Lögberg


Lögberg - 01.11.1917, Qupperneq 4

Lögberg - 01.11.1917, Qupperneq 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. NÓVEMBER 1917 gjögbng Gefið út hvern Fimtudag af The Col- umbia Prei*, Ltd.,(Cor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TALSIMI: CARRY 2156 SIG. JUL. JÓHANNESSON, Editor T. J. VOPNI, Business Manager Lltanátkrift til blaðsin*: TRt OOLUMBIA PRES*. Ltd., Bsx 3172, Winnlpag. Maq- Utanáakrift ritatjórans: IDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipog, R|an. VERÐ BLAÐSINS: 12.00 um áriB. -«►27 Marteinn Luther. “Margir menn skara fram úr í sínu eigin hér- aði, nokkrir í sínu eigin landi, en örfáir svo að ailur heimurinn þekki þá”, er haft eftir Benjamín Franklín. Og þetta er sannmæli. Til þess að nöfn manna geymist komandi kynslóoum og séu heim- inum kunnug alment, verða þeir að hafa unnið eitbhvert stórvirki; stígið eitthvert “spor við tím- ans sjá”, sem öldur viðburðanna ekki fylli með sandi gleymskunnar svo þau hverfi. En til þess að geta þetta verða menn að vera einhverjum þeim hæfileikum gæddir, sem ekki em allra; hafa eitthvað til að bera í fyllra mæli en meðbræður þeirra og samferða menn. pað er þvi eðlilegt að slíkir menn séu fáir. Sumir hafa þá skoðun að þýðingarlítið sé að halda í glöggu minni nöfnum og æfi hinna mtklu manna; það sé verk þeirra sem heimurinn og mannkynið njóti og eigi að njóta; þótt þeir sjálfir gleymist gerir hvorki til né frá. En þetta er heimska; fyrirmyndimar og for- dæmin í veröldinni eru Ijósin sem lýsa mönnum á réttar brautir og knýja þá til framsóknar. pað að lesa um og heyra sagt frá mönnunum sjálfum, sem kraftaverkin gerðu í heiminum er svo áhrifa- ríkt að fáir skólar munu hvetja betur. Að þekkja mennina sjálfa; hafa í huga sér mynd af sálarlífi þeirra; vita um alla þá erfiðleika sem þeir áttu við að stríða og urðu að yfirstíga, það verður mönn- um ómetanlegt framsóknarefni. pað er eins og sögur slíkra manna verði að háum og sterkum stiga upp í hæðir manndóms og fullkomnunar, þar sem hver erfiðleiki, sem þeir yfirstigu verði að nýrri rim og fótfestu fyrir þann sem les eða hlýðir. Einn þeirra fáu manna, sem svo skýru letri hefir skráð nafn sitt á mannkynssöguna að það máist aldrei, var Marteinn Luther, “maðurinn með eldinn í sálinni og sverðin á tungunni”, eins og Páll Melsted sagnfræðingur komst að orði. “Mað- ur:nn sem ekkert hræddist og alt sýndist mögu-_ legt”, eins og Jón Jónsson sagnfræðingur komst að orði. “Maðurinn sem hefir sérstakt sæti við hlið guðs almáttugs, ef nokkuð er farið eftir mann- gildi við sætaskipanir í himnaríki”, eins og pió- fessor Philips í Chicago sagði árið 1901. Ef ekki hefði staðið eins á í heiminum og nú stendur, hefði í ár—einrhitt í dag, 31. okt. 1917 —verið haldin svo dýrðleg hátíð um allan hinn svokallaða mótmælenda heim að nýtt tímabil hefði skapast í sögunni; ekki einungis nýtt tímabil trú- vakningar og kristniboðsáhuga, heldur nýtt tíma- bil almennrar frelsishreyfinga. Endurminningamar eru eins og vatnið sem hitað er í luktum katli; það þenst út smátt og smátt og þegar það nær vissu marki brýzt það út með margföldu afli. Siðabótatilfinningamar í trú og lífi manna eru nú komnar að einu slíku marki og afl þeirra hefði látið til sín taka svo á sæi ef ekki hefðu önnur og annarleg öfl verið að verki einmitt þá þegar þessi tímamót urðu í sögunni. í dag, 31 október 1917 eru liðin 400' ár frá því að Luther siðabótamaðurinn hugrakki gekk út að kirkju- dyrunum í bænum þar sem hann átti heima . pýzkalandi og hélt í hendi sér á þeirri sprengikúlu sem lamaði hinn volduga óvin mannkynsins — þrællyndið og hnefaréttinn. í dag eru liðin f jögur hundmð ár frá því Luther negldi með eigin hendi dálítið blað á kirkjuhurðina, þar sem hann hafði ritað á 95 setningar, sem hver um sig var eins og sverðstunga í hjartastað hins mikla ofríkis sem hann hafði sagt stríð á hendur — páfavaldsins. Nærri má geta hvílík dýrð hefði verið á ferð í hinum lútersku kirkjum, ef alt hefði verið með feldu. pá hefðu verið haldin fjölmenn þjóðþing; þá hefðu menn reynt mælsku sína og ritfimi til þess að uppmála í myndum ódauðlegra orða líf oi. starf þess mikla manns. En vegna þröngsýni annars vegar og heygulskapar hins vegar eru nú öll þessi ljós sett undir mæliker; menn þora víða ekki að tala um þennan mann nema í hálfum hljóðum. f þessu tilliti endurtekst hér sagan um Pétur og meistarann mikla. Pétur unni honum hugást- um, trúði á hann og treysti honum og viðurkendi hann með sjálfum sér af öllu hjarta. En þegar voldugir menn bentu að honum háðsfingri og spurðu hvort hann værí í raun og sannleika einn af lærisveinur. hans, þá greip hann hugleysi og hann sagði: “Nei, eg þekki ekki þann mann, sem þér talið um. Vissulega þekki eg hann ekki”. pannig ferst jafnvel mörgum lúterskum manni í dag; þeir hafa ekki hug til þess að viður- kenna þennan sinn trúarlega meistara og vilja helzt láta sem minst á því bera að þeir þekki þann mann. Luther er einn þeirra manna, sem allir ættu að vita sem mest deili á, hvar sem þeir eru og hverju sem þeir trúa. Luther var maður sem sýndi svo mikla sjálfstæði, kjark, þrek og sann- færingarfestu að menn þessara tíma græddu að gildi, ef þeir í því efni tækju hann áér til fyrir- myndar og eftirbreytni að einhverju leyti. Hér verður ekki sögð æfisaga Marteins Lúthers, að eins drepið á örfá atriði, sem allir ættu að vita, en ekki veitir af að ryfja upp eigi þau ekki að gleymast. Marteinn Luther er fæddur 10 nóvember 1483 í bænum Eisenbach á pýzkalandi. Faðir hans hét Hans og var tíglaskeri, en afi hans war bóndi. Móðir hans hér Margrét og er sagt að hún hafi verið frábær gáfukona, þótt ekki nyti hún ment- unar. Hans ýar fátækur bamamaður, en langaði til þess að Marteinn gæti komist til menta, því hann sá það brátt að í honum myndi búa eitthvað atkvæða mikið; hugsaði hann sér að láta hann lesa lög, því lögspeki var í miklu áliti á pýzkalandi í þá daga. En ekki gat faðir piltsins lagt honum til meiri námseyri en svo, að hann varð að vinna fyrir sér sjálfur. Var ekki um marga atvinnu- vegi að ræða fyrir ungling í hjáverkum frá námi og tók hann það fyrir að syngja á göturn úti fyrir húsdyrum manna og afla sér þannig fjár. Luther hafði frábærlega fagra rödd og gazt fólki einkar- vel að söng hans. Er þess getið að kona borgmeistarans í Eisenbach, sem Ursula Cotta hét, hafi orðið svo hrifin af söng og látprýði þessa umkomulausa unglings að hún hafi hjálpað honum allmikið. pegar hann kom í skólann var beitt við hann allmikilli hörku og með því að hann var sérlega tilfinninganæmur og tók sér það nærri að verða að afla sér viðurværis á þann hátt, sem honum fanst ganga næst betli, varð hann þunglyndur og hug- sjúkur. Er sagt að hann hafi oft legið í rúmi sínu um nætur að afloknu dagsverki, hugsandi um hag sinn og grátið sáran. Samt sem áður hélt hann áfram námi og byrj- aði háskólanám þegar hann var 18 ára. Er þar stutt yfir sögu að fara, að hann skaraði fram úr samnámsmönnum sínum svo að segja á hvaða svæði sem var; en í stað þess að lesa lög, eins og honum hafði verið ætlað, las hann guðfræði, þvert á móti vilja föður síns. Varð af því ósætti milli þeirra feðganna, sem gekk svo langt að sagt er að þeir hafi ekki talað orð saman hátt á annað ár. Luther útskrifaðist í guðfræði, tók prests- vígslu í kaþólsku kirkjunni og varð kennari í Wittenberg. Flutti hann þar fyrirlestra í heim- speki um Aristoteles og fíeiri menn frá fomöld og sömuleiðis í guðfræði. pótti hann vera kennari með svo miklum afbrigðum, að hinir kennaramir komu að hlýða á fyrirlestra hans og gerðust þann- ig lærisveinar hans. Auk kenslunnar prédikaði hann einnig og streymdi fólk að honum svo mjög að hvervetna var húsfyllir þar sem hann talaði, því mælskan var frábær og svo mikilil kraftur fylgdi orðum hans að menn þóttust aldrei hafa heyrt neitt því líkt. Luther var mjög djúptrúaður maður; er sagt að hann hafi aldrei byrjað neitt verk, hversu lítil- f jörlegt sem það var og hvemig sem á stóð án þess að biðjast fyrir áður; enda voru einkunnarorð hans þassi: “Verk sem byrjað er með einlægri bæn til guðs, er meira en hálfnað”. Trú Luthers var ekki ávaxtalaus varajátn- inga trú; heldur hafði hún það vald á lífi hans að hún fléttaðist lifandi og stjómandi inn í allar athafnir hans smáar og stórar. Páfa kirkjan hafði þá höfuðaðsetur sitt í Róm, eins og hún hefir æfinlega gert. pað var sið- ur margra læðra manna að fara þangað nokkurs konar pílagrímsferðir. Hafði Luther strengt þess heit að fara slíka férð. Hann var þess fullviss að þegar hann kæmi þangað sem fulltrúi guðs — páfinn — ætti aðsetur, mundi hann verða fyrir svo miklum og hátíðlegum áhrifum að hann yrði að betri og sælli manni á eftir. pessi ferð hafði öfug áhrif á hann við það, sem hann hafði búist við. f Rómaborg sá hann svo mikla spillingu, heyrði svo miklar svívirður að hann varð svo að segja orðlaus. Hræsnin og yfirdrepsskapurinn; sællífið og drambið ógnaði honum og kvaldi sálu hans. Að bera alt þetta skraut og tildur, alt þetta sællífi og hroka saman við hið óbrotna líf meist- arans, eins og það birtist í guðspjöllunum, það fanst honum hræðilegt. Og hann fór heim aftur fullur gremju gegn sinni eigin kirkju, en algerlega sannfærður um þörf á endurbót og fullkomlega ákveðinn í því að hefjast handa. pegar heim kom var ihann gerður að doktor í guðfræði; það var árið 1512; hélt hann nú áfram að kenna og prédika með enn meiri krafti og enn ' meiri eldmóði en fyr. En þá vildi það til sem kveikti í sál Luthers og gerði hann bókstaflega að þeim eldstólpa sem lýsir um allar aldir. Páfinn í Róm hafði sent fulltrúa sinn til pýzkalands til þess að selja mönnum syndakvitt- anir. Sá hét Jóhann Tetzel. Ferðaðist hann bæ frá bæ, hérað frá héraði með koffort sín og seldi mönnum fyrirgefningu synda og yfirsjóna rétt eins og lífsábyrgðarskjöl eða hlutabréf. Gátu mepn þar keypt kvittun fyrir drýgðum syndum og ódrýgðum; ef þeir höfðu það í huga a'. fremja glæp, gátu þeir farið til þessa fulltriia og kevpt af honum fyrirgefning aður en glæpurinn var drýgður. Meira að segja, menn gátu keypt syndalausn fyrir dána vini sína; leyst þá úr hreins- unareldinum og kvalastaðnum með ákveðinni fjár- upphæð. Á Móti þessari óguðlegu verzlur. hóf I.uther þrumandi ræðu; sýndi hann fram á hve syidsam- legt athæfi þetta væri: hversu hér væri leikið á hjátrú fólksins og hindurvitni; hvílíkt guðlast það væri að segja að guð sjálfur hefði umboðsmenn á jarðríki til jafn saurugra verka, og hversu heimskulegt það væri að halda að þessar synda- kvittanir hefðu nokkra þýðingu. “Páfinn er lygari; guðlastari, stórsyndari; hræsnari”, sagði hann í kirkju sinni. Og síðan skrifaði hann hinar 95 setningar, sem fyr var umgetið og negldi þær upp á kirkju- ihurðina. Kyaðst hann vera reiðubúinn að verja þær hvenær og hvar og fyrir hverjum sem vera vildi. Frá þeim degi er aðaldagur siðabótarinnar talinn, en það var kveldið fyrir allraheilagra messu 31. október 1517. Ekki er hægt að lýsa þeirri reiði og þeirri heift, sem kaþólsk-ir menn báru í brjósti gegn Luther fyrir uppreist hans. Jóhann Tetzel lét kveikja bál á almannafæri í borginni; og kvaðst hafa skipun frá páfanum að brenna alla villutrúar- menn, og mætti því Luther hafa sig hægan. En það hafði enga þýðingu; sannfæringinn var hon- um meira virði en jafnvel það að forða lífi sínu. purfti hann þó ekki að efast um að heitingunum yrði rækilega framfylgt, því margir fyrirrenn^rar hans höfðu einmitt verið beittir sömu tökum; tekn ir og dæmdir sem villutrúarmenn og brendir lif- andi á báli. Páfinn bannfærði Lúther hvað eftir annað; en hann brendi bannfæringarskjölin og hélt áfram kenningum sínum, hvað sem á 'dundi. Hýert kirkjuþingið á fætur öðru stefni honum fyrir sig og var þess jafnan krafist að hann tæki aftur staðhæfingar sínar. Svör Lúthers voru ávalt þau að yrði hann sannfærður um það með orðum ritn- ingarinnar að hann færi mgð villutrú, þá skyldi hann afturkalla orð sín; nema það væri gert kvaðst hann hvorki vilja gera það, né geta gert það Krafðist hann þess að málið væri rétt rannsakað og röksemdafærsla réði þar, en ekki blindur ofsi, né gamlar kreddur. Má nærri geta hvemig slíku var tekið á hinum miklu kirkjuþingum þar sem komnir voru saman stjómendur og stórmenni Evrópu, bæði veraldleg og kirkjuleg í allri sinni tign. Að rekja allar réttarfærslurnar; öll kirkju- þingin sem mál hans höfðu til meðferðar; allar bannfæringamar; allar ferðir Luthers og alla þá vanvirðu sem hann varð að þola, er ekki unt nema í heilli bók. En hvemig sem honum var misboðið; þótt hann horfist í augu við bál og bráðan dauða; hung- ur og þorsta og hefði hvergi hofði sínu að að halla, þá lét hann aldrei vikja sér af vegi sannfæringar- innar. Svo mikið var ofstækið á þessum kirkjuþing- um áð í ræðu sem einn páfa fulitrúinn flutti hélt hann því fram að Luther væri sjálfur djöfullinn í mannslíki, hann reyndi meira að segja að halda því fram að þetta væri svo í raun réttri og fékk fáfróða menn til þess að trúa því. Á móti öllum röksemdum Luthers var ávalt látinn klingja sama klausan: “Taktu aftur kenn- ingar þínar; þú ert villutrúarmaður; ef þú gerir það ekki verður þú bannfærður, settur í fangelsi eða brendur á báli”. > Og allir vita hvemig bannfæringamar voru; ofurafl þeirra var svo mikið að fáir stóðust. peir sem fyrir því urðu mættu fyrirlitningu hvar sem þeir fóru; þeir höfðu hvergi grið; enginn mátti skjóta yfir þá skjólshúsi; enginn mátti veita þeim viðtal — jafnvel ekki líta á þá nema til þess að gefa þeim fyrirlitningarmerki. Hvorki mátti gefa þeim né selja mat né drykk og álitið var að siðferði og sálir manna óhreinkuðust af því að vera í nánd við þá. En jafnvel þetta óx ekki Luther í augum. En svo er aftur þess að gæta að hann átti marga volduga fylgismenn, sem veittu honum aðstoð bæði ljóst og leynt. Var það fyrst og fremst fyrir þá sök að þeir aðhyltust kenningar hans og höfðu þegar fengið opin augu fyrir villum páfakenning- arinnar, og eins vegna hins að þeir dáðust að hug- rekki hans og staðfestu. pví er nú einu sinni þannig varið að þrátt fyrir veikleika og hverfulleik mannanna, þá dást þeir samt alt af að hreinskilni, staðfestu sannleiksást og hugrekki. Jafnvel-þótt þetrú sé það boðið með lögum kirkju og stjómarvalqa að fyrirlíta upp- reistarmanninn, sem setur sig á móti ofurefli hnefaréttarins, þá geta þeir samt ekki annað en fylgt honum í hjarta sínu, fundið til með honum og jafnvel Ó6kað málefni hans sigurs og fram- gangs. pannig var það með Luther. f eitt skifti var þó svo nærri komið að vinir hans hugðu hann eiga eftir að eins fá fótmál óstigin. Meira að segja Luther bjóst ekki við öðru sjálfur en að hver dagurinn yrði sá síðasti. pess vegna sagði hann við Melankton og aðra áamverkamenn sína: “Ef eg kem ekki aftur; ef þeir lífláta mig, þá hald- ið þið áfram starfinu og stríðið fyrir málefni sann- leikans. Eg veit ekki hvað fyrir kann að koma, skeyti því heldur ekki. Eg veit þetta eitt; að vor málstaður er réttur. Hverir sigra muni í bráðina gerir minna til. Sá einn er enga sannfær- ing hefir og engan sannleika þekkir, hugsar um það hvort hann muni sigra eða ekki. peir sem sannfæring hafa trúa því að hið rétta verði yfir- sterkara um síðir og þeir telja það skyldu sína að láta lifið í þjónustu þess, ef á þarf að halda Sjálfur djöfullinn hefir verndað vígi páfans og þrældómsins, en Kristur hefir brotið skarð í þá múra, og djöfullinn verður að játa að drottinn er sterkari en hann. pví skulum vér aldrei gleyma að einkagrundvöllur trúarinnar er frelsi”. Lúther hafði gengið í klaustur og var því munkur um tíma; en hann braut reglur kaþólsku kirkjunnar í því sem fleiru, að hann kvæntist þótt munkur væri, og var það talin ófyrirgefanleg synd Stúlka sú er hann gekk að eiga hét Kqtrín Bora og var nunna. Hjónavígsla þeirra fór fram 11. júní 1525 og urðu samfarir þeirra hinar allra beztu pau eignuðust sex böm. pess var getið að vinir Luthers hefðu eitt skifti verið hræddir um að hann kæmist fyrir fult og alt í hendur páfavaldsins og misti lífið. Var það ráð þá tekið að vopnaðir menn komu að hon- um þar sem hann var á ferð og fluttu hann í fang- elsi skamt frá fæðingarstað hans. um það vita menn ekki með vissu hvort honum hefir verið það kunnugt í fyrstu að þetta var gert af vinum hans honum til frelsis, en mikil voru þau störf er hann afkastaði í þessu fangelsi, því hann dvaldi þar all lengi. Hann var starfsamur með afburðum; vakti við skriftir fram á nætur alla æfi, og hafði jafnvel hjá sér bók til þess að lesa á meðan hann neytti matar, enda afkastaði hann svo miklu að fremur líkist skáldsögum en sönnum viðburðum, þótt sannanir séu fyrir því öllu. Hann ritaði hvem bæklinginn á fætur öðrum og var þeim dreift út um alt land. pannig hafði hann skrifað 130 rit á einu ári og 83 á öðm. Sem kunnugt er hefir hann samið iskýring boðorðanna og faðir vorsins, sem taldar eru fremri öllu, sem menn þekkja af sama tagi. Hann orti sálma, sem sumir jafnast á við hin hjartnæmu orð Hallgríms i Péturssonar; hann orti veraldleg ljóð af ýmsu tagi, og er þefjsi vísa eignuð honum: , ...... , SÓNHÆTTIR — XVII. ólukka. pú líf þitt gefins, lésari minn, fékst en lukku eigi, svo þú breyttir til. Úr Draumaheimi dals við fossagil, í dimmvið Sléttu’ á undanhaldi vékst. Og sá er mestur sauður bezt sem rekst. — Ei sagt til þín — eg ei þig styggja vil. En þekkja muntu þá, og kunna skil á þeirri kynslóð, sem með straumnum hrekst, og þann, sem langar, langar altaf heim ( sitt ljósið bezta aftur finna’ og sjá, en kemst ei undan örlögunum þeim, . sem útlegð batt hann hönd og fæti á, er arf hann lét mót lukkuvon í seim, og lagðist flatur alheimsþrælum hjá. P. P. P. THE DOMINION BANK STOFN SETTUR 1871 HöfuðstóU borgaöur og varasjoour . . $13.000,000 Allar elgnir . . .................. $87.000,000 Bankastörf öll fllótt og samvizkusamlega af hendi leyst. Dg áherzla lögð á að gera skiftavinum sem þægilegyst viðskiftin. Sparisjóðsdeild, Vextir borgaðir eða þeim bætt við innstæður frá $1.00 eða meira. tvisvar á ári-—30. Júni og 31. Desember. 384 Notre Dame Branch—\V. M. HAMII.TON, Manager. Selkirk Branch—F. J. MANNING, Manager. NORTHERN CROWN BANK Höluðstóll löggiltur $6,000.000 HöfuðstóU grsiddur $1,431,200 , Varasjóðu....$ 848,554 formaður - Capt. WM. ROBINSON Vice-President - JAS. H. ASHDOWN Sir D. C CAMERON, K.C.M.G. W. R. BAWI.F E. F. HDTCHINGS, A. McTAVTSH CAMFBEIiD, JOHN STOVELi Allskonar bankastörf afgreidd. Vér byrjum reiknlnga við elnstakllnga eða félög og sanngjarnir skilmálar veittlr. Avisan'ir seldar til hvaða staðar sera er á íslandl. Sérstakur gaumur geflnn sparlrjóðslnnlögum, sem byrja má með 1 dollar. Rentur lagðar vlð á hverjum * mánuðum. T- E. THORSTEINSSON, Ráðsmaður Co William Ave. og Sherbrooke St., - Winnipeg, Man. ý»STAVr?siif^S:,Ý»YfÁV,:rsSMÍs\xí'«i\i:?ii\ifí>i\:Ýs\"rsýri*i:Ýs'\"i,*S'xi,«\"i'*ýri*''ti's.::is\iriavw»Yii - —-— . Sendið hermönnunum yðar fallega mynd í jólagjöf. Það er til mynda- smiður í borginni yðar : : : : : : : w. w. ROBSON 490 Main St. Vg; ;—i-a ■ — —- “Sá sem aldrei elskar vín, óð né fagran svanna, hann er alla æfi sín andstygð góðra manna”. Eitt merkilegasta og þýðing- armesta verk Luthers var það að hann þýddi biblíuna á móður- mál sitt; áður var hún -ekki til á þeirri tungu sem alþýðan skildi og varð því fólkið að fara eftir kenningum prestanna' áð öllu leyti. Nú voru “hebreskir menn látnir tala á þýzku”, eins og maður komst að orði um það verk. pess verður að geta í þessum fáu línum að eitt af merkisár- um í sögu siðbótarinnar og sögu Luthers var 1530. pá var eitt hið fjölmennasta kirkjuþing í bænum Augsborg, sem nokkru sinni hafði verið í öilu landinu, þar báru siðabótarmenn fram í föstu formi trúarjátningu sína og á henni sem grundvelli var síðan bygt. par biðu kaþólskir ofríkismenn alvarlegan ósigur fyrir þeim er frjálsara hugsuðu og vildu ekki láta fjötra hugs- anir sínar. Æfi þessa merka manris end- aði 17. febrúar árið 1546; pré- dikaði hann og starfaði fram á dauðadægur og er álitið að hann hafi látist fyrir aldur fram sök- um ofmikillar áreynslu. Hann var 63 ára þegar hann lézt. petta er örstuttur útdráttur úr lífi og starfi Luthers, en nógu langur til þess að hann ætti að geta vakið einhvern til hugsunar einmitt ný. Hafi nokkru sinni verið þörf á manni með lyndis- eirikunnum og hugarfari Luth- ers þá er það nú. pað sem þessa þjóð brestur nú tilfinnanlegast — og líklega fleiri þjóðir — eru menn sem ekki verði að gjalli í eldi mót- þróans, hnefaréttarins og ofrík- isins. Vér þurfum á mönnum að halda sem ekki láta bræða sig eins og þorsklyfur í hvaða grút sem vera vill. Vér þurfum á mönnum að halda sem séu reiðu- búnir að steyta hnefann og láta til sín heyra frammi fyrir hinum voldugu, stóru og auðugu. Vér þurfum á mönnum að halda sem kalla lýgina lýgi en ekki kurt- eisi; þjófnaðinn' þjófnað en ekki “graft”; hræsnina hræsni en ekki hyggindi; heygulskapinn heygulskap, en ekki sáttfýsi o. s. frv. Ef vér ættum nokkra slíka menn þá væri ekki þjóðarviljinn kynktur í greipum samsæris- valda og svæfður með klóro- formi blekkinganna. Nú er tími til þess að iesa sögu Luthers, íhuga hana og feta í fótspor hans að einhverju leyti. Á hans dögum var beittasta vopnið gegn honum “villutrúar- hrópið”; nú hefir vopnið skift um nafn, en er í raun réttri það sama, það er nú “landráð”. pá voru allir “villutrúarmenn” sem ekki hlýddu páfanum, nú eru þeir allir kallaðir “landráða- menn”, sem vilja láta fólkið tala. Austur í blámóðu fjalla. Eftir Aðalstcin KHstjánsson. Framh. Vér gátum þess að einkeg vinátta til íslands skín í gegn um þessa bók; þetta lýsir sér í frásögnum og lýsing- um; það er auðheyrt að höfundinum þykir vænt um landið, ekki síður en þjóðina. “Vér getum ekki elskaö jörðina”, segja peir, sem ekki þekkja ættjarðarást. “Það er eðlilegt að þykja vænt um fólk og þjóð, en um dautt landið, það nær engri átt”, segja þeir. En þetta er heimska; tilfinningum nlanna er þannig varið að þeir geta unnað bæði lifandi og dauða; þeim getur þótt vænt um menn og lifandi dýr; þeirn getur þ>ótt vænt um staði og miálefni. Þeir sem ekki skilja þetta eða hafa fundið til þess, þeir eru ekki heilir menn; þeir eru ekki nema hálfskapaðir. Það var ekkt aðeins þjóðin sem Gunnar á Hlíðar- enda þráði, þegar hann sagði: “Fög- ur ertu Fljótshlíð”; það var landið sjáilft; ættjörðin sem hann hafði svip- aðar tilfinningar fyrir og móður sinni. Þessi tilfinning kemur víða fram hjá höfundi þessarar bókar og í því er aðalgildi hennar fólgið. Þegar hann lýsir landinu sjálfu eða einihverjum hlutum þess, kemur ást hans stundum fram 't barnslegri einfeldni og með hreinskilnislegri fegurð. Til dæmÍ9 skal taka þessi orð: “Mér fanst daggarperlurnar brosa til mín, eins og glataðs vinar, vitaskuld — dálítið þunglyindislega — Fyrir Morgunverð Vandlœtismanns Flesir menn eru vandlátir með kaffi. Þeir ferðast meðal margra gististaða og drekka kaffi búið til af mismunandi matreiðslu-. möniium. ■En svo er fyrir að þakka að Red Ros-e kaffi er þannig gert að það getur fyllilega mætt vandlátum neytendum, er mulið ekki rnalað. Sumir menn sem vér vitum að finna að öllu hafa'látið í ljósi gæði þess og að það sé eins gott ef ekki betra en kaffi sem þeir hafi nokkru sinni bragðað. Ef þú ert einn af þeim vandlátu láttu konuna búa til bolla úr Red Rose og láttti okk- ur vita. Verð sama og var fyrir þrem árum. 674 Red Rose Coffee

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.