Lögberg - 14.12.1916, Síða 2

Lögberg - 14.12.1916, Síða 2
10 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. DESEMBER 1916 Fáið yður “S0N0RA” til Jólanna! Alt beimilisfólkið verður himin lifandi glatt ef það sér að “SONORA” er komin á heimilið á jóladagsmorgunmn. “SONORA” er sannarlega þess virði að bæta henni á heimilið. Iíljómleikurinn og skemtunin eru altaf velkomin, og það er víst að aldrei verður hentugri tími að útvega sér þetta en einmitt nú. “SONORA” tekur öll kringlótt hljómborð; hún hefir demants nál fyrir Edison, “Sapphire” nál fyrir Pathé og margföldunar nálar ábyrgstar fyrir “Columbia” og “Victor” hljómborð. Búin til úr mahogony reyktri eik.. Útlitið einkar fagurt og smíði vandað; falleg- asti kassi sem til er. Verð frá $57.50 til $300.00. MJÖG LÁGAR AFBORGANIR Það er mikils vert þegar verið er að kaupa til jólanna að geta keypt með þeim kjörum að greiða lágar afborganir. Aðeins lítil niðurborgun er nóg til þess að útvega á heimili þitt hvaða hlut sem er í vorri stóru verzlun; þar sem ofmikið er fyrirliggjandi af alls konar munum. Lágar mánaðarborg- anir nægja fyrir það sem eftir er. Og mundu eftir því. Vér setjum engar aukarentur fyrir þessi þægindi. J. A. BANFIELD 'COMPLETE HOME FURNISHER* 492 Main Street, WINNIPEG - Phone G. i^So Sé;a Magnús Jónsson “Vestan um haf.” Efckert er þaS nú um tíma, sem meira er talaö um, en fyrirlestur |iann sem séra Magnús Jónsson á ísafiröi flutti heima, eftir aö hann kom héöan aö vetsan, og sem liann kallar “Vestan um haf.’’ Ritstjóri Lögbergs var svo hug- ulsamur að birta fyrirlestur þenna í blaöi sínu, og má f>ví ætla, aö hann nú þegar sé kominn inn á flestöll islenzk heimili hér vestan iiafs. I>aö er naumast til j>aö málefni, sem okkur mönnunum er svo sam- eiginlegt, aö öllum sýnist eitt um j>aö. Og svo kann lika hér aö vera. En þó þykir rnér það sönnu næst, að hér sé um undantekning að ræða. Eg ’held að ö'llum Vestur- slendingum hljóti að geðjast illa að fyrirlestri jæssum. En j>að byggi eg á því, að andi sá sem liggur i fyrirlestrinum sem heild, er ýmist öldungis ósannur eða bygður á algerðu þekkingarleysi í Jæim efnum, sem um er að ræða. Hins vegar er hinn upphaflegi tilgangur fyrirlestursins sá, áð gera grein fyrir þvi, hvað er rétt og hvað er rangt, af því marga ó- samkvæma sem fréttist frá Áme- riku heim til Islands. Tilgang! þenna virði eg við séra Magnús. En hann er því ðkki vaxinn að svara slíkum tilgangi. I>að er enginn hlutur cðlilegri en J>að, að jægar við ætlum að framkvæma eitthvað sem er vanda-j samt og j>ýðingarmikið, }>á veljum! við til j>ess J>á menn, sem bera gott J skynbragð á }>að málefni út afj fyrir sig Þetta kemur öllum mönnum saman um. Þannig sækj- ura við lækni til að binda um bein- brot, en ekki smið. Við fáum klæða- sikera til að sauma fyrir okkur ný föt, en ekki jarðytkjumann, og þar fram eftir götunum. Nú held eg að aJlir íslendingar vestan hafs og austan kannist við það, að mikil ósamkvæmni á sér stað í öllum þeim fréttum, sem ts- lendingar heima fá í blöðum og bréfum hér að vestan, og að slík ósamkvæmni kemur ser illa og getur unnið á móti ákjósanlegri, bróðurlegri samvinnu. Þess vegna væri gott að opinbera ábyggilega skýmgu af högum og háttum ts- lendinga hér vestan bafs, og jafn- fram skýringu á því, hvað kom miinnum til að flýja ættjöröina. Þá gæti J>að leitt í ijós, hvort J>að var eintóm léttúð og ræktarleysi, sem olli brottförinni, eins og séra Magnús' gefur í skyn í V. kafla fyrirlesturs síns. En bverjir eru færastir til að gefa slíka skýringu? Eni J>að lífs- reynslulausir unglingar, jafnvel Jx> J>eir væru útlærðir prestar? Eru J>að helzt }>eir menn, sem aldrei hafa drepið hendi sinni í kalt vatn, hvorki heima á íslandi né í Ame- ríku? Menn, sem taka alt til síns viðurværis og án allrar likamlegr-j ar áreynslu, af öðrum ? Eða eru j>að máske öllu heldur mennirnir, j sem tóku út á sínum eigin likama og sál erviðið og hugarstríðið, sem loksins leyfði J>eim að freista gæf- unnar annarsstaðar á guðs grænni jörð? Menniríiir, scm í mörg ár U]>p frá J>ví kvöldust af heimþrá og söknuði, og ’höfðu engin hugs- anleg ráð með að leggja sér til eina Jómengaða skemtistund? Mennirn- ir„ sem einir vita raunverulega hvað ættjarðarást er. Mennirnir, sem urðu að líða hér öll J>au harm- kvæli, sem J>vi er samfara að yfir- stiga Indiána, skógarbimi, úlfa og allskonar illþýði, og hvað sem kröftunum leið, að treysta }>ó jörðinni einni til að lána sér lífs- krafta enn þá fáein ár, sem kynnu að hrökkva til að búa um ástvin- ina, svo þem gæti J>ó liðið betur? Mennimir, sem stigu sigrihrósandi fram úr öllum Jæssum hörmung- um og hafa nú loksins um frjálst höfuð að strjúka? Máske j>að séu öllu heldur þess- ir menn sem geta gefið marg vott- festa skýringu á því, hvað rak þá frá íslandi og hvemig J>eim hefir liðið og líður nú í Canada. Svo ófyrirleitinn er fyrirlestur séra Magnúsar, að hann er í raun- inni ekki svara verður, enda er það tilgangur minn að ræða meira málefnið, sem fyrirlesturinn með- höndlar, heldur en að svara hon- um. , Eins og eg hef sýnt fram á, J>á hefi eg fullkominn rétt til að minn- ast á Jætta málefni, af því eg hefi með fullri eftirtekt, en meiri still- ingu, siglt allan sama sjóinn og séra Magnús, en verð mikið leng- ur úti en hann. Og af því hins- vegar, að mér er ísland og íslenzkt þjóðemi mikið of kært til þess að mér geti staðið á sama, Jx> að bornar séu mótmælalaust ósannar og villandi fréttir á milli, og J>ess eðlis, að þær hljóta að spilla góöu samkomulagi og samvinnu. Hins vegar stendur séra Magn- ús illa að vígi. Eg J>ekki hann að visu ekkert persónulega. En það veit eg, að hann kom hingað vest- ur sem útlærður prestur, en jafn- framt lífsreynslulaus. Nú, J>ótt mentunin sé undirstaða farsældar- innar, þá er J>ó flest bókleg fræði meira og minna skeikul, og alls dkki á borð berandi, ef hún stríðir á móti lífsreynslunni. Ritháttur og ályktanir séra M. benda ákveðið á það, að hann hafi kvalist af ójradi hér vestan hafs. Lærðir menn dæma ekki þúsundir manna eftir framkomu eins eða fárra, sem J>eim hefir fallið illa í geð eða miskilið. Þeir hlaupa ekki á hundavöðum, ef þeir eru með öllu ráði. Framkoma séra Magnúsar í fyrirlestri Jæssum minnir menn ósjálfrátt á söguna af manninum, sem var hræddur við konuna sína og skreið innund- ir rúm til að forða sér, en ]>ar leizt honum svo vel á vígi sitt, að hann fék kjark til að kalla hátt og sagði þá með skýrum rómi: “Eg er þó alt af húsbóndi á mínu heim- ili.” Þegar séra Magnús er kominn nógu langt í burtu, og seztur að í faðmi íslenzkrar umönnunar, — I þá snýr hann sér við og kallar há- um rómi: “Þið verðlaunið börnin ykkar fyrir að vera svo siðprúð, að nefna aldrei íslenzkt orð. Þið skrifið um alt milli himins og jarðar, framúr- skarandi þreytandi, af því ykkur brestur alla þekkingu. Þið eruð ládauðir og andlausir. Þið kunn- ið ekki einu sinn að skrifa kröft- uga rskammir, ekkert nema mátt- laus stóryrSi, eins og þegar krakk- ar henda torfusneplum í mannýg naut I ykkur eru aldrei neinir fjörkippir, hvorki til ills né góðs. Ritsmiðar ykkar eru ekki virði prentsvertunnar. Þið eruð ó- mentaðir alþýðumenn. Svo mikil er óvandfýsni ykkar, að ykkar vönduðustu tímarit hirða það og birta, sem ekki væri litið við hjá okkur. Það er ykkar þjóðarein- kenni og þjóöarsiðir. Ef þið fáið færustu ritstjóra, sem- vilja útiloka þvaðrið og langlokurnar úr blöð- unu,—þá viljið þið ekki blöðin lengur, þau svara þá ekki lengur andlega lífjnu hjá ykkur sem þjóð.” Það eru ekki margar áttir að reka í í Tungu, sagði vinnumaður- inn, )>egar hiúsbóndi hans spurði hann eftir hvert hann hefði rekið sauðina. Það eru heldur ekki margar áttir í séra Magnúsi. í gegn um allan fyrirlesturinn stendur hann | af hafís og köldustu átt í garð okk- ar Vestur-íslendinga. Eftir að dr. Guðmundur Finn- bogason hafði farið hér um meðal Vestur-íslendinga, í öllum stærri bygðunum og víða þar sem séra Magnús hvorki heyrði né sá,—þá sagði hann: Að enginn þekti is- lenzku þjóðina til hlýtar, sem ekki hefði neitt kynst Vestur-íslend- ingum. Eg þarf ekki að hafa fyrir því að útlista hvað felast muni í þessu áliti Dr. Guðmundar, eða hver mismunur sé á skoðunum hans og áliti séra Magnúsar Og heldur ekki þarf eg að gera grein fyrir því hvor Jæssara manna hefir æfð- ari og yfirgripsmeiri dómgreind til að bera. Eg held' allir, sem lesið hafa fyr- irlestur séra M. muni fallast á það, að nauðsynlega hefði hann þurft að vera vel kunnugur Vesturrís- Fendingum, bygðum þeirra og bú- skap yfir höfuð, til J>ess, ef hann væri vel vandur að virðingu sinni, að geta opinberlega niðrað og ásalkað okkur heima á ættjörð- inni frammi fyrir vinum oðckar og vandamönnurrr eins og hahn gerði. En nú er það kunnugt hér vestan hafs að séra M. var hvergi úti í sveitum hér að staðaldri nema í Norður Dakota. Og ferðaðist held- ur ekki um islenzku bygðirnar hér vestan hafs, svo hann eyddi tima i það, að keyra manna á milli og kynna sér hagi manna og háttu. Þekking hans er því eingöngu mið- uð við andlegar og efnalegar á- stæður íslendinga í Norður Da- kota. Nema hvað hann hefir spurt á hlaupum, og hvemig sem J>á fer um heimildir prestsins. Nú skyldi enginn ætla, að eg meini það, að aðrar íslenzkar bygð- ir hér standi Norður Dakota fram- ar, eða að presturinn hafi ekki séð i J>eirri bygð nema það lakasta hér vestan hafs. Nei! Langt frá. Einmitt fyrir Jæssa sök er séra M. óafsakanlegur. í Dakota hefir hann séð nrargt, sem skarar fram lír öllu sem algengt er heima á ættjörð okkar, án ]>ess hann hafi nokkra ástæðu ti'l að segja að ís- lendingar hér }>ykst af slíku yfir íslandi eða íslendingum heima. —Séra M gefur ekki í skyn, en fnllyrðir, að islenzkt þjóðemi líði hér strax undir lok. Og kryddar ar svo ritsmíð sína aftar og fram- ar þeirri bróðurlegu ályktun, að )>að sé líka það sem við keppumst eftir og ástundúm með þvi að taka strax upp siði og hætti Canada- manna Það er okkur Vestur-íslending- um ekkert launimgarmál að við óttumst að bjóðerni oklcar eyðist með árunum. En það er alt í senn, ódrengilegt og ópresblegt gagnvart okkur og litilsvirðandi fyrir þióðina heima, að bera J>að á borð fyrir hana, að okkur sé vel sem vart með íslenzka þjóðemið, Jægar það hins vegar getur ekki farið fram hjá neinum lesandi manni, að við kostum fleiri þúsundum dollara á hverju ári til viðhalds islenzku þjóðemi. Eg býst við, að með þessu sé presturinn sem kennimaður að sýna okkur Vestur-íslendingum hvernig eigi að skamma kröftu- lega, jafnvel án orsaka. Honum getur ekki verið ókunnugt um það, að okkur Vestur-íslendingum yfir höfnð, er okkar óumflýjaftlega J>jóðemishnigtiun mjög viðkvæmt mál, og situr ekki á honum að særa okkur með því, ef hann getur ekki gefið okkur nein framkvæmanleg góð ráð. Honum er það ekkert ókunugt, að við í flestum bygðum íslendinga hér vestan hafs, höfum okkar ís- lendingadaga, reglulegar hátíðir á hverju ári, þar sem ekkert nema islenzkt fer fram. Hann hlýtur at hafa séð það oft, að jafnvel örvasa gamalmenni kljúfa þrítugan ham- arinn til að vera þar viðstödd til að heyra ástkæra ylhýra, málið, og veram int á allar háleitustu og helgustu endurminningarnar já, jafnvel séð mestu kjarkmenn í einlægni hjartai.s tárfella, þegar talað er vel um miðnætursólina, heiðavötnin, svanasönginn, jökl- ana, fjöllin, fossana, og þrátt fyrir alt og alt, bændabýlin }>ekku. Já, hann hl’tur að hafa h'eyrt og séð unga menn, fædda í Canada, halda ræður á slíkum hátíðadögum á góðu íslenzku máli og dáðst að íslandi, sögurika spekinga og hetju landinu. Séra Magnvis kannast við að að við séum gestrisnir enn þá, en kunnum ekki lengur að búa til kaffi. Séum slkrafhreifnir, en getum ekki um annað talað en gripi og dollara. Gefum okkur ekki tma til að lita i bók; Tímum ekki að halda vinnumenn. Hér sé ekkert Verulegt skáld til nema Stephan G. Stephansson. En und- ur af leirskáldum. Ef séra Magnús hefði ekki gefið fljótfæmi sinni lausan tauminn þá hefði hans geistlega hlið boðið hon- um að standa upp, áður en hann ungaði Jæssum ófögnuði út. Er sá nokkur maður milli fjalls og fjöru á íslandi, sem trúir því, að konumar okkar Vestur-íslend- inga, sem fóm fullorðnar að heim- an, kunni ekki að búa hér til kaffi, af sömu baunum og seldar eru heima fRio kaffi og Java kaffi) ? Mér er ljúft að kannast við alt það sem eyðir ósvífni prestsins, og skal eg þá geta }>ess, að víða er ekki hægt að búa hér til verulega bragðgott kaffi, J>ar sem menn hafa ekki náð i gott vatn. Það er og víða siður meðal íslendinga hér, að kaffikannan er látin standa utan Vert á stónni allan daginn, svo fljótlegt sé að gripa til hennar, og kann J>á svo til að berai að kannan fari eklki að mannvirðingu, ef henar er vitjað í nasti. Skyldi nokkur maður geta áttað sig á því, að við íslenzku bændum- ir, sem vorum upp og ofan áHika vel gefnir og vel að okkur, eins og embættisbræður okfcar heima, að við séum nú—fyrir iþað að hafa ferðast nokkuð um menningarlönd heimsins, séð meðhöndlað ýms nú- tíðar menningar áhöld, lesandi is- lenzk blöð og timarit að heiiman, og hafandi allar atkvæðamestu ís- lenzkar nútímabækur í okkar lestr- arfélögum, og víða í heimahúsum. —að við séum samt nú orðnir mik- ið fáfróðari og óviðmælanlegri ? En við það ber að kannast, að hér eins og heima, er misjafn sauður í mörgu fé. Það getur og haft J>ýðingu hér, að minnast á J>að, að Vestur-íslendingum yfir höfuð er efcki eins eiginlegt að auð- sýna virðingu, fyr en raunverulega hefir verið til þess unnið. Það er skiljanlegt af tveimur ástæðum. Er sú önnur, að enginn er Jæraður, og getur það auðvitað komið sér illa við einstaka menn, sem gefa í ranninni meira fyrfir mannvirðingu en manngildi. Hin ástæðan er sú, að menn sem víða fara og umgang- ast marga, tapa smámsaman fínasta næminu fyrir kitlandi metnaðar- þörf einstakra meðbræðra sinna. Eg er sannfærður um, að marg- ir íslendingar heima hafa lesið um það, að um 300 þúsund Canada- menn eru komnir i herinn I.angt tim meiri hlutinn af J>eim eru ein- hleypir vinnumenn úr landinu, og viðurkent er það, að íslendingar séu í )>eirra flokki að fullkominni tiltölu. Trúir þá nokkur maður prestinum til j>ess, að enginn vinnumaður hafi hjá okkur verið eða frá okkur farið? Þegar tekið er tillit til J>ess hvað íslendingar vestan hafs eru mikill hluti af þjóðinni heima, þá verður efckert vestur-íslenzkt hugsjóna- leysi sannað með því, að við eigum elcfcert afbrigðaskáld nema St. G. St. En af því eg fór ekfci af stað til að þykjast af neinu og ætla mér ekkert upp að gera milli bræðranna hér og heima, þá hirði eg ekki um að fara út í mikinn mannjöfnuð. En það hygg eg samt að mörguni bæði hér og heima, sé misboðið með því, ef ekki má orða þá með skáldum: Sig. Júl Jóhannesson, Þorskabít, Guttorm, J. Magnús Bjamason og fleiri. Á öllum tímum höfum við ís- lendingar átt okkar gersemisskáld. En eg kannast fúslega við, að það er blettur á íslenziku blöðunum hérna megin hafsins, hvað þau standa auðveldelga opin fyrir efn- islitlu rímgutli. Séra Magnús segir, að hér með- al íslendinga sé það alsiða, að sami maður leggi gjörva hönd á alt milli himins og jarðar, og það á að sanna óvandfýsnina sem þjóðar- einkenni Vestur-íslendinga. Þ'etta er ein af prestsins villandi staðhæfingum, sem hann i hugsun- arleysi notar til að lítilsvirða Vest- ur-íslendinga. Auðvitað kannast allir við það að sérfræðingar í hverri grein sem er, hafa margfalt tækifæri til að ná hærra fullkomnunar takmarki en þeir, sem margt hafa í takinu. En frá íslenzku sjónarmði er hér ekki um neitt slíkt að tala. Hver einasti íslenzkur bóndi hér vestan hafs finnur daglega til þess, hvern- ig honum er eins og frámunað að æfa sína fjölbreyttu dýrmætu ram- islenzku hæfileika. Auðvitað or- sakast J>essi flónska prestsins af hans lífsreynslujeysi. Hann lík- lega veit það ekki, að flestir ísl. bændur h'eima smíða sjálfr undir hestana sina. Að Jæir smíða sjálf- ir vatnsfötur og mjólkurílát o.s. frv. Yfir höfuð, að Jieir leggja gjörva hönd á alt og að það verð- ur þeim sagt til hróss. En hvemig er J>etta hér? Alt J>etta er sótt í bæina, 'kaupstaðinn með örfáum undantekningum. Einstöku fram- úrskarandi afkastamenn smíða og lagfæra sjálfir búshluti sína. En vegnah vers? Af því J>eir höfðu sína íslenzku fjölhæfni með sér þegar þeir fóru til Ameríku. Séra Magnús gefur í skyn, að íslendingar hér vestan hafs leggi fé til þjóðþrifa h'eima, ekki af ætt- jarðarást, heldur af tómu drambi, og að J>eir séu heldur ekki eins ríkir og J>eir látist vera. Hvað við kemur ríkidæmi ís- lendinga, þá er það með öllu ó- hrekjandi sannleikur, að margir islenzkir bændur vestan hafs eru blátt áfram orðnir ríkir menn. Skömmu eftir aldamótin dó hér vestan hafs íslenzkur bóndi. Þeg- ar búið hans var skrifað upp, þá var það 50 þúsund dollara virði, að frádregnum skuldum. Þessi maður kom bláfátækur til Ameríku. Hann var óheppinn nokkur fyrstu árin, og græddi því efni J>essi á að eins rúmum 20 árum, sem hygginn og framtakssamur bóndi í sveit. Á J>eim tíma, sem séra M. dvaldi í Dakota, seldi einn íslenzki bóndinn þar nokkuð af löndum sínum fyr- ir 17 þúsund dollara, og annar ís- lenzkur bóndi í sömu bygð keypti þessi lönd, án þess að ganga sjáan1 Itega nærri sér. Líklega hefir séra M. orðið þessa var, þó hann kæri sig ekiki um að vitna í það. Þessi sveit, sem eg bý í, er ekki eldri en; 14 ára gömul, síðan ís- lenzkir bændur settust hér fyrst að á algerlega viltu landi. í fyrra haust var fcomuppskera íslendinga t þessari sveit um eina og hálfa milíón dollara virði. Auðvitað sannar það, að mikið var fram- Iteitt, sem hlýtur að leiða af sér jafría velmegun, J>egar erfiöleikar frumbýlingsáranna eru yfirstignir. Eg hefi tekið þessi dæmi til að sýna á hverju getspeki prestsins er bygð. En jafnframt vil eg geta Jæss, að mér er ógeðftelt að rita mikið um þetta, af Jyví eg hefi enga tilhneigingu til að þykjast af neinu slíku, að eins að draga sannleikann fram í dagsljósið. Aldrei er dýrseðlið auðsæjara í manninum, en Jægar hann sækist eftir að standa ofan á meðbræðr- um sínum til að upphækka sjálfan sig. Það er óverðsfculdaður löðrung- ur fyrir menn, sem hafa eins og eg safnað í nágrenni sínu nokkrum centum til stuðnngs íslenzku þjóð- þrifafyrirtæki, og fundið J>að viða hér, bvað góðan’og einlægan vilja menn höfðu, J>ó sumstaðar væri af litlu að tafca,— af því að ættjörðin og hennar framtiðarfarsæld sýnd- ist standa á bak við fyrirtækið. að verða að hlita ástæðulausum getsökum fyrir slikt. Séra M. segir tmdantekningar- laust, að alt af sé í blöðunum okkar hamast með uppskeruna, hvað hún sé mikil og hvað löndin og gripirn- ir og alt sé verðmætt. En aldrei sé getið um 'haglveður sem komi og eyðileggi alt á svipstundu, og frost- in, ofþurka, of mikla bleytu, ryð og fleira. Eg nenni ekki að eltast við svona ástæðulaust rugl, Jyví allir vita að aldrei kemur svo haglveð- ur eða frostnótt, sem skemmir, að ekki sé óðara komin fréttin af því í blöðin og í bréfum heim til ís- H 0 ÐI R SeljiS ekki húSir ykkar heima fyrir—þvi þiS fáiS ekki bezta verS þannig. SendiS þær til mln og skal eg borga 17c til 24c fyrir pundiS. — SkrifiS eftir verSlista og merkimiSum til F. W. KUHN 908 Ingersoll St., AVinnipeg. lands. Presturinn drjfur up á sig gler- augu, sem hann kallar gleraugun hennar Freyju, en það er auð- heyrt á öllu, að með þeim sér hann alt öfugt. Þá fer hann að tala um vinnuvisinda hjónaband, sem við höldum mikið upp á. Þá gefur hann og það út eins og al- menna reglu, að karlmannslik séu klædd í karlmannsföt og látin hafa flibba nm hálsinn. Einu sinni hefi eg séð það í 12 ár, sem eg er búinn að vera í Ameríku. Það þykir hon- um sem presti hálf-ergilegt, }>egar knattleikamir eru farnir að verða það eina sáluhjálplega í ‘ huga manna. Hann segir og þá líka, að knattleiksmenn séu hafðir í meiri metum en ágætustu vísindmenn og spekingar þjóðarinnar. Vinnuvisinda hjónabandið )>tekk- ist ekki hér. En af því séra Magn- ús er drottins þjónn, J>egar hann er að gefa saman hjón, þá veit eg hann skrökvar þvi ekki, að hann hafi guði þóknanleg gert nokkur slik hjónabönd suður í Dakota. Hvað viðkemur útfararsiðum hér meðal íslendinga, þá eru þeir að mestu leyti alveg eins og heima. Þó er sá munur á því, að á lík- kistunum er lítið lok vfir andliti og brjósti hins framliðna; undir loki ]>essu er rúða, og má í gegn um hana sjá líkið. Ef ekki er neina næma hættu að óttast, \á býður presturinn vanalega við- stöddum mönnum að }>eir megi fá að sjá likið ef ]>eir vilji, áður en það er borið út, eftir að húskveðja hefir verið haldin; og hefi eg haldíð að enþinn mundi hneykslast á þvi.. Knattleikamir era upáhald einkum ungra manna, og eins og Norðlendingar eru spentir fyrir því að frétta hver hefir orðið skriðdrjúgastur á skautum á Mý- vatni við ]>etta eða hitt tækifæri, á- líka áhtiga valda knattleikamir hér. En svo má af öllu gera, að ofmik- ið sé. Og veit eg að knattleikar ganga víða úr hófi. En gleiðgosa- leg er sú meðhöndlun Jæssa máls, og það af presti, að segja að knatt- leikar séu að verða sáluhjálplegir í huga manna. Óvart er Jættaj orðið lengra en eg ætlaði í fyrstu, og er }>ó margt eftir að minnast á af hneyxlunar- htellum séra Magnúsar. Hann segir að hér læri menn til að ná embœttum, en ekfci til að mentast. Á Jiessari staðhæfing prestsins hefi eg ekki hneixlast eins mikið og sumir aðrir, því sjálfur hefi eg fundið til þess hvað sumir lærðir menn eru hér lítið víðsýnni en bændagarmamir í plógsætinu, en það hefi eg haldið að kæmi til af því að slikir menn hefðu efnislaus- ir verið, máske til alls. Hitt er ó- eðlilegt, þar sem ekkert fast em- bœtti er til, að ekkert nema verð- I'eikar mannanna vinni hylli alþýð- unnar. En eg óttast það. að séra Magn- ús sé ekki nógu mentaður til Jæss, að kunna að virða kosti íslenzkrar alþýðu, hvort heldur sem er aust- an hafs eða vestan. Mozart, 7. des. 1916. Friðrik Guðmundsson.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.