Lögberg - 26.08.1915, Blaðsíða 2

Lögberg - 26.08.1915, Blaðsíða 2
2 LÖGBERtf, FIMTUDAGINN 26. ÁGÚST 1915 Hergagna smíði á Eng- landi. Kafli úr ræSu Mr. Lloyd 'George. Hergagna ráögjafi Breta, Mr. Lloyd George, sem fengiS var það embætti fyrir nokkrum vikum, að stjóma tilbúningi skotfæra og ann- ara hluta, sem í stríði henta, hélt ræðu um það efni um mánaða mótin, er hér kernur ágrip af. Ekkert þykir eins áríðandi nú eins- og það, að búa til vopn handa Breta liði og bandamönnum þeirra. Ráðgjafinn talaði þannig til þingsins: "Tími er tæplega kominn til þess ennþá, að segja fyllilega og afdráttarlaust frá þvi hvað gert hefir verið, er verið að gera og gert mun verða í stjórn hergagna- smiða. Vitanlega eru merkilegar athafnir framkvæmdar, sem næsta óhvggilegt væri fyrir mig áð segja til í heyranda hljóði, að svo stöddu. L’m þá sem vinna í hergagna ráðaneytinu er það að segja, að ta!a þeirra hefir meir en þrefald- ast á nokkrum vikum. Vér höf- um orðið að fá nýja menn til þeirra starfa, sem næsta erfitt var. Svo vel tókst til, að oss hepnaðist aðt fá í lið með oss menn, sem mikla reynslu höfðu t verzlunar störfum, og þeir hafa verið settir yfir þýðingarmikil störf. Eg má segja, að níutíu menn að minsta kosti. er framúrskarandi hæfileika hafa til að stjóma öðrum til verka, hafa boðið ráðaneytinu þjónustu sina, hávaði iþeirra án nokkurs endurgjalds. Sumir þeirra stjórna Stórum verzlunar félögum, og borga félögin þeim kaup fyrir störf þeirra í þjónustu rikisins. f’essir menn hafa orðið að ágætu liði. í rauninni 'hefði mér verið ómögulegt, að koma skipulagi á hergagna stjórnina í skjótri svip- an, svo umfangsmikið sem það starf er, án aðstoðar þeirra. Vélar skráðar. Ráðaneytið hefir ýtt undir og flýtt fyrir að þeir verkasamningar, sem í gilcli voni, væru haldnir og undirbúið ný verk. Það hefði sýnt sig, að sumum hergagna, verksmiðjum hefði verið falið meira verk en þær komust yfir að vinna, vegna vélaskorts og verka- manna. Sumar vélar hefðu verið1! aðgerðarlausar, vegna þess að! ekki fengust menn til að vinna þeim. Fjórum fimtu hlutum allra véla var unnið minna en mátti. Allar verkvélar á Bret- landi væru nú skráðar, og kom það þá í ljós, að einungts fimti Jiluti þeirra er að stjórnarverki unnu, vora í gangi á nóttunni. Að iþeim hefðu verið ráðnir fleiri menn, svo að nægilegt var til að haldal þeim í gangi allan sólarhringinn. \ júlímánuði hefði ráð'ane)tið bætt 40 þúsund karlmönnum og kven- fólki. við þann hóp sem hergagna smiði stundaði. Og enn væri fólk og vélar ráöið unnvörpum ”til hergagna verka, á hverjum degi, ekki sízt hjá þeim félögum sem það liefðu áður stundað sem at- vinnu, og stærsta samninga höfðu við stjórnina. Framkvæmdir þeirra hefðu verið geysilega miklu minni en til stóð og lofað var, en mi væri svo fyrir séð, atf fram- kvæmdirnar drægjust ekki stór- kostlega aftur úr loforðunum. "Xi 1 hergagna smíða höfutn vér nú ráðið 100.000 manns. Hávaði þeirra eru æfðir menn í vélavinnu, verkfræðingar og skipasmíða-j menn. Það sem erfiðást var, var það að þeir fengust ekki til stjórnarverka, voru öðrum bundn-| ir. Fjöldi þeirra, sem gefið hafa sig fram til stjómarvinnu. eru við önnur nauðsynleg störf bundnirj sem ekki mátti taka þá frá, og, þannig stendur á því, að vér höf-1 um ekki ráðið í vora þjónustu fimta part þeirra sem hafa gefið sig fram. Mótmœli vinnuveitenda. Vér urðum að skifta hergagna verlíamönnum i þrjá ' flokka. Fyrstir voru þeir, sem óbeinlinis' unnu að hergagna smíði. Aðrirj þeir. sem unnu að þýðingarmiklum störfum, er nokkur 'hluti þeirra! mátti missast frá. Þriðju þer sem! beint unnu að stjómarverki. Við komumst að raun um, hverja aff jæssum mátti ráða, með þvi að snúa oss til þeirra, sem þeir menn tinnu fyrir, er buðu sig fram til hergagnavinnu fyrir stjórnina, til þess að vita, hvort nokkuð væri því ti! fyrirstöðu, að þeir gengju úr vistunum og hver sú fyrirstaða væri. Mótmæli höfum vér feng- ið frá vinnuveitendum viðvíkjandi nálega 80 þús. verkamönnum. Vér höfum sett nefnd business manna af ýmsum atvinnugreinum, j til að kanna þessi mótmæli og líka til að skipa aðra til rannsóknar á hverjum stað, Þessi mótmæli eru! nú til úrskurðar fyrir ráðaneytinu. Mörg þúsund af þessum mönn- um eru nú ráðnir til stjórnarverka á hverjum degi og gengur vinnan vel fram og rösklega með hverj- um sólarhring. Fleiri verk standa til og er í ráði að hafa nóga verkamenn til að stunda þau. Ekki var unt að fá æfða menn er á vígvöll voru komnir, til þess að koma heim og sinna þessum verkum. Þeir vildu ekki þaðan fara, sem þeim er til heiðurs og sóma. Þeir sem þaðan vildu losna, voru alls ekki verkfróðir menn. En við 'hermála ráðaneytið höfum vér samið þannig, að leystir verða úr hernum tvennir tugir þúsunda af verkfræðingum og öðrum semi oss eru hentugir til hergagna smíða. Þungt fyrir hjá verkamanna félögum. Eg kem nú að annari hlið málsins — þeirri, er lýtur að breytingum á reglumi og venjum verkamanna félaga. Við verk- fræðinga stéttina komumst vér að þeim samningum, að slíkar reglur skyldu með öllu ógildar og upp- hafnar vera, í þeim verksmiðjum, sem vér höfum yfir áð ráða. En að öðru leyti get eg ekki gefið skýrslu um nægilegan árangur, þó ilt sé til að vita. Eg vildi mega skora á foringja verkamanna fé- laga, að koma því til leiðar við fé- lagsmenn, að þeir héldu samninga við stjórnina_ og gangi ekki ríkt eftir að venjulegar verkareglur séu viðhafðar. Mér er sagt, að verka- menn gætu auðveldlega komið af fjórðungi meiri skotfærum, byss- um og hergögnum, ef þeir vildu fella niður, meðan stríðið stæði, þær reglur sem vinna þeirra fer eftir á friðartimum. Þetta er merkilegt mál og áríð- andi. Það felur ekki einungis í sér að stórmiklu meira af her- gögnum mætti smíða, heldur líka að hundrað þúsundir verkamanna mundu sparast. Vér æskjum ekki annars, en að verkamenn felli niður verkareglur um stundar sakir. Verkamannaforingjar gerðu rikinu mikinn greiða ef þeir vildu fá þá til að fella niður þessar reglur, meðan stríðið stendur. Það sem mest á riður er, að mennirnir beiti allri orku, áhuga og kappi til að koma af hergögnum strax í stað. Eg get ekki, nema með þvi að nefna tölur sem ekki má segja til í heyranda hljóði að svo stöddu, sannað og sýnt, hversu áríðandi það er, að konia af sem niestum hergögnum næstu mánuð- ina. Það er órituð regla meðal verka- manna, að enginn vinni meir en. í meðallagi. Ef einhver fer fram úr 'því, þá er hann álitinn vera ótrúr sínum félögum. Þetta vita allir að á sér stað. Þegar friður stendur, eru ástæður bæði með og móti þessu. Vitanlega er þetta vinnuveitendum að kenna, vegna þess að hvenær sem menn itnnu af öllum kröftum, lækkuðu þeir kaupið fyrir “pice-work”. Það þarf ekki að taka það fram, að þetta var heimskulegt, og það þarf langan tíma til að fá verka- menn til að gleyma öðru eins. Eigi að síður vonast eg til, að þeir Iáti sér segjast við lög frá þinginu, er tiltaka, að þó þeir felli niður regl- ur um yerk sín, meðan striðið stendur, þá geti þeir tekið þær upp aftur að því loknu. Það er svo áríðandi, að þessar reglur séu afteknar meðan stríðið varir, að jafnvel slíkt heit verður að hald- ast, Annað má eg nefna. Þar- sem æfða menn skortir í einhverri atvinnugrein, er öðrum ekki leyfi- legt, að gefa sig við 'henni, þó að ktinnáttu hafi til þess. Til dæmis skal eg nefna, að verkfall stendur nú yfir á einunt stað, vegna þess að "plumbers” voru settir til að hjálpa til við koparsmiða verk. Koparsmiðir voru færri en á iþurfti að halda. Verkinu seinkaði, af því að of fáir fengust. En “plumbers” gátu hjálpað til og þeirra félagsskap var gert aðvart, að senda þá til aðstoðar. Þ4 hættu allir koparsmiðirnir vinnu og eru aðgerðarlausir enn, þó ilt sé til að vita. Mr. Lloyd George kvað slíkar ráðstafanir gerðar, til að smíða rifla og vélabyssur, að öllum mætti vel lika, og mtindtt fjandmennim- ir finna til þess í skotgröfunum, áður en langur tími liði, að nóg væri til af slöngvikúlum og öðrum vopnum. Tundurkúlna smiði. Til þess að flýta fyrir tundur- kúlna gerð hefði ölltt landinu ver- ið skift niður i samvinnu svæði, en yfir hverju réði nefnd business manna, er skipaði til um samvinnu með verksmiðjum í sínu héraði, til tundurkúlna gerðar. Sextán verksmiðjur er ríkið ætti, /væru þar að auki; settar á stofn í ýms- um pörtum landsins og þegar þær væru teknar til starfa fyrr alvöru, mundi tundurkúlna smíðin taka skriðinn. Ennfremur væru sér- stakar verksmiðjur stofnaðar til að búa til ýmsa parta í tundur- kúlur og ráðstafanir væru' þegar geröar til að stjórnin hefði allar vélasmiðjur landsins á sínu valdi. Með því móti væri henni í lófa lagið, að smíða nver/a tegund vopna, sem á þyrfti að halda og reynslan kynni að sýna að nauð- synleg væri. Ný ráðagerð. “Fyrir fám vikum síðan átti eg tal í Boulogne við hinn franska hergagna ráðgjafa, svo og helztu skotliðs foringja í voru liði og i hinu franska. Þeir bárui sig sam- I an um, hvaða hergögnum mest riði á, samkvæmt þeirri reynslu er þeir höfð'u fengið í hemaðinum'. Útaf þeirri niðurstöðu, er þeir komust að. hefir það verið ráðið, að taka upp framkvæmdir, sem verksmiðjur og verkfræðingar þessa lands rniunu teiga fult í fangi íneð í næstu mánuði. Vegna þessarar nýju stórkost- legu ráðagerðar, verður ekki hjá því komist. að stofna tiu ný verk stæði á kostnað ríkisins, auk þeii*ra sextán er áðúr voru nefnd. Stjóm- in stofnar þau og ræður yfir þeim. Stuðst verður við reynslu þeirra hergagna verkstæða, sem þegar em fyrir, í útbúnaði og stjórn þeirra, og af þeirri ástæðu, verða þau líklega reist nærri þeim sem þegar eru fyrir. Verkamenn í þessar nýju verk smiðjur verða líklega teknir úr sjálfboðaliði þeirra er gefið hafa sig fram til hergagnasmíða, sömu- leiðis þeir, sem úr hemum hafa fengist til þessara starfa, og vér, vikur eða mánuði. Eg sá hvað kröftum þeirra leið. Eg bið og skora á alla, að oss verði lofað að halda áfram störfum, án íhlutunar af nokkru tagi.” “Pólitík”. Erindi flutt á Jþróttamóti að Þjórs- ártúni 26. Júní 1915. Eftir Gísla Sveinsson. Háttvirta samkoma! Áður en eg fór úr Reykjavík, hitti eg kunningja minn einn á götu, í gærmorgun, og sagði hann við mig þessi orð: “Þú mátt nú vara þig, austur við Þjórsá, að fara ekki að tala um pólitík, í ræðunni sem þú ætlar að halda. Annars getur alt lent í áflogum!” — Þótt eg sé nú ekki beint hræddur við áflog, þ.e.a.s. að þér, háttv. áheyrendur, farið að fljúgast á innbyrðis — öðruvísi en þá að glíma, eftir réttum reglum, eins og hér er gert í dag ’ meðal annara skemtana—, þá ætla eg nú samt ekki að fara út i dagsins pólitík, það, sem er að gerast, eða erjur út af því. En orðið, nafnið “pólitík” mun eg nefna að nokkru, svo að kalla mætti, ef menn segja að eg hafi talað hér um pólitík, að eg hafi þá gert það að eins í orði kveðnu. • Orðið “pólitík” er að vísu fram- andi orð, komið úr grískunni — "politike” — en svo nefndu Grikkir stjórnfræðina; merkingunni hefir orðið haldið að miklu leyti, eins og þér .sjáið. Alstaðar er það pólitík, að stjórna rxkjum og löndum og þjóðum, bæði fræðilega og eins i verki, og er margt sem þar til heyrir, stjómarskipun, stjórnarframkvæmdir og löggjöf öll. En nú má segja, að þetta orð sé búumst við að nota storum meiúorðið heimagangur hér hjá oss, ekki en áður liðsinni kvenfolksins í | að eins í orði, heldur og á borði. þessmn verkum, að dæmi Frakka og Þjóðverja. Karlmenn eru tor- fengnir, svo margir sem með þarf til þessara hluta, sérstaklega ef stríðið skyldi standa lengi, og margt af þessum störfum er þess eðlis, að kvenfólk getur rétt eins vel. ef ekki betur, leyst þau af hendi, heldur en karlmenn, einsog' þegar hefir sýnt sig. Þessí ráðagerð er samþykt og ráðstafanir eru þegar gerðar, til I að koma henni í framikvæmd. Vér j höfum þegar útvegað þær vélar ! sem á þarf 46 halda, tekið til að j reisa húsin, og eg vonast til að! alt j verði .til á nokkrum vikum, en j vissulega á næstu mánuðum, en j þegar það er alt komið í kring, Pólitíkin hefir algerlega bugað Kirkjublaðið; hún hefir komist, hér eins og víða annarsstaðar nú á tím- um, “inn á hvert einasta heimili”, sem Kbl. ekki tókst. Eins og þér kannist við, þá eru til margskonar “pólitíkur”. En aðallega eru þær þrjár: Heimspólitík, lands- pólitík og — hreppapólitík. Hver af þessum aðalgreinum get- ur verið misjafnlega rekin, og heitir eftir því “góð pólitík” eða “slæm pólitík"; ef til vill kannist þér enn frernur við eina aukategund — auð- vitað að eins í nafni! — sem sé svo kallaða eiginhagsmuna-pólitík. F.n hvað er pólitík ? Alt lifið er í sjálfu sér pólitík! — Framkvæmdir manna og félagsskap- j skal enginn her í Evrópu þurfa jllr' ráð nlanna °& daöir t*1 lless að að hrósa betri vopnum og útbún- koma sér ÖSrum sem bezt fyrir > ] aðí en herlið vorra manna. J haráttu lífsins, í þjóðfélögunum. Pólitík er í rauninni í viðustu Uppfundningamenn örvaðir. Það er nauðsynlegt til sigurs, merkingu hugsanir manna og störf, til þess að geta lifað. jað hinir skörpustu menn er við! í>ess ve?na er ómögulegt að kom- j vísindi fást og uppfundningar, ast hÍá Pólitík> a,gerlega. Það getur beiti viti sínu til liðs við oss. j e»ginn maður, 'svo framarlega sem j Sjóliðs ráðgjafinn hefir þegarj hann heíir nokkur mok viS aöra en j skipað nokkra slíka í nefnd til aðj sjá,fan si£> °S það hafa víst rétt 1 finna ný ráð í sjóhernaði, en fyr- allir- I ir þeirri nefnd er hinn víðfrægi! En Þar fyrir l3Urfa menn ekki að j Fisher lávarður. Eg er nú ný-j b,anda sér 1 Það> sem kalIað er stor' búinn að setja aðra slíka, er egipóIitik ~ umræSur um vonast til að láti það af sér leiða j í hemaði á landi, sem hin í sjó- hemaði. — Vér höfum gert ráð- i stafanir til að hafa hemil á | drykkjuskap meðal þeirra sem að j hergagnasmíði vinna, svo og sett j lækna til að hafa eftirlit með heilsufari þeirra. Þannig verður I hver og einn, sem ekki innir af j hendi fullkomið dagsverk, að ! ganga undir læknisskoðun og veröur honum eftir það hjálpað | til að safna kröftum til að vinna af orku. Að þessu hefir miklu j minna verið stundað hingaðtil en j vera ber og með þurfti. Að lokum mælti ráðgjafinn á jxessa leið: “Afkoman eykst með hverri viku og eg er sannfærðkir j um, að þegar vér höfum komið öllu ])ví i kring, sem vér ætlum oss, J)á muni ekki margar vikur Iiða, j)artil vér getum, lagt fram svo mikið af skotfærum sem næg- ir ekki aðeins fyrir lið vort til að verjast, heldur svo mikið sem þeir ]>urfa til að brjotast gegnum her- garða fjandmannanna og sigrast á þeim. 1 Allir sem að Jæssu hlutverki vinna, ganga fast að venki og eg get sagt það öllum, sem það tekur til, að .þeir hafa 'hvorki tóm né vilja til að taka þátt í því auðvirði- lega makki, sem virðist fylla huga illgjamra manna. Þeir hafa verk sitt að vinna og vér óskum ekki aiinars en að bæði undirhyggju- menn og þeir sem yfir vélræðum búa. láti þá afskiftalausa, haldi bæði höndum og tungu trá her- gagna ráðaneytinu og öllu sem því kemur við. V’ér hugsum ekki um annað en vort fyrirsetta verk. Vér verjum til }>ess öllum kröftum, andlegum og líkamlegum, og leggjum oss svo fast fram, margir hverjir, að ekki má á bæta. Eg hef orðið að vara marga þeirra við, láta þá hætta í svipinn, ella hefðu þeir ekki getað sint verkum í margar hin æðstu stjórnmálefni Jþóðfélaganna, og það er jxað, sem ekki er ætíð sem bezt rómað, að gera fsem menn nefnaý of mikið að henni. Vér íslendingar þekkjum ]>etta að nokkru, hygg eg, — hjá oss gæti “stórpólitíkin” oft kallast öðru nafni, sem er skiljan- legra og meir við alþýðuhæfi, og auk þess nákvæmara í merkingu, en það er nafnið rifrildi! Heimspólitíkin. Höfum vér nokkuð með hana að sýsla? Mörgum mun í fljótu bragði virðast, að það höfum vér ekki. Og }>ó höfum vér það. Vér getum ekki lifað út af fyrir oss einvörðungu, eins og alt er nú orðið í pottinn búið. Margt og mikið þurfum vér að fá frá útlöndum og margt að senda þangað, menn og málleysingja. Viðskifti v'ið aðrar ])pjóðir eru oss lífsnauðsyn. Stendur oss því á miklu, hvernig á- standið er i heiminum, því að eftir r / . 1 ])ví fer, hvernig skifti vor verða við aðrar þjóðir. En “ástandið í um- heiminum” skapast að mestu leyti af |)ví er mönnum er sjálfrátt, af hinni svo nefndu “heimspólitik”, sem ein- att er ekkert annað eða meira en “spekúlasjónir”, einkum stórþjóð- anna — stórveldanna — út fyrir sín eigin takmörk, sitt eigið þjóðfélag. Þótt vér séum ekki sérlegir stjórn- vitringar, íslendingar, mun oss þó flestum finnast, að eitthvað meira en lítið sé bogið við heimspólitíkina nú á tímum, að ekki hafi verið eða sé “spekúlerað” á sem fínastan máta. Hygg eg, að þar muni oss ekki mis- sýnast. Sú viðskiftapólitík, eða fram- sóknarkepni, sem leggur í sölurnar hrúgur miljónanna, en ber úr býtum hinar hryllilegustu blóðsúthellingar, eymd og örkumsl. getur ekki verið heilbrigð. En það er hægara um að tala en í að rata. — En við þetta er- um vér lausir, beinlínis, og vér höf- um einstaklega góða afstöðu að geta verið það einnig framvegis, um ald- ur og æfi, ef vér förum sæmilega hyggilega að ráði voru. Þannig er lega lands vors og ástæður allar, að vér þurfum ekkert að óttast, ef vér ekki brjótum af oss alla samúð. í framtíðinni verður það hlut- skifti vort, að eiga miklu íneira sam- an við erlend ríki að sælda en áður hefir verið og nú er. Og svo fer að lokum, að vér sjálfir stýrum öll- um viðskiftum vorum við aðrar þjóðir, sjálfir önnumst öll mál vor, er utanríkismál kallast, sem með tím- anum v'erða miklu víðtækari en þau eru nú. Þá berum vér sjálfir á- byrgðina á framkvæmdum vorum úti um heiminn, — þá erum vér, íslend- ingar, orðnir með í heimspólitíkinni, þótt í tiltölulega smáum mæli verði. Þá eru það hyggindin, sönn hyggindi, sexn mest á ríður, því að þau korna s^finlega í hag. Þessir tímar eru undirbúningstímar fyrir oss, — lærdómsríkir á marga lund, undir þann mikla dag, þá er vér í sanleika sjálfir leiðum sjálfa oss! Alt þangað til önnumst vér Landspólitík vora. Og svo virðist óneitanlega, sein all- mikið sé þar að gera hjá oss, þótt á- rangurinn sé allajafna talsvert minni en tilstíindið. Landspólitík er, eða á að v’era, sú stjórnmála- eða landsmálastarfsemi, sem hefir landið alt, þjóðina í heild fyrir augum. Hún er ekki bundin við stað né stund innan þjóðfélags- ins, heldur heill þess alls í bráð og Iengd. Hún fjallar um frelsismál landsins, atvinnumál þjóðarinnar og efnahag, mentun og menning, og undir hennar svið fellur ráðsmensk- an á þjóðarbúinu, ráðstöfunin á því, hvað skuli koma til tekna og hver skuli verða útgjöldin. Mikið og vandasamt verk, ef vel á að fara, enda vinna að því margar hendur,- Eins og kunnugt er, þá er nú sv’o komið hér á landi, að flestir þykjast menn til þess að skrafla með um landspólitíkina — flestir þykjast bera á það skynbragð, hvaða ráð eigi þar bezt við, eins og flestir yfirleitt })ykjast nú hafa orðið vit á flestu ! Það er hin mikla “upplýsing”, er menn þykjast hafa orðið aðnjótandi, enda þótt margar framkvæmdir og athafnir manna í þessurn efnum beri þess sorglegan vott, að mentun fhin sanna mentunj er ekki á marga fiska. Nú þykjast margir geta orð- ið þingmenn, og ráðið fyrir landinu með löggjöf sinni. En—verkin sýna merkin, hvernig þingmenn vorir eru nú, og þvi lítið á það bætandi, niður á við. Eg geng nú með það guð- lausa álit, að þing þjóðarinnar, al- þingi, sé nú svo skipað, þegar frá eru taldir nokkrir velnýtir menn, að leitun sé á því með öðrum þjóðum, er jafnist þar á við — hvað snauð- leik snertir á manngildi og þekkingu, á frumleik og framsýni, á hyggind- um og hagsýni, á atorku og ósér- plægni. Nú þykir það gott, ef þing- maður er meðalmaður; en í raun réttri ættu jæir allir að vera þar fyrir ofan. Lægra ætti markið ekki að setjast. Það mætti ekki minna viera, en að þeir, sem ætlað er að ráða högum þjóðarinnar allrar, hefðu sýnt það, að ]>eir væru þess fullvel færir, að ráða sínum eigin högurn, og það svo, að fyrirmynd og frábærleiki væri að. Hinn mikli vandi, sem er við ])essi störf að fást, er landspólitíkinni til- heyra, ef vel eiga að fara úr hendi, er })ó ekki að eins hjá þingmönnum. Hann er í fyrsta lagi lika hjá lands- stjórninni. Henni ber að sitja við stýrið, þótt aðrir sé undir árum eða vindi upp seglin. Alt af eru einhver- ir óánægðir með landsstjórnina, sem mjög er eðlilegt, bæði af því, aö aldrei getur hún gert svo að öllum líki, og eins af hinu, að alt of sjaldan hér'hér hjá oss verið að henni nokkurt mannsbragð eða röggsemi. Margt hefir lent í útúrdeyðun og ærið verið ógert látið af því, sem gera þurfti. Eitt af því, sem hverri þjóð er einna nauðsynlegast alls, er dugleg landstjórn, vitur og framtaks- söm; annars er fárra þrifa og fram- fara að vænta. Þar gildir áreiðan- lega sama reglan og í hinum smærri verkahring; og eins og þér vitið: Stjórnlaust bú er dauðadæmt. En í framtíðinni væntum vér betri landsstjórnar en vér að jafnaði höf- um átt við að búa áður. Þegar á þessum tímum er ’ýmislegt, er gef- ur vonir í þá átt — og get eg ekki stilt mig um, hér á þessum stað, að eins að benda á það. Þessu héraði hefir hlotnast sá heiður, að nú er hafinn til æðstu tignar í landinu bóndasonur úr þessu bygðarlagi, maður, sem með frábærum dugnaði hefir komist áfrau á skömmum tíma til álits og metorða. Tiltölulega ung- ur enn þá, hefir hann getið sér það orð, að hann sé einna dugmestur allra vísindamanna vorra—og hann hefir unnið á því sviði, er oss má mestur metrlaður í verða, á réttinda- sviðinu; nú er hann orðinn ráðherra. Slikt á þetta hérað, og hvert hérað, er þvílíku ætti að fagna, að telja sér til sóma, þvl að frá því er hann þó kominn. Allmiklar vonir eru til, að hann reynist dugandi í stjórnarsessi, og nokkur afrek hefir hann þegar gert, sem til þjóðþrifa miða. Verði á því gott framhald!— Auk þessara aðilja í landspólitík- inni, er nú hafa verið nefndir þþing- mann og landsstjórnar,), er enn sá þriðji: Almenningur, kjósendurnir, og er eg þá farinn að færast nær yður, háttvirtu áheyrendur. Þeir af yður, körlum og konum, sem ekki eru kjósendur nú þegar, verða það brátt. Karla og konur nefndi eg, því að nú eru konurnar líka komnar upp í kjósendabekkinn, eins og þær nú hafa óhindraðan aðgang til alls, sem karlmönnum einum hefir áður þótt sæma að hafast að. Með stjórn- arskrárbreytingunni, sem nú er að komast í gildi, eftir langa mæðu, fá allar konur (auk vinnumannaj kosn- ingarrétt og kjörgengi til alþingis, reyndar fyrstu árin þær ráðnari og rosknari að eins, en síðar allar 25 ára gamlar, jafnt og karlmenn. Ef það hefir verið áríðandi áður, að kjósendur væru vandir í vali — og enginn neitar því, — þá er það auðvitað áríðandi enn, eins fyrir þessa fjölgun, og margur mun segja: ekki síður fyrir hana. — Eg hefi nú verið þeirrar skoðunar, að kvenfólk- ið ætti að sjálfsögðu að fá þennan rétt, það væri ekki með réttum rök- um hægt að neita þeim um hann, enda þótt gagngerð krafa frá kven- þjóðinni íslenzku hafi aldrei um hann komið, né heldur nein barátta um hann orðið, eins og víða annars- staðar. Brýn þörf á honum, þessum rétti, til handa kvenfólkinu, verður ekki sagt að hafi átt sér stað. Og fjöldi kvenna kærir sig ekkert um hann. En nú hafa þær fengið hann; margar munu ekki neyta hans að neinu verulegu leyti, að minsta kosti ekki fyrst í stað. Það, sem um er að tefla, er það, að þegar þær neyta þessa réttar, þá geri þær það vel og sómasamlega. Þær geta sem sé ver- ið vissar um. að hér eftir fá þær smjörþefinn af ávítunum fyrir það, sem aflaga fer, enda bera þær nú þá ábyrgð með,. er áður var lögð á herðar karlmannanna einna. Eins og þér sjálfsagt hafið hug- mynd urn, háttvirtu áheyrendur, er sú krafa gerð til þingmanna, og þá kjósenda um leið, að þeir skoði sig vera fyrir landið alt, í fyrstu röð, og þar næst fyrir sitt kjördæmi. Og líklega til þess að framfylgja þeirri kröfu, fáum vér nú með stjórnar- skrárbreytingunni nýja þingmenn (\ stað hinna konungkjörnu,), sem eiga að heita landsþingmenn. Með öðrum orðum: Þess er krafist, að menn forðist, svo sem verða má, alla Hreppapólitík. Og er eg með því kominn á enda- stöðina i þessum “pólitiska” leið- angri. Hreppapólitíkin er gamall kunn- ingi yðar fxyst eg við. Þar með segi eg ekki, að þér séuð meiri eða verri “hreppapólitíkusar” en al- ment gedist í héruðum þessa lands. Þér þykist nú eiga von á, sýnist méf, að eg fari að ausa mér út yfir þessa tegund af pólitík, telji hana óalandi og óferjandi; en það geri eg ekki, þótt merkilegt sé. Mér finst einmitt góður snefill af lireppa- pólitík eitt af því allra skiljanlegasta og sjálfsagðasta í fari kjósenda og þingmanna eins kjördæmis. ekki hvað sízt, eins og til hagar á landi hér. Þar tneð á eg ekki við þann þverhöfðaskap, að sjá ekkert annað en sína eigin þúfu og hugsa um ekkert annað en að skara “áburði” að henni. Nei, eg tel það skynsam- legt, að hugsa mikið um og fyrir sitt kjördæmi, sitt hérað, sína sveit og sinn bæ. Og þar sem því verður ekki raskað, að hver er sjálfum sér næstur, þá er það ekki óeðlilegt fyr- irbrigði, að menn láti sér einkanlega ant um þann staðinn og það fólkið. sem mönnum ber sérstaklega að vinna fyrir. Frumgræði allrar mann- elsku er það, að mönnum þykir vænt um þá, sem næstir manni standa. Og uppruni allrar ættjarðarástar er i ástinni á þeim stað, sem maður er fæddur á og elst á. Svo er og á það að líta, að það sem gert er til þrifa einum ,stað, einu héraði landsins, það er gert landinu til góða. Ef hvert hérað og þess þingmenn gæti áunnið það, með sinni hreppapólitík, að það blómgaðist og efldist, svo sem ínest gæti orðið, — þá stendur landið alt um leið í blórna. Öll hér- uðin mynda landið. Slíkt er ekki ó- skynsamlegt, þó “hreppapólitík” héti. En það er sannleikur, sem menn ættu að festa sér í minni, að enginn getur í raun réttri og til frambúðar verið góður sínu héraði, nema sjón- deildarhringur hans sé svo v'íður, hugsjónir hans svo háfleygar, að landið alt og þess heill spegli sig fyrir honum í þrifum héraðsins, sé honum þar leiðarstjarna! Ef þér vitið með sjálfum yður, að það er á þessum grundvelli 'og í þessumí anda, sem þér vinnið, og krefjist þess af fulltrúum yðar, að þeir vinni, í víngarði hinnar svo- nefndu “hrepppólitíkur”, þá skuluð þér ekki bera kinnroða fyrir hana eða láta á yður ganga, þótt yður sé því um nasir núið, hversu mikið þau “beri úr býtum”, þessi blómlegu hér- uð, sem vér erum hér mitt í. Nei, gleðjist heldur yfir framförum þeirra og gengi, og ekkert má í dag þá gleði yfirskyggja. Ef vér Værum eins viss um hag- sældar-framtíð annara héraða lands- ins eins og þessara héraða, þá væri gleði vor fullkomin. En öll vonum vér, og ölum þá sannfæring óbifanlega í brjósti, að oss og eftirkomendum vorum takist, með góðri og heilbrigðri starfsemi— með góðri og heilbrigðri pólitík—, að vinna þannig að frelsi landsins og farsæld þjóðarinnar, að ísland verði í sannleika öllum Islendingum bezt allra landa. Og þar með ekki sízt, að þessi héruð vaxi og eflist að gengi og gæfu!—Isafold. Hátt er upp í himininn. Hátt er upp í himininn! Minn huga sundlar þrátt, er horfi’ eg á þann óraveg en, á svo sára fátt, sem hjálpar mér að hefja flug þá hinsta kemur nótt, því andann vantar vængja dug og viljann eld í þrótt. Hátt er upp í himininn! Eg hefi’ ei leiðarstein. — Þeir kaupa hann í kirkjunni og krossa öll sín mein. — En hærra er upp í himininn en halda kirkjumenn. — Þeim velgja seinna vonbrigðin þó vel þeir þrífist enn. Hátt er upp í himininn! og heimþráin er treg. Við könnumst flest við kosti hans en kjósum annan veg; því eftir nítján alda skóla æðsta meistarans, blindar heiminn biksvört njóla byrgir geisla 'hans. e Hátt ér upp í himininn! á hersins víga slóð, er þjóða valdsins þræls hönd tekur þúsundunum blóð. Og menning þreytist mjög að vaka —• margs að gæta þarf. — Hún veit að blessuð börnin taka blóðþorstann í arf. Hátt er upp í himininn! þá hamast pólitík af undirhvggju og eigingirni orðin harla rík. Og öll þau gögn sem eiðrof þoldu eru í hénnar för. Og af hverjum fingri um foldu flýgur banvæn ör. Hátt er upp í himinsnn! í höllum dollarans. Hann er að verða einvalds herra yfir lífi manns. Án hans 'vonin, ástin, trúin ekki líta á ])ig. ■— Þeim breytti forðum ferðalúinn fátæktar á stig. Hátt er upp í himininn! sú hæðin ógna^ mér. Og eftir fáa áratugi , endar vistin hér. Þá hjálpar aðeins 'hugsjón andans hrein sem ljósvakinn. Hún ber oss upp af brautum vand- ans beint í himininn. — Jðnas Stefánsson frá Kaldbak. Dœmdur fyrir landráð. Prófessor Dr. Brogley, kennari við háskólann i Mulha^en og þing- rnaður, hefir verið sekur fundinn og dæmdur í 10 ára hegningar- húsvinnu fyrr landráð. Þegar Frakkar náðu Mulh/iusen á sitt vald í fyrra haust, gekk Dr. Bragley ásamt fleir/ borgurum á fund hinna frönskú foringja er borgina tóku, baue þá velkomna og þakkaði þeirn fyrir, að hafa leyst borgina undan ánauðaroki Þjóðverja. Nokkru seinna flúð'i, Dr. Brag- ley til Frakklands og hefir dvalið þar siðan. Fyrir skömmu fór hann í dulargerfi á fund konu sinnar, er dvalið hefir í Þýzkalandi, en þekt- ist, var kærður um drottinssvik og dæmdur til tiu ára fangelsisvistar. Rjómabœrinn. Sagt er að Eureka sendi meiri rjóma á markaðinn en nokkur annar bær í Suður Dakota. í júlí mánuði voru sendar þaðan 2306 fötur og var rjóminn í þeim $16,142 virði. Ekki veit fólk til, að nokkumtíma hafi áður verið sendur (rá þessum bæ meira en 1900 fötur af rjóma á einum mán- uði. 24. júlí voru sendar þaðan 257 rjómafötur, sem voru $1799 virði og er það meira en nokkru sinni hefir verið sent þaðlan áður á einum degi. Fyrir tveim árum voru einu sinni sendar þaðan 248 fötur á einum degi. Bændur i þessu bygðarlagi eru sem óðast að auka bústofn sinn og koma á kyn- bótum og árangurinn er auðsær.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.