Lögberg - 23.09.1915, Blaðsíða 7
IíOGBERG, FIMTUDAGINN
23. SEPTEMBEE 1915
r
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI.
Reykjavík, 23. Ágúst 1915.
Skip rak á land í Hafnarfiröi í
gær. Það var stóri þýzki barkurinn
“Standard”, sem þar hífir legiS sí5-
an í fyrra. Rak hann í klettana fyr-
ir vestan bryggjuna; eru nú komin
tvö göt á hann og rennur sjór út og
inn. Engar vörur voru í skipinu
aórar en skrápsalt. Talið er víst, að
skipinu verði ekki bjargað; en hvað
sem við það verður gert, þá verður
að flýta þvi, þvíð a skipið skyggir á
vitann.
1 ráði er, að landsbankarústirnar
með tilheyrandi lóð verði keyptar
handa landsímanum. Það þykir fyr-
irsjáanlegt, að pósthúsið muni þurfa
á öllu sínu húsnæði að halda, áður
en langt líður. Eign bankans verð-
ur seld fyrir virðingarverð, en upp í
það gengur lóð á Arnarhólstúni, sem
reisa á nýju bankabygginguna á.
Frá Eyrarbakka er sagt, að Guðm.
ísleifsson, fyr á Háeyri, sé “enn að
hefja einhver illmæli í sambandi við
Ingólfs- eða Jóhannsbúðar-brennuna
í vetur.” Eru þar allmiklar viðsjár
með mönnum og margt sagt um ná-
unga'nn misjafnlega fagurt.
ísafirði 24. Ág.—Síldarafli er hér
enginn síðustu tvo—þrjá dagana sak-
ir rokstorms, er hamlað hefir skipum
að fara út. Liggja þau hér inni,
nokkuð á 3. hundr. talsins. — Mestan
afla hefir til þessa fengið botnvörpu-
skipið “Maí”, eitthvað um 5000 tunn-
ur. Síldarverðið er stórum hærra
en áður.
Franski háskólakennarinn okkar,
hr. Barraud, sem tók við eftir Cour-
mont og kallaður var heim vegna
stríðsins, er nú fallinn í viðureign-
inni við Þjóðverja. Hefir Thora
Friðrik^son fengið bréf um þetta frá
móður hr. Barrauds. Hann hafði
verið flokksforingi og getið sér
góðan orðstír fyrir frækna fram-
göngu. Var hann sæmdur heiðurs-
merki, er sent var móður hans að
honum látnum. — Hér heima var hr.
Barraud mæta vel látinn af öllum
þeim, er þektu hann, enda var hann
fljótur að setja sig inn í íslenzkan
hugsunarhátt og orðinn góður í mál-
inu. Mælt er, að vinir hans hér ætli
að Isýna minningu hans einhvern
virðingarvott og væri það mjög vel
viðeigandi.
Riklingur er nú seldur hér í bæn-
um á kr. 1.60 kílóið. Þá verður skip-
pundið af honum 256 kr. — Hann
verður líklega ekki á borðum dag-
launamanna í vetur á Þorranum.
Ný staðfest eru “lög um heim-
ildir fyrir landsstjórnina til ýmsra
ráðstafana út af Norðurálfuófriðn-
um.” — í 3. grein laganna er bann-
að að flytja út úr landinu mör og
tólg — en fyrir brot á því ákvæði er
engin refsing lögð Við í lögunum. —
Hve margir lögfræðingar sitja nú á
þingi ?—Visir.
Brezkt herskip eða hjálpar-
heitis'kip hið sama sem hér var í
vor brunamorguninn, kom hingað á
þriðjudag (3. ágúst) síðdegis.
Það heitir Digby. Varð uppi fót-
ur og fit í bænum fyrir forvitnis
sakir um erindi þess. En þau svör
voru greidd af Bretanna hálfu, að
komnir væru þeir að eins til að eiga
tal við brezka ræðismanninn Cable
og ennfremur til þess að lofa
skipshöfninni að finna til landjarð-
ar undir fótum sér. Dvaldist skip-
ið hér svo lengi, sem mátti, í hlut-
lausri höfn, þ. e. 24 kl.st., en hélt
þá út aftur og Valurinn fór þá um
leið noröur um land. Mátti heita
að hann færi í kjölfar hins brezka
skips.
j Beinhákarl fBarða) allmikinn
veiddi síldarveiðaskipið Nora fyrir
skömmu í síldarnet hér úti í Flóa.
Gátu skipverjar dregið hann upp
Saltíð sem
hjálpar
Canada
er
að borði og dregið vír um sporð
hans. Höfðu þeir hann síðan í
eftirdragi inn' á höfn og kafnaði
hann á leiðinni. Hákarlinn var
dreginn upp í fjöruna hjá SHppn-
um á fimtudag og var hann svo
þungur að vírkaðall, sem bundinn
var um sporð hans slitnaði eins og
tvinnaspotti þegar hákarlinn var
kominn hálfur á land. Lá hann nú
í fjöruborðinu þangað til fjarað
•hafði undan honum og var þá
mældur. Lengd frá trjónu að
sporðsenda voru 8,10 metrar og
ummál framan við ba'kugga 4,90
metrar. Þar sem sporður var
mjóstur var ummálið 1 meter.
Þarna var nú hákarlinn skorinn
og tekin úr honum lifrin. Guðm.
Grímsson hafði keypt hann og
reyndist hún vera 6 tunnur. Það
er helzt í ráði að skrápurinn verði
tekinn af hákarlinum og úttroðinn
handa Náttúrugripasafninu. Er
það vel farið ef svo verður. —
Mannstraumur var allan daginn
vestur eftir þangað er hákarlinn
lá.
Þann 2. ágúst var dregið um
vinningana i happadrætti Iþrótta-
vallarins. Fyrsta vinninginn, far-
bréf á 1. farrými frá Islandi til
K.hafnar og til baka aftur með e.
s. Gullfoss hlaut nr. 2oyy. Annan
vinninginn, farbréf fram og aftur
til Noregs á 1. farrými með skip-
um Björgvinjarfélagsins, hlaut nr.
1377. Þriðja vinninginn, ferð fram
og aftur til K.hafnar á Goðafoss
(2. farrými), hlaut nr. 23. —
Annan vinninginn hlaut Gunnar
Þorsteinsson kaupm., en ókunnugt
enn um hina vinnendur. —Isafold.
Störf þingsins.
1 dag (y. ágúst) er mánuður af
þingi og timi þess að líkindum
hálfnaður, ef alt fer með feldu.
Lengd þingsins fer jafnan eftir
fjárlögunum. En mælt er að þau
muni koma úr nefnd í Neðn'deild
upp úr' helginni. Má það heita
rösk afgreiðsla borið saman við t.
d. síðasta fjárlagajúng (1913J.
Það þinig hófst 1. júlí, en eldhús-
dagurinn þ. e. frh. 1. umræðu fjár-
laganna var eigi fyr en 13. ágúst.
Og er við þessa fljótu afgreiðslu í
Neðrideild bætist að Efrideildar
fjárlaganefndin er þegar búin áð
vinna mikið undirbúningsstarf, þá
virðist mega gera sér vonir um, að
svo sem mánuður til nægi) til end-
anlegrar afgreiðslu, fjárlaga frá
þinginu.
Þetta þing hefir verið svo hepp-
ið að lenda ekki í neinu ráðherra-
þvargi, að heitið geti, því að eftir-
varastælan, sem stóð 3 daga, má
heita hreinasta bam hjá ráðherra-
rifrildi fyrri þinga, sem í sig
gleypti tíma þingsins, jafnvel svo
vikum skifti, tafði öl lnefndarstörf
og olli miklum vandkvæðum á
vinnubrögðum þingsins.
Þar sem svp hentug skilyrði eru
fyrir góðum vinnubrögðum —
mun mega vænta þess ;yð þingið
fái unnið nýtt verk i löggjafar-
starfinu, að sanngimi og vi't fái að
sitja í fyrirrúmi fyrir flokka- og
persónu-ofstæki.
Að hálfnuðum þingtímo eru
sjaldnast mörg lögin afgrei’dd. Og
svo er það og nú, að engin lög
munu enn samþykt til fullnustu.
En aftur er búið að skera þó nokk-
ur mál niður við trog í neðri deild-
inni.
Má þar nefna verðtollsfrumvarp-
ið, frumvarp um að bæta eim
um kennara við læknadeild háskól-
ans, frv. um frestun! á sölu þjóð-
jarða og loks hefi’r mörgum forða-
gæzlufry. og tillögum verið snúið
upp í eina þingsályktunartillögu,
áskorun til stjórnarinoar um að
undirbúa málið undir næsta þing-
•
Af merkum málum, sem nú er
verið að fjalla um, má, auk fjár-
laga, nefna sparisjóðsfrumvarpið.
Það er nú búið að vera gestur
þingsins tvö síðustu árin, en bæði
skiftin verið, svæft. Nú verður
væntanlega úr, að þaði fái að lifa
og að lögum verða. Eitt atriði 1
því hefir aðallega valdið deilum,
sem sé, hvort einn aðalumsjónar-
maður skuli vera í landinu með
öllum sparisjóðunum. Við þessu
hafa einkum bændur snúist önd-
verðir mjög — og má merkilegt
heita.
Windsor Bord
SALT
Vfirleitt mun sjaldan hafa eins
mikið kveðið að bcvndavaldinn á
þingi eins og nú, þótt fámennur sé
sjálfur flokkurinn, er kennir sig
við þá stétt. Og mun það sýna sig,
að ef eitthvað verður hreyft við
hinum mikla auka-gróða, sem
sveitabændur, sér að þakkarlausu,
en að eins vegna ófriðarins, fá af
afurðum sínum þetta ár — þá mun
harðsnúnum andstöðu flokki gegn
því að mæta á þingi. —Isafold.
íslenzku kolin reynast vel.
SCHOOLS and COLLEGES
Busiíiess and Professional Cards
Guðm. E. Guðmundsson bryggju-
smiður hefir verið afarótrauður
síðastliðið ár að leita að kolum 'hér
á landi, og virðist honum hafa tek-
ist að finna vel nýtileg kol vestur
við Skor í Stálfjalli, skamt frá
Sjöundá. Hefir hann haft með sér
hingað suður nokkur sýnishorn,
sem reynd hafa verið í ofnum,
eldávélum og miðstöðvarvélum, og
reynast framar öllum vonum. Tel-
ur G. E. G. kolin fara batnandi,
því innar sem dregur í berginu, en
skortir mjög tæki til að vinna þau
á þann hátt, sem beztur er og hag-
anlegastur. — Hann hefir sótt um
lán til þingsins til frekari starf-
rækslu, og má líklegt heita, að eigi
verði skolleyrum skotið við þeirri
beiðni að raunalausu, og G. E. G.
neyddur til að snúa sér til erlendra
auðmanna um fjármagn til kola-
námureksturs. •—Isafold.
Götu-auglýsingar.
Eitt af því, sem algengt er í Evr-
ópu, en sem lítill gaumur hefir verið
gefinn í þessu landi, er það, að
benda almenningi á hættuna, sem af
vínnautn leiðir, með götuauglýsing-
um eða miðum, sem innihalda nauð-
synlegar áminningar um skaðsemi
alkoholsins, og festir eru upp á fjöl-
sóttum stöðum eða þar sem liklegast
er að sem flestir taki eftir þeim og
lesi þá.
I Evrópu er talsvert unnið að þvi,
að hnekkja vínrtautn á þennan hátt.
Á Englandi og Frakklandi er sagt, að
bæja- og sveitastjórnum sé sumstað-
ar ger’t að skyldu að gefa út slíkar
auglýsingar. í Paris er t.d. heilbrigð-
ismálanefnd borgarinnar falið á
hendur að birta þær og eru þær stíl-
aðar og undirskrifaðar af nafnkunn-
asta og færasta lækni borgarinnar.
Cambridge í Massachusetts á heið-
urinn af því, að vera fyrsti bærinn í l
allri Ameríku til að byrja á þessu.
Innihald fyrsta miðans, sem festur
var upp, er á þessa leið
ALKOHOL
Alþýðan heldur,
að það sé að eins ofdrykkjan, sem
skaðleg sé.
Reynslan satnnar,
að jafnvel hófdrykkja er skaðleg
fyrir heilsuna og veikir þrótt
manna.
Alþýðan licldur,
að alkohol hressi, knýi til starfa
og eyði þreytu.
Reynslan sannar,
að alkohol svæfir, en eykur hvörki
jjrótt né úthald mannsins.
Alkohol veikir lífsþróttinn.
Alkohol er orsök til sjjíkdóma.
Hugsið út í þetta:
Á alþjóða fundi helztu lækna
heimsins, sem haldinn var til að í-
huga og bera ráð sín saman um það,
hvað gera skyldi til að hefta eða
útrýma tæringu, var samþykt, að
sameina baráttuna gegn tæringu bar-
áttunni gegn alkoholi, sem áfengra
drykkja.
Á almenna sjúkrahúsinu í Boston,
minkaði noktun alkohols við lækn-
ingar um 77 af hundraði á átta árum.
Hið sama á sér stað á flestum
sjúkrahúsum.
Mest af þeirri fátækt, brjálsemi og
og þeim glæpum, sem eiga sér stað í
þjóðfélaginu, er notkun alkohols að
kenna. Þeir er fangagæzlu annast,
skýra oss frá því, að 95 af hverju
hundraði af þeim, sem í fangelsi
lentu árið 1911, hafi verið drykkju-
menn.
brátt fyrir þeita sogir alþýðan:
við þurfum teknanna af áfengis-
' sölunni.
Alþýðan œtti að vita,
að tekjurnar eru smáræði, bornar
saman við kostnaðinn og tjónið,
sem af áfengissölu leiðir.
Alþýðan lœtur sig það engu skifta,
þó hún sé tæld til að styðja vín-
sölu fjárhagslega og löggilda hana
—og það sé svo kallað þjóðar-
vilji.
Alþýðan cetti að sjá,
að svo getur farið, að hún stofni
þjóðinni í hættu með slíku af-
skiftaleysi.
Alkohol heftir hugsun mannsins,
siðgæði, hagsýni, orku og heilsu.
Það misþyrmir því er þjóðfélagið
þarf mest á að halda.
Það misþyrmir sál hvers einstak-
lings.
Þótt auglýsing eða réttara sagt
viðvörun þessi sé ekki orðmörg, er
hún eigi að síður þess v'efð, að ým-
islegt af því, er þar er sagt, sé
hugleitt.
Þó bindindisflokkar í þessu fylki
og stjórnin hafi ekki enn komið sér
saman um hvenær atkvæðgreiðsla
skuli fara fram um algert vínbann,
eru samt miklar líkur til að þess
verði ekki langt að bíða að vinbanns-
málið gangi til atkvæðis úrskurðar
almennings. Það sem skráð er hér
að framan gæti verið hjálp fyrir þá,
sem enn eru ekki um of öruggir og
ákveðnir við þá atkvæðagreiðslu.
SUCCESS BUSINESS COLLEGE
WINNIPEG,__MANITOBA _______________
ByrjtS rétt og byrjið nú. LæritS verzlunarfrætSi — dýrmætustu
þekkinguna, sem til er i veröldinni. LæriS i SUCCESS, stærsta og
bezta verzlunarskólanum. Sá skóli hefir tiu útibú i tiu borgum Can-
adalands—hefir fleiri nemendur en allir keppinautar hans I Canada
til samáns. Véiritarar úr þeim skóla hafa hæstu verðlaun.—Útvegar at-
vinnu — hefir beztu kennara — kennir bókhald, stærtSfrætSi. ensku,
hraðritun, vélritun, skrift og aS fara meS gasolin og gufuvélar.
SkrifiS eSa sendiS eftir upplýsingum.
F. G. GARBCIT
President.
D. F. FERGUSOIÍ.
Principal
E. J. O’SULIiIVAN,
M. A. Pres.
Members of the Commercial Educators’ Association
HVVM7PBG
f/ ^
Stofnað 1882. — 33. Ár.
Stærsti verzlunarskóli I Canada. Býr fólk
undir einkaskrifara stöSu_ kennir bókhald,
hraSritun. vélritun og aS selja vörur.
Fékk hæstu verðlaun á, heimssýningunnl.
Einstaklingskensla. Gestir velkomnir, einkum
kennarar. éSllum nemendum sem þaö eiga
skilið, lijálpað til að fá atvinnu. SkrifiS, kom-
iS eSa fóniS Main 45 eftir ókeypis verSlista
meSmyndum.
THE WINNIPEG BUSINESS COUIÆGE
222 Portage Ave. Cor. Fort Street.
Enginn kandidat atvinnulaús.
Áfengissalan í Saskatchewan fylki
nam árið 1914 rúmum 15 milj. doll,
eða sem næst 50 þús. doll. hvern v'irk-
an dag ársins. Yfir Júlímán. 1915
nam vínsalan hæst 2 þús. doll á dag.
Ekki er því hægt að segja, að engin
bót hafi verið að því, að loka staupa-
sölukránum þar.
--
Vínsalar banna skenkjurum sínum
stranglega að neyta víns, vegna þess,
að ef þeir drekki, setji það verzlun-
ina á höfuðið.
gífurlega tjóni, sem árlega verður í
landi voru af eldsvOða.
Hvaðanœfa.
— Hertoginn Connaught fór um
bæinn fyrir helgina, viðdvalarlaust,
til Sewell og kannaði þar herlið,
um 3500 að tölu, með þvi að stór-
margt liðsmanna var þá á víð og
dreif um landið að uppskeru vinnu.
Hertoginn fór síðan vestur eftir
landi, til hafs.
Dr. Bearman,
Þekkir vel á
Augna, eyrna, nef, kverka sjúkdóma
og gleraugu.
Skrifstofutímar: 10-12, 2-5 og 7-8
Ta,ls. M. 4-370 215 Simerset Blk
Dr. R. L. HUR5T,
Member of Royal Coll. of Surgeons,
Eng„ útskrifaður af Royal College of
Physiclans, London. SérfræCingur I
brjóst- tauga- og kven-sjúkdómum.
—Skrlfst. 805 Kennedy Bldg., Portage
Ave. (A mótl Eaton’s). Tals. M. 814.
Heimili M. 2696. Timi til vlCtals:
kl. 2—6 og 7—8 e.h.
Dr. B. J. BRANDSON
Office: Cor. Sherbrooke & William
TELEPHONE GARRY320
Office-Tímar: 2—3
Heimili: 776 Victor St.
Telephonk garry 321
Winnipeg, Man.
Dr. O. BJ0RN80N
Office: Cor. Sherbrooke & William
Trlephonei garry 32@
Office-ttmar: 2—3
HEIMILI:
764 Victor atrect
fELEPUONEl GARRY T03
Winnipeg, Man.
Dr. W. J. MacTAVISH
Office 724J Áargent Ave.
Telephone Áherbr. 940.
< 10-12 f. m.
Office tfmar -< 3-6 e. m.
( Þ9 e. m.
TH0S. H. J0HNS0N og
HJÁLMAR A. BERGMAN,
fslenzkir liigfræBiagar,
Skrifstofa:— Room 811 McArthur
Building, Portage Avenue
ákitun: p. o. Box 1056.
Telefónar: 4503 og 4504. Winnipeg
GARLAMD & ANDERS0N
Arni Anderion E. P Oariaa4
LÖGFRÆÐINGA*
Boi Electric R&ilway Chambara
Phone: Main 1561
Joseph T. Thorson
islenzkur lögfræðingur
Áritun:
CAMPBEIL, PITBUDC & COMPMV
Farmer Building. ’ Winnipeg Man.
Phont Main 7640
Gísli Goodman
TINSMIÐUR
VERKSTŒÐI:
Horni Toronto
Phone
Clarry 2988
og Notre Dame
lleimllja
Garry 899
J. J. BILDFELL
FASTEIGnASALI
j Room 520 (Jnion Bank - TEL. 2885
, Selur hús og lóðir og annast
alt þar aClútandi. Peningalán
Orðið “Budweiser” þýðir hóf. En
sú þýðing á sjaldnast við það orð,
heldur óhóf.
S. E.
Hafið þetta hugfast.
Nú þegar líða fer að þeim tíma,
er kólna fer og farið verður að
kynda í húsum til hita, eru eftir-
fylgjandi bendingar athugunarverð-
ar, er “The Commission of Conserv-
ation” hefir semja látið og senda til
allra blaða’; sá sem fylgir þeim var-
úðarreglum mun komast hjá óhöpp-
umáf völdum hins skæða Loga. —•
Varúðarreglurnar eru á þessa leið:
Eldastór. — Leggið málmplötu á
trégólfið undir stónni og látið hana
ná að minsta kosti tólf þumlunga
fram fyrir dyrnar á öskustónni.
Verjið alla veggi, sem eru nær stónni
en hálft þriðja fet, með málmplöt-
um, þannig að loft sé milli málmsins
°g veggjar. Skiljið ekki eftir upp-
kveikju eða við í ofni stóarinnar og
varist að hengja fatnað of nærri
henni eða pípunum.
Pípur. — Gætið þess, að pípur séu
vel saman feldar um samskeytin, og
að ekki séu ryðgöt á þeim né rifur,
að þær standi vel heima í reykháfn-
um og séu traustlega studdar með
vírböndum. Stóarpípur, sem liggja
gegpi um veggi, gólf, hanabjálkaloft
og þök, eru æfjnlega hættulegar, en
þegar ekki verður hjá því komist, þá
ber að hafa vænan hólk tvöfaldan, í
gatinu, utan um pípuna. Gætið að
pípunum í hanabjálkaloftinu, því göt
kunna að hafa dottið á þær, húsa-
skúm og köngulóar vefir safnast á
þær, er kviknað £etur í, þegar minst
varir.
Reykháfar. — Reykháfa skyldi æ-
tíð byggja frá jörð, en ekki á hyllum
úr tré. Þegar þær setjast, koma
sprungur í reykháfinn. Ekki ætti að
festa bita eða annan þunga í reyk-
háfsveggi. Mjúkur múrsteinn og lé-
legt kalk hefir valdið mörgum galla á
reykháfum. Noijð góðan imúrstein
og gott kalk í reykháfa. Veggirnir
í þeim ættu að vera átta þuml. þykk-
ir að minsta kosti. pípuaugað stórt
og fóðrað með eldföstum leir eða
“terra cotta”. Notið aldrei tuskur
upp í reykháfsgöt og lokið þeim
aldrei nema með málmplötum. Reyk-
háfa ber oft að hreinsa.
Um “furnace” er sama máli að
gegna, að þar verður að hlífa viðar-
verki sem er nálægt því eða pípunum
frá því. Gæta að pípunum, hvort
heilar séu, stöðugar og vel festar og
falli vel í reykháfinn, svo og varast
að húsaskúm safnist á þær, ryk eða
köngulóarvefir. Látið ekki frestast
að gera við það, sem áfátt er, og
varist að of hita stór, ofna, furnace
og pípur.
Aska. — Varist að geyma ösku í
, viðaríláti, á trégólfi, né hrúga henni
upp að trévegg, milligerð, girðingu
eða nokkru, sem úr tré er. Notið
að eins málm ílát undir öskuna og
geymið fjarri húsum.
Athugi. — Enga sérþekkingu þarf
til að gæta þessara hluta, heldur
' að eins sæmilega aðgætni og fyrir-
hyggju. Þér hafið ekki ráð á að
vera kærulausir um þetta, þegar lífi
ástvina yðar og eignum sjálfra yðar
og nábúa yðar getur verið teflt í
voða. Látið “varúð og gætni” jafn-
an sitja í fyrirwimi og hjálpið með
því móti til þess að draga úr því
— Rússneskir flugmenn köstuðu
sprengikúlum á gasstöð Þjóðverja
í Galiziu, þar sem eiturgas er búið
til; varð það nokkrum Þjóðverjum
að bana.
— Rússar hafa leiðrétt þá fregn
er barst út fyrir nokkru, að þeir
hefðu sökt þýzkum herskipum í
Riga flóanum. Höfðu Þjóðverjar
sjálfir sökt nokkrum skipum í
fjarðarmynni til að loka sigling
allri um fjörðinn.
—Theodore Sington, brezkur blaða-
maður af þýzkum ættum, var dæmd-
ur 1. September til sex mánaða fang-
elsisvistar fyrir að skrifa greinir í
amerísk blöð í því augnamiði að
spilla fyrir Bretum við hlutlausar
þjóðir. Þegar hann var tekinn fast-
ur, 21. Ágúst, kvaðst hann ekki hafa
ætlast til að skrif sín yrðu látin á
“þrykk út ganga.”
—Kafbátur sá er sökti Arabic, fór
sjálfur sömu leiðina daginn eftir.
Kafbáturinn var að elta “Nicosian”
eign Leyland línunnar, en tók ekki
eftir, að brezk beitisnekkja var á
næstu grösum, er sendi honum kveðju
sína. Kafárinn fórst með allri á-
höfn.
E. J. Skjöld,
Lyfsali
Horni Simcoe & Wellington
Tals. Garry 436S
EIGNIST BÚJÖRÐ
BORGIST A 20 ARUM EF VILL
Jörðin framfleytir yður og borgar sig
sjólf. Stórmiklð svæði af bezta landi í
Vestur Canada til sölu með lágu
verðl og sanngjörnum skilmólum, fró
$11 tll $30 fyrir þau lönd, sem nægr-
ar úrkomu njóta, óveitulönd $35 og
yfir. Skilmólar: 20. partur verðs
út í hönd, afgangur ó. 20 órum. f á-
veitusvæðum lón veitt til bygginga o.
s. frv. alt að $2,000, er endurborgist á
20 árum með aðeins 6 prct. Hér gefst
færi tll að auka við búlönd yðar hinum
næstu löndum eða fá vini yðar fyrir
nógranna. Leltið npplýslnga hjó
F. W. RUSSELL .... Land Agent
Dept. Natural Resources, C.P.R.
Desk 40, C.P.R. Depot - WINNIPEG
Sálmabókín.
Hin nýja sálmabók ldrkjufé-
lagsins er nú til sölu hjá féhirði
félagsins herra Jóni J. Vopna.
Utanáskrift Box 3144 Winnipeg
Man. Afgreiðsla á skrifstofu
Lögbergs.
Bókin er sérstaklega vönduð aö
öllum frágangi. Kostar $1.50,
$2.25, $2.75, eftir gæðum bands-
ins; allar í leðurbandi. —
Þessi sálmabók inniheldur alla
Passíusáhna Hallgríms Pétursson-
ar og einnig hið viðtekna messu-
form kirkjufélagsins og margt
fleira, sem ekki hefir verið prent-
að áður í neinni íslenzkri sálma-
bók.
— Hkimili 487 Toronto Street —
WINNIPEG
telephonr Sherbr. 432
Dr. J. Stefánsson
401 BOYD BLDG.
Cor. Portage and Eklmonton
Stundar elngöngu augna, eyrna,
nef og kverka sjúkdóma. — E3r
að hltta író. kl. 10—12 f. h. og
2—5 e. h. — Talsími: Main 4743.
Heimill: 105 OUvia St. Talsiml:
Garry 2315.
J. G. SNŒDAL
TANNLŒKNIR.
ENDERTON BUILDNG,
Portage Ave., Cor. Hargrave St.
Suite 313. Tals. main 5302.
Dr. A. A. Garfat,
TANNLÆKNIR
614 Somerset Bldg. Phoi;e Main 57
WINNIPEC, MAN.
Skrifstofutímar: Tals. N|. 1524
40-12 f.h. og 2-4 e.h.
G. Glenn Murp,hy. D.O.
Ostoopa.thic Physician
637-639 Somerset Blk. Wlnnlpeg
Vér leggjum eérstaka Aherzlu & a6
selja meCöl eftlr forskrlftum lækna.
Hln beztu melöl, sem hægt er aS 1’á,
eru notuð eingöngu. Pegar þér kom-
IC meC forskriftlna til vor, meglC þér
vera viss um aC f& rétt þ&C sem
læknirlnn tekur tíl.
COLCLEUGH * CO.
Notre D&me Ave. og Slierbrooke 8L
Phone Garry 2690 og 2691.
Glftlngaleyflabréf seld.
Lœrið símritun
Xjærið simritun; járnbrautar og
verzlunarmönnum kent. Verk-
leg kensla. Engar námsdeildir.
Einstakllngs kensla. SkrifiS eft-
Ir boCsriti. Dept. “G”, Western
Schools. Telegraphy and Rail-
roading, 27 Avoca Hlock, Sargent
Ave., near Central Park, Winni-
peg. Nýir umsjónarmenn.
Mrs. E. Coates-Coleman,
Sérfræðingur
Eyðir hári á andliti, vörtum og
fæðingarblettum, styrkir veikar
taugar meö rafmagni o. s. frv.
Nuddar andlit og hársvörö;
Ðiðjið um baekling
Phone M. 996. 224 Smith St.
J. J. Swanson & Co.
Verzla með fasteignir. Sjá um
leigu á húsum. Annast lán og
eldsábyrgðir o. fl.
504 Tlte Kenslngton,Port.*8mlth
Phone Main 2597
g. A. SIOURP8QN TaIs Sherbr, 2786
S. A. SIGURÐSS0N & C0.
BYCCIJiCAtyEJIN og F/\STEICNi\SAtAB
Skrifstofa: Talsími M 446*
208 Carlton Blk. Winnipeg
Columbia Grain Co. Ltd.
H. J. LINDAL L. J. HALLGRIMSON
íslenzkir hveitikaupmenn
140 Grain Exchange Bldg.
A. S. Bardal
B43 SHERBROOKE ST,
set'ir likkistur og annast
jm útfarir. Allúr útbún- j
aðor sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann aliskonar
minnisvarða og legsteina
Ta's Me'mlli Garry 2161
n Office „ 300 og 370
Tals. G. 2292
McFarlane & Cairns
æfðustu skraddarar í Wianipeg
335 (iotre Dame Ave.
a dyr fyrir vestan Winnipes: ieikhús
D. GEORGE
Gorir við allskonar húsbúnað og
býr til að nýju.
Tekur upp gólfteppi og leggur þau
á aftur
Sanngjarnt vetÖ
Tals. G. 1112 369 Sherbrooke St.
Thorsteinsson Bros.
& Company
öyg&ja hús, selja lóðir, útvega
lán og eldsábyrgð
Fón: M. 2992. S15 Somereet Rldg.
Helmaf.: G. 780. Wlnlpe*, M&n.
50c askjatt, eða 6 öskjur fyrir $2.50, fæst
hjá öllum lyfsölum, eða hjá
The Dodds Medicine Co., Ltd.,
Toronto, - Canada