Lögberg - 25.07.1918, Síða 1
SPIERS-PARNELLBAKING CO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYNIÐ ÞAI
TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG
Þetta pláss er til sölu
Talsímið
Garrv 416 eða 41T
w
31. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 25. JÚLÍ 1918
NUMER 30
■■ ■ ■ ' 7^-7=-"™ ■ ■: i" ■ ... ... ■. "
Vélamaður á skipinu ”Niobe“ í Halifax
Chr. Olafsson
Hann lagði af stað austur til Halífax 21. maí síðastl. og fékk
stöðu sem undir-vélameistari á heræfingaskipinu “Niobe”. —
Christian yngri er fæddur í Winnipegborg 20. marz 1887, sonur
Mr. Chr. ólafssonar umboðsmanns fyrir New York Life félagið,
og konu hans ólafar Hannesdóttur, er lézt 31. maí 1901. —
Christian gekk ungur í þjónustu Manitoba Brigde & Iron Works
fólagsins, og hefir unnið þar ávalt síðan, þar til hann innritaðist í
herinn. Hann er efnismaður, gætinn og ráðsettur og hefir unnið
sér alment traust þeirra manna, er við hann hafa haft nokkur mök.
Fylgja honum hugheilar ámaðaróskir ættingja og vina í hinum
nýja verkahring hans.
FRAEKLAND
Forseti Islendingadagsins í Winnipeg 2. ág.
4 Dr. M. B. Halldórsson
ISLAND
V estur-vígstöðvamar.
SíCan að blað vort kom út síðast
hefir uppihaldslaus orusta staðið yfir
á vestur vígstöðvunum. Aðal orust-
an eða áhlaup það, sem Þjóðverjar
gjörðu, var á 50 mílna svæði frá
Chateau Therry til Messiges, og
komust þeir lítið eitt áfram á parti
at' því svæði, og á einum stað kom-
ust þeir á tólf mílna svæði suður yfir
Marne ána, en til beggja hliða var
þeim haldið í skefjum, en þó sérstak-
lega þeim fylkingararminum sem
Bandaríkjamenn mættu, þvi þar kom-
ust þeir ekkert áfram. En þegar
þessi sókn stóð sem allra hæst og var
sem allra grimmust og her Þjóð-
verja hafði brotist áfram og myndað
odda í áttina til Rheims, þá gjörði
hershöfðingi semherja Foch grimma
atlögu á norðvestur fylkingararm
Þjóðverja á 25 mílna löngu svæði
frá Soissons, og nærri því alla leið til
Chateau Therry. Svo óvænt var
þettá áhlaup á hendur Þjóðverja að
þeir þurftu nokkurn tíma til þess að
átta sig á þvi, hvað komið hafði fyrir.
En hinir biðu ekki. Á tiltölulega
stuttum tíma frá því að dagur rann
á föstudagsmorguninn, og þar til
snemma í eftirmiðdag höfðu sam-
herjar farið sex mílur áfram í vestur
frá Soissons, en þar sóttu Banda-
ríkjamenn fram, og þeir einir höfðu
um sama leiti verið búnir að taka
4000 fanga og ógrynni af öðru her-
fangi, og svo fljótt fóru þeir yfir að
riddaraliðið var kallað til aðstoðar,
og um kveldið v'oru herbúðir Banda-
ríkjamanna allar komnar inn fyrir
línu þá, sem Þjóðverjar héldu að
rnorgni. Einnig sóttu Frakkar hart
fram, svo að Þjóðverjar gátu ekkert
viðnám veitt, og tóku mikið af föng-
um og öðru herfangi.
Sjálfsagt hefir það verið aðal til-
gangur hershöfðingja Foch með þess-
ari atlögu sinni að neyða Þjóðverja
til þess að draga her sinn til baka á
því svæði er hann hafði komist yfir
Marne ána. Þetta hefir ekki að eins
tekist, því nú hafa ÞJjóðverjar orðið
að hörfa til baka með alla sína inenn
yfir ána, heldur hefir áhlaup þetta
magnast svo mjög, að bardagasvæðið
er nú sagt að nái yfir 100 mílur, og
alstaðar á þvi svæði sækja banda-
menn hart fram, og mótstöðumenn
hafa ekki enn, eftir að orustan hefir
staðið yfir í heila viku, getað stefnt
stigu fyrir þeim.
Þeir hafa náð haldi á flutnings-
brautum Þjóðverja, sem þeir notuðu
og þeim voru nauðsynlegar til að-
dráttar fyrir þann hluta þýzka hers-
ins, sem atlöguna gjörði, á milli
Chaetau-Terry og Massiges, svo
Þjóðverjar verða nú að fara 25 til
30 mílur vegar til þess að koma vist-
um og öðrum nauðsynjum til hers-
ins. Einnig hafa sambandsmenn
komist i skotmál við járnbrautir
Þjóðverja, sem á bak við herstöðv-
arnar liggja.
Krónprinsinn þýzki, sem stjórnar
þeint parti þýzka hersins, sem sam-
bandsmenn hafa ráðist á, hefir kall-
að sér til hjálpar hverja varasveitina
á fætur annari, en ekkert hefir dugað
til þess að stemma stigu fyrir fram-
sókn Bandaríkjamanna og Frakka.
Og þegar þetta er skrifað kemur sú
frétt, að Þjóðverjar séu farnir að
sprengja upp vopnabúr sín á bak við
herfylkingar sínar, og brenna upp
bæi.
Hvað stórkostlegur þessi bardagi
getur orðið er nú með öllu ómögu-
legt að segja, hvort að hann eigi eftir
að verða allsherjar sókn af hendi
sambandsmanna á vesturstöðvunum
eða ekki, þá er eitt víst, að oflæti
Hoenzollaranna er á bak brotið, og
draumur þeirra um að komast til
París að engu orðinn, að þessu sinni
að minsta kosti.
Sagt er að sambandsmenn séu i
þessari orustu búnir að taka milli 25
og 30 bæi, meir en 25,000 fanga og
ógrynni af Örðu herfangi.
CANADA
Verkfall hafa póstar og pósthús-
þjónar gjört frá hafi til hafs, i Can-
ada. Þeir krefjast kauphækkunar,
og er það ekki án orsaka með suma
þeirra að minsta kosti. Margir
þeirra manna sem vinna við að bera
út bréf eru afturkomnir hermenn frá
herstöðvunum, eða menn sem í her-
þjónustu hafa gengið, en ekki farið
til herstöðvanna. Þessir tnenn hafa
unnið fyrir $73 um mánuðinn að
undanförnu, en menn þeir sfem eiga
fyrir einhverjum að sjá komast ekki
af með slíkt nú í dýrtíðinni.
Síðasta þjóðþing Canada veitti 3pí
miljón dollara, sem dýrtíðar uppbót
handa stjórnarþjónum. En þessir
peningar hafa ekki verið borgaðir út
enn þá, og þó þeir hefðu verið það,
þá hefðu þau hlunnindi ekki getað
náð til manna þeirra, sem að ofan
eru nefndir, því þeir teljast víst ekki
stjórnarþjónar (civil servants). En
óskandi væri að stjórnin sæi sóma
sinn í því að bæta svo kjör þessara
manna að Hfvænleg yrðu, og eins í
því að halda ekki lengur peningum
þjóna sinna, sem voru af þinginu
v'eittir til dýrtíðar uppbótar.
Annað verkfall stendur yfir hér í
bæ. ‘ Menn þeir, sem vinna á járn-
steypuverkstæðum og aðgerðarstof-
um bifreiða, hafa gert verkfall, um
1000 talsins, og krefjast þeir hækk-
unar á kaupgjaldi. Þessir menn
höfðu flestir 65 cents um klukku-
timann, en krefjast nú 75c.
Gjörðanefnd hefir setið í þessu
máli um nokkurn tíma, en' ekki orðið
neitt ágengt.
BANDARIKIN
Nýjum skipum, sem til samans eru
280,140 tonns var hrundið af stokk-
unum í Bandaríkjunum í síðastliðn-
um mánuði. Alt voru þetta vöru-
flutningaskip.
í bréfi til Wilson, forseta Banda-
ríkjanna, segir hermálaritari Baker
að 30. júní síðastl. hafi herafli
Bandaríkjanna á Frakklandi verið
1,019,115, og að í júní mánuði hafi
9212 hermenn farið á hverjum degi
frá Bandaríkjunum áleiðis til Frakk-
Iands. Mr. Bakir segir að um 30%
af þessum herafla séu hjálpardeildir,
en um 70% sem til víga gangi. Einn-
ig segir hann að í lok þessa árs hafi
Bandaríkin 4,000,000 manna undir
vopnum, 2,500,000 hafa nú klæðst
hermanna búningi.
Á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna
4. júlí var hrint af stokkunum þeim
skipum, sem fullgjörð höfðu verið i
skipakvíum frá Portland Me. til
Portland Ore., 54 stálskipum og 41
timburskipi, sem til samans v'oru 500,-
000 smál; og auk þessa nýja skipastóls
voru skip, sem ekki voru fullgjörð,
en eru til samans meira en 150,000
smálestir.
I viðurvist sendiherra og umboðs-
manna erlendra þjóða og fjölda sinna
eigin þegna, lýsti Wilson forseti yfir
því, í ræðu er hann hélt við gröf
George Washington. að í sambandi
við stríðið gæti ekki verið um neinn
milliveg að ræða. “Algjörður sigur
og ekkert annað’’ væri það eina hugs-
anlega.
Dr. Edward A. Rumely, útgefandi
að “The Evening Main’’ í New York
hefir verið tekinn fastur og kærður
um meinsæri í sambandi við eigendur
blaðsins. Stjórnin ber upp á Dr.
Rumely að hann hafi keypt sinn hluta
í blaðinu fyrir þýzka peninga að upp-
hæð $1,361,000.00.
Gufuskip sem var á ferð meðfram
Massachusetts ströndinni undan Cape
Cod, með 4 vöruflutningspramma
aftan í sér, þegar neðansjávarbátur
þýzkur réðist að skipinu, sökti því
og þremur af prömmunum og kveikti
í þeim fjórða. Síðan skaut þessi
neðansjávarbátur fjórum skotum á
land. Ekki er getið um að það hafi
þó valdið neinum skaða.
SíÐUS't’U STRfÐSFRÉTTIR.
Frakkar hefja nýja sókn á 5
mílna svæði í norður frá Montdi-
dier, hafa tekið bæina Aubvillers
og Sanvillers, og einnig hafa þeir
tekið part af Maily-Raineval
hæðunum, sem er vígi gott. Tóku
350 fanga og mikið af öðru her-
fangi.
Á Soissons-Rheims svæðinu
heldur her samverja áfram sig-
urvinningum sínum, og er sagt
að samherjar séu komnir á bak
við her pjóðverja þar, eða þann
part af honum, sem áhlaupið
gjörði nú síðast, að hann hafi nú
að eins 7 mílna breiða spildu til
þess að komast til baka á.
Japanítar samþykkja að fara
ásamt samherjum sínum með
her inn í Síberíu.
Hindenburg, sem blöðin hafa
sagt dauðann, að minsta kosti
tíu sinnum, er enn á lífi, en er
sagður svo aðframkominn að
hann getur ekki tekið neinn þátt
í hermálum, ekki mælt orð frá
munni; sagt er að hann hafi ver-
ið borinn í legubekk á fúnd for-
ingjanna, svo að þeir gætu horft
upp á hans virðulega andlit.
Nýkomnir til bæjarins frá ís-
landi eru þeissir:
Cand. Á. S. Gíslason,
Jón Tómasson,
Guðmndur Á. Jóhannsson,
Frú pórunn Nielsen,
Frú Sigríður Zoega Jakobsson
Guðmundur Hjalldórsson,
Einar Nielsen.
Rauði krossinn.
Svo að segja hvert einasta
herbergi í Iðnaðarhöllinni hér í
borginni, verður upptekið í sam-
bandi við Rauða kross þingið,
sem haldið verður 1.—2. ágúst
næsfckomandi. Viðbúnaður all-
mikill hefir þegar hafinn verið.
Tillögunefnd — Resolution Com-
mittie, sem skipuð verður 18 full-
trúum frá hinum ýmsu sveitar-
félögum og þrem mönnum úr
framkvæmdarnefnd Rauða kross
starfseminnar hér I borginni,
kemur saman daginn fyrir mót-
ið — miðvikudaginn 31. þ. m. og
leggur fram bráðabyrgðar
skýrslu ásamt uppástungum fyr-
ir fundinn. Bifreiðarfrlag borg-
arinnar vinnur að því, í samráði
við móttökunefndina, kÖ ?já full-
trúunum fyrir fartækjum út í
Tuxedo garðinn, til þess að heirn-
sækja hermanna spítalann þar.
Rauða kross þing þetta hefst
á fimtudaginn 1. ágúst. og flytja
þar ræður meðal annars. R. B.
Bennet lögmaður frá AILerta og
Sir Richard Lake fylkisstjóri i
Saskatchewan. Mr. Bennet hef-
ir ákveðið að tala um War Chari-
ties lögin, og samvinnu Rauða
krossins og stjómarinnar. En
Mr. Lake fylkisstjóri, skýrir frá
Rauða kross starfinu í Saskat-
chewan fylkinu og hinum bless-
unarríka árangri, er ungmenna
deildin hefir borið. Á föstudags-
kvéldið verður þó einna mest um
að vera á 'þingi 'þessu, og flytja
þá ræður ýmsir menn, er hlotið
hafa alþjóða viðurkenningu fyr-
ir mælsku.
Vonandi er að sem allra flestir
íslendingar sæki mót þetta. Mál-
efnið verðskuldar eindregna at-
hygli og aðstoð almennings, og
auk þesis verður margt, er þar
fer fram, stórfróðlegt.
Ákafur hiti í New York.
Hinn 23. þ. m. var hiti svo mikill
i New York, aö sibastlibin sautján ár,
kvaö ekkert þvilíkt hafa þekst. Kl.
7 aö morgni var hitinn 78 stig, en
hækkaöi upp í 98 rétt fyrir miSaft-
ansleytið. Fjórar manneskjur dóu
af sólsting. —
í Boston náSi hitinn 109 stigum og
létu tveir menn þar lif sitt af þeim
orsökum. ,
Samsæri pjóðverja í Bandaríkj-
unum, til þess að ráðast á
Canada.
New York 23. júlí. Dómsmála-
ráðaneytið hefir nýlega fengið í
hendur sínar, all-mikið af skjöl-
um og skrifum, tilheyrandi þýzk-
um manni í Bandaríkjunum. er
heitir Dr. Frederick August
Richard von Strensch. Hann hef-
ir nýlega verðið tekinn fastur,
og er sagður að vera frændi W íl-
hjálms keisara. Tilgangur hans
kvað hafa verið sá, að reyna að
gera ómöguiegan flutning Canad-
iskra hermanna austur til Ev-
rópu, og æst Mexico til stríðs
gegn Bandaríkjunum. í bréfum
þessum sást það á meðal annars,
að á milli 15. nóv. og 20. apríl
1917, hefði samsæri verið brugg-
að í þeim tilgangi að senda 25,000
þýzkra manna, er áttu að fara
frá Buffalo, N. Y. til Bridgeburg,
Ontario; en 100,000 pjóðverjar
höfðu verðið valdir til þess að
halda til Mexico, til liðs við ó-
vini Bandaríkjanna þar í landi.
Enn er mál þetta hvergi nærri
rannsakað til hlítar, og því all-
sendis óvíst hvað fleira kann að
koma upp þessu líkt.
BRETLAND
Robert Cecil lávarSur, atSstoöar
utanríkisritari Breta, lýsti því yfir í
nebri málstofunni á þriðjudags-
kveldiö, afi aöstaða Breta í Meso-
potamíu færi stööugt batnandi.
Sagöi liann að Tyrkir heföu mist
meira en 10,000 menn í héraðinu
kringum Kirkuk og afarmiki'S af
byssum og öörum herbúnaöi. Þrjá-
tíu brezkir, alþýöu og barnaskólar,
hafa opnaöir verið í þeim bygöum, er
Bretar nú hafa á valdi sinu. Einnig
er allmikil áherzla lögð á nýjar um-
bætur í akuryrkju og iöoaöi. Lá-
varöurinn segir aö útbúnaöur brezka
hersins í Mesopotamiu, hafi aldrei
betri veriö en einmitt nú, og sé því
full ástæöa til þess aö líta björtum
augum á ástandiö í framtíöinni á
stöövum þessum.
Islendingadagurinn.
Forstöðunefnd íslendingadags-
ins hefir nú lokið undirbúningi
hátiðarhaldsins, og er efnisskrá-
in prentuð á öðrum stað hér í
blaðinu. Nefndin hefir ekkert
látið ógert, er í hennar valdi stóð
til þess að þessi 29. þjóðhátíð
vor mætti sem veglegust verða.
Nöfn ræðumanna þeirra og
skálda, sem tala til þjóðflokks
vors í þetta sinn, eru nægileg
trygging þess, að hlutverkunum
muni vel borgið. Ágætur hljóð-
færaflokkur leikur mörg og fög-
ur íslenzk lög, ásamt meiru og
fleiru. Og íþróttimar hafa al-
drei verið íslenzkari, en í þetta
sinn, og verða því við allra hæfi.
endia hefir undirbúningi nefnd-
arinnar verið þannig hagað, að
þetta ætti að verða íslenzkasti
íslendingadagurinn, sem Vestur-
íslendingar nokkru sinni hafa
haldið. — ísland er fagurt land.
íslenZkt þjóðerai á marga dýr-
mæta kjörgripi. Til minningar
um landið, og kjörgripunum til
verndar, höldum við þjóðhátíð
vora. Leggjum því alla rækt við
fslendingadaginn, — látum hann
verða þjóðlega stórhátíð í lífi
voru.
Allir íslenzkir hermenn, heim-
komnir úr stríðinu verða heiðurs
gestir vorir á fslendingadaginn.
Allir fslenzkir hermenn, í her-
búðum Winnipegborgar fá frí
þenna dag og gefst vinum þeirra
og vandamönnum því kostur á að
njóta méð þeim fagnaðar íslend-
ingadagsins. pá hefir forstöðu-
nefndin boðið hr. Einari Jóns-
syni myndhöggvara til hátíðar-
haldsins og verður hann heiðurs-
gestur vor; er hann einna víð-
frægastur íslendingur, nú lifandi
pg hefir flutt ágæti íslenzks þjóð-
erais, víða um heim.
Einnig hefir forstöðunefndin
samþykt að kveðja til almenns
íslendingafundar, við allra fyrstu
hentugleika, að hátíðarhaldinu
afstöðnu, og mæla fram með því,
að ágóða þeim er verða kann í
þetta sinn af íslendingadeginum,
skuli varið í þarfir einíhverrar
þjóðræknis stofnunar til stuðn-
ings þeirri margvíslegu líknar-
starfsemi, er nú kallar að.
Hjálpamefnd 223. hersveitar-
innar hefir umsjón með vistasölu
á þjóðhátíðarsvæðinu, og er það
full trygging að rausnarlega
verði fram borið, og verðið sann-
gjarnt. Ágóðinn af veitingasöl-
unni gengur til þess að gleðja
með hina íslenzku hermenn vora
í 223. herdeildinni.
Styðjið íslenzkt þjóðerni!
. . Fjölmennið á fslendingadaginn
Wilhjálmur Stefánsson
er væntanlegur til Seattle, Wash,
í ágúst í sumar, þaðan hefir hann
áformað, svo framarlega að
heilsa hans leyfi, að fara til New
York og halda þar fyrirlestur
snemma í október, er það byrjun
á fyrirlestraferð, sem hann ætl-
ar að taka sér um alla Ameríku.
Ágóðann af þessum fyrirlestrum
héfir hann ákveðið að gefa í
Rauða kross sjóðinn.
Úr bænum.
Menn eru beðnir að muna vel
eftir happdrættinu, sem verður
á fslendingadaginn, um örninn
fagra, sem auglýstur var í síð-
asta blaði. Dráttarseðlarnir kosta
50 cent, og gengur ágóðinn til
þess að kaupa fyrir jólagjafir
handa íslenzku hermönnunum í
223. herdeildinni. Styðjið gott
málefni! Keppið um örainn!
Mr. Guðmundur Jónsson frá
Dog Creék kom til bæjarins í
vikunni, hann sagði almenna
iheilbrigði og að tíðarfar mætti
heita hagstætt, en heldur kalt.
Grasvöxtur tæplega í meðallagi,
því víða er kaHn jörð og gras-
laus með fram vötnum, en á öðr-
um stöðum aUvel sprottið. Akr-
ar líta vel út og má búast við upp
skéru í bezta lagi, ef tíðin verður
hagstæð næst mánuð. Nætur-
frost hafa komið all-hörð fyrir
sköanmu svo kartöflugras hefir
skemst í sumum stöðum, þó ekki
til stórskemda enn þá, en menn
óttast frtamhalds á þeim, því ein-
lægt eru kaldar nætur.
Kl. Jónsson fyrv. landritari er
sagður orðinn formaður fossafé-
lagsins “Titan”, sem er eigandi
pjórsárfossanna, með 12,000 kr.
árslaunum. Hann dvelur nú í
Khöfn.
Dáin er 6. júní frú Sólveig
Thorarensen á Móeiðarhvoli,
fædd 8. ágúst 1861. — Nýlega er
dáin hér á Landakotsspítalanum
úr berklaveiki frk. Jóhanna Gísla i
dóttir ísleifssonar lögfræðins á
3. skrifstofu stjórnarráðsins.
18. júní andaðist hér í bænum
Jón Hafliðason steinsmiður vænn
maður og vinsæll.
Háskólarektor næsta ár hefir
Einar prófessor Amórsson verið
kosmn.~
Hóskólapróf. Fyrri hluta
læknaprófs hafa tekið: Daníel
Fjeldsted með 2. betri eink.,
Eggert Briem með 2. eink.,
Guðni Hjörleifsson með 1. eink.,
Jón Ámasort með 2. betri eink.
og Karl Magnússon með 2. betri
eink. — Efnafræðispróf lækna-
deildarinnar hafa tekið Jófríður
Zoega og Friðrik Björnsson,
bæði með góðri 1. eink.
Stefán Guðjohnsen verzlunar-
stjóri á Húsavík hefir nú keypt
verzlun örum & Wulffs á Húsa-
vík, sem hann hefir veitt for-
stöðu, með húsum öllum, útibú-
um og öllu tilheyrandi.
Tíðin er umhleypingasöm og
köld. Látið illa yfir grassprettu
hér austur um sveitimar. Sjáv-
arafli góður.
“Gullfoss” kom frá New York
aðfaranóttina 2. júlí og fer aft-
ur 6. júlí. —“Lagarfoss” er fyrir
nokkru farinn frá Halifax á vest-
urleið. — “Borg fór héðan norð-
ur um land 2. júlí. — “Sterling”
fer í strandferð 7. júH.
Sambandsnefndin byrjar fundi
sína kl. 10 að morgni. Skrifarar
íslenzku nefndarinnar eru þeir
Gísli fsleifsson aðstoðarmaður í
3. skrifstofu stjómarráðsins og
porsteinn porsteinsson hagstof u-
stjóri. Skrifarar dönsku nefnd-
arinnar, þeir lögfræðingarnir
Funder og Magnús Jónsson, hafa
fengið herbergi hjá Jóni porláks
syni verkfræðingi.
Lík frú Ragnhildar Bjama-
dóttur kom hingað með Sterling
að norðan 1. júlí og var það jarð-
sett hér í dag. Séra Magnús Jóns-
son flutti húskveðju á heimili
Björns sonar hennar, í húsi Ind-
iða Einarssonar skrifstofustjóra
en Bjarai Jónsson ræðu í dóm-
kirkjunni.
Guðm. Friðjónsson skáld var
á samkomu við pjórsábrú 29.
júní, boðinn þangað, og flutti þar
tvær ræður. Fór á bíl austur og
kom aftur næstu nótt. Hér
flutti hann nýjan fyrirlestur áð-
ur en hann fór austur, fyrir troð-
fullu húsi.
íslenzkir stúdentar í Khöfn
’héldu Finni Jónssyni prófessor
heiðurssamsæti á sextugsafmæU
hans, 1. júní síðastl. Voru í því
um 60 manns.
20. ára stúdentar mintust af-
mælis síns með samkomu á ping-
völlum 30. júní. Meðal þeirra
er Magnús Jónsson lögfræðingur
skrifari dönsku samninganefnd-
armannanna, læknarair Matth.
Einarsson og porv. Pálsson, Sig-
fús Einarsson tónskáld, Einar
Jónasson lögfræðingur, Bjarai
|Jónsson bankastjóri á Akureyri
o. fl.
, 25 ára stúdentar eru í vor Ben.
p. Gröndal bæjarfógetaskrifari,
séra Fr. Friðriksson, Kn. Zimsen
borgarstjóri, Jón Hermannsson
lögreglustjóri, Ing. Jónsson verzl
unarm., Magnús Ambjamarson
lögfr., Sig. Magnússon læknir,
auk ýmsra, sem fjarlægir eru.
Einn er, að því er frézt hefir, í‘
Rauða kross-iliði bandamanna á
vesturvígstöðvunum, Kristján
Sigurðsson læknir, áður ritstjóri
“Lögbergs” í Winnipeg.
pilskipin sem inn hafa komið
nú nýlega, hafa haft þennan afla
Sigríður 22 þús. Hafsteinn 20,
Helgi 141/2, Kristján 17, Seagulí
16]/2, Sæborg 12 og Sigurfari 11.
Véiabátur fórst nýlega frá
Böggvistöðum í Svarfaðardal.
Var að koma að hlaðinn fiski og
með 200 þorska á seil. En báts-
menn sofnuðu allir á leiðinni og
óð báturinn áfram stjómlaust til
lands og rakst á sker undan
Hvanndalabjörgum. par sökk
hann, en mennimir komust upp
á skerið og sátu þar 9 kl.tíma.
pá var þeim bjargað á þilskip frá
Akureyri.
Úr Norðurlandi. Ræktunar-
félagsfundur var haldinn á
Skinnastað í Axarfirði og stóð
yfir 231. og 22. júní. Að honum
loknum var héraðssamkoma
haldin að Ásbyrgi. — Á kvenna-
fundi, sem nýlega var haldinn á
Akureyri, var m. a. rætt um að
koma upp hæli fyrir berklaveikt
fólk í Eyjafirðinum einhverstað-
ar. — 23. júní var opnuð iðnaðar-
sýning fyrir Norðurland á Akur-
eyri undir stjóra porkels porkels
sonar kennara 0. fl. — Aflabrögð
eru nú góð norðanlands.
Ritstjóri “Eimreiðarinnar”
verður framvegis Magnús Jóns-
son guðfræðisdocent við háskól-
ann.
Mannalát. Nýlega er dáin frú
Guðrún ólafsdóttir, kona séra
Björas Stefánssonar á Bergstöð-
um í Húnavatnss. dóttir ólafs
prófasts ólafssonar í Hjarðar-
iholti, að eins 27 ára gömul, og
lætur hún eftir sig 4 böm. — í
Kúðafljóti druknaði nýlega Ein-
ar Bergsson, bóndi á Mýrum í
Álftaveri. — Nýdáinn er Frið-
geir Guðmundsson skipstjóri á
ísafirði. — Hér í bænum andað-
ist 30 júní frú Guðrún ögmunds-
dóttir, móðir Jóns Sigurðssonar
járnsmiðs, hálf níræð að aldri.—
Dáinn er á Eyrarbakka 27. júní
Guðjón ólafsson sparisjóðsgjald-
keri, nær hálfsjötugur að aldri.
— 25. júní andaðist hér á Landa-
kotsspítala, úr krabbameini, Ein-
ar Einarsson trésmiður, um
sextugrt-
—Lögrétta.