Lögberg


Lögberg - 16.09.1915, Qupperneq 7

Lögberg - 16.09.1915, Qupperneq 7
IíOQBKRG, FIMTUDAGINN 16. SEPTEMBER 1915 f FRETTIR FRA ISLANDI. Eimskipið “Goðafoss” kemur til Akureyrar. Kl. 9 aö kvöldi 2. Júlímánaöar eim- aöi skipiö “Goöafoss” inn fyrir Odd- eyrartangann, og 10 mínútum síöar kastaði þaö akkerum fyrir utan innri hafnarbryggjuna. Fjöldi Akureyrarbúa stóð á bryggj- unni og hornleikaraflokkur bæjarins spilaöi ýms þjóðlög. Veður var hið fegpirsta, slíkt sem óvíða er að sjá nema við Eyjafjörð. Sólin var í náttmálastað, og til suð- vesturs, yfir Hofsfjalli, ljómaði hún ennþá og sendi gullrauða geisla- strauma gegnum skýin ofan á fjörö- inn, sem lá spegilfagur og skær út til hafs, og endurkastaði geislum upp á hlíðamar beggja megin og upp á fjöllin fram af Leirunni og fram með Eyjafjarðará, fram í dal, og upp á skýin, sem lágu eins og silfurofinn dúkur með fram fjallabrúnunum og skygðu á fjörðinn. En hlíðarnar stokkroðnuðu á báðar kinnar, er þær sáu sina eigin fegurð og sólarinnar í sjónum: Árskógsströnd, Möðruvellir oe Kræklingahlíð að vestan, alt suð- austur að Súlum, en Látraströnd, Svalbarðsströnd og Vaðlaheiði að austan, ljómuðu eins og gullskreyttir múrveggir á undrahöll íslands norð- anvætta. Gólf þess var fjörðurinn sjálfur, fagurblár eins og skygður Saphir, en geilsum ofin regnský og þokuský voru þakið. Fram af Leirunni breiddust út dökkgrænar grundir eins og teppi, en tignir gestir gætu setið að veizlu.— höfðinn og brékkan fyrir ofan b»inn líktust borði eða hápalli, þar sem Um leið og skipið hafnaði sig, spil- aði hornflokkurinn lagið: “Ó fögur er v'or fósturjörð”. Allir þekkja vís- una: “Ó fögur er vor fósturjörð um fríða sumardaga, er laufin grænu litka börð og leikur hjörð í haga, og dalur lyftir blárri brún mót blíðum sólarloga, og glitrar flötur, glóir tún, og gyllir sunna voga.” Betri lýsing, en þessi vísa er, mun örðugt að fá eða finnna á útliti landsins hér við fjörðinn, eins og það var þetta kvöld. Hver hending hreif, hvert orð snerti hjörtu þeirra er heyrðu. — Bæjarstjórinn Páll Einarsson gekk nú fram að skipinu og flutti þar stutta en skörulega ræðu í nafni bæj búa Akureyrar. Sagði skipkomu þessa vera merkan atburð — vegna þess að “Goðafoss” væri hið fyrsta —annað en “Gullfoss” haffært skip. sem íslendingar hefðu látið byggja, og sem væru þjóðareign. Kv'aðst hann vona, að “Goðafoss” yrði jafn- heillarikur fyrir Norðurland sem “Gullfoss” væri þegar orðinn fyrir Suðurland — og bað svo Akureyrar- búa lýsa fögnuði sínum yfir komu skipsins með þrisvar þreföldu húrra. Og múgurinn, sem viðstaddur var, gerði það. Því næst talaði bæjarstjórinn enn þá nokkur orð um hina nýfengnu stjórnarskrá og hinn nýfengna fána. Kvað það fagnaðarefni fyrir Islend- inga að hafa fengið löggjafarvaldið meir en fyr i sínar hendur, og kvaðst vona, að almenningur mundi læra að elska þrílita fánann, sem hann hafði þá sér við hlið, og sem er næsta svip- aður norska flaggginu, nema hvað rauðu og bláu litirnir standa þar öf- ugt, n.l. rauður litur í krossi íslenzka fánans þar sem norski fáninn hefir bláan lit. Bæjarstjórinn bað áheyr- endur að lýsa ánægju sinni yfir fán- anum með því að hrópa þrisvar þre- falt húrrra. Og múgurinn gerði það fjörugt. Að því búnu kallaði bæjarstjórinn á skipstjóra og bað hann velkominn í nafni Akureyrarkaupstaðar. Framkvæmdarstjóri skipsins, hr. Nielsen, þakkaði með nokkrum prýð- ivel völdum orðum. — Kvað sér og sinni þjóð, Dönum, sönn ánægja að því að sjá slík fyrirtæki sem bygg- ing nefndra skipa, á jafnmiklum ó- aldartímum og af jafnlítilli þjóð. — Islandi væri þetta fyrirtæki til sóma og hann vonaði að það yrði þjóðinni til gagns. Að þessari ræðu lokinni spilaði hornaflokkurinn þjóðsöng Islands, eftir skáldið séra Matth. Jochums- son, og leið hver tónalda hrein og skær út yfir hafið og svo til skýja út í geiminn. Þeir sem kvæðið þekkja vita, að skáldið fyrirsegir þar dauða Islands eins og smáblóms og getur ekkert um “annað líf” eða endur- fæðing landsins. — Að því búnu steig konsúll Otto Tulinius á ræðupallinn, bað “Goða- foss” velkominn og afhenti skipstj. ljósmynd af Goðafossi, nafna skips- ins, sem gjöf frá verzlunarmanna- félaginu. Var svo atburði þessum lokið. Fóru þá ýmsir bæjarbúar upp á skipið, aðrir fóijh heim. Eh homa- flokkurinn spilaði nokkra | Jjóð- söngva og skemtanir héldust fram undir miðnætti. Þetta kvekl kl. 11—12 gaf að líta miðnætursól íslands í allri sinni dýrð. Það er sjón sem enginn, er hana hefir séð gleymir, því hún er óvið- jafnanlega fögur. Það er þá, að “kvöld og morgun mynnast”, það er þá að sólin heldur sigurför sína, í- klædd logablæju og stigur léttfætt yfir fjörðinn og felur sig svo um stundark'orn á bak við Látrabjarg, áður en hún byrjar dagsferð sína á ný. Hafir þú, sem þetta les, aldrei séð þessa undrasjón, þá hefir þú aldrei litið einn af helgidómum íslands — né eina skrautmynd heimsins, sem að eins sést frá Akureyrarbæ. Hún ein er meira virði en mörg þúsund fánar og söguríkari en mörg þúsund ljóð — rétt eins og Goðafoss sjálfur í “gljúfradalnum” eystra er tilkomumeiri en nokkurt skip úr járni eða eik, og niður hans segir meira en nokkur hornasöngur. Hvað á “Gullfoss” þessi að gera fyrir ísland? Hvað á'“Gullfoss” að gera? Flytja vörur og ferðamenn til og frá íslandi, eða bara til að láta menn vita, að Ísland sé til og eigi stórfelda fossa, er Gullfoss og Goðfoss heita? Óskandi að þetta skip og félagi þess “Gullfoss” yrði alþýðu íslands að verulegu gagni í bráð og lengd, og fólkið, sem hrópaði nífalt húrra í gærkvöldi, fái heillaóskir sínar upp- fyltar. En hvenær ætli Goðafoss í Skjálf- anda og Gullfoss í Hvítá fái nokkuð gagnlegt og þjóðþarft verk að vinna? F.B.A. -—Islendingur. Héraðssamkomu héldu Þingeyingar 19. þ.m. ('Júní á Breiðumýri í Reykjadal. Samkoman hófst nieð iðnaðarsýn- ingu, sem þingeyskar konur höfðu stofnað til. Gat þar að líta margan eigulegan grip, unninn af kvennahöndum, en fátt var þar smíðisgripa frá karl- mönnum. Tilgangnr iðnsýninga er sá, að sýna á hvaða stigi þjóðin standi sem iðnaðarþjóð. Þær eru því nokkurs- konar próf, sem þjóðin tekur í þess- ari grein. Sé litið á þessa þingeysku iðnaðar- sýningu sem próf, er sýslubúar hafi gengið undir, er bersýnilegt að kon- ur sýslunnar bera höfuð og herðar yfir karlmennina í iðnaði. Engin húsgögn sáust þar eða smíð- aðir munir að heitið gæti. En kven- fólkið hafði þakið alla veggi sýning- arsalsins og öll borð af sínum varn- ingi, svo ekki var gómstór blettur ó- notaður. Hvað því hefir valdið, að hagleiks- menn sýslunnar lögðu ekki meira til þessarar sýningar, en þeir hafa gert, er ekki gott að segja. En sennilega hefir það verið tómlæti og annað ekki.—Islendingur. Reykjavík, 11. Ágúst 1915. Það er styzt að segja, að það eru framleiðendur útflutts varnings, scm aðallega taka gullið upp úr grjótinu í ár hér á landi. Þó eru engir að líkindum, sem græða eins geipilega og algerlega fyrirhafnarlaust eins og sveitabændur. Gærurnar og haustull- in flugu upp úr von og viti í haust sem leið. Ullarverðið í sumar er komið upp í kr. 4.90 fyrir kg. af ull, þ.e. kr. 2.45 fyrir pundið, en það er helmingi hærra en nokkur dæmi eru til áður. Stórbóndi á Norðurlandi seldi hér um daginn ullina sína fyrir þetta verð og fékk alls um 5,000 kr. fyrir hana. En ullina er nú ekki auð- ið að ná í með tolli í þetta sinn, þ.e. a.s. vorullina. Þessi sami bóndi sel- ur og mikið fé á hverju hausti, og gerir hann ráð fyrir að fá í haust 50 kr. fyrir hvern fullorðinn sauð. — En það eru fleiri en sveitabændurn- ir, sem raka saman peningum á stríð- inu. Sjávarútvegurinn stórgræðir einnig í ár, þar sem lýsi mun vera í 120—130 kr. tunnan og saltfiskur (nr. 1) í 120 kr. og þar yfir skp. En þó er gróði sjávarútvegsins ekki sviplikt því eins mikill tiltölulega, og kemur það af því, að salt, sem til út- vegsins heyrir, hefir stigið stórum í verði; kol hafa tvöfaldast í verði, og kaup hefir einnig hækkað. Bregðist síldveiðin, verður það stór hnekkir fyrir útgerðarmenn, en v'erði hún sæmileg, þá er enginn efi um hitt, að síldin veröur í geipi-verði — sumir tala jafnvel um 50 kr. fyrir tunnuna. Hvað kjötverð verður í haust, er ekki gott að vita, en varla verður það minna en tvöfalt á við vanalegt v'erð. Lagaprófessors-embættið, sem E. Arnórsson ráðherra gegndi áður, er nú auglýst laust og umsóknarfrestur til 15. Sept. Byrjunarlaun 3000 kr., en fara hækkandi upp í 48500 kr. Miðfjarðar-læknishérað er auglýst laust. Árslaun 1,500 kr. Settur sýslumaður í Árnessýslu er Eiríkur Einarsson lögfræðingur frá Hæli. Beinhákal kom nýlega í síldarnet hér úti í flóanum, frá skipinu “Nora” og dró það hann í land hér vestan við höfnina. Lengd hans er 8,10 metrar, en ummál framan við bak- ugga 4.90 metrar. Lifrin var 6 tunn- ur, Beinhákarl kvað vera sjaldgæf- ur hér syðra og er talað um að troða út skrápinn handa náttúrugripasafn- inu. Dáin er hér í bænum 1. þ. m. Bergljót Árnadóttir, ekkja Sigurðar kaupmanns í Reykjavík Magnússon- ar bónda í Bráðræði, Jónssonar. Börn þeirra eru: Jón Hjaltalín hér- aðslæknir í Rvík, Magnús yfirréttar- málafl.m., Ingvar stúdent, Ingibjörg kenslukona og Guðrún. Dáinn hér í bænum í morgun (5.) Helgi Pálsson, faðir Einars Garð- yrkjumanns. Eins og að undanförnu lokuðu bankarnir hér 2. Ágúst og flestum búðum lokað kl. 4. Skemtun var á íþróttavellinum um kvöldið. — Þar Var dregið um happadrættis-miða 1- þróttasambandsins og komu upp nr. 2077 ffar til Khafnar á 1. farrými Gullfossý nr. 1337 ('ferð til Noregs á 1. farrými Björgvinjarskips) og nr. 23 (far til Kaupmannahafnar á 2. farrými Goðafoss). Goðafoss kom til Kaupmannahafn- ar 29. f.m., beina leið frá Fáskrúðs- firði og varð ekki fyrir neinum töf- um á leiðinni.—Lögrétta. Akureyri, 2. Júní 1915. Verkamannafélagið hér í bænum hefir kært til stjómarráðsins yfir kolaverðinu hér. Hefir þetta borið þann árangur, að verðlagsnendin hefir fýrirskipað hámark kolaverðs- ins 30 kr. tonnið. fVar áður 45 kr.J. Þegar þetta varð hljóðbært, hugðu menn gott til að fá ódýr kol. En er til átti að taka, voru öll kolin seld og lofuð. Er nú mælt, að kol séu með öllu ófáanleg hér í bæ, og sýnist því svo, að hin síðari villan ætli að verða argari hinni fyrri. Málið mun á ný Vera komið fyrir stjórnina og verð- lagsnefndina. — Eftir að ofangreint var sett í blaðið kom út auglýsing frá hr. Ragnari Ólafssyni um það, aö hann seldi kol fyrst um sinn. Verð 45.00 kr. Fjárkláðinn er nýlega fundinn á þrem bæjum í Öxnadal fVarmavatns- hólum, Bessahlöðum og Geirhildar- görðum). Enn fremur er fjárkláði kominn upp á tveim bæjum í Keldu- liverfi: Keldunesi og Þórunnarseli. —Islendingur. Reykjavík, 25. Ágúst 1915. Dáin er í Landakotsspítalanum hér í bænum kvöldið 23. þ.m. frk. Anna Sigríður Arasen, eftir þunga legu. Hún var dóttir Ara Arasens læknis á Flugumýri í Skagafirði, fædd þar 1. Des. 1853. Páll J. Torfason fjármálamaður er nýlega kominn heim hingað eftir nær ársdvöl í Danmörku. Hann hefir stofnað og látið skrásetja hér félag, sem heitir “Aktieselskabet Is- lands Salt og kemiske Fabrikker.” — Það á að starfa að saltvinslu hér við land og ætlar einnig að fást við að vinna olíu úr kolum eða surtar- brandi. í stjórnarnefnd félagsins eru P. J. Torfason, P. G. Utzon Buck og Chr. Grauballe, en fram- kvæmdarstjórinn heitir Einar Lyt- ken, og er hann hér nú að kynna sér verkefni félagsins. “ísland,” hið nýja og vandaða skip Sam. gufuskipafél. kom hingað í morgun, og er' það fyrsta ferð þess milli landa. Þ-að mun vera vandað- asta farþegaskip, sem hér hefir verið i förum. Skipstjóri á því er Aasberg- kafteinn, sem áður var skipstjóri á “Botníu” og mörgum er hér að góðu kunnur. — Lógrétta. Björg Bjarnardóttir, kona Finn- boga kaupm. Lárussonar í Gerðum, andaðist á heimili þeirra 9. f.m. Bjjörg sál. fæddist jí Garðhúsum í Reykjavík 19. Sept. 1875.—lsafold. Reykjavík, 6. Ágúst. 1915. Ægissíðu, 4. Ágúst. — Einmunatíð. Nýting ágæt. Heyskapur á Mýrum bezta lagi. Erfitt að ná af valllendi sakir stöðugra þurka. — Nýlátin er frú Anna frá Múla, tengdamóðir Gríms Thorarensens í Kirkjubæ. Eyrarbakka 5. Ág. — Ágætur afli hér. Miklir þurkar, alt að skrælna og brenna. — Rigningar og ótíð í Mýrdalnum að sögn. Vænar kartöflur koma nú upp úr görðunum á Reykjum í Mosfells- sveit hjá Óskari garðyrkjumanni Halldórssyni. Vísi voru sendar þrjár kartöflur þaðan í gær og vógu þær 40, 37 og 31 gram og er það óv'enju- legt svo snemma sumars. Útsæðið var danskt og hafði Óskar selt um 300 tunnur af því út um land. — En fremur hefir hann reynt norskt útsæði frá Þrándheimi og gefst það vel. Langmest notar hann þó ísl. útsæðiskartöflur og lætur vel af því hvernig spretti af þeim í sumar og býst við að fara að selja þær kartöfl- ur um miðjan mánuð.—Vísir. Fjárlagafrumvarpið á Alþingi. Tekjur landsins er ætlast til að verði á fjárhagstímabilinu 4,203,700 krónuir. Skattar og tollar er ætlast til að verði 3 miljónir 763 þús. kr. Þ if er hæstur tollui af kaffi og sykri. 3,000,000 kr. Fer það nærri því scm hann hefir reynst undanfarin ár. Næstur er vörutollur , 750 þús. Þá tóbakstollur 420 þús., símatekjur 380 þús. og pósttekjur 250 þús., út- flutningsgjald 300 þús., aukatekjur 150 þ*ús., ábúðar og lausafjársskatt- ur 108 þús. Allir aðrir liðir eru undir 100 þús. kr. Lægstur er erfða- fjárskattur, 9 þús. kr. bæði árin. Tekjur af fasteignum landsjóðs (Ijörðum, ,-kirkjum, silfurbergsnám- um og Ræktunarsjóði samtals 56,200 kr. Viðlagasjóðstekjur 248,900 kr. Ýmsar greiðslur og endurgjöld 15,600 kr. Úr ríkissjóði Danmerkur 120,000 kfónur. Tekjuáætlunin er mestmegnis mið- uð Við meðaltal síðustu ára og farið heldur varlega í sakirnar. Útgjöldin eru áætluð 4,333,341 kr.. 92 au. Koma fyrst greiðslur af lánum tæp hálf miljón króna. Til alþingis 80 þús. kr. Dónrgæsla og lögreglustjórn (a.) um 174 þús. og (b) 125 þús. kr. Læknaskipun um 380 þús. kr. Þar SUCCESS BUSINESS C0LLEGE WINNIPEG, MANITOBA Byrjið rétt og byrjið nú. I-æriS verzlunarfræði — dýrmætustu þekkinguna, sem til er t veröldinni. Lærið í SUCCESS, stærsta og bezta verzlunarskólanum. Sá skóli hefir ttu útibú I tlu borgum Can- adalands—hefir fleiri nemendur en allir keppinautar hans t Canada til samans. Vélritarar úr þeini skóla hafa hæstu vcrðlaun.—útvegar at- vinnu — hefir beztu kennara — kennir bókhald, stærðfræði. ensku, hraðritun, vélritun, skrift og að fara með gasoltn og gufuvélar. Skrifið eSa sendiS eftir upplýsingum. F. G. GARBUTT President. D. F. FERGUSON.. Principal Members of the Commercial Educators' Association E. J. O SULUIVAN, M. A. Pres. Stofna'ð 1882. — 33. Ar. Stærsti verzlunarskóli t Canada. Býr fólk undir einkaskrifara stöSu_ kennir bókhald, hraSritun. vélritun og aS selja vörur. Fékk hæstu verðlaun á heimssýningunm. Einstaklingskensla. Gestir velkomnir, einkum kennarar. öllum nemendum sem það eiga skilið, hjálpað til að fá atvinnu. SkrifiS, kom- iS eSa fóniS Main 45 eftir ókeypis verSlista meSmyndum. THE YVINNTPEG BUSINESS COLUEGE 222 Portage Ave. Cor. Fort Street. Enginn kandídat atvinnulaus. Business and Proíessional Cards Dr. Bearman, Þekkir vel á Augna, eyrna, nef, kverka sjúkdóma og gleraugu. Skrifstofutímar: 10-12, 2-5 og 7-8 Ta.ls. 4-370 215 8 imerset Blk Dr. R. L. HURST, Member of Royal Coll. of Surgeons, Eng., útskrifaSur af Royal College of Phj-siclans, London. SérfræSlngur í brjóst- tauga- og kven-sjúkdómum. —Skrifst. 305 Kenuedy Ðldg., Portage Ave. (á móti Eaton’s). Tals. M. 814. Heimili M. 2696. Ttmi tll viStals: kl. 2—5 og 7—8 e.h. Dr. B. J.BRANDSON Office: Cor. Sherbrooke & William TELKPHONE GARRY320 OrFICB-TfMAR: 2—3 Heimili: 776 VictorSt. Telephone garry 321 Winnipeg, Man. THOS. H. JOHNSON og HJÁLMAR A. BERGMAN, fslenzkir lógfræSingar, Skrifstofa:— Room 8ii McArthur Building, Portage Avenue Áritun: P. O. Box 1658. Telefónar: 4503 og 4504. Winnipeg GARLAND & ANDERSON Ami Anderson E. P Garlaa^ IÖGFRÆÐINGAR 801 Electric Railway Chambars Phone: Main 1561 með talin sjúkrahús o. fl. Samgöngumál 1,383,810 kr. /a) Póstmál 267,200 kr. (b) Vegabætur 325,300 kr. (c) 1. Strandferðir 137,000 kr. 2. Eimsk.fél. Isl. 80,000 kr. 3. Bátaferðir á flóum o.sfrv. 96,000 kr. (d) Hraðskeytasamband um 350 þús. kr. (e) Vitamál 127,450 kr. Kirkju- og kenslumál 740,000 kr. (a) Andlega stéttin um 112,000 kr. (b) Kenslumál— 1. Háskólinn 137,000 kr. 2. Mentaskólinn 81,000 kr. 3. Gagnfræðaskólinn á Akureyri um 36,000 kr. 4. Kennaraskólinn 30,000 kr. 5. Stýrimannask. unt 16,000 kr. . 6. Bændakensla 37,400 kr. 7. Iðnfræðsla 15,200 kr. 8. Verzlunarskólinn 10,000 kr. Húsmæðrafræðsla 2,400 kr. 10. Ljósmæðraskólinn 8,000 kr. 11. Kvensk. Rvíkur 28,600 kr. 12. Bamafræðsla 156,800 kr. ('Barnaskólar 30 þús. hvort árið og fars'kólar 20 þúsund hvort áriðý. 13. Lýðskólar 42,000 kr. 14. Ýms kensla 25 þús. kr. Vísindi, bókmentir, listir um 186 þús. kr. Þar með talið fé til rann- sókna, styrkir til félaga og einstakra manna. Verkleg fyrirtæki um 465,000 kr. 1. Búnaðarfél. íslands 108.000 kr. 2. Búnaðarfél. 44,000 kr. 3. Vatnsvirki um 20,000 kr. 4. Járnbrautarranssókn 18,000 kr. 5. Sandgræðsla 10,000 kr. 6. Skógrækt 30,000 kr. 7. Fiskiveiðasjóður 12,000 kr. 8. Landhelgissjóður 10,000 kr. 9. Fiskifélagið 25,000 kr. 10. Bjargráðasjóður 40,000 kr. 11. Vestmanneyjahöfn 62,000 kr. 12. Brimbrjótur í Bolungarvík 20,- 000 kr. Óviss útgjöld 20,000 kr. Úr viðlagasjóði má veita samtals alt að 55,000 kr.—SuSurland. Eyrarbakka, 31. Júlí 1915. Aflabrögð hafa verið ágæt hér austan fjalls þessa viku. Einn bátur hefir gengið héðan af Eyrarbakka og þrír af Stokkseyri og allir mokfiskað (30 60 í hlutj. Aflinn er langmest langa, þorskur og keila. Síld hafa sumir bátamir veitt þetta 10—20 tn. í róðri. Síldin er seld jafnharðan til \ estmanneyja, það sem ekki er not- að til beitu í bráðina. Langræði er svo mikið, að bátarnir eru 2 sólar- hringa í róðri, og gengur alt vel í þessari gæðatíð. Það má heita, að ekki hafi sézt brimboði nú í þrjár vikur; sér oftast ekki fyrir brim- garðinum. Er ]jað sjaldgæft. Hinn 6. Maí síðastl. andaðist kon- an Sigríður Gísladóttir í Saurbæ í ölfusi, fullra 87 ára að aldri. Eyrarbakka 1. Ágúst 1915. Slátturinn stendur nú sem hæst. Tún hafa víða sprottið dável í nær- sveitunum og nýting afbragðsgóð. Útjörð er mjög misjöfn, votlendi v'el sprottið og má slá og hirða tafar- laust. Harðvelli víða illa sprottið og bítur illa á. Vatnsskortur er víða orðinn til stórbaga. Langt siðan farið var að brynna fénaði í ^lóanum og á Reykjanesi syðra. Mánlytufénaður gerir ekki nærri fult gagn á Reykja- nesi vegna vatnsskorts. Aftur er sögð óþurkatíð í Skaftafellssýslu og jafnvel undir Eyjafjöllum, svo að töður bliknuðu á túnum. Á Vesturlandi er sögð ágæt tíð. Heyskapur ágætur í Borgarfirði og Dölum. Norðanlands hefir txðin. verið erf- ið alt til þess að ísinn fór. Síðan hafa v'erið þokur og nepjusúld. Jörð illa sprottin og óþurkar. Af Austfjörðunx er sögð óþurkatíð og aflafátt nema á vélabáta, og þó ekki mikið. Skemdir á kálgörðum urðu miklar hér í sýslunni í norðanbálviðrinu um miðjan síðasta mánuð. Nokkuð var þó farið að lagast í görðum og komnar góðar horfur undir mánaða- mótin. Hitarnir þessa viku og lát- lausir þurkar setla nú alveg að gera út af við garðana. Farið að fölna kartöflugras í sandgörðum. Sumir hafa vökvað garða sína öðru hvoru; það ætti að duga, ef ekki þrýtur vatnið. Laxveiði er nú hætt í Ölfusá. Hefir orðið varla í meðallagi að töl- unni, en laxinn var vænn og jafnar það nokkuð upp.—Suðurland. Hvaðanœfa. — Prins der Nederlanden,” hollenskt, var fyrsta skipið sem kom til New York frá Haiti eftir upphlaupið sem þar hafði staðið. Sögðu farþegar að ástandið 'hefði verið mjög ískyggiiegt á eynni, þar til hinir amerisku hermenn gengu þar á land og sbiltu til frið- ar. ( —Nærri lá að Gustaf Svíakor.ung- ur slasaðist 26. Ágúst. Þegar hann var að fara inn í járnbrautarvagn, rann lestin á stað svo hann misti nandfestu og féll. Annar íóturinn lenti á milli vagnsins og gangpalls- ins og meiddist konungur talsvert. Nú er hann á góðum batavegi. Dr. O. BJORNSON Office: Cor. Sherbrooke & William . rELEPHONElG(RRv32» Officetímar: 2—3 HEIMIUl 764 Victor atr*et rELEPHONEl GARRY T63 Winnipeg, Man, Joseph T. Thorson íslenzkur lögfræðingur Arltun: CAMPBELL, PITBLADO & COMPANY Farmer Building. • Winnipeg Man. Phon* Main 7540 Dr. W. J. MacTAVISH Offick 724J Aargent Ave. Telephone Aherbr. 940. ( 10-12 f. m. Office tfmar 3-5 e. m. ( 7-9 e. m. — Heimili 487 Toronto Street — WINNIPEG tklbphonk Sherbr. 432 Dr- J. Stefánsson 401 BOYD BLDG. Cor. Portage and Edmonton Stundar elngöngu augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma. — Br aC hltta frá kl. 10—12 f. h. og 2—5 e. h. — Talsími: Maln 4742. Helmill: 105 Ollvia St. Talsíml: Garry 2315. J. G. SNŒDAL TANNLŒKNIR. ENDERTON BUILDNG, Portage Ave., Cor. Hargrave St Suite 313. Tals. main 5302. Fagnaðarefni. 1 litlum þýzkum bæ, sem stend- ur í afskektu héraði og fá dagblöð koma gerði bamakennarinn sér það að reglu, að segja bömunum síðustu stríðsfréttir, áður en þau fóru heim á kveldin. Sögðu þau svo fréttirnar á götunni og hróp- uðu og kölluðu hvert í kapp við annað. Ibúar bæjarins voru orðnir svo vanir að fá fréttimar á þennan hátt, að margir stungu höfði út uni gluggana til að heyra sem bezt hvað bömin sögðu, þegar þau fóm fram hjá, því oft var erfitt að greina orðin fyrir “húrra”- hrópunum. Einu sinni hrópuðu bömin hærra og fóru með meiri fagnað- arlátum en nokkru sinni áður. Þjóðverjar hlutu að hafa unnið stóran sigur og fleiri lögðu nú við hlustirnar en nokkru sinni fyr. Þegar bömin færðust nær heyrðist glögt að þau sögðu: “Húrra, það er búið að kalla kennarann okkar i stríðið, húrra!” Dr. A. A. Garfat, TANNLÆKNIR 614 Somerset Bldg. WINNIPEC, Phone Main 57 MAN. Gísli Goodman TINSMIÐUR VERKSTŒÐI: Homi Toronlo og Notre Dame Phone Oarry 2988 Uelmllla Oarry 898 J. J. BILDFELL FA8TEIQNA8ALI Room 520 Union Bank - TEL. 2885 Selur hús og lóOir og annast alt þar aölútandi. Peningalán J. J. Swanson & Co. Verzla með faeteignir. Sjá um leigu á húsum. Annast lán og eldsábyrgðir o. fl. 504 The Kcnslngton,Port.*8mlth Phone Maln 2597 S. A. 8IOURD8QN Tals Sherbr| 2786 S. A, SIGURÐSSON & CO. BYCCIflCAMEþN og F/\STEICNI\SALAR Skrifstofa: 208 Carlton Blk. Talsími M 446« Winnipeg Columbia Erain Co. Ltd. H. J. LINDAL L. J. HALL6RIMS0K íslenzkir hveitikaupmenn 140 Grain Exchango Bldg. Sálmabókin. Hin nýja sálmabók ldrkjufé- lagsins er nú til sölu hjá féhirði félagsins herra Jóni J. Vopna. Utanáskrift Box 3144 Winnipeg Man. Afgreiðsla á skrifstofu Lögbergs. Bókin er sérstaklega vönduð að öllum frágangi. Kostar $1.50, $2.25, $2.75, eftir gæðum bands- ins; allar í leðurbandi. — Þessi sálmabók inniheldur alla Passíusálma Hallgríms Pétursson- ar og einnig hið viðtekna messu- form kirkjufélagsins og margt fleira, sem ekki hefir verið prent- að áður í neinni íslenzkri sálma- bók. A, S. Bardal B43 SHERBROOKE ST. sebir líkkistur og aunast om úiiarir. Allur útbún- aðor sá bezti. Ennfrem- ur selur bann allskonar minnisvarOa og legsteina ra'B. He-mili Ga.rry 2181 n OfTice „ 300 og 375 Skrifstofutímar: Tals. I^. 1524 10-12 f.h. og 2-4 e.h. G. Glenn Murphy, D.O. Osteopathic Physician 637-639 Somerset Blk. Winnipeg Tals. G. 2292 McFarlane & Cairns æfðustu skraddarar í Winnipeg 335 (lotre Dams Ave. l dyr fyrir vestan Winnipen leikhús Vér leggjum eérstaka Aherzlu & aC selja meðöl eftxr forskriftum lækna. Hin beztu melöl, sem haegt er að í&. eru notuS etngöngu. pegar þér kom- IS meS forskrlftlna tll vor, meglS þér vera vlss um aS fá rétt þaS sem læknlrinn tekur tll. COLCLEUGH ék CO. Xotre Danie Ave. og Sherbrooke St. Phone Garry 2690 og 2691. Glftlngaleyflsbréf seld. Lœrið símritun Lærift simritun; járnbrautar og verzlunarmönnum kent. Verk- leg kensla. Engar námsdeildir. Einstaklings kensla. SkrifiS eft- ir boðsriti. Dept. “G’’, Western Schools, Telegraphy andf Rail- roading, 27 Avoca Block, Sargent Ave., near Central Park, Winni- peg. Nýir umsjónarmenn. D. GEORGE Gcrir við allskonar húsbúnað og býr til að nýju. Tekur upp gólfteppi og leggur þau á aftur Sanngjarnt verð Tals. G. 11 1 2 369 Sherbrooke St. The London & New York Tailoring Co. Kvenna og karla skraddarar og loðfata salar. Loðföt sniðin upp, hreinsuð etc. Kvenfötum breytt eftir nýjasta móð. .Föt hreinsuð og pressuð. 642 Sherbrooke St. Tais. Garry 2JÓ8 Mrs. E. Coates-Coleman, Sérfræðingur Eyðir hári á andliti, vörtumog fæðirfgarblettum, styrkir veikar taugar með rafmagni o. s. frv. Nuddar andlit og hársvörð. Biðjið um bækling Phone M. 9%. 224 Smith St. Thorsteinsson Bros. & Company Byggja hús, selja lóðir, útvegm lán og eldsábyrgð Fón: M. 2992. S15 Somenet Bld«. Helmaf.: G. 7SS. Wlnlpec, Hsn. E. J. Skjöld, Lyfsali Horni Simcoe & Wellington Tsls. Garry 4368

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.