gleyma!
Sé það vort einkenni,’ að meira vér metnm
mannsandans göfgun en auðæfasafnið,
lát af því, hvar sem um foldu vér fetum,
frægjast og vegsamast Islendings-nafnið;
dýrasta lærdómnum landsins vors heima
lát oss ei gleyma, lát oss ei gleyma!
Vernda þú Island í aldanna þrautum,
eignist það söguna dýrðlega’ og langa,
hreina 0g vitra á heilögum brautum,
hvar sem vér dveljum, lát ætíð oss ganga.
Guð hinna verðandi og hrynjandi heima,
heyr vorar bænir, ó lát oss ei gleyma!
Sigfús Blöndal.
t
t
+
f
4-
t
-f
t
f
Royal Crown Sápu seðlar og umbúðir
Eru verðmætir; haldið þeim saman og fáið verðlaun fyrir þær
----- BYRJAÐU STRAX AÐ HALDA ÞEIM SAMAN-----
THE SENTRY
lGH
L 2407
THE SENTRY
L 2407
Erma hnappar. Þeinr eru með þykkri gullskel, vel smíðaðir, með
ýmsri lögun og misjafrlega stórir, surair settir gimsteinum, sumir
sléttir, sumir smeltir. Allir endigar góðir. Parið fyrir ioo umbúðir
Ef yður vantar borðhnífa fyrir umbúðir yðar, þá höfum vér þá.
Hagaþorn silfur borðhnífar eru góðin og fást 6 þeim fyrir 300 Royal Crown Sápu nm-
buðir. Saraa hnífatala, af sömu gæðun, aðeins minni— dessert stærð—fyrir 275 Koyal
Crown Sápu umbúðir. Vér höfum sömuleiðis afar miklar birgðir af borð- og dessert
hnífum með stálblöðum og celluloid sköptum. Þeir eru með sama verði og silfur hnífarnir.
Burðargjald 2.5c.
OXFORD SMJÖR
KNÍFUR OG SYKUR
SKEIÐ f satin fóðruð-
um stokk—mjög falleg
og notaleg gjöf, fyrir
225 Roval Crown Sápu
umbúðirA
Oxferd þriggja m u n a
barna hnífapar og skeið í
satin fóðruðum stokk. Af-
bragðs gott í þeim. Fást
fyrir 225 Royal Crown
Sápn umbúðir.
KÖKUDISKUR, No. 60. Með
gull borðum. Ljómandi fallegur
gripur, fyair 350 Royal Crown
Sápu umbúðir.
Burðargjald 25C
SKEIÐ Og: HNÍFAPÖR
handa börnum, kennt við Raymond : vel
vandaður gripur; fást fyrir 100 RoyalCrown
Sápu umbúðir.
Vér höfum svo hundruðum skiptir
af öðrum silfur munum, sem
hér eru ótaldir.
Sendið eftir ytarlegri verðlauna skrá
The Royal Crown Soaps, Ltd.
Premium Dept.
WINNIPEG, Man.
Hinn fyrsti steinlagði þjóðvegur
út úr Winnipeg
Það er nú fastráðið, að steinleggja Pembina Highway
alla leið frá borginni til hins nýja Agricultural College.
Strætisvagnabraut verður einnig lögð þangað og sömu-
leiðis að öllum líkindum aðalræsi.
Þessar umbætur þykja nauðsynlegar, vegna þess,
hve þetta svæði er orðið álitlegt til frambúðar, síðan
stjórnin lét reisa skólann við Pembina Highway.
Þessar umbætur hafa þegar haft áhrif á fasteigna-
verð á þessu svæði, og þeir, sem kunna að verja sé sínu
hyggilega, eru að kaupa upp allar eignir þar, sem fáan-
legar eru, með því að þeir vænta skjótrar og mikillar
verðhækkunar með vorinu.
Vér höfum á síðasta misseri selt meir en 300 lóðir
á þessum slóðum og meðal þeirra, sem keypt hafa af oss,
eru sumir fasteigna kaupmenn í Winnipeg, hinir kunn-
ugustu og forsjálustu.
Oss er á hendur falið, að selja það sem félagið á
eftir óselt fyrir það verð, sem lóðirnar kostuðu uppruna-
lega; f jórði partur út í hönd; eftirstöðvar borgist á þrem
árum með jöfnum afborgunum. Borgun má einnig haga
þannig, að greiða 15 dollara strax og síðan 5 dollara á
mánuði.
Næsta nýársdag (1. Janúar 1912) verður verðið á
þeim lóðum, sem þá eru óseldar, fært upp um 50 dollara
á hverri lóð.
Þetta er því síðasta færi til að ná í lóðir á þessu
svæði, fyrir lægsta uppruna verð.
öllum lóðum verður úthlutað í þeirri röð, sem pant-
anirnar koma.
SKÚLI HANSS0N & C0.
47 Aikin’s Block WINNIPEG
Talsímar Garry 340 og 341
THORSTEINN JOHNSON
er fæddur á Vatnsenda í Þingeyjarsýslu 1875. Fluttist til Vestur-
heims meö foreldrum sínum 1883. Snemma bar á því að hann var
hneigöur fyrir sönglist og þegar hann var á unga aldri byrjaöi hann
aö læra á fíólín, mestmegnis af sjálfum sér; átti hann þá heima á
íslandi. Fyrir tólf árum fluttist hann til Winnipeg og hefir altaf
síöan notiö kenslu í fíólínspili hjá þeim hæfustu kennurum, sem hér
hafa veriö fáanlegir. Fyrir sex árum byrjaöi hann aö kenna og er
óhætt aö fullyröa að honum er þaö aö þakka að sú list er eins langt
áveg komin hjá Islendingum hér og hún er nú. Hann hefir altaf
haft mikið að gera. enda er hanndugnaöar maöur mikill og stakur
reglumaður.
Jólagleði
vina yðar getið þér auk-
ið að mun, með því að
gefa þeim einhverjar
laglegar jólagjafir.—
Munir úr silfri eða gulli
1--- eru flestum þóknanleg-
, astar. En “ekki er allt
gull, sem glóir, og oft or fólk svikið á þeirri vöru. Þess-
vegna er hyggilegt að kaupa slíkar jólagjafir hjá áreiðan-
legum mönnum, ^ Þeim, sem mig þekkja, munu ekki finn
ast ég segja of mikið, þó ég haldi því fram, að hvergi í
"Wionipeg borg geti menn fundið áreiðanlegri verzlun en
mína. —
Allskonar Gull- og Silfurvarningur á boðstól-
um, svo sem úr, klukkur, armbönd, ‘lookets,’
úrfestar, prjónar, lindispennar, demantshring-
ar, borðbúnaður, kristals-kér, o. fl. o. fi.
Th. Johnson j Jeweler,
jj 286 Main St. T/\LSIMI, K|ain 6606. II
‘‘New Idea”
Furnace
Eru notuð bæði
___fyrir kol og við,
og eru furðulega ódýr í
samanburði við þægindi
þeirra og gæði. Brennir
litlu, hitar jafnt og vel og
endist von úr viti. Spar-
ar yður margan dollarinn
á vetri hverjum.
Eg hefi Furnace þessi til sölu og set þau í hús
yðar vel og vandlega fyrir sanngjarnt verð.
G. Cioodman
Xi 1 ■ srqittl
Toronto Street, nálægt horninu á Notre Dame Ave.