Lögberg


Lögberg - 29.04.1920, Qupperneq 1

Lögberg - 29.04.1920, Qupperneq 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verS sem veriÖ getur. R E Y N IÐ Þ AÐ! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON 490 Maln St. - Garry 1320 33. ARGANGUR WINNIPEG. MANITOBA, FIMTUDAGINN 29. APRÍL 1920 NUMER 18 Vorgy<5jan blómþrungin býður oss arma, — blikar á sólspeglað haf. — Skógurinn logar í lýsigullsbjarma, — laufsálum fagnandi vöknar um hvarma, því vorið þeim vaxtarmátt gaf. Útsýnið hýrnar, er heiðblævis-kvikið strauk lirímið af morgunsins brá. — Hnjúkarnir vefjast í vorsólar blikið. — Veturinn klökknandi þvær af sér rykið, — og sekkur í aldanna sjá. Nú ryðja sig stórfljót, en gljúfragöngin gnötra við straumþungans spor. Smámsaman jakanna þverrar þröngin--------- og þa'rna brast síðasta klakaspöngin, er tengt hafði vetur og vor. Gott var oss, Iðunn, um eplin að dreyma — þinn andi er fjöldanum kær, — þótt einstaka hjárænu gjarnt sé að gleyma cg grafi sig lengst inn í myrkursins heima, rneð hugblæinn haustinu nær. Þá er vetrarins þorrinn sjóður, ]jess var löngu mál. — Og átti’ ekki líka allur gróður upptök í vorsins sál? Ilvort mun nú ei sunginn sólaróður og sumrinu drukkin skál! Langdegisþráin lifnar, hækkar, í litbrigðum vorsins skýrð. Andlegu skuggunum óðum fækkar, — ísviljans konungur seglin lækkar og drukknar í morgunsins dýrð. Einar P. Jónsson. Wally Byron, goal. Connie Johanneson, defence. Bobby Benson, defence. “Huck” Woodmarv Helztu Viðburðir Síðustu Viku Canada. “Hún móir mín lét lút (lye) á brauðsneið og neyddi uppeldis- systur mína, sem nú er dáin, til þess að borða það. Hún sagðist skyldi lemja hana, ef hún ekki gerði það. Einu sinni tók hún bursta, sem gólfin eru þvegin með, og þvoði litlu systur minni með honum.” þennan vitnisburð gaf stúlka ein lítil, í máli, sem hafið var á móti móður hennar, sem heima á í Quebec fylkinu í Canada, út af því að hafa verið orsök í dauða uppeldisdóttur sinnar með hrottaskap og harð- neskju. Með því að þurð á heyi var mjög farin að sverfa að í hinum ein- stöku bygðarlögum Manitöba- fylkis, hefir landbúnaitardeild fylkistjórnarinnar fengið því framgengt við sambandsstjórn- ina, að um stundarsakir að minsta kosti megi flytja hey tollfrítt inn í fylkið. Innflutningstollur á heyi nemur tveimur dollurum á hvert tonn. Hon. Valentine Wink- ler, landbúnaðarráðgjafi í Mani- toba, lýsti nýlega yfir því, að í North Dakota og Minnesota mætti fá keyptan allmiknn fóðurforða, og að John Williams, þingmaður í Arthur kjördæminu, væri þá staddur i North Dakota í hey- kaupa erindum fyrir bygðarlög sín. Sandcvæmt yfirlýsingu Mr. Winklers má fá keypt í N. Dakota 1,000 tonn af ágætasta heyi, og ctthvað svipaðan forða, frá Min- nesota ríkinu. Ötlitið í vesturfylkjunum, að því ■ er heyfeng viðkemur, var orðið mjög ískyggilegt í síðustu viku, eftir fréttum þá að dæma. meðal j annars var sagt, að hátt á níunda þúsund nautgripa hafi fallið úr hor víðsvegar um Albertafylki, og allmikið tjón sökum fóðurskorts hafi einnig orðið í Saskatchewan- fylkinu hér og þar. Kartöflur eru að komast í hærra verð en nokkru sinni áður, er menn muna eftir. Heildsölu- verð á kartöflum í Toronto var $6 til $6.50 fyrir 90 punda poka í fyrri viku, og um sama leyti var Pdkinn seldur í Windsor Ont., á $7.50. í héraðinu umhverfis Brandor var byrjað á akuryrkju fyrstu dagana í vikunni sem leið. Snjó- þyngsli í því bygðarlagi voru miklu meiri í vetur en iþekst hefir í mörg ár; talið að fannþyktin hafi numið fimtán til sextán þuml- ungum. Samkvæmt upplýsingum frá at- vinnumáladeiidinni, er margfalt meira um atvinnu í Winnipeg- borg nú, heldur en var á sama tíma í fyrra. Síðustu viku var eftirspurn eftir 2,000 mönnum til þess að vinna í sumar á bújörðum, við brúarsmíði og brautarlagning- ar, en talið mjög vafasamt að öll sú tala mundi fást. Bændur bjóða um þessar mundir hátt kaup, hjónum þetta frá $110 til $125 um mánuðinn, en ein'hleypum $75. H. H. Dewart, foringi frjáls- lynda flokksins í Ontario, bar fram þingsályktunar tillögu þess efnis, að samningar Hearsts- stjórnarinnar við.J. J. Carrick og síðar við The Great Lakes Pulp and Paper Company, um rétt til timburtekju í Thunder Bay hér- aðinu, skyldu dæmdir dauðir og ómerkir. — Uppustungan var feld en stjórninni falið með annari til- lögu að láta rannsa'ka málið. Maður einn, C. Smith að nafni, kyndari og eftirlitsmaður með Bar- tella Court í Winnipeg, var ný- lega sakaður um að hafa misbeitt stöðu sinni með því að auglýsa í einu dagblaði, að íbúð er til leigu var i nefndu stór.hýsi, yrði feng- in þeim, er bezta “uppbót” byði eftirlitsmanni. Málið kom fyrir rétt og lauk því þannig, að Smith var dæmdur í $10 sekt. Skrásetning fyrir fylkiskosning- Br, sem nú fara í hönd, hefst í sveitarkjördæmunum 3. maí næst- komandi. Nefnd manna frá vesturfylkjum Canada fór á fund stjórnarinnar í Ottawa til þess að .skora á hana að fullgera Hudsonsflóa braut- ina, sem allra fyrst. Sir George Foster, sem gegnir störfum forsætisráðherra í fjar- veru Bordens, sagði að stjórnin hefði aldrei ætlað sér að hætta við brautina, heldur hefði það verið sökum þurðar á peningum til op- inberra starfa í Canada, að hætt hefði verið við brautina 1918, en lofaði að því, sem búið væri að byggja, skyld verða haldið við og máske dálítið bætt við. Á meðal þeirra, sem töluðu máli Vestur- fylkjanna voru þeir Hon. Edward Brown frá Manitoba og Hon. Geo. Langley frá Saskatchewan. Manitobastjórnin hefir nú nefnt nennina, sem eiga að sitja í Iðn- iðarnáðinu, sem myndað er sam- kvæmt iðnaðarlögum fylkisins eins og þau voru samþykt af þinginu Frank Frederickson, Mike Goodman, centre. left wing. “Við vissum, að svona mundi fara,” sagði einn af fremstu leik- fimismönnum Winnipegborgar, er fréttin kpm um það, að Fálkarnir — íslenzku leiksveinarnir, sem fóru frá Winnipeg—, hefðu sigrað í alheims Hockey-samkepni við Olympisku leikina í Belgíu. Menn hér voru svo sannfærðir um, að þessir íslendingar hefðu til að bera hreysti, listfengi, hug- rekki, staðfestu og óbilandi vilja- þrek til iþess að sigra í kappleikn- um, landi sínu, iþjóð sinni og sjálf- um sér tíl sóma. peir léku í fyrsta sinni á móti Sekkó-Slóvökum á laugardags- kveldið var og unnu þá svo alger- lega, að Sekkó-Slavar náðu engum vinningi, en Fálkarnir höfðu 15. Á sunnudagskveldið léku Fálk- arnir á móti Bandaríkja leikflokk- inum, sem er sá lang-bezti er þar hefir sýnt sig, að undanteknum Fálkunum. En leikur isá fór svo, að Fálkarnir unnu tvo vinninga, en Bandaríkjaflokkurinn engan. "ölim” Halderson, Chris- Fridfinnson, riaht wing. sub. Á mánudagskveld léku Fálk- arnir á móti Svíum og unnu með tólf vinningum gegn einum, sem Svíarnir náðu, og var þá sigur Fálkanna fulkominn. Fréttin um þennan sigur barst eins og logi yfir akur frá hafi til hafs í Canada og vakti almenna aðdáun og fögnuð. Jafnvel í þing- sal ríkisins í Ottawa, þegar Dr. Blake, þingmaður frá Winnipeg, kvaddi^sér hljóðs og sagðist hafa tilkynningu fram að bera, sem öllum þingheimi mundi þykja gaman að heyra, og sagði svo frá því, að Fálka/nir hefðu urínið í Belgíu, þá gleymdu löggjafar þjóðarinnar rétt í svip hvar þeir voru staddir, spruttu á fætur, veifuðu klútujn eða hverju helzt öðru, sem hjandhægt var, og ihrópuðu þrefallt hurra fyrir Fálkunum. Kæra þökk fyrir sigurinn, land- ar góðir og gætið hans með hóg- værð, eins og sönnum hetjum sæmir. SEX KVÆÐI Úr Hawaiian Songs and Hulas Eftir KAPULÉ KENOA. Elsku Lei Lehua. Ávalt fersk er minning mín, imunar drauma kærust sýn, morgna og kvöld er minning þín, mærust Lei Lehua. Bregð ei heit þín, hjartans mær! Hald þinn eið, þó eg sé fjær! Unga Sjöfn, svo unaðs kær, elsku Lei Lehua! Vertu sæl, kæra. (Adios Ke Aloha.) Dökkeyga fegurð, fríðrar óttu fölna stjörnur mót þinni sýn. Hægt fram um dalinn blærinn blaktir. Blómrós, — nær skaltu verða mín? Segðu mér, kæra, hvenær, hvenær hjarta mitt svar þitt gerir rótt. Hægt eg andvarpa, hjartakæra, 'hryggur í sálu, — góða nótt! Violeta. Eg elska þig, fjóla, mitt fegursta blóm, þín fegurð svo gagntekur hjarta mitt. Pú vekur í sálu mér unaðleiks óm, mér eilífðar sæla er brosið þitt. Eg hlýði á andvörp þín, hjartkæra blóm, sem huga minn töfra við sérhvern fund. Ó, ilmrós míns hjarta! minn belgidóm í huga eg geymi, í vöku og blund. Eg gleymi þér aldrei, mín elskunnar rós! Til enda míns lífs þú ert helguð mér. ó, Likolaulani, mitt ljúfasta ljós! mín lífssælu þrá er að vera með þér. Blómkranz á Kaiulani prinsessu. (He Lei No Kaiulani.) Kaiulani kranzinn sækið, kranzinn, sem eg vann fyrir hana, vafinn fögrum frægðar ljóma. Fríða meyju nú skal krýna. Á þínu höfði hann skal ljóma, — hugðnæm gleði oss að líta. pú komst niður af himni háum, hjá oss vertu — Kaiulani! Kom og þigg þá krónu dýra, — Kaiulani! fagra drotning! — blómum setta sigurkrónu, særðir áður en hermenn deyja. Kæra, þú ert mér æ in sama. (Waipoi.) Kæra, þú ert mér æ in sama og ávalt mitt hjarta fyllir gleði, síðan að, vina, fyrst við fundumst, er fögur sól hneig að Ægis beði. Manstu þá sjón, er fiskar fríðir fallega syntu kyrra ósa, þar fyrst í orðum ást vor birtist inndælla meðal vorisins rósa? Hér er minninga ljúfur lundur, hvar lífi unir inn fagri koa, unaðarreitur ástar sælu, þars andvarinn kveður blítt—Aloha. Maui mærin. Eg elska fríða Marui mey, sem myndir einnig þú; hún fögur var sem rósin rauð, sú rós að Waikapú. Hún lo’kka hnotubrúna bar, með brjóst svo undra fríð; og mittið var svo mjótt og nett, sem meyja nú á tíð. Og tennur mjalla-hvítar hún sér hafði gómum í, af öllum meyjum öðrum bar— eg aldrei gleymi því. Hjá föður sínum ólst hún upp, sem átti mjólkurbú. Eg fór einn síðla sunnuddag að sjá þau að Waikapú. Eg leið um sykur-akur einn — eg átti, á ferðum þeirn, þá mætti eg þeirri rjóðu rós, er rak hún kýrnar heim. pú vildir ei móðir vissi þín, að varstu ein hjá mér, því þá myndi faðir frétta þinn mitt ferðalag með þér. Ó, unga, fagra æsku rós, _______ sem unir að Waikapú, svo göfg og prúð og gáfuleg,— mér gleymist aldrei þú. S. B. Benedictsson. 1919 og endurbætt á síðasta þingi. Fimm menn sitja í þessari nefnd, tveir tilnefndir af verkamönnum, Frnest Robinson og W.B.Simpson, bæjarráðsmenn.' Tveir eru nefnd- ir af atvinnuveitendum, þeir John Stovel og H. B. Lyal. En sá fímti formaðurinn, er valinn af stjórn- inni sjálfri eða því opinbera, og hefir Rev. C. W. Gordon (Ralph Connor) orðið fyrir því vali. Fyrst kom til orða, að velja háyfirdóm- ara Mathers í þá stöðu, en lagaleg- ar torfærur voru þar 1 vegi, svo af þvi gat ekki orðið. Tíundi maí hefir verið skipaður trjáplöntunardagur í Manitoba. Bandaríkin Fyrir nokkru síðan kom hópur manna saman suður í Birming- ham í Alabama ríkinu, meðal ann- ars til þess að skeggræða um dýr- tíðina, og komu þeir sér saman um að reyna að gjöra eitthvað til þess að bæta úr henni ef unt væri. En það hefir nú ekki virzt svo auðvelt. Einn þeirra kom upp með að þeir, sem þar væru staddir, skyldu ganga i félag með að klæðast í strigaföt, þar til karlmanna fatn- aur yrði settur niður í hóflegt verð. Allir félust mennirnir á að reyna þetta, og afleiðingin varð sú, að félag var myndað þar sem meðlimirnir skuldbundu sig til að klæðast í strigaföt á helgum og virkum dögum þar til verð á karl- mannafatnaði lækkaði, og skrif- uðu félagsmenn undir eftirfylgj- andi skuldbindingu: “Við skuld- bindum okkur hér með til að klæð- ast i strigaföt, og vera í þim við hin daglegu störf vor, hver svo sem þau eru, og á öllum mann- fundum, bæði á helgum og rúm- belgum dögum, þar til er verð á karlmanna fatnaði lækkar svo, að hæfilegt megi kallast. — Einnig sikuldbindum við okkur til þess að láta þá, sem þessu félagi voru til- heyra, og öðrum slíkum félögum, sem myndast kunna með sama augnamiði, sitja fyrir í öllum við- slciftum.” — í þessum félögum, er nú hafa breiðst svo að segja út um öll Suðurríkin, eru og kvenfólk og börn. — Auk félaga þeirra, sem myndast hafa í Alabama, hafa nú önnur slík komist á laggir í: John- son City og Noxville, Tennesee; Lynchburg, Ceacksburg og Roan- { oke, Virgina; Natches, Missis-{ sippi; Columbus í S. Carolina;J Ashville, Greemlina og Winsten-1 Salen í North Coralina, og Col- umbus í Georgia. 1 þessum bæj- j um og borgum og nú í mörgum j fleirum, ganga dómarar, borgar-1 stjórar, læknar og lögfræðingar á j strigafötum í dómsölunum og á j sjúkrahúsunum og hvar annars- j staðar þar sem leið þessara manna liggur. Verð á strigafatnaði handa karlmanni þar syðra er nú j sem stendur $3.00, og er mikill j munur á því og $60, sem menn i þurfa að borga fyrir bærilegan j karlmannsfatnað í búðum. • Voðalegt hryðjuverk var fram- j ið um síðustu helgi nálægt Turtle Lake, N. D. Átta manns var ráðið bana á einu heimili: húsföðurn- um, Jacob Wolf, konu hans, fimm dætrum frá fjögra ára aldri til 13, og dreng, sem var þar í vist, 13 ára gömlum. Ein stúlika, átta mán- aða gömul, Emma að nafni, var íeftir skilin. Sagt er, að öll merki séu til þess, að þetta óhæfuverk hafi verið framið í eldhúsinu á heimili Wolfs og að exi hafi verið notuð til ódáðaverksins. Lík hús- móðurinnar, þriggja dætra henn- ar og vinnupiltsins, fundust öll í kjallara undir húsinu, en lík Mr. Wolfs og tveggja dætranna fund- ust falin í hálmi úti í fjósi. Fjöl- skylda þessi var vinsæl og hin efnilegasta, og skilja menn ekki hví á hana var ráðist, nema ef vera skyldi til fjár, því Wolf var sagður efnamaður. Bretland Verkamannaflokkurinn á Eng- landi er að senda menn úr sínum hópi til Rússlands til þess að kynna sér ástandið þar. peir sem fara eru: Philip Snowden, Ben. I Turnef, Robert Williams og Tom-1 Shaw Williams. Sá tíðasttaldi er einn af æstustu verkamönnum á Englandi. Frá Canada fer Arthur Martel, frá Montreal, varaforseti Trades and Labor Council of Canada. Aukakosningar eru nýafstaðnar í Edinburgh á Skotlandi í norður— og suður Edinburgh, og unnu samsteypu stjórnar mennirnir í báðum kjördæmunum með tölu- verðum meirihluta. Eins og getið hefir verið um áður, var Thomas H. Curtain, borgarstjóri í Cork á írlandi, myrtur á heimili sínu í fyrra mán- uði. Kviðdómur hefir nú rannsak- að tildrögin að morðinu og kveð- ið upp tþann úrskurð, að Mr. Cur- tain hafi verið myrtur af opinber- um lögreglu embættismönnum stjórnarinnar brezku, og beri því íorsætisráðgjafinn, Lloyd George, beina ábyrgð á hermdarverki þessu. Enn fremur sakar kvið- dómurinn landstjórann, French lá varð, Ian MacPherson fyrv. stjórn- arritara Irlands og ýmsa aðra háttstandandi mbættismenn um, að hafa verið með í vitorði um glæpinn. John French lávarður, land- stjóri á írlandi, hefir sagt af sér embætti, og hefir skipaður verið í hans stað Sir Hammar Green- wood. Hinn nýi landstjóri sækir um kosningu í Sutherland kjör- dæminu og kvað eiga þar við ram- «n reip að draga, vera meðal ann- ars sakáður um að vera stefnu- leysingi í stjórnmálum og hafa hröklast á milli allra flokka. Vefarar við bómullarverksmiðj- urnar í Lancashire hafa ákveðið að gera verkfall, svo framarlega að þeir fái ekki framgengt kröfum sínum tafarlaust um kauphækk- un, er nemi 60 af hundraði. General Denekine, rússneski herforinginn nafnkunni, er lengst hélt uppi vörn gegn Bolshevikum á Suður Rússlandi, er nýkominn til London frá Constantinople. Telja ensku blöðin víst, að hann muni þangað kominn í stórpóli- tiskum erindum, þótt enn sé ekki opinbert hverrar tegundar þau sé. Fjármálartari Breta, Austen Chamberlaine, lagði fjárlögin fram í þinginu fyrra mánudag. Kveðst hann hafa fundið aðferð til þess að auka tekjur rikisins á þessu ári um $400,000,000 eða meira. Ófrétt er enn, í hverju tekjuaukinn eigi að vera falinn, en líklegt talið að hann muni liggja í hækkuðum tekjuskatti, hækkuð- um póstflutningsgjöldum, ásamt hækkuðum vínfangatol]i og nýj- um skatti á bifreiðum. Um þesar mundir er staddur hér í Canada sonur hins nafn- fræga enska rithöfundar og sagnaskálds, Hall Cain. Er Cain yngri sendur hingað af nefnd j manna á Bretlandi til þess að j semja við Canadastjórn um viðar- ítak til pappírsgerðar. Segir hann að félag þetta hafi um fjörutiu og fimm miljónir dollara til þess að leggja í fyrirtækið. Búst er við að þeir muni ekki vinna timbrið hér, ef þeir fá ítakið, heldur að eins fella það, saga bolina í hæfilegar lengdir og flytja svo heim til Bretlands. peir, sem lengst vilja ganga í breytingaráttina (radikals) höfðu 94 þingmannsefni í kjöri. Vinstrimenn, eða frjálslyndi flokkurinn, höfðu 103, og Hægrimenn, eða íhaldsmenn, höfðu 68 og verkamenn 32. Kosningar þessar fóru fram eft- ir hlutfallskosninga Iögum, og verður næsta þing Dana skipað þannig. Vinstrimenn 48, Hægri- menn 28, Sósíalistar 42, Byltinga- menn 17 og Verkamenn 4. Aðalatriðin. Island sækir um inntöku í alþjóðasambandið. Frá Washington kemur sú frétt að landar vorir á íslandi hafi baiðst inntöku í Alþjóðasamband- ið á formlegan hátt, og er tekið fram í inntökubeiðninni að Dan- mörk hafi veitt hinni íslenzku þjóð sjálfstæði ótilkvaddir í des- ember 1918. Vér vonum að þessi frétt sé sönn því hún er öllum íslending- um gleðiefni. Enn fremur segir fréttin að Georgia lýðveldið, San Marino og Luxemburg haf sótt um inn- göngu í alþjóðasambandið. Kosningarnar i Danmörku. Almennar kosningar i Danmörku fóru fram á mánudaginn var og eru flokkarnir, sem sækja, þessir: Sósíal Demokratar, sem höfðu 109 þingmannaefni í kjöri. Eitt af því, sem venjulega ein- kennir mest þá menn, sem hafa haft sig vel á fram, er sá hæfileiki þeirra að geta á augabragði greint í sundur aðalatriði og aukaatriði. pað getur verið margt, sem við viljjum framkvæma, en aftur á móti er það fátt, sem hefir mikil- væga þýðingu fyrir oss að komist í framkvæmd, og hinn gagnlegasti hæfileiki, sem nokkur maður get- ur haft, er hæfileikinn, að sjá í fljótu bragði hvað það er, sem nauðsynlega þarf að framkvæma. Lífið er stutt, en tíminn er hrað- fara, svo að hver og einn verður að hætta við að framkvæma margt af því, sem hann Iþó gjarna vildi koma í framkvæmd, og sá má þykjast heppinn, sem hefir þá gáfu a veita auðvelt að sjá, hvað það er, sem að skaðlausu má bíða. pó menn séu ekki gæddir þessari nauðsynlegu gáfu .ríkulega frá náttúrunnar hendi, geta þeir þroskað hana talsvert mikið smátt og smátt, kosti þeir kapps um það. Hver maður iþarf að gjöra sér það að vana, að athuga á hverjum morgni, hvaða störf 'hann nauðsyn- lega þarf að framkvæma þann daginn og byrja svo á þeim þýð- ingarmestu, en láta það vera und- ir atvikum komið, hvort hin þýð- ingarminni komast í framkvæmd eða ekki. Á þennan hátt venjast menn ósjálfrátt á að athuga jafn- an hver störfin eru þýðingarmik- il og hver þýðingarlítil, og láta hin fyrnefndu sitja í fyrirrúmi. Engin lifsregla er nauðsynlegri en þessi fyrir þann, sem vill kom- ast vel áfram í heiminum, eða láta mikið og nytsamt starf eftir sig liggja.—Réttur.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.