Lögberg - 17.07.1919, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. JÚLl 1919.
Bls. 7
i
Sjálfstœði Hejaz.
Af þjóðum þeim, sem öðlast hafa
sjálfstæði og viðurkenningu á frið-
arþinginu, er Hejaz ef til vill ein-
kennilegust. Land það, sem sú þjóð
byggir, liggur á arabiska skagan-
um austan við Rauðahafið.
Erindsreki Hejaz-manna á frið-
arþinginu var Faisal prins, sonur
Hussien konungs.
Og þessa viðurkenningu þeirra
má skoða sem síðasta sigurinn í
hinum 1,300 ára gömlu sjálfstæðis-
hugsjónum þeirra. “Arabía handa
Aröbum”-hreyfingin er afar göm-
ul, var byrjuð fyrst af Mohamet og
haldið stöðugt vakandi af áhang-
endum hans, og Hessj^en konungur,
hinn núverandi yfirmaður þeirra,
telur sig afkomanda spámannsins.
En Arabar voru til löngu fyrir
daga Mahomets. Á meðal fyrstu
þjóðhöfðingja þeirra, er sögur fara
af, var drotningin fagra frá Sheba,
sú sem forðum sótti á fund Saló-
mons konungs og töfraði hann með
fegurð sinni, og sagt er að til þess
tíma reki ættfróðir Gyðingar komu
þjóðflokksins til Arabíu. Maho-
met sameinaði Arabíumenn, en eft-
ir hans daga náði enginn þjóðhöfð-
ingi slíkum tökum sem hann, og að
síðustu féll landið undir Tyrki, er
héldu því fram að þessu síðasta
stríði.
En yfirráð Tyrkja voru aldrei
viðurkenda af Aröbum sjálfum-
þeir stóðu stöðugt á móti áhrifum
og yfirráðum þeirra og einkum
veitti sá flokkur arabisku þjóðar-
innar, sem nefnir sig Bedouins og
hefst aðallega við úti í eyðimörkum
landsins, Tyrkjum megna mót-
spyrnu, Bedouinar hafa ávalt
staðið fast við frelsishugsjónir
þjóðar sinnar.
Árið 1916 lýsti Sharif Hussien,
Emírinn í Mekka, yfir sjálfstæði
þjóðarinnar og tók sér konungs-
nafn. Hann veitti sabandsmönn-
um að málum í stríðinu og hjálp-
aði Englendingum til þess að
brjóta Tyrki á bak aftur í Litlu
Asíu, og fyrir þá hjálp hans við-
urkendu Englendingar sjálfstæðí
Hejaz, og það var fyrir tilhlutun
brezku sendiherranna, að erinds-
reki þeirrra fékk aðgang að frið-
arþinginu.
Á undan stríðinu héldu Tyrkir
nokkrum úr Hussien fjölskyld-
unni í gisling í Mekka, því það
voru aðaljega bæirnir, sem þeir
höfðu náð yfirráðum yfir.
1 hinni nafnkunnu ræðu sinni á
móti alþjóðasambandinu minnist
Senator Reed í Bandaríkjunum á
þessa þjóð, og telur hann hana
eina af “blökku þjóðunum,” sem
er fjarstæða, því þó að Arabar séu
ekki hvítir á hörund, þá nær engri
átt að kalla þá Svertingja. peir
eru svipaðir á hörundslit og ítalir
eða Spánverjar, og í æðum þeirra
hefir aldrei runnið Svertingja-
blóð.
peir eru afkomendur þeirra
manna, er voru merkisberar menn-
ingarinnar. peir áttu sérstakar
bókmentir og heimspeki, þegar
Bretar bjuggu í sínum jarðhúsum
og voru ekki lengra á veg komnir
á braut menningarinnar heldur
en þeir eru, sem vér nú nefnum
villimenn.
Og þessi þjóðflokkur er einn af
þeim fáu, sem Rómverjum tókst
aldrei að yfirvinnna.
En þrátt fyrir fortíð þessa, er
engum blöðum um það að fletta,
að Hejaz-menn eru orðnir langt á
eftir tímanum í öllum framförum,
og er þar um að kenna aðallega
hinu mjög svo þurra loftslagi og
því, hversu afskektir þeir eru.
Senator Reed sagði í ræðu þeirri
sem minst er á hér að framan, að
tala Hejaz-manna sé 300,000 og
bætir svo við: “og af þeim eru
150,000 villimenn, sem nefnast
Bedouins og haldast við úti í eyði-
mörkum, lýður, sem flakkar frá
landi til lands, skepnur sem að
elta úlfalda sína og sofa undir
beru lofti þar sem þá dagar uppi.
Menn, sem eru háðir sömu lífs-
kjörum og forfeður þeirra voru
fyrir 10,000 árum — hafa í engu
breytt út af siðum þeirrra né
hugsunarhætti, nema í því, að að-
hyllast kenningar Mahomets.”
En þeir, sem þjóð þessari eru
vinveittir, segja að hún telji
1,000,000 manns og að all-mikill
hluti hennar sé búsettur í dölum
landsins, þar sem jarðargróðinn
er mestur. En það er tiltölulega
lítill partur landsins, mest af því
eru eyðimerkur og fjöll.
Nokkur hluti þjóðarinnar býr í
bæjum og borgum og er Mekka
þeirra stærst; íbúatalan þar er
frá 75—100 þúsundir.
En hinn partur þjóðarinnar,
Bedouinarnir, er farand-Iýður í
eyðimörkinni, eins og senatorinn
segir.
Að ýmsu leyti eru Bedouinarnir
þó kjarninn úr þjóðinni.
pað eru þeir, sem hafa hald-
ið frelsis-hugsjónum þjóðarinnar
vakandi og hjá þeim þróast enn
dygðir þær, sem gaf hinu forn-
arabiska ríki þrótt þess.
Bedouinarnir eru farand-flokk-
ur á háu stigi—fara úr einum stað
í annan, eftir því sem kringum-
stæðurnar krefjast. En þess verð-
ur vel að gæta, að þeir byggja
land það, sem ekki getur staðið
straum af þeim á neinn annan
hátt.
peir eru neyddir til þess, að
fylgja hjörðum sínum úr einum
stað í annan, til þess að halda þeim
við haga og finna vatnsból.
peir búa í tjöldum, sem þeir
flytja með sér, og segja menn, að
þeim sé svo haganlega fyrir kom-
ið, og svo vel gjörð, að betri þekk-
ist ekki í víðri veröld.
Úlfaldann, sem er burðardýr
þeirrra og fararskjóti, hafa þeir
tamið svo, að þeir geta ferðast á
honum 100 mílur á dag, dag eftir
dag, án þess að fá dropa af vatni,
og þegar rignir svo að sándarnir
gróa, halda þeir kyrru fyrir með
hjarðir sínar, eins lengi og bit-
hagi endist, og það eins þótt vatns-
laust sé, því úlfaldamjólkin nægir
þá ekki einasta til þess að slökkva
þorsta fólksins, heldur og hinna
fránu arabisku hesta líka. En sá
galli er á þessu mjög svo þarfa
dýri, úlfaldanum, að hann virðist
hvergi geta þrifist og notið sín
nema þarna í arabisku eyðimörk-
inni. pví þó reynt hafi verið að
flytja hann út þaðan, hefir hann í
engu tilfelli þolað breytinguna,
heldur vezlast upp og dáið.
Stjórnar fyrirkomulagið er all-
einkennilegt. Framkvæmdarvald-
ið er í höndum stjórnar, sem í eru
fyrirliðar hinna ýmsu flokka þjóð-
arinnar. Auk þess hafa þeir þing,
þar sem allir eiga málfrelsi, geta
sótt mál sín og varið. Á slíkum
þingum fara og dómar fram í
málum manna. par sem um er
að ræða mannsmorð, sem sannast
hefir, geta hlutaðeigendur kosið,
hvort heldur þeir vilja taka fé-
bætur eða líf þess, sem morðið
hefir framið, og hefir þetta fyrir-
komulag orðið til þess, að kveikja
hatur á milli sumra flokkanna og
stórættanna, sem í sumum tilfell-
um hefir haldist uppi mann fram
af manni.
petta einfalda líf og fastheldni
við fornar dygðir þjóðarinnar, er
svo mikið ber á meðal Beouina,
nær þó ekki til íbúanna í Mekka,
sem er aðal-borg þjóðarinnar. En
þvert á móti er borg sú alkunn
fyrir siðleysi.
peir, sem fæddir eru í borginni,
bera flestir þrjú ör á andlitinu,
og er það alment álitið, að á þeim
þurfi menn að vara sig, hvort
heldur það er karl eða kona.
Mekka er fæðingarstaður Maho-
mets, og fer fólkið þangað píla-
grímsferðir á ári hverju í stórum
íiópum. Fólk það á við hin verstu
ókjör að búa í borginni. pað er
prettað á alla vegu, sem unt er að
hugsa sér, og svo langt ganga
borgarbúar í því, að selja píla-
grímunum drykkjarvatn dýrum
dómum; enda er þetta aðal-at-
vinnuvegur borgarmanna.
Næstur Mekka er bærinn Med-
ina að stærð. par er Mahomet
grafinn. Um þann bæ settist
Hussien konungur nú í stríðinu
og hefði getað skotið hann niður.
En sökum helgi þeirrar, sem bær-
inn hefir í huga Araba, vegna þess
að þar hvílir Mahomet, þá settist
hann með liði sínu um bæinn og
ætlaði að svelta Tyrki. En þeir
fengu laumað inn vistum, svo að
konungurinn sæti þar líklega enn,
ef það hefði ekki verið fyrir aðstoð
Breta, er settu það skilyrði þegar
vopnahléð var samið, að Tyrkir
skyldu gefa upp Medina.
Fyrir stríðið var kristnum mönn-
um og Gyðingum bannað að stíga
fæti sínum inn í borgina Mekka,
svo að konsúlar hinna ýnísu landa
Urðu að búa í Jidda, sem er hafn-
arbær rétt við borgina. Ef þessu
fyrirkomulagi verður ekki breytt,
þá fær enginn af sendiherrum
þjóðanna til Hejaz að búa í höfuð-
borginni.
Já, eg kem skjótt.
Amen.
Eg hefi nokkrum sinnum lesið
kapítulann í Esekíel 34, og það
hvílir þungt á sál minni, það sem
drottinn talar þar fyrir munn Ese-
kíels spámanns til Israels hirðara.
Dómurinn er þungur, sem guð
sjálfur framkvæmir, og hann að-
varar áður en komið er þangað, að
dómurinn verði ekki umflúinn. —
Eg vil benda á 10. versið, er svo
hljóðar: “Svo segir drottinn al-
valdur: Sjá, eg vil koma til hjarð-
mannanna og heimta mína hjörð
af þeirra hendi; eg vil setja þá af
hjarðmenskunni; ekki skulu þeir
lengur vera hirðar, sem einungis
ala sjálfa sig; og eg vil frelsa
mína sauði undan þeirrra tönnum,
þeir skulu ekki framar leggja þá
sér til munns”, og 11. versið: “pví
svo segir drottinn alvaldur: Sjálf-
ur vil eg fara og spyrja eftir
hjörðinni og leita hennar”. Enn
fremur 16. versið: “Eg vil leita
þess týnda; sækja það hrakta;
binda um það limlesta og koma
þrótt í hið veika, en varðveita hið
feita og sterka; eg mun halda þeim
til haga eins og vera ber.” — Ald-
rei hefir verið stærri þörf en ný
á þessum myrku og skelfilegu tím-
um, að íhuga orð guðs, fyrir þá, er
hafa valið sér þá stöðu að vera
hirðarar; eg meina þá, sem eru
rétttrúarinnar megin í það minsta
hvað “orðið” áhrærir; hinir eru
þar fyrir utan og hafa ofurselt
sig villunni svo skelfilega að af-
neita guðdómi Jesú, upprisu hans,
himnaför o. s. frv. í hvert skifti,
sem eg hefi tekið mér vestur-ís-
lenzku blöðin í hönd, hefi eg búist
við að sjá auglýst, að bænasam-
koma yrði haldin þann eða þann
dag í Sslenzku kirkjunni og fólk
auðvitað beðið að koma til bæna.
En aldrei hefi eg séð neitt í þá
átt. Fari eg hér ekki rétt með,
bið eg forláts. En sé þetta satt,
þá er það dauðamerki, að alt ann-
að sé nauðsynlegra. Ekki dettur
mér í hug að neita, að sumar sam-
komur eru í góðu augnamiði; en
engum kristnum manni getur dul-
ist, að þar sem bænin er látin sitja
á hakanum, þar vantar aðal-afl
kristindómsins. Bæn og trú eru
skilgetnar systur; bænin gengur
á undan öllu öðru og ber okkur,
sem sálmaskáldið segir “beina
leið í drottins skaut”. Bænin er
óútmálanleg blessun, sem drott-
inn sjálfur gefur okkur öllum
hæfileika til að geta framflutt
fyrir sig, sínu heilaga nafni til
dýrðar. pegar eg bið fyrir hinum
eða þessum, sem eg veit eg fæ
aldrex tækifæri til að sjá eða tala
við, þá fullvissar guðs andi mig
með trúarinnar óbrigðulu full-
vissu, að guði er alt mögulegt, og
líka það, að senda þeim hjálp, sem
hann kallar mig til að biðja fyrir,
og oft í þeim kringumstæðum sýn-
ir hann mér hvernig var ástatt
fyrir mér sjálfri fyrir meir en 12
árum síðan, ef vera kynni að það
yrði til vakningar einhverri sál,
sem langar að nálægja sig. guði í
bæn, en hefir ekki enn þá fundið
vegínn, sem Jesús nefnir þröngva
veginn og liggur til lífsins, og all-
ir, sem fæðast af guðs anda, fá
reynslu fyrir þeim sannindum.
pað var haustið 1906, að guðs
andi sannfærði mig um synd, um
réttlæti og um dóm svo sterklega,
að eg komst á engan hátt frá þess-
ari sannfæringu; sýndi mér, að
sál mín var dæmd til eilífrar glöt-
unar. Eg rannsakaði mitt liðna
líf, sá þar syndir og allskonar á-
sakanir, sem eg sá enga bót við.
pað eina, sem ofurlítið gladdi mig
í þessum kringumstæðum, var, að
eg ætíð hafði sett von mína á frið-
þægingu drottins míns og frels-
ara Jesú Krists. En nú var sú
blessun frá mér tekin að hvíla í
því. Eg spurði sjálfa mig, hvað
eg ætti að gera, en þar var dauða-
þögn. Ekkert svar fékst. Oft kom
mér til hugar að fara til prests-
ins, sem var lúterskur, og tala um
þetta við hann, en guðs andi, sem
tekið hafði við stjórn í sál minni,
sýndi mér aftur og aftur, að hann
gæti ekkert hjálpað mér. pá þekti
eg ekki, að guð hafði ásett sér að
leiða mig sjálfur þangað, sem þeir
voru, er gátu uppfrætt mig um
hvað mér bæri að gera.
Svo var það eitt kvöld þetta
sama haust, að eg gekk fyrir dyr,
þar sem nokkrir voru saman
komnir af frelsisherfólki. Eg
hafði aldrei verið á þeirra sam-
komum og þótti það hafa æði hátt,
þegar eg heyrði til þess þetta
kvöld. Var eg svo beygð, að eg
hugsaði mér að heyra, hvað það
hefði að segja, og fór því inn.
Eftir samkomuna kom kafteinn-
inn til mín og tók mig tali, og
spurði mig hvort eg væri endur-
fædd. Ekki man eg hverju eg
svaraði; skildi auðvitað ekki, um
hvað hann var að tala. pá talaði
hann um, að eg skyldi biðja, og
það á hnjánum; eg svaraði þessu
engu, en 1 huga minn flaug á
sömu mínútu þetta drambfulla
svar, að eg mundi geta beðið eins
vel þar sem eg sæti, eins og á
hnjánum. Legg nú merki til: Eg,
sem aldrei hafði nálgast guð í bæn
frá mínu eigin hjarta. Auðvitað
kunni eg margar bænir og sálma,
sem aðrir höfðu samið, og ekki ber
mér að gera lítið úr, að oft hafði
það snortið hjarta mitt til augna-
bliks blessunar, en á sömu stundu
og þetta fór fram, gaf guð mér
skilning á, að það að biðja á
hnjánum væri auðmýkt, sem guð
hefði mætur á. Og lengra fór það;
næst ^af guð mér þetta einfalda
dæmi fnér til hjálpar: Að ef eg
væri dæmd til dauða af veraldleg-
um konungi og eg vissi að hann
mundi fjemur náða mig bæði eg
hann um líf á hnjánum, hvað eg
mundi þá gera: Á sömu mínútu
fór eg á hnén og byrjaði á að
reyna að biðja með tollheimtu-
mannsins bæn: Guð, vertu mér
syndugum líknsamur! Eg man þá
stund, á meðan eg man nokkuð.
Jesús bað fyrir mér. Guðs andi
bað með óumræðilegum andvörp-
unum, og allir, sem þektu bæn,
báðu fyrir mér. Og ekki löngu
þar eftir fékk eg fullvissuna um,
að alt var fyrirgefið og nafn mitt
var í lífsbókinni, og guðs friður,
sem yfirgengur allan skilning,
hafði streymt inn í sál mína, sem
var gagntekin af þakklæti til míns
himneska föðurs fyrir friðþæging-
arfórnina í Jesú, er tók bölvun
syndarinnar burt af sál minni og
kallaði mig til að vitna um það,
sem eg hafði séð og þreifað á: að
öll hans loforð eru sönn og hann
færir þau fram með sterkum armi.
Eg var 50 ára gömul, þegar þetta
var, og hafði litla þekkingu á einu
og öðru, sem tilheyrir andlega líf-
inu. En eitt er víst, að alt varð
nýtt fyrir minni sálarsjón og mig
undraði, að eg ekki löngu fyr
skyldi hafa fundið þetta dýrmæti
—bænina. Guð gaf mér skilning
á sínu orði, sem var mér alveg
nýtt; og Krists kærleiki þrengdi
mér til að vitna um guðs náð, sem
öllum stendur til boða í Jesú
Kristi.
Eg mætti ekki góðum viðtökum,
sem ekki er von, því holdlega
sinnaður maður skilur ekki hvað
guðs andi er. Eitt með því fyrsta
eftir að sál mín var fædd af guðs
anda, var, að biðja fyrir fólki
míns heimalands, sem eg elska með
fullkominni sársauka-elsku. Eg
heyrði þá spotta Jesú og ekki
spara neitt til að krossfesta hann
á ný, að svo miklu leyti sem hægt
er að gera það. Menn brúka lær-
dóm og gáfur og alt, sem tungan
getur talað; einnig í ræðum og
ritum; og þessar dauðu örvar eru
sendar út um alt til andlegs dauða
þeim er þær hitta—meðtaka—;
sumar mjúkar á að sjá, og hitta
þær til eitrunar alla þá, sem ekki
eru rótfestir á hinum eina sanna
grundvelli, sem er guðs opinber-
aða orð—Jesús Kristur. Eg vil
bæta því við, að hver sá, er gefur
sig út til þess að vera andlegur
leiðtogi, ber að koma þangað, að
hann viti fyrir víst, að hann sé
fæddur af guðs anda; annars
hlýtur hann að vera það, sem Jes-
ús talar um: blindur, og þá auð-
vitað blindra leiðtogi, og þá er
ekki von að vel fari. Og hver
verða þá launin fyrir hjarðmensk-
una? Presturinn verður að koma
alveg sama veginn og hver annar
syndari, í hjartans auðmýkt, og
biðja tollheimtumannsins bæn, og
það af dýpstu hjartaxis alvöru.
Eg fer ekki fleiri orðum um
þetta, en vísa til sankti Jóhannes-
ar 1. pistils, 1. kap., 8.—9. versin,
og hver endurfædd sál þreifar á
þessum sannindum..
Næst langar mig að benda þér,
sem lest línur þessar, á 3. kapítula
í sama pistli, versin 8, 9, og 10.
Einnig þar fær endurfædd sál
reynslu fyrir þeim sannindum, svo
sannarlega sem þeir 'ekki falla
frá, sem er hræðilegra en alt ann-
að. pað er svo margt að segja um
þetta. Eg er að biðja guð að vekja
mína samlanda til að lesa biblí-
una, því við heyrn og lestur guðs
orða vaknar manneskjan til at-
hugunar um sál sína. Manneskj-
an hefir sjálf að útvelja sér, hvar
sál hennar fær bústað í eilífðinni.
pað er alvarlegra en alt annað, þar
enginn veit nær sagt verður:
Hingað og ekki lengra!
Ef einhver er sá, sem les línur
þessar, er langar að reyna kraft
bænarinnar, þá vildi eg mega
segja þér: Dragðu það ekki.
Hristu það ekki af sál þinni, sem
markleysu eina. pað er guðs vekj-
andi andi, sem er að kalla þig.
Gerir þú það í auðmýkt og trúar-
trausti guðs miskunnar, þá skaltu
reyna, að þú stendur ekki tóm-
hentur upp frá bæn þinni. preyztu
ekki. Guð þekkir löngun þína og
mætir þér á miðri leið.
Eg hefi beðið guð að línur þess-
ar mættu verða einhverri sál til
blessunar af mínum kæru sam-
löndum. pú, sem biður trúaðra
bæn, bið fyrir mér, að mér veitist
náð að standa stöðug og trú til
enda, svo eg fái kórónu lífsins.
Af náð er eg frelsuð, og af náð
stend eg upprétt enn þá, með
þeirri einu löngun, að vitna um
Jesúm Krist, gefinn mér til rétt-
lætingar, helgunar og eilífrar
endurlausnar.
Sveinbjörg Johnson.
5217 Pr. Albert Str.
Vancouver, B. C.
Business and Professional Cards
HVAÐ sem þér kynnuð að kaupa
af húsbúnaði, þá er hægt að
semja við okkur, hvort heldur
fyrir PENINGA ÚT I HÖND eða að
LÁNI. Vér höfum ALT sem tíl
húsbúnaðar þarf. Komið og skoðið
0VER-LAND
HOUSE FURNISHING Co. Ltd.
580 Main St., hoini Alexander Ave.
GOFINE & CO.
Tala. M. 3208. — 322-332 ElUce Ave.
Horninu á Hargrave.
Verzla meí og virCa brúkaPa húa-
muni, eldstór og ofna. — Vér kaup-
um, seljum og skiftum & öllu sem er
nokkura vlrCL
Oss vantar menn og konur tll þesa
aC læra rakaraiCn. Canadlskir rak-
ara hafa orCiC aB fara svo hundruCum
skiftir I herþjónustu. l>ess vegna er
nú tækifæri fyrir yBur aC læra pægl-
lega atvinnugrein oy komast I göCar
stöCur. Vér borgum yCur göC vmnu-
laun á meCan þér eruC aC læra, og tlt-
vsgum yCur stöCu aC loknu naml, sem
gefur frá $18—25 um vikuna, eCa viC
hjálpum yCur til þess aC koma á fót
“Business” gegn mánaCarlegrl borgrun
— Monthly Payment Plan. — NámiC
tekur aCeins 8 vlkur. — Mörg hundruC
manna eru aC læra rakaralCn á skölum
vorum og draga há laun. SpariC
járnbrautarfar meC þvi aC læra á
næsta Barber College.
Hemphill's Barber College, 229
Pacific Ave, Winnipeg. — Útlbú: Re-
gina, Saskatoon, Edmonton, Calgary.
Vér kennum einnig Telegraphy,
Moving Picture Operatlng á Trades
skóla vorum aC 209 Pacific Ave Wlnnl-
peg.
... *
The Ideal Plumbing Co.
Hort)i Notre Dame og Maryland St
.Tals. Garry 1317
Gera alskonar Plumb-
ing, Gasfitting, Gufu og
Vatns-hitun. Allar við-
gerðir gerðar bæði fljótt
og vel. Reynið os«.
J. J. Swanson & Co.
Veizla með laeteégnir. Sjá um
lciau á húeum. Annaat Ito eg
eldnábyrgðir o. fl.
808 Paris Bullding
Phone Main 2596—7
G.&H.
TIRE SUPPLY CO.
Sargent Ave. & McGee St.
Phone Sher. 3631 - Winnipeg
Gert við bifreiðar Tires;
Vulcanizing og retreading sér-
stakur gaumur gefinn.
pað er ekkert til í sambandi
við Tires, sem vér getum eigi
gjört.
Vér seljum brúkaða Tires og
kaupum gamla.
Utanbæjarpantanir eru af-
greiddar fljótt og vel.
Islenzk vinnustofa
ACgerC bifreiCa, mótorhjóla og
annara reiChjóla afgreidd fljött og vel
Elnnig nýjir hifreiCapartar ávalt viC
hendina. SömuleiCis gert viC flestar
aCrar tegundir algengra véla
S. EYMUNDSSON,
Vinnustofur 647—649 Sargent Ave.
Bústaðnr 635 Alverstone St.
Reiðhjól, Mótor-hjól og
Bifreiðar.
Aðgerðir afgreiddar fljótt og
vel. Seijum einnig ný Perfect
reiðhjól-
Skautar smíðaðir, skerptir og
endurbættir.
J. E. C. Williams
641 Notre Dame Ave.
Brantford
Red Bird
Beztu reiðhjól í Canada.
Fást hjá
Tom Sharpe
253 Notre Dame Ave., Wihnipeg
SkrifiC eftir upplýBÍngum undir eins.
Fáið
Prentun
gerða hjá
Columbia'Press Ltd.
A. G. CARTFR
úrsmiður
GuU og silfurvöru Xaupmaður.
Selur gleraugu vi f tUra hæfi
Prjátiu ára reyn«* x i öllu sem
aC úr hringjum » « öCru gull-
stássi lýtur. — G* rlr viC úr og
klukkur á styttr tima en fólk
hefir vanist.
206 NOTRE fiAJIE AVK.
Síml M. 4529 . tVinnipeg, Man.
Dr. R. L. HURST,
> >mber of Roj 1 Coll. of Surgeons,
k. 'g., útskrlfaC\ t af Royal College oí
PUjslci&na. Lr don. SérfræClngur 1
brjóst- tauga og kven-sjúkdómum.
—Skrtfst SöF Kennsdy Bldg, Portage
Ave. .V möt Eaton's). Tals. M. 814.
Helmb' M. 269«. Tlmi tll viCtais:
kl. 2—r ->g 7—8 e.h.
Dr. B. J. BRANDSON
701 Lindsay Building
Tblevbonk garkv 330
OrricE-TíMA*: a—3
Hslmili: 776 Victor St.
Tblephonk garry 881
Winnipeg, Man.
Vér leggjum sérstaka áherzlu á aC
»eija meCöl eftlr forskrlftum lækua.
Hir. beztu lyf, sem hægt er aC fá.
eru notuC elngöngu. þegar þér komiC
meC forskrlftina tll vor, megiC þér
vera víbs um aC fá rétt þaC sem
læknlrinn tekur til.
COKCKKUGK A CO.
Notre Dame Ave. og Sherbrooke St.
Phones Garry 2690 og 2691
Glftlngaleyfisbréf seld.
Dr. O. BJORNSON
701 Lindsay Building
TBLBraONaiðARRT 'lil.
Office-timar: 2—3
HKIMII.ll
764 Victor St.cet
I
rKLEPMONBi GARRV TflH
Winnipeg, Man,
Dagtals. St J. 474. Nœturt St J. 8«
Kalli sint á nótt og degl.
DR. B. GERZABEK,
M.R.C.S. frá Englandi, L.R.C.P. frá
London, M.R.C.P. og M.R.C.S- frá
Manltoba. Fyrverandi aCstoCarlæknlr
viC hospítal i Vinarborg, Prag. og
Berlin og fleiri hospítöl.
Skriístofa á eigin hospitali, 416—417
Pritchard Ave., Winnipeg, Man.
Skrifstofutiml frá 9—12 f. h.; 8—•
og 7—9 e. h.
Dr. B. Gerzabeks eigið hospítal
415—417 Pritchard Ave.
Stundun og læknlng valdra sjúk-
linga, sem þjást af brjóstvetkl, hjart-
veikl, magasjúkdómum, innýflavelki,
kvensjúkdómum, karlmannasjúkdóm-
um.tauga veiklun.
Dr- J. Stefánsson
401 Beyd Building;
C0R. P0RTI\CE AVE. 8c EDMOfiTOfi IT.
Stundar eingöngu augna, eyina. nsf
og kverka ajúkdóma. — Er aS hitta
hákl. 10—12 f.h. Sg 2—5 e. h.—
Talaimi: ISÆain 3088. Heimili 105
Olivia St. Talsimi: Garry2St5.
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Buildlng'
Cor. Portage Ave. og Edmonton
Stundar sérstaklega berklasýkl
og aCra lungnasjúkdóma. Kr aC
finna á skrifstofunnt kl. 11_
12 f.m. og kl. 2—4 c.m. Skrlf-
stofu tals. M. 3088. Heimili: 48
Alloway Ave. Talsiml: Sher-
brook 3158
DR. O. STEPHENSEN
Telephone Garry 798
Til viðtals frá kl. 1—3 e. h.
heimili:
615 Banatyne Ave., Winnipegj
J. G. SNÆDAL,
iTANNLŒKNIR
614 Somerget Block
Cor. Portage Ave. sg Donald Strest
Tal*. main 5302.
BIFREIÐAR “TIRES”
Goodyear og Domlnion Tires ætið
á reiCum höndum: Getum út-
vegaC hvaCa tegund sem
þér þarfnist.
A ðgerðum og “Vulcanizlng” sér-
stakur gaumur geflnu.
Battery aCgerðir og blfreiCar til-
búnar til reynslu, geymdar
og þvegnar.
ATJTO TIRE VtJLOANIZING CO.
309 Cumberland Ave.
Tals. Garry 2767, DpiC dag og nótt
Verkstofu Tals,:
Garry 2154
Heim. Tals.:
Garry 2949
G. L. Stephenson
PLUMBER
Allskonar rafmagns&höld, svo sem
straujám víra, allar tegundlr af
glösum og aflvaka (batteris).
VERKSTDFft: 676 HQME STREET
■ —
THOS. H. J0HNS0N og
HJÁLMAR A. BERGMAN,
íslenzkir lógfræPiagar,
Skripstcfa:— Koom 811 McArthur
Building, Portage Avecue
ábitun: P. O. Box 1656,
Telefónar: 4503 og 4504. Winnipeg
Hannesson, McTavish&Freemin
logfræðingar
215 Curry Building, Winnipeg
Talsími M. 450
J?eir félagar hafa og tekið aö
sér lögfræðistarf B. S. Ben-
sons heit. í Selkdrk.
Tal*. M. 3142
G. A. AXF0RD,
Málafoersiumaðnr
503 PARIS BUILDING
Winnipeg
Joseph T. Thorson^
íslenzkur Lögfræðingur
Heimiíi: 16 Alloway Court,,
Alloway Ave.
MESSR& PHILLIPS & SCARTH
Barristers, Etc.
201 Montrcal Trust Bldg., Winnipeg
Phone Main 512
Gísli Goodman
TINSMIÐUR
VKRKSTŒBI:
Horni Toronto og Notre Dami
Phou* Uelmlii.
•arry 2988 Qarry 899
J. H. M
CARS0N
Byr ti!
AUskonar ilmi fyrir fatlaða menn,
cinnig kviðsUtaumbúðir o. fl.
Talsími: Sh. 2048.
338 COLONY ST. — WINNII'KG.
A. S. Bardal
846 Sherbrooke St.
Selur líkkistur og annalt um útfarír.
Allur úthúuaCur aá bezti. En.frem-
ur aelur hann alakonar minnisvarSa
og legsteina.
Heimilia Tal. - Garry 2161
Bkrifatofu Tala. - Qarry 300, 37S
Giftinga og ...
Jarðarfara- blom
með litlum fyrirvara
Birch hlómsali
616 Portage Ave. Tals. 720
ST. JOHN 2 RING 3
JOSEPH »TAYLOR
LÖGTAKSMAÐUR
IlelmUis-Tals.: SL John 1844
Skrifstofu-Tals.: Maln 7978
Tekur lögtaki bæCi húsaleiguskuldlr,
voCskuldir, vlxlaskuidir. AfgrelCir alt
sem aC lögum lýtur.
Skrifstofa, 255 Matn Strert
Áhugi þinn þarf að
vera vakandi.
Nú er runnið upp nýtt tímabil
£ sögu vor Bandaríkjamanna. Vér
höfum komið út úr ófriðnum með
þann feikna fjárhagsþrótt, er fá-
ir hefðu vogað að láta sig dreyma
um fyrir fimm árum. Nú ætti
öllum að geta liðið vel, ef þeir að
eins ofþreyta sig ekki. Triner’s
Angelica Bitter Tonic er bezta
meðalið fyrir þann, sem þreyttur
er. Slíkt meðal byggir upp vilja-
kraftinn, veitir góðan svefn og er
ómissandi, einkum í sumarhitan-
um. — Triner’s Liniment er einn-
ig afbragðs meðal. pað tekur
fyrir rætur sjúkdómsins og gefur
skjótan bata.— Við bálssjúkdóm-
um er Triner's Antiputrin ómiss-
andi og langbezta meðalið; það
hreinsar hálsinn undir eins og er
öyggíjandi þegar um sár er að
ræða. — Hafið öll þessi meðul
ávalt á heimilunum. Allir lyf-
salar verzla með þau Triner’s
meðulin. — Joseph Triner Cam-
pany, 1333—1343 S. Ashland Ave.,
Chicago, 111.