Lögberg - 20.06.1918, Blaðsíða 6
6
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 20. JÚNÍ 1918
Æska er
æfi skölfc,
Alt, sem
lærist þá.
F arfuglamir.
Er svífur að hausti, dagana styttir og sval-
viðrin láta fara að bera á sér, blóm og grundir
fölna, þá fara fuglamir að hugsa sér til hreyfings
og búa sig til langferða sinna suður til heitari
landa, og áður en snjórinn breiðir hvíta hjúpinn
yfir sveitirnar okkar, tún og engi, eru farfugl-
arnir farnir að hypja sig af stað í stórum hópum
til fjarlægra landa, og meðan langur og kaldur
vetur ríkir á Norðurlöndum, ala farfuglamir ald-
ur sinn í skjóli pálmatrjánna í sígrænu skógunum
í hitabeltinu. Þegar svo vorsólin vekur náttúr-
una norður í löndum af vetrarsvefni sínum og
vorlífið kviknar af nýju og náttúran brýtur af sér
vetrarhaminn, þá snúa þessar vængjuðu verur
aftur til okkar með gleðikvaki og söng, til þess að
lifa hér sumarið með okkur og fvlla ár og vötn,
sker og strendur, f jöll og móa, heiðar og dali með
vængjaþyt sínum og öllum sínum margbreytta
som.
Það hlýtur í sannleika að vekja aðdáun vora,
að smáfuglarnir með litla kroppinn sinn, sem sýn-
ist svo veikbygður og með grannvöxnu, smágerðu
limina sína, skuli hafa þann kraft og þrótt í sér
fólginn, að geta á stuttum tíma flogið mörg
hundrað mílur lengst norður úr löndum og alt
suður að miðjarðarlínu. En þetta eiga þeir að
þakka hinni einkennilegu líkamsbygging siniii.
Frægur frakkneskur náttúrafræðngur, Pouchet,
hefir sagt með réttu, að engin önnur skepna sýni
eins mikla eðlishvöt og eins mikinn þrótt og fugl-
arnir á þessum langferðum sínum. Mennimir
verða að hafa við hendina reikningsverkfæri og
gjöra fyrirhafnarmikla útreikninga til þess að
finna leið vfir höfin, en fuglarnir fara án veg-
leiðslu og áttavita beina leið úr heimskautalönd-
unum suður að miðjarðarlínu.
Flugfærum fuglanna er svo ágætlega fyrir
komið, til að geta farið á hraðri ferð. Vöðvarnir,
sem hreyfa vængina, eru svo feiknasterkir. Sumir
fuglar, svo sem svölurnar, fljúga svo fljótt og vel,
að það sýnist ekki vera nema leikur fyrir þær að
svífa um loftið. Auk vöðvaaflsins, sem er svo
mikið hjá fuglunum, léttir þeim líka flugið loft
það, sem líkamshitinn þynnir, og
fyllir allar holur líkamans og jafn-
vel fótleggina, svo að þeir þurfa að
hafa svo lítið fyrir að lyfta sér upp
í loftið.
Hin smágervu líffæri fugl-
anna bera tiltölulega að styrk-
leik af vélum þeim, sem gufu-
skip og járnbrautarvagnar
ganga fyrir. Æðar og vöðvar
fuglanna, þó smágjörvar séu, halda
og endast miklu betur en ramm-
gervustu vélahjól og sterkustu
steypujáraspípur. Eins og örskot þýtur fuglinn
alt að tíu mflur á klukkutímanum og það eins og
hann væri bara að leika sér. Eimreið með fullri
ferð nær ekki þeim hraða nema með því að eyða
ósköpum öllum af kolum og vatni, og með reykj-
arsvælu og gufustrókum, hjólaglamri og pípu-
blæstri og háreysti mikilli, sem hreyfivél fuglsins
hefir ekkert af að segja.
A langferðum sínum fylgja fuglamir stöðugt
sömu leið og breyta ekki út af því; þeir hafa svo
næm skynfæri, einkum sjón og lykt. Söguritarar
færa í frásögur, að daunin af öllum þeim náum,
sem lágu á jörðinni eftir orustuna við Farsalos
á Grikklandi, hafi gint þangað hræfugla bæði frá
Asíu og Afríku. Aleköander Humboldt fullyrðir
líka, að ef hestur eða kýr sé drepin í eyðlegustu
héruðum í Andesfjöllum (í Suður-Ameríku), þar
sem enginn iiafi grun um, að kongóra-fuglar væru
til, líði ekki á löngu þangað til einhverjir af þess-
um hræsólgnu ránfuglum þefi hræið uppi og
flykkist þangað hópum saman.
Flestir fuglar eru yfirleitt fremur fjörmiklir
og epu á daginn á einlægu iði, og fara þá lengri og
skemmri ferðir, annaðhvort til að leita sér fæðu
eða til þess að sjá fyrir skýli og hæli, eða þeir
flytja sig úr stað vegna árstíðanna, eða leita uppi
staði, þar sem þeir geti felt fjaðrir. Loks fara
þeir sérstakar ferðir til þeirra staða, þar sem þeir
tímgast, byggja hreiður sín og unga út eggjunum,
og þar er vanalega talið, að þeir eigi heima.
Fuglaferðirnar eru því margs konar eftir
því, hver er orsök og takmark þeirra, en aðallega
má þó skifta öllum fuglum í þrjá flokka: farfugla,
flökkufugla og stöðufugla.
Flökkufuglar breyta stöðugt verustað sínum,
en flytja sig þó aldrei svo langt, að þeir fari út
fyrir það jarðbelti, sem þeir verpa og eiga heima
í. Og þessar ferðir þeirra eru ekki bundar við
neinn vissan árstima og fara ekki í neina vissa átt.
Hrafnar og máfar eru flökkufuglar. Einstöku
sinnum kemur það fyrir að þessar ferðir þeirra
verða líkar ferðum farfuglanna, en það er ekki
nema örsjaldan, eins og t. d. 1863, að kirgisiska
heiðarhœnan, sem á heima á heiðum og eyðimörk-
um Mið-Asíu, flutti sig hópum saman út um öll
lönd Evrópu, alt norður í Noreg og hvarf svo aft-
ur árið eftir, án þess að nokkur hafi getað gjört
sér grein fvrir þessu, og sást aldrei síðan í
Evrópu.
Þvínæst mitt á milli farfugla og flökkufugla
eru þeir fuglar, sem lifa á sumrin á háfjöllum og
þar sem kaldast er, en leita sér skjóls á vetuma
sunnan til í Noregi eða þá í Mið- og Suður-
Evrópu; þó standa þeir nær farfuglum, því að
þeir dvelja ekki á vetuma þar sem þeir ^nnars
verpa. Snjótitlingurinn okkar er einn af þessum
fuglum, og margir af sundfuglunum okkar eru
líka sunnan til í Noregi.
Stöðufuglar nefnast þeir fuglar, sem ekki eru
á löngu ferðalagi, eru svo að segja að jafnaði á
sömu stöðvum og fara að eins skamt í burtu, ekki
lengra en svo, að þeir koma heim aftur sam-
dægurs.
Sumir flökkufuglar eru beinlínis frægir af
flakki sínu, af því að þeir fara svo langar leiðir.
Máfar á vestindisku eynni Barbados fljúga á
hverjum degi yfir 68 mflur út yfir hafið, til að
leita sér fæðu á eyju einni svo langt í burtu. Far-
dúfav, í Ameríku, er orðin fræg fyrir ferðiraar,
sem hún fer í afarstórum hópum þangað, sem
eiki- og beykiskógar eru fyrir. Skararnir eru svo
þéttir, að þeir 'bókstaflega byrgja fyrir sólu o^
kasta löngum skugga af sér yifir jörðina. Dúfna-
skarinn er svo mikill og langur, að augað getur
langtfrá því litið hann allan í einu eins langan og
hann er; á stundum er hann fulla þrjá tíma að
fara framhjá. Dúfumar fljúga 9 mílur á klukku-
tímanum, svo að hópurinn er þetta 26 til 39 mílur
á lengd. Allur þessi herskari ferðast aldrei um
nætur, aðeins um daga. Þegar fer að skyggja,
henda dúfurnar sér þreyttar og örmagna niðu í
næstu skóga til að hvíla sig eftir flugið. Þær
setjast þá í svo þéttum hópum í trén, að digrar
greinar bogna undir þeim og brotna stundum, svo
að skógurinn eyðilegst. En þegar fuglarnir hafa
tekið á sig náðir, streymir fólk að úr sveitunum
og fuglarnir sumir era þá svo þreyttir og sofa svo
vært, að þeir vakna ekki einu sinni við byssuskot-
in, sem dynja á þeim og fella svo mikið af þeim,
að þeir eru saltaðir niður í tunnur og sendir burt
sem verzlunarvara.
Farfuglar eru þeir, sem flytja sig þaðan, er
þeir eiga heima, reglulega á vissum árstímum og
halda langt í burtu í fjarlæg lönd til þess að
dvelja vetrarlangt í mildara loftslagi, en hverfa
svo aftur á vorin heim tfl átthaganna. Þeir halda
brott, bæði af því að bjargræði vantar og vetrar-
kuldarair byrja, og svo af meðfæddri einkenni-
legri ferðafýsn. Ferðimar liggja líka í vissa átt
og það er á vissum tímum, sem einhver ómótstæði-
leg ferðalöngun grípur þessa fugla. Þegar fer
að kólna og skorkvikindi og smádýr, sem heilir
fuglahópar lifa á, fara að hypja sig niður í jörð-
ina, þá verða fuglamir að leita sér fæðu í öðrum
héruðum, eins og t. d. söngfuglar og vaðfuglar
þeir, sem lifa á skorkvikindum, og svo ránfuglar
þeir, sem aftur lifa á þeim fuglum. Þeir, sem
lifa á jurtafæðu og hafa lítinn f jaðraham til skýl-
is gegn vetramepjunni, verða líka að halda burt,
og kuldinn rekur sundfuglana lengst norðan úr
höfum suður á við, þó að þeir hafi næga fæðu all-
an veturinn í norðurhöfunum. Jafnvel fuglateg-
undir, sem geta þolað kuldann, svo sem gæsir,
endur o. fl., verða að halda burt, þegar vötnin
fyllast af ís og hann bannar þeim öll bjargræði.
Mesti hluti þeirra fugla, sem eiga heima í
kalda og tempraða beltinu, eru farfuglar og um
þessi belti eru regulegar fuglafarir. En þeir
fuglar, sem eiga heima í hitabeltinu, svo sem
páfagaukarnir, fara aðeins á flakk til að leita sér
nýrra forðabúra, jafnóðum og björg þrýtur fyrir
þeim. Fuglaheimur þeirra héraða, sem liggja í
kalda og tempraða beltinu, breytist því og fer eft-
ir árstíðum, eftir því sem sumar tegundir koma
og aðrar fara.
Þessar eru almennar reglur fyrir ferðalagi
farfuglanna:
Fjöldi af fuglum, sem verpa í löndum norður
í höfum, einkum sundfuglar og vaðfuglar, flytja
sig þegar vetra tekur suður á við, til Mið- og
Suður-Evrópu og aðrir, sem verpa í tempruðu
löndunum, fara til Suðurlanda og Norður-Afríku,
úr Síberíu til Indlands og eyjanna þar í nánd, til
Birma, Siam og Suður-Kína, og úr Norður-Ame-
ríku til Suðureyjanna og Mið-Ameríku. Það er
farið í suðurátt, en oft nokkuð austur eða vestur
á við, eftir því hvemig landslagið er í löndunum,
sem farið er um, og líka af þeirri ástæðu, að sum-
ir fuglar kjósa helst að fara fram með ströndum,
aðrir fram með fjöllum og enn aðrir yfir sléttur
og láglendi eða með fljótum fram. Farfuglamir
úr Síberíu verða þannig að halda fyrst langa hríð
austur á við yfir Japanseyjar, áður en þeir ná
vetrarvist sinni í mildara loftslagi. Um Evrópu
er einkum fylgt þremur aðalleiðum:
1. Úr Ishafinu fram með ströndum Noregs,
Jótlands og Hollands, og eru það margir strand-
fuglar, sem fara þá leið.
2. Yfir láglendi Norður-Evrópu, frá Skáni
og Danmörk, yfir Þýzkaland og Frakkland og
þaðan annaðhvort um dalverpi Languedoc’s eða
um Rín- og Róndalinn til Miðjarðarhafsins; þessa
leið halda margir vaðfuglar, villigæsir, lævirkjar,
starfuglar o. fl. Sumir fara lengra, yfir Miðjarð-
arhaf til Norður-Afríku, einkum Egyptalands og
einstaka jafnvel alla leið suður að Senegal og Kap
syðst á Afríku.
3. Þriðja leiðin er farin fram með stóránum
í Austur-Evrópu, fyrst niður Ader, Weichsel eða
Dóná, svo um Dónálöndin eða fram með Dnjepr,
Doh og Volga til Svartahafs eða Kaspíuhafs;
setjast sumir þar að, en aðrir halda áfram alla
leið til Indlands; þessa leið fara einkum margir "
vað- og sundfuglar.
Farfuglarnir frá Grænlandi fara sumir suð-
vestur til Ameríku og um Bandaríkin, en aðrir í
suðaustur, yfir ísland og Noreg og suður á bóg-
inn. Þeir fuglar, sem eiga heima svo norðarlega,
eiga fyrir höndum feikna,langferð, frá Grænlandi
til Norður-Afríku 700—800 mílur.
Á suðurhveli hnattarins eru líka farfuglar.
Þeir fara norður á bóginn, t. d. úr Suður-Ameríku
norður í Brasilíu, eða úr Austur-Ástralíu norður
til Nýja-Hollands eða Nýju-Guineu og eyjanna
þar í nánd.
Tíminn, sem fuglamir fara burt á, er mis-
munandi, eftir því hver fuglategundin er, en hver
tegund hefir sinn ákveðna tíma.
Margir farfuglar búa sig undir ferðalagið og
safnast þá í stórhópum og venja ungana við að
fljúga, svo sem svölur, starfuglar og storkar. Þeir
halda þá þing í nokkra daga á sama stað, taka sig
svo skyndilega upp og halda brott. Sumir kanna
þá líka liðið, hrinda sumum burt, og sagt er jafn-
vel, að þeir drepi þá stundum. Svölurnar safnast
í herskörum hundruðum saman, sem hvfla sig á
múrbrúnum ,á háum byggingum, á fréttaþráða-
^tólpum og líka í sefinu við fersku vötnin. Svo eitt
fagurt kveld taka þær sig allar upp alt í einu, eins
og merki væri gefið, fljúga um stund upp á við í
livirfingum til þess að ná flughæðinni og hverfa
svo í fjarska.
Framh.
Tíminn,
Notaðu tímann vel. Fyrsta skilyrðið fyrir
því .er það að þú farir snemma á fætur og byrjir
strax að vinna það, sem er þér eða öðrum til
gagns. Þetta getur ef til vill verið óþægilegt í
fyrstu, af því þú hefir vanið þig á það að sofa
langt fram á dag, en þegar frá líður, þá verður
þér það ekki að eins þægilegt, heldur nauðsynlegt,
þá viltu eklá missa af því að sjá fegurð náttúr-
unnar um sólaruppkomu, heyra fuglasönginn og
njóta ánægjunnar af vinnu þinni.
Ef þú ferð 1 tíma fyr á fætur á morgnana
græðir þú 30 daga á einu ári eða næstum 1 ár á
hverjum 10 árum.
Vísindamaður í Vesturheimi sagði nýlega á
fundi: ‘ ‘ Eg ætla ekki að halda fyrirlestur nema í
5 mínútur, mikið má gjöra og segja á 5 mínútum|
Á 5 mínútum má kveikja eld á ýmsum stöðum i
stórum bæ og brenna allan bæinn, bora gat á skip,
svo það sökkvi, ráða manni bana, vinna það verk,
sem menn iðrast eftir alla æfi, eða menn glata
sálu sinni með. Esaú var ekki fimm mínútur að
selja frumburðarrétt sinn, á 5 mínútum getíi
menn sett blett á mannorð sitt, sem ekki verður af
l>vegið með öllu því vatni, sem rennur í öllum ám
á jörðinni, en leggur foreldrana í gröfina af sorg.
En eins og það er hægt að gjöra svona mikið
ilt á 5 mínútum, eins er líka hægt að gjöra mikið
gott á 5 mínútum. Á 5 mínútum geta menn unnið
þess lieit að nota tímann vel fyrir sig og aðra og
ganga í bindindi með ofnautn á tíma og öðru því,
sem þeim er til skaða. Þá ákvörðun er eins hægt
að gjöra á 5 mínútum eins og á 5 árum.
Meðan eg beið eftir morgun- og miðdags-
matnum mínum, skrifaði eg á hveijum degi nokk-
ur orð; þetta varð með tímanum að nokkuð stórri
l)ók, sem nú er lesin af mörgum, ef til vill einhverj-
um til gagns.”
Jón Barford sagði: Níska er talin löstur, en
þó er ein undantekning, menn eiga að vera nískir
á tímann, því það er dyggð.
Ef eg hefði ekki þurft að eyða tíma til þess
að tala við leiðinlegt fólk, sem engan gagnlegan
ásetning hafði, eða bíða eftir mönnum, sem höfðu
mælt sér mót og komu of seint, af því þeir kunnu
ekki að meta tímann, þá væri eg búinn að vinna
miklu meira til gagns en eg hef gjört.
Þó menn missi peninga, og jafnvel heilsuna,
þá geta menn oft fengið hvorttveggja aftur, en
tíma, sem menn hafa eytt til ónýtis geta menn
aldrei fengið aftur, því menn eldast með hverjum
degi og geta ekki orðið ungir aftur.
Auður auðmannsins er gull og demantar,
Auður hvers manns er tíminn, sé hann vel notað-
ur. Hann skiftist í mínútur, eins og auður auð-
mannsins í dollara. Fari hann illa með dollarana
og þú með mínúturnar, þá verðið þið báðir fá-
tækir.
Gamli og ungi vinur. Settu ekki of lágt
verð á 5 mínútur. A ekki lengri tíma getur þú
eyðilagt mannorð þitt og lífið, hvort það verður
stutt eða langt. Á jafnlöngum tíma getur þú lagt
grundvöll framtíðar þinnar, og ráðið það af, sem
mörgum getur orðið til góðs.
“Margt smátt gjörir eitt stórt”. Vatnsdrop-
arnir mynda sjóinn og sandkornin yfirborð jarð-
arinnar. T. G.
Dugandi drengur.
Holland er á sumum stöðum svo lágt, að
menn verða að gena mikla garða úr mold, til þess
að verja sjónum landið. Þessir garðar eru kall-
aðir flóðgarðar.
Það ber við að öldumar brjóta garðana og
brýzt þá sjórinn inn um skarðið og flæðir yfir
landið.
Með þessum hætti hefir skolað burtu bæjum
og nautum og sauðum og margir menn hafa
druknað.
Eitt sinn gekk lítill drengur heim til sín að
kveldi dags. Þá sá hann holu í einum flóðgarðin-
um og vætlaði sjór í gegnum.
Faðir hans hafði oft sagt honpm að væri vatn-
ið ekki stöðvað, þegar svo bæri undir, þá stækkaði
holan og rynni sjóflóð yfir landið.
Honum kom fyrst til hugar að hlaupa heim
og segja föður sínum frá. En svo hugsaði hann
með sjálfum sér: “Myrkrið gæti dottið á áður
en faðir minn kæmi og þá gætum við ekki fundið
holuna. Eða hún getur stækkað svo, að þá verði
of seint að fylla hana. Eg verð að vera kyr og
gera það sem eg get, þótt eg sé einn”.
Litli drengurinn settist nú niður og stakk
hendinni inn í holuna til þess að stöðva vatns-
rennslið. Þarna var hann klukkustund eftir
klukkus^tund í myrkrinu og kuldanum, alla lið-
langa nóttina.
Um morguninn gekk maður þar framhjá og
sá hann. Hann skildi ekki í, hvað drengurinn væri
að gera þama. Svo hann kallaði til hans.
“Hvað ertu að gera þarna, drengur minn?”
“Það er hola í flóðgarðinum”, sagði dreng-
urinn, “og eg er að stöðva vatnsrenslið”.
Veslings drenghnokkinn var svo kaldur og
þreyttur, að hann gat naumast talað.
Maðurinn flýtti sér þangað og tók drenginn
burt. Hann tróð upp í holuna. Nú var landinu
borgið og það áttu menn að þakka þessum litla og
duglega Hollendingi.
—Unga ísland.
Reynsla Gladstones.
Kona Gladstones, stjórnmálaskörungsins
fræga á Englandi, sagði að maður sinn hefði tvær
kápuraar. Hann gæti verið ofsabráður, óþolin-
móður og ófyrirlátssamur; en hann gæti líka
stjóraað svo geði sínu, að hann varpaði frá sér
öllu, sem veiklað getur og ýft geðsmunina. Þessu
valdi yfir sjálfum sér náði hann fyrst og fremst
með meðfæddu viljaþreki og þvínæst með stöðugri
bæn til guðs um sigur í þessari baráttu við sjálf-
an sig.
Svona tókst Gladstone að ná valdi yfir sjálf-
um sér með bæninni, og það liefir öðrum tekist
miljónum saman.
Fallegar visur.
Látum skotið fari’ á flot
á fagran græði.
Vindur lotinn varpar mæði.
Varla er brot á ránarklæði.
Gnindin vallar glitruð hlær.
glóir á hjalla og rinda.
Sólarhallar blíður blær
blæs um fjallatinda.
Hvað gera skal.
1. Veitið athygli jurtunum, í sambandi við
sól og skugga.
2. Veitið athygli einstökum trjám og þeim,
sem í skóginum vaxa.
3 Veitið athygli fólkinu, sem lifir í sólskini.
Reikningsdœmi.
1. Anna er 24 ára gömul. Þegar Gunna
var helmingi yngri en Anna er nú, var Anna
jafngömul og Gunna er nú. Hve gömul var
Gunna?
2. Tveir skautamenn, Árni og Bjarni, renna
sér eftir hringbraut. Ef þeir fara báðir í sömu
átt verður Árni á undan Bjarna og nær honum
aftur eftir 21 mínútu. Fari þeir sinn í hvora átt-
ina, mætast þeir eftir þrjár mínútur. Hve lengi
eru þeir að fara hringinn hvor um sig?
3. Járnbrautarlest fer fram hjá helmingi
fleiri símastaurum á mínútu, en hún fer mílur á
klukkustund. Hve margar álnir eru á milli
staura?
4. Blekflaska kostar 2 dali og 50 cent. Nú
kostar blekið sjálft 2 dölum meira en flaskan tóm.
Hvað kostar þá hvað um sig?
5. Jón kom í matinn hjá Sigurði og Sveini.
Sigurður lagði til 5 kökur og Sveinn 3. Allir
borðuðu þeir jafnmikið af þessum 8 kökum. Jón
borgaði fyrir sig með 8 skildingum.
Hvað mikið átti hvor hinna að fá af því?