Lögberg - 30.04.1914, Side 5

Lögberg - 30.04.1914, Side 5
5 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. APBÍL 1914 The Empire Sash & Door Co. ----------------Limited - WÍNNIPEG HENRY AVE. EAST VIÐUR ”LATH“ ÞAKSPÓNN Fljót afgreiðsla. Ábyrgst að kaupendur séu ánægðir betur beitt kröftum sínum til upp- byggingar fyrir sig og sitt þjóðfé- lag. Þegar mönnum er kent jöfn- um höndum aö framleiöa björg úr jarövegi landsins, eins og lögfræði. Þegar jafnmikil áherzla er lögð á það, aö kenna mönnuin aö beita kröftum sínum viö hin “praktisku” skyldustörf lífsins, eins og aö und- irbúa þá undir hinar svo kölluöu læröu stööur. Þá þarf enginn maöur aö vera iðjulaus, þá þurfa öngvir kraftar aö tapast, þá verö- ur hver vinnandi maöur i landinu framleiöandi, þá fæst enginn maö- ur til þess aö svikja lit, af því þaö er skömm. Þá standa menn sam- hliða og beita kröftum sínum rétt, viö hin þýöingarmiklu og erfiðu spursmál, af þvi menn skilja skyldu sína og gjöra hana; þá kemur sumariö inn í hiö íslenzka þjóölif. Þá rættist lika þessi fagra hugsjón. Sú kemur tiö, er sárin foldar gróa sveitirnar fyllast, akrar hylja móa brauö veitir sonum móöir moldin frjóa tnenningin vex í lundi nýrra skóga. En þaö ár meö sumariö í lifi þjóöanna, eins og í riki náttúr- unnar, það kemur ekki alt í einu. Þegar fer aö líða á veturinn, og hinir. hlýju sólskinsdagar fara að koma, þá vitum vér aö sumarið er i nánd. Á einn slikan sólskinsdag í lifi íslenzku þjóöarinnar, langar mig til aö minnast, dag, sem hefir merki vorsins yfir sér, skýrara en flestir aörir; þaö er 17. Janúar 1914, stofnfundur Eimskipafélags íslands. Eg bendi ekki á þennan dag einungis af því, aö þaö sem þá fór fram, sé nokkuð sérstakt á íramfara braut þjóöanna. Slík fyrirtæki eru daglegir viöburöir hjá hinum ýmsu þjóöum, eöa fyr- irtæki sem stefna í sumu átt. Ekki heldur af því, aö þjóö vorri hefir skilist þaö, aö eini vegurinn til menningarlegs og efnalegs sjálf- stæöis, er þaö aö ráöa fyrir verzl- un sinni og flutningsfærum, og eini vegurinn til þess sé aö brjóta af sér hlekki einoktinar þrældóms-. ins, sem hún hefir i þessu sam- bandi stuniö undir í marga manns- aldra. Né heldur af því, aö þetta fyrirtæki er hiö stórkostlegasta og þýöingarmesta, sem hún hefir haft meö höndum síöan á landnáms tiö. Og ekki heldtir af því, aö meö þvi aö leggja út i þetta, sýni þjóöin aö hún á enn hiö íslenzka þrek. Heldur af því aö í þetta skifti hefir komiö fram hjá þjóöinni sú dygö, sem maður var farinn aö efast um aö hún ætti til, nefnilega, aö vera samtaka. Eg er alveg viss um, aö engum okkar, og jafnvel ekki forgöngumönnum þessa mál- efnis heima á íslandi, datt í hug, aö íslenzka þjóöin gæti gjört þaö, sem hún er búin að gjöra í þessu máli. Eg veit að menn hafa hugs- að nú eins og oftar myndu margir veröa á móti og margir svikja lit, en þaö varö ekki. Engir Uröu á móti og enginn sveik lit, og á ör- stuttum tima lögöu þessar 85,000 manneskjur fram 340,000 kr., til þessa fyrirtækis, nálega 4 kr. á hvert mannsbarn á landinu, og borguðu þaö aö fullu. Þetta er myndarlega gjört, og ber vott um óskiftan vilja i þessu máli. Annaö í sambandi vfö þetta mál, sem hef- ir komið fram skýrara, en eg hefi áöur veitt eftirtekt, vil eg benda á, og þaö er ósérplægnin. Hvað menn hafa verið fúsir á aö greiða götu þessa máls, boönir og búnir til aö leggja fram tíma sinn . og peninga því til styrktar. Menn hafa lagt fram krafta sina til aö veröa góöu máli aö liði, en ekki fyrir peninga. Og menn. sem annars eru mjög óliklegir til sam- vinnu. menn sem vanalega stóöu uppi i hárinu hver á öörum, hafa unnið saman. Staðið saman sem bræöur i þessu máli. Þ'aö er sem til- finning sú sem skáldiö lýsir svo fagurlega, hafi talaö hærra i hjörtum þeirra en alt annaö: Þa« er eitt sem oss bindur aö elska vort land, %rir ofan alt striö, fyrir handan þess sand, **e* þess hlutverk 5 höndunum fáu ei*s og straumur þess blandast, um láö, yfir lá sical hér lífsstarf af samtaka þús- urídum há, ' þar sem hafbrún og tindur meö tign yfir brá setja takmörkin fjarlægu háu. Eg hef veriö spuröur: Til hvers er öll þessi vinna, þessi von, mun ekki þetta skilduverk þjóðarinnar mishepnast, munu þessar þúsundir mega sin nokkuð á móti því afli, sem fyrir er, og viö er aö etja? Félagi meö margra ára reynslu, meö skip siglandi imi flest höf heimsins og meö miljón- ir króna — hinu alþektu Samein- aöa Eiinskipafélagi Dana. Hvaö eiga íslendingar til þess aö láta í metaskálina á móti? Peninga? Nei, þjóö vor hefir aldrei veriö auðug af peningum. Praktiska reynslu? Því er ver, aö enn sem komið er, héfir Islenzka þjóöin alt of litiö af þeirri reynslu. Hvaö hefir hún þá til þess aö vega upp á móti reynslunni og krónunum dönsku. Ekkert nema íslenzkan dréngskap; og livort aö meira má sin, krónumar dönsku eöa islenzki drengskapurinn, úr því verður tíminn aö skera. En spá mín er þaö, aö þegar dönsku krónumar eru slitnar og gleymdar, veröi ís- lenzkttr drengskapur i heiðri hafö- ur. Eg hefi áður tekið þaö fram, að það mesta hrós, sem hægt sé að segja um einn ntann, eöa eina þjóö, sé aö hún eöa hann, liafi öömm fremur hjálpaö til þess aö flytja sumariö inn í líf einstaklinga eöa heildar, og eins og vorboöinn i riki náttúrunnar gleöur alla, eins er og vissan, aö þaö er ekki til íslend- ingur í Iandi Leifs hepna, sem ekki gleöst hjartanlega yfir hverj- um sólbjörtum vordegi í lífi þjóö- ar sinnar, og þá ekki sizt yfir þessum, þar sem vér sjálfir eigum ítak í honum. Aö sjálfsögðu heföum vér getað ávaxtaö peninga þá, sem vér höf- um lagt fram til þessa fyrirtækis hér hjá oss, og fengið vextina greidda árlega í skýru gulli — og hvaö þetta orð gull er aðgengilegt. En vinir, gullið er fallvelt, eins og vér emm sálf. Eg segi, vér höf- um ávaxtað þessa peninga vel, þvi þótt vér fengjum enga véxti borgaöa, þá bera þeir samt ávöxt í lifi hinnar íslenzku þjóöar, ekki einungis í dag og á morgun, held- ur líka um eilifa tíö. Saga Roblinstiórnarinn- arog bindmdismanna í Manitoba. í síöasta þlaöi Iyögbergs var þvi lofaö, aö sagt skyldi frá starfi Roblins í þarfir bindindismálsins. Skal þaö loforð hér meö efnt og hvergi hallað sannleika vísvitandi; fari svo aö þar sé nokkur villa, þá eru fúslega teknar leiöréttingar. Því hefir verið haldið fram af Roblinstjórninni, aö þá fyrst hafi málefnum bindindismanna veriö vel borgið, þegar Greenway stjórn- in fór frá og Roblin komst aö. Skal hér fylgt bindindissögunni fet fyrir fet, eða svo aö segja ár frá ári, það er aö segja, þau árin sem nokkuö liefir verið gjört í sambandi við það mál. Eg hefi fylgst meö þessu máli frá byrjun, kom hingað vestur 1899, einmitt þegar bardaginn var aö byrja; þaö voru þá bindindismennirnir, sem íhaldsflokkurinn snéri sér til og bað sér liðs, meö þeim loforðum aö semja, samþykkja og koma í framkvæmd vínsölubannslögunum. Eg trúði þvi þá aö loforðin yröu efnd og eg vann eins og vit og kraftar leyfðu í Desember um haustið, til þess aö koma íhalds- mönnum aö, og gjöröi þaö í góöu trausti, eins og allir aörir bindind- ismenn; en það segi eg satt, aö þess hefir mig iörað, og svo er meö fleiri. Sagan er þannig; Árið 1898. Uin þetta leyti var Roblin leiö- togi íhaldsflokksins. í Febrúar- mánuði það ár mælti hann á'móti bindindislöggjöf Greenways stjóm- arinnar af því hún fœrx þar of langt, væri á undan tímanum. "Sú löggjöf er svo langt á und- an kröfum fólksins’’ sagði hann, “að þjóðin veitir ekki aöstoö viö framkvæmd hennar, og þeir menn, sem hafa sig til aö segja frá lögbrotum i þessa átt, væru hinir lélegustu og litilfjörlegustu menn þessa mannfélags, sem til væru.” Árið 1899. 1 Júlí var þaö sampyKt aö efth- farandi yfirlýsing skyldi tekin upp i stefnuskrá íhaldsflokksins: "Aö lög séu samin til þess aö veita fólk- inu vilja þess í bindindismálinu; skulu þau lög fara eins langt og stjómarskrá fylkisins leyfir í því að banna sölu áfengra drykkja. Sjöunda Desember sama ár fóru fram fylkiskosningar og Ihalds- menn komust að. Þá vom vínsölu- leyfi í fylkinu alls og alls 167, en höfðu verið 216 áriö 1888, þegar Greenway stjómin tók við völd- um, þetta hafði hún þó gjört. Árið 1900. John McDonald tók viö völdum í Janúar þaö ár. 11. Júní sama ár, seniur hann lög um vinsölubann í fylkinu og fómst honum þannig orö: “Þegar eg lofaöi vínsölubanni og baö fólkiö um fylgi meö því loforði, þá var það ætlun mín aö efna heit mitt í þvi efni, og það er ætlun min enn.” 13. Júní studdi C. H. Campbelí vínsölufrumvarpið og sagði: “Eg er persónulega sannfæröur um, að þessi lög em samkvæm grundvaliarlögum fylkisins og rik- isins, og aö þau mundu verða sig- ursæl i framkvæmdinni, til þess aö koma í veg fyrir vínsöluna.” 14. Júní voru lög semþykt í þinginu o,g ákveðið að þau skyldu öðlast gildi 1. Júni 1901. Árið 1901. I Febrúar voru samþykt lög í Manitobaþinginu, þess efnis aö framlengja vinsölutímann til 1. Júní 1902, til þess að hafa tíma til að láta leyndarráð Breta segja álit sitt um gildi bannlaganna. 22. Nóvember gaf leyndarráöiö þann úrskurð, að lögin kæmu hvergi í bága við stjórnarskrá landsins, og full heimild væri til þess að láta þau öðlast gildi. 29. Nóv. var Roblin í Toronto. Sagði hann þá við fréttaritara “The World”, að bannlögin væru ekki verk þeirrar stjómar, sem þá væri aö völdum i Manitoba, og enginn áhugi hefði veriö sýndur fyrir þeim, þegar þau voru til um- ræðu í þinginu. Hann kvaö það ósatt aö vinsölubann hefiö verið aðalatriöi í stefnuskrá John Mc- donalds. C. H. Campbell kvað þaö rétt vera aö enginn áhugi heföi verið fyrir fmmvarpinu, þegar það var rætt á þingi. Árið 1902 6. Jan. segir Roblin að þaö sé nauðsynlegt að komast að raun um livert i fylkinu séu nægilega sterk- ur almenningsvilji, til þess að af- saka stjórnina í þvi að láta lögin ganga i gildi. 12. Jan. hélt R. Rogers ræöu á íhaldsmanna fundi og sagöi aö þjóðar atkvæöi freferendumj yröi aö fara fram. áður en bannlögin gætu öðlast gildi. 15. Janúar var haldinn almennur fundur í Grace kirkjunni og þess- ari tilvonandi atkvæðagreiöslu sterklega mótmælt. J. A. Andrews fyrverandi borg- arstjóri fór höröurn oröum um stjórnina fyrir svikin, og skoraöi á þingmenn Ihaldsmanna, þeirra er bindindi væru hlyntir, að greiöa at- kvæöi á móti stjórninni, í þessu atriði. 21. Jan. skrifar Roblin W. R. Mulock og fer hörðum orðum um bannlög John McDonalds; kveður þau alls ekki vera nein bannlög. 22. Jan. ritar hann bréf til séra Holling og segir: "Stjómin og íhaldsflokkurinn er þes$ fús aö fara lengra i vínbannsáttina, en nokkur stjóm í Manitoba hefir nokkru sinni gjört áöur; en þeir sem stjórnina styöja aö málum, eru ekki hlyntir óhindraöri vin- verzlun, eins og ákveöið er í lög- unum, nema þvi að eins, að fólkið sé látiö skera úr, hvort svo skuli vera. 19- Febr. bar C. H. Campbell upp frumvarp í þinginu um það, að þjóðaratkvæöi skuli tekin um lögin. Kvaö hann vinsölubann einu sinni aldrei hafa veriö nefnt í ræöufalli fyrir síöustu kosning- ar, sér vitanlega. Kvað hann það vera óskynsamlegt í mesta máta, aö gefa þessum lögum gildi, án þess fyrst að leita samþykkis fólksins. 2. April voru atkvæöin tekin og vom 15,607 atkvæöi meö, en 22,464 á móti. Lögin voru því feld. • 22. April Iýsti “Dominion Alliance” því yfir í einu hljóöi á þingi, aö aldrei í sögu fylkisins heföi nokkur atkvæðagreiðsla, hvorki í fylkismálum, rikismálum né sveitamálum, veriö háö meö eins miklum svikum, meinsærum og lögbrotum, eins og þessi af hálfu stjórnarinnar. fFramhald næst). Glœp afrásagnir blaða. Þaö hefir sannast við réttarpróf i sakamálum, sem hafa veriö gegn unglingum fyrir glæpi, aö þá fyrst hafi þeim ('unglingunumj dottiö í hug að fremja glæpinn, er þeir höfðu séö hann leikinn á kvik- myndaleikhúsi. Þetta þykir nú orðið svo margsannaö, aö glæpa- sýningar á kvikmyndaleikhúsum hafa orðiö álitnar leiöbeining eða kensla í því, aö fremja glæpi. — 1 Því er þaö, aö nú mun víöa alger- lega bannað aö sýna slíkar myndir. — En þótt kenslan í þvi, aö fremja glæpi, hafi verið gjörö brottræk úr leikhúsunum, þá fæst hún þó viku- lega, og jafnvel daglega, annars- staðar. — Hún fæst nefnil. í dag- blöðunum og vikublöðunum. Það munu ekki vera mörg tölublöð, sem ekki flytja frásögn um ein- hverskonar glæp, stundum fleiri en einn. — og um leið og glæpsins er getið, fylgir auövitaö nákvæm út- listun á því, hvcrnig glæpurinn hafi veriö framinn, hversu ógeðs- lega, hryllilega og sviviröilega sem það héfir verið. — Þatr t er kensl- an fólgin. — Blaðið, sem frásögn- ina flytur, gerir því tvent í einu: Það vekur athygli á verknaðinum, og sýnir jafnframt hvemig hann er framkvæmdur, ('og þá auövitað um leiö, hvemig hægt er aö fram- kvæma.hann afturj. — ■ Þótt það hafi nú, ef til vill, ekki orðið upplýst, að glæpafrásagnir blaða hafi á neinn hátt orðið til- efni til þess, aö glæpur hafi verið framinn, þá hnekkir það alls ekki þvi. að sú skoðun geti veriö rétt, að slíkar frásagnir blaðanna geti leitt til glæpsamlegra athafna. — Það liggur í augum uppi, aö slíkt sé einmitt mjög líklegt, fyrst glæpasýningar á leikhúsum hafa leitt slíkar athafnir af sér. — Því munurinn á því, að sýna glæpinn með lcik og aö sýna hann með ná- kvœmri frásögn í blaði, er ekki næsta mikill. — Það hljóta allir aö sjá. — Mín skoðun er sú, aö svo miklar likur séu til þess, aö blöðin geti haft lík áhrif í þessu efni og leik- húsin, að banna ætti með lögum allar glæpasýningar í blööum, og leggja viö háar sektir, ef brotið yrði útaf. — Or blöðunum mega þær hverfa, því engin uppbygging er í þeim. Enga mannssál geta þær glatt,, né göfgað; þær geta aö- eins vakiö hrylling í sálu margra og — ef til vill — glæpahvöt hjá einhverjum, sem annars heföi máske aldrei komið í ljós. — Mér sýnist blöðin hafa mikla siðferðislega ábyrgð í þessu efni.— Því, “miklu veldur sá, sem upp- hafinu veldur”. — Bjöm heitinn Jónsson, fyrrum ráðherra Islands, vakti tvisvar sinnum máls á þessu efni í blaöi sínu “ísafold”. Annarsstaðar hefi eg ekki séö hreyft viö því. Það var Birni heitnum líkast aö gera það. Því þaö er öllum kunnugt, hversu honum rann til rifja alt böl, öll ógæfa, sem margur maöurinn ratar í, og hvemig hann reyndi aö bæta kjör þeirra og hreinsa burtu og uppræta sáralindir mannlífsins. Mér sýnist þaö mundi veröa ódauðleg sœmd hverjum þeim mönnum eöa hverju þvi félagi, sem beitti sér fyrir þvi, aö fá glæpa- lýsingar geröar útlægar úr blöö- unum, annaöhvort meö samtökum ritstjóranna, hvaöa þjóöa sem þeir em, eöa þá meö lagaboði. — Vilja islenzku ritstjóramir gerast flytj- endur þessa máls? 26. Apríl 1914. /. S. Tollfrítt hveiti og Bord- enstjórnin. Hvernig stendur á því aö Bord- enstjómin vill ekki taka toll af hveiti og hveitimjöli? Þaö er margur bóndinn sem spyr svona, og er þaö ekki von? Þaö halda margir afturhaldsmenn því fram, að hveitikorn sé ekkert hærra fyrir sunnan linuna, en hérna megin. I fljótu bragði virðist vera nokkuö til í þvi, en.þegar betur er að gáö, þá er töluverður munur á, og skal hér leitast viö aö sanna þaö. Þann 11. þ. m. var verö á No. 1 Northern í Minneapolis 91 cent bushelið, en i Fort William og Port Arthur 895^0; en þegar þaö er athugaö, að No. 1 Northem sunnan viö Iín- una, er sama hveiti og No. 3 hinu- megin, þá er mismunurinn meiri. Þvi No. 3 Northern var 11. þ. m. 85^0 bush. austur í Fort William, þá er munurinn þ%c á bush. eöa $51,25 á þúsund bushelumy I sumar er leið fór bóndi hérnameg- in við línuna, suöur yfir línuna, hann kom aö kornhlööu i bænum sem liann var staddur í, þaö vildi þá svo til að bóndi einn kom rneð æki þangað af hveitikomi; hveiti- kaupmaðurinn flokkaði það No. 1 Northem og borgaði fvrir það 8ic TUE ALBERT GOUGH SDPPLT CO. BYGGINGAEFNI OG ALLAR VI ÐARTEGUNDIR OFFICK: 411 TRIBUNE BUILDINO - - PHONK: MAIN 1246 WARK HOU8K: WAIJL SRKKT. PHONE: SHKRBROOKK 2665 bush. Canadiski bóndinn baö stétt- arbróður sinn aö gefa sér sýnis- horn af því, og fékk þaö orðalaust. Þegar hann kom heim til sin, fór hann meö þaö til kornsölumanns- ins í sinum bæ, og sagðist hann ekki geta borgaö nema 64C fyrir bushelið, vegna þess, aö það yrði flokkað “rejected”, þvi það væru svo miklir villihafrar í þvi. Nú er eins og menn vita nóg af viUi- höfrum hér i Manitoba, og margir bændur, sem hafa þar af leiðandi nálega ekkert af hreinu hveitikorni. Þá tapá þeir bændur $170,00 á hverjum ioo«o bush., og er þaö ekkert smáræöi. Eg gæti komið með mörg dæmi svipuð þessu, en þess gerist ekki þörf, þaö yröi líka of langt mál. Nú býst eg viö að margur muni spyrja, hvemig standi á þessu, og skal eg þvi leitast viö aö útskýra þaö, með því að koma með eitt dæmi. Milli Port Arthur í Ontario og Buffalo í Bandaríkjunum, er flutningsgjald 1 / cent á busheliö; ferð skipanna fram og aftur tekur 10 daga, en á milli Fort Colbome og Montreal er flutningsgjaldiö 4 cent á busheliö, og hringferð skip- anna er sex dagar. Hvemig stendur á þessu? mun margur spyrja. Svarið er þetta; Banda- ríkja skipin keppa viö canadisku skipin á milli Port Arthur og Buffalo, en þeim er ekki leyft að flytja hveitikom eöa aðrar vörur á milli canadiskra hafna. Ef tollur væri tekinn af korntegundum milli Bandaríkjanna og Canada, þá yröu félögin, sem flytja komiö til, sjálf aö lækka flutningsgjaldiö, ella færi stór hluti þess til Banda- ríkja. Þetta er það sem auöfélög- in vita og þess vegna gjöra þau þaö sem þau geta, til aö halda þeim mönnum viö völd hér í Canada, sem em viljugir til þess aö láta hafa sig til þess, að kúga bændur og verkamenn. Blöö afturhaldgmanna munu halda því fram, að bændur muni hafa mikinn hagnaö af niðurfærslu tolls á sláttuvélum og kombindur- um. Eg ætla nú að athuga það dálitið. Stjórnin lækkaöi tollinn úr iýj^c ofan í I2j^c; geri mað- ur nú ráö fyrir að bmdarinn, sem kostar $175,00, endist í tíu ár og sláttuvélin, sem kostar $55,00, end- ist í 15 ár, þá sér hver heilvita maðyir aö þessi tolllækkun er lítils virði. Tolllækkunin á bindaran- um er $8,75 eöa 87J4c spamaður árlega, af sláttuvélinni er tolllækk- unin $2,75 eöa i8l/jc spamaður árlega eða alls tæplega$i,o8 á ári. Það er því mjög ólíklegt aö nokk- ur bóndi fari að gefa Borden- stjóminni atkvæði viö næstu kosningar, vegna þessarar toll- lækktinar. Eg sé í Heimsknnglu að Rogers kennir Laurier um þaö, að tollur var ekki tekinn af hveitikorni, vegna þess að Laurier og stjórn hans hafi verið fmmkvöðull að því að 2 jámbrautir hafi verið bygöar þvert yfir Iandið frá hafi til hafs. Þetta er bara fyrirslátt- ur og ekkert annað. Ef hann er hræddur um að nokkurt félag fari á höfuðið ef hveiti yröi toll- frítt, þá er það Canadian North- ern jámbrautarfélagiö. Eins og allir vita, sem fylgst hafa meö stjómmálum hér í Manitoba, þá ábyrgöist Roblinstjómin $20,000,- 00 á míluna af brautum C. N. R. Hafi brautin fullgert kostað $10,- 000,00 mílan, þá sér hver maöur það, aö þaö þarf að fá peninga einhversstaöar frá, til aö borga rentu af hinum tíu þúsundunum, og hvaöan eiga þeir aö koma? Auövitaö frá þeim sem fá flutt meö brautinni, og sé þaö ekki hægt vegna samkepni, þá veröur Mani- tobafylki aö taka við brautum C. N. R., sem þaö hefir ábyrgöst. Það getur skeö aö eg sendi Lög- bergi grein seinna, um þessa C. N. R. samninga, en eg læt þetta duga aö sinni. Komyrkjumaður. J\|AMJT ]]QTEL ViB sölutorgiö og City Hall $1.00 til $1.50 á dag Eigandi: P. O’CONNELL. Hafmærin. Hún töfrar, hún seiðir, hún lokkar hún laöar og langanir, vonir og hugsanir baöar i titrandi, glitrandi, glampandi bjarma og grátandi hlær hún — meö saltrok um hvarma. Með svanhvelfdu brjóstin og solhvítar mundir hún situr á öldunum fjölmargar stundir, og sögur mér þylur af hafdjúpum hörmum og holskeflu blóöugri í kvöldroöans örmum. Og titrandi finn eg að blóðið mitt brennur, sem brotsjór það ólgar og sýöur og rennur. Og tryllandi, sogandi, togandi þráin mig tælir i faðm hennar niöur í sjáinn. Himneska fegurö I hví heillaröu svona, er harminn og dauöann án lifandi vona, sem stáleggjar hvassar í brjóstinu berðu og birta mér dómsorðin hvert sem að feröu.” 'Mín hjartaslög öll eru hugraun og myrkur í húmglasi náttskuggans bíður minn styrkur; þin heillar mín fegurð, og harmsakir minar haglega óf eg í skoðanir þínar. Þéssvegna aldrei á æfinnar vegi ástin þín heilsa mun sólglööum degi. í hafdjúpin — harmdjúpin þrám þínum þoka þrautir, er sundunum jafnharöan loka.” Jónas Stefánsson, frá Kaldbak. IS Til sumarbrúkunar Siiniarmánuðirnir bjrja 1. Maí og þú bj-rjum vér að flytja ís Itoiin til manna oins í-ogluloga og oss er lagið. Til frekari upplýsinga um hroinlæti og meðferð á ísnum, ætt- uð þór að vora jður úti uin bóklno, setn nefnlst “The 1‘uritj’ of Natural lee’’, ef þið liafið liana ekkl allareiðu. VKRö A IS FLUTTUM HKIM TII, YÐAR frá 1. MAl U1 30. SKPT. 10 PUND A DAG . . . ........§ 8.00 20 PUND A DAG............. $12.00 30 PUND A DAG.............‘ $15.00 40 PUND A DAG........... . . $18.00 Phnm prócent afsláttur fyrir peninga út í hönd. The Arctic lce Co., Ltd. 156 BELL AVENUE Skrifst.—I.intlsey Bltlg., Garry og Notre Dame. Phone: Pt. R. 081 CANAWtt FINEST ThEATDf Viknna frá 27. Apríl og Matlnce á Miðv.d. og Uaug.d. leikur HKNRIKTTA CROSMAN í leiknuni sem auglýstur skal í ntesta blaðt — MAl 4.—5.—6. — PAUIi J. laiNEYS BRITISH KAST AFRICAN HUNT PICTURKS Hinar merkilegustu hreyfimyndir er teknar hafa veriö, og sem kostaöi 250,000 doll. aö búa til sýningar; alt útskýrt meö fróðlegum fyrirlestri. Ticketa sala byrjar á Föstud. kl. 10. Fimtud., Föstud. og Laugardag meö Laugadags Mat., 7., 8. og 9. Maí leikur gamalieikafélag Dr. Horner’s í leiknum — ”THE SORCERER” — Músík eftir Sir Artbur Sullivan en saga og kvæöi eftir Sir W. S. Gilbert 1000 manna, sem oröiö hafa heilsulitlir, hafa haft stór- mikiö gagn af hófsamlegri brúkun á DREWRYS Redwood Lager Hreinasta malt-tonic Æfinlega eins á bragö iö og jafn góöur. REYNIÐ ÞAÐ J. J. BILDFELL FASTEIQn A8ALI Hoom 520 Union bank • TEL. 2685 Selur hús og lóðir og annast alt þar aðlútandi. Peningalán Gísli Goodman TINSMIÐUR VERKSTŒÐI: Komi Toronto og Notre Datue Phone : Helmtlta Qarry 2988 Q.n ---- Fáið ánægju af skóakaup- um með því að kaupa þá í Quebec Shoe Store 639 Main Street, Winnipeg Rétt fjrrir Rorðan Logan A »e. Thorstemsson Bros. & Co. Byggja hús. Selja lóöir. Útrefa lán og eldsábyrgö. Fónn: M. 2992. 815 Someraet BI4| Heimaf : G .736. Wlnnlpeg, m— Ef þér viljið fá fljóta og góða afgreiðslu þá kallið upp WINMPEG WINE CO. 685 Main St. Fón M 40 Vér flytjum lnn allskonar vfn og ltkjöra og sendum tll allra borgarhluta. Pantanlr flr srelt afgreiddar fljött og vel. Sérstakt verð ef stöBugt er verxlaC. Piltar, hér er tæki- færið Kaup goldiC meðan þér lœriC rakara iðn i Moler skðlum. Vér kennum rak- ara iðn til fullnustu á tveim m&nuCum. Stöður útvegaðar aC loknu námi, eUa geta menn sett upp rakstofur fyrlr sig sjálfa. Vér getum bent yCur á vænlega staSi. Mikil eftirspurn eftir rökurum, sem hafa útskrifast frá Moler skólum. VariC yCur & eftlr- hermum. KomiC eCa skrifiC eftlr nýjum oatalogue. GætiC aC nafninu Moler, á horni King St. og Pacifle Ave., Winnipeg, eCa útiböum 1 170» Road St., Reglna, og 230 Slmpson St. Fort William, Ont. Þér fáið yður rakaðan og kliptan frítt npp á lofti frá kl. 9 f. h. til 1 e.h J. J. Swanson & Co. Verzla með fasteignir. Sjá um leigu á húsum. Annast lán og eldsábyrgðir o. fl. 1 AIBERTA BLOC^. Portags & Carry Phont Main 2597

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.