Lögberg - 27.07.1916, Blaðsíða 8
8
LoiiBERG, FIMTUDAGINN 20. JÚLl 1916
Or bænum
P. S. Pálson fór nýlega út í
Lundarbygö til þess aö heimsækja
Hjört bróður sinn; kona Páls fór
meö honum. Þau komu heim aft-
pr á mánudaginn.
Mrs. Arngrímsson kom til bæj-
arins á mánudaginn utan frá
Narrowsbygö ásamt börnum sin-
um.
Munið eftir því aö Guðmundur
Kamban framsegjarinn frægi og
skáldið flytur ræöu á íslendinga-
daginn. Látiö ekki hjá líöa að
hlusta á hann.
Guðjón Hermannson kom til
bæjarins á sunnudaginn frá Kee-
watin, þar sem hann hefir unnið
um tima að undanförnu. Hann fór
þangað út aftur á mánudaginn.
Guöjón lét vel af líðan manna þar
ytra, nóg vinna fyrir 2754 cent um
klukkustundina og io tíma vinna.
Þrír íslendingar gera út skip til
fiskiveiða í Keewatin og gengur öll-
um vel eftir því sem Guðjón sagði.
Aldrei, hvorki fyr né síðar, gefst
Löndum tækifæri til aö sjá eins
marga íslenzka hermenn saman-
komna og á Islendingadaginn í ár.
Þeir veröa þar um 400—500. Er
líklegt að allir vandamen þeirra
noti tækifærið til þess aö koma og
sjá drengina áöur en þeir fara
^ustur.
Próf. Jóhann G. Jóhannson kom
heim frá Chicago á sunnudaginn
eftir nokkurra vikna dvöl viö Chica-
go háskólann. Hann lætur mikið |
af þeirri mentastofnun, og það með
réttu; hún er talin ein allra full-
komnasta stofnun þeirrar tegundar
í víðri veröld. Johannson kom til
þeirra íslendinganna Hjartar Þórö-
arsonar og Hjálmars Bergmanns
og fanst mikið til um framkvæmdir
þeirra hvors í sinni grein, og þá
þekkingu sem þaö útheimtir að reka
það starf sem þeir gera. Þótti
honum það merkilegt að báðir þess-
ir menn byrjuðu fátækir starfs-
menn við símastöðvar, en hafa án
nokkurrar skólagöngu aflað sér svo
mikils fróðleiks að undrum sætir)
og bygt sér glæsilegan atvinnuveg|
á þeirri þekkingu.
fslenzkur söngflokkur skemtir a I
íslendingadaginn meö fögrum, vel-|
völdum lögum.
ÍSLENZK GLfMA.
Sökum þess að of fáir hafa nú I
þegar gefiö sig fram til að glíma á
íslendingadaginn, þá auglýsist hér
meö, að öllum, sem gefa sig fram
fyrir kl. 1 e. h. annan ágúst, verður |
gefið tækifæri. Góð verðlaun í boöi. |
S. D. B. Stephanson,
ritari íþróttanefndarinnar.
Óskar Gottfred Gottskálksson
(sonur Jóhannesar Gottskálkssonar
og konu hansj kom til bæjarins á
fimtudaginn. Hann er í 138 her- |
heildinni i herbúðum hjá Calgary, I
og dvelur hér nokkra daga hjá for-
eldrum sínum. >
Gjörðabók
kirkjufélagsins er þegar nærri upp-
seld. Ef einhver skyldi hafa óseld-
ar Gjörðabækur, þá eru þeir hér-
með beðnir að senda þær nú þegar
til undirritaðs og andvirði þeirra
bóka sem seldar hafa verið. — Út-
gáfunefnd kirkjufélagsins tekur alls
ekki við neinum Gjörðabókum, sem
ekki eru komnar í hennar hendur
fyrir 15. ágúst n.k., en reiknar þær
til verðs hjá þeim öllum sem þá hafa
enn ekki gert skilagrein.
í umboði nefndarinnar.
John J. Vopni.
Allir
sem hafa útsölu á fyrirlestri Guðm.
Finnbogasonar: “Viðhald islenzks
þjóöernis í Vesturheimi”, eru hér-
með beðnir aö gera skilagrein hiö
allra fyrsta. Bókin hefir aðeins
verið send til útsölu nefnd þeirri
sem kosin var á síðasta kirkjuþingi
—einum manni í hverjum söfnuöi
kirkjufélagsins (sjá Gjörðab. 1916)
—til að aðstoða skólaráð Jóns
Bjamasonar skóla, og er fyrsta
verk þeirrar nefndar að selja þetta
rit í þarfir skólans. Skólinn kost-
aði ritiö og hefir því ágóöann af fyr-
irtækinu ef ritið selst. — Einnig má
panta ritið frá undirrituðum, sem
hefir alla afgreiðslu á hendi þessu
víðvíkjandi.
John J. Vopni,
Box 3244, Minnipeg, Man.
Goðmundur Kamban
hefir
FRAMSÖGN
í Good Templara húsinu fimtu-
daginn 27. Júlí, kl. 8 síðdegis.
fslenzkar skuggamyndir, með og
án lita, verða sýndar.
AÐGANGUR 50c.
11
“ ÍSLENDINGAR VILJUM VER ALLIR VERA
Hinn tuttugasti og sjöundi
ISLENDINGA-
DAGUR
MIDVIKUDAGINN 2. AGUST1916
Verður haldinn í
j^ÝN I NGARQARDI
WINNIPEG-BORGAR
Forseti hátíðarinnar: Dr. B. J. Brandson.
TIL ATHUGUNAR:
Allur undirbúningur er nú fullgerður, eftir
beztu vitund nefndarinnar. Að eins eitt er nauð-
synlegt til að gera daginn þetta ár þann bezta
íslendingadag, sem nokkurn tíma hefir haldinn
verið hér í Winnipeg — það, að sem flestir fslend-
ingar sæki daginn. Sjálfsagt sækja hann allir
fslendingar, sem eiga heima í Winnipeg, og er von
á, að sem flestir úr íslenzku bygðunum komi einn-
ig og taki þátt í skemtuninni.
Klukkan 8.30 að morgni leggja af stað frá
horninu á Portage og Arlington, og frá hominu á
Portage og Sherbrooke strætisvagnar, er flytja
alla sem vilja ókeypis. pessir vagnar fara norður
eftir Arlington St. og Sherbrooke St.. Sem flestir
ættu að nota þetta tækifæri fyrir frítt far út í
garðinn.
Klukkan 9 byrja hlaupin fyrir böm frá 6 til 16
ára, og þar eftir hlaup fyrir fullorðið fólk, menn
og konur, gift og ógift, ungt og gamalt. peir,
sem voru ánægðir með verðlaunin í fyrra, verða
enn þá ánægðari í ár, því nefndinni hefir hepnast
ágætlega að fá góða og þarflega muni, en ekkert
glingur.
Máltíðir verða veittar allan daginn af “Jón
Sigurðson” I.O.D.E. kvenfélaginu, og er það nægi-
leg trygging fyrir því, að góður matur fæst þar
keyptur með sanngjömu verði. En þeir, sem vilja
hafa mat með sér, geta fengið heitt vatn ókeypis.
Frá klukkan 3 til 5 verða fluttar ræður og
kvæði og sungnir ættjarðarsöngvar, og spiluð ís-
lenzk lög.
Col. H. N. Ruttan O.C.M.D, aðalherstöðvastjóri
í 10. herhéraði, hefir þegar leyft öllum íslenzkum
hermönnum að vera á hátíðinni. peir verða þar
því svo hundruðum skiftir, og ættu sem flestir að
nota tækifærið og sjá þá, ef til vill, í síðasta skifti
áður en þeir fara austur.
Breyting á fyrirkomulagi íþrótta.
Áður hefir verið svo til hagað að félög og
klúbbar einungis hafa tekið þátt í þeim; en sökum
þess hversu margir era fjarstaddir frá félögum,
er öllum einstaklingum boðið að taka þátt í hvaða
íþróttum sem er. Verðlaun eru bæði mörg og
glæsileg, og er enn tími til að senda S. D. B.
Stephansyni nöfn þeirra sem þátt vilja taka í
íþróttum, sé það gert nú þegar.
SKEMTISKRA:
1. Minni íslands:
Ræða—Guðm. Kamban.
Kvæði—Séra Jónas A. Sigurðsson.
2. Minni Bretaveldis :
Ræða Dr. B. J. Brandson.
Kvæði—Séra H. Leo.
3. Minni Vestur-íslendinga :
Ræða Séra F. Hallgrímsson.
Kvæði—p. p. porsteinsson.
4. Minni Manitoba :
Ræða—Miss Steina Stefánson.
Kvæði—Mrs. M. J. Benedictson.
Barnasýning.
fslenzk glíma.
Knattleikur (Baseball) 223. herdeildarinnar
og heimamanna.
Knattleikur fyrir stúlkur.
Hljóðfærasláttur; æfðir flokkar.
Aflraun á kaðli—hermenn og heimamenn.
AUskonar íþróttir.
Dans.
Klukkan eitt byrja íþróttir fyrir ísl. leikfimis-
menn undir umsjón Manitoba deildarinnar í Fim-
leikafélagi Canada. —
Klukkan 8 byrjar dansinn; Th. Johnston leik-
ur á hljóðfæri. Verðlaun verða gefin þeim sem
bezt dansa.
Hljóðfæraflokkur spilar íslenzk lög.
Enginn fær að fara út úr garðinum og koma
inn í hann aftur ókeypis án þess að hafa sérstakt
leyfi.
í forstöðunefnd dagsins eru :
Dr. B. J. Brandson, forseti.
J. J. Vopni, varaforseti.
J. J. Swanson, skrifari.
A. P. Johannsson, féhirðir.
P. Bardal Jr. H. Methusalems
Sig. Björnsson. Th. Borgfjord
Alex. Johnson H. J. Palmason
A. S. Bardal. . S.D.B. Stephanson
Sig. Júl. Jóhannesson M.J. Skaptason
Dr. Guömundur Finnbogason
lagði af staö heimleiöis frá New
York fyrra mánudag. Haföi hann
ferðast um ýmsa parta Bandaríkj-
anna og heimsótt helztu háskóla
þar.
Stephan Thorson lögregludómari
á Gimli var á ferð í bænum á föstu-
daginn ásamt konu sinni.
Húsfrú P. F. Magnússon í Leslie
kom til bæjarins fyrra miövikudag
að leita sér lækninga og dvelur hér
um nokkurn tíma.
Thorsteinn J. Gíslason kaupmað
ur að Brown og Louisa G. Thor
lakson hjúkrunarkona voru gefin
saman i hjónaband 20. júlí. Brúö
guminn er bróðir Dr. Gísla J. Gísla-
sonar í Grand Forks, en brúðirin
dóttir Jóns Thorlakssonar bróöur
séra Steingríms. Hún er ágætur
hljómleikari og útlærö hjúkrunar-
|coua. Brúöhjónin eru á ferð suö-
ur í Grand Forks og fleiri staöa,
en koma heim 15. ágúst.
Húsfrú Th. Halldórson fór ný-
lega vestur í Vatnabvgðir aö heim-
sækja systur sinar þar; húsfrá P.
Bjarnason á Wynyard og húsfrú
Th. Halldórson á Kandahar.
Oddný Guömundson dóttir Sig-
urbjarnar sál. Guðmundssonar að
Mountain, andaöist í Grand Forks
nýlega; gáfuö stúlka og efnileg.
Húsfrú S. Oddson ('kona Sveins
Oddssonar í Wynyard) er nýlega
þomin til Minnesota ásamt börnum
þeirra hjóna. Hún varð eftir heima
á íslandi þegar Sveinn kom i fyrra
og er nú á leiðinni heim, en kom
viö hjá foreldrum sínum og syst-
kynum þar syöra.
Húsfrú Arason frá Argyle
fekkja Skafta sál. Arasonar) kom
sunnan frá Chicago og Minnesota
nýlega, ásamt dóttur sinni Guönýju.
Höfðu þær mæögur dvalið þar syðra
í mánaðartíma.
Helgi Jónsson klæöaskeri veiktist
snögglega á fimtudaginn af botn-
langabólgu. Var hann svo veikur
aö Dr. Brandson taldi ekki ráölegt
aö fresta uppskurði og var hann því
skorinn upp samdægurs. Er hann
nú úr allri hættu og líöur eftir von-
um.
NOTIÐ ROYAL CROWN SAPU; hún er bezt. Safnið Royal
Crown miöum og nöínum. Eignist fallega nytsama muni kostnaðar-
laust.
Ef þú ert ekkt þegar byrjaður aö safna miðum, þá byrjadu
tafarlaust. Þú veröur forviða á því hversu fljótt þú getur safnaö
nógu miklu til þess aö afla ágæts hlutar. Einhvers sem mikils er
virði.
Royal Crown munir eru úr bezta efni. Þeir eru vaidir meö
mikilli varfærni. Þeir eru margs konar; eitthvað sem v'el kemur sér
fyrir alla. NÁIÐ I NÝJA VERDLISTANN OKKAR. Þaö
kostar ekkert nema aðeins aö biöja um hann. Ef þú sendir bréf
eöa póstspjald, þá færðu hann meö næsta pósti og borgað undir hann.
Allir munir sem eru auglýstir eða sýndir fyrir fyrsta maí 1913
eru nú teknir af listanum.
Þegar þú velur einhvern hlut, þá v'ertu viss um aö velja eftir
nýja listanum. Áritan:
THE ROYAL CROWN SOAPS
Limited
PREMIUM DEPARTM ENT
WINNIPEG, MAN.
NorsK-Ameriska Linan
Nýtízku gufuskip sigla frá
New York sem segir:
“Bergensfjord”, 5. Agúst.
“Kristiansfjord” 26. Ágúst.
"Bergensfjord” 16. Sept.
“Kristianiafjord” 7. Okt.
Norðvesturlands farþegar geta ferðast
með Burlington og Baltimore og Ohio
járnbrautum. Farbrjcf fra. Is-
landi eru seld til hvaða staða sem er
í Bandaríkjunum og Canada. — Snúið
yður til
HOBE & CO., G.N.W.A.
123 S. 3rd Street, Minneapolis, eða
H. S. BARDAL,
892 Sherbrooke Street, Winnipeg.
Málverk.
Handmálaðar
1 i t my nd i|r
[“Pastel” og olíumálverk] af
mönnum og landslagi
býr tilog selur með sanngjörnu verði.
Þorsteinn Þ. Þorsteinseon,
732 McGee St. Tals. G. 4997
Eg hefi nú nægar byrgöir af
“granite” legsteinunum “góðu”
stööugt viö hendina handa öllum,
sem þurfa. Svo nú ætla eg að biöja
þá, sem hafa verið aö biöja mig um
legsteina, og þá, sem ætla að fá sér
legsteina i sumar, aö finna mig sem
fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist aö
gera eins vel og aðrir, ef ekki betur.
Yðar einlægur.
A. S. Bardál.
H. EMERY,
borni Notre Dtune og Gertle srts.
TAl/S. GAHItY 48
ÆtllC þér aC flytja yCur? Ef
yCur er ant um aB húsbúnaBur
yBar skemmist ekkl I flutningn-
um, þá. finniB oss. Vér leggjum
sérstaklega stund & þá iSnaBar-
greln og ábyrgjumst aB þér rerB-
1B ánægB. Kol og viBur seft
laegsta verBi.
Baggage and Kxpress
Ef eitthvað gengur aö úrinu
þínu þá er þér langbezt at5 senda
það til hans G. Thomas. Haun er
í Bardals byggingunni og þú naátt
trúa því aö úrin lcasta eflibelgn-
um í höndunum á honum.
•AFETY
Öryggishnífar
skerptir
RAZO
Ef þér er ant um aö fá góða
brýnslu, þá höfum viö sérstaklega
gott tækifæri að brýna fyrir þig
rakhnífa og skæri. “Gilett’s” ©r-
yggisblöö eru endurbrýnd og “D«p-
lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein-
föld blöð 25c. tylftina. Ef rakhníf-
ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur
sýna þér hversu auðvelt það er að
raka þegar Vér höfum endurbrýnt
blöðin. — Einföld blöð einnig lög-
uð og bætt. — Einnig brýnum við
skæri fyrir lOc.—75c.
The Razor & Stiear Sharpening Co.
4. lofti, 614 Buildera Exchange Grinding Dpt.
333i Portage Are., Winnipegr
Aðalsteinn Kristjánsson kom
hingað frá Kenora í vikunni sem
leið. Hefir hann átt þar sæla daga
að undanförnu í heimboöi sínu hjá
kristilegu félagi ungra manna.
Sagt er að séra Friðrik Friðriks-
son leggi af stað heim til íslands
bráðlega. Hefir frézt að hann hafi
flutt skilnaðarræðu í Minneota á
sunnudaginn var.
Látið húðina anda.
Með þvi aB halda svitanolunum opnum og
lausum við óhreinindi. Þegar þær «ru
lokaðar getur húðin ekki andað og verður
því hörundsliturinn óhreinindalegur
NYAL’S FACE CREAM
hreinsar hörundsholurnar og losar þær við
olfukent cfni sem eitrar hörundið. Natið
það óspart í sumar ef þér viljið hafa falleg-
an hörundslit
Verð 25 og 50c askjan.
WHALEYS LYFJABÚÐ
Phone Sheebr. 268 og 1130
Horni Sargent Ave. og Agnes St.
Séra Jón Magnússon, fyrrum
prestur í Hvammi í Norðurárdal og
faðir séra Magnúsar, sem var á
Gardar er nýlega fluttur frá Brown
til Winnipeg- Beach; hefir leigt þar
bújörð.
VÉR
KENNUM
GREGG
Hraðritun
SUCCESS
VÉR
KENNUM
PITMAN
Hraðritun
BUSINESS COLLEGE
HORNI PORTAGE OG EDMONTON ST.
WINNIPEG, - MANITOBA
CtibOs skólar frá hafi til hafs
TÆKIFÆRI
pað er mikil eftirsókn
eftir nemendum, sem út-
skrifast af skóla vorum.
— Hundruð bókhaldara,
hraðritara, skrifara og
búðarmanna er þörf fyr-
ir. Búið yður undir þau
störf. Verið tilbúin að
nota tækifærin, er þau
berja á dyr hjá yður.
Látið nám koma yður á
hillu hagnaðar. Ef þér
gerið það, munu ekki að
eins þér, heldur foreldr-
ar og vinir njóta góðs af.
— The Success College
getur leitt yður á þann
veg. Skrifist í skólann
nú þegar.
YFIRBURÐIR
Beztu meðmæli eru með-
mæli fjöldans. Hinn ár-
legi nemendafjöldi í Suc-
cess skóla fer langt
fram yfir alla aðra verzl-
unarskóla í Winnipeg til
samans. Kensla vor er
bygð á háum hugmynd-
um og nýjustu aðferð-
um. ódýrir prívatskólar
eru dýrastir að lokum.
Hjá oss eru námsgreinar
kendar af hæfustu kenn-
urum og skólastofur og
áhöld eru hin beztu. —
Lærið á Success skólan-
um. Sá skóli hefir lifað
nafn sitt. Success verð-
ur fremst í flokki.
SUCCESS-NEMANDI HELDITR HÁMARKI I VJELRITUN
INNRITIST HVENÆR SEM ER
Skrifið eftir bæklingi
SUCCESS BUSINESS COLLEGE
F. G. Garbutt, Pres.
D. F. Ferguson, Prin.