Lögberg - 25.09.1919, Qupperneq 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYNIÐ ÞAÐ!
TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG
Það er til myndasmiður
í borginni
W. W. ROBSON
490 Main St. - Garry 1320
32. ARGANGUR
Helztu Viðburðir
Síðustu Viku
Canada.
í Ontario er maður sem heitir
Nathan Crystal, og langaði hann
til þess að græða peninga, eins og
marga fleiri. En hann sá engan
annan veg vissari til þess að ná
takmarki sínu, heldur en þann að
gjörast vínsali. En svo þótti hon-
um of kostnaðarsamt að selja
körlunum hreint brennivín, svo
hann blandaði það með vatni til
helminga. Einn af viðskifta-
mönnum hans var eftirlitsmaður
stjórnarinnar með vínsölum, og
þóttu honum trakteringar þunnar.
Afleiðingar var sú, að Nathan
varð að borga $1000 sekt eða fara
í fangelsi í sex mánuði.
Nefnd sú, sem stendur fyrir
móttöku hermanna í Dawson City
í Yukon, hefir beðið Ottawa
stjórnina um $30,000 til þess að
útbýta á milli þeirra hermanna,
sem komu of seint sumars heim til
þess a, geta unnið sér fyrir vetr-
arforða.
Skólakennari einn í Hamilton,
Ont., að nafni Scott Cruickshank,
sem hefir verið skólastjóri við
Hess Street skólann þar í bæ, hef-
ir sagt af sér því starfi. Hann
hefir ýmist verið skólastjóri eða
skólakennari þar í bænum í 49 ár,
en áður en hann kom þangað var
hann búinn að stunda barna-
kenslu í 15 ár. Alls er hann því
búinn að kenna í 64 ár. Hann er
nú 88 ára gamall.
/
Áður en verkamanna leiðtogarn-
ir I Winnipeg voru látnir lausir,
var talað um að gjöra allsherjar
verkfall í tuttugu og fjóra klukku-
tíma um alt land, 17. þ. m. Quebec
tók illa í það mál. Verkamanna-
félögin þar neituðu að taka nokk-
urn þátt í því.
Evrópiskir auðmenn í Banda-
ríkjunum hafa gjört fyrirspurn til
Sydney, N. S. um það, hvort að
hægt muni verða að fá gnægð af
Cape Breton kolum til þess að
flytja til Noregs og annara landa
í Skandinaviu og Evrópu.
Mercier kardináli hefir ákveðið
að ferðast til norðvesturlandsins
á meðan hann stendur við hér í
landi, og sérstaklega um þær
stöðvar sem föðurbróðir hans
Monsignor Croquet var trúboði á,
þegar fátt var hvítra manna á
þeim stöðvum.
prjú hundruð menn frá löndum
þeim, sem stríddu á móti sam-
bandsmönnum og sem í varðhaldi
voru hafðir á meðan á stríðinu
stóð, hafa verið sendir heim til
landa þeirra sem þeir komu frá.
Yfirdómari Mathers í Winnipeg
hefir lýst yfir því, að áttatíu og
ein bænarskrá um hjónaskilnað
hafi verið lagðar fram við hlutað-
eigandi dómara, frá 1. janúar
1919. pessar bænarskrár eru ekki
allar úr borginni Winnipeg, held-
ur úr öllu Manitobafylki.
Bifreiðaþjófar eru afkastamikl-
ir í Winnipegborg. peir stálu 78
bifreiðum fyrstu vikuna í Septem-
ber.
S.S. Barnstable, sem var á leið-
inni til Havana og lenti í ofveðri,
fanst langt út af vanalegum
skipaleiðum. Ellefu af skips-
höfninni hafa að líkindum verið
farnir í sjóinn, því þeir fundust
ekki. Að eins einum varð bjarg-
að. Haldið er að hinir hafi skolast
útbyrðis.
Talað er um að stjórnin í Ottawa
muni bráðlega breyta ákvæði sínu
i sambandi við póstþjónana, sem
gjörðu verkfall I sumar. Eins og
menn muna ákvað hún að þeir,
sem ekki færu til vinnu innan viss
tíma, sem þá var til tekinn, gætu
aldrei framar vonast eftir að fá
atvinnu hjá stjórninni við póst-
störf. Nú er sagt að stjórnin ætli
að sjá sig um hönd og afnema
þetta atvinnubann.
$75,000 sem verið var að flytja
með eimlest frá Montreal til
Halifax var rænt á þann hátt að
ræningjar brutust inn í póstvagn-
inn, tóku póstþjónana alla og
bundu þá og létu svo greipar sópa,
héldu svo áfram til næstu vagn-
stöðva og hurfu þar út í myrkrið,
því verk þetta var unnið að nóttu
til. Talið er yíst að ræningjar
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 25. SEPTEMBER 1919
NUMER 39
________
þessir hafi keypt sér farbréf í
Montreal og farið með lestinni til
staðarins, sem þeir hafi fyrirfram
verið búnir að velja, til þess að
framkvæma ódáðaverkið á.
Háskóli Manitobafylkis veitir
sérstök verðlaun fyrir þá, sem við
háskólann skara fram úr í þekking
á vísindum. Nú í ár hafa þau J.
Nelson Gowanlock og Eileen M.
Bulman orðið jafn snjöll, og fær
hvort þeirra $600 til þess að ferð-
ast sér til frekari mentunar í þeim
fræðigreinum. Eileen Bulman
hefir ákveðið að halda til Columbia
háskólans, en Gowanlock til há-
skólans í Chicago. Bæði ætla þau
að leggja sérstaka stund á dýra-
fræði.
Stjórnin í Ottawa hefir áform-
að að skipa nefnd manna, sem
kynni sér ástand verkamanna og
athugi hinar sérstöku kröfur
þeirra. Að sjálfsögðu verður þessi
nefnd að ferðast um landið og
hlýða á mál hermanna.
Hinn nýi leiðtogi frjálslynda
flokksins, Hon. W. L. McKenzie
King á ekki að fá að ná kosningu
til þings fyrirhafnarlaust, því
sagt er að afturhaldsmenn séu
búnir að stilla upp manni á móti
honum. Og er sagt að það sé fyr-
verandi forsætisráðherra þeirra í
Prince Edward Island, Arsenault.
pykir afturhaldsmönnum líklegt
að hann geti dregið atkvæði
Frakka, sem eru allmargir í kjör-
dæminu, frá McKenzie King.
pann 22. þ. m., lézt að heimili
sínu, Hon. Frank Cochrane, fyrr-
um járnbrautamálaráðgjafi Borden
stjórnarinnar. Áður en hann
hlaut sæti í sambandsstjórninni,
gegndi hann ráðherraembætti 1
stjórn Ontario-fylkis. Hann varð
fyrst við opinber þjóðmál riðinn
árið 1905, hlaut kosningu til þings
án gagnsóknar í Nipissing East, í
maímánuði það sama ár. Og þrem
árum síðar náði hann endurkosn-
ingu í hinu nýstofnaða Sudbury
kjördæmi. Hon. Cochrane var
borinn í Clarenceville, Quebec
árið 1851.
Bretland
Sir Eyre Crowe, aðstoðar utan-
ríkisritari Breta, hefir verið
gjörður að sendiherra Breta í
æðstu nefnd (Supreme Council)
friðarþingsins, í \ stað Lloyd
George, sem sökum ástæða heima
fyrir varð að fara.af þinginu, und-
ir eins og friðarsamningunum við
pjóðverja var lokið. Og var svo
bundinn heima fyrir að hann gat
að eins farið til Parísarborgar
stöku sinnum. A. J. Balfour, ut-
anríkisritari Breta, tók að sér að
gegna stöðu Lloyd George, þar til
samningunum við Austurríki var
lokið. En þá lýsti hann yfir því
að hann þyrfti að fara heim til
Lundúnaborgar. Umtal hefir orð-
ið um ýmsa, til þess að taka að
sér þetta vandasama verk, þar á
meðal Viscount Milner, Earl
Curzon og Seely hershöfðingja, en
sagt er að enginn þeirra hafi vilj-
að bera ábyrgð á því að vera leið-
togi sendinefndarinnar brezku við
það, sem eftir er að gjöra á frið-
arþinginu.
Sir George Brown, umboðsmað-
ur Canada Kyrrahafsbrautarfé-
lagsins í Evrópu, hefir lýst yfir
því að orðrómur sá, sem frá
pýzkalandi kemur um að félagið
ætli að byrja nú þegar á beinum
skipaferðum frá Quebec og til
Hamburg, sé ekki á neinu bygður.
Minnisvarða ætla Bretar að
reisa þeim úr her lands síns, sem
féllu við Ypres, og á það að vera
kirkja sem bygð sé í Lundúnum.
Á veggi hennar á að grafa nöfn
allra þeirra Breta sem féllu, og
einnig nöfn allra fylkinganna
brezku, sem þátt tóku í þeirri or-
ustu.
Bænarskrá er verið að undirrita
i Lundúnum þess efnis, að fá tíma
þann styttan, sem Canadamenn
verða að sæta fengelsisvist, þeir er
þátt tóku í óeirðunum í Evrópu.
Eins og menn muna voru þeir
dæmdir í tólf mánaða fengelsisvist
fyrir þá þátttöku sína.
Tvær persónur, Frank Gardner
frá Canadiska hjúkrunarhúsinu í
Shorncliff og stúlka sem þar var
stödd frá Lundúnaborg, fóru á sjó
út á listibát sér stil skemtunar.
En þegar þau voru komin tvær
mílur undan landi kom eitthvað
fyrir svo að bátnum hvolfdi. En
bæði Mr. Gardner og Miss Hoff-
man kunnu svo mikið til sunds að
þau gátu komist á kjöl og haldið
sér þar. Margt af fólki var í fjör-
unni og sá slysið, og voru sex bát-
ar settir fram, og sumir þeirra
mannaðir með efldum sjómönnum.
En ein af þessum sex sem settu
fram báta til hjálpar var stúlka
16 ára gomul. Hún var ein síns
liðs, en svo knálega sótti hún róð-
urinn að bátur hennar skreið
fram úr hinum fimm. Hún náði
fyrst til bátsins sem á hvolfi var
og persónanna, sem fyrir slysinif
urðu. Var þá Miss Hoffman svo
aðfram komin að hún mátti ekki
mæla. Stúlka þessi, sem heitir
Irene Sayers, bjargaði báðum úr
lífsháskanum, settist aftur undir
árar og réri til lands, og þegar
hún hafði skilað skipbrotspersón-
unum á land og brýnt bát sínum,
þá leið hún í ómegin.
Lincolnshire bar fram breytingu
við hin nýju byggingarlög Breta
í lávarðadeildinni, þess eðlis að
þeim mönnum sem héldu landeign-
um á leigu, væri veitt leyfi til
þess að setja til síðu alt að 10 ekr-
um til húsabyggingar, þar sem svo
hagaði til að lönd þau lægju að
bæjum eða borgum. Breyting
þessi var samþykt. Og sýndi
Lincolnshire lávarður það að hon-
um var alvara, með því sjálfur
tafarlaust að lýsa yfir því, að hann
væri fús til þess að afhenda 10
ekrur á 20 stöðum, sem hann ætti
land á, 200 ekrur í alt. Sagt er að
landeign lávarðarins í Lincoln-
shire sé $350 virði hver ekra.
Lerhulme’s lávarður, sá er keypti
eyjuna Lewes, sem er ein af
Hebride eyjunum, hefir nú mynd-
að tvö félög, annað þeirra með
$1,000,000 höfuðstól, og á það að
framleiða áburð úr fiskislori og
úrgangi úr fiski. Hitt félagið er
sterkara og stærra með $2,500,000
höfuðstól, og skal því fé varið til
botnvörpunga kaupa, sem gangi
til fiskjar norður í höf. Er það
gert bæði í gróða skyni, og eins
til þess, að lávarðurinn þurfi ekki
að vera upp á aðra kominn með
verkefni handa áburðar verksmiðj-
unni. — Fleiri framkvæmdir eru
og í vændum frá eigandans hendi
þar á eyjunni, svo sem frystihús,
hafnarbryggjur og járnbraut frá
aðalhöfninni og til Stomoway,
sem er höfuðbærinn á eyjunni. —
Lyja þessi, sem er 195 ferhyrn-
ingsmílur á stærð, var keypt af Sir
James Matheson 1796 fyrir $950,-
000. Ekki vitum vér hvað nýi eig-
andinn gaf mikið fyrir hana.
4
í Glasgow á Skotlandi voru seld
£55,942,367 virði af “War bonds”
frá 1. október 1918 til 18. janúar
1919. 1 Edinburg voru seld á
sama tíma £41,905,932 virði og í
Leith fyrir £4,045,870. En í bæn-
um Duns jafnaði þátttakan sig
upp með £342 á mann (710).
Veðurblíðan sem verið hefir á
írlandi undanfarandi, hefir gefið
mönnum þeim, sem eru að vinna
við að bjarga fjármunum úr
Laurentic undan Donegd strönd-
inni sérstakt tækifæri til þess að
njóta sín við björgunarverkið.
Sagt er af þeim, sem þykjast vita,
að þeir séu nú búnir að ná
$5,000,000 af gulli úr skipinu á
hafsbotni, og ef veðrið helst, er
talið víst að þeir muni geta náð því
öllu saman. En það var, eins og
menn muna $15,000,000 virði, mest
i stöngum.
Bandaríkin
í nærri mánuð hefir um tvö
hundruð leikhúsum verið lokað í
New York borg. Ástæðan hefir
verið verkfallið, sem leikfélögin,
eða leikfólkið sem í leikfélögunum
er gjörði og sem nú hefir staðið
nálega í mánuð. Nú er því þó lok-
ið, og unnu leikendurnir nálega alt
sem þeir voru að berjast fyrir.
Átta menn voru teknir fastir og
$100,000 virði af ópíum, sem þeir
höfðu í fórum sínum gjört upptækt
af tollþjónum stjórnarinnar.
12. ágúst s. 1. .ai vikadrengur
einn, sem vann fyrir verzlunarfé-
lag í Wall Street í New York,
sendur með $178,000 virði af
Liberty bonds, sem hann átti að
skila á vissan stað í borginni.
Drengurinn kom ekki til þess
slaðar og ekki heldur verðbréfin
og hefir til hvorugs spurst, hvorki
drengsins né verðbréfanna síðan,
þó leitað hafi verið alstaðar. —
Nú í vikunni sem leið fanst lík af
dreng í Millford, Conn., og af
mynd sem fanst í vasa hans þekt-
ist, að þetta var sami drengurinn
sem horfið hafði frá New York.
En til verðbréfanna hefir ekki
spurst.
Miljónamæringur einn frá
Ashtabula, O. hefir frá mikilli
raunasögu að segja. Hann segir
að sér hafi verið stolið af ein-
hverjum þorpurum og að þeir hafi
farið með sig á einhvern afvikinn
stað, og að þar hafi sér verið hent
ofan í daunillan og dimman kjall-
ara og látinn dúsa þar með öðrum
fleirum, sem illa hefðu verið leikn-
ir, í meir en viku, og að svo hafi
$2,400 verið stolið af sér í tilbót.
Mörgum sem vinna í hæðstu
byggingunum í New York brá
heldur en ekki í brún morgun einn
í vikunni sem leið, þegar þeir
komu til vinnustöðva sinna. Eins
og gefur að skilja fer fólk þetta
alt í lyftivélum frá neðsta gólfi
og upp á loftin þar sem það vinn-
ur. En þennan morgun stóðu
lyftivélarnar allar kyrrar, því þeir
sem rendu þeim höfðu gjört verk-
fall þann sama morgun, svo nú
varð fólkið að ganga upp stigana,
sumt upp á fertugasta og annað
loft. J?að hefir víst ekki kvartað
um líkamsæfingarleysi þá dagana.
Neðri málstofa Bandaríkja-
þingsins hefir samþykt að hækka
iaun allra póstþjóna um $150 á
ári.
Ole Hanson, fyrverandi borgar-
stjóri í Seattle, Wash. hefir lýst
yfir því að hann ætli að sækja um
forseta embættið við næstu for-
setakosningar. >
30,000 karlmenn sem vinna við
kolagröft í Lackawanna dalnum
hafa gjört verkfall.
Konungshjónin belgisku eru
væntanleg til Washington í októ-
ber. Verða þau gestir forseta-
hjónanna í þrjá daga, sem þau
ætla að dvelja í borginni.
Iðnaðarþing he w Wilson for-
seti Bandaríkjanna boðað. A það
að haldast í Washington frá 5. til
10. október.
í ræðu sem Wilson forseti hélt
í Sioux Falls, S.D. í sambandi við
friðarsamninganp., sagði hann að
þýzksinnuðu mennirnir í Banda-
ríkjunum væru aftur að reka upp
hausana.
Andarungar i tugum þúsunda,
sem ekki gátu flogið, fundust á
sléttunum í Richmond County,
Montana. Orsökin var sú að vatn
eitt, sem Lax Lake er nefnt, var
þurkað upp. En þar voru endurn-
ar vanar að unga út. öllum
drengjum sem hægt var að ná í
var smalað saman, tll þess að bera
ungana til Yellowstone árinnar
eða að smávötnum, svo að þeir
gætu þrifist.
í sambandi við yfirheyrslu J.
Odgen Armour, miljónamærings-
ins alkunna í Chicago, út af dýr-
tíðarástandinu, sagði hann að
verkafólkið notaði hin auknu laun
sín til þess að kaupa þann allra
dýrasta skófatnað, sem til væri á
markaðinum, þar sem hann væri
sjálfur með á fótunum margbætta
og sólaða skó. Sem svar upp á
þetta sendu verkamannafélögin
honum nýja skó. Armour lét sér
| ekki bylt við verða, skrifaði um
hæl og þakkaði fyrir sendinguna,
! og bætti við: “En því að láta
| staðar numið við eitt par af skóm?
i pví ekki að senda mér alklæðnað?
i Eg er ekki þurftarfrekur í þeim
I efnum, því eg álít að föt eigi að
notast til skjóls, fremur en til
i stáss. Eg læt mér nægja sömu
! yfirhöfnina í tvö ár, og það er ein-
j mitt í ár sem eg þarf að fá mér
jvfirhöfn. pið þurfið ekki að kaupa
mér hatt, því hatturinn minn. sem
j eg er búinn að brúka í fimm ár,
j er ekki enn útslitinn, og með góðri
j meðferð getur hann dugað mér enn
j nokkuð. Vanalega gjöri eg mig
ónægðan með tvennan klæðnað á
1 ári, og þið þurfið ekki að borga
meira en $75 fyrir hvorn, því eg
, kæri mig ekkert um fínheit. pað
annað sem eg þarf er $3 strá-
hattur, sex skyrtur á $5 hver,
' Hú hálsbindi á $1 hvert, sex nær-
föt, vil heldur að það sé nokkuð
í af baðmull í þeim, 24 pör af sokk-
um og tíu pör af silkisokkum, sem
j eg nota við sérstök tækifæri. Um
j vasaklúta og annað smávegis þurf-
I ið þið ekki að hugsa, því eg hefi
næsta nóg af því dóti.”
Lögregluþjónn, Nierman að
nafni, var að grafa í jörð á bak
við íveruhús sitt í Jackson í Mich.
og fann hann þar steinrunninn
mann, þrjú fet í jörðu. En þar
sem maðurinn fanst var áður höll,
sem hafði verið færð í burtu eða
verið jafnað við jörðu. Maður
þessi eða mumia segja þeir að
hijóti að vera afar gamall, eldri
heldur en sagan. Maður þessi
hefir verið feikilega stór, fótleggir
hans eru sex fet á lengd og arm-
ieggir fjögur, og eftir því hefir
allur vöxturinn vegið. Andlitið
hefir verið kringlótt og ásjónan
flöt. Hörundsáferð er slétt og
likist skinnið að lit brúnu leðri. 1
brjóstinu stóð spíta, sem var fúin.
Fundur þessi hefir vakið allmikla
eftirtekt og hafa menn komið úr
öllum áttum til þess að skoða
þennan steingjörfing, og sumir
þeirra hafa boðið Mr. Nierman
eins mikið og $20,000 fyrir hann.
Ben B. Lyndsay dómari í ung-
linga dcmsrétti í Denver, Cal.
var dæir.dur í átta mánaða fang-
elsi fyrir að neita að segja frá því
fvrir rétti, hvað drengur einn hefði
sagt sér í trúnaði í unglingarétt-
inum. Móðir drengsins var kærð
fyrir að hafa skotið mann sinn og
föður drengsins. En drengurinn
bar það fyrir réttinum, að hann
hefði verið að reyna að ná marg-
hleypu af móður sinni, sem hún
hefði haldið á þegar skotið hljóp
af, sem varð föður hans að bana.
En svo hafði réttur sá sem yfir-
heyrði konuna hugmynd um að
drengurinn hefði * sagt Lyndsay
dómara alla þessa sögu, þegar
hann hefði verið kallaður fyrir
þann rétt. Var dómarinn því kall-
aður fyrir rannsóknarréttinn og
beðinn að segja þar frá hvað
drengurinn hefði sagt honum um
þessi mál, og sjá hvort framburð-
ur hans bæri saman í báðum stöð-
unum. En Lyndsay dómari þver-
neitaði og sagði: “Eg hefi aldrei
misboðið trausti drengja þeirra,
sem hafa treyst mér, og skal aldrei
gjöra það.”
Frá öðrum iondum.
Forsætisráðherra Pólverja Pad-
erewski, hefir gefið út ávarp, þar
sem hann segir að pjóðverjar sem
tapað hafa á vestur vígstöðvunum
séu nú í óða önn að æsa menn til
ófriðar í Silesiu, austur Prúss-
landi, Lithuaníu og í Minsk hér-
aðinu.
í læknifræðilegum ritum sem út
eru gefin á pýzkalandi er verið að
skora á lækna að gjörast læknar
í her Rússa. Góð laun eru boðin
og loforð um að þeir sem vilja
skuli fá að taka heimilisréttar-
land í Rússlandi.
Blöð Bolsheviki manna í Rúss-
landi staðhæfa að nefnd sú á
Tyrklandi, sem nefnist framfara
og félagsnefndin og í eru hinir
yngri og áhugameiri menn þjóðar-
innar, hafi tekið að sér málstað
Bolsheviki manna og séu teknir að
tala máli þeirra með krafti í Litlu-
Asíu.
Óvænt og flestum á óvart kem-
ur einn af sterkustu og bezt virtu
sonum Rússnesku þjóðarinnar
fram á sjónarsviðið, maður sem
meira bar á heldur en nokkrum
öðrum manni á Rússlandi fyrstu
þrjú árin sem stríðið stóð yfir og
sem var margsinnis sagður dauð-
ur, það ér stórhertogi Nicholas
Nicholaievitch, föðurbróðir keis-
arans sem var, og hafði enginn
frétt neitt um hann frá því að
Bolsheviki menn sendu hann til
Crimea. par til að frétt sú kemur
frá Stokkhólmi, að hann væri
kominn þangað og hefði komið frá
Lundúnum, til þess að taka þátt í
að undirbúa áhlaup, sem Rússar
og sambandsmenn eru að tala um
að gjöra á Petrograd. Fréttin
segir að hann hafi komið til
Stokkhólms í dulargerfi og farið
þaðan í því aftur. Mönnum þykir
ólíklegt að Nicholas Nicholaiexitch
hafi farið að skifta sér af þessum
málum, nema því að eins að hann
hafi þar tögl og hagldir. Menn
álíta að hann muni ekki verða
neins manns eða neins flokks und-
irtylla, heldur muni hann vera í
þann veginn eða kannske búinn að
taka við yfirstjórn Rússa á móti
Bolsheviki flokknum. Og í þess-
ari frétt er því haldið fram að
hann sé enn óskabarn Rússnesku
þjóðarinnar og að fólkið muni
fylkja sér undir merki hans í
hundrað þúsunda visi. — Hvað
Nicholas mundi gera eftir að
hann væri búinn að ná völdum er
annað mál, og vantrúarmennirnir
sem bezt þekkja hann, mundu
heldur ekki kæra sig um að spá
neinu um það. En að ráða niður-
lögum Lenine að minsta kosti
stjórnarfarslega, fyrst og fremst,
og láta svo framtíðina ráða, virð-
ist hafa verið takmark hermála-
fundarins í Stokkhólmi.
110,000 bændur í mið og á vest-
ur Frakklandi á fundi í Boiles,
mótmæltu harðlega að verð yrði
sett niður á vörum, sem snerti að
eins einn flokk manna, bænda-
ílokkinn, og létu í ljósi að sú iðn-
aðargrein væri í yoða ef hún yrði
lögð i einelti.
Auðmaður einn i Kína, Tan Kah-
Ki að nafni hefir gefið $4,000,000
til þess að byggja háskóla í Amoy
í Kína. Byggingin sjálf á að kosta
500,000, 400,000 á að nota til þess
að kaupá kensluáhöld og önnur
áhöld sem skólinn þarf á að halda,
og til vísindalegra tilrauna í sam-
bandi við hann í akuryrkjuvísind-
um. $100,000 er ákveðið að skuli
ganga til þess að mæta bráða-
byrgðar kostnaði við skólahaldið.
En 3,000,000 er ákveðið að leggjast
skuli á vöxtu og að árlegir vextir
af þeirri upphæð, sem eru áætlað-
ir að vera $120,000, gangi til þess
að borga starfsrækslukostnað. —
Háskóli þessi á að vera fullgerður
eftir 2 ár og tekinn til starfa
Ólagið eykst
milli Hollands og Belgíu. — Full-
trúasamböndum slitið.
Eins og kunnugt er, þá hefir
verið grunt á því góða milli Hol-
lands og Belgíu upp á síðkastið.
Nú kastar þó fyrst tólfunum, með
því að ríki þessi hafa opinberlega
slitið öllum fulltrúasamböndum
sín á milli. Höfuðorsök óánægj-
unnar kvað vera sú, að Belgíumenn
krefjast endurskoðunar á samn-
ingnum frá 1839, sem veitti Hol-
lendingum allvæna sneið af landi,
3unnanvcrt við ána Scheldt, ásamt
flákum eigi all litlum í Limburg
fylkinu, er liggur milli Belgíu og
pýzkalands.
Belgíska stjórnin byggir kröf-
ur sinar á því, að þjóðin þarfnist
maýgfalt frekara öryggis, að því
er snerti landvarnirnar, en nú
eigi sér stað, jafnframt því, sem
heiður þjóðarinnar krefjist þess,
að hin mikla verzlunarborg Ant-
werp, verði losuð við öll þau við-
skiftahöft, sem bæði sjálfrátt og
ósjálfrátt hvíli á henni um þessar
mundir af völdum Hollendinga. —
Belgíumenn halda því fast fram,
að sökum sinna miklu eigna í Suð-
ur-Limburg, séu þeim héruðin
sunnan við Scheldt, beinlínis
ómissandi.
Sagt er að til málamiðlunar,
hafi Belgíumenn komið fram með
þá uppástungu, að í stað þessara
umræddu landflæma, skyldi Hol-
land fá til eignar og umráða, nokk-
ur þýzk héruð, þar sem hollenzk
tunga er töluð. — En af síðustu
fréttum að dæma, hafa allar sam-
komulagstilraunir farið út um
þúfur, og nú hafa ríki þessi slitið
viðskifta og fulltrúasamböndum
þeim, sem þjóðir eru vanar að
hafa sín á millum á friðartímum,
til gæzlu sinna persónulegu hags-
muna. —
Stórkostlegt Verkfall
í járnsmiðjum Bandaríkjanna.
Á mánudagsmorguninn var
gjörðu margir af þeim, sem við
járnsteypuverkstæði í Bandaríkj-
unum vinna verkfall.
Leiðtogar verkamanna segja að
286,000 manns hafi tekið þátt 1
verkfallinu fyrsta daginn, og hef-
ir verkfall verið gjört í þessum
ríkjum: Pensylvania, Ohio, Illi-
nois, Indiana, Minnesota, West
Virginia, Wisconsin, Colorado og
Albama, og hefir verkfall verið
hafið í 145 verkstæðum.
Kaupgjald sem borgað var, eða
borgað er í þessum verksmiðjum
er lægst fyrir algenga verkamenn
$3.50, en hæst $6.00 á dag. Fyrir
handverksmenn eða menn, sem
hafa numið iðn sína, lægst $7, en
hæzt $18 á dag.
Ástæðan fyrir þessu verkfalli
er sú krafa verkamanna að vinnu-
veitendur viðurkenni rétt verka-
manna til að hefja samtök og
mynda félög til þess að bæta kjör
sín, bæði að því hvað kaupgjald og
aðbúnað við vinnuna snertir.
Ennfremur krefjast verkamanna
fálögin þess, að verkveitendur við-
Urkenni rétt verkamannafélaganna
eða stjórna þeirra, til þess að
semja fyrir hönd félagsmanna við
verkveitendur um kaupgjöld,
lengd á vinnutíma og hvað annað,
sem lýtur að velferð félagsmanna.
Er þetta nákvæmlega það sama
og þeir menn fóru fram á, er á
járnverkstæðunum unnu hér í
Winnipeg og verkfall gjörðu síð-
astliðið sumar.
Víða hafa óeirðir átt sér stað,
og hefir herliðið verið kallað út,
til þess að skakka leikinn. Sagt
,er að á öðrum degi sem verkfallið
stóð, þá hafi níu menn verið drepn-
ir og margir særst.
Frá tslandi.
Stærstu málin eru ekki enn kom-
in fram í þinginu frá nefndunum.
en á næstu dögum eru væntanleg
nefndarálit um stjórnarskrá og
fjárlög. Frá launamálanefnd er
álitsskjal nýkomið fram, og innan
skamms væntanlegt nefndarálit
frá meiri hluta milliþinganefnd-
arinnar í fossamálinu. — 1 stjórn-
arskiftamálinu hefir ekkert gerst
enn, svo kunnugt sé. — Gert er
ráð fyrir, að þing standi yfir fram
undir septemberlok.
Annan ágúst kom hingað nýr
botnvörpungur, Gylfi, eign Magn-
úsar Magnússonar o. fl., en skip-
stjóri Jóel Jónsson. petta er
þriðji botnvörpungurinn sem bæt-
ist í fiskiflotann síðan losna fór
um viðskiftin og er hann smíðað-
ur í pýzkalandi í upphafi ófriðar-
ins, en hefir verið í förum fyrir
þýzku stjórnina síðan. Gylfi er
stærstur íslenzku botnvörpung-
anna, 350 brúttólestir, 150 feta
langur og 25 feta breiður með 550
hestafla vél. Hann kvað vera vel
bygt skip og vandað að öllum út-
búnaði. — Nýlega er líka komið
hingað vélskipið Víkingur, eign h.
f. Norðri, skipstj. Friðrik Björns-
son. pað skip er smíðað í Dan-
mörku og er burðarmagn þess um
100 smálestir, en það gengur fyrir
120 hestafla Thorvél. pað er
einkum ætlað til síldar- og sel-
veiða, en verður þó haft eitthvað í
förum fyrst um sinn.
Nýlega er komin út kvæðabók
eftir Höllu Eyjólfsdóttir á Lauga-
bóli.
Selveiðaskipið Kap Nord er ný-
komið hingað, bilað, en með 1200
seli. Annað selveiðaskip kom
skömmu seinna, með 800 seli, og
það þriðja kom 2. ágúst og með 500
seli. — Eva, sementskip til Garð-
ars Gíslasonar, kom um líkt leyti.
— ísland fór héðan 31. júlí, með
fjölda farþega, þar á meðal próf.
L. H. Bjarnason og E. Briem yfir-
dómara, sem eru fulltrúar ís-
lenzkra lögfræðinga á lögfræðinga
fundi Norðurlanda. — Botnvörp-
ungurinn Vínland kom 1., og hafði
selt afla sinn fyrir 2400 pund. —
Gullfoss kom 4. ágúst og með hon-
um knattspyrnumennirnir dönsku,
sem áður hefir verið minst á,
og kvikmyndaleikararnir, sem
ætla að “filma” Sögu Borgarætt-
arinnar.
1 síðastliðnu hausti sneri Bún-
aðarfélag íslands, ásamt búnaðar-
samböndunum, sér til kaupmanna
og kaupfélaga með óskum um sam-
skot til styrktar þeim, er verulegt
tjón hefðu beðið af Kötlugosinu.
Pylgir hér skýrsla yfir þær fjár-
hæðir, er Búnaðarfélagið hefir
veitt móttöku: Bræðurnir Proppé,
Rvík kr. 440, Pöntunarfélag Rauða-
sands 200, Kaupfél. Borgarfjarðar
eystra 57, Sláturfélag Skagafjarð-
ar, Sauðárkr. 1350, Karl Guðmunds
son, Stöðvarfirði 100, Eggert
Briem frá Viðey 100, Kaupfél.
pingeyinga, Húsavík 2500, Kaup-
fél. N.-ping., Kópask. 2500, Kaup-
fél. Langanes., pórsh. 156, Kaup-
fél. Borgarf., Borgarnesi 400,
Hartm. Ásgrímsson, Kolkuós 120,
Kaupfél. Hvammsfjarðar 920,
Guðm. Bergsteinsson, Flatey 300,
Kaupfél. Króksfjarðar 208, Kaup-
fél. V.-Húnavatnss. 1552.69. Sam-
tals 9019.69. — Hér með er skorað
á alla þá, er kynnu að vilja leggja
sinn skerf til þessara samskota, að
senda upphæðina til Búnaðarfé-
lags Islands fyrir lok september-
mánaðar. — Tjónið er svo mikið,
að það verður aldrei að fullu bætt
með samskotum, en mikilvægt værl
að geta styrkt svo um mánaði þá,
sem harðast hafa orðið úti.
—Lögrétta.