Lögberg - 14.12.1916, Side 1

Lögberg - 14.12.1916, Side 1
29. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 14. DESEMBER. 1916 NÚMER 50 r r — TIL JÖLANNA ■|3LESSUÐ bama jólin! bjarta gleðisólin! — mildið, þíðið kuldans bitra klakahjúp. Látið ljósið stækka — látið geislann hækka þeim, sem byrgir sorgamótt og saknaðsdjúp. Út í bændabýli — borgar inni’ í skýli, böm og móðir horfinn ástvin harma sinn — yfi’r á ófriðshöfum eða’ í Frakklands gröfum. — perrið tár af glókolls brá og grátni kinn. Heimahlýju fjærri — heljardyrum nærri stríðsdrengimir horfa’ í anda heim til sín. Látið ljós þeim skína — látið tómleik dvína. Leggið frið í lófann þeirra’ er líða pín. J?eim, sem ekkert eiga — ekkert gleðja mega unga sína: lítinn dreng og litla mey, sendið gull til glaðnings — gott í munn til saðnings — eina spjör, svo klæða þurfi köttinn ei. Alla aldna, hrjáða, örbirgð hlaðna, smáða látið vermast ami þeim, sem alvíð skín. — Hér er kaldur heimur — hér er dauðans geimur hverjum þeim, sem ekki lukkast arðsvon sín, Blessuð björtu jólin! blárra nátta kjólinn, lýsið þið 0g ljómið enn með litafjöld, þó að hátiu hæsta hafi gildið smærsta heimsmenning, sem friðinn brýtur Öld frá öld. Blessuð, blessuð jólin! brenni kærleikssólin eldrún sína: hátíð þína hjörtun á! — Bamsins er það iðja: óvissuna að biðja bctra lífs og fegri drauma framtíð hjá. porsteinn p. porsteinsson. Leyndarmálið. Nýgift kona talar við sjálfa sig. (pýtt úr ensku). Hvítur er snærinn, og blástjömur breiða sig blikandi, dreifðar um ómælis höf, eitthvað til heilagleiks heillar mig, seiðir mig, himnesk er leynd mín og drottinleg giöf. Hvíli eg vakandi, hugró og dreymandi, hrekk upp við bergmál svo veikt, en svo djúpt, hvíli eg, þúsundir hugsana geymandi — hvíslar mér eitthvað í neggstað — svo Ijúft. Rauðleit, sem fegurstu rósimar, leynd mín er — rósinni munn gefa blaðvarir tvær — Drottinn, til ástar og umhyggju beindu mér. — Indæl er röddin sem vorheitur blær; tæraar svo mjúkar, og ljúfar og laðandi — lífið mun himneskt, er kyssi eg þær djúpt — hendumar litlar og heitar og baðandi. — Hvísla mér englar í neggstað — svo ljúft. Brosa nú jólin — þeim böm mæta hlakkandi. (Berst ei mitt hjarta! — J?íns leyndarmáls gæt!) Næst er þau heilsa mér, hvað eg verð þakkandi. — Hárauðir smásokkar! — alsæl eg græt. — Dimt er. — Um alheiminn blástjömur breiða sig — bergmálar áfram svo veikt, en svo djúpt. Drottinn til heilagleiks heillar mig, seiðir mig. — Hvíslar mér guðsríki' í neggstað — svo ljúft. Sig. Júl. Jóhannesson. Bréf úr herbúðunum. Witley Camp, 13. nóv. 1916. Kæri Mr. Marteinsson, Eg meStóik bréfiS þitt meö beztu ákilum og þótti mér fjarska vænt um aS fá það. Mér fanst eg vera kominn inn á J.B.A. á meðan eg var að lesa það og eg bara hrökk við þegar eg kom að seinustu orð- unum, mig langaði til að hevra meir þaðan, hvað þá ef eg hefði getað verið horfinn þangað svo sem hálfan iklukkutima, til að sjá og spjalla við gömlu kunningjana. Eg vildi að striðið væri búið og eg væri kominn inn á J.B.A. aftur. Við félagar erum oft að tala um það, hvað við skyldum þá hafa skemtilegan tima ef við að eins værum komnir þangað aftur. Það ber ekkert til tiðinda hér, svo eg er mjög hræddur um að 'þetta verði ákaflega lélegt bréf. Eg er samt búinn að fara til London síðan eg skrifaði þér, og eg var þar i sex daga að “spóka” mig um stræti stórborgarinnar. Það er margt sem ber fyrir augu manns þar, en ekki get eg sagt að eg yrði neitt 'hrifinn af borginni sjálfri, en það eru margir staðif og byggingar slem er mikils virlSi að sjá, t. d. “Tower of London”. Eg fór þangað einn daginn og skoðaði bygginguna hátt og látt. Eg kom inn í herbergið þar sem tveir litlu prinsamir vom myrtir og gekk of an stigann þar sem lík þeirra fund ust undir ; kom inn í herbergið þar sem Sir Roger Casement var geymdur í áður en hann úttók hegningu sína. Eg skoðaði vopna safnið þar, og það var meira en litið samansafn. Gamlar fallbyss ur, smærri byssur, sverð, spjót, ax ir, jámkylfur, kross-bogar, og her- klæði úr stáli af öllum tegundum. Þar voru ein herklæði úr stáli sem mér varð sérlega starsýnt á, þau voru sex fet ioþá þuml. á hæð, og ákaflega sterkleg að sjá. Maður- inn sem bar þau hefir sannarleea verið karlmannlegur á v*elli, hvað sem hann hefir verið meira. Vopn in þar voru mörg ákaflega einkenni leg og þar gat maður séð hvað mönnum hefir smátt og smátt farið fram i byssusmíði. Gömlu “flint- locks” byssumar eru einkennilegar og bara hlægilegar nú á dögum. T’að er miklu minni mismunur á fallbyssunum. Einn daginn sem tg var1 i London fór eg með lest- inni til Hampton Court, og eg sé Munið eftir gamla " f ólkinu! 13 Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar hefir ákveðið að senda gamalmennunum á “Betel” jólagjafir. Eru því allar kvenfélagskonur beðnar að hafa þetta í hyggju. Sömuleiðis em allir aðrir, sem eitthvað vilja leggja fram til þess að gleðja gamalmennin, beðnir að koma gjöfum sínum í kirkju Fyrsta lút. safn. á föstudags- kveldið milli kl. 8 og 10. Verður þar nefnd sú er gjöf- unum veitir móttöku. ekki eftir að eg brá mér þangað, því eg held að það sé sá fallegasti staður sem eg hefi nokkru sinni séð. Garðarnir kringum kastalann eru bara aðdáanlegir, og það er víst eikkert til sparað að hafa það sem fullkomnast, og veiztu hvað? Hlið- in á girðingunni kringum kastal- ann tók jámsmið sjö ár að búa til (cg htld hliðin séu tólf). Og myndirnar inni í kastalanum eru ekki svo fáar heldur. Það tók mig hejlan dag að skoða það merkileg- asta, bæði úti og inni. Hugsaðu þér bara hvort það hefir ekki kitl- að hégómagimi mína að fá at labba í hægðum mínum um her- bergi, þar sem konungar og drotn- ingar höfðu áður gengið um og meira að segja að fá að koma inn svefnherbergi Vilhjálms þriðja og drotningar hans. Jæja, hvað s'en þessu líður þá skemti eg mér barj ljómandi vel þenna dag, og eg helc að ef eg fæ nokkuð langan passr um jólin að eg fari til írlands ti bess að nota tímann sem eg verí hér til að sjá sem mest. Ekki hefi eg neina hugmynd un hvað lengi við verðum á Englandi en eg held að við hljótum að verð; hér fram yfir jól að minsta kosti Okkar herdeild er meira en full skipuð núna, bvi að við fengum 141 menn úr 183. Wpg herdeildinni, sen var skift í sundur þegar hún kon hingað. 100., 108. og 144. en allar farnar héðan frá Witley 05 eru nú í Seaford óhjá Brighton Sussex), en hvort við förum héðai veit eg ekki ennþá. Eg held þa' gjöri lítinn mun hvort maður er hg á Englandi, það rignir hér hvor sem er mest af tímanum. Gilbert og Villa liður ágætlega eg lofaði þeim að lesa bréfið þit svo eg ímynda mér að þeir skrií þér bráðlega. Þú spyrð mig í bréfi þínu hvor það sé nokkuð sem þú gætir sen mér, sem mér kasmi vel. Já, þa er eitt sem mér þætti vænt um a þú sendir mér og það eru íslenzk blöðin þegar þú ert búinn að les þau. Mér þætti vænt um ef þ gætir sént mér þau númer ser hafa komið út síðan eg fór fr Canada. eg hefi ekki séð neitt a þeim síðan eg kom hingað, og ei skal segja þér að mig er farið a langa til að sjá þau. Eg skil ekk ert í því hvað bréf koma seint fr Canada hingað. Eg hefi bara feng ið eitt bréf þaðan fyrir utan þi( bréf siðan eg kom bingað, og þa bréf var fyrst sent til Cam Hugh'es. Eg býst ekki við að eg skrifi þé annað bréf fyrir jól, eða ekki sv að það nái heim til þin fyrir þan: tíma, svo eg ætla að ósika þér gleði legra jóla i þessu bréfi og eins fólk l inu þínu. Berðu svo kæra kveðj , öllu skólafólkinu og segðu þvi a 1 eg voni að það drelcki vel af Mími bninni i vetur og fljúgi gegnur prófið að vori. Vertu svo bless aður og sæll. Þinn einlægur Sigurður. Leiðrctting. Eg sé í blaði þinu dags'. 30. nó\ að drpvrð hafi verið um rúmtepp sem Ingibjörg Clements hafi gefi Jóns Sigurðsonar félaginu, og e bað ekki rétt. Eg gaf þetta rúm t'eppi og bað konur fél. )>ess a peningamir sem inn kæmu fyri bað vrðu notaðir í þarfir heimkom inna hennanna. — Með beztu ósk um til Jóns Sigurðsonar félagsin og Lögbergs. Með vinsemd. Helqa B. Runólfsnn 752 Pacific Ave., Wpg. m “ELOI LAMMA SABAKHTANR’ m I. Svo lítil frétt var fæðing hans í fjárhúsjötu hirðingjans, að dag og ártal enginn reit, um adur hans ei nokkur veit. Og jafnvel samtíð okkar enn sér ekki sína beztu menn, en bylting tímans birtir alt og bætir sumum hundraðfalt. pví mótmælt hefði hans eigin öld, að afmælið hans sé í kvöld, og tengt þann atburð ársins við að aftur lengdist sólskinið. Hann alla sína fræðslu fékk á fátæklingsins skólabekk; en sveit hans veitti sína gjöf, þar sérhver hæð var spámanns gröf. Og skálda, er höfðu hegnt og kent, en heimska lýðsins grýtt og brent, þar feður hjuggu hold og bein, en hlóðu synir bautastein. par birtist verka vitmn hans, sem vitjar sérhvers göfugs manns, það kall að hefja, land og lýð og lækna mein á sinni tíð. Og margur sagði hugarhlýtt: “Sjá hér er spámanns efni nýtt!” Og móðurástar ótti og von sá undra mann í kæmm son. Hann skildi glögt hvað gengi að, og guðrækni ei fremst var það, né smædd, né örbirgð ættarlands, og ekki kúgun Rómverjans. Hann sá að eigin elskan blind var aldarfarsins stærsta synd, og þyngst á afl og anda manns var okið lagt af bróður hans. Sem grimd og lymsku lengst til ver, að láta aðra þjóna sér, sem aldrc: sér að auðna þín er allra heilí, og þín og mín. Hann kendi að mannást heit og hrein til himins væri leiðin ein; hann sá að alt var ógert verk sem ekki studdi mannúð sterk. Um okurkarl og aura söfn hans orð ei vom gælunöfn; hann tók í forsvar fallinn lágt, sem féll af því hann átti bágt. Á orð hans hlýddu hrifnir menn, um hugsjón sem þeir glegðu ei enn; því Jiugi fangar háleit sál, þó hljómi rödd sem duliðs-mál. En alt sem sjálfs hans sál var ljóst að sæju aðrir, við hann bjóst. — Hvern sannleik þér sem auðsær er, að aðrir skilji ei, byrgist þér. Hve áhrifalaust orð hans lá í anda lýðs, hann glöggvast sá, er gagnstætt hverri hugsun hans hann hylla vildu konung lands. Og fjöldinn enn ei eftir tók, að ekki er hugsjón “lærdóms bók”, pví flestir halda hún hlotnist send í hugvekjum sé lærð og kend. En hún er sál þín sjálfs, með rök in sömu, þrá og hugartök, sem hins er stóð við hennar dyr, þó hundrað öldum lifði fyr. II. Að geta ei friðað bræðra böl, varð beizkjan í hans dauða kvöl — af slíkri ást og and^ps þrá hvað afdrifin þau virtust smá! “Minn guð, hví yfirgafstu mig”, frá gröf hans hljómar kring um þig, er sérðu heift og hjátrú lands sig hópa undir nafnið hans. III. En altaf getur góða menn, og guðspjöll eru skrifuð enn — hvert líf er jafnt að eðli og ætt, sem eitthvað hefir veröld bætt. Og löndin eiga mikla menn — og menningin sér kemur enn og geislar andans allir sér, í einnar sálar brennigler. Og sama 0g hans er sumra mein, 0g sama þeirra dauðakvein: í smáum brotum byrjað fá á blessun lands og hverfa frá. pá hugraun líður Jietja sú sem hreinsa vildi sið og trú, en deyr sem andstygð almúgans í útskúfun síns föðurlands. Og þjóðskömngur böl það ber, á banadægri er þreyttur sér, að fólk hans loksins sveik sig sjálft og sættum tók við minna en hálft. Og skádið hreppir hlutfall það, sem hversdags lífið þrengir að, sem hnígur undir önn og töf, með öll sín beztu ljóð í gröf. Og sjálfur bóndinn veit það vel, sem vildi græða kalinn mel, en hnígur svo að séð ei fær að sveitin af hans starfi grær. Stephan G. Stephansson. . Bæjarfréttir, Landinn ætti að muna eftir því að Guðmundur Johnson er fluttur aftur mit't á meðal þeirra. Hann er vel þektur frá gömlum dögum og ætti nú að njóta þess í viðskift- um. Friðfinnur Jónsson frá Grund i Argvlebygð og kona hans kontu hingað til bæjarins fyrra þriðjudag. Komu þau hingað með fósturdótt- ur sína til lækninga til Dr. Jóns Stefánssonar. Þau fara heim aft- ur á laugardaginn. %--------------------- §igurður Jónsson frá Minne- waken gaf $10 til 223. herdeildar- innar. í frétt um það frá E. Breckmann i siðasta blaði varð sú prentvilla að það hefðu verið $5.00. Axel Jónasson frá Elf-ros og kona hans komu til bæjarins á þriðjudaginn. Mrs. Jónasson var að leita sér lækninga hjá Dr. Brandson. Með þeim var systir hennar, er Ethel, McNab heitir. B. Bergson frá Minto í Manitoba var á ferð hér í bænum á föstudaer- inn var. Fór hann norður til Hnausa að finna Jón bróður sinn og dvelur ]>ar nokkra daga. Mrs. Henrietta Magnússon frá Nesi í Nýia í slandi er stödd hér í bænum. Kom hún hingað til þess að sjá Martein Sveinsson son sinn, s,em hér liggur veikur. Jón Ólafsson frá Upham i Norð- ur Dakota var hér á ferð fyrir helgina. Hann var samferða B. Bergssyni frá Minto. Sigurður Stefánsson, sem að undanförnu. hefir dvalið vestur í Vatnabygðum kom hingað til bæj- arins 6. þ.m. og dvelur hér um tima. Thor Jensson trésmiður frá Kandahar er starMur hér í bœnum um þessar mundir; ætlar hann noröur til Nýja íslands og vera þar nokkra daga. Marteinn Sveinsson aktýgja- smiður frá Elfros var fluttur hing- að til bæjarins nýlega mjög veikur af botnlanga bólgu. Var botnlang- inn sprunginn áður en hingað kom, en Dr. Brandson skar hann upp og er liann talinn úr allri hættu. Með Marteini kom kona hans og dvelur hún hér á meðan hann er veikur. Þau biðja Lögberg að flytja Elfros- búum innilega kveðju og þakklæti fyrir drengilega hjálp þegar þessi veikindi bar að höndum. Viglundur Davíösson fór norður til Nýja íslands á mánudaginn og býst við að dvelja þar hjá föður sínum og frændum fram yfir jólin. Henry Bjömsson frá Elfros var á ferð í bænum fyrir helgina. Lét hann vel af liðan manna þar vestra yfirleitt. Munið eftir að sækja fyrirlest- urinn um Einar Benediktsson á föstudaginn. JÓn Argrímsson frá Elfros liefir \ærið hér i bænum að undanfömu; hefir hann verið hér sér til lækn- inga. Þórarinn Bjamason frá Elfros kom hingað inn á laugardaginn; var hann aö flytja hingað vagn- hlass af gripum. Mrs. Kristín Benson frá Selkirk er nýkomin frá Hallson og öðmm bygðum Norður Dakota og finna dóttur sína og móður og fleiri frændur og vini. Bað hún Lögberg að skila bezta þakklæti til E>akota- búa fyrir góðar og hlýjar viðtökur. Með henni komu norður tvær syst- ur Þórarins Sigfússonar á Elfros og fóru þangáð vestur. Ræða sem Thos. H. Johnson ráð- herra flutti nýlega á liberal klúlAs- fundi um verkamannalöggjöfina birtist síðar í Lögbergi. Hún var sérstaklega merkijeg og fræðandi. Hentugur tími að tala um frið. Jafnaðarmanna blað segir að pýzkaland hafa svarað kærunum viðvíkjandi því að það væri að þrotum komið með því að her- taka Bukarest. Berlin 8. desember; — Jafnað- armannablaðið “Varwaerts” flytur ritstjórnargrein um hertekningu Búkarest og lætur það í ljósi að aðalþýðing þess sigurs sé falin í því að það sanni að staðhæfingar bandamanna um yeikleika Þjóð- verja hafi verið staðhæfulausar. Bandámenn hafi haldiö þvi fram að friðarfúsleiki von Bethman- Holwegs' hafi stafað af þvi að Þjóðverjar væru að þrotum komn- ir; þetta hafi Bukarest hertekning- in sýnt að væri ósatt. Blaðið segir að einmitt nú sé einkar hentugur tími til þess að yinna að friöi, meö því að sigur- inn í Rúmaniu geri allar frekari staðhæfingar bandamanna um veilcleik Þjóðverja hlægilegar; “Það var logið að fólkinu”, seg- ir blaðið, “þegar því var sagt að Þjóðverjar væru að því komnir aö gefast upp. Það var logið að því þegar því var sagt að Þýzkaland vildi fá frið aöeins til þess að koma í veg fyrir óhjákvæmilegan ósigur. Það var logið að því þegar því var sagt að Þýzkaland vildi fá frið til ]>ess að koma í veg fyrir að óvinir þess gætu unnið fullkominn sigur. Hver getur þýtt friðarræður Þjóð- verja sem merki um veil leika eftir sigurinn við Búkarest?” Endir greinarinnar er þannig; “Aldrei hefir verið talað hærra og alvarlegar um friö á Þýzka- landi, en um nokkrar vikur að undanfömu, og samt sem áöur hefir Þýzkaland unnið þær sigur- vinningar, sein ef til vill eru mest- ar síðan striðiö hófst, einmitt á þessum vikum. Stjómir annara landa breztur hugrekki til þess að stilla til friö- ar. Þjóðverjar hafa hugrekki til þess og verða að gera það. Þjóð- verjar hljóta aö sýna friðarfúsleik og vinna að friði, þangað til hinir þjóöimar losa sig við þær stjórnir sem hvorki geta unniö sigur né samið frið. Friðartilraunir verða að koma fram frá vorri hlið, og ef þær mishepnast vegna óforsjálni hinna þjóðanna, þá getum vér hald- ið áfram með góöri samvizku þangaö til síðar og hermenn vorir halda áfram herför snni.” (Þýtt úr "Free Press” 9. des.) Herskip ferst. Frakkneska herskipiö 'Suffren’, sem fór frá Frakklandi 24. nóv. er talið tapað; líkkgt þykir að því hafi verið sökt og ekkert bjargast. Skipið var 12,575 smálestir að stærð og kostaði $5,000,000. Það var bygt 1913, 411 fet á leng l og 70 feta breitt. Voru venjuleea á því 615 manns. Skipfð var með 4 tólf þumlunga byssur, tíu 6,4 þuml. og margar smærri. 200 embættislausir. Svo segir frétt a föstudaginn að 200 embættismenn í canadiska hernum sem komnir séu til Eng- lands, séu embættislausir eða ó- þarfir, en fái þó full laun og hafi fengið um langan tíma. Kostar þetta þjóöina 2,500 (tvö þúsund og fimm hundruð dali) á hverjum degi eöa $912,000 á ári ('svo að segja heila miljón dollara). Nýlega hefir verið skipaöur maður yfir canadiska herinn, sem Tumer heitir og er sagt að hann muni hreinsa burt úr hemum þessa dauðu limi. Það er haft fyrir satt að hann rmmi ^kki líða þá lengi sem álíta að hern^ður sé í því fólg- inn að klæðast herforingja fötum og taka á móti háum launum. Sumir þessara foringja sem send- ir hafa verið eru allsendis óhæfir, ýmist fyrir aldurs sakir eða vegna einhvers annars. Er sagt að Tumer muni senda alla þessa “for- ingja” heim aftur nema þá, sem hæfir séu til þess að fara þegar á vígvöllinn og viljugir til þess. Hospítal fyrir 1,000 særða menn. Læknanefndin í Canada sem sér um særða hermenn hefir farið þess á leit að Winnipeg tæki á móti 1,000 særðum mönnum og hefði til hospítal fyrir þá. Þarf til þess að stækka núverandi hospítal eða byggja annað nýtt og kostar það um $700,000. Sambandsstjómin Icggur til Yí af kostnaði, bærinn nokkuð og fólkið nokkuð. Dr. Jón Stefánsson vcrður við þessa nýju stofnun, sem herlæknir. Fóru með 144. herdeiIdÍDni bórarinsson — Anderson Jón Þórarinsson er fæddur 4. febrúar 1889. Föreldrar: Þórar- inn Jónsson frá Hóli í Sæmundar- hlíð og Sigríður Þorleifsdóttir frá Reykjum á Reykjaströnd í Skaga- firði. Ilann ólst upp hjá móður sinni og síðara manni hennar Frið- rik Friðrikssyni í Uigbergs bygð í Saskatchewan. Gekk fjóra vetur á Wtesley College i Winnipeg, en innritaðist i 144. herdeildina í jan. siöastliðnum og er nú kominn á- samt henni til Frakklands. Jóhann Pétur Jón Anderson er fæddur 1894. Foreldrar: Ólafur Andrésson, ættaður úr Skagafirði og Guðrún Þorleifsdóttir frá Reykjum á Reykjastrcmd í Skaga- firði. Hann ólst upp hjá foreldr- um sínum í Lögbergs bygö í Sask- atchewan. Gekk einn vetur á Business College í Winnipeg, en innritaðist í 144. herdeildina í jan. 1916 og er nú kominn með henni til Frakklands.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.