Lögberg - 30.05.1918, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. MAí 1918
5
HEIMSINS BEZTA
MUNNTÓBAK
COPENHAGEN
Hefir góðan
keim
Munntóbak sem
endist vel
Hjá öllum tóbakssölum
rannsóknir ihér á landi, einkum
mýragróður. Nú ætlar hann að
gera rannsókn á sæþörungum.
Ritgerð þessi er einkar fróðleg.
J. Gautr. Pétursson, ritar um
vísindi og reynslu, í samanburði
á skepnufóðri. Skýr grein og
athugul.
Sigurður Sigurðsson ritar langa
og fróðlega ritgjörð um hros%a-
ræktun, og Bjöm Bjarnason rit-
ar um búfjármörk og fylgja
myndir af flestum mörkum.
Einar Helgason, árið 1917 og
að endingu ritar Eggert Briem
form. búnaðarfél. samanburð á
því hve mikið fékst í Reykjavík
af nokkrum útlendum vörum,
fyrir kjöt, ull og smjör, fyrir
stríðið og hve mikið fæst nú.
—Frón.
Verzlunarráð Islands.
Verzlitnartíðindi, mánaSarrit. GefiS
út af verzlunarrátSi íslands. Jan.
1918.
Hinn 17. septbr. var kosiS svo-
nefnt “Verzlunarráð fslands”,
eftir lögum er samþykt höfðu
verið af samkomu verzlunar-
manna og kaumanna o. fl. þann
dag í K. F. U. M. hér í bænum.
1. gr. laganna hljóðar svo:
Fulltrúanefnd sú, er kosinn er
samkvæmt lögum þessum, heitir
Verzlunarráð íslands. J?að hef-
ir skrifstofu og varnarþing 1
Reykjavík.
2. gr. Tilgangur Verzlunarráðs
islands, er að vernda verzlun,
iðnað og siglingar, á þann hátt
er nánar er tekið fram í lögum
þessum.
Kosningarrétt til ráðsins hafa
allir kaupmenn, iðnrekendur,
skipaútgerðarmenn og forstöðu-
menn slíkra atvinnufyrirtækja,
er greiða minst 50 króna árstil-
lag til reksturskostnaðar ráðsins
7. gr. “Verksvið ráðsins er:
a) Að svara fyrirspurnum frá
alþingi, stjómarvöldum og öðr-
um um verzlunar-vátryggingar-
toU- og samgöngumál og annað
það, er varðar atvinnugreinar
þær, sem ráðið er fulltrúi fyrir.
Ráðið skal einnig af sjálfsdáð-
um, ef þörf þykir, gera tillögur
eða láta í ljósi álit sitt í þessum
efnum.
b) Að vinna að því, að koma
á festu og saimræmi í viðskifta-
venjum.
) Að koma á fót gerðardóm-
um í mílum, er varða þær at-
vinnugreinar er hér um ræðir.
d) Að safna, vinna úr og birta
skýrslur um ástand þessara at-
vinnugreina, eftir því'sem föng
eru á.
e) að fylgjast með breytingum
á erlendri löggjöf og öðrum at-
burðum, er kunna að hafa áhrif
á atvinnuvegi landsins.
f) Að gefa út blað þegar fært
þykir, er skýri frá því markverð-
asta í viðsikiftamálum innan-
lands og utan. í blaðinu skulu
einnig birt lög og fyrirskipanir
er snerta atvinnumál.
A hverju ári skal gefin út
greinileg skýrsla um atgerðir
ráðsins og reikningur um fjár-
hag þess undanfarið ár”.
Verzlunartíðindi eru málgagn
Verzlunarráðs íslands.
pátttakendur er blaðið köm út
voru 186, mest kaupmenn og at-
vinnurekendur hér úr bænum og
grendinni, og þó nokkrir utan af
landinu, en lítil er þátttaka kaup-
félaganna í félagsskap þessum
enn sem komið er, t. d. hvorki
kaupfélag Eyfirðinga né kaupfé-
lag pingeyjinga, eru á þátttak-
endaskránni, né heldur S. I. S.
J>essir menn skipa nú Verzlun-
arráðið:
Garðar Gíslason, heildsali, form.
Carl Proppé, kaupm., varaform.
ólafur Johnsen, konsúll.
Jón Brynjólfsson, leðursali.
Jes Zimsen, kaupm.
J. L. Jensen-Berg, kaupm.
Olgeir Friðgeirsson, prokúrist,
sem er kjörstjóri ráðsins.
Varafulltrúar: pórður Bjarna-
son, kaupm. og L. Kaaber, kon-
súll.
Endurskoðendur: Pétur J7. J.
Gunnarsson, kaupm. og Jón J?or-
láksson verkfr.
Verzlunartíðindin koma út
, einu sinni á mánuði 8—12 bls. og
kosta 3 krónur árg.
—Frón.
fjallafaðminn fríða. J?ó eru þeir
tiltölulega miklu færri þar, sem
fjöllin eru nærri. peir njóta
þeirra mikið alla daga og ár eft-
ir ár. J?esg vegna fá þeir nóg af
þeim svo þeir kunna ekki að
meta þau eða njóta þeirra til
fulls. Sannast þar sem oftar hið
f ornkveðna, að “enginn veit hvað
átt hefir fyr en mist hefir”. —
“J?ó fótur vor sé fastur
þá fljúga vill önd”.
J?egar löngunin nóg í brjósti
býr, en lánið lætur ekki útþrána
lausa, þá vill hugurinn reika
þangað, sem hann þráir fót að
færa. J?að er betra en ekki, þótt
það sé líkt og þeim svanga er
reykurinn af réttunum.
—þróttur.
Kæra um svik við hermanna
kosningarnar á Englandi.
Skíðaför.
(Brot.)
--------Úti hafði verið hríð í
nokkra daga. Snjónum hafði
hlaðið niður, svo að um alt var
knédjúp fönn. pegar svo er kom-
ið er ekki gott að ferðast nema
á skíðum. Skíðamaðurinn renn-
ur yfir fannbreiðuna eins og
hann væri á sléttu gólfi; hann
hindrar snjórinn ekki frá að fara
ferða sinna.
Og nú kemur Kári gamli.
Hann púar í skeggið og blæs á
snjóinn og snjórinn þyrflast
undan anda hans. Skafrenning-
urinn þýtur af stað yfir leiti og
lág; hann hrekur snjóinn í laut-
irnar, en skefur af hæðunum.
Bráðum hefir hann runnið svo
yfir jörðina að hjam er komið.
Og þegar “fallið hefir mjöll
yfir fold og hjam og yfir fjöll-
unum aftur birtir”, þá standast
skíðamennirnir ekki mátið, þá er
færið fengið. J?eir heillast af að
horfa á fjöllin háu í hvítum
skrúða, þar sem hreina loftið,
hreystigjafinn hefir valdið; að
þeytast um glitrandi hjam und-
ir himinhvolfi bláu, alsettu
stjömum, stafað norðurljósum,
það freistar þeirra, allra, sem
sem reynt hafa,kvenna jafnt sem
karla, svo að þeir leggja af stað
til að sækja sér ögn af því hreysti
magni, því frelsi og þeirri lyft-
andi gleði, sem þama er geymt.
En sumir eiga erfitt aðstöðu.
Fjöllin með snjóinn, hreystina
og framsóknareflinguna eru
langt í burtu og þarf langan
tíma til að komast þangað og
mikið erfiði. pví eru þeir víða
svo fáir, sem leita í fannskrýdda
Á miðvikudaginn var, lagði A.
B. Copp, þingmaður fyrir West-
moreland fram ákveðnar kærur,
32 talsins, í Ottawa þinginu um
kosningasvik, sem í frammi
höfðu átt að vera höfð, sérstak-
lega á Englandi í sambandi við
atkvæði Canadisku hermannanna
sem þar voru. Mr. Copp sagði
að allslags hömlur hefðu verið
lagðar fyrir þá menn, sem ekki
vildu greiða atkvæði með Union
stjórninni. Margir höfðu verið
settir í varðhald kosningardag-
inn, til þess að vama þeim að
greiða atkvæði, að kosningaseðl-
ar hefðu verið settir í atkvæða-
kassana á ólöglegann hátt, og
sem þar hefðu ekki átt að vera.
Eins hefði aðal-umboðsmaður
Lauriers á Englandi, W. T. R.
Preston verið tekinn tvívegis
fastur kosningadaginn, fyrir það
að fara inn í hermanna búðir án
leyfis og án þess að vera í her-
mannabúningi. Mr. Copp krafð-
ist Jiess að rannsóknarnefnd væri
sett í þetta mál, og að i henni
væru hæztaréttardómarar Can-
ada, og að þeir Sir Wilfrid Laur-
ier og Sir Robert Borden nefndu
sinn málafærslumanninn hvor til
þess að hafa eftirlit með málinu.
Uppástunga þessi var studd
af J. Archambault þingmanni
frá Chambly-Verchers, og bætti
hann við að 17 foringjar og 700
hermenn, sem verið höfðu við
æfingar i St. John, Quebec
hefðu ekki getað gefið neitt
heimilisfang, en hefðu sett á
atkvæðaseðla sína, að þeir vildu
greiða atkvæði með þingmanns-
efninu fyrir Chambly- Verchers.
Uppástunga Mr. Copp var feld
með 31 atkvæði, og skiftust þing
menn í flokka við þá atkvæða-
j greiðslu og féllu atkvæði J^annig
I Union 92, Laurier 61.
Dómsmálaráðherra Doherty
lofaðist til þess að láta rannsaka
ákæm Mr. Archambault.
Mál
▼erndar og
▼arðveitir
Eignir yðar
Japan—Kína samningur.
Nýjan samning hafa Japanar
og Kínar gjört með sér um það
hvernig þjóðir þessar eigi að
verjast hættu þeirri er stafar af
Bolshevikingum í Manchuria, og
eins að ef til kemur að standa á
móti því að pjóðverjar nái fót-
festu í Síberíu. Ekki hafa sam-
bandsþjóðirnar tekið neinn þátt
í þessum samningum, þó að þær
að öllum líkindum hafi vitað um
hann og verið honum samþykkar
Frá fslandi.
Skáldið Gunnar Gunnarsson,
hefir nýlokið við bók, sem gefin
hefir verið út af Gyldendals bóka
verzluninni í Kaupmannahöfn.
Bókin kvað hafa inni að halda
mestmegnis smásögur.
Prestkosningar fara í hönd í
þrem prestaköllum á landinu:
Suðurdalaþingum, Odda- og
Sauðanesprestakalli. — Umsókn-
arfrestur er útrunnin um þau öll
og sækja Jiessir: Um Suðurdala-
þing séra Jón Guðnason á Stað-
arhóli; um Odda: prestamir séra
CANAOfií
nntsT
THfATW
ALLA ÞESSA VIKU
Augustus Pitou kemur með
May Robson
Hún cr einhver allra bezti skopkikari
í Ameríku.
Kemur hún nú fram í leiknum
“A Little Bit Old-fashioned.”
VerS a6 kveldinu $1.50 til 25c
Síðdegis $1.00 til 25c.
Vikuna sem byrjar þriöja júni
Robert B. Mantell
í Shakespears leikjum, sem fylgir:
Mánudaginn—“Richelieu”. Þriðju-
daginn—“Hamlet”. Miðvikudaginn—
síðdegis, “Merchant of Venice”; að
kveldinu, “Richelieu”. Fimtudaginn—
“King Lear”. Föstudaginn—“Mac-
beth”. Laugardaginn—síðd., “Romeo
and Juliet”; að kv’eldinu, “Richard
III”.
Póstpontunum sint nú þegar. Sacta-
sala byrjar á föstudaginn.
Verð að kveldinu $2.00 til 25c.
Síðdegis $1.50 til 25c.
Ásm. Guðmundsson, Stykkish.,
séra Guðbrandur Bjömsson”í
Viðvík og séra porsteinn Briem
á Hrafnagili og guðfræðiskandi-
datarnir Erl. pórðarson og
Tryggvi H. Kvaran; um Sauða-
nes sækja: Séra Halldór Bjama-
son á Presthólum, séra Vigfús
pórðarson á Hjaltastað, séra
Hermann Hjartarson á Skútu-
stöðum, séra pórður Oddgeirs-
son á Bjamarnesi og séra Jósef
Jónsson á Sauðanesi. prír þeir
síðasttöldu hafa allir verið að-
stoðarprestar á Sauðanesi hver
eftir annan. — Kosningamar
eiga allar að fara fram í maí.
Walker.
“A Little Bit Old-fashioned”, heitir
leikurinn, sem sýndur er á Walker-
leikhúsinu, það sem eftir er þessarar
viku. Kvag leikrit þetta vera með.
þeim allra skemtilegustu, sem sýnd
hafa verið hér um langan aldur al-
veg dæmalaust hlætgilegt, en þó sér-
staklega hreint að orðalagi og efni.
Næstu viku verða sýndir í röð ein-
ugis leikir eftir Shakespeare, svo sem
“Kaupmað.urinn frá Feneyjum”,
“Romeo”, og “Julia”, “Lear konung-
ur” og “Macbeth”. Eru mörgum Is-
lendingum þeir vitanlega kunnir i
þýðingum séra Matth. Jochumssonar.
Peningar þínir kaupa ekki
hveiti heldur en
betra
PURITY FLOUR
(Govemment Standard)
Ábyrgst gott, hvítt hveiti til allrar
bökunar.
MO RE BREAD
AND
BETTE.R BREAD
140»
PURITV
FtOUR
f7
runiTy olour:
KYNBÓTA-NAUT til SÖLU
-------Hjá------
Akuryrkjumála-Deildinni í Saskatchewan-fylki
FÁST MEÐ AFBORGUNAR SKILMÁLUM
Um nokkur undanfarin ár hefir Stjórnardeild Akur-
yrkjumálanna í Saskatchewan, létt undir með bændum,
er þess höfðu þörf, til þess að útvega sér, kynbótanaut
af allra beztu tegund, og mörg þúsund dollara virði af
nautgripum hefir útbýtt verið á þenna hátt um fylkið.
Bændur, sem hafa stór kúabú, hafa mjög alment
fylgt þeirri reglu, að kaupa fyrsta flokks bótanaut, án
tillits til þess hvað þau kostuðu, vegna þess að þeim liefir
verið það full-ljóst, að á engan annan hátt, gætu þeir eins
ódýrt né jafn ábyggilega, endurbætt nautgriparæktina.
En aftur á móti virðist oss, sem þéir bændur, er fáar hafa
kýr, hafi oft viljað freistast til þess að bjargast við hin
lélegri nautin, og stundum jafnvel fargað úr nautgripa-
hjörð sinni þeim kálfinum, sem líklegastur sýndist til
þess að geta orðið fallegt kynbótanaut. Þessi aðferð er
mjög skaðleg og hefir ill áhrif á nautgriparæktina; þar
sem aftur á móti hitt er kunnugt, að f jarskyld, aðflutt
kynbótanaut, eru lífsskilyrði fyrir góðum og heilbrigðum
nautgripastofni. Þess vegna er það hin mesta fásinna
af bændum, sem nautagripahjarðir hafa, að nota aðrar
tegundir en purebred bull.
Ef að nautgriparæktin í Yestur Canada á að geta
staðið á eins háu stigi og vera þarf, þá mega bændur til
með, að láta ekkert ósparað til þess að vera spr úti um
góð kynbótanaut. — Því fer fjarri að öll kynbótanaut
séu jafn góð, þótt þeim fylgi certificate of pure breeding.
Þó munu þau í flestum tilfellum betri en hin, sem ekki
eru merkt. En yfir höfuð að tala mega bændur ekki láta
sér nægja góð kvnbótanaut—þeir þurfa að fá þau allra
beztu.
The Saskatchewan Department hefir í þessu efni
unnið mikið þjóðnytjaverk, og oft hefir það valið kyn-
bótanaut fyrir bændur, sem eigi þurftu á neinni f járhags-
legri aðstoð að halda, heldur voru í vafa um, hvaða teg-
und þeir skyldu kaupa. Akuryrkjumáladeildin er að
sjálfsögðu fær um að útvega bændum betri kynbótanaut,
á sanngjarnara verði og með þægilegri skilmálum, en
einstakir menn alment mundu geta. Akuryrkjumála-
deildin, kaupir aldrei mjög ódýra tegund kynbótanauta,
og ekki heldur þá dýrustu, þótt eigendurnir meti þær
hátt; heldur einungis eru gripir þessir keyptir eftir kyn-
ferði og hreysti, þar kemst ekkert annað að. — Þetta er
einmitt sá tíminn, er bændur yfirleitt eru vanir að líta
helzt eftir kynbótanautum, og er Deildin því viðbúin að
láta ekki á sér standa í þessu efni.
Hér fylgja á eftir nokkur helztu atriðin, er til greina
koma í sambandi við sölu Akuryrkjumáladeildarinnar á
kynbótanautum.
Allar keyptar skepnur verða vandlega skoðaðar af
þaulvönum sérfræðingum, og aðeins teknir úrvalsgripir.
Kynbótanaut, sem kaypt hafa verið og borgað fyr-
ir, verða send tafarlaust upp á nafn eiganda; en sé um
afborgunarskilmála að ræða, þá er aðeins sent eftirrit
af kaupbréfinu til kaupanda, þar til gert er út um
greiðsluna.
Deildin gerir alt, sem í hennar valdi stendur til þess
að greiða fyrir flutning skepnanna, en enga ábyrgð tekur
hún á þeim, eftir að þeim hefir komið verið á næstu járn-
brautarstöð við kaupanda. Kaupendum eða umboðs-
mönnum þeirra.verður tilkynt, hvenær gripurinn kemur
á járnbrautarstöðina, og taka þeir eftir það við allri
ábyrgðinni.
Sérhver gripur verður greinilega merktur. En fari
svo að einhver breyti markinu á grip, sem seldur hefir
verið gegn afborgunum, skal sá sæta fjárútlátum frá $50
til $200. Séu margir gripir sendir í einu með sama
vagninum, verður sérhver eigandi að taka þann gripinn
sjálfur, er honum tilheyrir.
Allir kynbótagripir, sem Deildin kaupir verða í góðu
ásigkomulagi, hraustir og feitir, en þó ábyrgist stjÓTnin
engan grip.
öllum kynbótagripum, sem halda skal undir, (törf-
um 18 mán., og hrútum og göltum ársgömlum) má skila
aftur, ef nægileg sönnun fylgir, að þeir hafi eigi orðið að
gagni, gegn því að taka aðrar skepnur í staðinn, og ann-
ast um flutningsgjald og fóður.
Kaup á kynbótagripum, samkvæmt reglum þessum,
geta verið hvort sem vill fyrir peninga út í hönd, eða part
verðs í peningum og upp á lán að nokkrum hluta. Lán
verður þó ekki gefið lengur en til þriggja ára, og ekki
hærra en sem nemur 75 per cent af verði kynbótagripsins.
Til þess að menn geti fengið gripi, að einhverju leyti
upp á lán, verða þeir að vera bændur—hafa lönd, og full-
nægja eftirfylgjandi skilyrðum:
(a) vera meðlimur grain growers félags; eða
(b) meðlimir agricultural society,
(c) hluthafi eða meðlimur í rjómabúi starfræktu af
Saskatchewan Co-operative Creameries, Ltd;
(d) hluthafi eða meðlimur í kynbótafélagi, live stock
improvement association, löggiltu samkvæmt
The Agricultural Co-operative Association Act.
(Eintak af þessum lögum, og gildandi aukalög-
um má fá ókeypis með því að skrifa til The De-
partment og Agriculture).
(e) Menn sem leystir hafa verið úr herþjónustu (ex-
soldiers), og sem skrifari The Returned Soldiers
Employment Commission of Saskatchewan hefir
mælt með.
Engir gripir verða sendir fyr en umsækjandi, hefir
trygt sér fullkomin meðmæli, frá einhverju af áður-
greindum félögum, sé um lárisaðferðina að ræða.
Samkvæmt lögum þessum krefst stjórnin fullkom-
innar tryggingar af kaupanda, og verður sú trygging að
standa ósnert, þangað til upphæðin er greidd að fullu.
1 samningi þeim áskilur Akuryrkjumáladeildin sér
fullan rétt til þess að taka gripina aftur, ef live stock
commissioner, eða annar þar til kjörinn maður, álítur að
gripirnir sæti eigi nægilega góðri meðferð og hirðingu.
Öll kynbótanaut, sem seld verða samkvæmt áður-
greindum reglum verða skrásett, sem fyrsta flokks
gripir.
Kaupandi getur greitt “notes” hvenær sem honum
sýnist fyrir gjalddaga, en það hefir engin áhrif á rent-
urnar.
Sé um láns-aðferðina að ræða, verður að fullnægja
eftirfarandi skilyrðum:
Umsóknum, stíluðum til The Live Stock Commis-
sioner, verður að fylgja sá hluti kaupverðsins, er lögin
gera ráð fyrir. Cheques verða að vera borganlegir til
The Department of Agriculture, Regina. Engir aðrir
Cheques teknir gildir.
Nema öðru vísi sé um samið greiðast nóturnar þann-
ig: Helmingur við lok yfirstandandi árs, en hinn part-
urinn innan hinna næstu tólf mánaða þar á eftir. Vextir
6 af hundraði.
1 viðbót við það, sem að áður hefir verið tekið
fram, má krefjast þess að hverjum hónda, er þátt á í
mjólkurbúi, sem stjómað er af Saskatchewan Co-opera-
tive Creameries, Limited, að hann undirskrifi heimild við
forstjóra slíkra mjólkurbúa, að draga frá sem svarar
helmingi af andvirði rjómans, þangað til öll skuldin er
greidd.
Þessi Cheques ættu að svara til 50 af hundraði af
mánaðarviðskiftum við mjólkurhúið. En sé þessu ekki
fullnægt, verður hlutaðeiganda tilkynt fyrst, og síðan
dregin frá 50 per cent af hverjum rjóma-cheque.
Áður en gripir verða sendir samkvæmt lánsskilyrð-
um, gengur Akuryrkjumáladeildin úr skugga um að um-
sækjandi sé fær um að taka við gripnum og sjá honum
fyrir sæmilegri aðhúð og fóðri.
Ekki má selja nokkum grip, sem fenginn hefir verið
samkvæmt láns-aðferðinni, nema að fengnu leyfi frá
Live Stock Commissiouer, fyr en andvirðið er greitt að
fullu.
Deildin áskilur sér fullan rétt til þess að láta skoða
gripi, sem seldir hafa verið gegn afborgunum, nær sem
vera skal. Og er þess vænst að kaupendur aðstoði skóð-
unarmennina á allan hátt.
Akuryrkjumálaráðgjafinn getur hvenær, sem vera
skal, tekið gripi aftur eða látið þá til annara manna, ef
sannast hefir að þeir hafa ekki sætt viðunanlegri með-
ferð, og mnn jafna við kaupendur, sem þannig stæði á,
fjárhags-mismuninum.
Allar umsóknir nm kynbótagripi, verða að vera uppá-
ritaðar og samþyktar af forsetum, þeirra áðuraefndu fé-
laga, sem umsækjandi er í. —
Gripir verða sendir samkvæmt eftirfylgjandi skil-
yrðum (aðrar ástæðnr ekki teknar til greina):
OPTION 5—Part Cash, Part Credit.
For Pure Bred Males only.
1. Ekki meira en 50 per cent. lánað.
2. Nótumar greiðist, sem hér segir: Helmingur
fyrir lok þessa árs, en hinn hlutinn innan næstu tólf mán-
aða þar á eftir, nema því aðeins að gripurinn sé eigi
sendur fyr en eftir 1. okt., má þá framlengja afhorgun-
inni um eitt ár.
3. Samkvæmt þessum skilyrðum má eigi senda til
einstaks félags eða einstakra manna, meira en tvö kyn-
bótanaut, þrjá hrúta og einn gölt.
OPTION 6—Part Cash, Part Credit.
For Pure Bred Bulls only.
1. Eigi hærra lán en 75 per cent.
2. Nótur borganlegar á sama hátt og tekið er fram
í næstu grein á undan.
3. Undir þessnm skilyrðum má eigi senda nema eitt
kynhótanaut til félags, eða einstaklings (og gengur
deildin úr skngga að umsækjendur fullnægi skilyrðum
1 eða 5).