Lögberg - 17.07.1919, Blaðsíða 4

Lögberg - 17.07.1919, Blaðsíða 4
Els. 4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. JÚLÍ 1919. gUHHHHIUHll iioQlicug 1 Gefið út hvern Fimtudag af The Col- umbia Preis, Ltd.,tCor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TALSIMX: (iARlií 4(6 og 417 Jón J. Bíldfell, Editor J. J. Vopni, Business Manager Utan&skrift til blaðsins: TI(E eOLUH|BIA PRESS, Ltd.,’Box 3172. Winnipog, Man. Utanáakrift ritatjóranar • EDITOR LOCBtSC, Box 3172 Winnipag, R|an, VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið. -«ÖB*27 Bein löggjöf. var eitt af þeim málum, sem frjálslyndi flokk- urinn í Manitoba bafði á stefnuskrá sinni og lofaði að leiða í gildi undir eins og hann kæmi til valda. Og það- loforð var efnt af Norris- stjórninni 1916. Þessi beina löggjöf var í því fólgin að ef viss tala af kjósendum vildi fá eitthvað sérstakt leitt í lög, var ekkert annað en fá hina ákveðnu tölu kjósendanna til þess að skrifa undir áskor- un til stjórnarinnar um að lögleiða þetta eða hitt áhugamálið. Og á hinn bóginn, ef að stjómin sjálf hafði emhverja þá löggjöf með höndum sem kjósend- nrnir væru mótfallnir, gátu þeir krafist þess að þau lagafrumvörp væru lögð undir atkvæði kjósendanna áður en þau yrðu að lögum. Með öðrum orðum, þá var framkvæmdarvaldið í lög- gjöf tekið úr höndum stjórnar og þings, en lagt í hendur kjósendanna. Þegar í byrjun mættu þessi lög mótspyrnu frá sumum lögfróðustu .mönnum þessa fvlkis. Þeir létu það álit sitt í ljósi að fylkið væri með þessum lögum að fara lengra heldur en að stjórnarákráin gæfi því leyfi til, og ef svo væri, þá hlytu lögin að vera óleyfileg og alt sem á þeim væri bygt ólöglegt. Aftur voru aðrir lögfræðingar sem héldu því fram að fylkið hefði leyfi til þess að leiða slík lög í gildi og að stjómin hefði ekkert að óttast í þeim sökum. Stjómin, sem málsvari fólksins, varð því að komast að því ábvggilega, sanna og rétta í þessu máli og það gerði hún með því að láta dómstóia ríkisins skera úr. Málið var fvrst lagt fyrir hæstarétt fvlkis- ins og þar sótti málið W. H. ^Trueman, en Isaac Pitblado vafði, og er þar Um að ræða tvo af hæfustu lögfræðingum bæjarins. En niðurstaða dómaranna varð sú, að fylkið hefði ekki vald til þess að búa til slík lög. Norrisstjórnin var ekki ánægð með þenna úrskurð, svo hún skaut málinu til æðsta dóm- stóls ríkisins—leyndarráðs Breta. Hefir það nú dæmt í málinu og er dómsúrskurður þess sá sami og sá er áfrýjunardómstóll Manitoba gaf—sá að fylkið með þessum lögum gangi lengra heldur en að stjórnarskráin leyfir því og að lögin séu því ekki á rétti bygð. Fyrir þessum dómi eru gefnar tvær aðal- ástæður. , Fyrst. Að þinginu standi tveir málsaðilar —þingmennirnir sem kosnir eru af fólkinu, sem býr innan vébanda fylkisins og fari með málin í umboði þess, og umboðsmaður krúnunnar, sem ex málsvari hennar að því er til löggjafarirnar kemur. Annað. Þingmennirnir geta afsalað sér valdi því, sem þingbundið fyrirkomulag gjörir ráð fyrir að þeir hafi til framkvæmda, ef þeir vilja. En þeir hafa engan rétt til þess að skerða rétt umboðsmanns krúnunnár í þeim efnum— geta ekki gefið rétt hans í hendur annara. En það væri einmitt það sem þessi lög gerðu og kæmu því í báíja við rétt þann, sem stjórnar- skráin veitir umboðsmanni krúnunnar í þessu efni, og gætu því ekki staðist. Um úrskurð þenna er það eitt að segja að maður verður að gjöra sér hann að góðu þar til ákvæði þau í stjórnarskránni, sem lögum þessum eru til fyrirstöðu eru numin úr gildi. En í anda þessara laga má starfa, eins og að Norrisstjórnin hefir sýnt, bæði að því er snertir vínbannslög fylkisins og eins í sambandi við pólitískt jafnrétti kvenna. Oss er ekki ljóst, hventig hægt er að halda því fram með nokkru viti að stjórnin hafi brugð- ist kjósendum sínum í þessu máli, eins og blaðið “Voröld” heldur fram. . Oss getur ekki betur skilist en að það hafi bJáttJifram verið heilög skylda stjórnarinnar að ga»ga úr skugga um það að löggjöf þessi, sem og allar aðrar, hvíldi á traustum grundvelli, áður en þjóð og þing bygðu framlrvæmdir—og þær máske afar þýðingfarmiklar—á þeim. Vér getum ekki betur skilið heldur en að þeir menn, sem halda því fram, að stjórnin hafi^ átt að láta lögin standa, hvort heídur að þau komu í bága við stjórnarskrána eða ekki, gjöri það á móti betri vitund, eða þá að þeir séu svo skyni skroppnir að þeir ekki sjái út í hvaða ■ógöngur að slíkt hefði getað leitt. Yfirsjón Bolshevismans Eftir Count llya Tolstoy. Aðal yfirsjón Bolsheviki manna á Rúss- landi er að þeir hafa með öllu misskilið lyndis- einkenni smábændanna á Rússlandi, sem öfga- menn eins og Lenine og Trotslcy hafa verið að , ieyna að skoða gegnum gleraugu Karl Marx. Þessi partur þjóðarinnar, smábændurnir, hafa aldrei haft neina trú á sósíalista fyrir- komulagi í stjórnmálum — hafa aldrei getað séð hagnað þann efnalegan eða menningarlegan, sem það fyrirkomulag mundi færa þeim, og því hafa þeir haldið sig út úr stríðinu á milli auðs og iðju og afneitað framferði hinna öfgafullu manna, sem Bolshevikar nefnast. — Þeir hafa heldur kosið samvinnu og sameigna fyrirkomu- lag það, sem þeir eru vanir við og sem þeir hafa notið öldum saman, þrátt fyrir keisaravald og Bolshevisma. Þegar að Karl Marx tókst á hendur að velja hinum ýmsu stéttum þjóðfélagsins nöfn, þá var það einn flokkur, sem reyndist hinum velþektu hæfileikum hans ofurefli og sem hin vísindalega aðgreining hans náði ekki yfir. Og eftir að hann hafði skift þjóðinni í tvo flokka: Stór- eignamenn (Bourgeoisie) og vinnulýð (Pivlet- ariat). Þá var hann í vandræðum með að finna nafn handa hundrað og fimtíu miljónum smá- eignabændalýðs (Peasants) á Rússlandi. Því þegar Marx fór að gæta vel að varð hann þess var að þessir bændur og jarðyrkju- menn (Peasants) áttu ekki einasta jarðvrkju- verkfæri sín sjálfir og yrktu með þeim sitt aigið land, heldur unnu þeir líka nokkuð áf tímanum á bújörðum auðmannanna. Tugir þúsunda af þessu fólki vinna part úr árinu á sínu eigin landi og hinn partinn fara þeir inn í borgir og bæi og vinna þar, og þess ' vegna var hvorki hægt að kalla þá auðmenn (Bourgeois) eðá verkalýð (Proletarians), svo að Bolsheviki menn í ofsóknum sínum gegn auðvaldinu hafa ekki gjört neinar tilraunir til þess að fá þennan hluta þjóðarinnar í lið með sér. En sökum þess að sumir af jiessum smá- bændum eiga erfitt uppdráttar—dragatram líf- ið og það stundum með naumindum, þá héldu Bolsheviki menn að þeir mundu talka höndum saman við vinnulýðinn og snúast með honum og á móti auðvaldinu. En það brást þeim. Og í stað þess að gjöra það mynduðu þeir flokk sín a meðal og var stefnuskrá hans í beinni mót- setning við það, sem stjórnmálaflol^karnir á Rússlandi héldu fram. Rússnesku smábændurnir eru ekki og hafa aldrei verið sósíalistar. Fyrirkomulag það, sem þeir hafa vanist og búið undir frá ómuna tíð eru hin svokölluðu samvinnufélög (Mirs), og frá því fyrirkomulagi eru samvinnu og samtaka félagsskapur sprott- inn. 0g þar sem samtök og sarpvinna eru ekki mótfallin iðnaðarfyririkomuiagi því, scm nú á sér stað í heiminum, þá sé eg ekki betri veg til þess að sætta og sameina auð og iðju. Þessi félagsskapur (Mir), þar sem honum verður við komið, er í hverjum bæ og hverri sveit, og eru þá allir bæjar eða svoitarbúar í honum. Þeir kjósa sína eigin embættismenn, tollþjóna og dómara. Félagið sér þeim fyrir farborða sem óhæfir eru til vinnu og þeim som ekki hafa nóg fyrir sig að leggja. Það sér og um fjármálin, ekki einasta meðlima sinna, helclur tekur það líka að sér vegagjörðir innan sinna vébanda, byggingar skóla, leggur til part af kaupi kennaranna, hvetur til framfara í akuryrkju og kennir með- limum sínum að hagnýta sér landið sem bezt. Félög þessi hafa og mörg sína eigin banka. Og þegar einhver óhöpp henda einhvern félags- manna, svo sem eignatjón, skjóta félagsmenn saman fé til þess að koma fótunum undir hann. Þeir einu stjórnmálaflokkar sem bera vel- ferð bændanna rússnesku fyrir brjóstinu fá fylgi þeirra. Og þeir mega heldur ekki leggja hömlur á samvinnutækifæri þeirra og samvinnu stjórnarfyrirkomulag. En þeir eru ófúsir til að gefa upp landbletti þá sem þeir nú eiga, til þess að gjöra tilraunir með mjög svo óábyggi- legar hugmyndir æsingamanna. Það er því þýðingarlaust fyrir Bolsheviki menn að hrópa á smábændurna rússnesku sér til hjálpar, til þess að ráða niðurlögum auð- mannanna á Rússlandi. Smáeignabændurnir á Rússlandi áttu engan þátt í stjórnarbyltingunni annan en þann, að taka í sínar hendur lönd, sem eigendurnir voru búnir að yfirgefa. Rússnesku smábændurnir hafa ekkert að segja í sambandi við stjórnarfarið á Rússlandi, eins og það nú er. En þeir vita að þeir eru lífs- kjarai þjóðarinnar og að það er undir þeim komið hvort þjóðin sveltur eða ekki, og þeir bíða rólegir átekta. Þeir vita ósköp vel að það er ætlast til þess að þeir fæði tíu sinnum fleiri ómenni (Parasite), heldur^en þeir þurftu að fæða fyrir stríðið. Rússneslcu smábændurnir vita að ávöxtun- um af iðju þeirra er nú stolið—þeir vita að pen- ingarnir sem þeir fá eru einskis virði, og að landið er hvarvetna fótum troðið og eyðilagt. Ef að Bolsheviki menn eru að deyja út á Rússlandi, þá er það af því að smábændumir vilja þá feiga. • Með þessu er oss sannað að enginn stjóm- málaflokkur getur haldið völdum á Rússlandi til lengdar, sem ekþi nær fylgi meiri hluta þjóðarinnar—sem ekki nær fylgi smábændanna og þess hlufa þjóðarinnar, sem með þeim rækta einn sjötta part af landi heimsins 150,000,000 manns að tölu. Eina stjórnarfvrirkomulagið sem náð get- ur föstum tölrum á RÚ2,slandi er lýðveldis fyrir- komulag, þar sem vilji allrar þjóðarinnar get- ur komið fram og notið sín á lö^gjafar-þjóð- þingi hennar, og á því þingi hljóta smábænd- urair að verða í miklum meiri hluta. Framtíð Rússlands hvílir á bráðabirgðar- stjórn aðmíráls Kolacks í Síberíu. Við þá stjórn haldast í hendur stjórn Denikins í suður Rússlandi og stjórn Tschaikovsky í norður Rússlandi. Og það sem gjörir hana ennþá sterkari og sigurvon hennar glæsilegri er að smábændurnir styðja hana. Síbería er sá partur landsins sem fyrst nær sér eftir stríðið, sökum þess, að þar hefir verið reynt að græða sárin. Þar hafa samvinnufyrir- komulög (Mirs) svo þúsundum saman verið sett á stofn. Meðlimatala þeirra skiftir miljón- um. Alt það fólk, sem hefir snúið sér að því með alvöru að byggja upp landið aftur og það að tilfinningin um samvinnufélagsskap er aftur lifnuð á RússJandi gjörir mig vongóðan um það að hið göfuga í þjóðinni sigri. Hvort heldur að sambandsþjóðirnar viður- kenna stjórnir þessar, sem eru að reyna að endurreisa þjóðina eða ekki, gjörir ekki svo " mikið til. Innan 'lítils tíma verður Bolshevisminn sveltur og á flótta rekinn af smábændunum. Og þá eiga þeir eftir að gjöra það, sem þeir hafa gjört svo oft áður, að endurreisa og endur- byggja Rússland og leiða hina mssneslku þjóð á braut friðar og Yelmegunar. Bjartsýni og æska. Sá, sem ávalt lítur björtum augum á lífið og atburðakeðju þess, eldist í raun og veru aldrei, hvað sem áranum líður. — Bjartsýnin er i , , móöir æskannar. Æskan fóstrar fynrheitm, og í fyrirheitunum felast frjómögnin, að lífs- hamingju og andlegum gróðri. Það er nú orðið langt um liðið síðan að Bandaríkjaþjóðin átti í borgarastyrjöldinni miklu, og sú kynslóð að mestu til moldar gengin, er í henni tók þátt. Þó standa enn nokkrir uppi, að vísu mjög hnignir að aldri, en þó með blys æskunnar svo skíðlogandi í sálum sínum, að af þeim hefir jafnvel aldrei stafað fegurri ljómi. — Einn slíkra manna er Samuel Fallows, nú áttatíu og þriggja ára, sem gegnt hefir biskups embætti síðan 1876. Ilér fylgja á eftir nokkrir helztu drættirnir úr grein, sem Mr. Fallows reit í Bandaríkja tímarit fyrir skömmu, og má af þeim nokkuð maríka lífsskoðun hans: “Þótt eg nú hafi náð áttatíu og þriggja ára áfangastaðnum, þá get eg með ánægju fullviss að yður um, að kraftar mínir bæði til sálar og likama eru enn upp á sitt bezta. — Veröldin er í mínum augum jafnfögur í dag, og framtíðar- draumarnir eins töfrandi, og þegar eg var um tvítugsaldur. Mér hefir aldrei staðið ótti af ellinni, og þess vegna hefir hún ef til vill farið fyrir neðan garð. Eg hefi eiginlega aldrei tekið mér neina hvíldardaga á æfinni, heldur aðeins skift um starf, það hefir reynst mér bezta hvíldin. Ahyggjurnar, eru skæðustu óvinir, andlegr- ar og líkamlegrar heilbrigði — og því hefi eg úthýst þeim, hvað sem að" höndum hefir borið. Ahyggjurnar lama starfsþróttinn, og eiga þess vegna engan rétt á sér. Áhyggjur, í sambandi við nútíð og framtíð, eru þó öílu afsakanlegri, en hugsýki yfir því, sem liðið er, og eigi verður með nokkru móti við ráðið. Af hverri éinustu yfirsjón, hefi eg nokkuð lært, og ávinninginn hefi eg lagt á sparisjóð. — Framtíðin felur ávalt í skauti sínu ógrynni af verkefnum, sem vér vitum oss færa, um að ráða við, þótt stundum geti vitanlega eitthvað það að höndum borið, er reynist oss ofurefli, að minsta kosti í svipinn. Er það þá ekki blátt áfram fjarstæða að vera með hugsýki út af þeim atburðum, er framundan liggja, sem vér vitum að vér erum nenn fyrir, engu síður en meðbræður vorir? Allar slíkar grillur veikja viljann og rýra manngildið. Örðugleikarnir Qg hætturnar eru stundum ósegjanlega töfrandi, — því þá ekki að mæta þeim eins og maður! Eg veit að yður er ljós afstaða mín í sam- bandi við þá hluti, eða þá atburði, sem eg sag??i . aS vér gætum ráðið við, en þér munduð ef til vill spyrja, hvernig fara eigi að til þess að los- ast við áhyggjur, vegna hinna svonefndu óvið- ráðanlegu atburða. Eg býst við að þér segið aS það hljóti að vera mannlegum mætti um megn. Svo er það líka í vissum skilningi. En hafið þér aldrei hugsað um það, að utan vé- banda yðar eigin máttar vakir uppspretta, sem þér getið sótt í ótakmarkaðan þrótt?------ Veröldin er guðsríki, þar sem lífæðarnar frá hjarta Guðs hríslast í allar áttir. Ein slíkra lífæða, er bjartsýmin— og sjálfur Guð, er bjart- sýnastur alls og allra.---- Bjartsýnir menn fara eigi varhluta af sorginni fremur en aðrir, eins og gefur að skilja, en þeir líta hana í öðru Jjósi, og þess vegna eykur hún þrásinnis hina sönnu lífsham- ingju, þegar alt kemur ti} alls. — Eg hefi fengið minn skerf af soyginni, hún hefir orðið mér til blessunar — flutt mig nær lífstaJanarkinu sjálfu. — Eins og eg hefi áður bent á, tel eg hugsýk- ína langskæðasta óc$:n heilbrigði og hamingju. Drepi hún á dyr, skaltu reyna að flæma hana á brott með brosi. Hrífi það ékki, skaltu raula fallegar vísur fyrir munni þér. Bregðist það einnig, er söngurinn eina úrræðið.” E. P. J. Að spara Smáar upphæðir lagðar inn í banka reglulega geta gert stærri upphæð en stór innlög, sem lögð eru inn óreglulega. Sá sem gerir sér að vana að leggja inn peninga, hann fær löngun til að sjá upp- hæðina stækka. Rentur gefnar að upphæð 3% á ári, lagt tvisvar við höfuðstólinn. ílyr.jið að leggja inn í sparisjóð hjL THE ÐOMINION BANK Notre Daine Ilrunch—W. H. HAMILTON, Manager. Seikirk Branch—F. 3. MANNING, Manager. lilllMIIIIHIHl riwnH'i The Royal Bank of Canada Höfuðstóll löggi’tur $25.000,000 Varasjóður. .$15,500.000 Forseti - - - Vara-íorseti Aðal-ráósmaður Allskonar bankastörf afgreidd. Höfuðstöll greiddur $14.000,000 Total Assets over. .$427,000,000 Slr HKRBERT S. HOI7T E. L. PEASE — - C. E N ETLL Vér byrjuin relknlnga vlC einstaklinga eBa félög cg sanngjarnir skilm&lar veittlr. Avlsanir seldar tll hva.Ua staUar sem er & tslandl. Sérstakur gaumur geflnn sparlpjöCslnnlögum, Bem byrja ni& meB 1 dollar. Rentur lagiiar vlB & hverjum 6 m&nuBum. WINNIPEG (West Enfl) BRANCHES Cor. William & Slicrbrook T. E. Thorsteinson, Manuger Cor. Sargent & Beverley F. Thordarson, Manager Cor. Portage & Sherbrook R. L. Paterson, Manager l:!B!:|IHIIIH::'BlH!!!H'!"B:::Bi!'H.!lB';l!HinilHIIIIB'i;iHIIIHi|IH!::Bli|lB"HIII:B.:HliliHlli!HII HN Versalir Eftir því sem fregnir herma verður pjógverjum boðið að senda fulltrúa til móts við foringja Bandamanna nú um sumarmálin. Stefnufundur ákveðinn í Versöl- um. par á að ljúka síðasta höf- uðþætti hins mikla sorgarleiks. heimsstyrjaldarinnar. Versalir eru dálítill bær sunn- anvert við Parísarborg. Um miðja 17. öld voru þar veiðiskógar Frakka konungs og bygð lítil. Loðvík 14. kom til hugar að gera þessi kyrlátu skógarsvæði að höf- uðborg heimsins. Hann kunni ekki við sig í París. Hún var honum of stór. Konungurinn naut sín ekki, að hans dómi, í umsvifa- miklu lífi stórborga^innar. Árið 1661 var hafist handa um hyrjun hallarinnar og garðsins mikla hak við hana. Tuttugu og þremur ár- um síðar var smíðinni að mestu lokið. Sú gersemi var dýr, kost- aði alt að því þúsund miljónir franka. pað er erfitt í stuttu máli að gefa nokkra hugmynd um þessa ógnarmiklu höll. Hún var bygð á sendinni sléttu, þar sem vatnslaust var að kalla. Framhlið hallarinn- ar er hérumbil hálfur kílómeter á lengd. Gluggar á hvorri hlið um 400. Tíu þúsundir manna gátu búið í höllinni, þegar hún var full- ger, enda var hún bæði heimili hins mikla sólkonungs og setur hinnar æðstu stjórnar. Framan- vert við höllina myndaðist allmik- ill bær. par áttu allir aðalsmenn og höfðingjar í landinu, þeir sem nokkurs þóttust um komnir, borg- arasetur sín. prjár höfuðgötur liggja um bæinn, eins og geislar frá dyrum konungshallarinnar. Bak við höllina er hinn mikli og frægi Versala garður. Skiftast þar á víðáttumiklir grasfletir, trjálundar, skógargöng, tilbúið stöðuvatn, og er klukkutíma gang- ur kringum það, gosbrumiar o. s. frv. Sumstaðar í garðinum eru gosbrunnaraðir meðfram þykkri skógarrönd. Er undurfagurt að sjá hvítfyssandi vatnið bera vi? grænan skógarvegginn. Á öðrum stað eru opin hringmynduð stein- bogagöng í rjóðri einu, og gos- brunnur í hverjum hogadyrum, en þær eru um 30. pegar gosbrunn- arnir allir gjósa heilan dag kostar það 10,000 franka., Wiðhafnarsal- urinn mesti (speglasalurinn* er á öðru lofti í miðju húsi garðmegin. • Ilann er 72 m. á lengd. Sá hlið- veggurinn sem fjær er garðinum er alþakinn spegilgleri. En til hinnar hliðar vita 17 bogagluggar út að garðinum, og er þaðan hin fegursta útsýn. Frá höllinni ligg- ur grasflöt mikil til heggja skóg- arjaðra niður að einni fegurstu gosbrunnahvirfingunni. Litlu fjær er vatnið. pað er reglulegur kross og sér úr speglasalnum út yfir alla lengri álmuna og meginhluta landsins til beggja handa. Versalir hafa löngum komið við sögu síðan höllin mikla var bygð. Á dögum Loðvíks 14. var hærinn höfuðstaður Frakklands og mikils hluta Norðurálfunnar. par urðu til þær fyrirmyndir seni mest ,sæmd þótti að líkja eftir. Á dög- um Loðvíks 15. voru Versalir höf- uðstöð spillingarinnar í álfunni. par hvarf einvaldsstefnunni blóð og mergur, traust og virðing. par hófst stjórnarbyltingin mikla vor- ið 1789. paðan var Loðvík 16. fluttur fanginn til Parísar. Eftir það hnignaði höllinni og borginni. Napoleon lét sig litlu skifta um Versali, en borgarakonungurinn Loðvík Filippus eyddi of fjár til að skinna upp á þennan helgistað einveldisins. Gerði hann höllina að iistasafni, og eru þar þegar geymd fjölmörg málverk, einkum úr sögu Frakklands. Leið svo þar til 1871, að pjóðverjar sátu um París. pá hafði Bismarck höfuð- stöðvar þýzka hersins í Versölum og þar lét hann krýna Vilhjálm I til keisara yfir hið sameinaða þýzka ríki — í speglasal Loðvíks 14. Nú mun Bandamönnum þykja bezt fylt skarð í vör Skíða, ef ósig- ur Frakklands 1871 er bættur með því, að fulltrúar pýzkalands und- irriti hinar hörðu skaðabótakröfur á þeim sama stað, þar sem fræ- kornum var sáð, fyrir hálfri öld, til þeirra voða-atburða, sem gerst hafa á undanförnum árum. Versalir eru merkilegur bær. par hófst einvaldsstefnan til mestrar frægðar og gengis. par spratt upp andstæða hennar, lýð- vald nútíðarinn’ar. par var stofn- að hið mesta herveldi sem sögur fara af. Og þar er hið sama her- veldi dæmt til dauða, og sótt til sektar, þyngri en dæmi eru til áður. — Tíminn. Leikur á þrœði. “Sár, sem Evrópu hefir nú ver- ið 'veitt, er að minni hyggju stærra og dýpra, en nokkurt sár, sem Evrópu hefir verið veitt af völdum'stríðsins. pað er eyði- legging á iðnaðartækjum og iðn- aðarsamböndum Evrópu og Eng- lands í smærri stíl.” petta er aðal innihald úr ræðu, sem Frank Vanderlip, fyrverandi forseti National City Bank, New York, flutti í samkvæmi er verzl- unarsamkunda New York hélt 4. þessa mánaðar. pessi mynd, sem Mr. Vanderlip hefir d^egið af Evrópu, er sann- arlega ekki glæsileg,- og mönnum kann að finnast að hún gangi nokkuð langt í bölsýnisáttina. En menn þeir, sem hafa kynt sér ástandið í Evrópu eins og það er — menn sem hafa getað séð undir yfirborðið, hafa ekki furðað sig á þessari staðhæfingu Vander- lips, heldur furða þeir sig á því hversu bjartsýnn hann er, því hann lætur í Ijósi þá meiningu sína, að þrátt fyrir hið voðalega ástand, þá sé von um endurreisn Evrópu. Pað sem Mr. Vanderlip sá, eru ekki að eins héruðin gjöreyddu í Belgíu og á Norður Frakklandi, heldur hin eyðilögðu iðnaðarfyrir- tæki, verksmiðjurnar lokuðu, hin slitnu viðskiftasambönd. Hann sá fram á þurð og jafnvel hungur meðal fólksins, og hann sá hina vaxandi óánægju og ókyrð meðal œanna. “pótt kaup þeirra sé hækkað, þá eru þeir samt ekki ánægðir, held- ur ganga með það á tilfinningunni að á einhvern hátt megi borga >eim það kaup, án þess að nauð- synjarnar þurfi að hækka í verði. Og með það í huga, er hætt við að verkalýðurinn komist í of inikla æsingu.” Mr. Vanderlip heldur áfram*at- hugunum sínum í samhandi við Evrópu: “pað er Vegur til þess að frelsa Evrópu” segir hann. “pað er með því að gjöra henni mögulegt að koma iðnaði hennar aftur á fastan fót, svo að menn geti farið að vinna. Evrópa er eirís og geysilegur stóriðnaðarbær. Hún þarf á lán- . um og óunnum vörum að halda j og við sem búum hér í Ameríku, getum og eigum að hjálpa þeim. Og með því að Iljálpa þeim, hjálp- um við sjálfum okkur. pví óeirð- ir þær, sem af vinnuleysi stafa, eru líklegri til að veita Evrópu dýpri sár heldur en nokkuð ann- að, og það er líka óumflýjanlegt að þær óeirðir flytjist yfir hafið og til þessarar heimsálfu. Ef að þið gætuð nú séð með mér tækifærið, sem Ameríka hefir nú til þess að gjöra gott í heiminum —tækifæri til þess að hjálpa, og fyndið einnig til ábyrgðarinnar sem á oss hvílir í því sambandi, þá lituð þið ekki dökkum augum á þetta mál, heldur væruð þeir bjartsýnustu, sem nokkurn tíma hafa mætt á mannfundi í þessu landi”, sagði Mr. Vanderlip, og mætir við: “pað sem eg hefi nú sagt, er

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.