Lögberg - 08.03.1917, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. MARZ 1917
ö
Dr. Robinson
Sérfræðingur í tannsjúkdómum
BETRl TANNLÆKNING FYRIR MINNI BORGUN
Ef þú ert í vafa um hvcrt tennar þínar séu heilbrigðar eða ekki þá þarft
þú að fá ráðleggingu tannlæknis. Sá tannlæknir ætti að vera maður sem
hefir gott álit á sér sem lœknir og sömuleiðis er það áríðandi að hann sé
eins vel að sér í list sinni og nokkur getur verið. Nú á dögum eru þeir
fáir sem ekki viðurkenna þýðingu sérfræðinganna, hvort heldur er í al-
mennum lækningum eða tannlækningum. Minnist þess að ef þér kom-
ið til vor þá verður traust yðar ekki ódrengilega notað, því allar vorar að-
ferðir eru reyndar og sannaðar og fólk veit um áreiðanleik vorn. Fyrir
tíu árum voru það margir af borgurum Manitoba sem trúðu mér fyrir
því að lagfæra tennur þeirra. Þessa fyrstu sjúklinga tel eg byrjun hinnar
miklu aðsóknar sem eg hefi haft síðan eg fór að stunda tannlækningar.
Svo vel hefir mér gengið að tugir tannlækna hafa sest að í nág.enni mínu
Látið því ekki blekkjast þegar um það er að ræða að velja stað.
Permanent Crown og
Bridge Work, hver tönn .
Og það var áður $10.00
BIRKS BUILDING,
WINNIPEG,
MAN.
Whalebone Vulcan- dl 1 A
ite Plates. Settið ... ^
Opið til kl. 8 á kveldin
Dr. Robinson
TANNLÆKNIR
Meðlimur Tannlækna Skólans í Manitoba.
12 Stólar
10 Sérfræðingar
5 Kvenmenn
en hvergi gat hún fundiS vatn. ■ Þá
lagði hún frá sér sleifina og bað til
himnaföðursins um að hjálpa sér. Og
þegar hún leit á sleifina, hafði bæn
hennar verið heyrð, því hún sá hana
fylta tæru, köldu vatni.
Þó að hún væri sjálf þyrst og ör-
magna, bragðaði hún ekki á vatninu,
heldur hljóp heimleiðis eins fljótt og
fætur toguðu. Mitt á hlaupunum var
hún orðin svo máttvana, að hún hnaut
ttm stein og hrasaði. Þá fann hún
hlýlega kotnið við höndina á sér og
sá að það var svoiítill hvolpur, ■ sem
ýlfraði ámátlega eftir dropa af vatni.
“Möminu minni mundi ekki Hka a8
láta litinn hvolp örmagnast”, sagði
hún viS sjálfa sig og helti fáeinum
dropum af blessuðtt vatninu i lófa
sinn og lét hvolpinn lepja, og sam-
stundis hrestist hann svo við að hann
stóð á fætur og gelti fram þakkir sínar
af gleði.
Litla stúlkán hafði ekki séö hvað
gerst hafði um sleifina hennar, en
hún hafði skyndilega breyzt úr tini
í silfur og hún tók meira vatn en áð-
ur. Hún hljóp nú eins hratt og hún
gat, því hún var svo fjarska hugsjúk
ttm aumingja mömmu sína; en áðttr
langt leið stöðvaði hana hávaxinn
ferðamaður, sem brosti inn í augtt
hennar, benti á skrælnaðar varir sér
og rétti út höndina eftir sleifinni
hennar. “Mamma tnín mundi vilja
láta mig víkja að örmagna ferða-
nianni,” sagði hún, og hék fram til
hans sleifinni. Og alt í einu, meðan
ferðamaðurinn var að drekka, breytt-
ist sleifin úr silfri í gull, og gull-
sleifin var fylt á barma. En litla
stúlkan sá ekki þessi umskifti.
Hún var örmagna og að-framkom-
in, en ekki tók hún sér vatnsdropa
sjálf. Hún flýtti sér heim til að gefa
það mömmu sinni. Þegar hún bar
það að vörum hennar, lauk hún upp
augunum og hrestist og styrktist af
nýju. Og þá sá móðurin litlu hug-
prúðu dóttur sína, og hún bar sleif-
ina aö vörum barnsins, og meðan þær
skiftu á milli sín hressandi vatninu
bar til dásamlegt atvik: gull-sleifin
breyttist í demants-sleif, alsetta glitr-
andi steinum, Þá virtist hún hefjast
upp, upp, alla leið á himininn. Og
fjarlæg rödd af himni sagði blíðlega:
“Blessaður sé sá, sem gefur bikar af
köldu vatni i mínu nafni.”
Og nú, þegar við horfum á þessar
skínandi stjörnur, sem valda þvi að
“Demants-sleifin” glitrar á festing-
unni, skulum við hugsa um þessa
gömlu sögu um litlu stúlkuna og
fallega ástar-viðvikið sem hún afrek-
aði.—fAlmanak Ó. S. Th.ý.
—Þýðing eftip Kamban.
Frá Betel.
Viö gatnla fólkið, sent myndum
þetta heimili “Betel”, sendum hér
með viðurkenningu með innilegu
þakklæti til Mr. J. J. Vopna í Winni-
peg fyrir rausnarlega gjöf eða send-
ingu, sem er pappír og umslög
(sendibréfapappír) handa okkur til að
skrifa og láta skrifa vinum okkar og
venslamönnum víðsvegar um heiminn.
Þaö var vel hugsaö og fallega gert af
Mr. Vopna. —
Og innilegt þakklæti fyrir svipaöa
gjöf í fyrra vetur (pappír og umslögý
eiga þessar línur einnig að flytja Mr.
Ólafi Thorgeirssyni prentsmiðju-eig-
anda i Winnipeg.
Þá uni leið sendum við viðurkenn-
ingu og kærar þakkir okkar allra til
eiganda beggja vikublaðanna Lög-
bergs og Heimskringlu fyrir nokkur
eintök af blöðunum, send hingað skil-
vislega í hverri viku handa okkur til
að lesa og heyra. — Og hlökkum við
ávalt til fimtudaganna, því þá koma
blöðin. —
Gimli 2. marz 1917.
Gamla fólkið á Betel.
Slys.
Tveir farandsalar voru á ferð í
Norður Dakota í vetur nálægt Moun-
tain; voru, þeir báðir Sýrlendingar
og hét annar Alexander Zain en hinn
Joseph Zain; þeir voru náfrændur.
Á jóladaginn hvarf Alexander og
héldu menn að hann hefði farið á
önnur svæði. En nýlega hefir Jos-
eph sagt frá því, að hann hafi óvilj-
andi skotið frænda sinn til bana.
Höfði þeir báöir gengið á eftir vagni
sem þeir höfðu meðferðis; höfðu
vagnhjólin rekist í og skot hiaupið af
byssu Josephs, farið i höfuðið á Al-
32 Lagasafn Alþýðu
eru í gæzlu stjórnarinnar, og því vemdaðir frá
svikum og blekkingum, eins og ómyndugir menn;
geta þeir því ekki gert löglegan samning. Sá sem
samning gerir við Indiána verður að uppfylla hann
sjálfur ef krafist er, en Indíánann bindur samn-
ingurinn ekki, jafnvel þótt hann sé um nauðsynj-
ar. En þegar eitthvað er selt Indíána, getur sá
sem selur tekið veði fyrir ógreiddu verði þess er
hann selur, en slíkt veð verður að vera hluturinn
sjálfur, sem seldur var.
Ekki er hægt að taka lögtaki neinn þann hlut,
sem gefinn hefir verið Indíána eða keyptur
fyrir peninga þá er stjómin veitir þeim fyrir
skuldir af hvaða tegund sem em. peir geta haldið
öllum skepnum, verkfærum, áhöldpm og hverju
sem er, án þess að hægt sé að taka það lögtaki
fyrir skuldir.
42. Útlendir óvinir og samningar. Samkvæmt
alþjóða lögum er hindruð öll verzlun milli stríðs-
þjóða og samningar sem gerðir eru þannig eftir
að stríðið er byrjað eru ólöglegir, nema því aðeins
að þeir séu gerðir með sérstöku leyfi frá stjóminni.
Samningar sem gerðir eru milli stríðsþjóða áður
en stríðið hófst, eru þannig að þeim verður ekki
framfylgt meðan stríðið stendur yfir, en máls-
partar verða að uppfylla þá þegar því er lokið, ef
þess er krafist.
Útlendingar í Canada á friðartímum geta átt
fasteignir og gert samninga, eins óhindrað og inn-
fæddir eða löglegir borgarar; en ekki hafa þeir
atkvæðisrétt við neinar kosningar.
Lagasafn Alþýðu 29
petta getur ómyndugur notað sér og keypt
þannig og selt; en til þess að sjá við þessu ætti
sá er við hinn ómynduga skiftir að eiga beint við
þriðja manninn, en ekki við hinn ómynduga (ef
því verður við komið).
36. pegar ómyndugur kemst til lögaldursTget-
ur hann breytt eða ónýtt eða staðfest samninga,
sem hann áður hafði gert og ekki hafði verið full-
nægt. Allar slíkar breytingar verða að vera skrif-
legar, til þess að þær séu bindandi. Annars getur
ósanngjamlega langur dráttur á breytingunum
gert það að verkum að þær verði ekki teknar til
greina og hinn upphaflegi samningur verði talinn
bindandi.
pegar um það er að ræða að ónýta samning
með öllu, verður sá er ómyndugur var að geta skil-
að aftur því, sem hann tók við sem samnings-
ástæðum. Geti hann það ekki, þá er honum ó-
mögulegt að ónýta samningnn.
37. Ábyrgð foreldra fyrir skuldum ómynd-
ugra. pegar ómyndugir eru í foreldrahúsum og
fyrir þeim er séð, eða þeir eru hjá einhverjum for-
sjármanni, sem annast þá, bera foreldramir eða
forsjármennirnir ábyrgð á því, sem hinir ómynd-
ugu kaupa séu það nauðsynjar; nema því aðeins
að yfirlýsing hafi vérið gerð fyrir fram um hið
gagnstæða.
Fyrir munaðarvömr sem hinir ómyndugu
kaupa verða foreldramir eða forsjármenn ekki
krafðir.
exander og deytt hann samstundis.
Þorði Joseph ekki að segj a frá
þessu, tók því líkið, lét það í kstu og
hafði þaö með sér á veginum. Um
kveldiö varð vagninn fastur í snjó-
skafli nálægt heimili Jóns Jóhanns-
sonar hjá Hallson; var hann þar nátt-
langt. Um morguninn tók hann kist-
una meö líkinu og lét hana í snjó-
skafl og hefir hann haldið til síðan
hjá manni nálægt Svold, er Carl
Dalsted heitir.
Loks gat Joseph ekki þolaö það
lengur að segja til slyssins og skýrði
því frá sögunni; var þegar leitað í
skaflinum þar sem hann vísaði til og
fanst þar líkiö.
Walker.
“The Eyes of the World” heitir
leikur, sem þar verður sýndur næstu
viku. Þar verða sýndar fagrar mynd-
ir frá Califomia. W. H. Clune sem
kom fram með “The Clansmen” úr
“Birth of a Nation” er eiginlega höf-
undur að þessu Hka. Sagan, sem leik-
urinn er bygður á, er einhver áhrifa-
mesta ástasaga, sem gerst hefir í
seinni tíð. Þessi leikur byrjar á
fimtudaginn og heldur áfram í 9 daga
og verður sýning eftir hádegi á hverj-
um degi nema fyrsta daginn.
Orpheum.
Frá næsta mánuúégi og alla vikuna
út koma þar fram “The Seven Ori-
ginal Honey Boys”, sem flestir kann-
ast við.
McWatters og Tyson leika þar
einnig “Revue of Revues”. Eru þeir
nýkomnír frá Suður Afríku.
Allice Lynda Doll syngur þar til-
komumikla söngva.
“The Garden of Allah” er undir
fagur dans upprunninn á Hawaii eyj-
um. Tekur Pauline Thurston þátt í
honum og Leo Henning.
“Virgin of Fairyland” verður einn-
ig sýnt þar.
Október kvöld.
í vestri þegar sól er “sezt”
hún sendir geisla bleika
á kólgu ský í langri lest
er létt um geiminn reika;
svo nætur móðu þung og þétt
er þýtur út í bláinn,
hún hélu blæju leggur létt
á látnu, fölvu stráin.
Hér lít eg glögga mannlífs mynd,
sú mynd er endurborin,
hún kemur, fer með sorg og synd
og svo er fent í sporin.
Því tímans móða þung og þétt
er þýtur út í bláinn,
hún gleymsku blæju leggur létt
á látnu mannlífs stráin.
ó A. E. Isfeld.
Hart er þetta.
hann var lítiö eitt sjóndaprari en svo
að hann gæti talist alheilbrigður. ,
Hann var því látinn fara úr hernum.
Hann reyndi að ná í stöðu sína aftur,
en það var ekki auðið; annar maður
var kominn þangað í staðinn. Hann
bað um hjálp hjá ýmsum þjóðraeknis-
félögum, en fékk alstaðar það svar að
hann ætti ekki heimting á neinni hjálp.
Hann hefir aðeins getað fengið
þriggja vikna vinnu síðan hann var
látinn fara úr hemum í desember og
nú hefir verið tekið lögtaki alt sem
maðurinn átti til, sökum þess að hann
gat ekki borgað húsaleigu. Þó alt væri
selt, er það tæplega nóg fyrir einum
fjórða af skuldinni. Hann hefir gert
sitt bezta til þess að reyna að fá
vinnu, en hefir ekki tekist það.
“Við viljum ekki neinar sníkjur —
erum bæði viljug að vinna,” sagði
Mrs. Perris á miðvikudaginn.
(Þýtt úr “Tribune”).
I fyrra haust fór maður í 76. her-
deildina. Hann heitir Frans Perris
og átti heima að 270 Alexander Ave.
í Winnipeg. Til þess að geta barist
fyrir þjóð og land sagði hann upp
góðri og velborgaðri stöðu. Hann
var matreiðslumaður úti á braut. 18.
desember í haust var hann skoðaöur
af læknanefrid og fanst það út að
Stríðsmolar.
manna, sem þjást af kulda og klæð-
leysi, hungri og sjúkdómum.
I Armeniu eru 1,175,000 manns
hjálparlausir og sveltandi.
í Albaniu er þjóðin öll að því kom-
in að verða hungurmorða. Herliðið
sem ruddist yfir Iandið hefir tekið alt
og skilið eftir heimilin sveltandi og
bjargarlaus. Mais mælirinn er þar
seldur á $50, hveitipokinn á $80 og
pundið af grjónum á $5.
I Syriu og Palestinu er sama sorg-
arsjónin. Alt fólkið á þessum svæð-
um, sem talin hafa verið, er 25,280,000
Það ódýrasta og eina ódýra sem
nú er til í heiminum er mannslífið.
The Watchman.
Tuttugu miljónir manna eru nú
undir vopnum í stríöinu í Evrópu; en
þó eru þeir enn þá fleiri sem þjást
alla vega, af skorti, sjúkdómum og
hörmungum, sem af stríðinu stafa.
í Belgíu eru þrjár miljónir manna
sem að eins fá eina máltíð á dag.
Á norður Frakklandi eru 2,100,000,
mest konur og börn, sem gengur ber-
fætt, klæðlítið og hálfhungrað.
1 Serbíu eru fimm miljónir, sem
hafa mist atvinnu 'sína og geta enga
atvinnu fengið.
Á Póllandi eru ellefu miljónir
CAKAMK
FWEST
THEATtt
í 9 DAGA OG BYRJAR
FIMTtTDAGSKV. 8. MARS
2.30—TTvisvar á Bag—8.30
verður t Walker sýnd Clune’s mikla
hreyttmyndasýning úr hlnni nafn--
frægu bók Bell Wrights
—“THE EYES OF THE WOKI.D"—
Hún er t ttu þáttum og lýsir hinu afar
áhrifamlkla og hratSfara ltfi I
bæjum og á fjölium, sem sagan
segir frá.
þetta er áreiöanlega mesta og bezta
sýning af vinsælli sögu, sem gerC
hefir veriS.
Aukin og endurbætt Orchestra
, leikur undir.
Valin sæti við ullar sýningarnar —
Kveld: $1, 75e. 50c, 25c. Mats 50c
og 25c.
S
BÖLBEIN
um leið báðum höndum utan um’sápukúluna. En
Emma litla greip í tómt og fór að skæla, því að
sápukúlan sprakk óðara en hún kom við hana.
Ætli það séu ekki fleiri en hún Emma litla, sem
seilast eftir sápukúlunum.
Margrét Olafsson, 6 ára.
Mary Hill P.O*
HRAFNINN OG TÓAN.
pað var björt sumamótt. Hátt uppi á berg-
stalli sat hrafninn. Hann hafði ekki sofið vært.
Orsökin var sú að kveldið áður sá hann kind leggj-
ast þar í skriðunni fyrir neðan bergið.
Kindin hreyfði sig ekki þegar smalinn sendi
seppa sinn upp um hlíðina eftir kindunum. Hún
hlaut að vera sjúk, og hrafninn ætlaði að vera til
staðar þegar hún dæi. En til hvers ? Til þess að
éta úr henni augun og svo kroppinn á eftir.
J‘petta er Ijóti strákurinn,” sagði hrafninn.
“Hann hefir verið smali í þrjú sumur á þessum
sama bæ, og drepist kind eða lanrlb, þá hleypur
hann heim eins og fætur toga og segir frá því;
eg fæ aldrei ætan bita. Eg man eftir að spikfeitur
hestur datt dauður niður úti í haganum, þá fór eg
um allar klettaskorur og út með sjó og smalaði
saman öllum þeim hröfnum er hægt var að finna
og svo byrjuðum við, en húðin var svo óttalega
seig að við unnum lítið á. Til allrar hamingju bar
þar að glorsoltinn ref, hann reif gat á kviðinn og
þá var nú tekið duglega til matar. En sú gleði
varaði ekki lengi, smalinn kom þar og með honum
fleiri menn, og grófu þeir hestinn í urð. Löngu
seinna hitti eg tóuna og sagði hún að smalinn
hefði séð hrafnahópinn og því fundið hestinn. En
hún bætti því við að hún skyldi ná í lamb ein-
hverntíma seinna, þegar tækifæri byðist.”
Frá þessari stundu urðu þau svamir vinir tóan
og hrafninn og sagði tóan hrafninum hvar hún
ætti heima.
Aftur og aftur flaug hrafninn niður að kind^
inni, en hún var ennþá lifandi.
Nú datt honum í hug gott ráð, að hann skyldi
finna tóuna. Hann flaug af stað og settist á urð-
ina, þar sem refurinn átti heima. Hrafninn krunk-
aði hátt og refurinn kom til dyra, þekti strax
hrafninn og mundi eftir loforðinu, og hljóp af
stað í sömu átt og hrafninn fór. Refurinn þurfti
að fara fram hjá mörgum bæjum á leiðinni, en
svo kænlega fór hann að hundamir á bæjunum
urðu hans ekki varir.
Á sumrum liggja hundar uppi á bæjarhúsum
og heyra og sjá ef eitthvað kemur í nánd við
bæina.
pegar fram á skriðuna kom var kindin ennþá
ekki dauð, en sólin var að koma upp og refurinn
sagði við hrafninn: “Ef við bíðum lengur þá rís
smalinn á fætur, og hann finnur hana snáðinn sá.”
Og með allri sinni grimd og fimleik réðist refur-
inn á kindina, beit í hálsinn á henni og hélt þar
þangað til hún var dauð. Svo tætti refurinn
skinnið og þau átu og átu.
Hrafninn gat með naumindum flogið upp berg
stallinn svo saddur var hann. Tóan treysti sér
ekki heim, labbaði upp klettaskoruna og lagðiú
þar niður, og þegar sólin kom upp steinsofnaði
hún þama í klettaskorunni.
Hana dreymdi illa, eintóma smala, smaD.hunda,
byssur og skyttur. En hún gat ekki vaknað, hún
hafði borðað of mikið af kjöti. Hún drapit þar.
Hrafninn á ennþá heima á sama bergstallin-
um. Hann át tóuna upp til agna, og þegar engin
önnur bjargráð bjóðast, þá flýgur hann niður í
klettaskoruna og kroppar beinin af tóunni.
porbjöm Tómasson, frá ísafirði.
HANAVÍSUR.
pú ert hreykinn, hani minn
hlýr er grái kjóllinn þinn;
þó að frjósi úti alt,
aldrei má þér verða kalt.
Hvað þú getur galað hátt,
gull er röddin sem þú átt. —
Feginn gæfi eg frakkann minn
fyrir rauða kambinn þinn.
En hvað þetta stóra stél
stækkar þig og fer þér vel.
Allar hænur, hani minn,
horfa á tignarsvipinn þinn.
SOLSKIN
Barnablaö Lögbergs.
II. ÁR. WINNIPEG, MAN. 8. MARZ, 1917 NR. 23
Heiðraði ritstjóri Sólskins:—
Viltu gjöra svo vel og láta í Sólskin kvæði, sem
eg sendi þvr? Mér þykir kvæðið fallegt og vona að
þú hafir pláss fyrir það í blaðinu.
Kvæðið er svona:
■>■:. f .
Æska og aldur.
Sjá, böm mín, hve æskan er undur lík skóg,
af angan og blómum og hvíld er þar nóg.
En haustvindar blása og ber stendur eik
svo blóm lífsins falla hér visin og bleik.
Svo eyðið ei tíma við gjálífi og glaum
og gefið ei viljanum of lausan taum
og gleymið ei drotni, sem gaf ykkur líf
og glatið ei trúnni, sem er yðar hlíf.
pví æfin hún líður svo óvenju fljótt
og árin þau breytast sem dagur og nóti
Vor æska er saklaus og sólbjört og hrein,
en svo byrja aldursins gallbeisku mein.
Vor æfihaust nálgast með næðing og él,
þá nötrar vort lífstré, þess blóm frjósa í hel,
Hið ytra skrúð fölnar og fellur á grund
þó frýs ei hið innra líf trésins um stund.
Já, fljótt líða árin og æskan á braut
og uppbyrjar heimslífsins barátta og þraut.
En trúin og vonin, alt guðlegt og gott,
pað gleymist samt aldrei, né hverfur á brott.
petta kvæði er eftir J. A. Sigurðsson. Eg vona
að þú hafir pláss fyrir það í Sólskini.
Vinsamlegast.
Jóna Sigurðsson.
Dugandi drengur
Harold Jón Stephenson.
Sólskinsbörn! Sjálfsagt þykir ykkur gaman
að frétta um það, þegar einhver íslenzkur piltur
eða íslenzk stúlka skarar fram úr öðrum bömum
að einhverju leyti. Og þó er enn þá meira gaman
að sjá myndina af þeim og eiga hana í Sólskininu
sínu.
í dag flytur blaðið ykkar mynd af pilti, sem
fékk verðlaun nýlega fyrir góða frammistöðu.
Hann heitir Harold Jón Stephenson og á heima
að 694 Victor stræti. Harold gengur 'á Welling-
tonskólann og er þar í 7. bekk.
Blaðið Free Press hét heiðurspeningi úr silfri
þeim sem bezt reyndust í því að stafa rétt enska
tungu; 22. febrúar fór þetta kapp fram og var
Harold eini íslendingurinn, sem verðlaunapening
hlaut. Hann er sonur Fred. Stephensons, starfs-
manns Lögbergs.