Lögberg - 01.08.1918, Síða 4

Lögberg - 01.08.1918, Síða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. ÁGÚST 1918 Psbecs Gefið út Kvem Fimtudag af Th« C*l- umbia Preu, Ltd.,fCor. WilKam Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TALiSIMI: GARRY 4Í6 og 417 Jón J. Bíldfell, Editor J. J. Vopni, Business Manager (jtaniskrift til blaðsins: THE 80LUMBIA PREÍÍ, Itd., Box 3172, Winnipog, Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LOCBERO, Box 3172 Winnipog, M»n. VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið. •^^►27 lUmilllBmigllliaiUlllillinUMIWHtMUUHHllMBllHIIIIIHllliliiHlBnimUilffitill A hundasundi. Ekki verður annaS sagt, en að það hafi lent í handarskolum fyrir “Voraldar” ritstjóranum í síð- asta blaði sínu, þar sem hann læst vera að svara grein vorri með fyrirsögninni “Á glapstigum”, er stóð í “Lögbergi” 18. þ. m., og fjallaði um ritstjóra “Voraldar” í sambandi við þjóðemismál og þegn- hollustu. í staðinn fyrir að ræða þau mál, þá ræðst hann að ritstjóra “Lögbergs” í æðiskendu óráSi, með illkvittnislegum aðdróttunum og strákslegri kvefsni. Með samlíkingu, sem hann byrjar þetta rit- smið sitt með, gefur hann í skyn, án þess þó að hafa drengskap til þess að segja það beint út, að núverandi ritstjóri Lögbergs hafi rægt Sigurð Júlíus Jó'hannesson, á meðan að hann var ritstjóri Lögbergs, svo við þá, sem blaðið áttu, og blaðinu réðu, að hann hafi fyrir það mist atvinnuna, með það eitt fyrir augum, að komast í plássið hans sjálfur! “petta held eg að sé nú oflof”, er mælt að einn merkur íslendingur hafi einu sinni sagt við sérstakt tækifæri. Svo segjum vér. Oss finst það vera oflof, þegar gefið er í skyn að vér höfum stungið stjómendum Lögbergs-félagsins í vasa vom, og látið þá dansa eins og oss sýndist. Finst þér^nú ekki, Doktor minn, þegar þú hugsar betur um þessar sakir, að heimskan hjá þér, beri illgim- ina og blekkinga tilraunir þínar ofurliði. pekkir þú ekki þessa menn sjálfur að því, að þeir iáta engan fara með sig eins og tuskur. En án þess gátum vér ekki framkvæmt það, sem þú dróttar að oss í innganginum að þessari klaufalegu grein þinni. , Á hinn bóginn virðist oss, að þér ætti að skiljast, að það hafi ekki verið neitt ónáttúrlegt, þó að þeir, sem báru heiður blaðsin® fyrir brjósti vildu að þú færir frá því, það eina sem hægt er að ásaka sig fyrir í þeim efnum, er að þú varst látinn hanga við ritstjóm Lögbergs alt of 'lengi — þar til þú sjálfur sagðir henni upp. Sama er að segja um aðdróttunina í þessari sömu grein, um það, að ritstjóri Lögbergs sé vald- ur að slúðursögu, sem setti ögmund Sigurðsson skólastjóra og þýzkt gull í samband við Voröld, að hún er svo ótrúleg. J7ví ekki Doktor minn, þeg- ar þú fórst að segja ósatt á annað borð, að ljúga þá einhverju, sem var trúlegra en þetta, því þess erum vér fullvísir, að enginn er sá maður til, sem þekkir okkur báða, að hann ekki viti að þessi að- dróttun er jafn ósönn og hún er fúlmannleg. Voraldar ritstjórinn talar all-mikið um fast- eignakaupmanninn frá Transcona og búumst vér við, að hann eigi þar við ritstjóra Lögbergs, enda þótt hann hafi aldrei átt heima í Transcona, og er með dylgjur um eitthvað, sem að hann þorir ekki eða breztur drengskap til að segja, en vill láta menn skilja að sé athugavert við verzlun þá, sem ritstjóri Lögbergs rak opinberlega hér í bænum í 16 ár. Sjálfur er ritstjóri Lögbergs sér þess ekki meðvitandi, að haim hafi í þeirri stöðu aðhafst nokkuð það, sem glæpsamlegt sé, né heldur vill hann viðurkenna að fasteignaverzlun sé á neinn hátt ósómasamleg og þykjumst vér vita að Dokt- orinn, ritstjóri Voraldar muni vera oss samdóma, því hann hefir sjálfur reynt hana — reynt að ná sér í cent á þann hátt, þótt hann færi á hausinn með það eins og alt annað, sem hann hefir tekið fyrir í lífinu. Voraldar ritstjórinn er enn einu sinni, að mirtna Vestur íslendinga á að hann sé fátækur, og segir að vér séum í áminstri grein vorri að gjöra fátækt hans að umtalsefni. Vitaskuld er þetta bull, vér minnumst ekki á slíkt með einu orði, það sem vér sögðum, var að hann hefði ekki lagt græn- an eyrir, né heldur ráð til, sem hefðu getað stutt þjóðernisbaráttu vora. Doktorinn álítur þaö full- gilda sönnun þess að menn séu fátækir, að þeir leggja ekki grænan eyrir til hins eða þessa mál- efnis. Finst ekki ritstjóra Voraldar að það sé nokkuð fljótfærnisleg niðurstaða, eða gleiðgengur hugsunarháttur? En ritstjórinn getur ekki látið hjálíða að væla framan í Vestur-fslendinga til þess að fá þá til að vorkenna sér. Vorkenna Doktornum sem ekki nennir að hjálpa, doktornum—sem ekki vill græða, þó að alt flaki í sárum — fátækt getur verið hrósverð — fátækt sprottin af dygð — bar- átta manns fyrir tilverunni, og skylduverkum lífs- ins. — En hún á ekkert skylt við fátækt Sigurðar Júlíus Jóhannessonar, sem ekki er sprottin af dygð heldur af aulaskap, og er þess vegna ekki til þess að hrósa sér af. Um lítilsvirðingarmerkin, sem þessari ritsmíð fylgja, þarf ekki margt að segja, það eru óyndis- úrræöi, sem hver aulinn getur gripið til. pe^si Bolsheviki Vestur-íslendinga ritstjóri Voraldár hefir fengið það inn í sig, að hann sé ein- hver fyrirmyndar rithöfundur og ritstjóri, en vér getum fullvissað hann um, að það er misskilningur og svo munu allir gjöra, sem vit hafa á að dæma um slíkt, og að honum ferst illa að hæðast að öðr- um fyrir það sem hann sjálfur getur ekki gjört skammlítið. pað er öllum mönnum ljóst a<5 rit- stjóri Voraldar getur ekki rökstutt nokkum mál, né heldur brotið það til mergjar, að hugsanir hans eru tíðum meingallaðar, lausar og út í bláinn, stefna sjaldan að nokkru vissu marki til lengdar, og festast því hvergi. “Eitthvað svo bragðlaust alt saman, vantar hreim og hrynjanda, og væri * því betur ókveðið”, mundi pórhallur biskup Bjarn- arson hafa sagt, eins og hann sagði um ljóð þess sama manns, og þegar þar við bætist hin alþekta og óskaplega hroSvirkni mannsins, þá er ekki að furða þó hann rembist. pað skal gert Voraldar ritstjóranum til geðs að svara fyrstu spumingunni, sem knýtt er aftan við þessa makalausu grein hans og sem hljóðar svo: “Ef að ritstjórinn(!) álítur það Bolsheviki anda að eyða kröftum sínum í nokkurt annað mál en stríðmálin á meðan að á því stendur, hvemig stóö þá á því að fyrir hans tilstilli var kostaður maður af almanna fé hingað vestur frá íslandi og ekkert til sparað, til þess að hefja hér allsherjar þjóðemisbaráttu eftir að stríðið hafði staðið yfir í tvö ár?” Jafnvel í þessari stuttu grein koma fram Bolsheviki einkennin, þau að æsa og villa sjónir. Vér höfum aldrei sagt að það megi ekki eyða kröftum sínum í nokkurt annað mál en stríðsmálin á meðan að á því stendur. En vér höfum sagt, og segjum enn, að þau af sérmálum vorum, sem á ein- hvem hátt geta, eða gætu komið í veg fyrir, að vér gætum með óskiftum kröftum veitt stríðsmálun- um fylgi vort, eiga, og verðl að bíða, þar til stríö- inu er lokið — að hefja ekki neinar nýjar þjóðem- ishreyfingar á meðan þessi þjóð er að berjast upp á líf og dauða fyrir tilvemrétti sínum, og að þús- undir vorra eigin manna eru í burtu. — En halda í horfinu þar til hermenn vorir koma til baka og vér getum aftur beitt oss með fullum kröftum viö þjóðernismál vor. pegar samningar voru gjörðir viö Dr. Guð- mund Finnbogason að koma hingað vestur, seint á árinu 1915, var stríðsafstaðan nokkuð öðruvísi heldur en hún er nú, herskyldulögin voru þá ekki komin, og stríðið hafði þá ekki lagst yfir oss með öðrum eins alvömþunga, og það gjörir nú, tilfinn- ingalíf vort og kringumstæður ólíkar því, sem þær eru nú. pegar Voraldar ritstjórinn er að tala um að vér séum breyttir frá því, sem vér vomm gagn- vart þjóðernismáli vom fer hann með ósannindi. . Vér og rækt vor til þjóðernismáls vors, er sú sama og hún var. — En kringumstæðumar em breyttar, og eins og maður getur ekki æfinlega álpast beint áfram, án þess að fara sér að voða, eða læknir gef- ið sömu meðulin, við öllum sjúkdómum, eins verð- ur maður að haga afstöðu sinni til ýmsra mála eftir kringumstæðum þeim, sem málunum ráða. Annars er það kynlegt hversu mikinn þyt að Dr. Sigurður Júl. Jóhannesson er að gjöra út af þjóðernis máli voru. pví eins og vér tókum fram í grein vorri, sem að doktorinn varð sárreiðastur út af, þá höfum vér aldrei orðið varir við að hann hafi lagt sig í líma fyrir það, og ekki er langt síðan að honum fómst þannig orð um lífæð íslenzk þjóð- emis, tungumálið vor á meðal: “Ef eg hefði átt reiðhest, sem mér hefði þótt vænt um, og sæi hann í höndum þess manns, sem illa fer með hann, hárið væri slitið úr taglinu af aftaníhnýtingum, síðutök beggja megin, hanki í brjósti, hnýttar og bæklaðar fætur, graftarkýli á heriSakampinum og meiðsli, hvert rif sæist langar leiðir, augnaráðið dapurt, höfuðið hangandi og svipurinn þreytulegur og fæturnir jámalausir og sárir, þá væri það mín fyrsta einlæga ósk að sjá einhvem taka byssu og skjóta vesalings skepnuna, og eg vildi gjöra það sjálfur ef eg aðeins hefði kjark til þess. Svona er íslenzka málið okkar vestra”. pannig fómst rit- stjóra Voraldar orð ,þá, um “áskæra ylhýra málið” vor á meðal. Nú hefir hann auðsjáanlega skift um skoðun, vill nú auðsjáanlega ekki slá bykkjuna af, heldur hefir hann lagt við hana beizli, og þeysir á henni, eins óskaplega og hún er til fara, eftir hans dómi, um allar bygðir íslendinga með þá Guðmund pórðarson og Bjaraa Július fyrir aftan sig — til þess að þrýsta Voröld, sem gámngamir kalla Horöld, og Höraldarhugsjónum inn aS hjartarót- um fólks vors. — Varstu ekki heppinn, Doktor minn, að þú skyldir ekki skjóta blessaða skepn- una 1913! f grein vorri frá 18. þ. m. í Lögbergi sögðum vér að greinin sem stóð í Voröld frá 9. f. m. “Und- ir fölsku flaggi”, hefði verið þrungið af Bolshe- viki hugsjónum þeim, sem með Rínar gulli hafi verið breiddar út um allan heim, og ef maður ætti að dæma eftir þeirri framkomu Voraldar, og fram- komu ritstjóra hennar í saimbandi við stríðið í ræðu og riti, þá þyrfti hann ekki að vonast eftir stuðningi frá oss, né neinum ærlegum Canada borgara. Við þetta vill ritstjóri Voraldar ekki mikið fást, af því að hann hefir þar enga málsbót. — Stendur þar berskjaldaður. Hann rejmir samt að vinda sér út úr því með því að segja: “Vilji Lögbergs ritstjórinn(!!) telja þá aHa ósanna borg ara, sem fylgja stríðsstefnu Voraldar, þá verða þeir margir íslenzku landráðamennimir í Canada”. Hver er stríðsstefna Voraldar, eða Voraldar ritstjórans, sem er náttúrlega eitt og hið sama. Vér getum tekið blaðið Voröld frá því hún byrjaði að koma út og til þessa dags, og þar er ekki eitt einasta blað, sem ekki hneixlar þjóðræknistilfinn- ingu hvers sanns Canada / borgara, annað hvort með því, sem þar er sagt, eða þá með því, sem ritstjórinn lætur ósagt. Vill ritstjórinn halda því fram að slíkt sé vilji margra fslendinga? Vill hann halda því fram að margir Vestur- íslendingar séu því samdóma, er hann sagði um Wilson Bandaríkja forseta þá er hann sagði pjóð- verjum stríð á hendur — að hann væri hinn arg- vítugasti svikari, engu betri enþeir Efialtes föður- landssvikari eða Júdas ískaríot drottinssvikari ? Vill hann halda því fram að þeir séu margir Vestur íslendingamir, sem séu hortum samdóma þegar hann sagði á opinberri samíkomu að afstaða stríðs þjóðanna væri eins og tveggja hana, er hann ritstjóri Voraldar, hefði séð fljúgast á í Victor Street Park, þegar hann hefði gengið hjá, og sem að hann vonaðist eftir að sjá báða dauða er hann færi til baka ? Vill ritstjóri Voraldar halda því fram, að þeir hefðu verið margir Vestur-fslendingamir, sem hefðu tekið undir með honum 21. marz s.l. þegar fréttin kom til bæjarins um að þýzki herinn hefði klofið fylkingar samherja, strádrepið vora eigin menn og leit út fyrir að þeir mundu ná til Parísar- borgar: “Fallega gjörðu þeir það núna blessaðir, bráðum komast þeir til Parísar”. Að þetta og margt fle.ira í þessa átt, sem ritstjóri Voraldar hefir látið sér um munn fara, sé hugsunarháttur margra Vestur-íslendinga í sambandi við stríðið hvort heldur að þeir eru Voraldarmenn eða ekki, því neitum vér. íslendingar hafa aldrei verið riðnir við landráða hugsanir—þeir hafa aldrei ó- drengir verið og vér erum sannfærðir um það, að Voröld tekst aldrei að gjöra þá það. Charles Wagner. Um miðjan maí mánuð síðastliðinn, lézt í Parísarborg presturinn, rithöfundurinn og mælskumaðurinn Charles Wagner, er um lang- an aldur hafði verið einn af helztu frömuðum mótmælenda kirkjunnar frönsku. Það hefir sagt verið um hann látinn, að á síðasta manns- aldrinum muni Frakkland hafa átt fáa menn, er eflt hafi með starfi sínu og dæmi siðferðis- þroska þjóðarinnar, í nokkurri líkingu við það, sem hann gerði. — Charles Wagner varð 66 ára að aldri. Hann var fæddur að Wiberswiller í Alsac fylkinu, er Þjóðverjar rændu af Frökk- um 1871; kominn af bændafólki, og stundaði í æsku jarðyrkju og hjarðgeymslu. — En honum hafði ætlað verið að gæta stærri hjarðar í fram- tíðinni. Eftir að hann hafði lokiÖ námi og tekið prestvígslu, gerðist hann brátt nafnkunnur pré- dikari. — Kirkjan hans í Boulevard Beaumar- cheis, var svo troðfull við hverja einustu guðs- þjónustu, að mörg húnduð manns urðu iðulega frá að hverfa, og þetta var fólk af öllum stigum og stéttum, stjórnmálamenn, fésýslumenn og verkamenn; þó var að sjálfsögðu hópur verka- •manna og vinnukvenna í Parísarborg ávalt lang stærstur í kringum hann, enda var hann æfin- lega sjálfkjörinn talsmaður þeirra, er lægra vom settir í þjóðfélaginu og á einhvem hátt máttu sín miður. Mælskumaður var hann með afbrigðum, en frásneyddur óþarfa mælgi — ræðurnar þannig sniðnar, að engu einasta orði var ofaukið. Svo sterkri sannfæringu andaði frá sérhverri setningu, að líkast var sem brennandi sólgeisla straum legði inn í hjarta áheyrendanna. — Rödd Wagnars var óviðjafn- anlega skýr, og að sama skapi mild. — Hann var sjálfur afkastamaður hinn mesti, enda unni hann vinnuntii og verkalýðnvm um- alt annað. Oft var hann vanur að komast svo að orði: “ Innihaldsmesta ánægjan, sem guð hefir veitt mér í lífinu er sú, að horfa á sam- borgara mína frjálsmannlega og framgjama, ganga fagnandi til vinnu sinnar, snemma á morgnanna! Mér finst eg sjá Frakkland sjálft eins og það á að vera, speglast í andlitsdráttum i þeirra. — En alt önnur tilfinning gerir vart við sig í sálu minni við það að horfa á hinn mann- flokkinn, sem hringsólast dag eftir dag, og ár eftir ár, um strætin þau, er mestri eftirtekt valdi, á hvíldarlausum gægjum eftir tízkunni, eða tízkubreytingunum. — 1 andliti þess f^lks sé eg ekkert Frakkland! ’ ’ Fyrir fjórtán árum kom Charles Wagner til Ameríku. Hróður hans hafði fyrir löngu borist þangað á undan honum. Bækur hans höfðu löngu þýddar verið á ensku, svo sem “Justice” og “Courage”, en þó mun bók hans “The Simple Life” — Einfalt líf, hafa notið mestrar almenningshylli, þótti hún og vera orð í tíma talað. Roosevelt fyrv. Bandaríkjaforseti lofaði bók þá mjög, og kvað hana eiga brýnt er- indi inn á hvert einasta heimili. Enda var það bókin “Einfalt líf”, er vann Charles Wagner alþjóðaviðurkenningu, sem rithöfundi og menn- ingarfrömuði. Kenningar hans, skýrar og mannúðlegar, framsettar af brennandi velvilja fyrir fjöldans heill, áttu sannarlegt erindi til samtíðarinnar, þar sem óhóf og siðspilling í margvíslegum myndum var að ná þvílíkum heljartökum á stórum flokkum mannanna, á meðal hinna ýmsu þjáóða, einkum þó hinum i To- kölluðu hœrri flokkum. Einstaka menn stór- reiddust höfundinum fyrir bók þessa, eins og hún þó var hógvær og sanngjarnlega ritin; en á hina hliðina taldi mikill meiri hluti fólks hana beinlínis þarfa og kváðu hvert einasta orð satt í bókinni. — En nú er Charles Wanger genginn til hinnar síðustu hvíldar; franska þjóðin mun lengi geyma minningu hans. Verk hans munu Jengi standa, eins og öll þau verk, sem bygð eru á mannúð og kærleika, og tvímælalaust hefir áhrifa hans gætt eigi all-lítið í yfirstandandi stríði. Hann brýndi fýrir frönsku þjóðinni sjálfsafneitun og einfalt líf, þessvegna hefir hún staðist eldraunina eins og klettur úr hafinu. hafinu. Vegurinn tilað spara Bezta aS ferSin aS venja sig á atS spara er aS gera sér aS reglu, aS leggja vissa upphæS á sparisjóSs-banka. í sparisjóSsdeild vorri færSu 3% rentu, sem er bætt viS höfuSstól- inn tvisvar á ári. Notre Dame Branch—YV. M. HAMII/TON, Manager. Selkirk Branch—F. J. MANNING, Manager. HöfuSstóll greiddur $14.000,000 $15,000,000 Sir HUBERT S. HOLT E. L. PEASE C. E NEILIi Allskonar bankastörf afgreldd. Vér byrjum relkninga vtB elnstakiinga •8a félög og sanngjarnlr skilmálar velttlr. Avfsanlr seldar tll hvaBa staöar sem er á Islandl. Sérstakur gaumur geflnn sparirjóBsinnlögum, sem byrja má meC 1 dollar. Rentur lagCar vlB á hverjum 6 mánuöum. THORSTEIN9SON, RáS.maSur William Ave. og Sherbrooks St„ Winnipeg, vsv, :rg\' 'ré\' rrév: rrsA' /éV/éY ysv. * r*\ /gw^ /éA./é\ Walters Ljósmyndastofa parna láta þeir Islendingar taka af sér myndir, er vilja fá góöa mynd á ágætt verS. MuniS eftir myndastofu Vorri, þegar þér komiC á ls- lendingadaginn næstkomandi. Fyrstu 5 dagana af ágúst, gefum vér hverjum þeim, sem tekur'hjá ss tylft af mynd- um, eina mynd frítt, stærS 11 x 14. petta tilboS gildir aSeins I fimm daga. Walters Ljósmyndastofa, 290 Portage Ave. Talcími: Main 4725 Orsök stríðsins og England. Eftir Bryce Greifa. Rit prins Lichnowsky, þar sem hann gjörir grein fyrir afstöðu sinni, þegar hann var sendiherra þjóðverja á Englandi, er sjálf- sagt það eftirtektarverðasta rit sem út hefir komið síðan stríð þetta byrjaði. það var ekki meiningin að rit þetta kæmist út á meðan á þessu stríði stæði, og ef til vill ekki á meðan að Prins Lichnowsky lifði. það var ekki ritað til þess að fegra málstað Englendinga, heldur til þess að benda á galla á sambandinu á milli þjóðverja og Austurríkis- manna, og var gjört lýðum ljóst, ekki með vilja höfndarins, held- ur þrátt fyrir mótstöðu hans. pað er líklegt að höfuiidurinn hafi samið þessa ritgjörð að nokkru leyti til þess aö veita þeim straum tilfinninga sinna framrás, sem sökum embættis- stöðu sinnar vegna, ekki mega forsvara gjörðir sínar. J?að getur líka verið af eðli- legum tilfinningum þess manns, sem tekið hefir mikinn þátt í stórkostlegum viðburðum, og finnur til þess að sagan og eftir- komandi tímar eiga að vita sann- leikann í sambandi við þá. Hvort sem er, þá hefir rit þetta valdið reiði, og ofsóknum þýzku stjómarinnar á hendur Lichnowsky og má af því ráða hve þýðingarmikiö þeim finst ritið vera. Sannleiksgildi ritsins hefir verið staðfest, ef armars það þurfti staðfestingar við, með því sem Herr von Jagow utanrikis- ritari þjóðverja, sem var, hefir sagt, og eins Herr Muhlon, sem er einn af stjómendum Kmpp verksmiðjunnar. Prins Lechnowsky kemur fyr- ir sjónir í þessu riti, sem skarp- skygn og rökviss, og er þar af leiðandi ábyggilegt vitni, um það sem fyrir augu og eyru hans bar á meðan að hann dvaldi á meðal vor, og eins um það, sem hann vissi um áform og framkvæmdir sinnar eigin stjómar. Látum oss því athuga hvað hann segir. þegar að stríðið byrjaði í á- gúst 1914, þá voru það tvær stefnur, sem þýzka stjómin fylgdi og sem hún hefir fylgt fram síðan, án tillits til síns eigin drengskapar, eða sanngirni gagnvart öðrum. önnur af þessum stefnum var hemaður. Hún lét her slnn vaða inn í Belgíu, land, sem var friö- elskandi og hlutlaust, og sem istjórnin hafði skuldbundið sig til þess að vernda, og hún hefir látið her sinn með grimd mikilli myrða fólkið, eyðileggja bygðir þess og selt sumt af því í þræl- dóm. Hún, stjómin, hefir gjört það sama við Pólverja og í við- bót ýtt undir Tyrki til þess aö myrða hina saklausu Armeníu- menn. Blekkingarstefnan. Hiún var að villa mönnum sjón ir í ræðu og riti. Áformið1 var, að vflla bæði þýzku þjóðinni og eins hlutlausum þjóðum sjónir með hinar illviljuðu stríðshug- sjónir. pjóðverja, áformum og framkomu, sérstaklega gagnvart brezku stjóminni og hinni brezku þjóð. pýzka stjómin reyndi að koma fólki til þess aö trúa því, að Bretar hefðu neytt þá út í þetta stríð. “Við”, sögðu þeir, “þráð- um að fá að lifa í friði, en við urðum að verja okkur þegar á okkur var ráðist, og það að á- stæöulausu. Sjófloti vor, og landher hefir verið haldið við og aukinn að eins til þess að vemda föðurlandið frá hinum öfund- sjúku og illgjömu nágrannaþjóð um, einkum Bretum”. Bretland, sem væri sjálft í aft- 'urför, væri öfundsjúkt yfir fram förum pýzkalands, það óttaðist verzlunarsamkepni þess, og vildi reyna að útiloka það frá allri verzlunarsamkepni við sig. þetta var hinn ráðandi hugsnarháttur — þeir sögöu að Bretar hefðu undir forustu Játvarðs konungs VII. gert samninga við Frakka og Rússa með það eitt fyrir aug- um að vinna pjóðverjum mein, og eftir að reyna að stemma stigu fyrir pj óðverjum og þýzk- um áhrifum í Afríku, og Asíu, þá hefðu þeir komið á stað þessu stríði, til þess að eyöileggja með vopnum, keppinautinn, sem þeir hefðu ekki getað mætt á alheims verzlunar markaðinum. Og á sama tíma og þessar á- kærur voru látnar dynja á Bret- um, þá var gerð tilraun til þess að afsaka að þjóðverjar óðu inn í Belgíu með slúður sögum, sem náttúrlega féllu niður þegar þeirra þurfti ekki lengur við, um þaö að franskir foringjar hefðu verið sendir til Belgíu til þess að æfa her Belgíumanna, og til þess að leiða hann mófi pjóðverjum og að Frakkar hefðu sést fljúga yfir héruð pjóðverja. pótt að þessar uppdiktanir væru furðulegar, þá var haldið áfram að hamra á þeim, með svo blygöunarlausri ósvífni að þær fóru að festa rætur út í frá, hjá hlutlausum þjóðum. En áhrif þeirra voru þó varanlegust og mest hjá þjóðverjum sjálfum Meiri hluti blaðanna á pýzka- landi innblásinn af og undir yf ir- ráðum þýzku stjómarinnar, höfðu undanfarandi bent á Bret- land, sem aðal-óvin pýzkalands, þau blöð hertu nú sóiknina alt sem þau gátu, og bentu á að Sir Edward Grey hefði verið í sam- særi við aðrar þjóðir meC það að koma stríðinu á stað, og að hann hefði beitt áhrifum sínum til þess að koma í veg fyrir að Rúss- ar stiltu til friðar. Við þetta bættu þau jafn ó- sönnum ákærum um það, að Englendingar hefðu gert leyni- samninga viö Belgíu um að fá að fara í gegnum land þeirra með her að pjóðverjum. pessar skröksögur, sem stjóm málaleiðtogamir sögðu frá ræðu- pöllunum, og blöðin endurtóku, féllu í góðan jarðveg hjá þýzku þjóðinni, sem er hæði leiðitöm og stjórninni undirgefin, og kveikti í henni svo að hún sá ekki fótum sínum forráð, og þóttist sjá sig- urinn vísann, og eÍTis fljóttekinn og árið 1870. pað var þessi sannfæring um illvilja, og ofstopafullan yfir- gang Englands, sem myndaði hið logandi hatursbál til Englend- inga, sem hefir sýnt sig í með- ferð á brezkum föngum í pýzka- landi og í ofsakeeti þeirra yfir spillvirkjum þeim er þeir frömdu

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.