Lögberg - 18.05.1916, Side 4

Lögberg - 18.05.1916, Side 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. MAI 1916. I höfuðstaðnum. Höfuðstaðurinn í hverju landi er að mörgu leyti helgur í hugsun landsmanna; enda er það eðlilegt. par eru venjulega flestir þeirra manna, sem þjóðin trúir fyrir aðaltrúnaðarmálum sínum. Par eru geymdar helgustu menjar frá sögu þjóðar- innar á söfnum hennar og stofnunum. par á að vera höfuð landsins og sál þess. par kemur saman þingið, mennimir sem helgustu skyldur hafa tekist á hendur sem þjóðfélagið á til. Par eru samin lög sem ráða lífi manna og dauða þeirra; þar eru lagðar þær götur sem bömum þjóð- arinnar er skipað að ganga. Siðferðisreglur og merkjalínur milli þess sem rétt er og rangt eru lagðar þar og þess krafist að þeim sé fylgt. Par eru sameinuð hin andlegu og veraldlegu boðorð, sem þjóðinni ber að hlýða. peir menn sem beztir og vitrastir eru taldir eru kjömir til þess að vinna þar í bróðerni og eingöngu af óeig- ingjömum hvötum. Samkvæmt beztu samvizku og þekkingu. peir sverja þess dýran eið með hönd á hjarta og kalla til vitnis guð á himninum, að þeir skuli láta réttlæti, sanngimi, og samvizkusemi ráða hverri sinni athöfn í því trúnúaðarsæti sem þeim hefir hlotnast. peir sverja þess dýran eið að breyta aldrei gegn betri vitund, svæfa aldrei samvizku sína, hlusta aldrei á aðrar raddir en þær, sem þeirra innri sanni maður hvísli að þeim í hverju máli sem er. Peir sverja þess dýran eið að réttur hvers ein- staklings skuli vemdaður af þehn og engum stærra bróður leyft að troða annan minni um tær eða beita hann ójöfnuði. peir sverja þess dýran eið að vernda fjárhirzlu ríkisins, sem lögð er 1 þeirra hendur; vemda ávexti þeirra svitadropa, sem bændur og aðrir verkamenn hafa framleitt með ærlegu starfi og spamaði. Pað þykir jafnvel framamerki að hafa komið til höfuðstaðarins í hverju landi sem er og tals- vert skorta á fullkomna menningu þeirra, sem al- drei hafa verið þar. En það er með þetta eins og margt annað, að þekkingarleysið og fjarlægðin slær helgiblæ á staði, persónur, hluti og athafnir. Margir nafn- greindir menn græða stórkoctlega á því hversu fáir þekkja þá persónulega. Skáldin sum, sem fegurst ljóðin yrkja, eru írð og styrð í geði og viðbúð; siðferðislág og hneygð til óreglu. Prestar, sem hæst og fegurst tala og þyngsta dóma fella yfir alþýðu manna fyrir syndir og yfir- sjónir og vinna sér víðfrægt nafn, eru stundum nokkrum tröppum neðar en í miðjum stiga sjálfir. Dómararnir, sem halda langar áminningar- ræður yfir fátæklingnum, sem varð það á að taka brauð sem hann átti ekki til að seðja með svelt- andi börn, þegar mannfélagið synjaði honum um ærlega vinnu og hann gat ekki heyrt hungursgrát sinna eigin afkvæma, taki sjálfir þátt í samsæri á bak við tjöldin til þess að raka fé í eigin vasa, með stórkostlegum pólitískum þjófnaði, og koma svo fram fyrir guð sinn í instu sætum kirkjunnar með barnslegum sakleysissvip. Og svona mætti lengi telja; líf sumra manna og breytni þeirra í virkileika er oft í sterku ósam- ræmi við ytri athafnir og yfirskyns látalæti. En það er oft nægilegt til þess að villa f jöldan- um sjónir og vinna sér stórt nafn og víðtækar virðingar þeirra sem í fjarlægð búa eða ekki þekkja til. Og því er eins varið með höfuðstaði vora. Vér ?ekkjum yfir höfuð of lítið hvað þar fer fram, erum þar ekki nógu kunnug. Vér lítum upp til þeirra sem þar ráða lögum og lofum, því þeir eru fínt klæddir, hafa fulla vasa fjár, mikil völd og eru margir hverjir hið ytra prúðir í framgöngu — En þegar skygnst er inn um einhverja glufu, og Ijósgeisli skín inn fyrir tjöldin, þá vill það oft til að hugmyndin breytist—virkileikinn rífur þá missýninga blæjuna frá augum manns og alt sést í sínu rétta ljósi. pað lítur ósköp vel út að sjá flöggum veifað og höndum klappað til lofs og dýrðar landsvöm- um og þjóðhollustu. Pað lætur ósköp vel í eyrum að heyra langar og stórorðar ræður um það hversu mikið eigi að leggja í sölumar fyrir alríkið og vemd þess. Já, þetta er hvorttveggja fagurt og væri virð- ingar vert ef verk og athafnir sýndu það, að þar fylgdi jafnan hugur máli. pað sem fram hefir komið í höfuðstað vorum að undanförnu, getur ekki annað en veikt það traust, sem hver þjóð á heimting á að geta borið til trúnaðarmanna sinna. Skömmu eftir að stríðið byrjaði, komst sá orð- rómur á, að löngum fingrum mundi farið um fé fólksins, í sambandi við það. petta þótti útrúlegt og var því mótmælt eindregið af öllum flokkum. pað þótti óhugsandi að nokkur fyndist sá land- ráðamaður á stríðstímum að hann neytti valda sinna í hvaða stöðu sem hann var þannig að stríð- ið sjálft og ættjarðarástin sem við það var tengd yrði notað sem múrveggur umhverfis ríkisfjár- hirzluna svo ekki yrði komist að því að sjá þegar ræningjarnir opnuðu hana og fyltu úr henni vasa sína. Slíkar tilgátur þóttu óhæfilegar. En óhugur fólksins jókst; grunurinn styrktist þangað til hann loksins hafði tekið sér rótfestu í þjóðarmeðvitund- inni sem vissa og virkileiki. pjóðin og þeir fulltrúar hennar sem hreinar hendur höfðu töldu það sjálfsagt að sá er æðsta sætið skipaði væri að öllu leyti laus við þá óhæfu, sem sumir aðrir voru grunaðir um. Og ekki ein- ungis töldu menn það víst að hann væri sjálfur saklaus, heldur var því treyst og út frá því gengið að hann yrði fyrstur manna til að leyfa fulla og ótakmarkaða rannsókn—jafnvel þótti sjálfsagt að hann krefðist hennar. Ef alt var hvítt og fullkomin ráðvendni í öll- um efnum, þá var ekki neina rannsókn að óttast og engu að leyna. pá var það meira að segja stór ávinningur fyrir þá sem grunurinn hafði fallið á að rannsakað væri; og það var stjórnarfarsleg skylda hins æðsta manns að vemda þannig mann- orð embættisbræðra sinna og starfsmanna, að þeir þyrftu ekki að liggja undir ástæðulausum grun. Ef eitthvað var hæft í kærunum, þá var það. einnig heilög skylda mannsins sem fyrir fjórum árum sór það við guð almáttugan að fylgja rödd- um samvizku sinnar í stjómarsessinum að láta sannleikann koma í ljós. pað var því alveg sama hvort kærurnar voru á rökum bygðar eða ekki, það var skylda stjórnar- formannsins að heimta fullkomna rannsókn; í öðru tilfellinu til þess að vernda mannorð þeirra, sem sakirnar voru bomar á, ef þeir voru saklaus- ir, í hinu til þess að hegna sekum og koma í veg fyrir framhalds glæpi, ef um sekt væri að ræða. En hvernig fór? Var það æðsti maður stjórn- arinnar sem rannsókn heimtaði samkvæmt skyldu sinni, eiðum og loforðum? Var það hann sem glöggust sýndi þess merki að hann vildi láta sann- leikann og allan sannleikann koma í Ijós? Látum sögu þingsins í höfuðstaðnum svara þeim spurningum. Eins og getið hefir verið um í Lögbergi, skip- aði Ottawa stjórnin nefnd manna til þess að sjá um skotfærakaup og tilbúning þeirra. Sú nefnd vann auðvitað undir eftirliti og á ábyrgð stjómar- innar. pessi nefnd hafði með höndum hundruð miljóna af fé verkafólksins í Canada. pví var haldið fram að nefndin hefði farið óráðvandlega og ráðleysislega með þetta fé. pví var neitað og það talið landráðum næst að geta þess til um hina eldheitu þjóðræknispostula að slíkt gæti átt sér stað. Loksins kom það eins og þruma úr heiðskíru lofti að stjórnin á Englandi sendi fulltrúa hingað til þess að rannsaka hvernig á því stæði að fyrst og fremst fengust ekki skotfæri héðan þegar þeirra var þörf og í öðru lagi að það litla sem fékst var selt með uppsprengdu verði. Árangur þessarar sendifarar var sá að Sir Thomas, sá er Bretar sendu, krafðist þess að nefndin yrði látin hætta störfum og önnur nefnd sett í staðinn. petta var gert. En kærurnar héldu áfram og kröfur um rann- sókn. Fram á það var sýnt að þeir sem í nefnd- inni hefðu verið, hefðu keypt vörurnar af sjálfum sér með þessu óforsvaranlega verði. peir hefðu verið bæði seljendur og kaupendur og ráðið verð- inu að öllu leyti. En því var enn þá haldið fram að engin óráð- vendni hefði átt sér stað. Pá kom Laurier fram 7. marz og hélt ræðu sem geymast mun í sögu þessa lands, eins lengi og saga verður til. Lagði hann það þar til að skipuð yrði óhindruð og fullkomin þingnefnd til þess að rann- saka málið. í ræðunni fórust honum þannig orð: “Herra þingforseti! Ástæðan til þess að eg hefi borið upp þessa tillögu er þinginu kunn; meira að segja vel kunn, jafnvel áður en eg skýri hana. Svo mánuðum skiftir er síðan að sú ástæða heíir verið borin fram í blöðum landsins, og sú rödd orðið sterkari með degi hverjum meðal manna af öllum pólitískum flokkum. Og þegar eg tala um blöðin, þá get eg í bráðina gengið fram hjá Liberal blöðunum og haldið mig að þeim heim- ildum, sem eg nota aðeins við þau blöð, sem styrkja stjómina, og einkum má þá nefna þau blöð, sem sérstaklega eru einbeitt á móti Liberal- flokknum, þrátt fyrir það þótt þau eindregið hafi svo mánuðum skifti heimtað það að stjórnin léti rannsaka málið til fullnustu; rannsaka athæfi skotfæranefndarinnar. Krefjast blöðin þessa sem skyldu er stjórnin verði að leysa af hendi, ekki einungis þjóðarinnar vegna, heldur einnig flokks- ins vegna og sjálfrar sín. Og eg veit að enginn heldur því fram að eg mæli ósatt eða halli máli þegar eg geri þessar staðhæfingar. Tillaga mín er sú að sérstök þingnefndk sé skipuð, til þess að rannsaka allar gerðir skotfæra- nefndarinnar, sem skipuð var af hermálaráðherr- anum, samkvæmt yfirlýsingu forsætisráðherrans í þinginu 15. apríl 1915. Að rannsökuð séu öll skotfærakaup nefndarinnar og önnur störf henn- ar, og slíkri nefnd sé heimilaður réttur til þess að yfirheyra vitni undir eið og krefjast þess að kom- ið sé fram með bækur, skjöl, bréf og blöð, og að nefndinni sé falið að gefa skýrslu jafnótt til þingsins, eftir því sem við þykir eiga.” Á móti þessari tillögu var mælt og hún talin ósanngjörn, þar sem engar líkur væru til þess að fjárdráttur hefði átt sér stað. pví svaraði Laurier þannig: “Eitt er þó að minsta kosti það, sem enginn dirfist að hafa á móti og mætti kallast sorglegur sannleikur; það er það að jafnvel þótt svo væri að peningar hefðu ekki tapast fyrir handvömm í sambandi við starf skotfæranefndarinnar, þá hefir samt tími tapast, og tímatap er tíu sinnum meiri plæpur en peningatap. Vér getum greitt peninga fyrir skotfæri, en fyrir skotfæraskort verðum vér að borga með blóði, og eg staðhæfi að vegna skorts á skýldurækni skotfæranefndarinn- ar hefir tími tapast og vegna þess tapaða tíma hafa orustur tapast, þúsundum mannslífa hefir verið fórnað; sugurvinningunum hefir ekki verið haldið áfram; óvininum hefir ekki orðið fylgt á eftir, þegar hann lét undan síga og stríðið hefir þannig verið lengt. pað er af þessum ástæðum og þeim skelfingum sem af þessu hefir stafað, sem eg í dag í þingsætinu ákæri skotfæranefnd- ina, tel stjórnina vera ábyrgðarfulla og krefst rannsóknar.” — “Vér vissum það ekki áður, en vér vitum það nú, að banaamenn voru neyddir til að leggja á flótta; ekki negna ofureflis óvinanna, heldur öllu fremur vegna þess að þá brast byssur, kúlur og alls konar skotfæri. Og þegar þau gleði- tíðindi bárust oss um síðir til eyrna, að bandamenn hefðu hafið árásir; að þeir hefðu ráðist á hægri íylkingararm pjóðverja, og rekið hann á flótta frá Marne til Aisne, þá var björt og stór vonin meðal vor hér megin Atlanzhafs, um það að flótti pjóðverja yrði að halda áfram frá Aisne til Rínar; þessi von lét sér þó til skammar verða. Ástæðuna fyrir því vissum vér ekki þá, en vér vitum hana nú; hún var sú að bandamenn brast skotfæri þeg- ar me'st reið á. Síðan höfum vér frétt það að hinir sigursælu og hugrökku menn, feldu gremjutár og þau mörg vegna þess að þeir urðu þegar sigur var sjáanleg- ur, að láta undan síga vegna skotfæraskorts og gátu þessvegna ekki rekið pjóðverja burt af Frakklandi og Belgiu, heim til pýzkalands. Alt til þessa tíma hafa aðeins tveir menn úr ráðaneytinu séð um þessi mál. pað er Sam Hugh- es hermálaráðherra og Meighen dómsmálaráð- herra. Eg skal aðeins benda á fyrstu ræðu her- málaráðherrans. Hann blátt áfram gekk fram hjá öllum kærunum með því að veifa hendinni með lávarðarsvip. En hann skal vita það sá góði herra að það er ekki sama að ganga fram hjá kærum og að sanna að kærur séu rangar. Og þótt hermála ráðherran haíi látið til sín heyra, þá hafa samt ekki lækkað né fækkað þær raddir, sem rann- sóknar krefjast.” (Frh.). Heimska. i. Pað er bæði fróðlegt og kátbroslegt stundum að taka eftir því á hverju fólk byrjar að lesa í blöðum þegar þau koma. Og það er víst að ef safnað væri skýrslu um það, þá gæti hún orðið talsvert áreiðanlegur mælikvarði fyrir andlegum þroska og almennum hugsunarhætti. Vissir menn líta æfinlega fyrst á þá deild blað- anna, sem skýra frá markaði og vöruverði; aðrir —og þeir eru mýmargir—sérstaklega meðal hinna yngri manna, drekka í sig alt það sem heyrir til leikhúsum, myndasýningum og svokölluðum íþróttum. Og þó er fyrst vakin lestrarfýsnin til fulls og alls ef um það er að ræða að einhverjir tveir mannbolar berjast einhversstaðar og veðjað hefir verið um hvor þeirra vinni. Auðvitað er þetta ekkert annað en svívirðileg eftirlíking nauta- atsins á Spáni. par sem nautin voru ferfætt og rétt sköpuð, í stað þess að hér í álfu eru þau þann- ig vansköpuð að þau eru ógeðsleg eftirlíking af manni. “Já, ungu mennimir eru “spentir” fyrir þess konar skrælingjaleikjum. En það er fleira, sem eftirtektavert er við blaðalesturinn. Einstöku maður fer altaf fyrst þar í blaðið sem hann sér kvæði; en þeir eru sára fáir. Sögumar eru sólskinsblettur sem marga laðar að sér og eftir því fleiri sem meira er í þeim af æsingum og minna af viti. En þó er það auglýsingin hans Eatons sem flesta og fyrsta fá lesendurna; og það er víst óhætt að fullyrða að aldrei líði svo dagur í Winni- peg að minsta kosti að ekki séu hundruð kvenna og jafnvel manna sem glæpist þannig á auglýsing- unni hans Eatons að þau kaupi eitthvað sem þau höfðu alls enga þörf fyrir og hefði aldrei dottið í hug að kaupa. Skrítla er sögð um það að kventreyjur höfðu lengi legið í hyllu í búð nokkurri—hvort það var hjá Eaton eða einhversstaðar annarsstaðar vitum vér ekki. — Treyjumar kostuðu $3.00. En þær höfðu ekki selst. pá kom einhverjum það ráð í hug að auglýsa þær “á sölu”, sem kallað er. Nýir verðmiðar voru búnir til á treyjumar og sagt að þær kostuöu $5.00, en á sama tíma væru þær nið- ursettar ofan í $3.99, og þetta niðursetta verð— þessi óviðjafanlegu kjörkaup—áttu aðeins að standa yfir næsta laugaruag, var því um að gera að koma nógu snemma og ná í eina treyju, áður en pær yrðu uppseldar. Hún var lesin auglýsingin sú, og það var mann- kvæmt í búðinni laugardaginn þann. peim sem komu klukkan 10 var sagt að ekki væru eftir nema eitthvað 6 treyjur og kl. 4 eftir hádegið voru þær álíka margar—og þó var altaf verið að kaupa. En treyjumar voru alls 300 og þær seldust allar fyrir $3.99, þótt þær kostuðu upphaflega'ekki meira en $3.00. pannig hafði verzlunin $297.00 fyrir þær fram yfir það sem þær áttu að seljast fyrir upphaflega. Og allir þóttust fá mestu kjörkaup. Að fá $5.00 treyju fyrir rúma $3.00—já, eða $3.99, sem var svo að segja sama—það var gróði. Já, 99 cent, það er einhver fínasta veiðibrella sem verzlunarmenn hafa fundið upp fyrir augna- sand; fátt villir mönnum oftar sjónir en það. peim finst það svo sem munur að borga $4.00 eða ekki nema $3.99. Ef þeir sem hjá Eaton vinna væru allir spurðir hvort þessi aðferð, sem hér var skýrð væri aldrei höfð þar og þeir allir létu samvizku sína svara, hvernig ætli svörin yrðu þá ? Gaman væri að vita það. pað er ekki dæmalaust að fólk hafi gert sér ferð niður til Eatons til þess að kaupa eitthvað smávegis sem hafi verið niðursett um 10 cent og borgað 10 cent í fargjald á strætisvagni til þess að komast þang^ð og heim aftur. m THE DOMINION BANK Hc IDMVKD B. OMLKB, M. r„ Pcm W. D. MATTHBWS .TlN-rm. C. A. BOflERT, fl«MHl Maoagw. !T Varasjóður og óskiftur gróði. . . , $7,300,000 Stofnsjóður...................$6,000,000 BYRJA MA SPAiriSJÓÐSRKIKIÍING MEÐ $1.00 pað er ekki nauðsynlegt fyrir þig aS btSa þangað til þú átt álitlega upphæt til þess aC byrja sparisjöðareikning við þennan banka. Viðskifti m& byrja með $1.00 eða melru, og eru rentur borgaðar tvisvar & &ri. ffl Notre Darae Branch—W. M. IIAMII/IX)N, Manager. Selklrk Branch—M. S. BURGER, Manager. Tveir menn hafa gert sína skrítluna hver. Annar var Mark Twain, hinn var Georg Brandes. Sagði Brandes frá því að mað- ur hefði átt 10 aura hjá kunn- ingja sínum. Honum skrifaði hann bréf og bað hann að greiða skuldina, og_ varð að borga 10 aura undir bréfið. Hann fékk boð aftur þannig hljóðandi að ef hann vildi senda frímerki undir bréfið sem peningarnir yrðu sendir í, þá skyldi hann fá þá. Hann gerir þetta með ánægju; borgar 10 aura, leggur 10 aura innan í fyrir frímerki á bréf handa sér og hafði þannig alls borgað 30 aura. En hann fékk skuldina. Mark Twain aftur á móti læt- ur konu ávarpa litla stúlku sem hún á, og segir: “Að hverju ertu að leita, Maria mín? pú ert búin að * kveikja á hverri eldspýtunni á fætur annari óg nærri því hálfn- að með eldspýtustokkinn minn.” “Eg er að leita að eldspýtu sem eg týndi”, svaraði Maria litla. pessar skrítlur, þótt tilbúnar séu, eiga nákvæmlega við heimskuna sem kemur í Ijós í sambandi við auglýsingarnar hans Eatons og lestur þeirra. En það væri rangt að segja að þessi heimska væri einskorðuð við þessa tíma eða þetta land. Benedikt Gröndal hafði tekið eftir sömu veikinni í Reykjavík fyrir 20 árum. Hann segir frá því að heldri kona kom inn í Thomsensbúð og bað um sjal. Henni voru sýndar margar tegundir. Loksins lýst henni ágætlega á eitt þeirra og ætlar að kaupa það. En þegar hún spyr hvað það kosti og ætl- ar að borga, segir afhendinga- maðurinn að það kosti 15 krón- ur. “Fimtán krónur!” segír kon- an og verður alveg hissa. “Bjóð- ið þér mér virkilega svona druslu? máttuð þér ekki vita það að eg ætlaði að kaupa al- mennilegt sjal?” “Hvað hátt viljið þér fara?” spurði maðurinn. “Ekki lægra en 75 kr. að minsta kosti” svaraði konan. “En eg vil fá sjal af sömu gerð og þetta, aðeins dýrara.” “Til allrar ógæfu er þetta sein- asta sjalið sem við höfum af þessari gerð” svaraði maðurinn; “við höfðum þau á 80 kr., en þau eru öll uppgengin og við fáum þau ekki fyr en þann 20., þegar Lára kemur.” “pað gerir ekkert til” mælti konan. “Ef þið bara eruð vissir um aö fá það, þá kem eg þegar skipið er komið.” Svo líður og bíður; Lára kem- ur, en hún hafði ekki neitt sjal meðferðis af sömu gerð. Dag- inn eftir skipkomuna kemur sama konan inn og spyr eftir sjalinu: “Já, það er komið”, svarar sami búðarþjónninn, en það versta er að það er dýrara en það var seinast; þessi sjöl eru einmitt komin í týzku og hafa því hækkað í verði; þau kosta um 120 kr.” “pað varðar mig ekkert um” svaraði konan. “Ef mér bara líkar sjalið og það er ekki ein- hver tuska eins og hitt sem þér sýnduð mér um daginn.” Búðarmaðurinn kom fram með sama 15 króna sjalið og segir konunni að það sé þetta nýja. Konan kaupir það á 120 krón- ur og var ágætlega ánægð yfir kaupunum. Nú hafði hún feng- ið almennilegt sjal; það var ekki eins og bansett druslan sem strákkjáninn sýndi henni áður. Irland. Eignatjón á Irlandi sem stafaði af upphlaupinu er talið að minsta kosti $15,000,000 (fimtán miljónir). Hefir nefnd verið kosin til þess að fara á fund ensku stjórnarinnar og krefjast skaðabóta, og er sagt að John Redmond muni verða foringi þeirrar farar. Þúsund manns voru teknir fastir á Suður írlandi, sem þátt höfðu tekið í uppreistinni. Höfðu þeir falist á ýmsum stöðum til þess að verjast handtekningu, þar á meðal höfðu allmargir leynst í líkkistum hjá grafara einum, en þeir fundust þar og voru teknir. Sem dæmi þess hve rólega þeir urðu við dauða sínum sem skotnir voru, má geta þess að Joseph Plunkett, sem. getið var um að kvænst hefði einni klukkustund áður en hann var líflátinn, ráðstaf- aði sjálfur öllum oigum sínum. Móðir stúlku þeirrar, sem hann átti hafði sett sig upp á móti því að hún ætti hann; en þegar þetta kom fyrir flýttu þau sér að giftast bæði til þess að hún gæti borið nafn hans og hann gætft arfleitt hana. Vissi móðir hennar ekki af giftingunni fyr en alt var um garð gengið og hún orðin ekkja. Hiti mikill var í enska þinginu í London fyrra þriðjudag; rak þar hver spumingin aðra, sem beint var að Asquith. William O’Brien þing- maður Nationalista flokksins frá borginni Cork spurði hvort forsæt- isráðherrann vissi það að hundruð manna frá Cork og Tiipperary hefðu verið teknir fastir án þess að nokkrar sakir væru gefnar og þeim haldið í fangelsi í Cork. Þar sem þeir ættu hinni verstu meðferð að sæta. Philip Edward Merrell, Liberal þingmaður frá Bumley, spurði hvort það væri satt að F. Sheeley S. Skeffington, ritstjóri blaðsins “Irish Citizen”, hefði verið skotinn í Dublin áður en herdómur hefði verið kveðinn upp yfir hon- um og Timothy Healy spurði hvort forsætisráðherrann vissi það að sumir ritstjórar sem hefðu verið á móti uppreistinnli hefðu verið skotn- ir án þess að þeir væru um nokkuð kærðir eða dómur feldur og án þess að þeim hefði verið leyft að lesa bænir sínar. Asquith lofaði að rannsaka alt þetta og kvað engum vera það meira áhugamál en stjórninríi að ekki væri lögleysum beitt. Á miðvikudaginn héldu umræð- urnar áfram um írsku uppreistina; játaði þá stjórnin að það væri satt að N. Sheeley Sheffington rlitstjóri og tveir aðrir blaðamenn hefðu ver- ið líflátnir á herstöðvunum í Dublin án þess að yfirherstjómin hefði vitað um og áður en herréttur hefði verið uppkveðinn. Dillon þirtgmaður krafðist þess að sér- stakur skyndifundur væri haldinn í fulltrúadeildinni til þess að rann- saka líflát íranna; en John Red- mond gaf út sterkorða yfirlýsingu þar sem hann fordæmdi með öllu uppreistina og skoraði fastlega á írland að fylgja öllum löglegum aðferðum i baráttunni fytir stjálf- stjórn. Nefnd var skipuð af stjórninni til þess að rannsaka tilefni upp- reistarinnar og var Hardinge lá- varður foringi hennar. Um það virðast allir vera sammála, hvoru meglin sem þeir eru, að líflát Skeffingtons hafi verið óhappaverk og misráðið. Hann var skotinn 26. marz, en herlögin komust ekki í gildi fyr en þann 28. Flokkur sá er fylgir John Redmond kennir uppreistarforingjunum um alt og átelur þá harð’lega; kveður þá hafa eyðlilagt alla möguleika til sann- gjarnra samninga. George Bemard Shaw hinn frægi leikritahöfundur í London hefir ritað opið bréf um uppreistina á írlandi. Kveður hann þá sem upp- NORTHERN CROWN BANK Höfuðstóll löggiltur $6,000,000 Höfuðstóll greiddur $1,431,200 Varasjóðu.......$ 715,600 Pormaðnr.............- - - ÍSir 1). U. McMIIJ.AN, K.O.M.G. Vara-íormaður................... - Capt. WM. ROBINSON Sir D. C. CAMERON, K.U.M.G., J. H. A8HDOWN, H. T. CHAMPION E. F. HUTCHINGS, A. McTAVISH CAMPBEBB, JOHN STOVEU Allskonar bankastörf afgreidd. Véir byrjum reikninga við einstaklinga eða félög og sanngjarnir skilmálar veittir. Avísanir seldar til hvaða staðar scm er á Islandi. Sértakur gaumur gefinn sparisjóðsinnlögum, sern byrja má með einum dollar. Rentur lagðar viðá hverjum sex mánuðum. T. E. THORSTEIN3SON, Ráðsmaður Cor. WiIIiam Ave. og SherbrookejSt., - Winnipeg, Man. '

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.