Lögberg - 17.06.1920, Side 8
Sfcs. 8
LÖGBERG FIMTUADGINN 17. JÚNÍ 1920
BRÚKIÐ
Safnið umbúðanam og Coupons fyrir Premíur
Úr borginni
Gunnlaugur Tr. Jónsson rit-
stjóri Heimskringlu sem undan-
frandi hefir legió veikur í ill-
kynjaðri meinsemd í hægri hand-
legg, er á góðum batavegi, og von-
andi verður kominn á fætur heill
á húfi áður en langt um líður.
Mrs. G. Hannesson frá ísafold-
ar bygð, kom til borgarinnar fyr-
ir nokkru, og var skorinn upp af
Dr. J. Stefánssyni, og er sögð á
batavegi.
Mrs. Eyvör Sigursson frá
Reykjavík P. O., er nýkomin til
bæjarins á leið til íslands í skemti i
för, á^amt Margréti dóttur sinni,
er snéri aftur heimleiðis. Góða !
tíð sögðu þær ytra og heilsufar í J
bezta lagi.
Mr. og Mrs. Sigurjón EirikSson
frá Wynyard Sask., komu til borg-
arinnar fyrri part vikunnar sem
leið og dvöldu fram yfir helgina.
Mr. og Mrs. Magnús Hjörleifs-
son frá Winnipeg Beach, komu til
borgarinnar fyrir helgina, sunnan
úr Minniota Minn., þar sem þau
hafa dvalið um tíma hjá frændum
og vinum. pau hjón eru í þann
veginn að flytja til Selkirk.
Guðsþjónustur.
verða haldnar í Betel-söfnuði 27.
júní (R. C.). Fermingarbörn
spurð 25. og 26.
1 Skál'holtssöfnuði 4. júlí.
í Hólasöfnuói 11. júlí. Ferming-
arbörn spurð 8., 9. og 10.
í Jóns Bjarnasonar söfnuði 18.
júBí, í Hayland Hall. Fermingar-
börn spurð á Siglunesi 16. og 17.
Adam Porgrímsson.
Gefin saman í hjónaband, þ. 4.
júní s. I., voru þau Lárus Pálsson
og Ms. Ingibjörg Helgason. Séra
Jóhann Bjarnason framkvæmdi
hjónavígsluna og fór hún fram á
heimili hans í Árborg, Lárus er
sonur þeirra hjóna Páls Jónssonar
á Kjarna í Geysisbygð og konu
hans Sigríðar Lárusdóttir. Brúð-
irin er dóttir Helga sál Jakobs-
sonar og konu ihans Ingibjargar
Böðvarsdóttur. pau fluttu vestur
úr Borgarfirði vestra, og námu
land all-skamt norð-austur af Ár-
borg. Býr Ingibjörg þar enn með
sumum af börnum sinum. pau
Mr. og Mrs. Pálson lögðu upp í
brúðkaupsferð að afstaðinni hjóna-
vígslunni, en setjast svo að í
Geysisbygð, i nánd við ættingja
og vini, þar sem Lárus hefir keypt
ágæta bújörð til ábúðar.
Frá Islendingadags nefndinni.
Dr. Albert S. Björnsson, lækn-
ir frá Utah, var staddur hér í vik-
unni sem leið, að hitta bróður
sinn tónskáldið, Prv.óf Sveinbjörn
Sveinbjörnsson. peir hafa ekki
sést í nálega hálfa öld. Doktor-
inn, sem einnig hefir lokið guð-
fræðisnámi, er meðal hinna fyrstu
íslendinga hér vestra, en hefir
aldrei komið til Canada fyr. Hann
er ern og rösklegur þó kominn sé
á efri ár og unir vel 'hag sínum á
hinum sólmikiu suðurvegum.
Hr. Guðmundur Johnson á
Stony Hill P. O., var staddur í
bænum fyrir helgina, í erinda-
gerðum. Sagði bærilega liðan og
gott heilzufar þar ytra.
í bréfi frá Langruth þessa
dagana segir svo: “Vel lítur út
hér með jarðargróða, mátulegar
vætur nú undanfarið.”
Mrs. S. porvaldsson frá Hall-
son N. D., kom til bæjarins 1 vik-
unni sem leið ásamt börnum
þeirra hjóna, og fóru vestur til
Leslie til skyldfólks síns þar sem
þau dvelja um tíma, eða unz Mr.
porvaldsson kemur frá California
þar sem hann hefir keypt sér
heimili og hygst að flytja alfarinn
þangað með fjölskyldu sína.
Kirkjuþingsmenn eru farnir að
koma í bæinn á leið vestur til
Kandahar þar sem kirkjuþingið
á að haldast í ár. flestir munu
þeir fara vestur í kvöld, að undan
teknum þessum sem fóru á þriðju-
tlagskvöldið.
PICINIC sunnudags skóla
Skjaldbo.rgar, verður haldið, í
City Park laugardaginn 19. þ. m.
börnin koa til Skjaldborgar kirkju
kl. 1,30 e. h. fara frá kirkjunni kl.
1,45 e. h., áríðandi að börnin séu
komin á tilnefndum tíma, foreldr-
ar og vandamenn barnanna er
óska að vera með, eru boðin vel-
kominn.
Sunnudagaskóli í Skjaldborg
næsta sunnudag. 20 þ. m. kl. 2 e.
h., óskast að börnin sæki vel
skólann.
Guðsþjónusta í Skjaldborg kl.
7 e. h. næsta sunnudag 20 þ. m.
allir velkomnir. R.
Gjafir til Betel í maí.
Mrs. G. O. Arnfell ....... $5,00
S. F. Ólafsson Wpg......... 5,00
Ms. Lína Sigurðsson ....... 5,00
R. porsteinsson ........... 3,00
Mr. og Mrs. Eggert Oliver
Prins Albert B. C.......... 5,00
f apríl síðastl. gaf Pétur Odd-
son Gimli 4 til 5 dollara virði af
fiski.
Kvnnfél. Árdalssafnaðar $ 100,00
Mr. Sveinbjörn Zophonias-
Blain Wash................. 50,00
Sveinn Sveinsson Wpg........ 5,00
Með þakklæti fyrir gjafirnar
.... J. Jóhannesson Féhi'rðir
675 McDermot Wpg.
Nefndinn er að vinna af mesta
kappi, að undirbúa daginn. Sport-
nefndin er í undirbúningi með
mikið af íþróttum, og hefir skrif-
að út í íslenzku bygðirnar til að fá
hluttekníngu þeirra, og svo að
samkeppnin verði þess meiri.
Á meðal nýrra íþrótta verður
fimm mílu hlaup sem byrjar á
vissum stað í borginni, og endar
út í sýningargarði, einnig hjól-
reiðar sem legið hefir í dái í
mörg ár, en sem okkur íslending-
um þótti mikil skemtun að í fyrri
daga, og sem var eit af okkar
mestu aðdráttar öflum, og sem
góðir prísar verð gefnir fyrir.
Hinir heimsfrægu Fálkar ef til
vill sýna að þeir geti leikið knatt-
leik engu síður engu síður en að
skemta okkur á skautum.
Nefndin heldur fund á >”'erju
föstudagskveldi á skrifstofu Mr.
H. Halldórssons í Great West
Pemenaut byggingunni á aðal-
stræti, og nýjar humyndir verða
góðfúslega þegnar af nefndinni,
til þess að gera daginn sem
skemtilegastan.
Nefndin.
KENNARA vantar við Lone
Spruce skóla no. 1984 í tólf mán-
uði, frá 15. júlí n. k.
Lysthafendur verða að hafa
second class kennará próf. peir
sem sinna vilja stöðu þessari, snúi
sér til James Jhonson Sect. Tre-
asuer Amaranth Man.
Ungmenni fermd af séra Sig-
urði Ólafssyni í prestakalli hans:
Vancouver B. C. 16. maí.
Ruth Hildur Johnson
Katrin Jóhanna Ingimundarson
Ásmundur Th. Ingimundarson
Pt. Robert. Wash. 23. maí.
Anna Thompsen
Sigurrós Vog
Pauline Thora Tihorsteinsson
Thorsteina Jóna Thorsteinsson
Blaine, Wash. 6. júní.
Kristjana Margrét Líndal
Pauline Janie Sveinbjörnsson
Júlíus Kristbjörg Breiðfjörð
Gott land til sölu.
160 ekrur, hér um bil mitt á
milli Gladstone og Langruth, 35
ekrur yrktar, afgangur gott engi,
alt gott plógland, skógur skýlir
byggingunum. gott lítið timhur-
hús, fjós fyrir 12 hesfca annað fyr-
ir 35 gripi, kindahús fyrir 100
kindur brúnnur með góðu vatni.
landið alt inngirt með vír sem út-
byggir úlfum, nægilegt heyland og
beitiland.
Kostar að eins $20 ekran, allur
útbúnaður fæst á sanngjörnu
verði.
J. J. Swanson og Co., 808 Paris
Bldg. gefa frekari upplýsingar.
Mr. og Mrs. Marteinn Johnson
frá Árborg voru stödd í bænum í
vikunni. Mr. Johnson veitir
bændaverzluninni ií Árborg for-
stöðu.
TRAOE MAftK, RECISTERED
Til sölu.
að Riverton Man., nýtt fjögra
herbergja Cottage, með einni eða
tveimur lóðum inngirtum.
Umsækjendur snúi sér til Mrs.
A. H. Guðmundsson. Riverton
Man.
Ráðskona óskast nú þegar á
fáment heimili í Winnipeg. Á
sama stað fæst til leigu bjart og
rúmgott herbergi með mjög sann-
gjörnum kjörum. Upplýsingar
á skrifstofu Lögbergs.
pann 14. þ. m. andaðist að heim-
ili sínu í Blain, Wash.; Guðbjörg
Eyjólfsdóttir, kona Elísar G.
Thomsens, 37 ára gömul.' Mrs.
Thomsen var systir Mrs. Jakob-
ínu Johnson, að 659 Elgin Ave.,
Winnipeg.
Ungmenni fermd af sér N. Stgr.
Thorlákssyni:—
1. 1 Selkirk á hvátasunnu:
Marteinn Benedikt J. Ingimund-
arson.
Ingimundur Karl S. Ingimund-
arson.
Jón G. Goodman;
Stefán K. Bessason.
porkell Jónsson Skagfjörð,
Sveinn Hjaltalín S. Thompson.
Hinrik Kristinn J. Magnússon.
Jón Sveinvarður O. Sveinsson,
] Unnur Eggertsdóttir,
Edith Kristín Evens,
Rufch I. Magnússon,
Geirþrúður Benónína Freeman,
Marta Kristbjörg B. Freeman.
porbjörg Lára B. Stefánsson,
Helga Aðalhjörg p. Fjeldsted,
Steinunn S. Skagfeld.
2. Á Poplar Park á trínitatis:
Gísli Jónas H. Gíslason,
Anna Aldarrós H. Gíslason.
3. í Mikley 1. sd. . trín.:
Theodór Marino V. Sigurgeirs-
son.
Gustaf Axel V. Sigurgeirsson.
Einar Kjartan I. Eggertsson.
Hermann Bogi B. Sigurgeirsson
Marbjörg Rosie M. Doll
Katrín Undina M. Doll,
Guðmunda Jóna Margrét B. por-
steins-son.
Steinunn J. Grímólfsson.
Kristín Örnólfsdóttir, móðir por-
leifs Danielpsonar að Skógarnesi í
Mikley, lézt hjá syni Sínum um
miðjan maií. Var hún ekkja á sjö-
tugsaldri. Verður hennar minst
nánar síðar. Hafði porleifur og
kona hans, Guðrún, dóttir Helga
Ásbjarnarsonar, mist dóttur um
20. jan. ungbarn að nafni Maria
Helga.
Að kvöldi þess 12. þ.m. gaf séra
N. Stgr. porláksson saman í hjóna
band þau David Foltz og Margéti
Sigurðsson á heimili foreldra brúð-
urinnar, Árna Sigurðssonar og
Guðrúnar konu hans, að 311 Tayl-
or Av., Selkirk. Var rausnarleg
veizla á eftir. Er brúðguminn
rússneskur, af þ ýzkum ættum.
Verða ungu hjónin til heimilis
fyrst um sinn hjá foreldrum brúð-
urinnar.
Ættareinkennin tvenn.
pegar ihartnær heilög jól,
í huga og hjarta berðu,
verndan bjartri sannleikssól
svip þinn skarta sérðu.
Ættarsvipinn aldrei fól
æru klipin dári
Ivgahrip né lymskutól
lasta gripinn fári.
M. Ingimundarson.
Mrs. Paul Johson frá Wynyard,
Sask., hefir dvalið í borginni
nokkra daga.
Winnipegosis
í Lögbergi 3. þ. m. birtist ofur-
lítil grein eftir mig um Winnipeg-
osis, sem er ein af þelm' miður
kunnu íslenzku nýlendum, og lét
eg þar í ljósi ásetning minn að
gefa lesendum Lögbergs kost á að
kynnast betur þessari nýlendu
sem að minu áliti ætti að vera lönd
um mínum vel kunn Mæltist eg
því til um það við vin minn Finn-
boga Hjálmarsson, sem Iengi hef-
ir verið búsettur í Winnipegosis,
að hann sendi mér frekari upplýs-
ingar um - landslag og landkosti
nýlendunnar, • og ýmislegt annað,
sem honum kæmi til hugar, og
birtast þær hér óbreyttar:
“Winnipegosis stendur við suður-
enda Winnipegosis vatnsins, og
dregur nafn sitt af því. Bærinn
uós
ÁBYGGILEG
AFLGJAFI
S
-------og----
Vér ábyrgjumst yður varanlega og óslitna
ÞJCNUSTU
Vér æskjum virðingarfylst viðskifta jatnt fyrri VERK-
SMIÐJUR sem HEIMILI. Tals. Main 9580. C0NTRACT
DEPT. Umboðsmaður vor er reiðubúnn að finna yður að
máliog gefa yður kostnaðaráællun.
WinnipegElectricRailway Go.
w
ONDERLAN
THEATRE
GENERAL MANAGER
Dráttvélin, sem vinnur verk sitt
sleitulaust. Margar dráttvélar
fyrirliggjandi.
í viðbót við Plow Man höfum
vér margar aðrar dráttvélar
sama sem nýjar á þessu fram-
úrskarandi lága verði:
8-16 Mogul ..... .... $500.00
10-20 Bull ........... $395.00
10-18 Case ........... $900.00
12-25 Watrloo Boy.... $750.00
Allar þessar dráttvélar í bezta
ásigkomulagi, eru til sýnis og
sölu hjá
THE NORTHERN IMPLE-
MENT CO., LTD.
Foot of Water Street
Winnipeg, Man.
Miðvikudag og Fimtudag
Blanche Sweet
“A Woman of Pleasure”
Föstudag og Laugardag
Alice Lake
“Shou/d a Woman Tell?”
Mánudag og PriJjudag
Edith Roberts
“The Triflers”
ALLAN LINAN
Heldur uppi stöBugfum slgllngrum I
mllli Canada og pretlandff. Hefir
mörg og stór skip 1 fðrum: "Em-
press of France”, 18,500 smálestir,
er að elns 4 daga í opnu hafl, 6 I
| daga á milll hafna. Og mörgf önn- I
ur, 10,500—14,000 smlestlr, lítið j
eltt seinni I ferðum. — Sendir far- I
gjöld til íslands og annara landa |
og svo framvegls.
Upplýslngar fást hjá
H. S. BARDAL,
894 Sherbrooke Street
Winnipeg, Man.
Wondtrland.
Ávalt beztu myndirnar á Wond-
erland. Miðviku og fimtudag “A
Woman og Pleasur”, föstudag og
iaugardag “Shoulda a Woman
Tell?” Á meðal leikara má nefna
D. WT. Griffiths og Edith Roberts.
Phone: Garry 2616
JenkinsShoeCo.
639 Notre Darae
Avenue
3%
0VERALLS
sem fu'll ábyrgð fylgir
BLÁAR OVERALLS
Háar að aftanverðu og mjög
þægilégar, Sterkt Denim
$3.75 $3.50 og $3.00
STRIPED OVERALLS
$3.50
White & Manahan,
Limited
500 Main St., Winnipeg
MRS. SWAINSON, að 696 Sar-
gent ave. hefir ávalt fvrirliggj-
andi úrvalsbirgðir af nýtízku
kvenhöttum.— Hún er eina ísl.
konan sem slíka verzlun rekur í
Canada. íslendíngar látið Mrs.
Swainson njóta viðskifta yðar.
Talsími Sher. 1407.
er hér um bil 23. ára garmall, og
átti framan af árunum örfáa í-
búa, sem eingöngu stunduðu fiski-
veiðar. Fyrstu árin náði járn-
brautin ekki þangað, og urðu menn
því að flytja afla sinn til bæjarins
Sifton, sem þá var búinn að fá
járnbraut. Sifton er tuttugu
mílum sunnar en Winnipegosis,
en undir eins og brautin milli
bæjanna var lögð, byrjuðu inn-
flutningar bæði tiil landnáms og
fiskiveiða í vatninu.
íslendingar þeir sem undanfar-
in ár hafa búið á nýlendunni hafa
allflestir stundað bæði nautgripa
rækt og fiskiveiði, og hefir þeim
liðið vel efnalega, þótt flestir
þeirra hafi komið þangað með
tvær hendur tómar. Nú búa í
bænum 32 íslenzkar fjölskyldur,
sem eiga hús og bæjarlóðir, sumir
eina og aðrir tvær eða fleiri. Auk
þess búa í bænum nokkrir ein-
hleypir menn sem eiga hús og fast-
eignir, alls munu hér um bil 135
íslendingar eiga heima í bænum
sjálfum. Bæjarlóð 50X140 mun I
nú kosta nálægt 150 dollara í út-1
jaðri bæjarins.
í grend við Winnipegosis er
landslag þannig á sig komið: skóg-
arbelti fmest ösp) liggja frá
norðri til suðurs, eru þau hér um
bil hálfa mílu á breidd, svo koma
mýrar og flóar álíka á stærð.
pannig skiftist landið hvað af
hverju með líkri lögun. Oftast nær
eru þessar mýrar mjög vel grasi
vaxnar.
í skógum, og þar sem land er
hærra og öldumyndaðra er víða
mjög grýtt, og jarðvegur þunnur;
samt hefir reynslan sýnt, að gras-
vögstur er þar góður. Sumir ó-
reyndir búendur hafa látið sjón-
hending eina dæma jörð þessa ó-
hæfa til notkunar, en mikið fé og
mikla vinnu kostar að rækta hana.
í skógunum eru þessar viðarteg-
undir: Álmur, askilr, birkiviður,
Tamarac og eik mjög lágvaxin og
kyrkingsleg.
Á tan^a fyrir norðan Winnípeg-
osis er nefnist Red Deer P. O.,
búa nokkrar íslenzkar fjölskyldur,
og hafa supiir þeirra búið þar
nærfelt í 20 ár; þeir hafa þar
barnaskóla, og búa við góð efni,
og lifa í kristilegu bróðerni, eins
og góðum íslendingum hæfir.”
Eg gat þess í fyrri grein minnl
i Lögbergi, að Winnipegosis væri
nokkuð afskektur, og að það væri
sjálfsagt orsökin til þess að ís-
lendingabygðin þar, væri ekki eins
vel kunn og hún ætti skilið. En
eg vil hér benda á, að það eru all-
margir í stórbæjum og jafnvel
víðar, sem skoða það einmitt sem
kost, að þeir geta notið náttúru-
fegurðarinnar í kyrð og næði, það
er sjálfsagt ætíð gaman að hitta
aftur um sumartímann góða kunn
ingja og vini sem maður sá kann-
ske dags daglega um sumartím-
ann í einhverjum stórbænum, en
það er þó stundum, að manni þyk-
ir vænt um að fá einhverja tilbreyt
ingu jafnvel þegar um bróðurkær-
lerkann er að ræða, og af honum
er nóg meðal íslendinga í Winni-
pegosis, það er mín reynsla.
Sv. Sveinbjörnsson.
TIL ATHUGUNAR.
Viður óskast keyptur
The Caledonia Box and
Mannfacturing Co. Ltd.
kaupir nú þegar, gegn háu verði,
Spruce og Poplar í heilum vagn-
hlössum. Finnið oss strax eða
skrifið.
1350 Spruce Str. Winnipeg
Phone M. 2715
Eina íslenzka hús-
muna verzlun í Wpeg
Við kaupum og seljum brúk-
aða innanhúss muni af ’öllum
tegundum, gerum við húsmuni,
smíðum hljómvélar og mynda-
ramma. Sjáið okkur.
IOWNA FURNITURE CO.,
320 Hargrave St.
Eigendur
S. Eymundson.
J. G. Gunnlögson.
í aug/ýsingu frá Canadian Co-
operative Wool Growers, sem birt-
ist í Lögberg/ 3. júní s.l., slæddist
sú villa inn, að tilkynningin er
dagsett 20. júní, en átti að vera 1.
júní, eins og “Coupon”inn ber með
sér.—Bændur eru vinsaml. beðn-
ir að taka þessa leiðrétting til
greina.
S. D. B. Step'henson verzlunar-
maður frá Eriksdale var á ferð í
bænum um síðustu helgi.
BIFREIÐAR “TIRES”
Goodyear og Domlnlon Ttres ®tit
4 rettium höndum: Getum (lt-
vegafi hvaöa tegund sem
þér þarfnlst.
Aðgerðum og “Vulcanlzlng" sér-
ntakur gaumur gefinn.
Battery aCgerðlr og bifretCar tti-
búnar tll reynslu, geyradar
og þvegnar.
ACTO TTRE VDÍ.CANIZING CO.
309 Cumberland Ave.
Tals. Garry 27C7. OplC dag og nötL
Merkileg tilkynuing
Til Bænda í Canada.
Húsaviður ! Hurðir! Glnggar! ■
Mál, Gler, Harðvara, Grates ■
T ígulsteina og alt til bygginga ■
Vegna ýmsra orsaka, svo sei
skildinga þröngar og hárra prísa
á hrossafóðri í þessu landi, höfum
vér samið við U. S. Tractor Co. á
þann veg, að vér getum nú selt
“B” Model 12-24 U. S. Tractor,
fyrir borgun út í hönd eða smám-
saman hverjum áreiðanlegum
bónda. Prísinn er nú $860.00 á
hverjum albúnum til notkunar.
Vér höfum nú stórar birgðir til
viðgerða og alla Ihluti til dráttar-
véla fyrir markað í Canada. Vér
höfum einnig gát á viðgerðum haf-
anna á milli og alla leið suður að
Florida og Texas. Fyrir því
skyldu bændur I Canada ekki hafa
áhyggjur af viðhaldi og viðgerð
dráttvélanna.
Vér söljum einnig plóga og olíu
og áburð á þessar vélar fyrir
rýmilegt verð.
Eftir ýtarlegri upplýsingum
skrifið
T. G. PETERSON,
961 Sherbrooke St.
Winnipeg.
Aðal umboðsmaður í Canada.
“Marine Gasoline Engines”
Ókeypis—skrá með myndum af
Gasolíu og Oliuvélum, ýtrum;
prisar tuttugu og sex smiða;
einnig brúkaðar vélar. Nefnið
þetta blað. Canadian Boat and
Engine Exchange, Toronto.
43 Yonge St., Toronto
— v>, r>^
\ ^H ^H
Records
Stofu Dansar eru í afhaldi
Columbia panslögin, eins og þau eru leikin á Columbia Graphondla
hafa hið rétta hljómfall og nægilegan styrk, þótt dansað sé undir
berum himni eða hvar sem vera skal.
Nýjustu Columbia danslögin fást ávalt hér og einnig þau gömlu.
ISLENZKAR HLJÓMPLÖTUR:
“Ölafur reið með björgum fram. " “Vorgyðjan,'- “Björt mey og hrein." og “Rósin."
Sungið af Einari Hjaltsted
“Sólskrikjan,'- og “Ég vil fá mér kærustu.”— Fíólín spil
"Humereske,” (Sveinbjörnsson)-—Ftólín.
SUNÓIÐ Á DÖNSKU: “Hvað er svo glatt," “Den gang jeg drog af sted.''_
SUNGIÐ Á NORSKU : “ Ja. vi elsker dette landed" og “Sönner af Norge."
Swan Manufacturing Co., 676 Sargent Ave., Winnipeg—Ph. Sh. 805
H. Mathusalems, eigandi
Nýjar Columb/a hljómplötur koma á markaðinn 10. og 20. hv. mán.