Lögberg - 23.12.1915, Qupperneq 3
LÖGBÍÍ^ FIMTUDAGINN 23. DESEMBER 1915
3
yógberg
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
umbia Pre*s, Ltd., Cor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnipeg, Man.
TALSIMI: CARRY 2156
SIG. JÚL. JÓHANNESSON, Editor
]. J. VOPNI, Business Manauer
Ijtanáskrift til blaðsins:
THE COLUMBWt PRESI, Ltd., Box 3172, Winnipeg, »(an-
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, »fan.
VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið.
Hátíð friðarins.
Meira en nítján hundruð ár eru liðin síðan
friður var boðaður á jörðu. Meira en nítján
hundruð ár hefir friðarliátíðin verið heilög hald-
in meðal vor. “Friður á jörðu!” hljómaði hér
á jarðríki fyrir meira en nítján öldum. Það
mætti því ætla, að áhrifin hefðu fest svo djúpar
rætur í hugskoti manna, að friðarþrá og friðar-
andi væru þar mestu ráðandi.
En með blygðun verða liinar svokölluðu
kristnu þjóðir að mæta friðargyðjunni við komu
þessara jóla. Þegar hún kemur fram á hátíð
friðarins eftir liðið ár, og lítur yfir alt það, sem
aðhafst hefir verið; lítur yfir alt ársstarfið, ger-
ir upp reikninga hjá þeim, er liún heimsækir og
krefur þá um fulla greinagerð ráðsmenskunnar,
hverju eiga þeir þá að svara?
Hvernig geta kristnar þjóðir horfst í augu
við drottinn friðarins, sem nú á að fylla
hvert heimili, hvert hjarta, hvert land; stjórna
gerðum og breytni hverrar þjóðar og vera
þeirra á meðal konungur konunganna?
Þar sem gleðiboðskapurinn og friðartíðindin
hafa verið boðuð oftast og lengst, fljó^. löndin í
heitu blóði myrtra manna. Margra alda starf til
uppfyndinga allskonar véla nota nú hinir svo-
kölluðu kristnu hræður til miljónfaldra morða.
Boðskapur jólanna er aðallega friður, og er það
því tæplega hægt að minnast þeirra án þess að
skoða í huga sér og minnast í orðum alls þess ó-
samræmis, sem þjóðirnar eru sekar um.
Aldrei síðan sögur fara af, hafa þjóðirnar í
breytni sinni verið fjær friðarkenningunni, en
þær eru nú. Dýpsta hugviti og hæstu þekkingu
er til þess varið að eyðileggja líf og eignir, heill
og liamingju. Listaverk, sem margar aldir liafa
framÞitt, eru gjöreydd; heilar borgir, sem þús-
undir manna hafa varið kröftum sínum til að
byggja og prýða, eru tættar sundur svo ekki
stendur steinn yfir steini. Vísinda- og velferð-
ar-stofnanir, þar sem vit og mannkostir hafa
tekið saman höndum þjóðunum til uppbyggingar
og sælla daga, eru á svipstundu numin brott —
gjöreydd. Friðsælar sveitir, þar sem tugir þús-
unda starfsamra bænda hafa bygt sér heimili og
liugðu sér trygga framtíð; þar sem faðir og
móðir höfðu vakað í einingu yfir velferð barna
sinna og lagt fram alla krafta sína þeirn til hag-
sældar, þar sem þau væntu þess að mega loka
augum sínum í friði og leggjast til' hinstu hvíldar
áhyggjulaus með bjartar framtíðarmyndir í huga
sér úr ófarinni æfi harna sinna; yfir þessar blóm-
legu og friðsælu sveitir hefir andi ófriðarins farið
vanhelgum fótum og undir iljum hans hafa þær á
svipstundu breyzt í gróðurlaust flag.
Miljónir mæðra, sem átt liafa margar á-
hyggjustundir yfir sonum sínum í æsku og hjúkr-
að þeim með allri þeirri nákvæmni, sem móður-
höndinni er gefin, í þeirri von að þeir fengju
lengi að lifa og miklu til leiðar komið, sjá þá nú í
huga sér, þar sem þeir ýmist liggja á vígvellinum
tættir í sundur af morðvopnum, eða limlestir og
örkumla um alla daga. . Drengirnir, sem þær
fæddu og fóstruðu í björtum vonum og sælum friði,
liafa nú verið hrifnir úr faðmi þeirra til þess að
verða hinum voðalega herguði að bráð.
Hörmungar þær, sem af þessu stríði leiða,
eru stórkstlegri en svo, að nokkur orð geti lýst
eða nokkur penni málað. Löndum friðarboðskap-
arins hefir verið breytt í orustuvelli. Aðal-
hugsun stórþjóðanna hefir frá því um síðustu jól
og til þessara verið sú, hver ráð væri hægt að
finna til þess að vinna annari nágrannaþjóð sinni
og samtrúarþjóð sem mest tjón.
Það þarf ekki trúaðan mann til þess að of-
bjóða hversu fjarri er stefnt friðarmarkinu;
hversu andstætt er að farið við þær kenningar,
er meistarinn flutti. Hverju sem menn trúa, þá
má svo segja, að sú bæn, sem hann kendi, sé lærð
og lesin af hverju mannsbarni. Faðirvorið er
sameiginleg bæn allra Vesturlanda-þjóða— allra
stríðsþjóðanna, og það er tæplega hægt að trúa
því að þær þjóðir, sem þá bæn hafa látið kenna
öllum sínum borgurum, skuli breyta jafn fjarri
henni og nú er raun á.
1 fyrsta parti hennar: “Faðir vor, þú sem
ert á himnum, ’ ’ viðurkenna þær allar sameigin-
legan föður; viðurkenna þær allar bróður- eða
systkina-skylduna. Hvernig geta þær samrýmt
það því, sem nú er að gerast? Hvernig geta þær
hugsað sér einn sameiginlegan föður, sem þær
lyfti til huga sínum í barnslegri bæn og biðji
fyrir sjálfum sér og öllum systkinum sínum, og
gengið svo til þeirra hryðjuverka, sem það hefir
í för með sér að svifta eins mörg systkina sinna
lífi og hægt er?
Hvernig er hægt að hugsa sér meiri f jarstæðu
en þá, að flytja aðra grein faðirvorsins: “Helg-
ist þitt nafn”, og vinna svo þau verk, sem stríði
eru óhjákvæmileg? Getur guðs nafn verið helgað
með því? Hvílíkt guðlast!
Hvernig er hægt að leggja guðs nafn við
verra en hégóma fremur en með því, að segja í
bæn sinni til hans: “Til komi þitt ríki,” og
breyta síðan jarðríki í þann vansælustað, sem
stríðið hefir gert? Lýsir ekki þetta ósamræmi eða
því, að eitthvað bresti á heilbrigða hugsun eða
skilning á því, sem sagt er og gert? Hvernig á
maður að liugsa sér, að guð líti á þær bænir, sem
honum berast frá hugskoti þeirra, sem stríðinu
valda?
Er það ekki að gera gys að almættinu að
syngja því lofsöngva og segja: “Verði þinn vilji
svo á jörðu sem á liimni,” og ganga síðan frá
bænaborðinu til þess að leggja hönd á plóginn í
því skyni að breyta þessari sömu jörð,' sem beðið
var um að guðs vilji mætti gerast á, í orustuvöll,
með öllum þeim hörmungum sem því fylgja ?
Er það ekki vanhugsað, að biðja: “Gef oss í
dag vort daglegt brauð” og verja svo framleiðslu-
kröftum þeim, sem almættið veitti, til þess að
eyðileggja björg og bÞssun? Er ekki sú bæn í
fylsta máta syndsamleg undir þeim kringum-
stæðum ?
Og er það ekki synd á móti heilögum anda—
höfuðsynd og ófyrirgöfanleg—að biðja og segja:
‘ ‘ Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrir-
gefum vorum skuldunautum ”, en neyta á sama
tíma alls vits og allra krafta til þess að æsa þjóð-
ír og einstaklinga upp hvert á móti öðru; kveikja
hatur og heift og hrekja úr hug og hjarta anda
friðar og fyrirgefningar, sátta og samlyndis?
Er hægt að hugsa sér meira alvöruleysi, meiri
hræsni, meiri óeinlægni? þ
Það er ekki hægt að hugsa mn þá tíma, sem
yfir standa og þau ósköp, sem eru'að gerast, án
þess að margar spurningar í sambandi við þetta
vakni í huga manns; og sízt af öllu er það mögu-
legt um jólin—hátíð friðarins.
Um jólin á maður að gera reikningsskap í
huga sínum; gera sér grein fyrir því, hversu
mikil áhrif friðarboðskapurinn hefir haft á liðnu
ári. 1 þetta skifti, á þessum jólum, verður þar
grátleg-ur reikningshalli, ef rétt er reiknað.
En er þá ekkert til að gleðjast yfir á þessum
jólum? Er enginn geisli, sem skinið ge|i í hjörtu
manna á þessari liátíð, sem á að vera helguð
friði og fögnuði?
Jú. Þrátt fyrir allar hörmungar birtist von-
arbjarmi, sem vex og lýsist með degi hverjum.
Hann er svo auðsær, að engu auga getur dulist.
Það er bjarmi stöðugs og varanlegs friðar. Það
er eins og ótal öfl hafi vaknað einmitt nú til með-
vitundar mn, að eittlivað alvarlegt verði að gera
til þess að stríðum verði afstýrt framvegis. Það
er venjulega svo, að þegar þörfin er brýnust, rísa
upp einhver öfl til líknar; undir dÖgunina er oft
dimmast; rétt á undan bata, eru sjúkdómar oft
svæsnastir. Til þess bendir margt, að þetta
voða stríð séu fjörbrot hernaðarguðsins. Hvernig
sem því lyktar, þá má treysta því, að þannig verði
í tauma tekið af ýmsum góðum öflum, að slíkt
komi ekki fyrir aftur; og þegar þess er gætt, að
tákn tímanna bénda á, að þetta stríð verði hið
síðasta, þá er mikið fyrir að þakka, mikið til þess
að gleðjast yfir jafnvel mitt í hörmungunum. Ef
þessi voða umbrot skyldu vera fæðingarhríðar
varanlegs friðar, þá væri jafnvel fremur ástæða
til fagnaðar en lirygðar. Ef þett ayrði seinasta
blaðsíða sögunnar, er blóði yrði rituð, þá væri
ekki um það að æðrast, þótt feitir væru drættirn-
ir og þétt ritað. Ef þjóðunnm skildist það af
þessu stríði, að þær hefðu svo fylt mæli synda
sinna, að ekki dygði lengur, þá væri skaðinn jafn-
vel að fullu bættur.
“ELskið óvini yðar, bl^ssið þá, sem yður for-
mæla, biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður,”
sagði sá, er þessi hátíð er tengd við og til minn-
ingar um. Hingað til liafa þessi orð á vörum
manna verið eins og hljómandi málmum og hvell-
andi bjalla, þar sem ekki hefir hugur fylgt máli.
Það er glögt af verkum og athöfnum þeirra.
Ef þessi jól eru allsherjar tímamóta-hátíð,
þar sem hernaðarandinn er í f jörbrotum og frið-
aröld í fæðingu, þá má með fullru alvöru syngja
hin fögru orð skáldsins:
“Sælu njótandi,
sverðin brjótandi
faðmist fjarlægir lýðir.”
Með þeirri ósk, að slíkt megi verða og í þeirri
von, að það geti orðið áður en önnur jól koma,
skal þessum alvöru hugleiðingum lokið, og nokkr-
um orðum til þess varið að athuga afstöðu vor
íslendinga sérstaklega um þessi jól.
Þegar á alt er litið, þá hefir framtíð vor sem
þjóðar sjaldan verið bjartari, sjaldan meiri á-
stæða til bjartari vona, sjaldan meiri velgengni.
Heima á ættjörðinni hefir blessun árgæðanna
breitt vængi sína yfir þjóð og land; úr skauti láðs
og lagar liefir ógrynni fjár fallið henni í hönd og
auðgað hana. Það afl, sem nauðsynlegt er til hluta
þeirra, sem gera skal, hefir nú fyrst orðið lilut-
skifti bræðra vorra svo nokkru nemi. Landið og
þjóðin hefir svo auðgast síðastliðið ár, að þess
hljóta að sjást virkileg merki framvegis á ýmsan
hátt. Fyrir það má þakka af alhug, að ættjörð
vor liefir ekki á neinn hátt dregist inn í hringiðu
þeirrar glötunar, sem stríðinu fylgir.
Andi réttlætisins hefir þannig gætt þeirra,
er lögum ráða þar heima, að þeir hafa veitt systr-
um vorum stjórnarfarslegt jafnrétti við sjálfa
sig; er þar með trygður sá hreinleikur og sú sam-
vizkusemi framvegis, er mestu varðar í opinber-
um málum.
Þá hefir sú blessun einnig hlotist heimaþjóð
vorri, að hinn skæðasti óvinur hennar hefir bug-
ast og verið rekinn á fiótta. Áfengið, sem þung-
an skatt hafði heimt af þjóðinni um langan ald-
ur, hefir nú mist afl heljartaka sinna og þjóðin
er að því leyti frjáls. Framtíð Islands hefir
aldrei verið eins björt og nú; þjóðin hefir aldrei
verð eins auðug og aldrei eins fjölkunnug, aldrei
eins vel stödd. “Guð vors lands” hefir aldrei
haft betur vakandi auga á ættjörð vorri né “líkn-
að bet«r landinu kalda” en einmitt nú. I þessum
skilningi og fyrir þessar ástæður getum vér boð-
ið hverjir öðruin gleðileg jól sem íslendingar og •
þau orðið oss sannarleg friðarhátíð.
Þegar litið er á þann hluta þjóðarinnar, sem
liingað hefir flutt og hér sezt að, er einnig ástæða
til þakklætis og gleði. Náttúran hefir hagað því
þannig, að livergi í víðri veröld hefir bóndinn
fengið betur launað erfiði sitt g fyrirhöfn í ár, en
einmitt á þeim svæðum, er Islendingar byggja.
Blessun hefir sannarlega hvílt yfir verkum
íslenzkra bænda hér í álfu yfir liöfuð. Hagur
þeirra hefir aldrei verið blómlegri en nú; jóla-
gleðin og andi friðarhátíðarinnar geta lieilsað hjá
þeim flestum með bros á vörum og birtu í auga.
Aldrei hefir íslenzku þjóðinni í sögu sinni
lilotnast eins margvísleg upphefð og margskonar
álit og nú í ár. Síðan jólin kvöddu seinast, hefir
einn af sonum þjóðar vorrar aukið stórum gim-
steini í heiðurskórónu móður sinnar—Vilhjálmur
Stefánsson liefir á þessu ári trygt sér þann fram-
tíðarsess meðal stórmenna lieimsins, sem ávalt
verður minst í sögu þjóðanna með lotningu og
aðdáun; hann hefir áunnið oss þann lieiður, sem
stórþjóðirnar vildu gjarna eiga og væru stoltar
af. Sunnan úr heimi koma nýlega þær fréttir,
að annar bræðra vorra liafi letrað nafn þjóðar
sinnar með lifandi Ijósstöfum á himinhvelfingu
ódauðlegrar frægðar. Hjörtur Thordarson lief-
ir vakið þá eftirtekt og stigið það spor, sem ekki
er unt að reikna hversu víðtækar afleiðingar
kann að liafa. Þannig liafa tveir synir íslenzku
þjóðarinnar skarað fram úr í samkepni við alla
borgara heimsins—annar í vísindum, sem hann
hefir aflað sér án þess að liafa stigið inn fyrir
skóladyr, og má það heita kraftaverki næst; liinn
í vísindum samfara þeirri þrautseigju, sem full-
konmust hefir verið, jafnvel í Islendingseðlinu.
Þá væri ]»ess skylt að minnast, að á svæðum
stjórnmála og borgaralegs trausts hefir tslending-
um hér aldrei ldotnast meiri heiður en á þessu
ári. Aldrei fyr hefir nokkur Islendingur liafið
sig hér upp í liæsta sæti stjórnar og trúnaðar.
Þar liefir Thos. H. Johnson skrifað glæsilegan
kafla í þjóðarsögn vora.
Alt ]>etta bendir til þess, að hinn forni kjark-
ur, liið meðfædda vit, hin margreynda þraut-
seigja og hið mikla manngildi Islendinga sé enn
í fullu fjöri og liafi aldrei verið í meiri blóma.
Fyrir þetta alt berum vér fram þakklæti í liug
og hjörtum á þessari hátíð.
Vér höfum sérstaklega ástæðu til að fagna
sem farsæl og friðvernduð þjóð. . Vér getum vfir
liöfuð boðið jólahátíðina velkomna í ár.
En því má ekki gleyma, að ekki er nóg að
rifja upp fyrir sér sólskinsblettina og einblína á
þá; meðal vor eru einnig ský, er hylja heiðan
himininn og byrgja bjarta sól. Meðal vor hafa
sár verið höggvin og tár verið feld; meðal vor
hafa vonir dáið og óskir fallið óuppfyltar í opnar
grafir. Meðal vor hefir dauðinn barið að mörg-
um dyrum og lagt kalda hönd á hjörtu sem öðr-
um voru kær. Á meðal vor liafa erfiðleikarnir á
sumum stöðum og sumum lieimilum lagst eins og
þungt farg á hugi manna. Meðal vor eru til mun-
aðarlaus börn, hrum gamalmenni, ástvinalausir
einstæðingar, syrgjandi foreldrar, yllítil hús og
jafnvel bjargarlítil lieimili. Til allra þessara
staða er það jólaskylda vor að beina friðar- og
gleðigyðjunni og segja henni til vegar þangað.
En það má gera á margan liátt; hlýlegt orð, vin-
legt bros, þétt. handtak, hluttekningarsvipur; alt
þetta getum vér veitt og látið í té oss að kostn-
aðarlausu; hvort sem vér erum auðug eða snauð,
há eða lág, þá er það á valdi vor allra, að gefa
þessar gjafir—og þótt þær séu ekki keyptar dýru
verði, þá eru þær allra jólagjafa beztar og áhrifa-
mestar. Verðliár hlutur sem gefinn er fyrir siða-
sakir eða af vana með lítilli lúýju eða vinarhug,
er ekki jólagjöf—ekki liátíðinni samboðin. Lítið
atvik, sem greinilega sýnir innilega einlægni og
löngun til þess að gleðja, hversu lítilfjörleg, sem
er, gerir mennina sælli, stækkar jólagleðina og
þýðir anda friðarhátíðarinnar.
Mesta böl nútíðarinnar í þessu landi er það,
að of mildð er af útvortis glingri, en of lítið af
innra skrauti; of mikið af tómum húsum, en of
lítið af heimilum; of mikið af líkama og of lítið
af sál; of mikið af ytri jólum og of lítð af innri
friðarhátíð.
En það er oft eins og sorgirnar flytji menn-
ina nær hverja öðrum; við líkkistuna virðast allir
vera bræður; við gröfina fella þeir tár í samein-
inlegri hluttekningu. Hver veit nema hinar
þvngu sorgir þessara tíma, sem óhjákvæmilega
hafa náð að nokkru leyti til vor, færi oss nær
hverja öðrum og gefi oss hluttekningaríkari jól
en venjulega.
Með þeirri ósk býður Lögberg öllum gleði-
leg jól—öllum.
€
THE DOMINIUN BAN K
mr KUIMJMU B. OMI.EB. M P„ Pim W. O. HATTHlWg .Tlw-rw
C. A. BOtiEHT. General Managor.
Stofnsjóðnr..................$6,000,000
Varasjóður og óskiftur gróði. . . . $7,300,000
SPARISJÓÐSDEIL.D
er ein deildin t öllum útibúum bankans. Par má ávaxta
$1.00 eða meira. Vanalegir vextir greiddir.
paS er óhultur og þœgilegur geymslustaður fyrlr spari-
sklldinga yCar.
Notre Dame Branch—W. M. HAMH/TON, Manager.
Selkirk Branch—M. S. BCRGER, Manager.
Höndin ritar á vegginn.
Eins og getið var um í siðasta
blaði voru víða atkvæði greidd um
það í Saskatchewan fyrra þriðju-
dag, hvort brennivínssala skyldi
byrjuð þar sem hún var ekki áður,
eða hvort hún skyldi útilokuð þar
sem hún var komin á, 4>g bar
brennivínið alstaðar lægra hlut;
fóru brennivínsvinir þá mestu
sneypuför sem hugsast gat. Eftir-
farandi tölur sýna hvcisu emareg-
inn var vilji manna í þessu máli.
í Walrous var farið fram a að
vínsala væri afnumin og var það
samþykt með 767 atkvæðum gegn
276. 1 hænum sjálfum voru með
brennivíni aðeins 40, en á móti 89.
í Biggar var einnig farið fram
á að afnema vínsölu og það sam-
þykt með 526 atkvæða meiri hluta,
sem er afarmikið í svo fámennu
héraði; i bænum sjálfum þar voru
einungis 5 með brennivíninu en 67
á móti.
í Wadena var beðið um að vín-
sala væri sett á stofn; en bræðurn-
ir Þórður og Friðrik Vatnsdal,
landar vori,r tóku sig til og
unnu röggsamlega á móti, ásamt
fleiri góðum borgurum, og urðu
áhrifin þau að brennivínið hlaut
þar í bænum aðeins 5 atkvæði
en 54 á móti. í Kinley voru 2 með
en 12 á móti, í Eeney 2 með og 48
á móti, í Invermay ekkert með en
24 á móti, í Margo 1 með og 13
á móti, í Kurski 6 með en 24 á
móti, i Peswegin 1 með og 43 á
tnóti, í Clair 1 með og 44 á móti,
í Buehanan 3 með og 75 á móti, í
Young 5 með en 28 á móti, í
Prussia 10 með en 45 á móti og
eftir þessu allstaðar. Það er því
auðséð að Saskatchewan bmar eru
ákveðnir i þvi að útiloka Bakkus
fyrir fult og alt, og mun hann
fara sömu farir i Manitoba í vor.
Höndin ritar á vegginn daglega
og greinilega.
St. LouisFur&Hide Co.
736 Banning St.,fe Winnipeg
Hvers vegna seljið þér loð-
skinn yðar og húðir heima
fyrir? Hvers vegna sendið
þér það ekki til vor? Þér get-
ið nálega tvöfaldað verðið á
?eim flestum. Vér borgum hátt
verð fyrir góð rottuskinn, tóu-
skinn, refaskinn, hreisikattar-
skinn o.s.frv. Vér borgum alt
flutningsgjald á smádýraskinn-
um. Fljót og skilvís borgun
fyrir alt, sem sent er. Upp-
lýsingar um verð og annað
gefnar tafarlaust.
Ráð til þess aff vera veikur.
Eftirfarandi grein er þýdd úr
“The Public Health Journal'’ í
desember 1912.
Mikið hefir verið um það ritað
og rætt hvernig hægt væri að
komast hjá veiki og vera h^il-
brigður. Það hefir . attur á móti
verið stórlega vanrækt að kenna
fólki óyggjandi reglur til þess að
vera veikur; og með því að pré-
dikanir í verki og framferði eru
miklu áhrifameiri en orð, þá er
það ljóst af breytni margra að
þeim er annara um að vera veikir
en hraustir.
Reglum þeim sem hér tara, á
eftir hefir verið safnað saman frá
ýmsum stöðum og heimildum og
eftir langa reynslu og tilraunir.
Þess vegna er það að þeir sem
láta sér í einlægni ant um að vera
veikir mega trúa því og treysta
að sé reglunum fylgt samvizku-
samlega, þá eru þær óbrigðular.
Þær hafa allar verið reyndar og
eru stöðugt reyndar daglega af
fjölda fólks með bezta árangri.
Hafið gluggana lokaða ;alla nótt-
ina og opnið þá aldrei, hreint loft
þarf að varast því það styrkir
heilsuna.
Gætið þess að byrgja alla sólar-
geisla út úr húsum yðar. Sótt-
kyeikjum er illa við sólarljósið og
þrífast ekki í því; þess vegna er
um að gera að forðast það, til þess
að halda,við veikindunum.
Andið aldrei djúpt, því það
styrkir lungun og gerir þau heil-
brigð.
Ónáðið ekkþ flugumar; þér tap-
ið heilmiklu af óhreinindum ef þær
hverfa.
Borðið hvaða mat sem vera vill
án (tillits til heilnæmis eða nær-
ingargildis; dálítið af óhreinind-
um er gott til uppfyllingar.
Tyggið ekki, heldur gleipið
fæðuna í stómm stykkjum! —
Munið að þér hafið engar tennur
i maganum.
Borðið sem allra óreglulegast.
Um að gera að meltingin sé í sem
allra mesta ólagi, þá hlýtur yður
að hepnast að vera oft veik.
Baðið yður aldrei né þvoið.
Sápa og vatn em óvinir S'júkdóma.
Verið sem minst úti undir beru
lofti. Spilið inni í loftlitlum
; kytrum, látið það. nægja ,sem lík-
amsæfingar. Hreyfing og hreint
|loft eru óvinir s'júlcfjómanna.
| Sofið sem minst og óreglulegast.
Þá erað þér vis's um að taugakerfi
; yðar bilar fyr eða síðar og heilsan
1 með því.
Drekkið hvaða vatn sem fyrir
j kemur; því óhreinna sem það er
| því betra. Taugaveikisgerlar eru
j altaf í slíku vatni.
Hafið húsin yðar óhrein.
I Óhreinindi og sjúkdómar eru
skyldgetin systkini.
Látiö ekki bólusetja yður, því
þá fáið þér tæplega bóluveiki.
Hugsið ekkert um þÓtt þér
kaupið óhreina mjólk, með því
móti getur vður vel hepnast að
verða veik og sérstaklega að láta
börnin yðar veikjast.
Berið altaf áhyggju fyrir öllu,
það lamar þrek vbai og veldur
veikindum. ,
Verið skapill 0g stirð i geði;
[rnð gerir hugsunina dimma og
biður heim sjúkdómum. Haldið
þessar reglur nákvæmlega og mun-
uð þér þá aldrei þurfa að óttast
heilbrigði.
Hreinasta loft.
Hreinasta loft sem vér öndum
að oss er næturloftið. Það hefir
verið sannað með því að telja
gerla i lofti á daginn og aftur á
(Niðurl. á 5. bls.)
NORTHERN CROWN BANK
AÐALiSKRIFSTOFA t WINNLPEG
Höfuðstóll (löggiltur) - - - $6,0(10,000
Höfuðstóll (greiddur) - - . $2,850.000
STJóRNENDUR :
Formaður..........- - - Slr D. H. McMLLJLAN, K.C.M.G.
Vara-formaður.......... Capt. WM. ROBIN8ON
Sir D. C. CAMERON, K.C.M.G., J. H. ASHDOWN, H. T. CHAMPION
W. J. CHRISTIE, A. McTAVTSH CAMPBELL, JOHN STOVEL
Allskonar bankastörf afgreidd. — Vér byrjum reilminga Tlð eln-
stakllnga eða félog og sanngjarnlr skUmálur velttir. — Avisanlr aeldar
tU hvaða staðar sem er á fsiandi. — Sérstakur gaumur geflnn spart-
sjoðs innlogum, sem byrja má með elnum doUar. Rentur lagðar vlð
á hverjum sex mánuðum.
T E. THORSTETNSSOlSr, Ráí,maik,r
Cor. William Ave. og Sherbrooko St., Wiimipeg, Man.