Lögberg - 10.08.1916, Blaðsíða 8

Lögberg - 10.08.1916, Blaðsíða 8
8 LoUBERG, FIMTUDAGINN 10. ÁGÚST 1916 Or bænum Um það var getið í síBasta blaði aö Páll Johnson frá Kandahar hefði verið í bænum með Hjörnýju dóttur sina til lækninga. Hún var skorin upp á 'föstudaginn var og liður eft- ir vonum. Páll fer heim í dag og vonast til þess að Hjörný verði all- hress áður langt líður. Vigfús Þorsteinsson frá Beaver kom á íslendingadaginn 2. Ágúst, aðallega til þess að finna tvo drengi, sem hann á í hernum, 223. deildinni; þeir heita Guðmundur og Þorsteinn. Vigfús fór heim aftur á föstudag. Þorgrímur Pétursson kom austan frá Brown fyrir íslnedingadaginn. Hann var á leið til Argyle og býst við að verða þar við uppskeruvinnu fram eftir haustinu. Vel kvað hann mönnum líða þar ytra og útlit vera gott en þó talsverðar skemdir af ryði. Þorgrímur fór vestur til Ar- gyle á föstudaginn. Magnús Johnson og Halldór Ingi- mundarson frá Brown komu til bæj- arins í vikunni sem leið og voru á Islendingadeginum hér. Magnús var að sækja móður sína, Herdísi John- son sem verið hefir hér til lækninga hjá Dr. Brandson um tima. Þau fóru öll heim aftur á föstudaginn. Júliana Thordarson, kona Hjartar Thordarsonar rafm.fr. í Chicago, kom til bæjarins fyrir íslendinga- daginn og dv'aldi hér í nokkra daga. Hún á hér ýmsa forna kunningja og hefir ekki heimsókt þá lengi. Guðrún Guðnason (Tcona M'arkús- ar GuðnasonarJ frá Selkirk dvelur - hér í bænum um tima sér til lækn- inga. 1 Lögbergi 20. Júlí birtist dánar- fregn Kristjáns Komráðs Davíðs- somar og, hefir undirskrift GSsla- sons hjónanna, sem greinina sendu, snúist við í prentsmiðjunni, eins og stundum getur komið fyrir. Á þessu eru hlutaðeigendur beðnir velvirð- ingar. Húsfrú G. Hafstein frá Middle- ton í Sask. kom hingað ásamt tveim- ur börnum sínum fyrir Islendinga- daginn og fór norður að Gimli að finna þar kunningja sína. H. Kr. Mýrmann frá Middleton, Sask., kom til bæjarins fyrir íslend- ingadaginn. Hann er kominn undir sjötugt, en ern að sjá og unglegur; fór hann norður til Gimli á laugar- daginn og dvelur hér eystra um mán- aðartíma. Kvað hann þetta vera fyrstu og liklega síðustu skemtiferð sína á æfinni. Fáir íslendingar seg- ir hann að séu í grend við sig; að- eins 31 landi að öllu töldu; en þeim farnast vel og hafa nægilegt að bíta og brenna. Uppskeruhorfur eru ekki sem beztar þar v'estra; vætur hafa verið langt of miklar, þótt ekki væri farið að bera á ryði þegar hann fór. Með Halldóri kom að vestan systir hans, er Helga Þorsteinsson heitir og á heima í sömu bygð. Þorsteinn Thorkelsson frá Oak Point kom til borgarinnar annan Ágúst til þess að vera á íslendinga- deginum. Hann kvaðst aldrei hafa látið það bregðast að vera þar síð- an hátíðin fyrst hófst hér fyrir 27 árum. Er Þorsteinn jafngamall há- tíðinni hér í landi, kom hingað sum- arið 1890. Alt gott kvað hann að frétta úr sínu bygðarlagi; gras- spretta er þar í allra bezta lagi og akrar ágætir, þar sem þeir eru, en skemdir þó talsverðar af hagli. Vinnuhjálp er lítil þar ytra og horf- ir næstum til vandræða í því atriði. —Slys sagði Þorsteinn að hefði viljað til þar ytra . Voru menn við heyskap fyrra föstudag og skall þá á voðalegt þrumuveður og varð piltur fyrir eldingu og dó samstund- is. Alls voru mennirnir þrír: þessi piltur , faðir hans og skólakennari. Eldingin snerti skólakennarann en ekki til skaða. Pilturinn hét Henry Ceradeau og var frakkneskur, 14 ára að aldri. Harold Franklin B. Johnson frá Wymyard og Margréi Magnússon frá Winnipeg voru gefin samaa i hjónaband 5. Ágúst af séra Bimi B. Jónssyni að heimili hans 659 Wil- liam Ave. Verkamannafélagið sem getið er um að stofnað hafi verið, heldur fund í Goodtemplarahúsinu í kveld (f imtud. J. Er það nokkurskonar undirbúningsfundur meðal íslend- inga undir aðalfund, sem halda á í Labor* 1 Temple á föstudagskveldið. Fundur þessi byrjar klukkan 8 síðd. og er óskað eftir að sem flestir verkamenn mæti þar. G. J. Magn- ússon, formaður verkamannafélags- ins, gengst fyrir þessum fundi. H. Hermann, starfsmaður Lög- bergs, fór norður til Árborgar á laugardaginn og kom aftur á mánu- dag. Dr. Sveinn Björnsson frá Gimli skrapp vestur til Leslie á mánudag- inn. Kemur líklega ekki einn sam- an aftur. Frú Rannveig Jónasson, korta Sígtryggs Jónassonar og systir séra Valdimars Brem, lézt á spítalanum í Winnipeg á sunnudaginn var, eftir alllanga legu. Hún var gáfuð kona eins og hún átti kyn til, hámentuð og prúð í allri framgöngu. Hún var jörðuð frá Fyrstu lútersku kirkjunni í Winnipeg í gær ('miðv.d.J af séra B. B. Jönssyni, að viðstöddu miklu fjölmenni. Þorbjörn Tómasson hermaður í 223. herdeild., er sagt að hafi slas- ast á fimtudaginn var í herbúðunum í Sewell. Ofsarok var og féll niður tjald það sem flokkur hans var í, en tré lenti á fæti Þorbjarnar og fót- brotnaði hann. Þeir sem eru að hugsa um að ferðast til íslands í haust, ættu að festa sér pláss á skipum Eimskipafé- lags Islands sem allra fyrst Gullfoss kemur til New York snemma í September, en Goðafoss snemma í Október. Þaðan fara skipin beina leið til Reykjavíkur, íytrir vestan allar stríðsstöðvar. Marconi þráðlaus útbúnaður er á skipunum. Farseðill á fyrsta plássi frá New York til Reykjavíkur er 250 krónur, á öðru plássi 150 kr. Eg get selt farbréf alla leið frá Winnipeg, eða þeim sem heima eiga í Bandaríkjun- um, með skipunum að eins. Stór hópur er nú þegar búinn að biðja um pláss á skipunum. Upplýsingar um farbréfakaup og annað ferðunum viðvíkjandi fást með því að skrifa til eða finna Árna Eggertsson, 302 Trust and Loan Bldg., Winnipeg, sem er umboðs- maður félagsins hér v’estra. SRRÍTLUR. Maður, sem verið var að klipppa, tók eftir því að hundur, sem hár- skerinn átti, horfði stöðugt á hann. “Ljómandi er þetta fallegur hundur,” sagð maðurinn. “Já, hann er það,” sVarað hár- skerinn. “Honum hlýtur að þykja gaman að horfa á þig klippa.” “Ekki held eg nú það,” svaraði hárskerinn. “Það er annað, sem hann er að hugsa um. Það kemur stundum fyrir, að eg klippi óvart stykki úr eyranu á þeim, sem í stólnum situr og hann tínir þau upp.”—(The Commoner). “Hver maður er álíka stór og hugmyndir hans,” sagði A. “Ósköp er að heyra þetta,” svar- aði B. “Faðir minn er vísindamað- ur og hann fær allar sínar hug- myndir í gegn um smásjá.—(The Commoner). Drengsnáði var sendur á sunnu- 'dagsskóla í fyrsta iskifti. Móðir hans fékk honum fimm cent til þess að gefa í kirkjunni. Þegar hann kom heim var hann með sætinda- poka. “Hvar fékstu þetta?” spurði móðir hans. “Eg keypti það í horn- búðinni,” svaraði pilturinn. “Fyrir hvað keyptir þá það?” “Fyrir centin sem þú gafst mér.” “Þú áttir að hafa þau fyrir sunnudagsskólann.” “Eg þurfti þess ekki, því presturinn kom á móti mér fram að dyrum og hleypti mér inn fyrir ekki neitt” Jakob Briem kom til bæjarins á þriðjudaginn til þess að vera við jarðarför systur sinnar frú Jónas- son.—Margir fleiri komu frá Gimli til þess að vera við jarðarförina. Hagl gerði miklar skemdir i Vatnabygðum á fimtudaginn; sum- ir landar töpuðu þar allri uppskeru. Grein II. um vináttu er endur- prentuð fyrir þá sök, að stillinn hlpfði .raskast í prdrituninni síðast og efni því orðið óglögt. Gjafir til 223. hcrdeildarinnar. Safnað af G. Stefánssyni að Vest- fold og Hove pósthúsum:— G. Stefánson...........i .. $2.00 E. H. Einarsson........, .. .. 2.00 Halldór Johnson...............0.50 Vigfús Thordarson........... 1.00 Jón S. Amason.. ..............1.00 Leonard H. Olsen........... .. 1.00 Einar J. B. Johnson...........1.00 Bjöm Jónsson........... .. .50 A. M:. Freeman................1.00 F. Thorgilsson................1.00 Sigurður Mýrdal. . . .| .. .., .. 1.00 L. Kristjánsson.................50 K. Stefánsson..........i........50 Safna/ð |af Th. Thorkelsson að Oak Point, Clarkleigh og Vestfold: Th. Thorkelsson........ .. $5.00 Mrs. G. Thorkelsson........2.00 Miss Hekla Thorkelsson..........25 Fred. Thorkelsson...............25 A. G. Breiðfjörð...........1.00 S. T. Byron .. . .............1.00 Björn Björnsson.................50 Guðtyörn Guðmundsson .., .. .50 V. J. Guttormsson..........1.00 Home Economic Society, Lundar, Man......| .. ..............$25.00 Frá Winnipeg: S. Sveinsson, Simcoe St....5.00 Samtals er þetta $54.50. i Gjafir til “Betel’'. t-i Frá Lundar Home Economic So- ciety, $10; Thorst. Thorarinsson, Winnipeg, $10. Mdð innilegu þakklætS, /. Jáhannesson, 675 MþDermat Ave., Wpg. FYRIRSPURN. Nágrannar mínir eiga sitt landið hvor og liggur vegarstæði milli þeirra. Eg sló dálítið á vegarstæð- inu og þykist annar eiga helminginn af því, telur því heyið baðan sína eign. Hefir hann á réttu að standa? Var mér ekki heimilt að slá vegar- stæðið og hirða heyið? Búi digri. SVAR: Vegarstæðið er almennings eign, hvorki nágrannar þínir né þú eiga það. Venjuhelgi svo almenn að lögum gengur næst, heimilar hagnýt- ing slíkra slægja hverjum sem er. Nágranni þinn hefir þvi á röngu máli að standa, en lagalega hefir þú ekki rétt til að slá vegarstæðiö. Ritstj. VINNUKONU vantar út á land sem allra fyrst; kaup $15 á mánuði; konan hjálpar við Öll verk. Tdboð sendist til, Mrs. J. G. DavíSsson, Box 169, Antler, Sask. IÞRÓTTIR Islendineadagsins í Winniþee 2. Agúst 1916. Samkvæmt beiðni ritstjóra Lög- bergs skrifa eg um íþróttir íslend- ingadagsins í ár. Ljúft er mér að minnast íþrótta- mannanna, því margir þeirra reynd- ust vel og eiga tvímælalaust miklar þakkir skyldar, en því miður gat eg ekki fylgst nægilega með, til að rit- dæma afrek þeirra og framkomu, því oft fór fram samkepni í fleiri en einni íþrótt samtímis. Mun eg því láta mér nægja, að lýsa því yfir um leið og eg get þeirra, sem verðlaunin hlutu, að yfirleitt virtist mér prúðmenska, létt- Ieiki og lipurð vera sameiginleg ein- kenni þessara íþróttamanna, þótt ein- staka undantekninga frá því ættu sér stað. Til þess lesandinn geti sjálfur séð hvort afturför eða framför eigi sér stað, set eg hér þau hámök, sem gerð hafa verið á undanförnum Islendinga- dögum, og til þess að séð verði af- staða íslenzkra íturmenna fítur- menni: “champion”/ gagnvart ítur- menni fylkisins, set eg hámörk i Manitoba. Strax á eftir nöfnum vinnanda set eg hámark hans, en fyrri hámörk á ísl.dögum og fylkisins set eg innan sviga með stryki á milli, strax þar á eftir:— Hlaup, 100 yds.—1. vl. Émil Da- víðsson, Selkirk: 10 3-5. sec. J10j4 sek.—10 sec.J; 2. Walter Byron, 223. herd.; 3. Th. Halldórsson, Lundar. Hlaup, 220 yds.—1. Emil Davíðs- son, Selkirk,: 24 sec. 723 3-5. sec—22 sec); 2. Walter Byron, 223. herd.; 3. Th. Halldórsson. Hlaup, 440 yds.—1. A. O. Magnús- son, Lundar: 57 4-5. sek. (52Jý s.— 49 1-5. s.J ; 2. O. Björnsson, 223 hd.; 3. Egill S. Ingjaldson, 223 hd. Hlaup, y2 míla—1. A. O. Magnús- son, Lundar: 2 mín. 17 3-5.-sek. (2 m. 8 2-5. sek.—2 mín.J; 2. Egill S. Ingj- aldsson, 223. hd.; 3. O. Björnsson, 223. herd. Hlaup, 1 míla—1. A. O. Magnússon, Lundar: 5 mín. 4 4-5. sek. (4 m. 53 3-5. sek.—4 m. 33 2-5. sek.J; 2. Egill S, Ingjaldsson, 223. hd.; 3. E. H. Ei- ríksson, Lundar. Hlaup, 5 mílur—1. A. O. Magnús- son, Lundar: 30 mín. 8 sek. (30 mín. 29 sek.—26 mín. 11 3-5. sek.J; 2. E. H. Eiríksson, Lundar; 3. Sig. Da- víðsson, 223. hd. Hopp-stig-stökk—1. M. Kelly, 223. hd.: 39 f. 5ýí þ. 740 f. 9'A þ,—43 f. 2 þ.J; 2. S. B. Stefánsson, Lund- ar; 3. Th. Halldórsson, Lundar. (Tilhlaujps-langstökk—1. M. Kelly, 223. hd.: 19 f. 4Rj þ. 720 f. þ.— 22 f. 4 þ.J; 2. S.B. Stefánson, Lund- ar; 3. Th. Halldórsson, Lundar. Jafnfætis langstökk—1. Paul Bar- dal, Wpg.: 9 f. 0% þ. 79 f. Sy2 þ.— 10 f. jö þ.J; 2. Victor E. Westdal, Lundar; 3. John A. Vopni, Wpg. Tilhlaups hástökk—1. M. Kelly, 22. hd.: 5 f. 5 þ. 75 f. 5 þ,—6 fetj; 2. S. B. Stefánsson, Lundar. Stangar-stökk 7P°le VaultJ— 1. Emil Davíðsson, Selkirk: 10 f. 2. þ. 710 f. 2 þ,—11 fetj; 2. S. B. Stef- Kasta 16 pd. lóði—1. Paul Bardal, Wpg.: 32 f. 11 þ. (33 f. 4 þ,—41 f. 5 þ.J; 2. E. J. Eiríksson, Lundar; 3. H. Johnson, 223. hd. Hindrunarhlaup 7L°W Hurdles/, 220 yds.—1. M. Kelly, 223. hd.: 2. Walter Byron, 223. hd.; 3. Th. Hall- dórsson, Lundar. Kringlu-cast /DiscusJ—1. Frank Fredrickson, Wpeg; 2. Emil Da- víðsson, Selkirk. í tvennu því síðastnefnda veit eg ekki um tíma né vegalengd. Þeir sem keptu í ofangreindum íþróttum, þreyttu kapp um bikarinn- þannig, að stig eru veitt með hverj- um verðlaunum, 3 fyrir fyrstu, 2 fyrir önnur og 1 fyrir þriðju, og sá sem flest stig fær hlýtur bikarinn. Flest stig fékk A. O. Magnússon frá Lundar (12), og hlaut því bikarinn; næstur honum var M. Kelly með 11 y og hinn þriðji í röðinni var Emil Daviðsson með 11 stig. Magn- ússon og Kelly fengu báðir jafn- mörg verðlaun, fjögur fyrstu verð- laun hvor, en Kelly hlaut ein með hlutkesti, er varpað var um hástökk milli hans og S. B. Stefánssonar og var því eigi gefið fyrir þau nema 2y2 stig. Þeir Magnússon og Kelly eru báðir svo vel þektir 'tþrótta- menn að þess gerist ekki þörf að geta þeirra sérstaklega, en Emil Da- víðsson er lítt þektur áður, enda að eins 18 ára gamall Hann er meðal- maður á hæð, prýðisvel vaxinn og fríður sýnum. Allar hans hreifngar eru aðdáanlega mjúkar og spá mín er, að innan skamms auðnst honum að vekja aðdáun fleiri en íslend- inga. í íslenzku glímunni keptu að eins 5. Sigurvegarinn var Guðmundur Sigurjónsson og hlaut þv beltið, en næstur honurn stóð Benedikt Ólafs- son. Hermenn þreyttu kapp við heima- menn í knattleik /baseballj og reip- togi og töpuðu knattleiknum en unnu reiptogið. Við knattleikinn var eg eigi viðstaddur en á reiptogið horfði eg mér til sárrar gremju, því bæði var það, að það fór fram án þess nokkrar reglur væru viðhafðar og að liðsmunurinn var svo mikill, að eg held að hermenni hefðu getað dregið hina með sér alla leið til herstöðv- anna 7SewellJ og það með vanaleg- um ganghraða. Márgur hafði hlakk- að til þessarar samkepni, því Hún hafði verið auglýst með kjarnyrð- um og var því slæmt að þannig skyldi fara. 9 silfur vindlingahylki 7cigarette casesj voru veitt í verð- laun fyrir knattleikinn, en 7 vindla- kassar fyrir reiptogið, óg má slík Verðlaunaveiting í fylsta máta heita óviðeigandi, þar sem tóbaksnautn er heilsuspillandi og ósæmileg hverj- um þeim er íþróttir iðkar, sem og öllum öðrum. Ungar stúlkur keptu i knattleik 7baseball/, tveir flokkar héðan úr bænum og einn utan frá Lundar.; þótt eg væri þar viðstaddur þá kann eg ekki af eigin eftirtekt að segja frá úrslitum, því mér lá við svima af að horfa á þá stöðugu hringrás. Að eins man eg það, að mér þótti knattleikurinn Htilfjörlegur en stúlk- urnar fjörlegar og fríðar. En Arin- björn Bardal hefir sagt mér, að sveitastúlkurnar hafi unnið “með glans”, og efa eg eigi frásögu hans. Hygni sýndi framkvæmdarnefndn með verðlaunaveitingar til stúlkn- anna eigi síður en til knattleiks og reiptogs karlmannanna, því hún veitti 18 af 27 verðl., og hver haldið þér þau hafi verið ? Kassar fullir af sœlgœti 7candyJ er kostað höfðu sam- tals 16 dali og 50 cent. Er það hugs- anlegt að forseti nefndarinnar, sem er heilbrigðissérfræðingurinn Dr. B. J. Brandson, ráðleggi stúlkum, sem iðka íþróttir, að nærast á sælgæti Hver veit nema eitthvað af þessum sætindaverðl. nefndarinnar hafi tekið sér bólfeStu í botnlöngunum, og hvað skeður þá? í sambandi við íþróttirnar mætti nefna ýmislegt frá hálfu framkvæmd- arnefndarinnar, ar skoðast gæti mis- ráðið, en þess ber að gæta, að hún hefir margfalt erviðara verk en ó- kunnugir geta gert sér í hugarlund, og væri því tæplega sanngjarnt, að leggja hana í einelti með aðfinslur. í því trausti að hún hafi ráðið ráð- um sínum og unnið samkvæmt beztu vitund, ber oss öllum sem unnum ísl. þjóðerni, að þakka hnni unnin störf sem öll hafa verið leyst af hendi ár, nokurs endurgjalds GuSm. Sigurjónsson. A.O.U.W. verndar félaga í stríðinu. Stúkan verndar að fullu og öllu þá scm c vígvöllinn fara. Mountain N.D., i. júlí 1916. A.O.U.W. vemdar að öllu leyti þá sem í herinn hafa gengið og eru sendir í stríðið, samkvæmt yfirlýs- ingu, sem gerð var nýlega af Bradley C. Marks reglustjóra í Norður Dakota deildinni. Samkvæmt ábyrgðarlögum fé- lagsins nær trygging ekki til her- manna í striði og skirteini þeirra falla úr gildi. Ekki aðeins borgar stórstúka A.O.U.W. dánarkröfur slikra manna ef þeir falla, heldur einnig heldur hún við ábyrgðunum fyrir mennina með því að borga út- gjöldin þegar þau falla á. Þétta er mögulegt aðeins vegna hins ágæta fjárhags reglunnar, með því að A.O.U.W. er mesta fjár- málastofnun i Norður Dakota sem stendur. Þetta var oss sent og bent á til birtingar. — Ritstj. KENNARA vantar fyrir Min- erva skóla nr. 1045. Kenslu tímabil frá 15. sept. 1916 til 1. maí 1917. Umsækjandi verður að hafa 2nd eða 3rd Class Professional Certifi- cate. Hver sem sinna vill tilboði þessu greini undirrituðum frá æf- ingu sem kennari og hvaða kaupi óskað er eftir. Umsóknum veitt móttaka til 30. ágúst. /. G. Christie, Sec. Treas. íslendingadagur að Mountain. Annar ágúst var haldinn hátíð- (Iegur að Mountain í Norður Dakota eftir fréttum í bréfi þaðan. Veðrið var hið indælasta og fjöldi fólks sótti hátíðina. Skemtanir bæði .margbreyttar og góðar. Karl Einarsson stúdent frá Hensel flutti snjalla ræðu á Is- lenzku; og er skemtilegt að heyra að þeim fjölgi sem hér eru fæddir og mentaðir og beiti þó tungu vorri við slík tækifæri. S. V. Leifur stýrði samkomunni og fór hún fram hið bezta. Bréfritarinn segir að heyskapur standi yfir, og uppskera á höfrum, byggi og rúgi sé að byrja og alt með fyrra móti sökum hita og þurka. Bréfið er skrifað 3. ágúst. Skógargíldi að Markland 17. Júní. Bóndi utan frá Grunnavatnsbygð var hér á íslendingadeginum og sagði oss frá því, að landar þar ytra hefðu haldið skógargildi og út- breiðslufund í bændafélagi bygðar- innar 17. Júní í sumar að Markland Hall Aðal ræðumaður þar var S. Sigfússon starfsmaður stjórnar- ínnar, og hafði honum mælst vel og skörulega. Að ræðu hans lokinni voru bornar upp fyrir hann margar spurningar af bændum bygðarinnar og svaraði hann þeim öllum vel og greinilega. Sigfússon á miklar þakk- ir skyldar fyrir þann áhuga er hann sýnir í stöðu sinni og hversu mjög hann virðist bera velferð bænda fyr- ir brjósti.—Áhugamál bænda í bygð- inni hafa aldrei verið eins Vel vak- andi og væri betur að það héldist, því þótt alt af sé þörf á góðum bú- skap þar sem hann er stoð alls ann- ars, þá er þess einkum þörf nú á rneðan á stríðinu stendur. Næsti íundur félagsins verður haldinn í September og ættu bæði félagsmenn og aðrir að sækja hann. Þar verða nauðsynjamál félagsins rædd og sér- lega vandað til fundarins. Gat sá er fréttirnar sagði, þess, að óskað væri eftir að sem flestir væru undir það búnir að koma fram með eitt- hvað á fundinum til uppbyggingar og skemtunar,— Að Afloknum ræð- um á þessum fundi fóru fram alls- konar íþróttir, svo sem hlaup, stökk, knattleikar og fleira. Hlupu þar 1 gamlir menn og konur sem ung væru og voru mörg verðlaun gefin. Fóru allir heim að kveldi glaðir og ánægðir. — 1 fjarveru forseta og varaforseta félagsins stjórnaði Þor- steinn Thorkelsson á Oak Point sam- komunni og fór alt fram hið bezta; þess gat sá, er fréttirnar sagði, að æskilegt væri að sjá ríflega þátt- töku kvenna í fundahöldum og sam- kvæmislífi, þar sem þær nú hefðu öðlast jafnrétti við menn hér í álfu, og er það í alla staði rétt athugað. Minning eftir porbjörgu sál. J?orgeirsson, f. 3. Maí 1877, d. 22. Ágúst 1914. (Undir nafni móður hennar.) pau leiða mig, árin, hægt og hljótt að hvílunni, þar sem vært og rótt eg sofna með sorgum mínum. f vestrinu dvínar dagsins brún, en dýrðlegri morgun boðar hún, með blaktandi blysum sínum, sem bending frá anda þínum. Frá gröfinni þinni, porbjörg mín, í þrautamyrkrinu geisli skín, þar langvistum hugann hefi ég; ef nálægt er mér ei mannssál nein, þá minnist eg þig og græt þig ein; ei heiminum hugtár gef eg, í hjarta míns djúp þau gref ég. Og það sér ei neinn hvað þú varst mér og það veit enginn hve viðkvæmt er það hjarta, sem hylur sárin; en samt er mér eins og svipur þinn með sólskini fylli huga minn og ógrátnu tefji tárin. þó tel ég og reikna árin. Eg minnist þess, blessað bamið mitt, hve bjart var og heiðskírt lífið þitt, þó örðugar leiðir ætti; og þegar þú stóðst við dauðans dyr, þú djarflega brostir eins og fyr; og grátna þín gleði kætti, þó gleddir af veikum mætti. Frá vöggu til grafar stutt er stund, en sterk og voldug er drottins mund, hún lýsir með ljósum sínum. pau leiða mig, árin, hægt 0g hljótt að hvílunni, þar sem vært og rótt eg sofna með sorgum mínum og síg upp að faðmi þínum. pó sakni eg blessaðs bamsins míns, sem brott var kallað til föður síns, og blæði því muna mínum; í vestrinu dvínar dagsins brún, og dýrðlegri morgun boðar hún með blaktandi blysum sínum, sem bending frá anda þínum. Sig. Júl. Jóhannesson. NOTIÐ ROYAL CROWN SÁPU; hún er bezt. SafniS Royal Crown miöum og nöfnum. Eignist fallega nytsama muni kostnaöar- laust. Ef þú ert eldá þegar byrjaöur aö safna miöum, þá byrjaSu tafarlaust. Þú veröur forviða á því hversu fljótt þú getur safnað nógu miklu til þess að afla ágæts hlutar. Einhvers sem mikils er viröi. Royal Crown munir eru úr bezta efni. Þeir eru valdir meö mikilli varfærni. Þeir eru margs konar; eitthvaö sem vel kemur sér fyrir alla. NÁIÐ í NÝJA VERÐLISTANN OKKAR. Þaö kostar ekkert nema aðeins aö biðja um hann. Ef þú sendir bréf eöa póstspjald, þá færðu hann með næsta pósti og borgað undir hann. Allir munir sem eru auglýstir eða sýndir fyrir fyrsta maí 193 S eru nú teknir af listanum. Þegar þú velur einhvern hlut, þá v'ertu viss um að velja eftir nýja listanum. Áritan: THE R0YAL CR0WN S0APS Limited PREMIUM DEPARTMENT ■ WINNIPEG, MAN. NorsK-Ameriska Linan Nýtízku gufuskip sigla frá New York sem segir: “Bergensfjord”, 5. Agúst. "Krlstiansfjord” 26. Ágúst. “Bergensfjord” 16. Sept. "Kristianiafjord” 7. Okt. Norðvesturlsnds farþegar geta ferðast með Burlington og Baltimore og Ohio járnbrautum. Farbrjef fra I■- landi eru seld til hvaða staða sem er í Bandaríkjunum og Canada. — Snúið yður til HOBE & CO., G.N.W.A. 123 S. 3rd Street, Minneapolis, eða H. S. BARDAL, 892 Sherbrooke Street, Winnipeg. Málverk. }£££& [“Pastel” og olíumálverk] af mönnum og landslagi býr til og selur með sanngjörnu verði. ÞoriteÍBn Þ. Þorsteioseon, 732 McGee St. Tals. G. 4997 KENNARA vantar fyrir Frey- skóla No. 890, í Argyle-bygð, sem hefir lögmætt kennaraleyfi. Kensla byrjar 1. September næstkom. og heldur áfram til 21. Desember 1916. Umsækjendur sendi tilboð sín til Árna Sveinssonar, Glenboro P.O., við fyrsta tækifæri. Arni Sveinsson, Sec.-Treas. Öryggishnífar •afety skerptir RAZO Ef þér er ant um að fá gó8« brýnslu, þá höfum viö sérstaklega gott tækifæri að brýna fyrir þig rakhnífa og skæri. “Gilett’s" ör- yggisblöð eru endurbrýnd og "Dup- lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein- föld blöð 25c. tylftina. Ef rakhníf- ur þinn bítur ekki, þá láttu okknr •ýna þér hversu auðvelt það er að raka þegar Vér höfum endurbrýat blöðin. — Einföld blöð einnig lög- uð og bætt. — Einnig brýnum við skæri fyrir lOc.—75c. Thi Razop & Sftear Sharpening Co. 4. löfli.614 Builder* Exchange Grinding Dpt. 333* Portage Ave„ Winnipeg Látið húðina anda. Með þvf aH halda avitanolunum opnum og lausum við óhreinindi. Þegar þær *ru lokaðar getur húðin ekki andað og verður því hörundsliturinn óhreinindalegur NYAL'S FACE CREAM hreinsar hörundsholurnar og losar þær við olfukent cfni sem eitrar hörundið. Notið það óspart f sumar ef þér viljið hafa falleg- an hörundslit Verð 25 og 50c askjan. WHALEYS LYFJABÚÐ Phone Sheebr. 258 og 1130 KENNURUM tveim, sem um þá atvinnu sækja, veitir Lundi sköli Nr. 587, í Riverton, stöðu frá 15. Sept- ember til 15. Desember 1916, og frá 1. Janúar til 30. Júnt 1917; kenslu- tími því níu mánuðir. Lægri kenslu- stofan útheimtir kennara með ”3rd class professional certificate”; en sú hærri “2nd class certificate.”— List- hafendur segi í tilboðum sínum hvaða kaup þeir vilja hafa, menta- stig og æfingu í kenslu.— Tilboðum veitir undirritaður móttöku til 10. Ágúst næstkomandi. Icelandic Riv'er P.O., 10. Júlí, ’16. Jón Sigvaldason, sec.-treas. Horni Sargent Ave. og Agnes St. Eg hefi nú nægar byrgðir af “granite” legsteinunum “góðu” stöðugt við hendina handa öllum, sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja þá, sem hafa verið að biðja mig um legsteina, og þá, sem ætla að fá sér legsteina í sumar, að finna mig sem fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að gera eins vel og aðrir, ef ekki betur. Yðar einlægur. A. S. Bardal. KENNARRA vantar fyrir Vest- fold skóla Nr. 805, í þrjá mánuði, frá 24. Ágúst n.k. Umsækjendur tilgreini mentastig, æfingu og kaup sem óskað er eftir, og sendi tilboð sín til ‘ A. M. Freeman, Sec.-T reas. Vestfold, Man. Ef eitthvað gengur að úríuu þínu þá er þér langbezt að seuda það til hans G. Thomas. Haua er í Bardals byggingunni og þú mátt trúa því að úrin kasta eflibelgn- um í höndunum á honum. VÉR VÉR KENNUM KENNUM GREGG CII/ ccc PITMAN Hraðritun oUl Loo Hraðritun BUSl [NESS 1 COLI £GE HORNI PORTAGE OG EDMONTON ST. WINNIPEG, - MANIT0BA ÖTIBÚS-SKÓLAR FRÁ HAFI TIL HAFS TÆKIFÆRI YFIRBURÐIR pað er mikil eftirsókn Beztu meðmæli eru með- eftir nemendum, sem út- mæli fjöldans. Hinn ár- skrifast af skóla vorum. legi nemendafjöldi í Suc- — Hundruð bókhaldara, cess skóla fer langt hraðritara, skrifara og fram yfir alla aðra verzl- búðarmanna er þörf fyr- unarskóla í Winnipeg til ir. Búið yður undir þau samans. Kensla vor er störf. Verið tilbúin að bygð á háum hugmynd- nota tækifærin, er þau um og nýjustu aðferð- berja á dyr hjá yður. um. ódýrir prívatskólar Látið nám koma yður á eru dýrastir að lokum. hillu hagnaðar. Ef þér Hjá oss eru námsgreinar gerið það, munu ekki að kendar af hæfustu kenn- eins þér, heldur foreldr- urum og skólastofur og ar og vinir njóta góðs af. áhöld eru hin beztu. — — The Success CoIIege Lærið á Success skólan- getur leitt yður á þann um. Sá skóli hefir lifað veg. Skrifist í skólann nafn sitt. Success verð- nú þegar. ur fremst í flokki. SUCCESS-NEMANDI HELDUR HÁMARKI 1 VJELRITI'N INNRITIST HVENÆR SEM ER Skrifið eftir bæklingi SUCCESS BUSINESS COLLEGE F. G. Garbutt, Pres. D. F. Ferguson, Prin.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.