Lögberg - 20.12.1917, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. DESEMBER 1917
15
n
n
tf
ff
ff
ff
I
fí
ff
I!
II
Drengurinn veit það!
' "1^.,
En veizt þú það ?
Hversvegna þessi flugháíka?
Hvað er þrumuhnöttur?
Tluað' veldur mestum liávaðanum?
Hversvegna er kaldara. á fjallstindinum?
Hví er sjórinn saltur?
Hvers vegna berum vér nöfn?
Hví er skuggi vor stærri en vér erum sjálf
Hvaða fugl hefir lengst stél?
Hvað veldur skógarþytinum?
Hversvegna skiftir úlfaldinn lit?
*
Hví logar olían?
Hvað veldur skugganum?
Hví er hlýtt á sumrin?
Hversvegna er snjórinn léttari regni?
Hversvegna gefur organið hljóð?
Hversvegna sker demant gler?
Reynið drengi yðar og
stúlkur á þessum hvers
dags spumingum.
Sendið Coupon svar.
The Book of Knowledge
BARNA ENCYCLOPAEDIA
Svarar ölium
spurningum,
geta spurt =
sem
börn
Getur barnið þitt svarað greinilega öllum spuruingum og lýst hinum einstöku lilutum, sem það sér kring-
um sig? Ef svo er ekki, er það ekki nægilega mentað, jafnvel ekki á veginum, sem til mentunar leiðir.
Það er ekki nóg að vita að salt fæst úr jörð og sjó, og sykur úr sykurreyr, og gúmmí úr trjálegi. Við meg-
um til með að vita hvernig þroski hinna einstöku efna og atviki á sér stað. Vér þurfum að vita hvernig skógar-
dýrin byggja sín undursamlegu vefjarskýli, og hvernig menn byggja ljósvita á landi og sæ. Við þurfurn líka að
vita, á hvern hátt baðmullin er unnin, og hvernig þær vélar eru gerðar, er valda því hvað baðmull er ódýr. THE
BOOK OF KNOWLEDGE er einfaldasti of auðveldasti þekkingarmiðillinn, sem heimurinn hefir þekt.
Hafið THE BOOK OF KNOWLEDGE á heimilinu—þegar, börnin vaxa, verða þau þakklát.
MYNDIR TALA MEIRA EN ORD
THE BOOK OF KNOWLEDGE innilieldur á hæsta stigi skilyrði til þess að þroska huga unglinga. Ekki
sízt vegna þess að í bókunum eru þúsundir fræðandi og fagurra mynda. Myndir eru bráðnauðsynlegar til þess að
halda vakandi eftirtekt barnanna. Myndirnar brenna söguatriðin svo skýrt inn í barnshugann, að þekkingin
verður sílifandi og gleymist aldrei. Barnið lærir fljótar og betur með auganu, á fyrstu lærdómsárunum, en með
nokkru öðru.
Á öllum þeim mörgu heimilum, þar sem THE BOOK OF KNOWLEDGE er, verður ekkert algengara en að
sjá pabba og mömmu, afa og ömmu, eins sokkin ofan í hinar fróðleiksríku blaðsíður og börnin sjálf. Allir vilja
fræðast, en þó vilja allir auðvitað helzt fá fræðsluna úr bókum, sem eru skemtilega framsettar. Þekkingarheim-
urinn, er nokkurs konar æfintýra veröld, og þegar menn komast að raun um hve meistaralegt samræmi, er á
milli hinna. ólíku fræðigreina í bókum vorum, þá mun varla til vera nokkur maður, nokkur kona eða barn, sem eigi
kunni réttilega að meta kostina.
SENDIÐ C0UP0NS EFTIR ÓKEYPIS BÓK
Inniheldur skýr og einföld svör við öllum spurningum
sem að ofan er spurt
Hin gefna, myndskreytta bók, mun fœra yður hcim sanninn um, hve óafmáanlega þekkingin þrýstist í huga
barnanna, með skýrum myndum og sögum.
Bókin sem gefin er, hefir eftirfylgjandi
myndir að geyma:
The Living Flower of the Sea, Frontispiece in three
colors; The Procession of the Worlds; The Biginning of
a Great Bridge; The New Chariots of the Sky; The Great
Workshop Down in the River; Along the Panama Canal
Zone; The Wonderful Machinery of Our Ears; Plants
That Eat Insects; Strange Animals That Eat Ants; The
Space No Man Can Measure, og fleiri.
UTGEFENDUR OG UTSÖLUMENN
THE GROLIER SOCIETY
Tribune Bldg. Tals. M. 4322 Winnipeg
m
M
'
Coupon fyrir ókeypis bók
The Grolier Society
The Trlbune Bullding:, Winnipeg, Man.
Gerið svo vel að skrifa eftir meS nœsta p6sti hinni ómiss-
andi bók, “The Child and The Book oí Knowledge”, sem svarar
skilmerkilega hinum mörgu og þýðingarmiklu spurningum, sem
a8 ofan hafa verið taldar.
Nafn
Heimili
Umboðsmenn Lögbergs.
Jón Pétursson, Gimli Man.
Albert Oliver, Grund, Man.
P. S. Fridreckson, Glenboro, Man.
S. Maxon, Selkirk, Man.
S. Einarson, Eundar, Man.
D. Valdimarson, Wild Oak, Man.
Th. Gíslason, Brown, Man.
Kr. Páturson, Hayland, Man.
Oliver Johnson, Winnipegosis, Man
A. J. Skagfeld, Hove, Man.
Joseph Davidson, Baldur, Man.
J. A. Vopni, Swan Rive, Man.
Björn Lindal, Markland, Man.
Sv. I.optson, Churchbridge, Sask.
A. A. Johnson, Mozart, Sask.
T. Steinson, Kandahar, Sask.
Stefán Jónsosn, Wynyard, Sask.
G. F. Gíslason, Elfros, Sask.
Jón Ólafson, Leslie, Sask.
Jónas Samson, Kristnes, Sask.
GuSm. Johnson, Foam Lake, Sask.
C. Pálson, Gerald, Sask.
Guðbr. Erlendson, Hallson, N -Dak.
Tónas S. Bergman, Gardar, N.-Dak.
Sigurður Jónsson, Bantry, N.-Dak.
m
Olafr Einarson, Milton, N.-Dak.
G. Leifur, Pembina, N.-Dak.
K. S. Askdal, Minneota, Minn.
F. X. Frederickson, Edmonton, Alta
O. Sigurðson, Red Deer, Alta
H. Thorlakson, Seattle, Wash.
Thorgeir Simonarson, Blaine, Wash.
S. J. Mýrdal, Pt. Roberts, Wash.
J. Ásgeir J. Lindal, Victoria, B.C.
Vinnuvísindi.
(Framh. og niðurl. frá 14. bls.)
þeir lifa á, og fyrir því, hve grund-
völlurinn undir æðra lifi þeirra er
altaf súr og harður. Hinir hraustu
æskumenn vorir mundu þyrpast til
kolanáma og járnnáma, til vörulesta,
til fiskiflota í desember, til diska-
þvottar, fataþvottar og gluggaþvott-
ar, til vagagerðar og til grafar í
járnbrautagöngum, til steypismiðja
og kyndihola, og til reisipalla himin-
gnæfra húsa, hver eftir sínu vali. Þar
fengju þeir barnaskapinn barinn úr
sér, og kæmu aftur heim með hollari
sarnúð og heilbrigðari skoðanir. Þeir
hefðu þá goldið sinn blóðskatt, átt
sinn þátt í því stríði, er mann-
kynið hefir frá alda öðli háð við nátt-
úruna; þeir mundu stika jörðina
státnari en áður, konum mundi þykja
meira til þeirra koma, þeir yrðu betri
feður og kennarar komandi kviislóð-
ar”. —
Tilgangur þegnskylduvinnunnar hér
á landi átti að vera sá, að uppala
æskulýðinn í “stundvísi, hlýðni,
stjórnsemi, háttprýði, reglusemi,
hreinlæti, og réttum handtökum og
hreyfingum” við starfið. Ef vér nú
lítum t. d. á siðustu atriðin, rétt hand-
tök og hreyfingar við störfin sem
tvnnin eru, þá er aúðsætt, að fyrst
verður að vita hv’aða handtök og
hreyfingar eru rétt, og þar næst
hvernig á að kenna þau. En aí því
sem eg hefi þegar sagt, vona eg það
sé ljóst, að varla verður búist við því
að margir hér á landi hafi nú þegar
þekkingu á þeim mæli er þyrfti, þó
eg efist ekki um, að vér eigum marga
áægta verkamenn, “sem gera af nátt-
úrunni það sem lögmálinu er sam-
kvæmt”, án þess að þekkja lögmálið
svo vel, að þeir geti kent öðrum það.
Áður en vér byrjum á þegnskyldu-
vinnu, verðum vér því að fá vinnu-
v’ísindi um öll þau verk, sem hún á
að ná til. Að öðrum kosti er hætt við
að hún yrði fremur til ógagns en
gagns. Það mundi liafa ill áhrif á
verkhyggna ménn, ef þeir yrðu að
vinna með aðferðum er þeir sæju að
væru rangar. Þeim mundi finnast
það niðurlæging, eins og það væri
líka. Hverri heilbrigðri sál svíður
það að verða að breyta móti betri
' itund, því það er að verða að verra
manni: vér verðum ósjálfrátt eins og
vér breytum. Þeir sem ekki sæju
betur en verkstjórinn, sem léti þá
vinna með rangri aðferð, staðfestust
hins vegar í villunni, og yrðu ver
hæfir til að taka famförum eftir en
áður.
Þessi hætta hyrfi, ef allar v’innu-
aðferðir væru bygðar á vísindalegri
rannsókn. Með henni fengist svo
ljós skilningur á hverju atriði starfs-
ins, að auðvelt væri að skýra fyrir
hverjum meðalgreindum manni hvers
vegna ætti að fara svona að því og
ekki öðruvísi. Verkamennirnir fyndu,
að hreyfingum þeirra væri stjórnað
af meira viðsýni en áður, þeir fyndu,
að vinnuvitið göfgar manninn, gerir
hann hluthafa í æðra lífi. Auk alls
annars gagns sem leiða mætti af hag-
anlegri þegnskylduvinnu, yrði árang-
urinn sá, að breiða út virðingu fyrir
hagsýni og hagvirkni. Þegnskyldu-
vinnan yrði þjóðskóli í hagnýtingu
Vinnuvísindanna. —
Þegar búið væri að finna málsverk
í öllum helztu iðjum á landi voru,
hefðum vér fengið mælikvarða til að
meta vinnubrögðin í landinu og svo
hve langt vér stöndum frá því marki
sem vér gætum náð, ef vér vildum.
Það mundi hafa hvetjandi áhrif og
vekja margan til umhugsunar við verk
sitt, er áður vann það hugsunarlaust,
svo að fleiri og fleiri gætu tekið und-
ir með Búnaðarbálki:
Hér næst þegar eg var að v’erki,
velti eg hlutnum fyrir mér,
og leitaði’ ef eg hitti hverki
livað nýtt, gott eða skaðlegt er,
framyfir það eg vandist við;
varliga trúði landsins sið.
Nær eitthvað það til bata bendi
brúka lét eg og reyna strax,
griðmönnum bæði og grönnum kendi;
svo gæti vorðið þeim til hags;
eins þeirra niðjar sviftist sút,
siðan það beri’ um landið út.
Kæmist slikur rannsóknarskóli inn
i öli vinnubrögð á landi hér, þá mundi
það lyfta þjóðinni á æðra stig. Það
mundi göfga vinnuna, tengja saman
hug og hönd, og af vinnuvitinu
mundi vaxa skapandi hugsun, er
frjófgaði alt líf vort. Hingað til
hefir sú reyndin orðið á, að hvar sem
beitt var vísindalegri athugun, þó á
gamalkunnu sv'æði væri, þá opnuðust
þar nýir heimar þekkingarinnar, því
mennirnir eru venjulega hálfblindir
þangað til þeir ásetja sér að athuga
frá einhverju sérstöku sjónarmiði.
Eins mundi að likindum fara hér,
óvæntar leiðir opnast til að spara
mannsorkuna, og gera mennina að
því skapi frjálsari og máttugri. Því
minni tíma sem þarf til nauðsynja-
verkanna, þvi meiri tími verður til
frjálsra athafna, til hressingar og
göfgunar líkama og sál. Þá mundi
og verða meira réttlæti i launakjörum
verkamanna. Þegar hver sá sem
málsverki lýkur fær sín háu laun, en
lyddan sem dregur af sér af sama
skapi lág laun og getur ekki púkkað
upp á hlautdeild í launum dugnaðar-
mannsins, þá er komin hvötin fyrir
alla til að leggja sig fram. Þá upp-
sker hver eftir því sem hann sáir. —
Oft er á það minst, hversu fámenn-
ir vér íslendingar séum. Því meiri
ástæða er til að beita kröftunum vel.
Látum vinnuvisindi á næsta áratug
tvöfalda árangur vinnunnar i landinu.
Gerum garðinn frægan fyrir það, að
þar sé fáment en góðment.
Business and Professional Gards
Dr. R. L HUK5T,
Member of Royal Coll. of Surgeons,
Eng„ útskrlfaCur af Royal College of
Physlclana, London. SérfrætS'lngur 1
brjóst- tauga- og kven-sjúkdómum.
—Skrifst. 305 Kennedy Bldg, Portage
Ave. (& mótl Eaton’s). Tals. M. 814.
Helmili M. 2696. Tlmi til vititals:
kl. 2—5 og 7—8 e.h.
Dr. B. J.BRANDSON
Office: Cor. Sherbroeke 4 William
Thi.hphonk GXRiy 320
OrpicK-TfMAR: 2—3
Heimili: 776 Victor 8t.
Tki.kphone qarry 381
Winnipeg, Man.
Dagtals. St.J. 474. Næturt. StJ.: 86«.
Kalli sint á nótt og degi.
I) H. B. GERZABEK.
M.R.C.S. frá Englandi, L.R.C.P. frá
London, M.R.C.P. og M.R.C.S. fr&
Manitoba. Fyrverandi aÓstoBarlæknlr
vi8 hospital í Vinarborg, Prag, og
Berlin og fleiri hospitöl.
Skrifstofa i eigin hospltali, 415—417
Pritchard Ave., Winnipeg, Man.
Skrifstofutlml frá 9—12 f. h.; 3—6
og 7—9 e. h.
Dr. B. Gerzabeks eigið hospítal
415—417 Pritchard Ave.
Stundun og lækning valdra sjúk-
linga, sem þjást af brjóstveikl, hjart-
veiki, magasjúkdómum, innýflavelki,
kvensjúkdómum,, karlmannasjúkdóm-
um, taugaveiklun.
Vér leggjum sérstaka áherzlu 4 aB
selja me8öl eftir forskriftum lækna.
Hin beztu lyf, sem hægt er a8 fá,
eru notuB eingöngu. þegar þér komi8
me8 forskriftina til vor, megi8 þér
vera viss um a8 fá rétt þa8 sem
læknirinn tekur tll.
COLCLEBGH & CO.
Notre Dame Ave. og Sherbrooke St.
Phones Garry 2690 og 2691
Glftingaleyfisbréf seld.
Dr. O. BJORNSON
Office: Cor, Sherbrooke & William
CKI.KIHIONK, GARRY 3StO
Office-tímar: 2—3
HEIMILI:
766 Victor St> eet
fBLBPHONEi GARRY T68
Winnipeg, Man.
Dr. J. Stefánsson
401 Boyd Building
COR. P0RT/\CE AVE. & EDMOfiTOfl ST.
Stundar eingöngu augna, eyina. nef
og kverka sjúkdóma. — Er að hitta
frákl. 10-12 f. h. og 2-5 e.h,—
Talsími: Main 3088. Heimili 105
Olivia St. Talsími: Garry 2315.
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Buildlng
Cor. Portage Ave. og Edmonton
Stundar sérstaklega berklasýki
og a8ra lungnasjúkdóma. Er a8
finna á skrifstofunni kl. 11—
12 f.m. og kl. 2—4 c.m. Skrif-
stofu tals. M. 3088. He'imili: 46
Alloway Ave. Talsimi: Sher-
brook 3158
jy/[ARKET pjQTEL
ViC sölutorgiB og City Hall
Sl.00 til $1.50 á dag
Eigandi: P. O’CONNELL.
J. G. SNÆDAL,
TANNLŒKNIR
614 Someraet Block
Cor. Portage Ave. «g Donald Stre.t
Tals. main 5302.
The Beláium Tailors
Gera við loðföt kvenna og karlmanna.
Föt búin til eftir máli. Hrein»a, pressa
og gera við. Föt sótt heim og afhent.
Alt verk ábyrgst. Verð sanngjarnt.
329 William Ave. Tals. G.2449
WINNIPEG
JOSEPH TAYLOR,
LÖGTAKSMAÐUR
Helmllis-Tals.: St. «Iohn 1844
Skrifstofu-Tals.: Main 7»78
Tekur lögtaki bæ8i húsaleiguskuldir,
veBskuldir, vixlaskuldir. AfgrreiBir alt
sem a8 lögum lýtur.
Room 1 Corbett Blk. — 615 Main St.
Talsímið Main 5331
HOPPS & Co.
BAILIFF8
Tökum lögtaki, innheimtum skuldir og
tilkynnum stefnur.
Room 10 Thomson Bl., 499 Main
TH0S. H. J0HNS0N og
HJÁLMAR A. BERGMAN,
fslentkir lögfraeBiagar,
Skrifstofa:— Room 8n McArthur
Building, Portage Avenue
Aritun: P. o. Box 1050,
Telefónar: 4503 og 4504. Winnipeg
Gísli Goodman
TINSMIÐUR
VERKSTŒÐI:
Horni Toronto og Notre Dame
Pbone : Helmills
Oarry 2988 Oarry 899
J. J. Swanson & Co.
Verzla með fasteignir. Sjá um
leigu á húsum. Annast lán og
eldsábyrgðir o. fl.
504 The Kenslngton.Port.&Sinith
Phone Main 2597
A. S. Bardal
843 Sherbrooke St.
Selur líkkistur og annast um útfarir.
Allur útbúnaður sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann alskonar minnisvarða
og legsteina.
Heimilis Tals.
Skrifstofu Tals.
Qarry 2151
Garry 300, 375
Giftinga og i i /
Jarðarfara- blom
með litlum fyrirvara
Birch blómsali
616 Portage Ave. Tals. 720
ST. JOHN 2 RING 3
Canadian Art Gallary
585 MAIN ST. VVINNIPEG
Sérstök kjörkaup á myndastækkun
Hver sem lætur taka af sér mynd
hjá oss, fær sérstaka mynd geflns.
Sá er lætur stækka mynd fær
gefins myndir af sjálfum sér.
Margra ára íslenzk viðsklfti.
Vér ábyrgjumst verkiS.
Komi8 fyrst til okkar.
CANADA ART GALLERY.
N. Donner, per M. Malltoski.
Brown & McNab
Selja i beildsölu og smásölu myndir,
myndaramma. Skrifið eftir verði á
staekkuðum myndum 14x20
175 Carlton 8t. Tals. N|ain 1357
Fred Hilson
Uppboðshaldari og virCingamaður
HúsbúnaSur saldur, gripir, jar8ir, fast-
eignlr og margrt fleira. Hefir 100,000
feta gólf pláss. Uppbo8ssölur vorar á
miBvikudögum og laugardögum eru
orSnar vinsælar. — Granite Galleries,
mllli Hargrave, Donald og Ellice Str.
Talsímar: G. 455, 2434, 2889
Lightfoot Transfer Co.
Húsbúnaður og Piano
flutt af mönnum sem
vanir eru því verki.
Tals. Garry 5071 544 Elgin Ave.
Art Craft Studios
Montgomery Bldg. 2152 PortageAv
í gamla Queens Hotel
G. F. PENNY, Artist
Skrifstofu talsími ..Main 2065
Heimilis talsimi... Garr r 2821
Þjóðar þörfin.
Á þessum heimsins, hættu og
sorga stundum, er nauðsynlegt
að þjóðin sé vel heilbrigð. Ef
ein þjóð er veikluð og veik, þá er
henni hætta búin. Heilbrigði er
undirstaða vellíðunar og ef mag-
inn er í réttu lagi þá er öllu
borgið. Til þess að varast veik-
ina verður þú að halda maganum
hreinum. Triners American El-
ixir of Bitter Wine er bezta með-
alið til þess. pað hreinsar inn-
ýflin og gefur styrk. Allir maga-
kvillar, svo sem harðlífi, melt-
ingarleysi, höfuðverkur, tauga-
ósktyrkur, og yfir höfuð flestir
kvillar munu rekast é dyr. Fæst
í lyfjabúðum. Verð $1.50. —
peir sem þjást af gigt geta losað
sig við hana með því að brúka
Triners Iimment, sem er og gott
við tognun, meiðslum, bólgu og
fyrir þreytt liðamót og fætur.
Verð 70c í lyfjabúðum. — Jos.
Triner, Manufacturing Chemist,
1333—1343, S. Ashland Ave.,
Chicago, 111.