Lögberg - 16.10.1913, Blaðsíða 7
LÖGBEKG, FIMTUDA GINN 16. Október.
7
Alþýðuvísur.
Jónsmessu vísur.
Nú er dátt viö Noröra hjól
njólu kátt um dal og hól
situr hátt á segul stól
sól um nátt viö Dofra ból.
Ljóöasláttar ljúfum hreim
iófts er hlátt um víöan geim
traustra þátta að túnum þeim
taug oss máttugj dregur heim.
Þessar vísur voru orktar um Jóns-
messu árið 1902, og var þá höf.
mýkoininn hingað af íslandi.
M. S.
Til porsteins Þorsteinssonar.
Ef syrtir fyrir sólu
■og sáHna vantar dug,
þá lýsir um langa Njólu
þitt ljúfa neista flug.
Þökk fyrir þína Neista
])eir orka aö kveikja bál.
ef til vill úr æsku
þeir þýða klaka úr sál.
R. J. Davíðson.
Til Mr. J. S.
í 70. nr. Lögbergs þ. á., segist
Mr. J. S. vita hver hafi gert vís-
una, “Mitt þér greína mun eg nafn’’
o. s. frv., og að gamla Dakota
konan hafi rétt fyrir sér aö Hann-
es stutti hafi ekki gert hana. Svo
mötg eru þessi orð. Eg hef ekki
sagt aö hann hafi gert hana, en að
eg hafi heyrt honum hún eignuö
og sel eg þaö eins ódýrt og eg
key[)ti það. Get eg gert betur?
Það er alls ekki nýbóla aö mönn-
um séu eignaðar vísur sem þeir
hafa ekki gert og eins getur verið
um þessa vísu. En þess skal eg
óhikað geta einu sinni enn, að í og
j kenningin í málrúnum er að eins
Íagnaðar ís, en ekki saman þrýstur
snjór, fjökla klakij. Það er eins
'langt frá sannleikanum og köttur-
inn er frá sjöstjörnunni, að segja
uð jökla breiða merki j í málrún-
um. En í ráörúnum getur jökul
"breiða merkt j, s, f, k, d og m, nfl.
jökull, snjór, fönn, klaki, drífa og
mjöll og hvað heitir svo þessi ná-
ungi Jóhann minn.
7. 7. D.
Þegar eg Heiöar kem í kjós
kjör meö hreppi svínum.
Þá fflun ekkert lukku ljós
lýsa vegi mínum.
Mun honum eitthvaö hafa veriö í
nöp við sumt af fólkinu, sem hann
væntanlega ætlaöi að vera. samtíða.
Eitt sinn var þaö sama dáginn
sem hirt var taöan á Heiðar túni,
og fólk var við heyvínnu skamt
frá túninu, var það síöla dags ; þá
kvað hann:
Viröa tööu vantar gjöld
verka ei merkjast launin.
Vopns í höður hyggja er köld
hunda stööur veröa í kvöld.
Og þessa sem hér fer á eftir
kva'8 hann um eina vinnukonuna:
Víst þér hælir virða kvur
verks að mæling lagstur,
mikið sæl er Sigriður
sinn við spælinn rakstur.
Eg heyrði B. J. segja; “Maður
þarf ekki að yrkja mikið til þess
að vera viðurkent skáld, þó maður
hafi ekki orkt nema eina visu sem
þyldi samanburð vi.ð vísu eftir
viðurkent skáld, þá er maöur
skáld’’.
Jæja herra ritstjóri, þetta er nú
alt sem eg segi nú.
Sv. Símonsson.
Afleiðingar heyskorts-
ins.
Þaö er nú fátt og litiö, sem, eg
sendi þér, sem innlegg i al])ýöu-
^vísna siðu blaðs þíns. Það er nú
fyrst og fremst að gefa þér til
"kynna, að 'rétt mun það vera, að
Gísli sá sem orkti versið: “Þ egar
Halldóra bekkinn braut” o. s. frv.
hafi átt heima í Hofskirkjusókn á
Skagaströnd og að presturinn sem
þá var á Hofi orkti versið til
Gísla: “Þegar Gísli guðs boðorð
hraut” o. s. frv., einkum vegna
þess aö eitt heimili í Hofssókri
heitir á Króki, enda heyrði eg þetta
þegar eg var barn og fólk í minni
sveit kannaðist vel við gömlu kon-
ana Salvöru í Króki. Svo vildi eg
fá leiðrétt tvö orð i stefinu mínu
seinast því arna: “Ingólfur flutti
góða grein” o. s. frv. Þar er
prentað “sterkuml stein” fyrir
sterkur stein; og seinasta orðið er
■“místi” fyrir nísti. Svo var feil
i drínuj i orðinu “andans” í
Ileimskringlu grafskriftinni sem
hyrjar svona: “Nú er Heims-
hringla druslan dauð” o. s. frv.
Þrjár vísur set eg hér eftir
Baldvin Jónsson til viðbótar þeim
sem áður hafa verið ændar. Þiað
var eitt siiTn að B. J. skifti um
vist. Samanber visuna hans;
Veðramóti vík eg frá, í vistina upp
að Heiði” o. s. fr.v. Þa kvað hann
þessa:
Windsor Dairy
Salt leysist jafnt
UPP og setur in-
dælan keim á
smjörið,
DAIRY
Rétt að segja
hver einustu stór
verðlaun á stærstu
sýningunum voru
unnin af smjöri er
saltað var með
Windsor borð 'salti
119
Nú er langt liöið á heyskapar-
timann, og bert er orðið, að hey-
fengur manna undart sumrinu lilýt-
ur aö veröa mjög rýr, bæði á
Suður- og Vesturlandi. Því miö-
ur eru helzt likur til, að afleið-
ingin verði sú, að bændur neyðist
til að farga talsverðu af bústofni
sínum í haust.
En frá þjóðhagnaðarlegu sjón-
armiöi er það hiö rnesta tjón, þeg-
ar bústofninn minkar i landinu, og
viröist þvi vera tímabært að athuga
hvað unt sé að gera, til þess að
takmarka tjóniö sem mest.
Fyrst keniur til yfirvegunar,
hvort hægt sé að bæta upp fóður-
skortinn með aðkeyptu fóðri eða
fóðurbæti.
Hér í Reykjavík eru menn að
panta hey að norðan, en þótt slíkt
geti orðið til gagns fyrir einstaka
Reykviking, er varla hægt að koma
þyi í framkvæmd i stærri stil, svo
að nokkru muni fyrir bændur.
En annað innlent fóður væri
líklega hægt að fá að norðan ; það
er fóðurmjöl þaö, sem búið er tíl
úr sild á Siglufirði og í Eyjafirði
og jafnvel að vestan úr fiskiúr-
gangi á Önundarfirði.
F.f bændur vildu hagný.ta sér
fóðurbætir þennan, yrði að panta
hann sem fyrst með hinum fáu
haustferðum, sem eftir eru, og áð-
ur en birgðir eru fluttar út.
Hey og fóðurbæti frá útlöndum
mætti sennilegast fá ódýrast flutt-
an hingað með skiputn þeim, er
koma til að flytja fé í haust, og
ætti helzt að fá undanþágu á
vörutoll af fóðrinu. Verst er, hvo
örðugir eru flutningar á fóðrinu
ftá kaupstöðum upp í sveit, á
meöan engar járnbrautir eru.
Þá þyrfti að hugsa um, hvernig
bezt yrði að koma í verð þeim
búpeningi, er óhjákvæmilegt væri
að farga.
Eg geri ráð fyrir að bændur
skeri eitthvað af kúm sínum heima
fyrir, en selji sumar til Reykja- .
vikur til slátrunar. En til athug-
unar kæmi. hvort ekki væri til-
tækilegt að selja kýrnar til lífs,
annað hvört í kaupstað, þar sem
hægt er að afla sér aðflutts fóð-
urs, eða i þær sveitir hér á landi,
þar sem vel hefir heyast, eða jafn-
vel útlanda. íslenzkar kýr hafa
orö á sér í útlöndum seni gððajr
mjólkurkýr, og væri alls ekki ó-
lmgsanlegt að útlendngar vildu
kaupa þær.
Miklu verður eflauts fargað af 1
sauöfé.
Hér er i bænum maðúr, sem
vill kaupa alt að 15000 fjár og
flytja lifandi á nýjan markað á
Þýzkalandi, en getur aðeðins feng-
ið 3—4000. Hvort þetta er
ábyggileg tilraun veit eg
ekki; mörg skilyrði þurfa að vera
fyrir hendi, ef vel á að takast.
Bændur þyrftu að hafa umboðs-
mann, sem fær sé um að gefa
upplýsingar og bendingar, svo alt
lendi ekki í handaskolum, þeim, og
kaupendum til stórtjóns.
Verð á saltkjöti er óvenjuhátt í
ár, en í framtíöinni mun fást bezt
verð fyrir dilkakjöt með því að
senda það út kælt eða frosið.
Sláturfélögunum hefir tekist vel
að koma saltkjötinu i álit með því
að vanda sem bezt allan frágang
og útbúnað á því, og Sláturfélag
Suðurlands er nú að byggja stórt
kælihús, sem ætti að koma í góð-
ar þarfir í firamtíðinni. ,
Eitt atriði, sem kemur til yfir-
vegunar fyrir bændur, þegar þeir
nú neyðast til að minka bústofn
sinn vegna fóðurskorts, er spurn-
ingin, hvort ekki lmrgi sig lietur,
þegar verð á dilkakjöti hækkar en
smjörverð stendur i stað, að fækka
heldur kúm, en reyna að lialda sem
mest í fjárstofninn.
Danir hafa oft skift um með
framleiðslu á kjöti, smjöri og
korni, eftir því hvað bezt borgar
sig í svipinn, og ýmsir stóreigna-
bændur eru nú þar að reyna að
koma upp fjárbúum hjá sér.
Fjárrækt ætti ekki siður að borga
sig bezt hjá okkur, nema þar sem
sérstaklega hagar vel til fyrir kúa-
bú.
Að lokum vildi eg benda kaup-
staðabúum á, hvort ekki væri til-
tækilegt fyrir þá aö senda hesta,
er þeir láta í fóður, norður í land
til að létta þeim af heyjum sunn-
lenzku bændanna. \
Eg hef viljað riða á vaðiöi með
að hreyfa þessum málum, sern
standa í sambandi við heyskort-
inn, en vona, að aðrir mér færarí
taki þau til nánari athugunar og
framkvæmda.
Eg efast ekki um, að samvinnu-
félög bænda, gömul og ný, komi
héf að góðu liði.
D. Thomsen.
—L'ógrctta.
Alþjóða-kvennaþingið
í Búdapest.
Eftir frú Bríet Bjarnhéðinsdóttur.
Sunnudaginn 15. Júní kl. 12 á
hádegi hófst eiginlega alþjóða-
þingið, með messugerð í lútersku
kirkjunni í Ofen. Þar prédikaöi
kvenpresturinn dr. Anna Shaw
frá Ameríku og Rev. Spencer frá
Ástraliu. Kirkjan var svo troð-
full að ekki var stungið niður
fæti og fjöldi varð frá að hverfa.
Eftir messuna fóru allir fundar-
gestirnir með litlum gufubátum
yfir Dóná að þinghúsinu, því þar
uppi á hinum fögru, víðsýnu þing-
hússvölum var okkur búinn morg-
unverður. Borðin voru öll prýdd
rósum og við hvern disk lá papp-
írsveifa — með áletruðum auglýs-
ingum, auðsjáanlega með þeim
tvöfalda tilgangi, að fundarkonur
gætu, ef ekki væri öðru betra að
veifa, notað þær til að kæla sér,
og um leið láta þær verða að lesa
auglýsingarnar.
Kl. 4 síðd. skyldi hin hátíðlega
þingsetning fara fram i- liinum
fagra sal tónlistaháskólans, sem
var alveg troðfullur. Leiksviðið
eða pallurinn, þar sem hljóðfæra-
flokkurinn stóð, fór smáhækkandi.
var hæstur aftast. Fremst sátu
stjórnarkonur alþjóðafélagsins. Dr.
Aladin Renyi ffrægt tónskáld
Ungverjaj, hafði samið lagið, sem
hljóðfæraflokkur þjóðleikhússins i
Búdapest lék af mestu snild.
Kvæðaflokkur var einnig orktur
fyrir þetta tækifæri, sem tvær ung-
verskar leikkonur lásu upp, önnur
á ungversku, og var hún í mjög
skrautlegum, gömlum ungverskum
aðalskvenna-þjóðbúningi, úr dökk-
rauðu flauelr og mjög gullsaum-
uðum. en hin leikkonan las það
upp á ensku. Hún var í venju-
legum kjólbúningi.
Þegar upplestrinum var lokið,
fengum við óvænta viðbót á dag-
skrána : Stór fylking hvítklæddra
barna kom inn, tvö og tvö sam-
hliða, bæði stúlkur og drengir frá
5—12 ára gömul, öll með stóra og
fagra rósvendi í höndunum. Þau
gengu öll i röðum framfyrir for-
mann alþjóða kvenfél., Mrs. Carrie
Chapmann Catt, lineigðu sig og
lögðu blómvendina fyrir fætur
hennar. Fremsta telpan, sem bar
blómskreyttan staf, nam staðar og
hélt stutta ræðu, þar sem hún
þakkaði Mrs. Catt fyrir alt henn-
ar erfiði og fyrirhöfn fyrir vel-
ferð allra þeirra ungu, og hét þvi,
aði þegar þau kæmu til vits og ára,
þá skyldu þau halda verkinu áfram
og notfæra sér það, sem fengist
hefði. — Börnin voru svo inndæl,
saklaus og elskuleg, að margir
fengu tár í augun, eins og Mrs.
Catt, þegar hún þakkaði þeim
smábrosandi þessa fallegu hyllingu.
Greifafrú Teleki, formaður mót-
tökunefndarinnar, sem er rithöf-
undur og ]x) ung kona, hélt nú
kveðjuræðu og bauð gestina vel-
komna, og sömuleiðis kenslukona
við stúdentaskólann þar, frk Vilma
Glúcklick, sem er formaður í
“Feministák Egyesúlete”. Og svo
kom það hátiðlega augnablik, þeg-
ar kenslumálaráðherra Ungverja,
dr. Béla v. Jankovich, fyrir hönd
ungversku stjómarinnar, bauö
fundargestina velkomna; og borg-
arstjórinn, dr. Stephan v. Barezy,
i Búdapest gerði það sama, fyrir
höndu höfuðstaðar ríkisins og aðl-
seturs stjómarinnar.
Þá stóð Mrs. Capmann Catt
upp og hélt sina “hátiðar”-ræðu.
Var hún meistaralega samin bæði
að efni og formi. Var það yfir-
leitt yfir það, hvað kvenréttinda-
málunum hefði þokað áfram á
þessum síðustu tveim árum, síðan
á alþjóðaþinginu i Stokkhólmi
191X. Þljóðir og stjómir tækju
vaxandi tillit til þeirra, ýms lönd
lieföu veitt konum kosningarrétt
síðan, og hér væru riú.ii fulltrúar
frá ýmsupi löndum, er allir höfðu
ópinber.an styrk. Fjórir þeirra, eða
fleiri, væru stjórnarfulltrúar.
Um kveldið vorum við allar
boðnar á þjóöleikhúsið, þar sem
frægustu leikarar Ung\ærja léku
fÚr kvennabúrinu” og lítinn dans-
leik á eftir Orðin skildum við
ekki, en leikinn sáum við, og söng-
ur og dans er alþjóðaeign, sem all-
ir skilja meira eða minna í.
Daginn áður en þann 14. hafði
veriö nokkurs konar hátíöahald.
Þá var sem sé útfarardagur hinn-
ar ensku suffragettu Emil}’’ Davis.
Hin énska fræga suffragetta Mrs.
Cobden-Sanderson, dóttir Cobdens,
hins nafnkunna verkamannaþingý
manns Breta, lét þá kl. 3 síödegis
halda sorgarsamkomu i minningu
Miss Davis. Spencer prestur hélt
þar ræöu og Mrs. Spencer-Sander-
son, sem fáir gátu hjustað óklökkir
á. Hún lýsti því, hvernig hin
dána kona hefði lagt alt i sölurnar
fyrir það mál, sem hún hefði álit-
ið mesta og bezta mál nútíðarinn-
ar.
Þingfundirnir
byrjuðu þann 16. Júní. Eitt af
fyrstu málum á dagskránni, sem
tekiö var til umræðu, var um aö-
ferðir ensku suffregettanna.
Stjórn Alliances höfðu borist svo
margar áskoranir, ýmist um að
ofrdæma rit suffragettanna, eða
gefa þeim hluttekningarvott um
fundarsamþykt. Stjórnin þóttist
því ekki megá sitja hjá, án þess að
gera eitthvað. En með því að lög
Alþjóðakvenfél. fyrirbjóða konum
að skifta sér nokkuð af aðferðum
hverrar þjóðar til að ná kosning-
arréttartakmarkinu, þá áleit stjórn-
in sambandsþingiö ekki hafa rétt
til að gera neitt í þessu máli, og
vildi því taka fyrir allan misskiln-
ing, sem sprottið gæti út af því.
Svolátandi stjórnartillaga var því
borin upp i þessu máli;
“Með því að alþjóða-kosninga-
samband kvenna er skyldugt sam-
kvæmt lögum sínum, til að vera
stranglega hlutlaust í öllum máf-
um, sem snerta stjórnmál hinna
ólíku landa, sem í Sambandinu eru
og aðferðir þær, sera konur nota
til að ná markmiði sínu, þá getur
þetta þing ekkert álit látiö í ljósi,
sem sé með eða móti aðferðum
suffragettanna.
Sömuleiðis: Með því að pólitisk
upphlaup, stjórnarbyltingar og alls-
konar uppreisnir, sem karmenn
hafa gert, hafa aldrei verið not-
aðar sem ástæða gegn kosningar-
rétti karlmenna, þá mótmælum vér
þvi, að óvinir kosningarréttar-
kvenna noti þær bragða-að-
ferðir, sem mikill minni hluti
kvenna í einu landi hefir gripið til,
sem ástæðu til að neita* konum i
öllum öðrum löndum heimsins um
pólitiskan kosningarrétt”.
Um þetta mál urðu nokkrar
umræður. En tillaga stjórnarinn-
ar var svo skynsamleg og lögum
Sambandsins samkvæm, að hún var
samþykt með yfirleitt öllum at-
kvæðum.
Þar næst kom til umræðu, hvaða
stöðu systrafulltrúar ý'fraternal
delegates”J frá hinum ýmsu félög-
um, sem ekki væru i Sambandinu;
fAlliancenj, skyldu hafa á fund-
inum. Áður hafði einn slíkur full-
trúi frá hverju landsfélagi, sem
ekki var í félaginu, fengið um-
ræðurétt á fundinum, en auðvitað
ekki tillögurétt. Nú var hluttaka
óviökomandi félaga og prívat-
manna svó mikil, að þegar fund-
urinn var settur, voru þátttakend-
ur 2800. Af þeim voru aðalfull-
trúar líklega ekki mikið yfir 250
til 300. Þegar svo þar við bættist
miklu meiri fjöldi af systra-full-
trúurn, sem allir vildu fá að taka
þátt í umræðunum, þá má nærri
geta, að sá tími, sem fundinum
var ætlaður til að ljúka málum
sinum. var alt of stuttur, og að
margt yrði eftir ógert. Umræð-
urnar um það mál tóku yfir 3
fundi, og varð þó aldrei til fulls
afgreitt. Á þessum fundum vildu
ýmsir, að systrafulltrúar fengju að
tala, en að næsta alþjóðaþingi yrði
falið að afgreiða þetta mál. Rev.
Anna Shaw frá Ameríku hélt því
fram, að systrafulltrúar fengju
umræðuleyfi, ef “delegationen”
frá því landi gæfu þeim meðmæli
sín, og virtust flestir vera á þvi
máli.
Á mánudagskveldið 16. Júni
voru svo fulltrúarnir og fleiri af
gestunum boðnir í nokkurs konar
veislu hjá bæjarstjórninni, sem
haldin var 5 hinni gömlu kastala-
eða virkis-byggingu, “Ficher
Bastion”, sem stendur upp á hæð-
inni fyrir ofan Ofen. Voru þar
hermenn í einkennisbúningi við
innganginn. Þar voru ræður
haldnar af fulltrúum 10—12 landa.
Hin löndin áttu að halda sínar
ræður í skilnaðarveislunni þann
20. Júní. —öLgrétta.
jy^ARKET jjotel
Vit5 sölutorgið og City Hall
$1.00 til $1.50 á dag
Eigandi: P. O’CONNELL.
Fluttur!
Vegna þess að verkstæð-
iö ,sem eg hef haft að
undanförnu er orðið mér
ónóg, hef eg orðið að fá
mér stærra og betra pláss
sem er rétt fyrir norðan
William, á Sherbrooke.
Þetta vil eg biðja við-
skiftamenn mína að at-
huga.
G.L.STEPHENSON
The PlLmber ”
Talsími Garry 2154
885 Sherbrook St., W’peg.
Frá íslandi.
Reykjavík 17. Sept.
í gær voru gefin saman í dóm-
kirkjunni séra Tryggvi Þórhalls-
son biskups og frk. Anna Klemens-
dóttir landritara.
Þingmenn eru nú allir farnir
héðan heimleiðis, þeir sem utan
Rvíkur búa, margir með “Hólum”
í fyrra dag suður og austur um
land, en aðrir með “Flóru” í
morgun norður um land. Austan-
fjalls-þingmennirnir 4 fóru í bíl
austur í fyrra dag.
Með “Hólum” fóru auk þing-
manna, Stefán Jóhannsson á Mið-
skeri í Nesjum í Hornafirði, áður
í Jórvík í Breiðdal, er dvalið hef-
ir hér syðra um hríð, Vigfús Ein-
arsson lögfræðingur o. fl. Dr.
Valt. Guðm. fór með “Hólum” til
Seyðisfjarðar.
*
Kvæðaupplestur Jóns Runólfs-
sonar síðastl. laugardag. sem um
var getið i síðasta tbl., var allvel
sóttur og honum, vel tekið af
áheyrendum. Gerir Jón ráð fyrir
að halda hér oftar slíkar skemt-
anir.
“Svanhvít”, ljóðmæli eftir ýmsa
fræga höf-. í þýðingum eftir
Matth. Jochumsson og Stgr. Thor-
steinsson, er nú gefið út á ný af
Jón. Jóhannessyni kaupm. Þetta
er, eins og mörgum er kunnugt.
ágæt bók.
Stúdentspróf tók nýlega við
mentaskólann Björn Oddson,
prentsmiðjueigandi á Akureyri,
og hlaut 72 st. Hann var veikur,
er próf fór fram í vor.
Maður sem kom frá Kolviðar-
hóli síðastl. sunnudag, segir, að
öllum kílómetrasteinunum á leið-
inni þaðan og hingað til bæjarins,
að einum undanteknum, sé rutt
um, og meir að segja sumstaðar
einnig fótstallasteinunum velt við.
Sá eini, sem stendur, óhaggaður,
er við Sandskeiðið, eða þar skamt
fyrir ofan. Þétta skemdarverk er
unnið nú ekki fyrir löngu. Mað-
urinn, sem þetta er haft eftir, er
Sigurður Halldórsson snikkari.
Hann fór um veginn næst áður
nálægt 20. Ágúst og voru þá stein-
arnir uppistandandi.
Þetta er ljótt skemdarverk og
ætti að varða strangri hegningu,
ef upp kæmist, hver, eða hverjir,
séu að þvi valdir.
Prófastar eru skipaðir séra
Kristinn Daníelsson á Útskálum
og séra Skúli Skúlason 1 Odda.
Séra Jón á Staðastað var hér
nýlega á ferð. Hann lét illa af
heyfeng manna í sínu bygðarlagi.
Ofan á óþurkana hefir það bæst,
að hey hafa víða fokið. Hann
liefir sjálfur á þann liátt tvivegis
mist mikið hey í sumar, í siðara
skiftið, nú nýlega, um 100 liesta.
Reykjavík 24. Sept.
Matth. Þórðarson þjóðmenjan
vörður hefir af Stúdentafélaginu
hér verið kosinn fulltrúi á aldar-
afmæli norska stúdentafélagsins.
Þingið veitti til fararinnar 600 kr.
Ben. Sveinsson ritstj., er áður
hafði verið kosinn, vddi ekki fara.
Sigurður Magnússon læknir á
Vifilsstöðum er fyrir nokkru kom-
inn heim aftur úr ferð til Dan-
merkur ásamt frú sinni.
Thor Jensen framkvæmdarstjóri
og frú hans eru nýlega komin
heim frá útlöndum. 1 “Politiken”
frá 5. þ. m. er viðtal við hann um
eimskipafélagsstofnunina hér og
mynd af honum.
ALLAN LINE
Konungleg Póstgufuskip
VETRAR-FERDIR
Frá St. John og Halifax Frá Portland
til til
Liverpool og Glasgow Glasgow
FARGJOLD
A FYltSTA FARRÝMI..$80.00 og npp
A ÖÐRU FARRÝMI........$47.50
A pRIÐJA FARRÍMI......831.35
Fargjald frá íslandi
(Emigration rate)
Fyrir 12 ára og eldri...... $56.1®
“ 5 til 12 ára.......... 28.05
“ 2 til 5 ára....... 18,95
“ 1 til 2 ára......... 13-55
“ börn á 1. ári.......... 2.70
Allar frekari upplýsingar um gufuskipaferðirnar, far
bréf og fargjöld gefur umboðsmaður vor H. S. BARDAL
horni Sherbrooke og Elgin, Winnipeg, sem annast um far-
gjalda sendingar til íslands fyrir þá sem til hans leita.
W. R. ALLAN
364 Main St., Winnlpeg. Aðalnmboðsmaður Testanlands.
Hugsið fyrir jólaferðinni
LÁGT FARGJILD TIL BAKA
Farbréf seld á hverjum degi. Nóv. 7. til Dec. 31.
af
CANADIAN NORTHERN RAILWAY
TIL HAFNA VIÐ ATLANTSHAF
í sambandi við farbréf til
Heimalandsins og Evrópu-landa
Pantið snemma farbréf, og tryggið yður góð pláss.
Komið, fónið eða skrifið einhverjum umboðsmanni Can-
adian Northern; þeir munu fúslega gefa allar upplýsingar.
J. I1. McGuire, G. S. Belyea, R. Creelman,
City Ticket Ag’t, North End A’cy, Gen.Pass.Agt-
Port. & Main, 583 Main St., Union Station
Winnipeg. Winnipeg. Winnipeg
Main 1066 og 2951. Phones: M. 1989 og M. 5566-5567^
Vilhjálmur Finsen loftskeyta-
fræðingur er nýlega kominn hing-
að til bæjarins ásamt konu og
börnuin og setjast þau liér að.
Rektor við mentaskólann er Geir
T. Zoega yfirkennari settur.
Nýr bill er kominn til Ixejarins
og á að leigjast til ferða og flutn-
inga á sama hátt og bíll Sveins
Oddsonar. Þessi nýi bíll er af
sömu gerð og stærð. Eigendur eru
Sig. Guðmundsson og Oddur Jóns-
son. — Bíll er myndað af alheims-
orðinu “automobil” alveg á sama
hátt og fónn af “telefon”.
Jón Helgason prentari, sem a'ð
undanförnu hefir veitt forstöðu
prentsmiðju “Suðurlands” á Eyr-
arbakka og gefið þar út “Heimilis-
blaðið”, er nú kominn hingað til
Rvjkur, sestur hér að og vinnur í
Pélagsprentsmiðjunni.
Blaðið “Reykjavík” hefir Egg- t
ert Claessen málaflutningsmaður
keypt af Gutenbergsprentsmiðju,
er, gefið hefir það út síðatsl. 3 ár.
Ritstjóri er eftir eigendaskiftiri
hinn sanii og áður, Kr. Linnet lög-
fræðingur. L H. Bjarnason pró-
fessor bauð einnig í blaðið, og var
það selt fyrir 2,626 kr.
Prestsembættið |Hestþing í
Borgarfirði var veitt séra Tryggva
Þórhallssyni 16. þ. m., á brúð-
kaupsdegi hans. í sumar hefir
hann verið þar settur prestur.
Fríkirkjumenn i Hafnarfirði eru
nú að reisa guðsþjónustuhús, uppi
i hrauninu, rétt í miðjum bænum.
Það er timburkirkja og á að kosta
8000 kr. “Rvík” segir að J.
Reykdal bóndi á Setbergi gefi
kirkjunni 1000 kr. til orgelkaupa.
Smjörsalan til Englands segir
“Suðurl.” frá 6. þ. m. að gengið
'hafi ver í sumar en tvö undanfarin
ár, en sé nú að batna. “Veröið
hefir oftast verið neðan við 90 au.,
Rétt það sem
ÞIG vantaði!
Ef þú þarft að vera í mjúkrileðju,
votum áburði, eða vinna á smjör-
búi, þvottahúsi, slátrunarhúsi þá
þarftu að eignast eina af vorum
Tré-
sóluðu
stíg-
vélum
Fóðr-
aðir
FLÓKA
$1L5
^or$22?
Pelivered Free
Allar stærðir, fyrir karlmenn, kon-
ur. pilta og stúlkur. SAMA VERÐ.
Biðj ð kaupmann yðar um J>á eða
sendið pantanir beint til vor.
The SCOTTISH WHOLESALE
SPECIALTY CO.
263 TalbotAve., Winnipes
en heldur yfir það nú síðast”, seg-
ir blaðið.
—Lögrétta.
Reykjavík 24. Sept.
Hrannir heitir ný ljóðabók eftir
Einar Benediktsson, sem Sigurður
Kristjánsson gefur út. — Þessar-
ar bókar mun bráðlega minst hér
í blaðinu.