Lögberg - 12.02.1920, Side 1
SPEIRS-PARNELL BAKING CO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta vtrð sem veriÖ
getur. R E Y N IÐ Þ AÐ!
TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG
öQftef
Það er til myndasmiður
1 borginni
W. W. ROBSON
f
490 Main St. - Garry 1320
33. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 12. FEBRÚAR 1920
NUMER 7
Helztu Viðburðir
Síðustu Viku
Canada.
Nýjan fcennara skóla ætlar fylk-
isstjórnin í Saskatchewan að láta
byggja á komandi sumri, er sú
bygging einhver hin veglegasta
i sinni röð í Canada og er mjög
til alls vandað í sambandi við hana
Hún er 258 fet á breidd, löng er
byggingin líka og sérstaklega til
endanna.sem ganga lengst aftur,
og er hvor álman 95 fet á breidd.
"Til réttlætingar fyrir fjár-
bædnur i Canada, skal það sagt
að þeir eiga litla sök á hinu óg-
urlega verði sem nú er á öllum
ullarfatnaði,” sagði W. W. Thom-
son formaður smvinnudeildar
Sask. stjórnarinnar nýlega, og
benti á að samkvæmt síðustu
skýrslum frá fjárræktar félagi
Bandaríkanna þá kostaði ullin
í klæðnað sem seldur væri á $ 60
að eins $5.27, en í klæðnað, sem
seldur væri á $ 75 kostaði hún
$ 7,37 og væri þá um að ræða þá
beztu ull sem fáanleg væri í land-
inu.
360081 tonn af kolum voru
grafin úr 51 kolanámu í Sask-
atchewan fylkinu árið 1919 og
hafa 403 námamenn unnið að
þeirri frmleiðslu. En það sem
fylkið þarf*til sinnar notkunar er
talið að vera 1,650,000 tonn.
6. þ. m. andaðist í Ottawa Sir
James Alexander Grant 89 ára
gamall. Hann var á gangi fram-
undan “Rusell House” 20 des s. 1.
datt og mjaðmarbrotnaði og hefir
verið á sjúkrhúsi síðan.
Sir Jaimes Grant var síðastur
þeirra manna er sátu á hinu
fyrsta löggjafar þingi Canada.
Fjárhagsskýrsla Canada yfir tíu
mánuðina af þessu fjárhagsári,
er nú stendur yfir er komin út, og
sýnir hún að fjárhags ástand rík-
isins er alt annað en glæsilegt.
pví hún sýnir að ríkið skuldi
$ 3,323087,801 af þeirri upphæð
er búið að borga út $ 2,447,542,908
mismunurinn eða $ 875,544,893
eru peningar sem stjórnin hefir
tekið til láns, eða á að standa skil
af en eru sem stendur geymdir í
ýmsum bönkum.
Og þegar vér tökum það með í
reikninginn að á undan stríðinu
var ríkisskuldin um $ 338,000,000,
þá getum vér séð hversu ervið-
lega nú áhorfist með fjármálin,
og líka fundið ástæðu fyrir því
Canadiski dollarinn er ekki
meira virði en 82 cent í New York.
A8 undantekinni ríkisskuldinni
eins og hún var þegar stríðið skall
á, þá hefir samsteypustjórninni í
Ottawa tekið til láns á stríðsárun-
um $ 2,109,524,908, upp til þess
tíma að skýrsla þessi er gefin út
til enda tíunda mánaðarins, af
þessu fjárhagsári, hefir sam-
steypustjórnin borgað út til stríðs-
þarfa$ 1622,608,398. Hún hefir
því tekið $ 486,934,510, til láns
meira en stríðið hefir kostað oss.
Nokkur hluti þessarar upphæðar
er enn í höndum stjórnarinnar, en
þar sem kostnaður í sambandi við
stríðið nam $ 60,000,000 síðastlið-
ín mánuð, þá er óhætt að gera ráð
fyrir að meiri parturinn af því
lánsfé sem stjórnin hefir nú með
höndum verði búið I lok fjárhags-
ársins.
Rétt er og að geta þess, að nokk-
urt fé hefir verið lánað til Breta
og annara striðsþjóða. En þrátt
fyrir það, virðist þessi lántaka
stjórnarinnar gífurleg.
Hinar vanalegu tekjur stjórn-
arinnar yfir þessa tíu mánuði
voru $ 288,230,911. en hin vana-
»egu útgjöld voru á sama tíma
$ 271,352,190, og er því tekjuaf-
Kangur $ 17,000,000.
luntektir stjórnarinnar frá þvi
stríðið byrjaði og til þess tíma
sltVrsian er gefin út, námu
und"’879’224, og útgjöldin að
$1 noctelcnum stríðskostnaði námu
un’Um’84l>°62. Á öllum stríðsár-
tekjuaf^" ÞVÍ hinn Vanalegi
numið $303,038,162
sama stiórnarinnar é
stjórnarinnar á
•0,.„aul' herkostnaðarins
namu $210,699,899
befta^tímab-11 afRansrurinn yfir
þetta timabil umfram útborganir
artQno^o ofnamnn- er Því að
eins $82 333,263; og þrátt fyrir
það þo utgjold til opinberra verka
stæðu nálega alveg í stað. Með
öðrum orðum, eftir að búið var að
borga alt, sem nausynlegt var að
borga heima fyrir út úr tekjum
stjórnarinnar, þá voru meira en
hundrað miljónir eftir til stríðs-
þarfa.
í þessu sambandi verður og að
taka til greina hina beinu stríðs-
skatta, sem til samans gera $167,-
153,468 fram til þess tíma, að
skýrslan er gefin út, þá er það
auðsætt, að án þeirra hefði sam-
steypustjórnin lent í sjóðþurð með
siín vanalegu útgjöld um sjötíu og
fimm miljónir dollara.
6. þ. m. lagði landbúnaðar ráð-
herra Winkler fram skýrslu sína
í Manitoba þinginu og var hún
bæði fróðleg og merkileg. Var
þar tekið fram að kornafurðir
Manitoba fyrir árið 1919 h&fi
numið $ 158,566,000 og er það
stórkostleg upphæð. '
Ráðherra benti á þær, feikna-
miklu breytingar, sem sumar
deildir landbúnaðarins hefðu tek-
ið, sérstaklega afurðir mjólkur-
búanna, hið nýja og endurbætta
fyrirkomulag sem í þeirri landbún-
deild væri viðhöfð, hefði breytt
þeirri grein framleiðslunnar svo
að 1 staðin fyrir að kaupa að, svo
tugum miljóna sikifti af smjöri á
hverju ári eins og verið hefði,
þá hefði fylkið selt um miljón
pund af smjöri út úr fylkinu á
síðasta ári.
Hveiti framleiðsla fylkisins
nam 41,000,000, mælirum á árinu
sem leið.
Hafra uppsk ran var 57,000,000
mælirar.
Bygg 17,000,000. Kartöflu-
uppskera nam 5,000,000 mælirum
Verð gripa sem seldir voru á mark-
aðnum hér í Winnipeg ásamt af-
urðum mjólkurbúanna, alifugla,
bíflugna og ullar framleiðslu voru
$ 191,730,000 virði.
En fremur benti Mr. Winkler á
með ljósum rökum að lög þau sem
samin voru til þess að varna ill-
gresinu að breiðast út, hefðu haft
mjög heillavæmleg áhrif, alstaðar
í fylkinu, og ekki síst í Rauðár-
dalnum. Hann sagðist sjálfur
þekkja dæmi þar sehi menn hefðu
verið reknir til þess að hreinsa
land sem -hefði verið löðrandi í
illgresi, og í því ástandi verið
einkis virði, en hefðu selt það á
60 til 75 dali ekruna eftir að það
var hreinsað. ”pannig hafa þau
lög aukið auð fylkisins stórkost-
lega” sagði ráðherrann.
Kostnaður Við að starfrækja
landbúnaðardeild Manitobastjórn-
arinnar fyrir árið 1919 var
$ 10,227,28, er þar í talið kaup ráð-
herrans og aðstoðarmans hans, og
þeirra sem við skrifstofustörf
vinna. En til huggunar vini vor-
um ritstjóra Hemskringlu, námu
þessi sömu útgjöld 12,000 árið
1914.
Á miðvikudaginn annan en var,
var skýrsla prófesisors R. W.
Vallace umboðsmanns Manitoba
stjórnarinnar yfir norður Mani-
toba, lögð fram í þinginu og ber
með sér, að þessi partur fylkisins,
hefir aukið auð fylkisins frá 1 des.
1918 til 1 des. 1919 um $ 3,500,000
Framleiðslan í þeim parti fylk-
isins hefir verið sem hér segir
og er ekkert talið nema það sem
búið er að selja.
Náma afurðir: Gull $ 12,404,21
Silfur $ 620.377,28 samtals seld-
ar námafurðir $ 694,633,600.
Viðar framleiðsla $ 588,300,
Fiskiveiðar námu 163,000, land-
búnaðar afurðir $ 144,800, og loð-
skinnavara $ 1,867,000 samtals
eins og að ofan er sagt $ 3,500,000
cg þó hefir auður norðurlandsins
enn ekki verið snertur.
Skýrslu um tekjur og gjöld við
körnhlöður Manitoba stjórnar-
innar á síðasta ári, hafa verið
lagðar fram í þinginu, og sína að
ágóði við starfrækslu þeirra á
árinu sem leið hefir numið $ 3,
602,41.
pingið í Ottawa kemur samar
í nýja þinghúsinu 26. þ.m. og verð-
ur það sett í neðri málstofunni
sem kvað vera til reiðu, en efri
málstofam er enn ekki til. Með-
an að verið er að ljúka við hana
á að nota samkomusal járnbraut-
arnefndar ríkisins til þingsetu,
sem kvað vera fullgerður
Bandaríkin
Eigendur að niðursuðu verk-
smiðjum I Bandaríkjunum áttu
fund með sér í Cleveland, Ohio,
nýlega, og kom þeim saman um
að óhugsandi væri að lífsnauð-
synjar gætu lækkað í verði á
þessu ári, heldur hlytu þær að
hækka sökum vaxandi framleiðslu-
kostnaðar.
Samuel Gompers,, forseti hinna
sameinuðu verkamannafélaga í
Bandaíkjunum, er nýbúinn að
stíga yfir 70 afmælisdag sinn.
Hermála ritari Bandaríkjanna,
Daniels, hefir lýst yfir því, að
stríðið sem Bandaríkin ákváðu að
taka þátt í 6. apríl 1917, verðl
framvegis kallað alheimsstríð.
1 byggingum, sem eru háar, eru
lyftivélar til mikils gagns að
flytja fólk og farangur upp og of-
an. En þá hefir líka gagn þeirra
verið talið. En New York búar
eru framfarafólk, svo nú, síðan
an vínsölubúðum var lokað svo
víða„ þá hafa þeir tekið upp á því
þar syðra, að nota lyftivélarnar
sem vínsölustaði. Sjö gallónur
af víni voru teknar af einum ná-
unga, sem hafði flutt sig með vín-
söluna inn í eina af þessum lyfti-
vélum í Neww York.
Majór Richard Lloyd George,
sonur forsætisráðherra Breta, kom
ásamt konu sinni til New York í
síðustu viku. Segist hann vera í
verzlunarerindum.
Verkfáll hafa þeir menn gert í
Chicago, sem leggja fyrir sig að
þvo glugga; þeir krefjast $48 um
vikuna fyrir æfða menn, en $44
fyrir viðvaninga. Vinnutíma
vilja þeir fá 44 stundir á viku, og
sé borgað fyrir þann tíma að
fullu, hvort sem mennirnir vinna
eða ekki.
Rikisþingin í Virginia og Caro-
lina hafa bæði felt breytingar
á stjórnarskrá Bandaríkjanna í
sambandi við pólitiskt jafnrétti
kvenna.
Maður nokkur, sem keyrði flutn-
ings bifreið, var á ferð með hana
hlaðna af silki, sem var $75,000
virði. Keyrslumaðurinn þurfti að
bregða sérjinn í búð og skildi vagn
sinn eftir fyrir utan dyrnar. peg-
ar han kom út aftur, var vagninn
með silkinu horfinn.
Járnbrautamála ráðherrann frá
Belgíu er staddur í Lundúnum.
Hann er að reyna að fá 500 gufu-
vagna og 300 flutningsvagna
keypta á Canada.
símað frá Lágafelli til Hafnar- Látin er 1 Chuchbridge Sigríður
skrifstofunnar og hún beðin að Porsteinsdóttir móðir konu Magn-
usar Jonssonar v sem lengi bjo a
Bretland
Brezka þingið var sett á þriðju-
daginn var og liggja fyrir því
bæði vandasöm og stór mál til úr-
lausnar. par á meðal er heima-
stjórnarmál írlands, sem talið er
víst að lagt verði fyrir þingið
mjög bráðlega.
Talið er víst, að verkamanna-
fulltrúarnir muni gjöra viðauka-
uppástungu i sambandi við há-
sætisræðuna um að gjöra námur
landsins að þjóðeign.
Enn fremur er talið víst, að
þeir fáu Nationalistar, sem eftir
eru í þinginu, muni leitast við að
sakfella stjórnina fyir drotnunar-
vald það, sem þeim finst vera beitt
af Englendingum við landsmenn
sína. íra.
Annars virðist stjórnmála him-
ininn brezki skýjum þakinn, og
menn vita ekki nær óveður kann
að skella á.
Bæði Georg Nicoll Barnes og
George H. Roberts, einu verka-
manna umboðsmennirnir, sem eft-
ir voru í Lloyd George stjórninni,
hafa sagt af sér. Svo nú sem stend-
ur eiga verkamennirnir brezku
engan málsvara í stjórninni, þrátt
fyrir það, þó viðurkent sé, að
þeirra flokkur sé nú sá sterkasti
í landinu. og sumir af þektustu
mönnum þjóðarinnar, svo sem Hal-
dane lávarður og Sir John Fisher,
halliist nú á þá sveifina, og svo
langt er komið, að menn þykjast
'sjá, að innan lítils tíma munl
verkamanna flokkurinn ná völdun-
1 í sínar hendur, og þá verði
Arthur Henderson forsætisráð-
herra, Haldane lávarður að lík-
indum lord chancellor og prófess-
or John Maynard Keynes chan-
ellor of the exchequer.
Lady Bonham-Carter, sem hét
Yiolet Asquith áður en hún gift-
ist, dóttir fyrverandi forsætisráð-
herra Breta. hefir verið boðið að
kja um þingmensku í álitle^u
kjördæmi á Englandi. Hún hefir
enn ekki svarað tilboðinu.
Hockey leikurinn.
Eins og til stóð léku hockey-
leikflokkarnir, Falkons og Selkirk,
í síðasta .sinni í Amphitheatre
skautaskálanum á mánudagskveld-
ið var.
Eins og vant er, þegar þessir
flokkar hafa leikið í vetur, var
skálinn alskipaður fólki, sem virt-
ist fylgjast með leiknum með ó-
venju miklum áhuga, sem ekki
var heldur án orisaka, því þessi
leikur -átti að skera úr því, hvor
þessara leikflokka, sem mótmæla-
laust eru þeir beztu sem til eru í
fylkinu, ætti að bera sigurinn úr
býtum og þá um leið keppa um
sama heiður í öllu Canadaríkinu.
1 þetta sinn þurfti fólk ekki að
bíða lengi eftir, að leikendurnir
væru komnir út á ísinn. Klukk-
unni ar tafarlaust hringt og leik-
endurnir tóku til óspiltra málanna
og 'hver einn og einasti þeirra með
það eitt í huga, að duga, og eftir að
leikurinn hafði staðið í tvær mín-
útur unnu Selkirk leikendurir og
fagnaðarópi svo mikiu að hvergi
heyrðist mælt mál, laust upp í
skálanum.
En ekki þurfti lengi að bíða
eftir því, að íslendingarnir jöfn-
uðu skakkafallið. Og þegar klukk-
an gaf til kynna að fyrsti þáttur
ieiksins væri búinn, voru vinning-
ar jafnir.
En það var annað, sem þá var
líka orðið flestum áhorfendum
ljóst, osr það var. að Selkirk flokk-
urinn gat ekki unnið, sökum þess,
að þeir máttu sín ekki við íslend-
ingunum.
í öðrum þættinum sannfærðist
fólkið enn betur um þetta. pví að
honum loknum voru isterkustu
meðhaldsmenn Selkirk - flokksins
orðnir með ölslu vonlausir um sig-
ur sinna manna.
Ýmsir menn, ®em fylgst hafa
með þessum leikjum, hafa látið
sér það um munn fara, að þó að
íslendingarnir hafi unnið, þá hafi
Selkirk leikendurnir sýnt meiri
list í leik sínum.
peir menn, sem svo hafa hugsað
og talað, sannfærðust algjörlega á
mánudagskvöldið var um, að sú
skoðun þeirra væri svo langt frá
því að vera á rökum bygð, að þeir
viðurkendu það fúslega — eins og
einn málsmetandi og vel þektur
Winnipeg borgari, sem slíku hafði
haldið fram, sagði á þriðjudags-
morgun í viðtali við íslending út
af leiknum: “Eg bið fyrirgefning-
ar og tek það alt aftur.”
Leikur íslendiganna á manu-
dagskveldið var meistaralegur, og
yfirburðirnir svo að segja þegar I
fyrsta þætti leiksins, bæði að þvl
senda mótorbát til hjálpar manni,
sem var á leið út í perney á litl-
um báti, en lenti í lagís og hrakti
fyrir straumi og stormi. Var þá
brugðið við og sent inn eftir og
tókst greiðlega að bjarga bátnum
og manninum ásamt barni, sem
hann hafði með sér.
Beverley Str. hér í bænum.
Munið eftir ársfundi pjóðrækn-
isfélags Vestur-íslendinga, sem
haldinn verður í Goodtemplara
húsi íslendinga í Winnipeg 25.,
26. og 27. þ.m. Fundahöld verða
væntanlega eftir hádegi alla þessa
Póstmenn hafa neitað að taka við' daga, en fyrirlestrar verða flutt-
launum sínum að þessu sinni. lr ^vei^inu.
pykjast eiga að fá hærra kaup, en
þeim átti að borga og bera það Sú sorgarfrétt barst hingað
fyrir sig, að kaupið eigi sam-1 norður um síðustu helgi, að
kvæmt lögum að fara hækkandi Kristjana Olafsson hjúkrunar-
eftir því isem þeir gegna starfinu kona. dóttir Kristjáns Ólafssonar
lengur. I iitsábyrgðar umboðsmanns hér I
! bæ, lægi sjúk 0g miög þungt hald-
Kqldar miklir hafa verið um alt in í St. Louis í Bandaríkjunum
land undanfarandi daga og stór-
hríðar fyrir norðan.
Austurrísku börnin. Búist er
við að fyrsta sendingin, 50 börn,
komi hingað með Gullfossi og
seinni helmingurinn, önnur 50
börn, jkomi hingað um mánaða-
mót. Hefir enn eigi verið gefið
loforð um að taka fleiri börn,
enda þótt nefndinni hafi borist
tilboð um töku fleiri barna. Inn-
an fárra daga tekur nefndin á-
kvörðun um það, í hvaða staði
fyrstu börnin eiga að fara. —Til-
boð eru enn að berast nefndinni
utan af landi víðsvegar um töku
barna, en ekki víst að hún sjái
fært að isenda þau langan veg um
hávetur. ”pó er búiít við því, að
f'eiri en 100 börn verði tekin.
Júlíus Havsteen yfirdómslög-
maður er skipaður settur sýslu-
maður í Eyjafjararsýslu og bæj-
arfógeti á Akureyri frá 1. janúar
að telja.
Hæstiréþtur getur að líkindum
ekki tekið til starfa fyr en í febrú-
ar. Er húsnæði það, sem honum
hefir verið ætlað á efri hæð hegn-
ingarhússins, ekki tilbúið enn.
Er verið að gjörbreyta allri hæð-
inni og eiga þar að vera 4 herbergi
fyrir hæstarétt en tvö handa bæj-
arþingi.
—Vísir frá 31. des. —4. jan.
Mikill viðbúnaður er þegar haf-
:nn til þess að gera skemtisam-
komu pjóðræknis- félagsins, er
haldin verður meðan hið tilvon-
andi þing þess stendur yfir í
Winnipeg sem allra veglegasta.
pað á verða uppbyggilegasta sam-
koman, sem Vestur-fslendingar
hafa stofnað til um langan aldur.
Auglýsing í næsta blaði.
Kærkominn gesturj
Frófessor Sveinbjörn Svein-
björnsson kom norður hingað til
okkar, Big Point og Langruth
búa. Hann var okkur mjög kær-
komin gestur. Að kvöldi föstu-
dagsins 9. þ. m. ihélt hann hljóm-
leik í samkomuhúsinu Herðubreið.
Aðsókn að hljómleika samkomu
þessari var mjög góð. Samkomu-
salurinn fullskipaður, og þétt-
skipaður; úr svip samkomunnar
mátti lesa fögnuð yfir hljómleikn-
um. Samfara þeirri vitund, að
þeir þættust góðir af því, að hér
væri staddur maður, sem hefði
unnið sjálfum sér og íslenzku
þjóðinni, sóma og frægðarorð, víða
um lönd.
Eg hefi heyrt, af þeim mönnum
hér, sem bezt hafa vit til, að segja
um sönglist, að hljómleikurinn
hafi tekist afbragðs vei.
Ræður voru haldnar; til að
er dómgreind og list snertir, svo! segja prófessorinn velkomin, og
augljósir, að slíkt'fékk ekki dulist. til að þakka honum fyrir hljóm-
petta sem hér er sagt, er ekki
sagt til þes að niðra eða gera lítið
úr leikendunum frá Selkirk, því
þeir hafa í leikjum sínum sýnt
sanna hugprýði, drengskap og
frækni, og einn af þeim, Joe Simp-
son, frábæra leikfimis hæfileika.
En það er eins í þessum leik
sem og öllum öðrum viðskiftum
mannanna, að einn kemur öðrum
meiri, og í hópi þessara íslend-
inga, sem þreytt hafa þennan leik,
eru menn, sem bera af öllum öðr-
um, sem slíkan leik hafa þreytt
hér í Winnipeg.
Og flokkurinn íslenzki í heild
sinni ber af öllum öðrum flokk-
um, sem þreytt hafa þennan á-
gæta leik í Manitoba fylki í vetur.
leikinn. pessir menn töluðu,
taldir eftir stafrofsröð
Ágúst Eyólfsson Halldór Daní-
elsson, Magnús Pétursson og séra
Sigurður Christopherson.
Við, norður hér, þökkum pró-
fessor Sveinbimi Sveinbjörns-
syni fyrir kontuna hingað, og ósk-
um honum allra heilla.
peir Ágúst Eyólfsson, Böðvar
Jónsson og Steini B. Olson, spör-
5. þessa mánaðar lést hér á al-
menna sjúkrahúsinu, Anna kona
Páls Bardals yngri úr spönsku
veikinni, mjög efnileg og góð kona
að eins 23 ára gömul.
Jarðarför hennar fór fram frá
heimilinu og Fyrstu lútersku
kirkjunni á laugardaginn 7. þ. m.
og var fjölmenn.
Anna heitin var dóttir Mr. og
Mrs. J. J. Vopna sem lengi hafa
búið hér í bæ og margir íslending-
ar þekkja.
Takið eftir, að næsta föstudag,
13. þ.m., verður ekki hægt að halda
fund í stúk. Heklu vegna ófyrir-
sjáanlegra hindrana viðvíkjandi
leiknum, sem verið er að undirbúa.
En föstudaginn 20. þ.m. verður
sérstakur skemtifundur. Munið
það.
Ingibjörg Jósefsdóttir kona B.
Clemenssonar að 967 Banning str.
hér í bæ lést á almenna sjúkra-
húsinu í Winnipeg 4. þ, m. Hún
var jarðsunginn 7. þ. m.
Guðbrandur Jörundsson frá
Stony Hill, var á ferð í bænum í
vikunni.
pann 24. jan. síðastl. lézt Jón
Pétursson í Blaíne, Wash. Lík
hans var flutt til Gimli og jarð-
sungið þar 6. febr., að viðstöddu
fjölmenni, af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni og séra Haraldi Sigmar.
Nánar síðar.
Mótið
I Manitoba Hall, 17. febrúar.
“Helgi magri” býður alla Vest-
ur-íslendinga á porrablótið, sem
hann heldur I Manitoba höllinni
n. k. þriðjudagskvöld.
Par verður mikið um dýrðlr,
svo sjaldan hefir betur boðið
verið.
Ágætur íslenzkur matur, Ijúf-
fengur og vel fram reiddur, sem
bæði seður og gleður.
Ágætur dans, bezti hljómleik-
araflokkur borgarinnar leikur
danslögin, og spilar þess á milli
íslenzka ættjarðarsöngva.
Ágætur íslenzkur söngflokkur
undir stjórn Björgvins Guðmunds-
sonar, skemtir með söng. í flokkn-
um eru beztu söngkraftar Winni-
peg-íslendinga, svo sem Mr. og
Mrs. Alex Johnson, Jónas Stefáns-
son, Mrs. G. T. AthePtan. Ung-
frúnar Dora Friðfjnnsson, May
Thorláksson og Lillian Thorláks-
son, Magnús Magnússon o. fl.
o. fl.
Ræður verða fluttar fyrir
tveimur minnum af nafnkendum
ræðumönnum.
Svo verður telft og spilað á spil
og margskonar annar gleðiskapur
um hönd hafður.
porrablótið verður fjölbreyti-
kgasta og skemtilegasta miðs-
vetrar samkoman, sem haldin
verður meðal Vestur-lslendinga.
Heið'ursgestir Helga magra á
porrabló<(mu verða skautakapp-
arnir íslenzku, Falcons. Mun ut-
anbæjarmönnum forvitni á að
líta þá hina hraustu sveina, sem
frægðarljóma hafa slegið á þjóð-
flokk vorn.
Vestur-Islendingar! Sækið vel
porrablótið. Látið samkvæmið
vera vinafögnuð svo mikinn,, að
lengi verði í minnnum hafður.
Kaupið aðgöngu miða sem allra
fyrst, því sætafjöldinn er tak-
markaður. peir eru til sölu í
bókaverzlun Ó. S. Thorgeirsson-
ar, 684 Sargent Ave., á skrif-
stofu Heimskringlu og hjá meðlim-
um klúbbsins.
Hófið byrjar stundvíslega kl. 8.
Hittumst á Porrahlótinu!
t
Gústaf og Bjarni, synir Jóns
Thordarsonar bónda að Langruth.
komu til bæjarins síðastl. mánu-
dag. peir búast við að verða í
bænum nokkra daga.
Mr. Páll Egilsson, kaupmaður
frá Calder, Sask., var á ferð hér í
síðustu viku. Hann fór suður til
f^inneota,, Minn., að Iheimsækja
mág sinn, séra Guttorm Guttorms-
son. Mr. Egilsson lét vel af
beirri ferð og bað oss skila kærri
kveðju til landanna þar syðra og
þakklæti hinu bezta fyrir góðar og
höfðinglegar viðtökur. Hann fór
heimleiðis á föstudaginn var.
Spáð er, að öll hús, sem eru fá-
anleg á sanngjörnu verði, seljist á
þessu ári. Ef þér eruð kaupend-
ur, þá ættuð þér að kaupa sem
fyrst; en ef seljendur, þá gefst
aldrei betra tækifæri en nú. —
Kaupendur 0g seljendur mætast
hjá J. J. Swanson and Co., 808
Paris Bldg., Winnipeg.
Mr. og Mrs. Sigurjón Sigurðsson
* , * *. frá Árborg komu til bæjarins á
uðu enga fyrirhofn, um það að laugardaginn
var, komu þau til
Frá Islandi.
samkoman gæti farið sem bezt
fram, Steini B. Olson léði piano,
það sem prófessorinn lék á við
hljómleikinn. pessa er getið, með
"akklæti, til verðugs heiðurs
þessum mönnum.
A.
Úr bœnum.
23. þ. m. andaðist frú Sigrún
Jónsdóttir, kona séra Haralds
Jónassonar á Kolfreyjustað.
Orðabókarstarfið. Samkv. álykt-
un síðasta þings, áttu orðabókar-
höfundarnir að skifta með sér
verkum. Héldu þeir því fund 28.
des. og skipuðu sér í nefnd til
þess að koma samræmi og festu
í starfið. Séra Jóh. L. L. Jó-
hannsson er form. nefdarinnar.
Undir kvöld á gamlársdag var
í bréfi frá séra G. Guttorms-
syni í Minniota til ritstjóra Lög-
bergs stendur að spánska veikin
leggist þungt að þar syðra. Hann
segir að porbjörg ísfeld kona Sig-
tryggs
Co'unty
þess að vera við útför önnu sál
Bardal. H(ún var bróðurdóttir
Mrs. S. Sigurðsson.
Mr. Sigurgeir Pétursson frá
Ashern kom til bæjarins í vikunni
hann býst við að dvelja nokkra
daga í bænum.
Séra Kjartan Helgason kom til
bæjarins úr fyrirlestrar ferð sinni
frá Kyrrahafsströndinni, 5. þ. m.
Lét hann vel yfir ferðalaginu og;
viðtökunum þar vestra.
Séra Jónas Sigurðsson kom til
bæiarins vestan frá Seattle þann
4. þ. m. Hann dvaldi hér að eins
Isfeld bónda í Lincoln [ hálfan dag og hélt svo vestur til
sé dáinn. Hún var ung safnaða sinna í Sask.
kona, góð, og mjög vel gefin.
Sú sorgarfregn hefir oss og bor-
ist þaðan að sunnan, að kona Árna
lögfræðings Gíslasonar sé ‘látin
Blaðinu Lögberg hafa borist
margar ágætar aðsendar greinar
upp á síðkastið sem vér bökkum
og barn þeirra hjóna. En Árni fyrir, og biðjum menn að sýna þol-
sjálfur liggji þungt haldinn 1 inmæði þó þær komi ekki út allar
spönsku veikinni.
il.veg strax. —pær skulu koma
við fyrstu hentugleika.
Or bréfi.
Markerville, 3. febr. 1920.
-----Séra Kjartan embættaði í
íslenzku kirkjunni hérna sunnu-
daginn fyrsta febrúar, nýkominn
þá vestan af Kyrrahafs-strönd.
Nokkuð var sú samkoma strjál-
sótt, sem ekki var að undra, ann-
ir og ill færð héldu mörgum heima
Vetrarríkið hafði fram að þeim
degi sorfið svo fast að bændum,
að varla mátti verk úr hendi falla.
þenna dag og daginn fyrir var þó
brugðiði til bata, það ferðalán
^ékk séra Kjartan. Viðstaða hans
hér varð sfcemri en ætlast var til.
Hafði tafist á vestur leið. lesta-
gangur gengið úr lagi. Brottför
séra Kjartans var því skorðuð við
mánudagsmorgun hinn næsta..
Að lokinni messu dvaldist fólk-
ið ögn við. Séra Kjartan flutti
enn fyrirlestur nýjan. . Hafði
“dýrtíðina” alræmdu að upnhafs-
orðum og umræðu. og hver tiltæki
sér virtust vænlegust til að ráða
fram úr henni. Hann var svo
lívaddur af ýmsum með fíum orð-
um en alúðlegum, eða hlýrri hendi
Ofurlítill flokkur af yngstu ís-
jendingum hér, sem í vetur hafa
byrjað á að læra íslenzku, söng
fyrir séra Kjartan stef, sem
standa hér undir. Flestum mun
hafæ fundist, að þeim og kennara
þeirra tækist þetta vonum fremur,
jafn stutt tóm og til þess varð að
læra lag og orð:
Fyrst hljómarnir lengra en hönd-
urnar ná,
Og hugvildir leiða þig götuna á
Og fylgja þér, Kjartan, í hvörf-
in þín löng:
Við kveðjum þig, bróðir, með
íslenzkum söng.
pú ættgöfga trygð hefir teygt út
í lönd,
Frá tungurót mæðra og barns
ræktar hönd,
Og glatt okkar vonir um vor-
gróðans þrótt,
Að vaka með okkur um Jóns-
messu-nótt.
Við sitjum hér eftir, en ætlum að
ná
Til átthagans með þér í vonum
og þrá.
Og andvöro og brosin frá börn-
unum þeim
Við bindum bau öll undir væng-
inn þinn heim.---------