Lögberg - 22.02.1917, Síða 4
4
3L'oqbmi
t V__ y 'v
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
umbia Pre**, Ltd.,Cor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnipeg, Man.
TALSIMI: CARRY 2156 .
SIG. JUL. JÓIIANNESSON, Editor
J. J. VOPNI, Business Manaser
Utanáskrift til blaðsins:
TlfE 00LUM8IA PIJESS, Ltd., Box 3172, Winnipeg, Nlar\-
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, Man.
VERÐ BLAÐSINS: *2 00 um árið.
Ský á heiðum himni.
pað var jóladagur. Veðrið var óvenjulega milt
á þeim tíma árs — rétt eins og náttúran vissi af
því að friðar- og gleðihátíðin var runnin upp.
Sólin brosti frá heiðskírum vetrarhimninum,
björt og hlý, eins og hún vildi faðma alt að sér
með geislum sínum, græðandi, gleðjandi og verm-
andi.
Skrautklæddir menn og konur streymdu fram
og aftur um bæinn, sumt í kirkju til þess að hlusta
enn þá einu sinni á friðarboðskapinn. Sumt af
vina sinna og kunningja, til þess að njóta sem
bezt og fullkomnast hátíðagleðinnar.
J7að var eins og allur fjöldinn af fólkinu hefði
kastað af herðum sér allri byrði áhyggja og sorga
og strengt þess heit að láta ekkert ský skyggja á
sól hins heilaga friðar og hinnar unaðslegu gleði
þennan dag.
petta var í Winnipeg; höfuðstað fslendinga í
Vesturheimi.
Vestarlega í bænum er maður á gangi. Hann
er þokkalega til fara, en fátæklega; með gamla og
snjáða loðhúfu á höfði í gamalli loðskinnsyfirhöfn.
Maðurinn hefir verið meðallagi hár, en er nú
orðinn lotinn og sérlega fyrirferðalítill. Hann
gengur við staf og gengur hægt.
Hann hóstar öðru hvoru og það er auðséð að
honum er þungt um andardráttinn.
Andlitið hefir auðsjáanlega verið undurfrítt og
góðlegt, en nú er þar hrukka við hrukku og eitt-
hvað frá hinni innri veru þessa manns slær rökkri
yfir andlitið, sem í eðli sinni var bjart og geislandi.
Maðurinn var auðsjáanlega að hugsa um eitt-
hvað dapurt.
Eg hafði oft séð þennan mann — þekti hann
vel; hann var fslendingur eins og eg, úr sömu
sýslu. Eg hafði átt við hann bæði ilt og gott;
verið stundum andstæðingur hans og stundum
hliðstæðingur í þeim málum, sem uppi höfðu verið.
Eg gekk á eftir honum stundarkom og mér
fanst eins og einhver heljarbyrði hvíldi á þessum
veikluðu herðum, einhver byrði, sem maðurinn
gæti ekki borið, þó hann yrði að gera það.
Eg þekti æsku þessa manns; eg vissi að hann
hafði átt sólfagra bemsku heima á ættjörðu sinni
og mér fanst þegar eg gekk á eftir honum á göt-
unni, þar sem hann með erfiðismunum óð snjóinn,
aó eg geta séð myndina af honum frá því hann
fyrst hljóp um pallinn í föðurhúsum, sem áhyggju-
laust bam og alt til þessa dags.
Og mér fanst eg geta lesið söguna hans blað
” fyrir blað og mér fanst sem það hlyti að vera synd
— hverjum sem hún var að kenna — að síðustu
blöðin, skyldu vera eins og eg las þau á þessari
stundu.
Maðurinn stóð við augnablik; hann stakk
stafnum undir vinstri hendina, dró andann þungt
og mæðilega, tók klút upp úr vasa sínum og
þurkaði sér um ennið.
“Guð minn góður!” heyrði eg hann segja.
Og svo lét hann klútinn í vasa sinn aftur; tók
stafinn í hægri höndina og hélt áfram.
Hann vissi af engum í nánd. Eg hvatti sporið.
náði honum eftir skamma stund, heilsaði honum
og bauð honum gleðileg jól.
Hann tók því þýðlega. pað var eins og það
kæmi flatt upp á hann að mæta nokkrum; en hann
áttaði sig brátt og eftir augnablik var kominn á
andlit hans sami vingjamlegi svipurinn og glað-
lega viðmótið, sem honum var eðlilegt.
Eg spurði hann tíðinda; hann vissi þau engin;
talaði þó skynsamlega og af allmikilli þekkingu
um þaa mál, sem á dagskrá voru.
Eg gekk hægt til þess að verða honum sam-
ferða, þó við ættum reyndar ekki samleið lengur.
Mig fýsti ef mögulegt væri, að komast eftir því
hvað væri sorgarefni hans — eg vissi að það var
eitthvað, hversu glaður sem hann reyndi að sýnast.
“pað tefur þig nú að verða mér samferða”,
sagði hann. “Eg er orðinn svo rækalli seinn að
ganga. Einu sinni var eg nú samt fljótur á fæti.
En það fer smátt og smátt, eins og annað.”
Og svo brá hann klútnum sínum upp á ennið
og lét sem hann væri að þurka af sér svita; en
hann var í raun og veru að þurka tár af augum sér.
Hann sá ekki, að eg tók eftir því, og svo héldum
við áfram að tala um hitt og þetta:
“Ekki vænti eg að þú vitir af neinum, sem
þarf að fá mann í vinnu ?” sagði hann eftir nokkra
stund. “Eg hefi ekkert getað fengið að gera núna
lengi og þætti gott að fá einhverja atvinnu. En
það er víst ekki hlaupið að því fyrir gamla menn
og útslitna, eins og eg er orðinn.”
Nú skildi eg hvernig í öllu lá. pað var atvinnu-
leysið og skorturinn, sem því fylgdi, sem lá eins
og þungt farg.á þessum gamla, slitna manni.
Hann er kominn talsvert á sjötugs aldur; hefir
verið stakur iðjumaður, altaf unnið nytsöm störf
síðan hann var drengur, en er nú orðinn svo farinn
og lasburða að fullkomin erfiðisvinna er honum
ofvaxin. Og svo getur hann ekkert fengið að
gera.
Kaupið hans hefir verið svo lágt í öll þau 50
ár, sem hann hefir unnið, að það hefir aðeins
hrokkið til að sjá fyrir heimilinu — og nú hefir
hann ekki neitt.
0g g fór að hugsa um æfi þessa manns; hugsa
um afstöðu hans til mannfélagsins og afstöðu
mannfélagsins til hans.
pama var maður, sem unnið hafði í 50 ár —
hann hafði lagt inn í reikning þióðfélagsins fimm-
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. FEBRÚAR 1917
tíu ára nytsamt starf; hann hafði alið upp mann-
vænleg böm og eftirlátið þau þjóðfélaginu, sem
dugandi borgara. Hann hafði auk sinnar líkam-
legu vinnu tekið fullkormnn þátt í félagsmálum
og andlegum störfum. í einu orði sagt, hann
hafði verið nýtur og gagnlegur borgari.
En nú voru kraftar hans þrotnir; hann hafði
lagt þá fram alla í þjónustu ríkisins. Hafði sjálf-
ur lagt inn í reikning þjóðfélagsins fullkomna árs-
vinnu á hverju ári og konan hans hafði gert það
sama og þau höfðu ekkert hlotið að launum nema
fæði og klæðnað og húsaskjól fram að þessum
tíma — og það jafnvel stundum af skomum
skamti. Nú átti að svifta hann þeSsu líka — nú
var ekki annað fyrir að sjá en að hann yrði að
svelta . Og það var ekki vegna þess að hann væri
ekki viljugur að vinna; nei, hann þráði að fá ein-
hverja atvinnu, hann var fús að neyta þeirra litlu
krafta sem hann átti eftir; fús til þess að vinna
þangað til hann legðist í gröfina útslitinn með öllu.
En það var með hann eins og hestinn sem hefir
lifað sitt fegursta og er svo kastað út á gaddinn
þegar hann eldist.
Og eg fór að hugsa um hversu óguðlega rangt
væri hjá oss þjóðfélags fyrirkomulagið. Hvílíka
synd það drýgði gegn þessum manni — og ótal
öðmm mönnum—og látinn deyja.
Maður sem unnið hefir alla sína daga til elli-
ára — við hvað sem hann vinnur — hann á sann-
arlega svo mikið í sjóði hjá þjóðfélaginu að það
skuldar honum lífsforsjá í ellinni. Hann hefir
lagt inn dagsverk á hverjum degi og ekkert borið
úr býtum nema húsaskjól, fæði og klæði. Hann
á inni stóreign, og er samt látinn svelta.
Slíkur maður ætti að vera látinn hvílast, líða
vel og eiga góða daga í ellinni, ekki sem gustuka-
maður, heldur sem sá er vel hefir að verið meðan
dagur entist og verðskuldar hvíld að kveldi.
Á meðan þjóðfélags fyrirkomulagið er slíkt að
menn sem fúsir eru til þess að slíta sér til agna
við nytsama vinnu geta ekkert' fengið að gera og
lítið til viðurværis, á meðan er heiður himinn
skýjaður í augum hugsandi manna.
Skammsýni-eða annað verra?
Hvað eftir annað heyrast menn úr flokki aft-
urhaldsins básúna þá kenningu að of miklu fé sé
eytt í það að rannsaka fjárdráttarmál gömlu
stjórnarinnar.
peir halda því fram að rannsóknirnar séu of
dýrar og að bezt væri að sleppa þeim með öllu. —
Og sumir þessara háværu glamrara fá einstöku
mann til þess að hlusta á sig.
pað sem þeir aoallega halda fram er þetta.
1. Að ekki hafist neitt upp úr rannsóknunum
nema þ'að að finna mennina seka og hegna þeim.
2. Að fylkio og fólkið verði að borga kostnað-
inn við rannsóknina; hann verði mikill og því fé
væri betur varið til annars.
3. Að óráðvendni gömlu stjómarinnar og allur
'fjárdráttur sé ekki eins dæmi; þetta sé bara al-
gengur pólitískur siður hér í landi og ranglátt sé
að sakfella mennina fyrir það þótt þeir fylgdu
gildandi reglu.
4. Að þeir sem kærðir séu muni ekki vera
miklu sekari en aðrir og því sé rangt að taka þá
út úr og leggja þá í einelti með kærum og hegn-
ingu.
Og þótt undarlegt megi virðast og ótrúlegt, þá
er það satt eins og fyr var fram tekið að til eru
eyru sem á þetta hlusta með velþóknun og önnur
sem hlusta á það með efasemd, en grun um að það
hafi við eitthvað að styðjast.
En illa er sú þjóð komin, sem á marga borgara
með því hugarfari. Og óskiljanlegt er það að
þessir sömu menn þykjast vera ákafir talsmenn
Belgíu og dást að því sem sú litla þjóð og það litla
land lagði í sölumar.
Hvað var það svo sem Belgía gerði? Fyrir
hvað er það sem allir dást að þeirri þjóð, og það
að verðleikum?
pað er fyrir þá sök að hún horfði ekki í neina
fyrirhöfn né neinn kostnað til þess að verja rétt
sinn og heiður nafns síns.
Belgíumenn vissu það vel að það mundi kosta
þá mikið að veita pjóðverjum mótstöðu. peir
vissu að þeir yrðu að borga heiður sinn dýru verði.
En þeir horfðu ekki í það. pað var nafn Belgíu
og belgísku þjóðarinnar, sem þeir álitu að þeir
yrðu að bjarga, hvað sem það kostaði. Ofbeldi,
rán og eyðilegging hafði þegar átt sér stað og
þeir vissu það vel að öll mótstaða hlyti að orsaka
enn meira af því öllu.
pað hefði kostað Belgíu minna að leggjast nið-
ur og láta ganga yfir sig; það hefði kostað hana
minna að láta aít fara sínu fram eins og vera vildi.
peir vissu að með því móti hefðu þeir til bráða-
birgðá getað látið sér líða fjárhagslega betur; en
þeim var heiðurinn og virðingin meira virði, en
veraldlegir munir. peim þótti betra að sjá glæsi-
hallir og helg musteri sprengd í loft upp, en að
varanlegur blettur félli á hið hreina nafn lands
og þjóðar.
Áf þessu hvílir aðdáunarauga allrar veraldar-
innar á Belgiu þann dag í dag. Af þessu slá hjörtu
allra, sem hjarta eiga, í einingu við hjartaslög
hennar og hennar særðu bama — hennar dreng-
lyndu sona og djörfu dætra.
Xað er satt, að rannsóknir illverkanna hér í
Manitoba hljóta að kosta ærið fé. pað er satt að
sökudólgar, sem fyrir sannleikann þræta og allra
bragði neyta til þess að komast undan rétti laganna
verða aldrei opinberlega dæmdir til hegningar
öðrum til aðvörunar nema með löngum rannsókn-
um og miklum kostnaði.
En eigum vér að líða það — eigúm vér að Ijá
eyru orðum þeirra ótrúu borgara, sem vilja láta
hið saurgaða nafn Manitobafylkis óþvegið í allra
augum? Eigum vér að gefa þeim er einhvern
tíma síðar kynnu að komast að völdum með sama
sinni og Roblinsflokkurinn undir fótinn með því
að láta þá vita að þó þeir sverjist í samsæri til
glæpsamlegs fjárdráttar — þótt þeir steli milión-
um dala úr vasa fólksins, þá sé þeim óhætt. Fólkið
vilji ekki kosta neinu til þess að rannsaka málið
og hegna þeim. peir gæti bara í ró og næði staðið
upp úr stjórnarstólnum og lifað í friði og virðingu
það sem eftir sé æfidaganna, njótandi og neytandi
hins stolna f jár eða ávaxta þess ?
pað eru engar nýungar þótt kostnaðarmaður sé
að rannsaka mál stórþjófa, sem geta notað sér alla
lagakróka; en á það að réttlæta þjófinn? Á það
að verða honum hlífð?
Nei. Manitobastjórnin verður að halda áfram
rannsóknunum samkvæmt skyldu sinni, bæði laga-
legri og siðferðislegri, þangað til öllum sannleika
er upp komið, sem fengist getur og hegna óbóta-
mönnunum hæfilga og hlífðarlaust.
Fyr en það hefir verið gert hefir nafn Manitoba
ekki verið hreinsað af þeim óþverra, sem stiga-
menn í stjómarsætum köstuðu á það.
Hversu mikið sem rannsóknimar kosta eiga
þær og hlióta að halda áfram, ef stjómin er trú
— og um það munu fáir efast.
Þakkarsky lda.
pegar eitthvað er gert til þess að bæta kjör
almennings í einhverju tilliti, þá má ekki minna
vera en að hlutaðeiganda sé þakkað það.
pegar það er gert á þann hátt að við ýmsa
erfiðleika er að stríða og jafnvel óvináttu voldugra
manna eða sterkra félaga, þá er þakkarskyldan
tvöföld.
Einn þeirra manna, sem fslendingar eiga slíka
þakkarskuld að gjalda er Helgi kaupmaður Ein-
arsson í Narrows.
Um nokkur ár hefir hann brotist í því að
neyða auðfélög og miljónaeigendur til þess að
hækka verð á fiski svo að tugum þúsunda nema
þeir peningar er þannig hafa beinlínis farið í vasa
fslendinga, er þeir annars hefðu aldrei fehgið.
peir hafa með erfiði og lífshættu aflað fiskjar
vetur eftir vetur og eiga það Helga að þakka að
þeir hafa fengið vöm sína sæmilega borgaða.
Maður kom nýlega frá Ashem, sem sagði að
það væri blátt áfram honum að þakka að fiskur-
inn hefði komist þar í það verð, sem hann varð
í síðastliðna vertíð.
Og þetta var einn af keppinautum Helga; það
var Nikulás Snædal, sem fisk keypti og snarpast
kepti við Helga, en hann var svo sanngjam að
viðurkenna þetta og er slíkt drengilegt.
Annar maður kom inn til vor nýlega norðan
frá nýja íslandi og kvað verð vera mjög hátt á
fiski. “En það er honum Helga Einarssyni að
þakka,” bætti hann við. “Hann kom. norður til
Riverton og keypti fisk fyrir hærra verð en nokkr-
um datt í hug, og eftir það kom líf í alt.”
pað verður ekki með tölum talið hversu mikið
þeir menn vinna þjóðfélagþiu, sem þannig brjóta
bág vi>ð auðfélög og einokun. peim er venjulega
launað það ver en skyldi.
Vér minnumst þess enn að tveir menn í
Reykjavík hófust handa og seldu með sanngjömu
verði þegar aðrir okruðu. pað voru þeir Eggerts
/ Gunnarsson og Jón Guðnason. Báðir þessir menn
risu upp gegn venjunni og áttu ofsóknum að sæta
frá þeim er með ránsverði höfðu selt.
Eggert hvarf að heiman út af skuldabraski
af því hann ætlaði sér of mikið, og er því ekki
að neita að ýmsir menn töpuðu fé við fráfall hans,
en hversu mikið landið og þjóðin á honum að
þakka, r ekki hægt að reikna, því hann skapaði
nýtt tímabil í verzlunarsögu landsins.
Um Jón er það að segja að auðfélög eða ríkar
verzlanir kiptu undan honum fótunum með ó-
drengilegri samkepni. Einn kaupmaðurinn í
Reykjavík lét sér þau orð um munn fara, að sig
« munaði ekkert um að gefa vörumar á meðan hann
væri að setja helvítið hann Jón Guðnason á
hausinn.
Og svo fór Jón Guðnason á hausinn. Ríku fé-
lögin settu vörumar niður svo að hann gat ekki
kept við þau og þjóðin var ekki nógu sjálfstæð
eða drenglynd til þess að verzla við manninn, sem
var að bjarga henni, þegar um nokkurra aura
stundar hagnað var að ræða.
En þegar Jón var úr sogunni þá settu hinir upp
vörur sínar aftur og settu fólkinu stólinn fyrir
dymar — þá var enginn Jón til þess að taka
stólinn í burtu.
En það hefir þó unnizt að augu fólksins opn-
uðust og upp risu menn hver á fætur öðmm, sem
fetuðu í fótspor Eggerts Gunnarssonar og Jóns
Guðnasonar og verzlunin breyttist gjörsamlega.
Umbótamennimir í heiminum eru margskon-
ar; þeir sem.fyrir umbótum beita sér í verzlun-
arlegu tilliti eiga ekki síðuf þakkir skildar en
aðrir. Helgi Einarsson er einn þeirra; vonandi
að landinn muni það og virði.
Hurlyfalls
From the Icelandic by Kristjan Jonsson.
Translated by Rev. R. Fjeldsted.
No sun-kissed golden hearted flower
Among the boulders gray can wake;
White billows in terrific power
The cliff with feet of fury shake,
Where thou, old friend, art loud intoning
Forever thy tremendous lay;
Before thy wrath the rocks are groaning,
As reeds in gusts of dying day.
Thy odes arise of heroes vanished
And mighty men of former days;
Thou speakest much of freedom banished
And former fame’s departing rays
Above the flames a glory gleaming,
That through the clouds comes sifting down,
And rainbow hues resplendent streaming
Thy wild titanic billows crown.
O thou of rolling waters fairest,
Terribly, marvellously fair,
Resistless in thy might thou farest,
Through rocky solitudes and þare;
Things rhange, for joys bright fairy dower
Forsakes the woeful heart of flame;
Unbroken bides thy fearful power;
Thou rollest onward just the same.
Hurricanes rise and fall the flowers,
And billows crest above the reef;
Roses of laughing summer showers
Fade in the killing frost of grief;
Tears, burning tears on haggard faces
Stream, for the heart can find no peace;
But always on thy current races
In laughters that will never cease.
Deep in thy billows I would slumber,
When at the last my life will fail,
And tears of grief shall none encumber
Over my body still and pale;
When with a dirge and lamentation
Forms may be bowed above a grave,
In mad, terrific exultation
Over me will thy laughters rave
—Minneota Mascot.
THE DOMINION BANK
STOFXSETTUK 1871
llöfuðstóll borgaður ob varnsjoour . . $13.000,000
Allar elgnir............................ $87.000,000
Beiðni bœnda um lán
til búskapar og gripakaupa sérstakur gaumur gefinn.
Spyrjist fyrir.
v
Notrc Dame Branch—W. M. HAMIT/rON, Manager.
Selklrk Branch—M. 8. BURGKR, Manafer.
X
4
X
4-
4-
4-
i
X
4
4-
4
4
4
4
4
4
4
Bréf frá Englandi.
Bramshott Camp, 26. des. 1916.
Til meSlima og vina Bjarma
Skjaldborg — Winnipeg.
Kæru vinir:—
Hjartans þakkir fyrir síöast. — Eg
er viss um að ef eg þeföi vitaö fyrir-
fram aö það ætti aö halda lofræður
um mig, þá hefði ev aldrei komið á
síðasta Bjarmafundinn, sem eg sótti
— og þó get eg ekki neitað því, að
fátt er það, sem hefir veitt mér meiri
ánægju að hugsa um en fundurinn sá
og síðustu stundirnar, sem eg skemti
mér með ykkur. Það sannfærði mig
sv'o áþreifanlega um það, sem eg vissi
þó áður, að eg væri ekki einmana né
vinalaus meðan Bjarmi væri við líði;
og ekki þótti mér síður vænt um hve
mörg vkkar gátu komið því við að
koma niður á járnbrautarstöðiná að
kveðja mig þegar eg for um Winni-
peg, áleiðis í hinn langa og óvissa
íeiðangur, sem eg nú er í. — Ferða-
lagið ('það sem búið er af því) tók
17 daga eða frá kv'eldi 19. október
til 5. nóvember að kveldi, er við lent-
um hér í herbúðunum við Bramshott.
Við vorum fimm sólarhringa á leið-
inni frá Camp Hughes til Halifax.
Sá hluti ferðarinar var í alla staði
hinn ánægjulegasti. Veðrið var in-
dælt, lestin stanzaði oft, svo við höfð-
um næg tækifæri að teygja úr okkur
og anda að okkur fersku lofti. Lands-
lagið var víða mjög fagurt, einkan-
lega austur í Nevv Brunswick og Nova
Srotia Risav'axnar hæðir og hálsar,
djúpir dalir, ár 'ög lækir, tjarnir og
vötn og þægileg tilbreyting frá slétt-
unum í Manitoba og Saskátchewan. —
Nóg var einnig skemtun á lestinni.
Lúðraflokkur dejldarinnar var í
sama vagni og líknardeildin fsem eg
tilheyrij svo lúðrahljómur og söngur
var ætíð til reiðu þegar við þreyttumst
á að Iesa eða spila. Og ekki vantaði
það sem munnur og magi girntust;
því auk þess sem fæðið var hið bezta
höfðum við svo mikið aukanejsti, sem
v'inirnir í Winnipeg gáfu okkur að
skilnaði, að hið erfiðasta i sambandi
við það var að koma því fyrir á ein-
hvern hátt, án þess að henda því. —
Allir fengu eitthvað, því kvenfélög
deiklarinnar sáu um þá sem enga vini
áttu í Winnipeg, flestir fengu mikið,
allmargir fengu ofmikið, en eg fékk
þó mest. — Eg er viss um að ef mér
hefði ekki þótt vænt um þá áðtir, sem
færðu mér bæði andlega og líkamlega
fæðu, þá hlyti eg nú að hafa á þeim
ölluni brennheita matarást.
— Ef til v'ill það eftirtektaverðasta
á þessum hluta ferðarinnar var það
hvernig okkur var tekið af fólki því
sem bjó meðfram brautinni. I Ontario
var okkur vel tekið, sumstaðar ágæt-
lega — flestir voru viljugir að gjöra
okkur ýmsan greiða og húrraóp gullu
við allvíða er við fórum um. í
Quebec fylki kv'að aftur við annan
tóru Fólkið sýndist nærri að hafa
ímigust á okkur, jafnvel unglingar og
börn, sem nóg var af í hverju þorpi,
virtust gera það með ólund að taka
við póstspjöldum og bréfum og koma
þeim í póstinn fyrir okkur — og nóg
var þar af fullorðnum unsrum mönn-
um, sem lítið þarfara virtust hafa að
æera en að þyrpast suður á járn-
brauL'rstöðvarnar er við fórum im,
skipa þar á okkur nieð gremju-
blöndnum fyrirlitningarsvip. í New
Brunswick og Nova Scotia v'oru fagn-
aðarlætin aftur nærri úr hófi. Húrra-
óoin kváðu við hvaðanæfa. — Kven-
tólkið þyrptist út úr húsunum og
veifaði klútum og svuntúm og hverju
sem fyrir varð og mikill fjöldi hafði
brezka fanann við hendina og veif-
aði honurn með miklum ákafa. í
einum þremur stöðum sá eg* gamlar
konur með stóran fána, sem þær
varla gátu v'aldið, veifa honum af
miklum móði, þar til þær virtust
nærri magnþrota. — Eg get þessa
sérstaklega vegna þess hve afar mikil
áhrif það hefir á hermennina, seni
eru að yfirgefa ættland sitt til að berj-
ast fyrir réttlæti, móti ranglæti og
kúgun, fyrir frelsi einstaklingsins og
tilverurétti og sjálfstæði föðurlands
síns og þeirra annara þjóða, sem eru
í hættu staddar og hjálparþurfa. —
Það bezta sem þeir sem eftir eru
heima geta gert fyrir hermennina, er
að sýna þeim sem áþreifanlegast að
þeir skilji og meti það sem þeir eru
að gera og þrái eihlæglega sigursæld
þeirra. —
Við komum til Halifax þriðjudag-
inn 24. október og fórum samstundis
uu\ borð í skipið, sem átti að flytja
okkur til Englands. Tvo daga þurft-
um við að bíða á höfninni, eftir öðru
skipi, sem átti að verða okkur sam-
ferða. Það var því ekki fyr en
fimtudagskveldið þann 26. um klukk-
an sex að v'ið léttum í haf.
Það er erfitt fyrir mig að lýsa til-
finningum mínum er við sigldum út
eftir höfninni og burtu frá Canada—
föðurlandinu kæra, sem eg hafði lært
áð virða og elska — ekki sem móður,
því móðirin verður í minum hug ætíð
hin eina og sama “Fjallkonan fríð”,
heldur miklu fremur sem unnustu,
sem hafði breitt faðm sinn á móti
mér og með il-hlýju ástarbrosi bent
mér á gleðiríka framtíð í sambúð yið
sig. Eg held eg geti betur lýst því
er mér.þá bjó í brjósti með annara
orðum en mínum eigin. Mér var
líkt innanbrjósts og unga manninum
i kvæði Þorsteins Erlingssonar “Dá-
lítil saga”. —• Hann er að yfirgefa
ættland sitt og unnustu, og skipið sem
flytur hann burtu er að smáfærast
fjær og fjær. — ,
“En ttt yfir borðstokkinn unglingur lá
og augunum döprum mót landinu’
hann sá.
Hann leit upp á fjöllin með berg-
skygða brún,
iitn blómskrýddar hlíðar og fagurgræn
tún.
Svo leit hann hvar unnustan stendur
á strönd
og starir til hafsins, þá varpar hann
önd:
“Nú flytur mig burt frá þér freyð-
andi sjár.”
Þá féll o’ní hafdjúpið glóandi tár.
— Það var sárt að skilja við alt þar
sent mér var svo kært. En hvað var '
það borið saman við það sem kven-
fólk og börn í Norður Frakklandi,
Belgíu og Serbiu þurftu að liða,
hungraðir og særðir, bæði andlegum
og líkamlegum sárum, dansandi þó
eftir nótum hins hræðilega þýzka
hervalds, ekki af frjálsum vilja, held-
ur fangnir og inniluktir, líkt sem
fuglar i búri — o°r mér fanst er eg
lnigsaði um það sem eg skilja enn
betur en fyr kvæði Hannesar Haf-
steins “Fuglar i búri”, og eg tók
undir með honum af öllu hjarta:
“Ó hvað mig tekur það sárt að sjá
saklausu fuglana smáu
stolna burt sinu frelsi frá,
sem fleygt sér gætu þó vængjum á
uppi um heiðloftin háu.—
Þið veslings, veslings fangar,
eg veit hv’ersu sárt ykkur langar.”
— og eg fyltist löngunar að hjálpa til
fþó seint væriý að sýna hinu þýzka
hervaldi, svo áþreifanlega að þeir
gleymdu því aldrei, að enginn friður
geti átt sér stað, sem ekki byggist
á réttmætu frjálsræði einstaklinga og
einstakra þjóða að ráða sínum eigin
máltim. Eg var stoltur af Canada
fyrir að taka svo drengilegan þátt í
þessari frelsis baráttu og mér þótti
vænt um að geta tekið undir með öll-
um hinum er á skipinu voru þegar
lúðraflokkurinn spilaði, einsog i
kveðjtt skyni: “Oh Canada we stand
og guard for thee”. —
—,— Ferðin yfir hafið gekk vel.
Við vörum nærri tíu daga á leiðinni.
Fyrri hluta ferðarinnar var veðrið
gott, en seinni hlutann var allhvast,
og úfinn sjór. Eg var_iwerri ekkert
sjóveikur og hefði því liðið ágtetlega
hefði það ekki verið fyrir fæðið.
Þaö var í fæstum orðum sagt ekki
mönnum bjóðandi. — Hverjum það
skal kenna get eg ekki sagt, en skömm
er það mikil þeim sem er ábyrgðar-
fullur fyrir slíku.
Ti\ Liverpool komum við sunnu-
daginn 5. nóv’ember. Fórum við þeg-
ar af stað til Branishott herbúðanna
log komurn þangað klukkan 10. að
kveldinu, eftir tólf klukkustunda ferð
með jámbrautarlesinni, Haðir yfir
þvi að ferðalaginu skvldi lokið í bráð
að minsta kosti.
“Fögur er hliðin” sagði Gunnar
forðum og svipaðar yfirlýsingar
hrjóta okkur ósjálfrátt af vörum,
nærri livar sem við lítum í kring um
okkur hér. — Það hefir oft verið
sagt að England væri einn aldingarð-
ur, <fg er það varla ofsagt. Jafnvgl
nú, rétt eftir jólin, er alt jafngrænt,
hvar sem litið er — og veðurblíðan
er ekki síður eftirtektav'erð — sól og
sumarvindur ("eins og landinn segirj,
aðeins fáar frostnætur og stöku
gróðrarskúrir er nærri rétt og ná-
kvæm Iýsing á tíðinni, eins og hún
hefir verið þessa tvo siðustu mánuði.
Það eina sem að er, er að loftslagiö
er rakt og því fá flestir Canada her-
NORTHERN CROWN BANK
Höfuðstóll löggiltur $6,000,000 Höfuðstóll greiddur $1,431,200
Varasjóðu..... $ 715,600
Foraiaður............. - - Slr D. H. McMTLLAN. K.O.M.G.
Varn-formaðar - - -- -- -- - Oapt. WM. ROBTNSON
Sir T>. O. OAMKTíON, K.O.M.G. J. H. ASHDOWN, W. R. BAWTjF
E. F. HUTOHTNGS X. McTAVTSH OAMPBKUH, JOHN RTOVFI,
AUskonar bankastörf afgreidd. Vér byrjum reikninga við einstaklinga
eða félög og sanngjarnir skilmftlar veittir. Ávisan'ir seldar til hvaSa
staSar sem er á íslandi. Sérstakur gaumur gefinn sparisjóðsinnlögum,
sem byrja má metS einum dollar. Rentur lagðar við á hverjum sex
sem byrja má með 1 dollar. Rentur lagðar viS á hverjum 6 mánuðum.
T- E. THORSTEIN8SON, Páðimsður
Cor. William Ave og Sherbrooke St., - Winnipeg, Man.
)